Lögberg


Lögberg - 25.09.1919, Qupperneq 5

Lögberg - 25.09.1919, Qupperneq 5
LÖGBERtí. FIMTUDAGINN 25. SEPTEMBER 1919. Bls. 5 Áflstöð Yðar Eigin Bœjarfélags getur sparað yður 50% á eldsneytisreikningnum. Cldið Við Rafmagn og gerið yður gott af ódýrasta 3uðu- magninu í Norður-Ameríku. I City Light & Power ■ | 54 King Street | Jóns Bjarnasonar skóli. hóf 7. starfsár sitt kl. 9. f. h. í gærmorgun. Síðar verður ná- kvæmar frá þessu skýrt. Hátíðarhald, Opinber samkoma, sem öllum er boðið til, fer fram, ef g. 1., í Fyrstu lút. kirkju, næstkomandi mánu- dagskveld, 29. sept., byrjar kl. 8. Séra Hjörtur J. Leo, sem öllum Vestur-íslendingum er kunnur, meðal annars, fyrir ræðusnild, verður aðalræðumaður á samkom- unni. Sönggyðjan verður þar að vanda með nokkuð af sínu ágæta starfsfólki. Menn mega búast við unaðsríkri stund. Allir eru vel- komnir. Enginn inngangur seld- ur og engin samskot. Samkoma er einnig ákveðin næsta kveld á eftir, þriðjudaginn 30. sept. og byrjar kl. 8 að kveld- inu. Hún verður haldin í skólan- um, 720 Beverley St., par gefst öllum tækifæri að sjá skólann, stækkaðan og endurbættan, og þar gefst mönnum einnig kostur á því að sýna skólanum áþreifanlega velvild. Að stækka hann og end- urbæta hefir kostað mikið fé, en margar hendur vinna létt verk og sigursæll er kærleiksríkur, góður viiji. Eg spái því að stór hópur af fslendingum sæki skólann heim þetta kveld og gefi honum stðra fjárupphæð. En munið eftir því að þið eruð allir velkomnir hvprt sem þið hafið peninga eða ekki. Enginn inngangur seldur, aðeins ''tekið á móti gjöfum. Engin nauð- ung, alt óþvingað og frjálst. Söng- listin verður þar einnig til skemt- unar. Komið öll og hjálpið okkur til að syngja íslenzka söngva. — Kaffi og brauð fyrir alla sem koma. Guð blessi skólann. Eldgamla fsafold. God Save the King. *' veglegt gildi í minningu um 25 ára giftingar afmæli þeirra, að þeirra eigin heimili. Komu þar saman um hundrað manns og gjörðu fyrst vart við sig með því að syngja: “Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur”. Að því búnu talaði séra Sigurður ólafsson til húsráðenda og gjörði grein fyrir erindum komumanna og bað um leyfi til að ráða húsum á meðan erindum gestanna væri skilað. Gengu þá allir til stofu og leiddu húsráðendur til sætis á brúðar- bekk í annað sinn. Talaði þá séra Sig. Ólafsson til þeirra aftur, og mintist á ýmsa fallega muni— borðáhöld— sem sveitungar þeirra og nágrannar færðu þeim. pá var sungið kvæði eftir Sigurð Jóhanns- son, sem hér með fylgir. Söngn- um stýrði herra Pétur Juðjohnsen frá Vancouver, lærður og lipur söngmaður. par næst flutti Mrs. M. J. Benedictsson silfurbrúðhjón- unum einkar fagurt kvæði, sem einnig fylgir. Afhenti hún þeim dýran og skrautlegan borðbúnað, sem á var ritað: “Frá mömmu”, til silfurbrúðhjónanna. Sömuleið- is fagra silfurmuni frá systrum brúðgumans og tengdabræðrum. Talaði Mrs. Benedictson fyrir nefndum hlutum af hinni “mestu snild og lipurð”, svo unun hafði verið á að hlýða. K. Sæmundsson hafði einnig talað nokkur orð til silfurbrúðhjónanna. Vinir þeirra, sem ekki gátu sótt mótið, sendu þeim vinarorð og hugheilar óskir. Á meðal þess er þetta frá Mr. og Mrs. S. Mýrdal: “Styrki ykkur Drottinn á stund- legri lóð, að standa þó meðlæti hverfi. Svo fyrir Jesú blessaða blóð þið bústaðinn himneska erfi.” Yfir höfuð hafði mótið verið hið ánægjulegasta. Fólk skemti sér fram á miðja nótt, með söng og samræðum, og skyldu svo í góðu skapi og fórú heim til sín. Heilbrigð skynsemi krefst þess að menn kaupi Victory Bonds. Bændur Vesturlandsins hafa sér- staka ástæðu til þess, að styðja Victory-lánið. Sigurlánið fyrirhugaða, hlýtur samkvæmt eðli sínu, að eiga hlýja bletti í hugum bændanna, einkum þó í Vestur-Canada. — Framtíð landbúnaðarins er að miklu leyti undir því komin, hvernig til tekst með Sigurlánið. Ekki einasta veita Sigurlánsskírteinin bændum góð- an arð af því fé, sem í þau er lagt, heldiir einnig verður á þann eina hátt trygður ábatavænlegur mark- aður fyrir framleiðsluna í heild sinni. Á viðskiftunum við önnur lönd, hvílir auðnumagn þjóðarinnar. En til þess að geta haldið slíkum við- skiftalindum opnum, þarf stjórn landsins á miklum peningum að halda, og í þeim tilgangi einum, er Victory-lánið boðið út. Kornyrkjumenn í Vestur-Cana- da, fá í ár að minsta kosti $2.15 fyrir sérhvert bushel af hveiti, og hlutfallslega gott verð fyrir flest- ar aðrar afurðir. Slíkir framleið- endur hafa því sannarlega góða og gilda ástæðu til þess að styðja Sigurlánið, því með því eru þeir að styðja sinn eiginn hag betur, en þeim getur unt orðið á nokkurn annan hátt. Framkvæmdarnefnd Sigurláns'- ins skorar því á bændur, að láta þátt-tökuna verða sem allra al- mennasta. — Margt smátt gerir eitt stórt! Fréttabréf. Point Roberts, Wash. 10. sept. 1919. Herra ritstjóri Lögbergs:— Af því það ber svo sjaldan við að fjölment vina-mót sé haldið á meðal íslendinga í þessari bygð, þykir vert að geta þess þegar það er gjört. pað var 29. júlí s. 1., sem þeim hjónum, herra Jónasi og húsfrú Jóhðnnu Sveinsson var haldið TIL Jóhönnu og Jónasar Sveinssonar á 25 ára giftingarafmæli þeirra 29. júlí 1919. Yfir vegu ekki farna elskendanna morgunstjarna lýsir mild frá hugar-heimi hjartans blíða drauma vor. ótal vonir laða, leiða ljósglit yfir framtíð breiða, klæða í töfra helgri hylling hversdagsleg, en óviss spor. Var ei svo í æsku yðar? — Alt við gjafir vorsins miðar æskan ljúf á öllum tímum æ hin sama í gær og dag. Sumardýrðin dásamlega —Drottins verkið haganlega endurskin í ungra sálum — ómar lífsins gleðilag. pegar árdag æfi hallar alvarlegri raddir kalla ástarhylling, ábyrgð stærri æfin hér í skauti sín; aðrir tónar, unaðslindir aðrir geislar — skuggamyndir dýrri gleði, dýpri sorgir dreggjum blandið lífsins vín. pannig skiftist æfin. — Allir eiga sínar töfra-hallir, raunaspor um rökkurstundir rekur annað hvað, á jörð. Rúnaletrið, reynslutíma roði morguns, dagur, gríma blítt og strítt, en yfir öllu ástin Drottins heldur vör^S. Pó að breytt sé mörgu mikið — meira en hérna á er vikið ýmsu frá þeim unaðsstundum, allir mega þetta sjá. Gegnum aldarfjórðung farinn funar enn við heima-arinn hyrr í brjóstum enn þá ungum eldri samt, en voru þá. Ereifagurt yfir líta? Er ei gott þéiín lögum hlíta sem að Drottinn ætlar öllum ei þó verði stundum séð? Æfidaginn endilangan yður reynist lífsins gangan fram að hinsta hjartaslagi hverri stundu betri með. M. J. Benedictsson. 25 ára gömul hjón. Lag: Á vorin, já, á vorin. pað er dýrara en málmur að ganga lífsins leið, og lifa til að vinna á öllu sigur og eiga að lifa í útlegð um aldarfjórðungs skeið, það eyðilagði margan, sem var digur. En hérna stendur Jónas sem hetja þennan dag og hjá honum hún Jóhanna sér tyllir. sem húsfreyja og móðir, þið minnist þess í dag, til maklegs heiðurs rúmið sitt hún fyllir. Við vitum það, sem reyndum, að gatan var ei greið og grjót er nóg við hafið beggja megin, að finna ykkur heilbrigð við fjórðungs aldar skeið sá fögnuður skal ekki frá oss dreginn. Og sólin hrein og blessuð hún signir þennan fund og söngfugl glaður morgunlagið tekur. Og gjafarann við lofum, sem gaf oss þessa stund, þann Guð, sem alla lífsins gleði vekur. Og við sem ekki komum á fagnaðs fundinn þann við frá oss sendum óskir hjartans hlýjar á hverjum lífsins morgni þá röðull fríður rann hann rétti ykkur lífsins vonir nýjar. Sigurður Jóhannsson. Ræða séra Einars Friðgeirssonar á Borg á 50 ára afmœlishátíð kauptúnsins í Borgarnesi, 22. marz 1917. Tilefni þessarar samkomu er öllum kunnugt — fimtíu ára afmæli þessa kauptúns. — Mjer hefur veriS fengið það hlutverk, að mæla fyrir minni afmælisbarnsins. — Saga þess er auð- vitað hvorki mikilfengleg nje stór- viðburðarik, þar eð ekki eru full 4 ár síðan það hætti að ganga með, — og spenti sig megingjöfðum vaxandi verslunar og velmegunar til sjálf- stæðrar framkomu í sóknum og vörn- um. — Því minna söguefni sem jeg þykist hafa, þvi meiri nauðsyn knýr mig til að nota allar umskæfur, og reyna að seilast lengra aftur í tímann en til sjálfs löggildingardags- ins.- — 1. kaflinn á að ná yfir tíma- bilið frá ísöld til landnámstíðar. — En hjer verð jeg auðvitað að “kríta liðugt”. “Taugarnar þúsundir ísvetra ófu” fHrannir 102). Svo kemst eitt af skáldum vorum að orði, þegar hann vill beita orðkyngi sinni til að leiða oss fyrir sjónir, af hvaða toga ættar- eðli Egils Skallagrímssonar var spun- nið. Kuldi og hörkuleg lífsskilyrði höfðu skapað kjark og þrótt í kynið. Hinu lingerða var ekki líft á þeim stöðvum þar sem forfeður hans og formæður höfðu háð lífsstríð sitt. — En þetta leiðir einnig huga minn að frumsögu Borgarness, — þegar það var “í eyði og tómt”. — því “öld eftir Öld grúfðu norðursins nætur ] í nið- dimmum rjáfrum — — og önduðu hörku”; — land var hjer alt hulið skriðjöklum, sem ýttu fjallháum jök- um út á fjörðinn, líkum þeim, er Grænlandsjöklar senda nú til sjós, og koma oft í kynnisför upp að vorum ströndum. — En segulpólarnir smá- toguðu hnöttinn í oss hagkvæmari af- stöðu við sólina, — og heitu haf- straumarnir leituðu meir og tneir hingað til lands. Jökullinn bráðnaði, — og upp skaut holtum og hólum og hrikalegum urðum. Nú byrjaði lífið að brjótast til valda, og að liðnu órofi vetra vetra frá ísöldu var þetta nes alklætt gróðri, — skógi og grænu grasi. — Nú sat það í skrautbúningi skemmumeyjar og beið — beið þess að einhverjar verur birtist, — verur sem kynnu að dást að þvi og njóta þess arðs og yndis, sem það geymdi x skauti sínu. — En eins og biðin varð skemmum'eyjunum oft löng og þreytandi,—svo varð og biðin Nesinu löng. Ölduhljóðið sagði þvi sögprr um eitthvað fjarlægð, — en að milli þess og umheimsins væri svo mikið djúp staðfest, að yfir það kæmist enginn nema fuglinn fljúg- andi og selurinn syndandi. Og hvorki fuglinn nje selurinn ljet á sjer standa. Faraósliðið tók sjer hjer fastar stöðvar — blöðruselir, gran- selir, vöðuselir, láturselir o. s. frv. —, og hér flöktu fuglar um dranga bjarga og sungu sálma hjá sólar- vanga. — Æðarfuglinn morraði makindalega í dúnsænginni og bjarg- fuglinn húkti á hverri klettahyllu. Allur fjörðurinn moraði af lífi. Hjer var þá hreinasta paradís — ekkert grandaði öðru á landi, — þvi Faraós- liðið lifði á tómum laxi og kola og hafði ekki lyst á fuglasteik. — En bannsettur höggormurinn læðist inn í sjerhverja paradís, og svo fór ein- nig hjer. Alt í einu kom refurinn eins og skollinn úr sauðarleggnum. Hann var fagur á að líta, i grámór- auðum feldarbúningi og sakleysisleg- Að spara Smáar upphæðir lagðar inn í banka reglulega geta gert stærri upphæð en stór innlög, sem lögð eru inn óreglulega. Sá sem gerir sér að vana að leggja inn peninga, hann fær löngun til að sjá upp- hæðina stækka. Rentur gefnar að uppihæð 3% á ári, lagt tvisvar við höfuðstólinn. Byrjið að leggja inn í sparisjóð bjt u Notre Danie Urancb—W. H. HAMILTON, Manager. SelkirU Brancli—F. J. MASNiNtí, Manager. i ur á svipinn, en munnurinn á honum Jacobson, dóttir Jóns landsbóka- reyndist slæmur, svo frá þeirri stundu | að hann nam land sjer i urðunum var | alt ætilegt i hers höndum og ekkert j kvikt óhult, gæti það ekki bjargað ; sjer á sundi eða flugi. — Rebbi tók sjer nú konungsvald í Nesínu, og hann og kynrefir hans voru hjer svo einvaldir á landi ár eftir ár og öld eftir öld. — uns einn æruverður dratthali, ef til vill átjánhundraðasti ættstuðull frumkonungsins, var að ganga rekan hjer, og sá þá mitt í rekaviðarkösunum nálægt Nesoddan- um undarlega lagaðan trjebút, og lagði megna fýlu af honum, — hafði hann aldrei fyr fundið slíka lykt. En er hann hafði nákvæmlega virt fyrir sjer drumbinn, þóttist hann vita að hann mundi vera holur að innan og þar dyljast eitthvert gamalt hræ. Enda sannfærðist hann um það af óvenjumiklum hrafnagangi. — En er hann stóð þar og undraðist þetta nývirki, kom hópur af undarlegum verum fram úr skóginum á næsta holti. / Hugði hann það vera útseli, er risu óvenjuhátt að framan; þá sjón hafði hann oft sjeð áður, en þetta var þó nokkuð öðru visi, og var ekki laust við að beygur færi um hann; en fyr en varði skaut eitt aðkiomudvrið að honum oddhvössu, aflöngu skeyti, sem stakk hann á hol. þar með var lífi hans lokið og riki refanna í Nesinu; þvi nú var kista Kveldúlfs rekin, og hásetar hans búnir að finna hana. Hlóðu þeir að henni grjóti til bráðabirgða, uns veglegri haugsetning yrði við komið og efnt til erfis. Hjer læt jeg 1. kap. Borgarness- sögu enda, — og vil eg nú láta eitt af skáldum vorum lýsa innsiglingunni og aðkomunni, er hið fyrsta skip lagði leið sína til Borgarness. — Sjónarsviðið er málað um sólarupp- komu snemma sumars. Nú beygir farið af Faxasjó — inn fjörðinn. Burtu með svefn og drunga! Það morgnar. — Fuglar sjást fljúga til unga með fenginn sinn ljetta’ eða þunga. Nú flýtur inn álinn. Flóðið er nóg.---------- Fellur inn hafið hjá mýrum og mó, í móðunnar skál eins og útrjett tunga. Bygð virðist sofa. Ei hræring nje hljóð frá hamarsins brún að flæðarsandi, en árljóma skrýðast sker og grandi sem skrautsteinar glitri á bandi. Það andar ei vindur um ægisslóð. En austurátt logar í purpuraglóð. Jöklanna enni sjást upprjett og skær efst upp’ til lands yfir skýjanna kafi. Og snjóheiðar falda fannhvítu trafi með flakandi skykkju lafi.------- En neðan við kjölinn er knálega synt. Þar kastar sjer lax, eftir eðlinu blint! Tómt silfur og gull, eins og mynt við mynt, í málmdysaeldi glítrar öll hjörðin. fHafblik 33.J Framh. < Til skýringar. pað er misskilningur í frétt- um frá íslandi um “pjóðernis- mál”, að forstöðunefnd pjóð- ræknisfélagsins hér hafi ákveð- ið að hinn væntanlegi maður sem sendur yrði vestur af félag- inu “íslendingur”, eigi að flytja fyrirlestra við Jóns Bjarnason- ar skóla, um ísland og sögu þess. . Um verkefni þessa manns hefir I nefndin ekki enn fastákvarðað að öðru leyti en því, að hann flytji fyrirlestra á meðal Vestur- fslendinga. Frá Islandi. Búnaðarfél. íslands. Guðgeir Jónsson kennari í Vík, hefirr skrifað og safnað frásögn- um í Kötlugosinu 1918, og hefir Ársæll Árnason gefið það út í lag- legu kveri með myndum og upp- dráttum. Sæsíminn slitnaði aðfaranótt 14. ágúst, og hefir ekki verið gert við hann enn. Búist þó við, að það takist bráðlega. Bilunin er sunnan við Færeyjar, á sama stað og áður, og valda straumar. pann 17. ágúst voru gefin saman í hjónaband af bæjarfógeta Sæt- ersmoen verkfræðingur, sá er gert hefir mælingarnar við pjórsá fyr- ir Títansfélagið, og frk. Helga Mjólkurverð í Rvík hefir nú hækkað aftur upp í 72 au. líterinn. varðar. Ragnar Lundborg framkv.stjóri frá Stokkhólmi, sem lengi hefir látið íslandsmál mikið til sín taka og jafnan tekið í þeim málstað fs- lendinga, er nú staddur hér í bænum ásamt frú sinni og tveim dætrum ungum. Hann hefir ekki áður komið hingað til lands og dvelur hér fram til 28. ágúst. Til þess að kynna sér spítala- byggingar, eru þeir nýfarnir til útlanda, kostaðir af landinu, Guðm. Hannesson prófessor og Guðjón Samúelsson húsagerðar- meistari. » í bókaverzlanirnar eru nú ný- komnar þessar bækur: Trú og sannanir, eftir Einar H. Kvaran; Út yfir gröf og dauða, eftir Ch. L. Twedale, þýðing eftir Sig Kr. Pétursson, með formála eftir Har- ald prófessor Níelsson; Fornar ástir, sögur eftir Sig. Nordal. — Aðalútsala í Bankastræti 11, hjá pór, B. porlákssyni. —Lögrétta. Ur bænum. Listi yfir gjafir til Jóns Bjarna- sonar skóla kemur í næsta blaði. . S. W. Melsted. Mr. Egill Zoega frá Silver Bay, Man., kom til borgarinnar á þriðjudagsmorguninn snögga ferð. Fólk ætti alment að muna vel eftir samkomu Skjaldborgarsafn- aðar, sím auglýst er í þessu tölu- blaði Lögbergs, og haldin verður fimtudagskveldið þann 2. okt. næstkomandi. Skemtiskráin er fjölbreytt, og geta menn því áreið- anlega notið þar glaðrar kveld- stundar. í Lögbergi frá 18. þ. m. er getið um bifreiðarslys, sem varð nálægt Bald Eagle, Minneota, þar sem tveir prestar mistr lífið. par hef- ir slæðst inn prentvilla, átti að vera Minnesota. Slys þetta skeði þar sem frá er skýrt, en prestarnir áttu heima í Stillwater og hétu Conrad Clatzmair og Jules Perigord. Nákvæmlega er sagt frá þessu hryllilega slysi í “Stillwater Daily Gazette”, sem Mrs. J. S. Thorwald hefir góðfús- lega sent oss. Verðlaunasjóður íyrir verðlaun í íslenzku við Jóns Bjarnasonar skóla. Söfnunarmað- ur: Séra Halldór Johnson, Leslie, Sask.: Fúsi Magnússon, Elfros .... $1.00 Jóhann Sigbjörnsson, Leslie 1.00 Halldór Stefánsson, Hólar .... 1.00 Sig. Kristjánsson, Kristnesi 1.00 Magnús Ólafsson, Kristnesi 1.00 ATVINN A. Matreiðslukona og þjónustu- stúlka geta fengið góða atvinnu undir eins. Upplýsingar veitir Mrs. A. Strapg, 61 Edmonton St. Phone M. 864. í hringhenduvísunum “Vor” eftir mig, hafa orðið tvær prent- villur í síðustu vísunum. pannig: Laus um hólinn líð eg þá létt og blómin rósa. Á að vera: Laus um hólinn líð eg þá létt og bólin rósa o.s.frv. Hin villan er í síðustu vísunni Verndun villidýra og fugla. Manitoba fylki á því láni að fagna, að eiga innan takmarka sinna mesta sæg af villidýrum og fuglum. Sumar dýrategunda þessara, eru sérstaklega verðmætar, sökum framúrskarandi góðra, skinna, en aðrar sökum þess, hve mjög fágætar þær eru annars- staðar í heiminum. Sumar af þess- um fuglategundum eru einnig stór- nytsamar af þeirri ástæðu, hve mikið þær uppræta af skaðlegum skor- kvikindum. Frá sjónarmiði laganna, koma slik villidýr og fuglar undir eignarétt fylkisins, og hafa tveir Iagabálkar verið samþyktir af þinginu í þeim til- gangi, að sjá tilveru þessara villidýra borgið. Lög þessi nefnast “The Game Protection Act” og “The Insectivo- rous Birds Act”. Framkvæmd laga þessara heyrir undir The Game Branch of the Mani- toba Department of Agriculture. Samkvæmt The Game Protection Act, geta menn fengið leyfi til þess að skjóta dýr þessi og fugla á viss- vm tímum árs, hjá The Game Branch. Þessi lagabálkur inniheldur einnig allar þær skorður, sem settar eru við slíkri veiði. Lög þessi banna að Prairie Chickens séu skotnir á nokkrum tima árs. Þau gefa einnig eftirfylgjandi fyrirmæli: Eigi má_ skjóta nokkrar skepnur á sunnudegi. þannig: paðan frá þó stutt sé stund staðinn sjá eg eigi o.s.frv. Átti að vera: staðinn sjá eg megi o.s.frv. J. J. Danielsson. Kötlugosið 1918. Frásagnir úr Vík og Heiðar- dal, Hjörleifshöfða, Skaftártungu, Álftaveri, Meðallandi og Síðu. Tvær myndir og uppdráttur af • jöklinum og svæði því, er flóðið ] fór yfir. Vönduð útgáfa. Verð að eins 90c. Allir, sem vilja vita, hvað eld- gos eiginlega er, ættu að eignast bók þe«sa. Fæst hjá mér og út- sölumönnum mínum. Finnur Johnson. 698 Sargent Ave., Winnipeg. Bandað er að skjóta á nokkurri landeign, án Ieyfis eiganda. Hvorki má skjóta villidýr né fugla, fyrir sólaruppkomu, eða eftir sólset- ur, að undanteknum viltum öndum og gæsum. Á dýraveiðum, það er að segja við veiði þeirra dýra,\ sem kall^st “big game”, verður veiðimaður að nota fullkominn, hvítan veiðibúning, ásamt hvitri húfu. Bannað er að nota hunda til þess að elta uppi dýr. Hvorki má selja fugla eða dýr, sem skotin eru undir veiðileyfum þessum. Bannað er með öllu að eyðileggja hreysi þau, er bifrar eða muskrats hafast við í, á hvaða tíma árs, sem um er að ræða. Þá er og stranglega bannað að flytja hlaðnar byssur eða rifla í nokkrum samgöngutækjum, né skjóta úr slíkum samgöngutækjum, hvort sem um er að ræða kerrur, bifreiðar, eða annað því um líkt. Almenningi til frekari leiðbeinfng- ar, fylgja hér á eftir helztu ákvæðin í s&mbandi við veiðileyfin: The Game Branch afhendir Ieyfi til þess að skjóta viltar andir og vilt- ar gæsir, — slíka fugla má skjóta samkvæmt lögunum, frá 15. septem- ber til 30. nóvember. Leyfi til þess að skjóta dýr, fást til 19. dags nóvem- bermánaðar Enginn maður skal skjóta dýr þessi eða fugla, án þess að hafa fyrst feng- ið veiðileyfi, og ættu menn alment að kynna séra sem bezt ákvæði veiði- laganna—The Game Act. l!ilIBnOHI!I,flli:iH,!!IBi!l ■ ■ ■ Klippið þennan miða úr blaðinu i og farlð með hann til a Mr. M. J. Metcalfe | fyrrum forstjóra fyrir ljósmyndastofu T. Eaton félagsins B 489 Portage Ave., Winnipeg. Phone: Sh. 4187' Gegn þessum Coupon fáiS þér sex myndir, sem kosta venju- ® lega $2.50, fyrir einn dollar. S pér getið undir engum kringumstæðum fengið þessar myndir || hjá oss, nema þér framvlsið þessari auglýsingu. TílboS þetta gildir í einn mánuð frá fyrstu birtingu þessarar ® auglýsingar jj| Barnamyndir eSa hópmyndir af tveimur eSa þremur, kosta S 35 centum meira. Draping, tvær stillingar og sýnishorn (proofs) bæta 60 cent- ■ um viS ofangreint verS . H I!!:B>!:b::::h IIIIIHIIIHIIIIHIIIII Kolaverðið Er Ennþá Að Hækka Já, Sumar Kolategundirnar Fara Stöðugt Hækkandi Mánuð Eftir Mánuð ’ VERÐ VORT ER HIÐ SAMA og í Októbermáuuði 1918, og Vér Erum Reiðubúnir, Viðskifta- Vina Vorra Vegna, að Taka Strax á Móti Pöntunum Og Abyrgjumst Núverandi Verð Vort Double Screened Lump $11.50 Tonnið Double Screened Stove $10.50 Tonnið SENDUM KOL VOR ÚT Á ÞESSU VERÐI TIL 31. OKTÓBER 1919 -SEM ÖLL ERU- UPPÁHALDS-KOL WINNIPEG-BÚA Black Diamond Humberstone Phoenix og Marcus Ný úr Námunni Vandlega Hreinsuð Lang-beztu Kolakaupin á Markaðnum. The Alberta Coal Mines, Limited HEILDSALA OG SMÁSALA Aðal-skrifstofa: 349 Main Street Phonc; Main 5400 WINNIPEG.M AN. Útibú: Corydon og Osborne Phone: F. R. 3508 ManitobastjórninogAlþýðumáladeildin Greinarkafli eftir Starfsmann Alþýðumáladeildarinnar.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.