Lögberg - 20.11.1919, Qupperneq 5
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 20. NOVEMBER 1919
Bls. f»
Lang frœgasta
TÓBAK I CANADA
Frá islandi.
Fjárlögin.
1 byrjun >ings var s'kýrt hér
í blaðinu frá aðalatriðunum í
fjárlagafr. stjórnarinnar. í með-
förum þingsins hefur bæði áætlun
um tekjur og gjöld hækkað,
hvor um 2—3 mil. Tekjurnar
eru nú áætlaðar rúm 10% milj.,
en útgjöldin rúml. 9% milj. —
Tekjuafgangurinn er áæflaður
“fyrst um sinn” rúml. % milj.
En háir útgjaldaliðir eru ráð-
gerðir utan fjárlaganna, svo að
í raun og veru er tekjuhallinn
mikill.
Tekjuáætlun fjárl. tímabilsins
er svona: 1. skattar og tollar
9180 þús., 2. tekjur af fasteignum
og skipum rúm736 þús., 3. tekjur
af bönkum Ræktunarsjóði, verð-
bréfum o. fl. 648 þús., 4. óvissar
tekjur og endurgjöld 47 þús. En
útgjaldaáætlunin er þessi: 1.
greiðslur af lánum ríkissjóðs og
framl. til Landsbankans tæp
2069 þús., 2. borðfé 'konungs
120þús., 3. til alþingiskostnaðar
og yfirskoðunar 246 þús., 4. ráða-
neytisins o. fl. rúm 308 þús., 5.
til dómgæslu og lögreglustjórnar
rúm 595 þús., 6. læknaskipun rúm
3026 þús., 8. kirkju og kenslumál
tæp 1053 þús., 9. til vísinda,
bókmenta og lista 455 þús., 10. til
verklegra fyrirtækja tæp 981 þús.,
11. til skyndilána og fyrirfram-
greiðslna rúm 6 þús., 12. eftirlaun
og styriktarfé rúm 246 þús., 13.
til óvissra útgjalda 40 þús.
Nýjar styrkveitingar til ein-
stakra manna, stofnana og fyrir-
tækja, eru þessar helstar: Til
undirbúnings landspítala 7500
kr. hvort ár. Till að koma upp
sjú'kraskýlum á föstum læknis-
setrum 20 þús. síðara ár. Utan-
fararstyrkur til Halld. Hansens
læknis 4000 kr. fyrra ár. Til
Guðm Thoroddsens læknis til að
framast í skurðlækningum erlend-
is 2000 kr hv. ár. Til sjúkra- og
slysasjóðs verkamanna í fél.
“Dagsbrún” 1000 kr. f. á. Til
berklahjúkrunarfél. “Líknar 1500
kr. hv. ár. Til sjúfclinga með
hörudskvilla til utanferða 3000
kr. hv. ár. Til Kristjáns Símon-
arsonar á Hraunum til að leita
sér lækninga 1500 kr.
Til flhtninga brauta: 1. Hún-
vetningabr. 10 þús. f. á. 8. þús. s.
á., 2. Skagfirðingabr. 5 þús. f. á.,
18 þús. s. á. 3. Grímsnesbr. 10 þús.
f. á. 20 þús. s. á. 4. Hvammstanga-
br. 10 þús. f. á. 20 þús. s. á. Við-
hald flutningabr. 35 þús. hv. á.
Til aðgerðar Elóabrautarinnar
25 þús. kr. hv. á.
Til strandferða: 1. “Sterling”
og “Suðurland” fá fyrir strand-
ferðir í samráði við Eimsk.fjel.
íslands 75 þús. kr. hv. á. 2. por-
steinn kaupm. Jónsson & Co. fá
fyrir strandferðir 100 þús. kr. hv
á. með því skilyrði, að til ferðanna
sé haft 250 tonna skip, með
40—60 farþega rúmi á 1. og 2.
farrými og rúmi fyrir 2—300
farþega undir þiljum á 3. farrými
Skipið siglir eftir áætlun, sem
þingið samþykkir og gjaldskrá
sé ekki hærri en hjá Eimsk.fjel.
íslands..— Till ferða við Faxa-
flóar fær hlutafjel. “Eggert Ólaf-
son” 20. þús. hv. á. — Breiðafj.-
báturinn 18. þús. Isafj.bátur 9
þús. Skaftfellingabátur 18 þús.
Til vélbátsferða við Rangársand
1800. Milli Patreksfi. og Rauða-
sands 800. Lagarfljótsbátur 800.
Til vélabátsferða við Mýrasýslu
800.T il vélabátsferða á Hvítá 300
kr., alt hv. á.
Til bygginga nýrra vita:
Svalvogsviti 17500 kr. f. á. Galt-
arviti 23500 f. á. Hríseyjarviti 19
þús. f. á. Kambanesviti 20 þús. s.
á. Strætishornsviti 20 þús. f. á.
Papeyjarviti 19 þús. f. á. Stokk-
nesviti 35 þús. s. á. Hvanneyjar-
viti 6 þús. f. s.
Tveir prestar, Björn Stefánsson
og Jónmundur Halldórsson, hafa
fengið uppbót á húsabótakostnaði
með því skilyrði, að hús og mann
virki verði jarðeign, B. St. 1200 kr.
og J. H. 10000 kr.
Magnús Jónsson dócent fær
1500 kr. hv. á. til rannsókna á
kirkjusögu Islands.— Til
kennara í gotnesku, engilsax-
nesku og germönskum fræðum
(dr. Alex. Jóh.) eru veittar 3500
kr. hv. á. Til styrktar handa
íslendskum stúdentum sem stunda
nám við erlenda háskóla (í fræð-
greinum sem ekki eru kendar hér)
8000 kr. hv. á. Verslunarskóli
Kaupmannafjel. fær 9 þús. og
Samvinnufélagsskólinn 7 þús. hv.
á. Til að reisa barnaskóla í kaup-
túnum og sjáfarþorpum og heima-
vistarskóla í sveitum eru ætlaðar
20 þús. kr hv. á.
Bókmentafélagið fær 3500 hv.
á. og áskilið, að 3000 kr,af því sé
varið til þess að flýta útgáfu
Íslandslýsingar porv. Thorodd
sens. Jón porkelsson. skjalavörður
fær 5000 kr. f. á. til utanferða
til skjalarannsókna og Hannes
porsteinsson skalavörður 5000
kr. í sama skyni «. á. Félagið
“íslendingur” fær til þess að
viðhalda andlegu sambandi og
kynningu við íslendinga vestan
hafs 8000 kr. f. á. 3000 s. .á.
Styrkur til skálda og listamanna
er nú 20 þús. hv. á. Bjarni frá
Vogi fær fyrir að halda áfram
þýðingu á Faust 1200 hv. á. Til
undirbúnings ísl. orðabókarinnar
fær séra Jóh. L. L. Jóhannesson
4800. Jakob Smári 4000 og porb.
pórðarsson 1800 hv. á. Sigfús
Blöndal fær til að fullgera íslensk
dönsku orðabókina 15000 hv. á.
Geir T. Zoega rektor til nýrrar,
aukinnar útgáfu fslensk-ensku
orðabókarinnar 5000 f. á. Haill.
Briem bókavörður til að semja og
fullgera ísl. málfræði 1000 kr.
ír~' ~~ 11 =
Ég óska
eftir atkvæðum al lra
þeirra borgara í Winni-
peg, sem láta sér ant
um góða stjórn í bæjar-
málum, og vænti aðeins
sanngirni og réttlætis
frá öllum.
Charles F. Gray
Greiðið atkvæði snemma
petta er yðar barátta einnig,
Læknaði alveg
Höfuðverk hencar
MARGRA ARA pJANINGAR
LÆKNAÐAR MEÐ FRIUT-
A-TIVES”
112 Hagen St., St. John.N.B.
“pað er mér ánægja að mega
tilkynna yður hve afbragðs vel
töfralyf yðar ‘Fruit-a-tives’, unn-
ið úr jurtasafa, hefir læknað mig.
Eg hafði þjáðst í mörg ár af ó-
stjórnlegum höfuðverk og stýfhi.
Eg reyndi fjölda lækna, en ekkert
dugði fyr en eg tók ‘Fruit-a-tives’
Eftir að hafa notað úr fáeinum
öskjum, hafði eg náð mér að fullu
og kent mér einskis meins síðan.”
Miss Annie Ward.
Hylkið á 50c., 6 á $2.50, reynslu-
skerfur 25c. Fæst hjá öllum lyf-
sölum eða gegn fyrir fram borgun
frá Fruit-atives, Ltd., Ottawa.
hv. á. Bjarni Sæmundsson til
fiskirannsókna 600. dr. H. Jóns-
son til gróðurrannsókna 4000,
dr. Helgi Pjetursson til jarð-
fræðisrannsókna 4000, Guðm. G.
Bárðarsson til sama 1800,
Frímann B. Arngrímsson til
steinarannsókna 1200, Páll por-
kelsson til málsháttasafns 600,
Finnur Jónsson á Kjörseyri til
fræðiiðkana 600, Bogi Th. Melsteð
til að rita íslandssögu 800, Sigf.
Sigfússon til að fullgera þjóð-
sagnasafn 600, Páll Eggert Óla-
soir' til rannsókna á sögu og
bókmentum íslands frá upphafi
prentaldar út siðaskiftaöld 1800,
alt hv. á. Pétur Zophoníasson til
að ljúka við sjóðarannsóknir
Jóh. sál Kristjánssonar 800 kr. f. I
á. Til veðurathugana og veður-
skeyta 43000 kr. f. á. 18800 s. á. J
Til jarðeðlisrannsókna í sam-1
bandi við norðurför R. Amund-
sens 5500 f. á. 1500 s. á. Til
íþróttasambands íslands 1000 kr.
hv. á. og 12000 f. á. til þess að
senda íþróttamenn á Olýmpíu-
leikana í Antwerpen. þessir kenn-
arar fá utanfararstyrk, allir f. á.
Asgeir Ásgeirsson cand theol.
2000, Freysteinn Gunnarsson
cand. theol. 4000, Guðm. ólafsson
2000, Guðm. Jónsson 2500, og
Arnór Sigurjónsson (viðbótar-
styrk) 400 kr. Sérstakan nám-
styrki fá: Guðmundur Marteinson
til að ljúka verkfræðisnámi í
Prándheimi 1200 hv. á. Trausti
ólafsson til að Ijúka efnafræðis-
námi 2000 f. á. Helgi H. Eiríksson
til að ljúka raffræðisnámi 700 f.
á. Jón Dúason cand polit. til að
kynna sér bankafyrirkomulag í
Vesturheimi og víðar 6000 kr. f. á.
og auk þess er Landsbankanum
hemilað, að greiða honum aðrar
6000 sama ár; Eyólfur Björnsson
til raffræðisnáms í Gautáborg
1000 kr hv. á. Jón Eyþórsson til
veðurfræðisnáms í Kristjaníu
2000 hv. á. Sigurður Siðurðsson
frá Hoffelli til að kynna sér
samvinnumál í Englandi 1500 f. á.
Sig. Guðmundsson til húsagerð-
arnáms 1500 hv. á. Jóh. Helgason
til myndskurðanáms 2000 f. á.
Jón Guðmundsson ostagerðar-
maður fær til Noregsferðar 2000
f. á. Ungmennafélag íslands fær
2000 hv á.
Til endurbyggingar bryggju á
Blönduósi eru veittar 6000 f. á.
Til hafskipabryggju á Búðar-
eyri við Reyðarfjörð 3500 f. á.
Til bryggjugerðar á Blönduósi
18000 f. á. Styrkur til Stykkis-
hólmsbbryggu 8800. Til Einars
Magnússonar í Vestmannaeyjum
til að fullgera bát til uppskipunar
í brimi við suðurströnd landsins
5000 s. á. Til Byggingarfélags
Rvíkur. 6000 hv. á. Til flugféjag-
sins 15000 f. á. Til kolanáms í
Gili í Hólshreppi í Isafjarðar-
sýslu 12000 f. á. Til steinsteypu-
bryggju á Kópaskeri 8000 f. á.
t viðurkenningarskyni fær Sig.
Jónsson frá Litla-Lambhaga 500
kr., Sveinbjörn Sveinsson á
Hámundarstöðum í Vopnafirði
2000, frú Bríet Bjarnhéðins-
dóttir 2000 og pórunn Gísla-
dóttjr fyrv. ljósmóðir 500 kr.,
Guðm. Hjaltason í Tröð í Álfta-
firði fyrir bjargVáð, 1000, Jón
Sturlaugsson á Stokkseyri, fyrir
sama, 1000, porvarður Bergþórs-
son, fyrir hreppstjórn o. fl.
1000 kr., alt f. á.
Landstjórninni er veitt heimild
til að kaupa Ólafsdal í Dalasýslu
fyrir sanngjamt verð. Henni er
heimilað að ábyrgast alt að 1
milj. kr. lán fyrir Akureyrar-
kaupstað, 300 þús. fyrir Hóls-
hrepp í ísafj,sýslu og 100 þús.
fyrjr Búðahrépp í Suðurmúla-
sýslu, til raforku og rafveitu.
_ Stjórnarskráin.
Hún var afgreidd sem lög frá
þinginu skömmu fyrir þinglokin
og þar með fylgir að sjálfsögðu
þingrof og nýjar kosningar. En
ekki ætlast þingmenn til þess,
að nokkurt ákvæði í stjórnap-
skránni verði gert að kapps-
máli vjð þær kosningar.
Skilyrðið um 5 ára búsetu fyrir
kosningarrjetti var samþykt í Nd.
með töluverðum atkvæðamun.
pegar til Ed. kom, var meiri
h 1 uti st j órnarskr árnemdari n nar
þar þeirri breytin^u mótfallin,
ei'ns og komið hafði fram meðan
nefndir beggja deilda unnu
saman, en bar þó ekki fram breyt-
ingartillögu -við það atriði.með því
að hann taldi enga vonurn , að
samkomulag gæti náðst í þing-
inu um þetta. En í nefndaráliti
Ed. segir, að hann “telji enn
Reglulegur Veðurspámaður
Kostar aðeins $2.25
Nýtt!
petta er barómeter í litlu svissnesku húsi sem
skýrir frá veðurfari 24 klukkustundum fyr-
irfram. pað er ekki leikfang, heldur reglu-
iegur loftþyngdarmælir, sem starfar sjálf-
krafa undir þrýstingi loftsins. Petta litla
hús hefir fjóra glugga, tvo að framan
og tvo sinn á hvorri hlið. Pað hefir einn-
ig tvennar dyr, sem fólkið kemur út um er
segir veðrabrigðin. Á milli dyranna er hita-
mælir, sem sýrnr hita og kulda og uppi yfir
honum er hreindýrshaus, en hani er uppi yfir
dyrunum til hægri handar. Svo er litið fugla-
búr á þaki hússins. . — Hér er um prýðis-
fagran og undursamlegan hlut að ræða, sem
öllum ætti að vera bæði forvitni og ánoegja að
eignast.
Vér borgum, burSargjaldið.
Klippið út þessa auglýsingu og sendið ásamt pöntun og $2.25 t póstávísun
eða Express Money Order.
Variety Sales Compðny
1136 MIIAVAUKEE AVE. —
Dept. 455 B.
CHICAGO, IIíLí.
Auðvelt að spara
Það er ósköp auðvelt að venja sig á að spara ineð þvi
að leggja til síðu vissa upphæð á Banka reglulega. I spari-
sjóðsdeild vorri er borgað 3% rentur, sem er bætt v.ð
'x'ifitðstólinn tvisvar á ári.
THE DOMINION BANK
Notre Daine Brancb—W. H. HAMIL/TON, Manager.
srlklrk Brancli—K. •> M V v .MMi, Mmnicer
kMIIIII
IIIHB!II!I
fyrirkomulag það sem stungið
var upp á af minni hluta samvinu
nefndarinnar, að öHu leyti betra
en það, sem ofan á varð í sam-
vinnunefndinni og Nd.” Halldór
Steinsson bar fram þá breyingar-
till. í Ed. að í stað 5 ára kæmi 3
ár. og að setja mætti með lögum
frekari skilyrði fyrir kosninga-
rétti, en sú tjll. var feld. Nd. hafði
samþykt að gera einig visisa
kunnáttu í íslensku að skilyrði
fyrir kosningarrétti, þ. e., að kjós-
andi “tali og riti ísl. tungu stór-
lýtalaust”, en það feldi Ed. í
burtu og lét Nd. síðan þar við
sitja.
pá breytingu gerði Alþingi einn-
ig, á frv. stjórnarinnar, að nú er
samkomudagur reglulegs Alþingis
ákveðinn 15. febrúar. pessu má
þó, eins og áður, breyta með lög-
um,—Lögrétta.
Ræktun og sjálfstæði.
Varla hefir verið talað meira
um annað í seini tíð, en blessað
e
„sjálfstæðið,,. Og þá hefir jafnan
verið átt við hið lagalega sjálf-
stæði landsins út á við, gagnvart
öðrum þjóðum/ Við það „sjálf-
stæði,, landsins út á við, gagnvart
öðrum þjóðum. Við það „sjálf-
stæði,, var stjórmnálaflokkurinn
kendur, og öfundaður af nafninu.
Um það hafa allir stjórnmála-
flokkar barist, og þótst vilja gera
lahdið sem allra sjálfstæðast og
óháðast stjórnarfarslega.
En nú er bessað sjálfstæðið
fengið - á pappírnum - það er nú
gott og blessað. En þar með er
ekki alt fengið. „Sjálfstæðinu,, er
svo farið, sem guðsríki. pað þarf
að vera „hið innra í yður„. Og
jafnörðugt verður að gera þý-
lynda þjóð, eða örbyrga, sjálf-
stæða með lögum, sem að vald-
bjóða kristilegt hugarfar.
“Auður er afl” og “ment er
máttur.” Vafalaust eru þetta
stft-kustu 'öflin, sem nú ráða í
heiminum. Sú þjóð, sem þarf að
sækja aúðsafl sitt og andlegan
forða til annara, verður ósjálf-
stæð út á við, hvað sem öllum
lögum líður. Sambandslögin nýju
geta orðið “kölkuð gröf” sjálf-
stæðis okkar, ef eigi er hugsað
hér um andlega menningu, verk-
legar framfarir, og bættan efna-
hag almennings.
Lögbundin undirokun þjóða er
nú aðverða fátíðari en áður var.
Auðvaldið og vísindaleg þekking
eru þess sterkari. Með auðvaldi
sínu og hærri menningu leggja nú
stórþjóðir Norðurálfu undir sig
heiminn. Eigi unnu Bretar Egyp-
taland með vopnum.heldur ster-
lings-pundum og verkfræðingum
Verslunarfélag, friðsamt í fyrstu,
lagði grundvöllinn undir veldi
þeirra á Indlandi. Rússar ogBret-
ar skiftu Persíu í hagsmunasvæði
með aðstoð fjármagnsins. þannig
mætti lengi telja; og það væri
eigi að sður satt, að sjálfstæðið
þarf a koma a innan frá.
En það er eigi nóg, að fjármag-
nið sé til í landiíu og þekkingin,
i höndum og höfði fárra manna.
Alt valdið er nú lagt í almennings
hendur. Of almenningur þarf að
verða svo efnum búinn og mentur
að hann geti sjálfstæður heitið;
sé fær að dæma um, þjóðmálinh
og verði ekki að atkvæðapeðum
þeirra manna, er hæst gala og
gullnastar hafa fjaðrirnar.
Sjálfstæð þjóð þarf að vera
samsett af sjálfstæðum og sam-
heldnum einstaklingum, ef hún
á að mynda til langframa sjálf-
stæða og sékennilega heild og
“sjálfstætt ríki”. pessvegna þur-
fa nú að verða tímamót í viðreis-
narsögu þjóðarinnar. Hún hefir
nú í marga mannsaldra barist
fyrir sjálfstjórn sinni. Nú er hún
fenginn. pá hlytur baráttann að
snúast að því, að gera þjóðina
færa um að stjórna sér sjálf.
Skólarnir eru nauðsynlegt
menningarmeðal, ef ala skal upp
vitra þjóð og fróða, hrausta dren-
gi og dugandi. En ekki eru þeir
undirstaðann, né aðalatriðið í
uppeldismálunum . Áhrif skól-
anna, hve góðir sem þeir eru.eru
hverfandi fyrir áhrifum heimil-
anna, fyr og síðar á mannsæfinni.
Á góðum heimilum vex börnunum
menningarþróttur, sem venjulega
er trúrra veganesti, en flest ann- j
að. En lélegt heimili, menningar-
laust, ósiðað sundílrleitt og áhrif-
alaust, elur upp kynslóð, sem
skólarnir geta ekkert við rágið.
Að börnin alist upp á góðum
heimilum, er aðalskilyrðið fyrir
því, að þau verði góðir borgarar.
íslendingar hafa verið land-
búnaðar þjóð. En þetta er að brey-|
tast. Fleiri og fleiri hundraðs-
hlutar þjóðarinnar verða að kaup-|
staðarbúum og sjóþorpalýð. En
i þessu liggur, að minu áliti, stór-|
hætta fyrir þjóðernið og þjóðar-
uppeldið Góð sveitaheimili hafa
langbest uppeldisskilyrði. það er
| alment vidurkent af flestum upp-
eldisfræðingum. Borgirnar eyði-
leggja heimilisáhrifin, heimilin
eru þar eigi jafnsamúðarmiklar
og sérstæðar heildir og í sveitinni
Ahrif góðra foreldra geta hæg-
lega horfið fyrir áhrifum mis-
jafnra götubræðra. Sollurinn
glepur námið og strfið. Barnið á
svo lítið sjálft, til að annast og
elska; venst á alúðarleysi og iðju-
leysi.— í skólum er það viður-
kent, að unglingiím úr sveit
sækist yfirleitt betur nám.
Flestir okkar mætustu menn
eru prestasynir úr sveit. Svo er
víða í heiminum. Og það er engin
tilviljun. Heimili gömlu prest-
anna voru oftast fyrirmyndar-
sveitaheimili. Börn þeirra ólust
upp í sveit, undir handleiðslu
mentaðra manna. það er markmið, j
sem þarf að stefna að.
Straumurinn úr sveitunum er,
mein, sem þarf að bæta. pað þarf j
að grafa fyrir rætur þess, kanna
það, áður en reynt er að græða.
Margir halda að straumurinn úr
sveitunum stafi af marglæti
manna og aðdáun þeirra á glaum
að þetta valdi nokkru — einkum
hér áður. En þar sem eg þekki
til, er það ekki aðalástæðan.
Ástæðan er sjálfstæðisþrá, sem
straumur tímans og allir lands-
hættir hafa beint í rangan farveg.
Einhver eðlilegasta* sjálfstæð-
isþrá, er sú að vilja eignast sjálf-
stæð heimili. Enginn hlutur getur
verið sjálfsagðari fyrir þann, sem
náð hefir fullum þroska, líkam-
lega og andlega. En einmitt þessi
sjálfstæðisþrá hefir orðið til þess
að tæma sveitirnar — leiða burt
úr þeim úngt fólk og upprennandi
Tala sjálfstæðra heimila i sveit-i
unum er takmörkuð af gömlum
venjum og búnaðarháttum. Jörðin
er bundin í höndum gömlu bænd-
anna .Únga fólkið á sér tvo kosti
Annar er sá, að vinna hjá bænd-
um, sem hjú eða lausafólk. Er þá
kaupið lægra en þarf til fjölskyl-
duframfærslu, og hjúin eru inni
í heimili bóndans, og undir hans
stjórn, en eiga ekki heimili sjálf.
í kaustöðunum geta allir “spil-
að upp á eigin spítur”. Landið er
bundið en sjórinn er frjáls. peir
sveitamenn, sem ekki eru á jörð-
um bornir, en vilja reisa heimili
og stofna fjölskyldu, verða oftast
að hröklast að sjónum, nauðugir,
viljugir. “Lengi tekur sjórinn
við”.
(Framh.)
’ flstöð Yðar Eigin |
Bcejarféiags |
getur sparað yðúr *
50% á eldsneytisreikningnum. ..
Eldið Við Rafmagn |
og gerið yður gott af ódýrasta suðu- i
magninu í Norður-Ameríku.
City Light & Power
54 King Street
1!II!BIIIIB!II!I
ll!!>HI!l«ltl«llll
ll!nalll!!HI!l!H!IIIH!!I!l
Pantiðkútinnmeð
rauðu gjörðunum
með Maltum Stout
eða Temperance Ale
Bláu Gjarðirnar
Pýða Maltum
Allar beztu og ljöffengustu teg-
undirnar af síetu maltum og hops,
eru innifólgnar í Maltum Stout.
BragSiS er óviSjafnanlegt og sllk-
ur drykkur styrkir Hkamann bet-
ur en nokkuð annað.
peir, sem iCulega neyta þessa drykkjar, hressast og styrkjast og fá
meiri matarlyst og betri meltingu. Ekkert herðir fólk betur gegn vetr-
arkuldanum. — Maltum Beer, Maltum Stout og Temperance Ale fæst nú
í tunnum eða kútum, % og % stærð, mátuleg fypir heimili, einnig selt
í flöskum. Pantið frá matvöru- eða aldinasalanum eða beint frá
E. L. DREWRY, Limited, Winnipeg
KAUPID BEZTA BLADID, LOGBERG.
Vandað gullúr
með 21 steini og
2S ára ábyrgð
Aðeins $9.50
Kostaboðið stendur
stutta stund.
Aldrei á tefi þinni hefir annað eins tæki-
' færi boðist þér sem þetta. Hér er þetta
fallega og vandaða gullúr boðið fyrir þvi
nær ekki neitt. Allur frágangur úrsins er
hinn vandaðasti og það gengur I 21 steini.
og hefir 25 ára ábyrgð. pað hefir sérstakar
sterkar fjaðrir sem heldur réttiím tíma, svo
úrið gengur hvorki of fljótt eða of seint, og ber af
öllum öðrum úrum I þeim efnum. Kassinn er ágreift-
ur með þjóðeinkenni Bandarikjanna og flaggi. petta
er $25.00, en sökum þess að það er nýtt á markaðinum,
bjóðum vér þessi fádæma kjörkaup um stundarsakir, með-
an almenningur er að kynnast Því. Hafið það hugfast, að
betra úr er ekki hægt að fá fyrir 50 dali. Hafið það og
í huga, að þetta er þjóðernislegur minjagripur, sem öllum
ætti að vera kœrkominn. Og gleymið því ekki að þetta
kostaboð stendur að eins litinn tfma, og heldur ekki Því,
að ef úrið fellur ekki f geð, þá má skila því aftur og and-
virðið verður endursent.
GEFINS. Hver sem klippir út þessa auglýsingu, og
sendir okkur jafnframt pöntun fœr samhliða þessa ljóm-
andi fallegu úrfesti, sem að ofan er sýnd.
Vér borgum burðargjald.
Sendu undir eins pöntun þína ásamt $9.50 í póstávisun
eða Bxpress Money Order, og vér sendum þér úrið um hæl.
Skrifið til
Imperial Watch Company
Dept. 1055 B
1136 Milwaukee Ave., Chicago, III.
Nýung!
Skambyssa í vasahníf -
Nýung!
Hér er boðin undursamleg nýung: Hnífur og 22 caliber skambyssa í einni sam-
stœðu. Stærðin er eins og venjulegur vasahnifur og blaðið i hnffnum e» úr bezta
stáli. svo egghart, að það má raka sig með því. Með þvi að styðja á hnapp opnast
hnifurinn sjálfkrafa. Hnifurinn einn er verðmikill auk skambyssunnar. sem eykar
verðgildið meira en um helming. —- Pú skalt ekki halda, að skambyssan sé leikfang.
Pað er venjuleg ‘‘22 caliber revolver’’, og er hún bezta og handhægasta sjálfsvörnin,
sem nokkur getur haft, og hnífurinn kemur sér alt af vel.
Vér seljum hundruð af þessum undra hnífum á hverjum degi, og fer salan dag-
vaxandi. Fyrirsögn fylgir hnífnum. Verðið á þessu undri er að eins $4.95, og vér
erum einkasalar. —- fíurðargjaldið borgurn vér.
Klípipið út þessa auglýsingu og sendið
póstávísun eða Express Money Order til
hana samhliða pöntuninni og $4.95 1
Imperial Novelty Company
Dept. 2655 B.
1136 Milwaukee Ave., - Chicago, 111.