Lögberg - 25.12.1919, Blaðsíða 6

Lögberg - 25.12.1919, Blaðsíða 6
Bls. 6 LÖGBERG FIMTUADGINN 25. DESEMBER 1919. Grímsbakkadysin. Frásaga eftir Karl Andersen. Guðmundur Þorláksson íslenzkaði. Prýðisfagurt mátti heita á bæ einum á Islandi, einkum þegar sólinn skein. Bær þessi lá undir fjalli einn, og var skamt til fjöru; víða gnæfðu þar allháar klettaborgir upp í loftið, en mest prýði var þó að túninu algrænu utan í fjallshlíðinni. Þegar þessi saga gjörðist bjó þar maður sem Grímur hét og var Grímsson; hafði Grímur hinn eldri fyrstur manna setti þar nýbýli og komið til túni á þessum eyðistað, og var .þiá bærinn, svo sem lög gera ráð fyrir, kallaður Grímsbakki. Þeir Grímarnir höfðu verið heppnir með nýbýli sitt, og lánast vrel, því Grímur hinn yngri var nú orðinn búhöldur hinn mesti og mátti heita bjargvættur sveitarinnar. Einginn maður í allri sveitini var vinsælli ^n hann, enginn réði meira en hann í öllum sveitarmálum, og allra ráða var leit&ð þangað, sem haxjn var. Grímsbakki lá afskekt, fjarri öllum manna- bygðum,og þó var þar ekki þögult vetur né sumar. Fyrir neðan skall sjórinn við f jöruna, og upp í hlíðinni bjuggu hrafnarnir í háum og bröttum klett. Hyldjúp gjá var öðrum megin við klettinn, og slútti fram yfir gjána. Þó hér væri nokkuð einmanalegt á veturna, þá var því meira líf og fjör í öllu á sumrn, einkum í 'kauptíðinni, }>egar bændur úr fjarlægari sveitum fóru í kaupstaðinn. — Allir urðu þeir að fara veginn sem lá meðfram firðinum, þrí um annan veg var 0kki að gjöra þessum megin fjarðarins, og sá vegur lá rétt fram hjá Grímsbakka, fyrir neðan túnið. Grímur átti einungis eitt barn. Það var lítil stúlka og falleg, ljóseyg, eitthvað átta ára gömul, er þessi saga gjörðist. Föður hennar þótti ósköpin öll vænt um þessa einkadóttur sína, enda var hún honum bæði ljúf og eftirlát. Hann hafði hana líka eina eftir, því móðir hennar hafði dáið að henni, þegar hún átti hana. Hann var vannr að kalla hana “Helgu Grímsbakkasól,” þegar hann kysti hana kveld og morgna, og vinnu- fólkið lét ekki heldnr sit.t eftir verða, að láta þetta nafn festast við hana, því hún var jafn-glaðleg og skemtileg við alla. Hún amma hennar varð sem ung í annað skifti, þegar hún iheyrði Helgu hlæja og gjöra að gamni sínu, og væri Helga litla með henni, sýndist henni alt vhra í fegursta blóma. Hún launaði henni það líka, hún amma gamla, þegar hún var að segja henni sögumar um álfana og huldufólkið. — Hvert kvöld sagði hún Helgu litlu einhverja fallega sögu, og altaf hafði gamla konan nóg að segja frá. Þegar sumraði og fólk fór að fara í ferðalög, þá var gaman fyrir Helgu. Vegurinn lá fyrir neðan bæinn, það vissi hún. Að sjá fólkið fara framhjá margt í hóp, einn flokk eftir annan, lest eftir lest: —Það var gaman. Hún vissi fullvel, hve margir vóra á hverjum bæ, og hún gat þekt húsmóðirina soninn og dóttirina. — Pau riðu æfinlega á undan á bráðvökrum gæðingum. Svo kom nú vinnumaðurinn, og teymdi alla trossuna. Síðast reið húsbóndin sjálfur á eftir allri lestinni, til þess að sjá nm, að ekkert færi í ólagi. Það sem Helgu þótti lakast, var það, að allir fóru framhjá ánþess að staldra við, því hér varænginn áfángastaður. Jörðin var bæði of graslítil og og grýtt til þess að nokkrum skyldi koma til hugar að æja hér" hjá Grímsbakka. Helga litla var aðgætin, og það leið ekki á lsungu, áður en hún fékk nokkuð að hugsa um. Hvernig stóð á því, að hinir og þessir stukku stundum af baki, og köstuðu þremur steinum í dysina niðri við vreginn? Það var eitt kvöld, hérumbil um fráfærur. Helga hafði farið með ömmu sinni á stekkinn, til að velja sér fráfærulamb. Hún var nú glaðari en frá m«gi segja, og hoppaði á undan ömmu sinni sem með naumindum gat staulast á eftir, því að allt hjálpaðist nú að fyrir henni; hún var orðin svo sjónlítil og hafði hlíf fyrir augunum, vegurinn var ósléttur , og gamla konan, sem aldrei var iðju- laus, hafði ekki getað fengið af sér að leggja frá sér prjónana, þegar hún fór á stekkinn. Veðrið var fagurt, fjörðurinn spegilfagur, og þrösturinn saung og Heiga litla saung, og áður en gamla konan vissi af, var hún komin svo langt frá bænum að hún gat grylt í dysina. Dysin lá þar rétt niður við veginn, og svona langt hafði hún ekki gengið i langan tíma. Einhverjar óiþægilegar endurminn- ingar hafa víst vaknað hjá gömlu konunni, því að henni hnykti mjög við, þegar hún sá dysina, og vildi sem fljótast snúa heim til bæjar. En það varð lítið úr því! — Helga litla sá einmitt í sama svip stóra kaupstaðarlest á leiðinni. Hún hafði talið 26 hesta í einni trossu, og það var þó þess vert, að staldra við og horfa á aðra eins lest og þessa. “Það er hann Magnús ríki í Fagradal og enginn annar,” sagði amma hennar. Hann var að kalla eitthvað til vinnumannsins á undan og hún hafði þá undir eins þekt hann á málrómnum. Fremst reið dálítill drengur á mjallhvítum hesti. Aldrei hafði Helga séð fallegri hest, en þenna. Drengurinn hafði hrokkið hár og var rjóður í kinnum, með snör gáfuleg augu. Hann hafði svnrtan hatt á höfði, og var í ljómandi fallegum reiðbuxum með spegilfögrum- látúns hnöppum og grænum streng. Helga litla var öldungis forviða, að sjá alla þessa viðhöfn. “Já! svona hafa einmitt kóngssjmirair verið, sem pabbi var að lesa um í vetur, ” hugsaði hún. Nú var hann kominn, og ætlaði fram hjá. Hún misti nú einurðina og leit undan, því hún var ekki eins vel búin og hann, og ekki líkt því. Nú kallaði faðir hans til hans: “IHauptu af baki, Valdi! litli og kastaðu þremur steinum í bansetta dysina. ” Hann hljóp af baki, greip þrjá steina upp af götunni, og kastaði þeim í dys- ina. Eins og orskot var hann á bak aftur, og kallaði til Helgu litlu: “Nú fer eg vertu sæl, stúlka lHla!” ogþeysti af stað á eftir lestinnni. Helga leit nú við, og horfði ú eftir lionum, en ekki ieið á löngu áður en hann og lestin voru komin á hvarf bak við f jallið í vestri. Þetta hafði verið að eins svipstund, og þó var Helga litla gyo glöð því þetta var fallegasta lestin, sem hún hafði nokkura tíma séð. “Nú skulum við koma, Helga litla,” sagði amma hennar, “er orðið framorðið, og meir en mál fyrir okkur að fara að sofa.” “Hvers vegna kastaði hann steinunum í dys- ina, amma mín,” sagði Helga; “hvers vegna gjörði hann það, hann Þorvaldur litli?” — Hún vissi nú, vel, hvað hann hét, og það var ekki hætt við, að hún gleymdi því aftur. “Já! það er saga, sem er ekki fyrir börn, eins og þig,” sagði amma hennar. Við skulum alveg sleppa því, og hlusta heldur á, hvað márí- erlan sýngur fagurt, bak við steininn. — Æ! þú hræðir hana með þessu óðagoti, barn; hana! þar fiýgur hún burtu; þú ert of áköf, bamið gott, hægt, hægt!” Helga hirti nú ekki lengur máríerluna, og tók um liandlegginn á ömmu sinni og marg-bað hana að segja sér söguna um dysina. Svona áköf hafði Helga aldrei verið, og það fann gamla konan og sá, að ekki tjáði nú lengur undan að teljast. — “Jæja,” sagði hún og strauk skúfinn á húfunni, “vertu hæg og stilt og gott bam, þá skal eg segja þér söguna.” Og síítxn byrjaði hún: “Það var einu sinni ung vinnukona héraa á nsta bæ. Engin brúður í brúðarskarti gat litið prýðilegar út en hún, svo var hún falleg. Alt af var hún glöð og lék við hvern sinn fingur, og öll- um þótti vænt um hana. En svo var það eitt haust, hún kom heim frá selinu, og, aldrei þessu vant, varð hún alt í einu þögul og kyrlát. Nú söng hún ekki lengur eða hló; helzt af öllu vildi hún vera ein sér og gráta. Enginn skildi neitt í þessari um- breytingu, og margs var getið ti'l, en enginn átti þó kollgátuna. Svona leið veturinn. En ]>egaa voraði og sólin fór að þíða vetrarklakann, þá var sem lifnaði dálítið yfir henni aftur; —svo leit það út að minsta kosti, en það hefir víst ekki verið alt með feldi um hennar hag, því einn dag 'kom sú fregn, að hún hefði tekið sjálf af sér lífið og steypt sér þarna niður í hrafnagjána. Þar fanst hún, rifin og tættá sundur, og það er hún, sem liggur undir dysinni þarna niður frá.” “Hvað kom til hún var ekki grafin í kirkju- garðinum, eins og hún mamima mín heitin?” spurði Helga. Þetta sagði Helga í hálfum hljóð- um, því hræðslan Qiafði grpið hana og hún var nú- föl í framan. “Hún hafði fyrirfarið barninu sínu,” sagði gamla konan, “og því var 'hún ekki grafin í vígðri moldu. Alt af vex steinhrúgan ofan á henni. Hver sem þekkir brot hennar og um veginn fer, kastar þremur steinum í dysina, og hvorki meira eða minna. Það lítur til þess, baraið gott, að hún syndgaði móti heilagri þrenningu, og því eru stein- arnir þrír. Þetta á að vera til skelfingar og að- vörunar fyrir aðra,” sagði hún. Rómur hennar var hvell, eins og skrækur, og svo annarlegur, að Helga hröfck saman. ‘* En hvar ertu, Helga ? Hvað á þetta að þýða ? Helga! Helga!” kallaði amma hennar. En Helga hafði slept handleggnum á henni, og hljóp nú sem fætur toguðu til dysjarinnar. Hún greip þrjá steina upp af götunni, — öldungis eins og Þorvaldur litli hafði gert — og kastaði þeim með miklum alvörusvip í dysina. ‘ ‘ Fyrst kasta eg fyr- ir guð föður, öðrum fyrir guðs son, og þriðja fyrir heiíagan anda,” hugsaði hún. En hvað viljið þið hafa það meira? Var það síðasti steinninn, sem datt niður af dysinni, eða var það spói, sem hrædd- ist steinkastið, eða 'kom það neðan úr jörðinni? — Hljóð var það, hvaðan sem það kom. Nú fór af Helgu mesta alvaran, ihún varð hrædd og hljóp sem fætur toguðu aftur heim til ömmu sinnar. I*egar hún var komin inn fyrir vallargarðinn, og faðir hennar, sem -stóð undir bœjarveggnum, breiddi faðminn út á móti henni, þá fór loksins hræðslan að fara af henni. Þó fanst henni enn þá sem hún heyrði skruðningana og hljóðið. Helgu dreymdi um nóttina. Hún þóttist vera alein niður við dysina, og hafa stein í hendinni. “Kastaðu!” heyrðist henni kallað. Hún þóttist þebkja röddina Þorvalds, en þó gat hún engan séð. Hún kastaði. “Öðrum til!” var kallað. “Þriðja til!” og þeir voru komnir allir. hún heyrði skruðn- inga, stunur, angistarvein. Hún vildi flýja. Nei! hún gat ekki hreyft sig. — Dysin opnaðist, og ung kona steig upp úr jörðinni. Andlit hennar var hvítt sem snjórinn, hárið lokkaðist um 'herðaraar og hún hélt höndunum að brjósti sér. Hryggum bænar-augum leit hún upp á Helgu. Helga vikn- aði og fór að hágráta. “Eg þakka þér fyrir þessi tár, góða bara,” sagði konan; “það er í fyrsta skifti í mörg ár, að nokkur hefir grátið yfir mér. Eg veit, að þú ætlar ekki að kasta steinum á mig héðan af, og að þú lætur aðra hætta því, því að vi'ta skaltu, bara mitt, að hver steinn sem kastað er í dysina, ihittir hjarta mitt, svo eg hljóða upp yfir xnig. Guð hefir séð aumur á mér og fyrirgef- ið mér, en mennirair ihata mig enn þá. Þeir hafa einkent leiði mitt með þessum steinum, til þess að svívirðing mín skuli verða'ei líf. Vertu ökki svona hörð, kæra bara, eg grátbæni þig, Grímsbakkasól, hyldu mig! hyldu mig!” Konan hvarf, en Helga var va'kin af ömmu sinni, sem vaknaði við það, að Helga grét í svefn- inum. “Hefir þig dreymt illa?” spurði hún. “Reyndu að sofna aftur og kærðu þig ekkert um drauminn. Þú veizt líka, að illir draumar eru æf- inlega fyrir góðu efni.” En í þessu skjátlaðist henni, góðu konu. Þetta var enginn ljótur draumur, og því síður, að hann kæmi fram til óláns fyrir hana. Hann varð upphafið til bamingju hennar, og bar ávöxt án þess hún vissi af því. Aldrei gat hún gleymt bæn fölu konunnar: “Hyldu mig! hyldu mig!” — “Hvernig getur það orðið?” hugsaði hún. Jú! hana dreymdi nýjan draum, sem lauk upp á henni augunum. — Svona dreymir böra oft og tíðum hið rétta. Hana drejvndi, að það væri um vorið einn morgun. Faðir ihennar gekk, út á túnið, til að líta eftir vinnumönnunum, sem vroru að slétta. Hvert ár var sléttað dálítið stykki, grjótið borið burt, holuraar fyítar með mold og síðan þakið yfir með torfi. Næsta ár var alt gróið. “Viltu koma með, góða?” sagði Grímur til dóttur sinnar og þau fó.ru út á völlinn. Einmitt þegar hún kom. voru þeir að bisa við afarstóra jarðfasta hellu og gátu með engu móti náð henni upp. “Látum hana liggja, piltar,” sagði Grímur. “Það gjörir ekkert til. íVllið með mold í kring og þekið síðan yfir með torfi,” sagði 'hann; að ári um þetta leyti verður það orðið að grænum bala..” tJú ranikaði Helga við sér. “Svona skal eg hylja dysina fyrir allra augum,” hugsaði hún. Með frábærri iðni og þolgæði tók nú Helga litla til starfa. Ótal sinnum var liún við dysina, ótal sinnum bar hún mold í litlu svuntunni sinni ogikastaði á hríiguna; ótal sinnum hvarf það niður á milli steinanna, aldrei sýndisit ihenni glufurnar og holuraar ætla að fyllast. Margir dagar, mánuðir og jafnvel ár liðu, áður en dysin varð að grænum hól. Helga litla var átta ára þegar hún byrjaði, en nú var hún orðin fullorðin stúlka. Eftir veturinn kom sumarið, og blómgaði hólinn /hennar. Altaf miðaði honum áfram á hverju ári, þangað til loksins, að eitt sumar kom, og þá var Grímslbakkadysin orðin að fögrum grasivöxnum hól. (Meira.) Gömlu skautarnir. ísinn var ljómandi, og Rob og Jóel lögðu á stað heiman fr;i sér , hver með nýja fallega skauta á handleggnum. A leiðinni mættu þeir fátækum dreng Ralph Dra'ke áð nafni. Hann var líka á leið í skautaför, en skautarnir 'hans vóru slitnir og með gömlu lagi. Vel klæddu drengirnir fóru að hlægja að gamaldags sikautunum hans Ralphs. “Þú mátt hraða þér kallinn ef þú ætlar að vera'á undan á svona áhöldum!” Ralph ikinkaði kolli og brosti; lét sem ekkert hefði í skorist. “Sá hlær best sem síðast hlær,” hugsaði hann. ‘*Þeir eru fallegir á að líta nýtísku skautarair ykkar, en eg er ekki hræddur um að eg verði á eftir, á mínum gömlu.— Það var margt uxn manninn, á skautasvellinu þann dag. Stálið skrifaði hröðum mörkum ferðir ‘fóBcsins fram og aftur á svellinu. Risp hljóðið var sísuðandi, hlunkar og ihlátrar, kváðu við, þvx' verkina fundu menn ekki eð;í létust ekki finna,— fyr en dagin eftir. Drengirair fyrnefndu skemtu sér afbragðs- .* vel á nýju skautunum sínum, þeir gerðu drjúgum gaman að þeim sem ekki voru eins vel útbúnir. Montið í þeim og Wgingurinn vissi fá takmörk. Ralph gaf þeirn auga og þóttist vita að eitthvað kæmi fyrir sem minkaði í þeim vindinn. Hann settist niður til að taka af sér slkautana; þá heyrir hann ógurlegan brest og hljóð sem sendi hann loftförum í áfrtina til hættunnar. Stór sprunga hafði komið á ísinn og fólkið fiýði til lands, hver sem betur gat. Hvar voru drengirnir þrír? Ralph kom ekki auga á þá og ógurleg hræðsla greip hann. Rob hafði fallið í v'ökina og var við það að drukna, því enginn treystist nógu nærri að bjarga honum. Ralph flýtti sér í dauðans ofboði þangað sem hinn drengurinn barðist við dauðann. Hann fleygði sér niðxtr nærri skörinni og teygði hand- legginn þangað til liann náði í treyjukraga Robs að framanverðu. Þar hékk hann í, en má/tti ekki hræra sig í burtu. Hinir drengirnir vöknuðu nú við xxr angist- inni og ráðaleysinu, þegar þeir sáu hugrekki Ralphs. Þeir lögðust niður á ísinn, hver eftir annan og sá fyrsti tók í fætur Ralphs og svo hver af öðrum. Nökkrir fullorðnir meim voru viðstadd- ir og gerðu þeir ihið sama. Á þenna hátt var Röb dreginn upp úr vökinnL 1 nokkra daga eftir þetta var Rob í rúmi sínu. Ralph Drake sat hjá honum og skemti honum. Ralph átti fáar bækur, en hann kunni alt sem í þeim vor og vissi því meira, en margir af félögum hans, sem fleiri bækurnar áttu. Hann sóaði held- ur aldrei tíma sínum og var því lengra kominn á veg með að verða nýtur maður en þeir. En Rob var ánægja í að heyra hann segja frá einu og öðru, sem hann sjálfur vissi lítil eða engin deili á. Þegar Rob kom á fætur, gaf hann Ralph nýja síkauta. Enginn dagur leið svo, að Rob ihugsaði ekki xmi kuldabaðið undir svellinu, þar sem hann hefði týnt lífinu, nema fyrir hug- rekki Ralphs. En—enn þá oftar lofar liann sjálf- um sér, að liann skuli aldrei gorta af neinu. (Úr ensku, nafns höf. 0kki getið.) R. K. G. S. þýddi. Jólin. Börnin góð! Jólin eru x nánd. Þau eru fæð- ingarhátíð mannkjTisfrelsarans, Jesú Krists. Lærið að hugsa um hann í sambandi við jólahátíð- ina, meir en nokkuð annað. Trúin á hann sem frelsara er lífsspursmál mannkynsins; því þurfið þið að læra að elska hann á meðan þið eruð lítil. Guðs sonur er hlekkurinn, sem sterklegast tengir mannkynið við Guð, því allur kærleikur og kraftur Guðs bjó í honum. Munið, að hann skip- aði fólkinu að færa börnin til siín, þegar mennirair i skammsýni sinni bönnuðu það. Enginn elskar litlu börnin eins vel. Enginn finnur hrygð þeirra sárar. Engan tekur það eins sárt, þegar þau tala ljótt eða eru vond við þá, sem eni þeim smærri. Litlu systíkinin sín eða mállausu skepnurnar. Eða , þegar börnin eru löt eða gera það, sem þau eiga ekki að gera. Skylduverk eru æfinlega nauðsyn- leg, þó ykkur finnist máske þau séu ekki æfinlega skemtileg. Alt ljótt eru þyrnar í kórónu frelsar- ens eða naglar í hönd hans. Þið finnið hve sárir eru þyrnamir í rósa- styklinum. Þeir eru sjálfsagt til einhvers, en þeir eru ekki til að stinga þeim í höfuð manna. Bletturinn, sem fellur á sáiir ykkar við að gera það, sem ljótt er, eða láta ógert það sem fag- urt er, en þið orkið, hann sœrir Jesúm Krist, eins og þyrnirinn særir ykkur, þegar þið stingið ykkur á honum. Þega illa liggur á ykkur, þá hugsið um hann, bamavininn bezta; gæði ihans og þolinmæði við þá, sem hann umgekst liér. Þau af ykkur, sem get- ið eitfrhvað leikið á hljóðfæri, reynið það sem oft- ast, þegar svo stendur á, og þó þið séuð ekki vel að ykkur í þeirri grein ,ef þið reynið að spila fall- egt erindi eða vers, þá komist þið fljótt að raun um, að enginn máttur megnar að Ijúka sálum ykk- ar betur upp fyrir fagnaðai'boðskapnum, sálar- friðnum og alheims náðinni en sameiginlegir tón- ar hljóðfærisins og orðsins. “Þrisvar Jesús til þeira fúr, því að hann mæddi pína stór; hann bað Petrum, með hýrri lund, hjá sér vaka um eina stund,” segir Sálmaskildið mikla. Haldið lielgan afmælisdag Jesú Krists með því að temja ykkur eitthvað af biðlundinni hans. Hve óendanleg var ekki þolinmæði hans, að biðja lærisveininn, sem alt af sofnaði, “með hýrri lund” —að vaka hjá sér, þegar allur sársaukinn, öll kvöl- in yfir syndum mannanna var að leggjast yfir hnn með ofurþunga sínum. Haldið helgan afmælisdaginn hans með því að lesa eitthvað fallegt eða hlýða á það, með því að reyna að sigrast á einhverju, sem er ljótt, en ykkur þykir máske gaman að gera, með því að lcggja einJhverjum lið í orði eða verki, sem á bágt. Guð gefi ybkur öllum góð og gleðileg jól, í nafni Drottins vors og frelsara Jesú Krists. Ranveig K. G. Sigbjörnsson. SKRITLUR. Dóttirin: “Mamma, mig vantar peninga. Viltu biðja pabba um þá fyrir mig?” Móðirin: “Nei, baraið mitt. Bið þú hann sjálf. Þú eignast einhvera tíma mann, og nú er tíminn að æfa þig.” Kaupmaður fann búðarmann sinn barinn í köku á gólfinu. “Hvað er um að vera?” spurði maðurinn hissa. “Ekkert nema það, herra, að Iri kom hér inn og beiddi um laipu, ,og eg spurði hann hvort hann vildi úlpu” (ulster). ______________ Tveir litlir drengir vora að gorta af ríkidæmi feðra sinna. “Faðir minn,” sagði Roy, “á svo mikið af peningum, að hann getur ekki eytt þeim.” “Það er ekkert,” sagði Ray. “Faðir minn á svo mikið, að móðir mín getur ekki eytt þeim.”

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.