Lögberg - 11.11.1920, Síða 3

Lögberg - 11.11.1920, Síða 3
LOGBERO FIMTUDAGINN 11. NÓVEMBER 1920. \ Bl«. S \I * • .. I • timbur, fialviður af öllum Wjjar VOrubirgðir tegundum, geirettur og al.- konar aðrir strikaðir tiglar, hurðir og gluggar. Komið og sjáið vörur vorar. Vér erumætíð glaðir að sýna þó ekkert sé keypt. The Empire Sash & Door Co. ------------:-----Limitad------------------- HENRY AVE. EAST - . WINNIPEG Automobile og Gas Tractor Sérfræðinga Nelly frá Shorne Mills. Eftir Charles Garvice. 1 enda lierbergisins, bak við lítið borð stóð kona, sem var enn þá ung og klædd skraddara saumuðum fötum með karlmannlegu sniði. Hár hennar var litfagurt og gljáandi, en það var stutt og náði að eins niður á kragann á treyjunni hennar. Hún hafði mjúkan þykkan hatt á höfðinu; glófarnir hennar voru úr hundsskinni, cf þeirri tegund sem menn brúka, og láfgu á borðinu við hlið hennar, hún hélt á pappírsvönd- ul í hendinni, sem engir hringir voru á, þó hún væri kvennleg og falleg að lögun og stærð. Augnagler rambaði á n'efi hennar, og hökunni sem var mjög falleg, stakk hún fram með mi'k- illátum og egnandi hætti. Nelly grunaði að þetta væri lafði Wolfer, og stóð ein's nálægt veggnum og hún gat, meðan hún athugaði og hlustaði á þessa talandi konu með blendinni forvitni og kvíða. “Já, vinir mínir,” sagði ræðukonan, um leið og hún veifaði pappírsvöndlinum og stakk hökunni ennþá lengra fram, “við höfum safn- ast saman til að byrja bardagannn á ný við hinn gamla harðstjóra — bardagann fyrir jöfn- uði og réttlæti! Ó, systur mínar, við skulum ekki hika ekki hvíla, ekki stinga sverðinu í sliðr- ið, fyr en við höfum rutt okkur leið að því tak- marki, sem hið þjáða, undiroikaða kvenfólk hefir barist fyrir, síðan fyrsta orðið heyrðist um jafnrétti fyrir bæði kynin.” Þetta var sjáanlega endir ræðunnar, því nú ómaði lófaklapp og hávær húrraóp, og að vörmu spori þutu allir gestirnir að litlum borðum, þar sem þjónar bjuggu sig til að afhenda ýmsar hressingar. Hálfringluð og kvíðandi stóð Nelly kyr þar sem hún ar, og hún var í þann veginn að fara að spyrja að lafði Wolfer, þegar konan, sem síðast talaði, kom ganlgandi gegnum líerbergið tálandi við nokkrar aðrar konur. Hún sá bein- vaxna líkamann hennar Nelly með kvíðandi svipinn og gekk til hennar. “Þér eruð líklega nýr málsfylgjandi okkarT spurði hún og brosti gegnum augnaglerið sitt. “Mig langar til að tala við lafði Wolfer,” sagði Nelly eins djarflega og hún gat. “Eg er lafði Wolfer,” sagði konan með stutta hárið og karlmanniega klæðnaðinn, og nú talaði hún vingjamlegar en Nelly hafði búist við. “ Eg er — Nelly Lorton. ’ ’ Fáeinar sekúndur var lafði Wolfer að átta sig, svo hló hún og rétti fram hendi sína. “Nei, er það! En hvað þér eruð ungar og —” fa'lleg, ætlaði hún að segja, en þagnaði mátulega snemma. “Hafið þér símritað? En það hafið þér auðvitað gert. Eg hefi svo ósegjanlega mikil bréfaviðskifti ” hún hló aft- ur. ‘ ‘ Nú, eg hélt þér væruð nýr meðlimur félags- ins ókkar. Komið þér með mér!” Lafði Wolfer tók hendi Nellys og leiddi hana með sér út úr herberginu, án þess að skeyta hið minsta um hinar konuraar, sem NeÚy fanst vera kurteisisskortur. — ----o--------r 19. Kapítuli. Lafðin fór með Nelly inn í sitt eigið her- bergi. Það líktist alls ekki viðtalsstofu heldri kVenna; allir húsmunir voru lélegir, og í stað hinna skrautlegu smámuna, sem kvennfólk hef- ir ánægju af að hafa í kringum sig, var herberg- ið fult af stórum bókum í stgrku bandi, mánað- arritum og handrium. Þar var að sönnu piano, en lok þess var þakið af blöðum og papp- írum af ýmsu tagi, og nóturnar voru þaktar með ryki. Skrifborðið átti betur við skrif- stofu karlmanns, heldur en við prívat herbergi 'kvennmanns, og það var líka þakið af bókum og pappírum, sem lágu ruglingslega hvað inn- an um annað. Lafði Wolfer sópaði bókunum af einum stólnum niður á gólfið með hendinni, og þrýsti Nelly alúðlega niður á hann. “Setjið yður niður eitt augnablik, á meðan eg hringi eftir vinnukonu, sem getur fylgt yð- ur til yðar eigin herbergis. Hamingjan veit hveraig það lítur út, og í hverju á'sigkomulagi þér finnið það! Eg er hreinskilin, er það ekki satt? En eg er nú alt af hreinskilin, og eg ætla strax að vera það gagnvart yður. En — hefðuð þér ekki átt að koma fyr eða seinna samkvæmt lestatíma. Nelly sagðist hafa neytt morgunverðar á stöðinni 0g dvalið svo heila stund í biðsalnum, til þess að koma ekki of snemma. “Það er nákvæmni af yður,” sagði iafðin. “Þér lítið svo unglega og svo bamslega út—”, “Eg er heldur ekki gömul ” svarði Nelly brosandi. “Og eg er máské ekki nógu gömul til að geta gegnt skyldunni í minni fvrirhuguðu stöðu.” “Ó, við skulum ekki hugsa um möguleika til þess, að þér getið ekki verið kyrrar hér,” sagði lafðin fljótlega. “Eg er svo þreyti af gömlum önugum manneskjum, og eg er viss um að þér getið gegnt skyldu yðar ágætlega. Þó að þér séuð ungar, þá er samt eitthvað við yður, sem bendir á, að þér getið stjórnað — en það get eg ekki — það er að segja, stjórnað heimili. Eg get talað — “svo um nunn’’, eins pg Archie .segir —” hún þagnaði hálffeiminn eitt augnablik, og Nelly hélt að hún ætti við Wolfer lávarð —” en þegar um sérstaka smá- muni er að ræða, þá er það til allrar hamingju altaf annar, sem getur tekið við stjórninni.” Meðan lgifðin talaði, hafði hún lagt frá sér liattinn sinn og jakkann, og fleygt báðum á bókum þakta legubekkinn. “Eg er nýkominn frá morgunverðar sam- komu, til þess að borða hádegisverð hér heima,” sagði hún. “0g eg verð strax að fara aftur til annarar samkomu, viðvíkjandi heimild kvenna til að taka að%sér opinberar stöður — hafið þér heyrt talað um þetta?” Nelly hristi höfuðið. “Ekki? Eg get næstum öfundað yður. Og þó — það vil eg ekki gera, því ef eg befði ekki þetta istarf, þá væri eg yfirburða óánægð.” Hún studdi hendinni á ennið, og eitt augna- blik leið þreytulegur, þunglyndislegur svipur yfir andlitið, eins og einhver sorg byggi í huga hennar. Dyrnar voru opnaðar og stúlka kom inn. “Burden, þetta er ungfrú Lorton, er her- bergi hennar í góðu ásigkomulagi?” Burden leit efandi út. “Mig grunaði það, en gerðu svo vel að færa það í gott lag og senda inn ögn af víni og kökum. ’ ’ Litlu síðar kom þjónn með hið umbeðna, og lafði Wolfer helti í glas handa Nélly. “Jú, jú, þér megið til að drekka það; það er ekki gott að vita nær við fáum hádegisverð. Það-ér flest óákveðið hérna. En nú viljið þér máske færa eitthvað í lag, er það ekki tilfellið?’' “Þér verðið endilega að segja mér, lafði Wolfe —” byrjaði Nelly, en lafðin þaggaði nið- ur í henni nleð því að gretta sig. “Góða 'stúlkan mín, eg get blátt áfra'm ekki sagt yður annað, en að lávarður Wolfer neytir snemma morgunverðar — aldrei seinna en kl. 9—, að hann er sjaldan heima til hádeg- isverðar; en þegar hann etur heima, gerir hann það kl. 8. Matreiðslumaðurinn, sem eflaust er virðingarverður maður, veit hvað lávarði Wolfer líkar bezt, og eg held, að ef að eins nautaketssteik eða kindaket er á borði, þá skifti litlu hvað hitt er. ’ ’ Nelly lá við að verð sneypuleg, henni fanst hún fá um of ótakmörkuð yfirráð. Með tilliti til hinna þjónanna, þá er hérgöm- ul kona, sem heitir Hubbard — eg kalla hana gömlu mömmu Hubbard — og hefir eftirlit með þeim öllum.” Nelly gat ekki varist brosi. “Eg get ekki skilið fyllilega hvað eg á að gera, hver mín staða er,” sagði hún. Lafði Wolfer hló. ‘ ‘ Getið þér ekki ? Eg hélt að eg hefði tal- að nógu skýrt. Þér eiigið að vera sá leiðandL andi á heimi'linu, stjóraa allri vélinni. Þér eig- ið að líta eftir að alt sé gert rétt; þér eigið að gefa lávarðinum morgunverð hans og vera til •staðar við dagverðinji, þegar eg er úti sem æsingakona —” “Sem hvað?” spurði Nelly hissa. “Þegar eg er , á fundum eða úti til að mynda nefndir annað því um lfkt, ’ ’ sagði lafðin. Og svo verðið þér að undirbúa dag- verðar samkomur og alt þess konar — öll þau heimskullegu störf, sem ætlast er til að eg geri, en sem eg hefi engan tíma til. Skiljið þér mig nú ? ” “Eg skal gera a'lt sem eg get,” sagtii Nelly og hló. Lafði Wolferxleit forvitnislega á hana. “En hvað þér eruð fallegar, þegar þér hlæið, þá lítið þér alt öðruvísi út. Mér sýnd, ist fyst að þér væruð alvarlegar og sorgmæddar, en þegar þér hlæið — eg vil ráða yður til að hlæja ekki, þegar þér sjáið lávarð Wolfer í fyrsta skifti, annars mundi hann álíta yður of unga og barnalega fyrir þessa stöðu. Takið þér nú hattinn af yður og farið úr kápunni; það verður ennþá stundarkorn þngað til her- bergið yðar er tilbúið. Látið mig hjálpa yður.” Nelly fór úr yrfirhöfninni, og lafðin leit meir og meir ánægð á hana. “Já, þér eruð sannarlega reglulegt barn, góða stúlkan mín,” sagði hún og stundi skyndi- lega tilefnislaust. “Mig furðar hvers vegna Wolfer hefir ekki talað um yður við mig fyrri? Eg vildi að hann hefði gert það, eg hefði fegin viljað hafa yður hér hjá okkur. En hann er svo óframfærinn, svo dulur —” hún stundi aft- ur- ‘‘En það er það sama, nú eruð þér hér. Þér bljótið að vera þreyttar, þér eruð svo föl- ar nú. Því drekkið þér ekki vínið? Þegar þér hafið hvílt yður fullkomlega — eftir dag- verð í dag máske — eg skal gá að, þarf eg að íara til nokkus þá.” Hún gáði að hvítri postulínstöflu lúeð ýms- um skrifuðum línum á, sem stóð á borðinu. “Hm. — já, eg á að tala í samkomu — nú jæja, á morgun þá, eftir hádegisverð — ef eg verð heima. Eg held að við verðum góðir vinir, og það er það sem mig langar til. Hin- ar — eg á við þær, sem voru á undan yður — voru svo leiðinlegar, óþjálar persónur, sem ekki hugsuðu um annað en þvott og hreinsun, og það amaði mér og leiddist — en þér eruð alt öðruvísi—” ' “Máske eg geti heldur ekki hugsað um annað en þvott og hreinsun,” sagði Nelly hugs- andi, en lafðin hló, glaðlega. > “Jú,” sagði hún. ‘‘Eg er fær um að þekkja eðli manneskjanna — það er nauðsyn- legt við mín störf — og eg get séð, að þér eruð mjög hentugar fyrir stöðuna. Þér hafið líklega annast um heimilið heima?” * “Það er nú mjög lítið í samanburði við þetta,” svaraði hún. “En það eru þó sömu störfin,” sagði lafð- in örvandi. “Það byggist alt á niðurskipunar- fræðinni; en hana hefi eg ekki, en þér hafið hana, og þess vegna mun yður hepnast það, sem mér hefir mishepnast. Framkoma yðar ber vitni um karakter — en hvað hárið yðar er1 fallegt!” Nelly roðnaði. “Það er ekki fallegra en yðar hár. Hvers vegna hafið þér stutt hár, lafði Wolfer?” Lafði Wolfer hló, en hlátur hennar var svo þreytulegur að Nelly furðaði á því. “Hvers vegna? Ó, eg veit það ekki. Við kvennréttinda herkvendin höfum allar stutt hár. Eg held við höfum heimild til að gera það, og notum-þessa heimild.” “ Já,” sagði Nel'ly, “en er það ekki synd?” Lafði Wolfer leit forvitnislega á hana með þeim svip, sera Nelly, eftir jafn stuttar sam- vistir, skildi ekki. ^ “Ó, kefir það annarsi nokkra þýðingu?” sagði hún. “Við stúlkurnar, höfum svo lengi verið brúður —” “Það eru líka til brúður með stutt hár,” sagði Nelly með sinni meðfæddu hreinsklni. Lafði Wolfer varð ekki móðguð. “ Vel svarað, ’ ’ sagði hún brosandi. ‘ ‘ Gæt- ið yðar annars endar það með því, að áður en langt um líður fáum við' yður upp á ræðupall- inn, góða stúlkan mín.” “Það vona eg að ekki verði — ó, fyrir- gefið — eg átti vdð —” “Engin yfirsjón!” sagði lafðin, án þess að láta sinn glaða huga verða fyrir áhrifum þessara orða. “Það er, sem betur fer, engin hætta fyrir yður; staða yðar er að vera heimil- isins góði engill, að verða elskuð og elska.” Meðan hún talaði snéri hún sér að hallborðinu, og sá því ekki roðann, sem kom fram í Nellys fölu kinnar. “Þér verðið alt af kvennmaður- inn í fjötrum — þý mannsins. Góða toín, 'eg vona að það verði rósafjötrar,” Hún duldi stunu, um leið og hún endaði þessa skáldlegu setningu, og Nelly, sem aðgætti hana, sá aftur þreytu og þunglyndis svipinn á andliti hennar. Nelly hugsaði um hvað það gæti verið, sem amaði henni, og sú hugsun var enn þá lifandi, þegar barið var að dyrum. “Kominn,” sagði lafði Wolfer, og maður kom inn. Hann var ungur og leit vel út; hann var hár og kraftalega vaxinn, fallega klæddur með brönugras í hnappagatinu. Hatturinn sem hímn hélt á í glófaklæddum höndunum, gljáði eins og hann væri nýkbminn frá hatta- gerðarmanninum, og ljómandi fallegir skór vorp á fótum hans. “Afsakið!” sagði hann með þunglamaleg- um róm, sem þá var tízka að brúka. ‘ ‘ Eg vissi ekld að nokkur manneskja var hjá yður.” “ó, eruð það þér!” sagði hún og kinkaði alúðlega til hans. ‘ ‘ Eg hélt það væri Burden. ’ ’ “Eg er kominn til að fylgja yður á sam- komuna,” sagði þessi tízkuklæddi maður, með sömu þunglamalegu röddinni. “Þökk fyrir. Þetta i4r Sir Archi'e Wal- brooke,” sagði lafði Wolfer ti'l að kynna þau, “og þetta er frænka mín — við erum frænkur, er það ekki, kæra ugnfrú Lorton?” Sir Archie hneigði sig og leit rnnsakandi augum á Nelly. “Ætlið þér líka á fundinn?” spurði hann. “Það þætti mér vænt um; þessir fundir eru mjög sikemtilegir —” x “Nei, nei,” sagði lafði Wolfer. “ITngfrú Lorton er hér komin til að færa hér alt í lag og stjóraa okkur öllum —” “Vona að eg sé talinn með — eg þarfnast þess mjög,” .sagði Archie, “mjög alvarlega.” “Ó, þér eruð forhertur — óhtetranlega heimskur, á eg við!” sagði 'lafðin. “Hún er komin til að annast um okkur, lávarð Wolfer og mig.” “Hum!” sagði hann avarlegur. “En af- sakið þessa spurningu — hver á þá að annast um ungfrú Noton?” “Lorton, Lorton,” leiðrétti lafðin.“Þetta er aulaleg spurning, sem engu verður svarað, Farið þér ofan og reykið smávindil. Eg kem strax. ” “Eg er fús til þess — það skal vera mér ánægja; en það er kominn tími til að fara af stað,” sagði hann og rölti út úr’ herberginu. Burden barði að dyrum og sagði, að her- bergi ungfrú Lorton væri tilbúið. “Það er gott,” sagði lafði Wolfer, eins og henni yrði hughægra. Sjáið þér um að ung- frú Lorton fái alt eins og hún vill. Og, heyrið þér, Burden, munið það, að skipunum ungfrú Lorton á alt af að hlýða — eg meina án hikun- ar og umhugsunar. Hún er sú æðs^a hér — næst mér.” “Já, lafði,” svaraði Burden með lotn- ingu. Nelly varð henni samferða inn á gang á efra lofti, og þaðan inn í stórt heTbergi með fallegum húsúnaði, sem stóð í sambandi við svefnherbergi. Búið var að taka úr koffort- inu hennar og koma því fyrir í fataskáp og skúffum. Herbergið leit út fyrir að hafa ver- ið lagað með flýtir, en það var snoturt eins og hitt, og Burden bað afsölkunar á að ýms þæg- indi vantaði í þau bæði. “Eg skal útvega nokkur blóm, ungfrú,” sagði hún. “Á hverjum morgni kemur stór kassi fullur frá sveitaheimilinu. Og ef yður finst kalt hérna, þá skal eg kveikja í ofninum.” “Nei, þökk fyrir, þess þarf alls ekki,” sagði Nélly eins glaðlega og hún gat. , “Á eg ökki að hjálpa yður að hafa fata- skifti, ungfrú? Eg er herbergisþerna yðar —’ Nelly hristi höfuðið sífelt brosandi. “Þetta er alt sanian mjög snoturt og gott,” sagði hún, “og eg verð búin að fáum mínútum liðnum. Mig langar til að ganga um húsið, til þess að sjá alt,” sagði hún dálítið hikandi. “Ef þér viljið hringja bjöllunni þarna, þá skal eg koma strax, og eg skal segja frú Hubb- ard, að þér viljið skoða húsið,” sagði Burden. Nelly settist við gluggann og leit yfir hið ömurlega Londonarpláss, þar sem trén og gras- ið var alveg fölnað, og rejmdi að sannfæra sjálfa sig um, að hún væri í rann og veru Nelly frá Shorne Mills, að hún væri ráðskona lafði Wolfers, og að þetta ætti sér stað í raun og verður meiri þörf en nokkru sinni áður í sögu þessa lands. Hví ekki að búa sig undir tafarlauat? Vér kennum yður Garage og Tractor vinnu. Allar tegundir véla — L head, T head, I head, Valve in the bead 8-6-4-2-1 Cylinder véiar eru notaðar við kensluna, einnig yfir 20 raf- maignsaðferðir. Vér höfum einnig Automobile og Tractor Garage, hvar eér getið fengið að njóta allra 'mögulegra æfinga. Skóli vor er «a eini, sem býr til Batteries, er fullnægja kröfum tímans. Vulcaniaing verksmiðja vor er talin að vera sú lang- fullkomnaista í Canada á allan hátt. Árangurinn af kenslu vorri hefir oss til mikillar ánægju sann- fært bæði sjálfa oss og aðra um að kenslan er »ú rétta og sanna. —Skrifið eftir upplýsingum—allir hjartanlega velkomnir til þess að skoða skóla vorn og áhöld. veru, en væri enginn draumur. En henni féll það erfitt. Hugsanir hennar snéru alt af aftur til Shorne Mills og — Drake. Gaman væri að vita hvað hann hefir sagt og gert, þegar hann fékk bréfið mitt? Ö, hann hefí'r skilið það, veit að úti er um alt okkar í milli. Hann fer í bjirtu — til lafði Luce; svo giftast þau. Lengra vildi hún ekki hugsa. Forsjónin hafði veitt henni stöðu — stöðu, sem mundi dreyfa hugsunum hennar og frelsa hana frá örvilnan, hún ætaði ekki að horfa aftur í tímann, ekki dvelja við hið umliðna. En hve hart sló ekki hjarta hennar af beiskri endur- minningu um hinar gæfuríku vikur og hinn elskaða mann, sem ávalt stóð fyrir innri sjón hennar hvar sem hún var. Hún stóð upp og hringdi bjöllunni, og Burden kom inn og fygldi henni í gegnum nokkra langa ganga og aðalinnganginn. Þar stóð miðaldra kona og beið hennar, Tdæcld svört- um búningi, og hneigði sig fyrir henni fremur mikillega. “Eg er frú Hubbard, ungfrú,” sagði hún dálítið hörkulega; en hið blíða andlit og bros Nellys, bræddi hrímið af hjarta hennar. “Mér skal vera ánægja að fylgja yður um húsið,” sagði hún dálítið vingjarnlegar. “Þetta er stórt hús og ekki auðvelt að stjóma; en þér er- uð máske vanar að stjórna stóru húsi, ungfrú?’ “Nei, alls ekki,” sagði Nelly, sem grunaði að frú Hubbard væri sér mótstæð og yrði því að vera yfirunnin. ‘ ‘ Eg hefi aðeins átt heima í litlu húsi með lítilli heimilisstjóra, og verð því að njóta hjálpar yðar, frú s^Iubbard, að miklu leyti. Þér verðið endilega að vera þolinmóð við mig.” Fní Hubbard hafði ákveðið að byrja bar- daga, eða í öllu falli að vera afar dul og óað- gengileg, en hún breytti strax um skoðun frammi fyrir þessu blíða andliti og barnslegu rödd — og satt að segja nokkuru, sem gljáði í augum Nelly — nokkuð sem alt af var í augum hennar, þegar “Annie Laurie” varð að keppa áfram gegn óhagstæðum vindi, svipur, sem . vitnaði um staðfestu ungu stúllkunnar og lynd- isgöfgiy Frú Hubbard sá strax, að þe^si fallega stúlka, jafn ung og hún var, líktist alls efeki , hinum “gömlu hlátraskrípum,” sem höfðu vrr- ið þar á undan henni, og sem frú Hubbard hafði auðveldlega sigrað. Þessi góða kona skifti um áform með undraverðum hraða. Hún fylgdi Nelly um stóra húsið; þjónar og þernur stóðu upp er þær komu, fyrst forvit- ið, en síðast með lotningu, og Nelly reyndi að gera sér grein fyrir ábyrgðinni er á henni hvíldi. “Eg held að það sé undir yður komið,” sagði hún, þegar þær að lokinni umferðinni sátu í herbergi ráðskonunnar, og frú Hubbard stóð með lotningu frammi fvrir henni — getur maður h{igsað sér með lotningu —! “Eg er of ung og óreynd til að geta stjórnað jafn stóru heimili án hjálpar yðar, en eg held og vona að eg geti gert það með aðstoð yðar. Viljið þér hjálpa mér og ráðleggja? Eg held áreiðan- lega að þér viljið það.” GARBUTT MOTOR SCHOOL, Ltd. City Public Market Building. CALGARY, ALTA. HIN EKTA SAMUEL DRUMHELLER KOL MILLS & COMPANY Ltd. Einka-umhoðssalar PANTANASKRIFSTOFA: Cor. Portage Ave. Elast & Main St. (Gagnvart Bank of Montreal) YARD: McPhilips St. og Notre Dame Avenue A-3289 A-1597 A-3569

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.