Lögberg - 17.02.1921, Síða 2
Bls. 2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 17. FEBRúAR 1921
TEETH
WITHOUT
PLATES
Vanhirðið
ekki tennur
yðar
Ef tennur yðar þarfnast aðgerðar, séu þær Iiolar eða
valda sársauka, þá frestið um fram alt ekki að hitta
tannlæknir. Hjá oss fáið þér þá fuUkomnustu umönn-
un, er æfðir sérfræðingar geta veitt, er geta á sviþ-
stundu komið tönnum yðar í það horf, sem þær þurfa
að vera í. Góðar tennur eru frumskilyrði góðrar heilsu.
VANRÆKIÐ ÞÆR EKKI
Plate Work — Utanbæjar sjúklingar hafi það hugfast,
að hjá oss geta þeir fengið tennur sama daginn og þeir
panta þær. Abyrgst, að tennurnar fari eins vel í
munni og þær upprunalegu, eðtrpeningum skilað aftur.
Btidges and Croivns — Bridgework er fullkomnasta
nútíðaraðferðin við setning nýrra tanna, þegar fjórar
eða fleiri góðar tennur eni eftir í öðrum hvorum gómi
til að hafa að kjölfestu. Slíkar tennur eru óþekkjan-
legar frá hinum eðlilegu. Það bridgework er fæst í
lækningastofu minni, er af beztu tegund, sem þekkist,
með cast gold anchoring crowns.
- Prítt járnbrautarfar í Febrúar
^ og Marzmánuðum
Yfir Febrþar 0g Marzmánuð veiti eg Round
Trip fargjald upp að 150 mílum, öllum þeim, er
gera sanngjarnar pantanir af verki á lækninga-
stofu minni.
ATHS.—Hin skriflega ábyrgð mín veitir yður fulla
tryggingu, en sú trygging nær yfir allar teg-
undir tannlækninga á lækningastofu þessari.
Þeir, sem koma til vor, fá allar leiðbeininagr
á sínu eigm- tungumáli -
DR. H. C. JEFFREY
Inngangur að 205 Alekander Ave., Cor. Alexander and
Main St. uppi yfir Bank of Commerce
WI.NNIPEG
Phone A 7487 — Gleymið ekki staðnum
Skrifstofutími: 9 f.h. til 8.30 e.h.
- Allar tungur talaðar
leik, etia þá einhvern annan leik,
þá er fólki alveg óhætt að koma,
það sér naumast eftir því.
Búningar leikfólksins voru yfir-
leitt góðir, þó var þeim frá mínu
sjónarmiði að sumu leyti ábótavant,
en um það er ekki vert að fást, það
er alt af hægt að breyta til með
ibúning, það sér maður nú daglega,
enda miá lengi deida um það hvað
sé iheppilegastur leikbúningur fyr-
ir hvern og einn. 0g nú skal eg
segja það sem eg hefi aldrei sagt
áður, og hefi eg þó sagt sitt af
hverju um dagana. Að eg hefi
aldrei séð íslenzkan karlmann
fara eins vel með hlutveric ástar-
innar eins og það sem eg hefi séð
stúlkur bezt gjöra, má vera að það
kpmi til af því að þær séu ást-
ríkari og hafi þar yfir meiri auð
að ráða. En Ibenda mætti á það
að það er auðmýkjandi að veTa
ástfanginn og mig grunar að veik-
leikinn hjá piltunum í þessu til-
felli svona yfirleitt liggji í því að
iþeim þyki það ekki karlmannlegt
að láta neitt til muna á því bera
þó þeim þyki vænt um stúlku. Og
hvað viðvíkur þessum leik þá var
ástinni ek(k(i niándar nærri gerð
full skil, thún bar sig svo elsku-
lega eftir ibjörginni kærleikanum
ætlaði eg að segja. En mönn-
unum báðum var vorkunn, þeir eru
biáðir ungir 0g eiga báðir ungar og
elskulegar konur, svo í því tilfelli
eiga þeir ef til ekki til tvískift-
anna, jafnvel ekki á leiksviði.
Að endingu skal eg segja þetta:
áheyrendur ættu að hafa sem allra
mesta kyrð að hægt er, helzt að
reka ekki upp skellilhlátra, og ef
menn hlægja að reýna að hlægja
sem allra .styzt.
Selkirk 1. febr. 1921 KI. J.
af Suðurlandi. Eignuð-
hjón eitt barn, sem dó
Tengdapabbi.
Sjónleikur í fjórum þáttum.
Snemma í vetur kom sá orðróm-
ur í gang, að búið væri að mynda
leikfélag meðal íslendinga í Sel-
kirk, og farið væri að æfa leik,
sem “Tengdapabbi” héti. Mis-
jafnlega var spáð fyrir því fyrir-
tæki og fæstir spáðu góðu. pó
voru aðrir, sem álitu að ekki mundi
vera um verulega hættu að ræða
og rétt mundi vera að bíða og sjá,
hvernig þessu lyktaði. Aðrir vildu
brjóta eggið strax, sögðu að aldrei
mundi koma söngfugl úr því
hreiðri; og þó svo ólíklega færi,
að það kæmi fugl og færi að
syngja, þá myndi ihann að eins
syngja með sínu nefi. En ihvernig
það nef yrði, um það kom mönnum
nú aldrei saman.
Vetrarkvöldin eru oft löng og
köld hér hjá oss á þessu mælistigi,
og oft lítið fyrir hendi til að stytta
þau 0g lýsa, andilega skilið. Menn
ættu því að gleðjast í hvert skifti
sem bólar á einhverjum nýgræð
ingi, sem líklegur er til þess að
festa rætur 0g minka moldarflag
andleysis og leiðinda. Og nú er
búið að leika “Tengdapabba”, og
verður naumast annað sagt, en að
það tækist ótrúlega vel að stytta
þau vetrarkvöldin.
pað var leikið tvö kvöld, 27. og
28. janúar, og var aðsókn í bezta
lagi, og þó fctetri seinna kvöldið, og
hefir það vafalaust hjálpað til,
hvað vel tókst fyrra kvöldið. Eg
var þar ekki nema annað kvöldið;
hefði komið bæði, hefðu J^pingum-
stæður leyft. Eg skal hreinskiln-
islega játa, að eg gerði mér ekki
háar vonir, en leikendunum tókst
að skemta mér langt fram yfir
það sem eg bjóst við. Og hyer eín-
asti maður og kona í húsinu virt-
ist véra í bezta skapi og ánægt
með það sem það heyrði og sá.
Allur útbúnaður var góður. Eg
er viss um, að tjöldin eru kölluð
listaverk, að minsta kosti af þeim,
sem ekkert vit hafa á þeim hlut-
um, og eg hefi þann heiður, að
vera einn af þeim, enda þóttu mér
þau ljómandi falleg. Hitt er ann-
að mál, hvað listdómarar hefðu um
þau að segja. Mér dettur nú í hug
það sein eg einu sinni sá á hreyfi-
myndasýningu. Skyldi mér vera
óhætt að segja það hér? Mér er
þá sama, eg segi það samt.
Pað var ungur málari, sem átti
að mála mynd af dóttur ríkisbubba
og þá um leið stórhöfðingja—iþví
allir ríkismenn eru stórhöfðingj-
ar. En afleiðingin varð sú, að mál-
arinn og stúlkan urðu ástfangin
hvort af öðru. Karlinum, föður
stúlkunnar, leizt ekki á blikuna,
þegar hann komst að þessu, en
sagði þó að hann skyldi gefa sam-
þykki sitt til ráðaJhagsíns, ef mál-
arinn gæti miálað svo góða mynd
af dóttur sinni, að listmálarar þeir
sem hann útnefndi, gætu ekki
| neitt sett út á myndina. Svo kom
dagurinn sem átti að dæma um
myndina, málarinn var að leggja
síðustu hönd á verjkið. pá v^ldi
það slys til að hann tók upp stór-
ann málbursta, en þurfti á sama
tíma að snúa eitthvað fyrirmynd-
inni og um leið, slettist stóri mál-
burstinn rétt á andlitið á myndinni
svo það var alt saman Iöðrandi í
máli. Hér þurfti að sýna hið
mesta snarræði, listadómararnir
voru á leiðinni og myndin ónýt;
stúlkan stakk því upp á því að láta
sig^sjálfa koma í stað myndarinn-
ar og það var samþykt, þau tóku
því myndina og skáru bupt skemda
andlitið, en stúlkan fór á bak við
grindina sem myndin var á og lét
andlitið á sjálfri sér koma í stað
skemdu myndarinnar. Og nú
komu listadómararnir, vafalaust
hefir enginn málari fengið harðari
dóm, alt var öðru vísi en það átti
að vera, hörundsliturinn, hiárið
augun og yfir höfuð alt á annan
veg en til var ætlast, og þó var
þetta stúlkan sjálf ljós-lifandi.
Loks gat stúlkan ekki stilt sig en
skellihiló, Svo skal eg nú ekki segja
þessa sögu lengur. En heldur vil
eg jiú sjá málverk sem mér þykir
fallegt af því eg hefi ekki betur
vit á, en vera listadómari og dæma
það ógilt af sömu ástæðu. Ann-
ars þajrf eg ekki annað en nefna
nafn þess sem málaði tjöldin, til
þess að menn sannfærist um að
þau séu boðleg, nafn Snæbjörns G.
Pálssonar er næg trygging fyrir
þvi að leikflokkurinn í Selkirk hef-
ir faileg leiktjöld.
Ekki ætla eg að fara að lýsa
leiknum, og því síður hverjum leik-
ara út af fyrir sig, eg er búinn að
segja að mér var ágætlega skemt
og mér virtist hverjum einasta
manni og konu vera vel skemt, og
þegar verið er að reyna að skemta
fólki og það tekst svo að menn
teygjast sundur og saman af hlátri
þá virðist tilganginum sannarlega
náð, og með það ættu báð^r máls-
partar að gjöra sig ánægða, bæði
þeir sem skemta og eins þeir seip
verið er að skemta. Enginn skijji
orð mán svo að ekkert hafi verrið
æm ekki var hægt að finna að.
Nei, langt frá því, eg hefði jafnvel
treyst mér til þess sjálfur, hvað
þá aðrir. En eg er ekki að skrifa
þetta til þess að setja út á, heldur
til þess, að hvetja þetta fólk til
að halda áfram og gjöra betur og
á sama tíma, að reyna að koma
fólki í skilning um það að ef þessi
leikflokkur skildi halda áfram og
sýna einhvern tíma seinna þenna
Dánarfregn.
pann 9. janúar s.I. andaðist á
heimili sínu í Pembina, NjD., kon-
an 'Guðleif Bergvinsdóttir Er-
lendssonar og Sigríðar Einarsdótt-
ur. Hún var fædd 1861 á Álfta-
nesi í Gullbringusýslu, en ólzt upp
að nokkru leyti hjá Lofti bónda
Gíslasyni í Vatnsnesi í Grímsnesi
í Árnesýslu, og dvaldi hún þar
fram yfir tvítugsaldur, fluttist þá
vestur í Borgarfjarðar sýslu til
móður sinnar og systur, en undi
sér þar ekki og flutti svo eftir
stuttan tíma til Reykjavíkur og
dvaldi þar nokkur ár sem þjón-
utustúlka hjá ýmsu málsmetandi
fólki, lengst hjá Jóni biskupi
Helgasyni.
Árið 1902 fluttist hún vestur um
haf til Pembina, N.D. Hér um bil
ári síðar giftist hún eftirlifandi
manni sínum, Guðjóni Bjarnasyni,
ættuðum
ust þau
ungt.
Hin látna kona átti við mikla
Vanheilsu að búa hin seinni ár
æfi sinnar, einkum þó hið síðasta;
lét maður hennar þó ekkert ógert,
sem létt gæti hina þungu byrði, en
“Hvað skal mennskra manna afl”
þar, sem dauðinn er arinars vegar.
Guðleif sálaða var vönduð kona.
Gjafmild og hluttekningarsöm við
alla, sem erfitt áttu, því hjartað
var gott; ráðvönd var hún og
skyldurækin í fylsta máta; raun-
góð og trygðföst við þá, sem hún
hafði náin kynni af. Hún var þrif-
in, vandvirk og hirðusöm heimil-
ismóðir; hafði yndi af að láta alt
líta út sem þokkalegast á heimili
sínu, enda var hún gædd næmri
fegurðartilfinningu. Hún hafði
sterka löngun til að láta gott af
sér leiða, en fyrir hina hugsana-
lamandi sjúkdómsbyrði um mörg
ár, gátu hennar góðu eiginleikar
ekki notið sín til fulls.
Margir eru þeir vinir og kunn-
ingjar hinnar látriu, sem minnast
hennár með hlýjum tilfinningum.
Og hinn syrgjandi eiginmaður
blessar minningu hennar með við-
kvæmnis og saknaðar tárum og
með innilegri þakklátssemi til
allra hinna góðu íslenzku kvenna,
sem ialt gerðu er unt var og í
þeirra valdi stóð til að létta síð-
asta stríð hinnar deyjandi konu.
• * * *
Hver getur öll þau talið tár
af trega’ er væfca fölar brár
á þeim, sem mörg um æfi ár
má okið sjúkdóms bera,
en hafa’ í brjósti heitar þrár,
til hjálpar öðrum vera?
Hver getur láð, þó löngum valt
þeim lífið finnist, dimt og svalt,
og verði stundum viðimót kalt
' og vanstilling í geði,
Og huganum til angurs alt,
sem öðrum veitir gleði.
En þegar líf er þannig stætt,
við þjáning sérhvern dag er bætt
og viðnámsþrekið veikt og mætt,
en vonarrddir þegja,
og ekkert meinin getur grætt,
er gott að fá að deyja.
Ó, látna kona, þung var þraut,
sem þér var látin falla í skaut,
en engin bót, svo enda hlaut
þinn örfaga þráður spunninn.
En nú er Hka nóttin braut
Og nýr upp dagur runninn.
Svo tómt er mál að tala’ um hvað
í tíma þér var úthlutað,
þú hefir fluzt í fegri stað
og fengið meina bætur.
Og harma fró og huggun það
er honum, sem þig, grætur.
UPPSKURÐUR EI
NAUÐSYNLEGUR
“ll'ruit-a- tives kom henni til fullr-
ar heilsu.
158 Papineau Ave., Montreal.
í full þrjú ár þjáðist eg af svo
magnaðri þembu, máttleysi og
bólgu að eg hélt að ekki væri um
annað en uppskurð að ræða. Sér-
fræðingur sagði að uppskurður
væri það eina. Samt neitaði eg
því.
„Eg heyrði um “Frut-a-tives og
ákvað að reyna þá. Mér fór
undireins að batna við fyrstu
öskjuna og hélt áfram, þar til eg
var alheill. Eg flyt “Fruit-a-
tives” mínar kærustu þakkir.”
Mm. F. Gareau.
50c. hylkið, 6 fyrir $2,50, reynslu
skerfur 25c. Fæst í öllum búðum
eða gegn fyrirfram borgun beint
frá Fruit-a-tives Limited, Ottawa.
Hann veit þér líður vel, og þú
úr viðjum þrauta leyst ert nú,
og við þér brosir veröld sú,
er Vermir æðri krafltur.
Hann þrey’r og deyr í þeirri trú,
að þar munið finnast aftur.
Árborg, Man.,,24. jan. 1921.
Herra ritstjóri I
Hér með sendi eg Lögbergi mán-
aðartöflu lífsábyrgðarfélagsins al-
kunna “The Mutual Life of Can-
ada”, 305 Lindsay Build., Winni-
pg, sem er vitanlega sameignafé-
lag allra sem tilíheyra því. petta
fagra málverk er fjallasýn og
Ijðmar í tign kveldroða hverfandi
sólar. Hnjúkar fjallanna eiga að
tákna mátt, sem félagið hefir að
bera. En aftanskinið á að minna
okkur á dagsetur vegferðarinnar
fram undan. A<5 minna okkur á
andlega og tímanlega velferð. Að
tryggja végferð vinanna með á-
byrgð á okkar eigíh lífi, sem er
mest varðandi mál Iheimsins í dag.
Já, hélst í dag, því máske á morg-
un verði það of seint. pessi ofan-
greinda tafla á að tilheyra tilvon-
andi meðlimum á meðan hún end-
ist. Ekkert hefir verið sparað til
a^ gera þetta málverk frægt.
*' Allir vita hvað það er nauðsyn-
<legt að tyg^a líf sitt, kvenfófcki
jafrit sem kariímönnum. Mutual
Life afgjald er eina Iægst allra
félaga. pó minkar það er árin
líða. Með öðrum orðum þér er
borigað til baka af ágóða félags-
ins. MutuaH Life Policy má af-
greiða, er krefst einskis afgjalds,
HEIMSINS BEZTA
MUNNTÓBAK
COPENHAGEN
Hefir góðan
keim
Munntóbak sem
endist vel
Hjá öllum tóbakssölum
mn
1870
1921
THE MUTUAL LIFE
Assuraoce Company of Canada
WATERLŒ) , ONTARIO
Fifty-First Arrnual Statement
_ A few significant features of íhe annual statement presented to the
policyholders at the annual meeting February 3rd, 1921, are givep in the
following condensed summary. —,
Income
Assets .
1919 1920 Increase
8,583,404.00...... $ 10,124,171.00....... $'1,540,767.00
38,020,949.00...... 42,847,277.00......... 4,826,328.00
New Assurances ....... 40,625,655.00........ 47,008,024.00""Z"” 6Í382Í358.00
Surplus Earned ....... '--------------
Total SurpJus Fund....
Assurances in Force ..
1,302,801.00........... 1,657,104.00............ 354,303.00
4,540,536.00............ 5,013,680.00........... 478,144.00
170,706,305.00......... 206,627,728.00......... 35,921,423.00
l
Velgengni.—pað sem umfram alt
einkennir þessa 51. ársskýrslu, er
hagsýni, sparnaður og stóraukinn
fjárhagsþroski félagsins.
The Jubilee.—Á liðna árinu átti fé-
lagið því að fagna, að auka viðskifta-
veltuna meir en nokkru sinni fyr, og
nýiar tryggingar hlupu upp á 47 milj.
dollara, en með því komst veltan yf-
ir tvö hundruð miljóna markið.
Investments. — Hin hagkvæmilegu
kjör, er félagið bauð, og hinir háu
vxtir af innlagsfé, gerði það að verk-
um, aðfélagið hefir getað lagt út í
ný fyrirtæki, sem verða skírteinis-
höfum til stórkostlegs ávinningis í
framtíðinni. Vextir af investments
félagsins á árinu 1920 námu til iafn-
aðar 6.41 prócent.
Hreinn ágóði.—Hagsæld félagsins
sézt glöggast af því, að hreinn ágóði
varð $354.303 hærri en á árinu þar á
undan, éða jókst með öðrum orðum
um 27 prct. Pað er.að segja, hverjir
$1,000 í eignum félagsins gáfu af sór
$38.67 í hreinari ágóða.
Aukin gróðahlutdeild til skírteinis-
hafa.—pað, hve félagið var'fljótt að
ná sér, eins og sjá má af ársskýrsl-
unura, eftir hin stórkostlegu útgjöld,
sem stríðinu f.ylgdi svo og landfars-
sóttinni miklu, er sannarlegt fagnað-
arefni, enda hefir gróðahlutdeild til
skýrteinishafa ú árinu hækkað um
50 prct. frá því sem var árinu áður.
r
CC. . •..-AflVE STATEMENT
Year Incomc Assets Paid to
Policyáolders
1870 ....... $ 4,956.00.... $ 6,216.00....
1880 ....... 88,691.00......... 225,605.00........ $ 26,681.00...
1890 ........... 439,858.00...... 1,696,076.00....... 176,151.00.....
1900 ......... 1.164,875.00...... 5,165,493.00....... 424.815.00....
1910 ......... 3,020,996.00..... 16,279,562.00....... 804,759.00....
1920 ........ 10,124,171.00..... 42,847,277.00..... 3,667,522.00.....
Businesa
in Force
i 500,000.00
3,064,834.00
13,710,800.00
29,518,626.00
64,855,279.00
206,627,728.00
A copy of the detailed report will be mailcd to every poiicyholder in due course.
Hume Cronyn
President
Charles Ruby
Gerierai 14 ar.ager
O. W. BOBBINS, General Agent,
305 Bindsay Bldg., WlnnJpeg.
G. S. Gudmundsson, Agent, Arborg, Man.
ef meölimur verður fyrir slysum
eða veikindum, eða getur ekki unn-
ið fyrir sínu lífsbrauði. 1 stað þess
færð þú mánaðarlegar afl>oi*ganir,
með litlu auka afgjaldi í fyrstu.
Ef dauðinn þá kallar að, fær erf-
inginn skírteinið iborgað að fullu.
Vanti þig lánstraust hjá bank-
anum, eða annars staðar, þá berðu
eins háa lífsábyrgð iog þú treystir
þér til. Ef þú hefir skuld á eign
þinni, þá gleym ekki að) tryggja
líf þitt nægilega.
Ef þú verður kallaður í burtu án
þeirrar góðu tryggingar, verður
afleiðingin voðleg.
Mutual Life Premium Rate er
til dæmis:
20 ára Ordinary Life...... $18.70
20 ára 20 pmt. Lfcfe .... $27.25
20 ára 15 pmt. Life ..... $32.40
20 ára 25 yr. endowm..... $37.80
20 ára 20 y. endm..... ...$47.65
20 ára 15 yr. endm....... $65.60
petta er að eins skýring ega
bending til lesenda blaðsins, ef
þér finst það geti orðið að góðum
notum. Einnig læt eg hér með
félágslista af meðlimum MutUal
Life félagsins Víðsvegar um
bygðir, mönnum til hliðsjónar.
T;he Mutual Life of Canada ósk-
ar eftir íslenzkum umboðsmönnum.
peir sem þann istarfa vildu takast
á hendur, hitti persónulega eða
skrifi til O. W. Robbins, General
Agent, 305 Lindsay Bldg., Winni-
peg, Mán.
Með virðingu.
G. S. Guðmundsson.
Æfiminnbg.
BÚI JÓNSSON
“Guð huggi þá, sem hrygði slær,
Hvort þeir eru fjær eða nær. ’
Hann var fæddur 29. september
1848 á bænum Skaga í Dýrafirði í
ísafjarðarsýslu á íslandi. For-
eldrar hans voru Jón Jónsson
skipstjóri og kona hans Ólöf Guð-
mundsdóttir, ibróðurdóttir séra
Gísla ólafssonar í Sauðlauksdal i
Barðastrandar sýslu.
Frá 'blautu barnsbeini stundaði
hann sjó og vandist snemma við
vos; en í áeðum Búa heitins rann
norrænt ví||ingablóð og aldrei bil-
aði honum kjarkur. Átján ára
gamall komst hann í skipbrot, og
druknuðu allir, er á skipinu voru,
nema ;hann. Var hann í ofsaveðri
tólf 'klukkutíma á kjöl áður en
skipinu skolaði upp. Skreið hann
þá til mannabygða, þar sem hon-
um var hjúkrað. Náði hann 'sér
ffcjptt afjtur. 1 hinni sömu sveit var
'Ókkja, sem misíi mann sinn og son
í því skipbroti. pegar Búi heitinn
fór að búa, sýndi hann henni
mannkærleika með því að taka
yngsta ,barn 'henar, fjögra ára
gamalt, og ala það upp. Var það á
heimili hans, þangað til hann fór
til Canada.
Árið 1871 kvæntist ihann pór-
laugu Guðbrandsdóttur. Foreldrar
hennar voru Guðbrandur Jónsson,
bóndi á Birnustöðum í Dýrafirði,
og kona hans Halldís Bjarjiadótt-
ir. Foreldrar Halldísar voru þau
Bjarni Jónsson og kona hans El-
ísabet, dóttir séra Markúsar á
Söndum í Dýrafirði.
Bjó Búi heitinn þá allan sinn
búskap á Skaga. Lifði harin í
góðum efnum og bafði þ'ar rausn-
aribú. Var hann bjargvættur í
sinni sveit; aldrei þurfandi, iheld-
ur veitandi. Tvö seinustu árin,
sem hann var á Islandi, bjó hann
á bænum Núpi í sömu sveit.
Árið 1887 brá 'hann sér vestur um
haf og settist að í Víðinesbygð í
Nýja íslandi. Eftir fimm ára dvöl
í þeirri bygð færði hann sig til
Selkirk, og dvaldi þar sex ár. öll
þau ár sem hann bjó í Nýja Is-
landi og Selkirk var hann formað-
ur á Winnipegvatni. pess má
geta, að eftir að hann varð sj.Jfur
formaður> varð hann aldrei fyrir
slysi, heldur bjargaði hann mörg-
um úr sjávarbáska.
Fyrir rúmum tuttugu og tveim-
ur árum fluttist hann til Winni-
pegosis. Stundaði hann eftir það
veiðar í Winnipegosis vatni frá
Robertsons tanga. Var pórlaug
kona hans sú fyrsta íslenzka kona,
er steig fæti sínum á Robertsons
tanga. Hepnuðust Búa heitnum
öll verk vel og var hann lánsmað-
ur í öllu. Reisti ihann sér mynd-
arlegt heimili í ibænum Winnipeg-
osis. pó má geta þess, að hann
var aldrei eins ánægður í Vestur-
heimr/ og á fósturjörð sinni, eins
og oft vill verða fyrir mönnum,
sem hafa verið í góðum efnum
heima og haft yfir mörgu fólki
að segja, og koma svo til ókunnugs
lands, þar sem þeir verða að vinna
baki brotnu og lúta öðrum.
Eignuðust þau hjón þrettán
börn. Sex dói* í æsku heima á ls+
landi, en sjö komu með floreldrun-
um til Canada. Eitt af þeim, sem
hingað komu, dó í Nýja Islandi,
Annað dó í Winnipeg. Var hið
síðarnefnda !hinn ungi, göfugi
mentamaður, Ingvar Búason; ætl-
aði hann sér að vgrða prestur í
Fresbyterakirkjunni. Var ‘hann
kvæntur Guðrúnu Jóhannsdóttur,
sem er mörgum Vestur íslendigum
kunn. Er hún mesta myndarkona.
Áttu þjiu hjón eina dóttur, vel
gefna og gáfaða, sem nú er
seytján ára gömul.
Fimm af ibörnum þeirra Búa
heitins og pórlaugar eru enn á lífí
og eru nöfn þeirra:
1. Jónína (Mrs. A. Moyer) bú-
'sett skamt frá Winnipegosis.
2. Jón, kvæntur og búsettur ná-
lægt Wynyard, Sask.
3. Guðrún (Mrs. G. A. Johnson)
búsett í Brandon, Man.
Voru þessi þrjú ofannefndu við-
stödd jarðarför föður síns.
4. ólöf, ógift, er nú í Vancouver,
B. C. Gat hún ekki verið Viðstödd
við jarðarförina sökum fjarlægð-
ar.
5. ólafía (Mrs. R. E. Ftetcher)
búsett í Moose Jaw, Sask. Var
henni einnig ómögulegt að koma
og vera við jarðarförina.
Áttu þau hjónin einnig eina
fósturdóttir, Nelly Crawford, nú
Mrs. Ó. Frederickson,( búsett í
Wínnipegösis. Áttu þau við and-
lát Búa sextán barnabörn á lífi.
Búi heitinn Jónsson var maður
hár verfti, þrekinn og hraustbygð-
ur. Var ihann fríður sýnum og
með hreinan svip. Var hann
skapmikill maður, en ætíð veglynd-
ur. Sagði hann öllum meiningu
sína, æðri sem lægti. Hann var
tryggur og sftiwur vinur og aldrei
riiátti heyra hajin níðast á lítil-
magna, heldur hitt að hann tók
málstað 'hans. Var hajm kapp-
samur og ávalt sívinnandi, en
fann samt ssm áður tíma til lest-
urs, það var rieglulega ánægju-
1-egt að ræða ýms mál við hann;
því hann var bæði víðlesinn og
fróður um margt. Á heimili sínu
var hann fyrirmyndarmaður^ og
friðsamur viðl alla nágranna sína.
Hugsunin um sína var ætíð mikil
hjá honum. Unni hann konu
sinni mjög heitt. Var hann öll-
um sínum börnum elskuríkur fað-
ir.
1 vetur stundaði hann eins og
hjann var vanur fliskiveiðar frá
Robertsons tanga og fiskaði frem-
i^r vel. Eri núnay eftir nýár
veiktist hann og yar rúmfastur
um tíma, en hann hélt alla tíð, að
honum myndi batna svo mikið að
hann gæti komið heim; því þetta
var fyrsta legan, sem hann ljá á
æfi sinni. pví miður varð hann
fyrir vonbrigðum. Tuttugasta
og sjöunda janúar >. á. varð hann
að ganga gegnum dauðans skugga-
dal. Andaðist hann um kveldið
milli kl. 9 og 10. Var hann við
andlátið 72 ára og 4 mánaða gam-
all. Lungnakvef varð hans bana-
mein.
Mr. og Mrs. Halldór Pálsson
reyndust þeim Búa heitnum og
ekkju hans ágætlega meðan á
veikindnum stóð. pau spöruðu,
sér ekkert ómak til þess að gera
þeim alt til þæginda. Undir eins
eftir andlát Búa heitins sendi Mrs.
Búi Jónsson sonarson sinn, sem
hjá ihenni var, til þeirra hjónanna
og komu þau undir eins norður um
nóttina og sýndu henni alla þá
hluttekningu, sem þau gátu. Mrs.
Pálsson veitti hinum fr,amliðna
nábjargirnar, huggaði og hug-
hreysti hina sorgbitnu ekkju.
Sýndu þau hjón með þessum verk-
um sannan mannkærlika.
Jarðarförin fór fram friá ensku
kirikjunni í W.innipegosis þriðju-
daginn fyrsta febrúar. Séra E.
Roberts og undirritaður, jarð-
sungu hann. Voru því nær alKr
íslendingar í og umhverfis Winni-
pegosis viðstaddir og þar fyrir
utan mikiill fjöldi af hinum ensku
kunningjum 'hans. Var jarðarförin
í alla staði hin allra prýðilegasta.
Hvílir hann nú 'í grafreit Winni-
pegosis bæjar þar til lífgjafinn
kallar á hann. Megi góður guð
veita hinni göfuglynd'u ekkju hin-
um mannvænlegu börnum þá hugg-
un, sém að eins hinn Ihimneski
faðir er fær um að veita syrgjend-
um á þessari jörðu.
Fyrir hönd ekkjunnar og barn-
anna færi eg öllum, sem sýndu
þeim hluttekningu, inni'legt hjart-
ans þakklæti, einkanlega Mrs.
Jónas Schaldemo og systur henn-
ar Mrs. A. Jónasson, sem lögðu
fagran blómsveig á kistuna.
Davíð Guðbrandsson.