Lögberg - 07.04.1921, Síða 4

Lögberg - 07.04.1921, Síða 4
ÐU. 4 LOGBERG, FIMTUDAGINN, 7. APRíL 1921 ^ogbctu Gefið út hvem Fimtudag af The Col- umbia Press, Ltd.^Cor. William Ave. & Sherbrook Str., Winnipeg, Man. Talsimart K-6327'oí N-6328 J6n J Bíldfell, Editor Utanáskrift til blaðsins: THE COLUNIBIA PRE3S, Ltd., Box 3171, Winnipag, Utanáokrift ritstjórans: EDITOR LOCBERC, Box 3172 Winnipag, ^an. The '■Lögberg” is printed and published by The Columbia Press, Limtted, ín the Columbia Block, 853 to 857 Sherbrooke Street, Winnipeg, Manitoba. Sameinaða kirkjan og tungu-skiftin 1 síðasta blaði Samekiingarinnar birtum vér þýðingar á tveimur mikilvægum yfirlýs- ingum, sem Sameinaða kirkjan gjörði að sínum cigin á þingi sínu í Washington á síðasta hausti. Þýðingarnar eru lauslegar nokkuð og lítið eitt samandregnar, — en þó var reynt að raska þar hvergi réttri merking frumtextanna. Samþyktirnar eru vel þess verðar, að með- limir kirkjuifélagsins vestur-íslenzka lesi þær með gaumgæfni, því að sami vandinn, sem þar er um að ræða, er oss á höndum líka. Fyrri samþyktin sýnir berlega, Ihvar lúterska kirkjan hér vestan hafs hefir tekið sér stöðu í tnimála- umróti vorra tíma — því Sameinaða kirkjan talar fyrir mikinn meiri hluta trúbræðra vorra hér, þegar hún lýsir hollustu sinni við heilaga ritning og lútersk játningarrit. Á því er eng- inn vafi. Lítið eitt hefir Sameiningin að athuga við yfirlýsing þessa, eins og tekið er fram á sínum stað, en meginmálið teljum vér alsatt og lieilbrigt eins fyrir þvf. Að sjálfsögðu þykir mörgum Vestur-ls- íendigum ómaksins vert að athuga síðari sam- .þyktina — þá um tungumálin. Hún sýnir, að þótt Sameinaða kirkjan vilji vera þess hvetj- andi fremur en hitt, að útlendir hópar lút- erskra manna losist sem fyrst við tunguhaftið, þá hefir hún tekið ,þá stefnu, að fara sem allra vægast og gætilegast í sakirnar, þegar til fram- kvæmda kæmi. Yfirlýsingin er því svo sann- gjörn og umburðarrík, sem framast mátti bú- ast við úr þeirri átt. Þó er þar helzt til lítið tillit tekið til vand- ans, sem á ferðum er ætíð, að þvií er vér hyggj- um, þegar reynt er að hraða flutningi tilbeiðslu- Lífsins úr g'ömlum átthögum yfir í aðra nýja. “Sú von er bæði völt og myrk”, sem ímyndar sér, að alt geti gengið eins og í sögu um tungu- skiftin — að ekki sé annað en prédika fyrir lýðnum á útlendum málum, á meðan hann skil- ur þau betur en enskuna, og skifta svo um, þegar landsmálið sé orðið tamara þeim, er á hlusta. Létt væri Mfið, ef svona auðvelt væri og vandalítið aÖ ráða fram úr öðru eins efni. En hér koma ýmsir hlutir til greina, sem gjöra strik í reikninginn. Fyrst og fremst er eðlileg trygð hinna eldri við f jársjóðu þá, sem þeir tóku með sér frá æftlandinu. Hún gjör- ir þeir ervitt fyrir, þegar þeir eiga að sætta sig við nýja tungu í sjálfum helgidómi guðs- dýrkunarinnar. Geta ekki notið sín eins vel sem þeir vildi, í tifbeiðslunni, þegar svo er komið. Eins verður öllum þorra útlends fólks miklu happadrýgra að nota móðunnál sitt og arfgenga fjársjóðu, sem sjálfu því eru dýr- mætir, þegar það reynir að glæða trúna í hjört- um barna sinna. Auðvitað eru til undan- tekningar á þessu; sumum hinna eldri tekst betur að lifa sig inn í enskuna, heldur en öðrum. En yfirleitt verða á'hrif heimiHsins gæfusam- Jegust, þegar börnin læra að skilja og meta þá hluti, sem foreldrunum eru helgir dómar. Ann- ars verður yngri kynslóðin sneidd réttmætum arfi sínum og bíður ósegjanlegt tjón við um- síciftin, jafnvel þótf hún að sjálfsögðu geti ekki gert sér grein fyrir tapinu. Ekki þarf sér- lega íslenzkt auga til að geta séð, í hvert óefni hlýtur að lenda fyrir kristindómi og kirkju, þegar svo standa sakir — þegar kynslóðunum er stíað sundur og unglingarnir verða eins og fráfæmalömb, andlega talað. Hagar geta auðvitað verið góðir á afréttum — og eru, langoftast, hér í landi, en þeir bæta sjaldnast upp að öllu leyti skaða þann, sem æskan bíður. þegar hún er svift áhrifum þeim hinum and- legu, sem hún átti að taka til sín með móður- mjóikinni. En þegar svo fjarlægðin, sem skilur kyn- sióðirnar, verður enn meiri; þegar feður og synir skilja hvorugir aðra, og skilningsleysið verður jafnvel að fordómum á aðra hvora hlið eða báðar, getur þá nokkur maður hugsað sér, að kirkjan þurfi ekkert að gjöra í þeim vand- ræðum, annað en það, að hætta við útlenda málið einn góðan veðurdag og táka upp ensku? Til eru auðvitað menn þeir, er halda því fram, að vandi þessi stafi allur frá eldra fólkinu; það sé of þaulsætið í gömlura sessi og fordóms- sjúkt; geti ekki áttað sig á því ,-að tímarnir bljóti að breytast og mennimir með, og að innfædd æska getnr ekki tekið sér varanlegan bústað í fornum og erlendum hugarheimi. Gef- um eftir að eitthvað sé hæft í þessu. En hinu verður eftir sem áður ekki sanngjarnlega neitað, að víðsýnis og nærgætnis sé þörf af hálfu beggja kynslóðanna jafnt. Það er engu minni nauð- syn að æskan læri að meta og skilja ellina, heldur en ellin æskuna; en eigi sMk andleg sam- úð að eigia sér stað, þá vörður breytingin að vera gætileg og íægfara og stjórnast af sann-/ girni, umburðarlyndi og trygð við alt, sem gott or. Skjót og óeðlileg þjóðernis-umskifting er eins og hver önnur hroðvirkni; hún nær ekki tiigangi sínum, hvort heldur skoðuð frá sjón- armiði lands eða kirkju. Svo er vandinn ekki við eina fjöUna feld- ur; hann gjörir vart við sig í ræðustólnum ekk* síður en á kirkjubekknum. Það er tilfinnanlegt tap fyrir hvern aðkominn þjóðflokk, að þnrfa að láta nýtt vín í gamla belgi, í þessuni skiln- ingi; þurfa að sætta sig við þvingaðan ræðu- flutning á nýju máli, á meðan gamla málið er kennilýðnum miklu tamarg, og eðlilegra. Og •sérstaklega, þegar íbreytingin stafar ekki af brýnni þörf, heldur af misskiHnni þjóðhollustu og hálfgjörðum fordómi gegn því, sem útlent ei —,eins og stundum á sér stað — þá er afar- hætt við, að umskiftin valdi sárum vonbrigðum. Kennimaður af erlendu bergi brotinn verður enn þá útlendingslegri, þegar hann talar dræmt og þvingað á landsmáMnu, heldur en meðan munnurinn mæMr af gnægð hjartans á Ijúfu nióðurmáH, þó framandi sé í þe’ssu landi. Það er svo undur hætt við, að þeir sem áður ömuð- ust við útlenda máMnu, hneykslist enn meir á bessum lamasessi. sem landsmáMð kemst í við innleiðinsruna. osr verði svo síðari 'villan vpr-: hinni fyrri. Það nær naumast nokkurri átt, sem haldið er fram, að bví er virðist. í vfirlvsinsr- unni, að kirkjan þurfi endilega að flytja er- indi sitt á bví máMnu, sem helzt er gripið til í daglegu taJi fólksins er hún biónar. Á þeirri reglu geta verið góðar og gildar undan- tekningar — og eru, eins og sakir standa all- víða á vegum kirkju vorrar hér í álfu. Þá eru tilbeiðslutækin. Lúterska kirkj- an er auðug af ódauðíegu guðsorðamáM, sér- staklega sálmum — á útlendum tungum, bæði (þýzku, Norðurlanda-málunum, og eins íslenzku. Fjársjóðir þessir eru mjög svo hjartfólgnir lútersku ifólki, sem von <er. En af ensku trú- armáli er kirkja vor næsta snauð, enn sem kom- ið er, sálmum að minsta kosti; og aðfengin trúarljóð verða lútersku fólki aldrei «vo ljúf eða hentug sem hin, er þeir eiga sjálfir. Það mun verða reyndin alstaðar, að trúbræður vorir gera sig ekki ánægða með sálma-lán frá öðrum ’kirkjudeiLdum; enska kirkjan kæmi hér næst vorri eigin, og þó er blærinn annar, og þaðan aJf sáður mundu lúterskir mienn yfirleitt geta sætt sig við gjallandann í kirkjusöng Meþ- edista, eða nokkuð því um Mkt. Fyrir því hefir lúterska kirkjan hér í Landi reynt að fá gömilu sáilmana þýdda, en það hefir tekist frem- ur misjafnlega, eins og við var að búast. Sára- fátt af býðingum þeim getur taHst innblásið að skáldskap til. Nokkuð er tþað, að ætti fólk vort í nálægri framtíð að skifta íslenzkum sálmsöng fyrir enskan, þá er víst engin ensk- lútersík sálmabók til, er ekki mundi valda til- finnanlegum vonbrigðum. jSennilega verður bót á þessu ráðin með tíð og tínia, gimsteinamir útlendu verða greiptir í enskt guill, við þeirra hæfi. Það skulum við vona. En það verður ekki gjört í snatri; og á meðan sú þörf er óuppfylt, þurfa lúterskir menn af vorum þjóðflokki naumast að vera há- lærðir í bókmentum og tungumáli feðra sinna, né öfgamenn í þjóðernissökum, til þess að þeir finni sárt til skaðans í tunguskiftunum. Rúmið leyfir ekki, að mál þetta sé ítarlega rætt að þessu sinni; en atriði þau, sem hér hafa verið tekinn fram, finst oss nægja fullvel til að sýna það, að kirkjan getur naumast látið þjóðernis-uraslkiftin hlutlaus, eins og ekkert sé í beim efnum um að hugsa, annað en Jeiða það mál sem fyrst í kór, sem eftir rás viðburð- anna verður notað öðrum fremur á strætum úti. Kirkjan á að vera íhaldssöm í þessum efnum — mieð nærgætni auðivitað — og leitast við að sporna sem mest við andlegum skaða í tunguskiftunum. Hvað bún verður að gjöra, nauðug viljug, þegar skaðinn er skeður, er auðvitað annað mál. Séra Gutt. Guttormsson—Sameiningin. ' Kennara-þingið. Undanfarandi daga hefir þing skóla kenn- ara í Manitdba staðið yfir hér í bænum. Kenn- arar svo hundruðum skiftir úr öllum pörtum fylkisins hafa sótt þetta þing — komið fleiri lliundruð mílur vegar, borgað ferðakostnað sinn sjólifir og verukostnað í Winnipeg, til þess að ræða þýðingarmezta og alvarlegasta spurs- málið sem vér mennirnir höfum með höndum, uppeldis og mentamál barna vorra. Hafið þér nokkum 'tíma hugsað um það, lesendur góðir, hvað kennarastaðan er þýðing- armilkil? Hafið þér liugsað um það, að sé rétt á litið, þá er engin staða til í þjóðfélagsskipun vor mannanna, sem er 'þýðingarmeiri, vér viljum segja eins þýðingarmikil, að undantekinni stöðu móðurinnar, eins og kennarastaðan, — hún er bað allsistaðar og í öllum löndum, en ekki sízt 'í þeim löndum, þar sem heimilisMfið er að hverfa fyrir hinu Jokkandi nautna- og glys-Mfi borga og bæja. Aiuður landannna er œikill, bæði í landi og á og í sjónum í kring um þau og menn legg^a mikið kapp á að hagnýta sér þann auð og 'það réttilega. Hælfustu mönnum er safnað saman og iþeim goldið feikimikið fé til þess að stjóma þeirri framlteiðslu, til þess að ná ']>eim auði oss mönnum til ánægju og iþarfa. En enginn auður er þjóðunum eins mikils virði og ungdómur þeirra. Engin iðnaðargrein né stofnun getur ndkkurn tíma orðið þjóðunum teins mikils virði íns og ungdómur þeirra, sem eftir fá ór á að — verður að stjórna og annast allan iðnað og framfárir bjóða sinna, sem ber á therðum sér framtíðar velferð þeirra, hag og sóma, sem er fjöreggið, og verður að veita öllu lífi þeirra framrós til gæfu og gleði, til bóta og blessun- ar, eða þá til ógæfu. T^llun kennaranis er að taka við þessuim uncdómi áður en Jífsskoðanir hans eru mynd- aðar, óður en ski'Iningur hans á lífinu er þrosk- aður, áður en sál hans er mótuð, nema að því leyti sem hún hfir verið mótuð í foreldrahús- um. Osr úr þessum ungdómi, úr þessum hópum sveina og meyja, með eins mörg lyndiseinkenni og höfðatalan er og með óteljandi lyndisþrár, með ástríður, som þarf að slökkva, með hvat- ir, sem ýmist þarf að glæða eða draga úr. Með vonir, sem þarf að laga, Leiða, Jaða og lyfta á hærra stig, eiga þeir að framleiða menn og konur með iheilbrigðar og fagrar Mfsskoðanir, menn oix konur, sem hafa lært að skilja þýð- ing lífsins, lært að skilja skyldur sínar. Sterka menn. sem þess eru ajbúnir, að vinná manns verk. Hugprúðar og hrinlyndar konur, sem með éti»læs.TÍ þrá stefna að því, að lífið mætti verða yl-ríkara, bjartara og betra fyrir veru þeirra í því. Slík er köllun kenarans, og hver vill segja, að hún sé ekki göfug? Hver viill segja, að hún sé ekki þýðingarmikil? Þingið nýafstaðna hér í Winnipeg var liáð til þess að gera sér þessar háleitu skvldur og hina þýðingarmiklu köllun kennarans ljós- ari, og til þess að bera ráð sín saman um á hvern hátt ikennarar gætu betur beitt kröftum sinum til ‘þe%s að verk iþeirra yrði áhrifameira og fullkomnara við hið göfuga starf þeirra, en verið hefir. Yar fyrst og fremst til þess að brýna hver fyrir öðrum þörfina á því, að kenslan og kenslufyrirkomulagið í fylkinu gæti orðið sem allra fullkomnast íbúum þess og hinni ungu kynslóð til mestrar blessunar. Það var ýmislegt einkennilegt við þetta þing. Á meðal annars það, (hve ant kennaram- ir létu sér um velferð annara. Brennipunkt- ur hugsana þeirra, orð þeirra og framkvæmdir snerist alt um að fullkomna verk það, sem þeir eru að vinna, snerist um það, að vinna mann- fólaginu sem mest gagn, og það var eins og þeir sjálfir hyrfu á bák við þá hugsun, og er það gleðiríkur vottur um heilbrigt bugsanalíf hjá þeim floikki ‘þess fólks vor á meðal, sem líka ríður svo undur mikið á. 171 kki var það saimt af því, að þeir hefðu ekki ástæðu til að hugsa um sjálfa sig, t. d. að því er kaupgjald snertir, ef maður ætti að dæma þá eftir hugsunarhætti flokka þeirra, sem mest láta til sín taka í iðnaðarmálum vorum. Því það thöfum vér fyrir satt, að menn þeir, sem sópa göturnar hér í Winnipeg, íliafi hærri laun en sumir þessir kennarar. Vér segjum ekki, að þetta sé lofsvert ástand. En hitt segjum vér, að vér megum öll vera þakklát fyriryihvað ein- mitt þetta kom sikýrt fram á þessu þingi hjá kennarastéttinni í Manitoba. Það er eins og morgunroði hjá náttmyrkri því, sem . grúft hefir yfir iðnaðarmálum vorum nú í seinni tíð, og sem öllum fylkisbúum ber að þakka, virða og muna. Eftirlaunasjóð hafa kennararnir í Mani- toiba stofnað með því að taka dálítinn part af kaupi sínu og leggja í hann árlega, og nemur sá sjóður nú $1,727.50. Af 'þeim sjóði þiggja nú 15 kennarar, sem búnir eru að siíta kröft- um sínum í þarfir kenslumála í fylkinu, frá $88 og niður í $17.60 árlega. Ekki hafa kennararnir notið styrks að fyrir þetta þarfa fyrirtæki, nema frá Norris- stjórninni, sem hefir lofað að leggja fram einn dollar á móti hverjum dollar, sem kennararnir sjálfir leggja fram, þar til sú upphæð væri komin upp í $5,000. ---------o--->---- Asni. Með girðingu. fram eitt sinn leiðin mín lá. Þar leit eg einn múlasna gerðinu hjá, sem mændi inn á grasteiginn græna; og sparaði hvorki sinn hóf eða tönn þá hömlu að buga, "sem þolin, en grönn varði’ honum bithagann væna. En alopnar dyr voru örlítið fjær, þó ekki hann sá eða skynjaði þær; og að vildi’ hani^ alls ekki hyggja. Því þar sem í fyrstu hann fætur að bar, það fanst honum sjálfsagt að þar—einmitt þar 1 inn ætti leiðin að liggja. I Eg reyndi að vísa’ honum rétta leið á; í reiði hann vildi mig bíta og slá, og ikeptist við braut sér að brjóta. Eg gekk því á burt; en hann barði sem fyr. Og bezt gæti’ eg trúað hann enn sé þar kyr og knýi á unz kraftar hans þrjóta. Sú endemis-iþrákelkni undrun mér jók sem aldregi velmeintri leiðbeining tók; sem þykist ein þekkja hið rétta. Sem lítur ei vinstri né hægri á hlið; cn höfðinu sí-lemur steinana við. — Og dæmi eru þúsund sem þetía. það er skylda yðar að spara Sá maður, sem hefir sparisjóðs reikning, hefir engu að kvíða. Sparnaður með einhverju ákveðnu marki að baki sér er góður siður. -Sparisjóðsdeild við hvert útibú. THE ROYAL BANK OF GANADA Borsraður höfuðstóll og viðlagasj....... $40,000,000 Allar eignir........................... $546.000,000 | ■ I i pessa dagana eftir stóru söluna erum við að marka allar ■ vörur langt niður fyrir það, sem hær áður voru: B Næstu vik sel eg Hveitimjöl á $5.25 hundrað pundin, og j Sykur sekkinn á $10.25 hundraðið og í smáslöttum 10% cent || pundið. Sykurinn er nú að hækka í verði aftur, og hveiti- j* mjöl mjög líklegt að hækki bráðlega. p Notið því þetta tækifæri að kaupa byrgðir fyrir sumarið. ■ ------------------------------------------------- a Elis Thorwaldson, ■ Mountain, N. Dakota ■ !RiiimiiimiiiiMMIIIMIIMIIIMIIM1IIIHIIII«IIIIWIIMIII1 Matthías Jochumsfon Eftir Runólf Fjeldsted. # __________________ Heldur fá eru þau, íslenzku leik- ritaskáldin. par (hefir fátækt og fámenni landsins mest um ráðið. 1 þess stað eigum vér sögurnar. par eru ofnir saman sömu þættir og í leikritum. Sagnaskáld í ljóð- um höfum vér ekki átt síðan í fornöld. Vér eigum ekíkert að ráði, sem getur jafnast á við kvæði Homers, Vergils, Dantes eða Mil- tons. pað getur verið álitamál, hvort að skáldskapur í episku formi eigi vel viá lslendingseðlið, skáldskap- ur, þar sem mörg ár útheimtast til þess að -igrunda efni ljóðanna og til að mynda .söguíþráðinn. pað ihefir ekki komið raun á (þetta. Fá- tæktin ihefir ibannað íslendingum að sinna ljóðlistinni nema í hjá- vcrkum. Skáldin grípa gígjuna, þegar tóm er til, og lífsönnin leyf- ir. Langmest af ístenzkum skáld- skap eru lýrisk ljóð. Og (það er við jþví að Ibúast, því fslendingár eru tilfinningaþjóð. Fátækt og fámemni banna ekki ljóðheima- leiðslu um glaumlausar andvöku- nætur. Ef öll lýrisk skáld íslenzk væru talin, þá væri (það all-álitleg sveit og vel skipuð. En iþar munu flestir ætla M. J. öndvegissætið. pað sem tekur mann iheljartök- um nærri þv5 strax, er máliðApað rennur áfram lipurt, létt og þving- unarlaust. Hugsanirnar flykkjast að með gleðibragði, eins og vinir að fagnaðarmóti. Orðin streyma áfram, eins og i fjörugu og alúð- legu samtali. Maður verður næst- um (því Ihálf-forviða, þegar orðin koma 1 endingum, og það er eins og þau falli í pím af einlhverri til- viljun. pað er eins og maður hafi alt í einu dottið niður á tungumál, þar sem léttast er að mæla í ljóð- um. En það er ekki einungis að málið sé lipurt og létt. Annað aðal-einkenni er íhans stóru orð: kjarnyrðin, sem geyma ,svo mikla hugsun: orðin þar sem íhugmynda- flugið er svo geysilegt. Og það eru orðin, sem sefcja svipinn á ljóð hans. Og einmitt fyrir þá sök, að málið er svo fjörugt og lipurt og létt, verða hans stóru orð sláandi. pau koma fordildarlaust, eins og þegar fugl skýzt úr ihuldu hreiðri. Hann dettur, eins og af tilviljun ofan á hnittilegasta m'ál. pað eltir hann óskapleg orðíhepni. Goetlhe, og margir aðrir, hafa fundið til þess, að hver 'bragar- iháttur iber með sér sinn sérstaka 'hugfblæ, og Ihefir sín sérstöku áhrif á huga lesandans. Og þótt mun- urinn sé Ijós fyrir tilfinningunum, er oft erfitt að koma orðum að honum. M. J. kann bezt við þá hragarhætti, sem eru léttir og hraðir. Og þótt þeir séu það ekki stundum, þá er kveðandinn svo fjörugur, að hann kastar hlæ sín- um á bragarháttinn. Hann getur ekki hamið ihugsanir sínar í þung- lamalegu formi. Stundum fer hann Ihægfara, og þá er honum venijulega mikið niðri fyrir. peg- ar hann grípur til fornyrðalags- ins, eru orð ,hans mjög alvöru- þrungin. pau eru það einnig, en í mýkra formi, 4 sumum kvæðum hans, þar sem sársaukinn og sökn- uðurinn, sorgin og Iharmurinn koma skýrast fram: í kvæðunum, þar sem ihafrót hugans kyrrist, en instu strengir 'hjartans óma. En oftast eru þó bragarlhættir hans hraðir og hrífandi. pá er ekki síður eftirtektarverð- ur hrynjandinn f kvæðunum. Hann er oft svo snildarlega samfeldur hugsuninni, að afchygli vill gleym- ast og breytast í ihrifning og að- dáun: í miðju kafi, þar sem á- herzlan er mest, dynur við hans volduga orð felt við Ihrynjandann, eins og elding, sem ibrýzt með skrugguihljómi fram úr skýi, og leiftrar um alt himinihvolfið. Eins og bárur Ihafsins ihrynja hljóm- öldurnar, og sveifla osa með þeim ihraða, að vér getum engrri fót- festu náð, hendinganna á milli. Ekkert nútíðarskáld Ihefir náð jafn hreimmiklum tónum úr mál- inu sem hann, sérstaklega þegar ihann ritar á óskastund íslenzk- unnar. pessi Ihraði, þetta Mf, þetta fjör er honum eðlilegt. Hugurinn stað- næmtst ekki lengi við neitt, held- ur hvarflar frá einú til annars. Hann má ekki hinkra við eftir orð- unum, því ekki hiíða hugsanirnar. Hann verður að snara niður á pappírinn því sem lánið lér. Og þegar penninn rennur viðstöðu- laust, þá koma fram i Ihuga hans orðin furðanlegu. Hugsanirnar koma úr öllum áttum og setjast að 5 huga hans, eins og snjór í hlíðufn ;*1BM þegár hUgúfmfirhíthar, hrjótast þær fram, eins og lækir 'í Ibráðri vorleysing, en þeir renna að eins meðan sól er á lofti. Hann getur ekki endurkallað hrifning- una sem knúði ljóðin fram svo skýrt að hann treysti sér til að bæta eða lagfæra þau. Hann var ofmikið tilfinningaskáld eða hrifn- ingarskáld til þess Hann hefir Iitla þolinmæði til þess að tefja sig á þeirri dægradvöl að nostra rim 1 sléttuiböndum. í eftirmæl- um sínum um Bólu-Hjálmar, stæl- ir hann, í viðurkenningar skyni, minningarljlóð þess skálds eftir Sigurð Breiðfjörð. pó hann sé liprari, nær hann samt tæplega hinum stórkostlegu kjarnyrðum Hjálmars. ipegar járnið var kom- ið úr afli, har ihann iþað ekki aftur að eldinum. pað þarf hraðar ihendur til að smíða listaverk í einni hitan. Stundum kemur >að fyrir, að ljóðafákur hans fer ekki nema fet fyrir fet, þegar skáldið er að rabíba við náungann um daginn og veg- inn. Langdrjúgastur er hann á skeiðinu, og þar slær eld í hverju spori. En stundum tapar hann fallega skeiðinu, þegar galsinn fer í Ihann á mælskusprettunum. peg- ar skáldð er snjallastur, þá eru hugsana'breytingar hans eins og norðurljósin, sem kögra himininn með bragandi ljósaböndum, þar sem óetljandi litbrigði þyrlast vestur að sól og austur að mána, cg vér virðum alla þá iðandi dýrð fyrir oss fagnandi og forviða. pessi hugsanahraði birtist á máli, ibragarháttum og hrynjanda. Hann samsvarar hugarstefnu skáldsins. pað .eru svo mörg orð í ljóðum hans, sem eru skyld hugtakinu um ljós og ibirtu, sól og sumar, gleði og hlátur, sókn o^g sigur. pað er einnig eftirtektavert, að hann yrkir um sum mestu alvörumál iheimsins undiir léttu og leikandi rímnalagi. Ekki er 'bölsýnið. Sá sem er orðinn saddur á lífinu sfcígur hægt sín raunaspor, en lífs- gleðin fer hamförum heimskaut- anna á milli og umfaðmar allan heiminin með samúðarhug. Hjá M. J. hlær lífsgleðin nærri því í 'hverri ihending. Hugsanafjörið og bjartsýnið voru förunautar hjá 'honum. Hugurinn varpaði sér á flug yfir lönd Og höf, og þá dreifð- ust harmar hans í alheimsdýrð- inni og sorgir ihans sefuðust. Sjóndeildarhringurinn var svo víður, aS sérstakt sorgartilfelli gat ekki sett svipinn á alt lífið fyrir honum. Hann minnir á hei- lóuna, sem svífur upp í sólarljós- |

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.