Lögberg - 28.04.1921, Síða 1
SPEIRS-PARNELL BAKINGCO.
ábyrgjast yður
fulla vigt, beztu vörur fyr-
ir lœgsta verð sem verið
getur. REYNIÐ ÞAÐ!
TALSlMI: Garry 2346 - WINNIPEG
Það er til myndasmiður
í borginni
W. W. ROBSON
490 Main St. - Garry 1320
34. ARCANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 28. APRIL 1921
NUMER 17^
Helztu Viðburðir
Síðustu Viku
Canada.
Innflutningur fólks frá bresku
eyjunum til Vestur-Canada mink-
aði aft mun á árinu 1920, en frá
Bandaríkjunum fjölgaði innflytj-
endum aftur á móti nokkuð. Árin
1918—1919 fluttust til Vestur-
landsins 19,116 manns úr ihinum
ýmsu stöðum Bandaríkjanna.
Maður einn, Tihomas Finnigan að
nafni, er iheima á í Hamilton, Ont.
kallaði u,pp fyrir skömmu lög-
regluskrifstofu iþess ibæjar og bað
um að fá lögregluþjóna til þess að
taka sig fastan, með þvtí að kona
sín hefði ákveðið að kæra sig fyrir
handalögmál. pegar lögreglu-
þjónarnir komu, 'bað Finnigan þá
augmjúklega að afsaka ómakið og
kvaðst vera þess albúinn að aka
þeim í sinni eigin bifreið til lög-
regluskrifstofunnar petta er talin
fágæt kurteisi undir svona löguð-
um kringumstæðum. Mál Finni-
gans er ekki útkljáð enn.
Tveir rússneskir prinsar, vinna
nú algenga daglaunavinnu við
Canadian National járnbrautina,
rnilli Hearst og Armstrong stöðv-
anna í Optario fylkiinu. Höfð-
ingjar þessir mistu allar eigur
sínar í stríðinu mikla og voru auk
þess dæmdir til Síberíuivistar, en
sluppu jþaðan á dularfullan hátt
og leituðu hælis lí Canada.
Baronessa Macdonald ekkja Sir
Jbhn Alexander Macdonald, fyrr-
um yfirráðgjafa í Canada hefir
látið eftir sig eigir er nema 23,-
375 dölum. —
Gríski ræðismaðurinn í Montre-
al, hefir fengið tilkynningu um, að
allir grískir menn í Canada, er
teljast til herskyldu iflokkanna
fyrir árin 1913, 1914 og 1915, verði
tafarlaust að gefa sig fram og
sigla heimleiðis, með því að föð-
urlandið þurfi þeirra við, frelsi
sínu til verndar.
Major-^SIeneral Mewburn, fyrr-
um hermálaráðgjafi í Canada, hef-
ir verið skipaður formaður nefnd-
ar þeirra, er rannsaka skal ástand
þjóðeignaibrautanna — Canadian
National Railways. —
Maður að nafni Joseph Remill-
ard í Que. var fyrir skömmu fund-
inn sekur um morð Lucien Marr-
isette í sömu borg og dæmdur til
lífláts. Nú hefir dómnum ver-
ið breytt í æfilangt fangelsi, sam-
kvæmt fregmjm frá Ottawa.
Verkamálaskrifstofa sambands-
stjórnarinnar sýnir að mikill fjöldi
fólks hefir verið atvinnulaus í
marzmánuði síðastliðnum og mörg
yerkföll gerð. Fyrri fyrri helm-
ing aprilmánaðar batnaði ástand-
ið til muna og það svo mjðg, að í
sumum s>ððum fengust ekki nánd-
ar nærri nógu margir menn til
voryrkju.
Baron Shaughnessy, forseti C.
P. R. járnbrautarfélagsins, hefir
nýlega stungið upp á því í hréfi
til Meighens yfirráðgjafa, að Can-
adian National brautunum verði
slegið saman við C. P. R. 0g verði
í framtíð undir stjórn Canadian
Pacific félagsins. Fer forsetinn
sem vænta mátt'i fram á ýms
hlunnindi frá stjórnarinnar hendi
í þessu sambandi, svo sem trygg-
‘ng gróðahlutdeildar o.~s. frv
Ekki þykir líklegt að Canada stjórn
muni fallast á uppástunguna.
Sambanflsstjórnin hefir skipað
fyr,r> að Royal Canadian
Mounted police, sé við hendina
(ag og nótt á hverjum þeim
firreiðslustað í hinum stærri 'borg-
þar sem tekjuskattur til stjórn-
annnar er 'borgaður, fram að mán-
aðamótum næstu. Afarmikið af
Pen.ngum fer í gegnum hendur
skattheimtumanna stjórnarmnar
og ös mikil á hinn bóginn, og þess
vegna hefir stjórninni þótt vissara
að hafa vaðið fyrir neðan sig.
Norrisstjórnin í Manitoha, hef-
ir ákveðið, að berjast fyrir því lát-
laust þar til yfir lýkur, að flutn-
ingsgjöld á járnbrautum í Vestur-
Iandinu verði lækuð og jöfnuði
komið á, milli Austur og Vestur-
Eanada S þessu tilliti.
Verkamannafélögin í Toronto,
^afa ákveðið að ganga í samband
við félög heimkominna hermanna,
til undirbúnings næstu sambands-
kosningum og styðja í sameiningu
þau þingmannsefni, er báðum að-
iijum kemur saman um.
Fjár|hagsáæ+lun stjórnarinnar
hefir, nú loks verið samþykt í
fylkisþinginu og er ráðgert að út-
gjöldin muni nema $5,870,000
starfrækslu rit og talsímakerfis-
ins, aflstöðvar og opinberra stofn-
ana. Lánveiting til íbúðarhúsa-
bygginga var héimiluð, að upp-
hæð $1,000,000. —
Breyting á bændalánsfélögun-
um, Farm Loans Act, hefir verið
afgreidd við þriðju umræðu með
21 atkvæði gegn 13, en sú breyting
fer fram á það, sem kunnugt er,
að vextir af sMkum lánum skuli
vera sjö af hundraði fyrst um
sinn, þar til hentugri lánskjör
fást út á við.
Töluverður skriður er nú farinn
að komast á hin ýmsu mál, er fyrir
þinginu liggja og ekki ólíklegt tal-
ið að þingi verði slitið fyrri part
næstu viku.
Frá sambandsþinginu er ekkert
sögulegt að frétta um þessar mund-
ir; alt sýnist hvíla þar í einhverju
ráðaleysis móki. Stjómin hefir
að sögn enn verið að reyna að
koma sér í mjúkinn hjá Quebec-
búum og þá helzt að fá þaðan
r.ýjan ráðgjafa, en tregt mun sú
málaleitun hafa gangið til þessa.
Hon Lemieux lýsti fyrir skömmu
yfir því í þinginu, að engin hætta
væri á þvtí að Quebecmenn seldu
sig stjórninni fyrir bitlinga, jafn-
vel þótt feitir væru.
Bandaríkin
William D. Haywood, forseti I.
W. W. félaganna í Bandaríkjun-
um, er dæmdur hafði verið til
fangelsisvistar ásamt eittihvað um
tuttugu stallbræðrúm sínum, fyrir
ótrúmensku við land sitt meðan
þjóðin átti í stníði, hefir sloppið úri
Ihöndum lögreglunnar og kvað vera
kominn alla leið til Rússlands
undir verndarvæng Soviet stjórn-
arinnar.
Verkamannafélögin í N. Dakota,
héldu þing á Fargo um síðustu
helgi til þess að ræða um þátttöku
félaganna í stjórnmálum. pingið
stóð yfir í þrjá daga, en nákvæm-
ar fregnir af því er þar fór fram,
eru enn eigi fyrir hendi.
Póstmálastjóri Hays, tilkynti
fyrir skömmu, að ræningjar hefðu
á árinu sem leið, náð í hendur sín-
ar $6,000,0001 með því að ráðast á
póstvagna víðsvegar um Banda-
ríkin.
Fregnir frá Bismark, N. D.
segja að umsjónarmaður með vín-
bannslögunum, Mr. Tunbar, hafi
pantað þrjár vélbyssurt il þess að
nota ef á þurfi að halda í barátt-
unni gegn lögforjótum sem stöðugt
geri meiri og meirl óskunda.
Ríkisritaradeild Bandaríkjanna,
hefir sent stjórnum, Frakka,
Breta, Japana og íbala opinbera
Hlkynningu, þar sem þess er kraf-
ist, að Bandaríkin hafi jafnrétti
við allar þessar þjóðir, að því er
viðkemur umboði yfir löndum þeim,
sem Miðveldin létu af höndum við
friðarsamningana í Versölum.
Nálægt New River í Tennessee
ríkinu, varð nýlega járnbrautar-
slys, er varð þrem tugum manna
að bana.
Harding forseti hefir svarað
nefnd frá friðar félagi kvenna
Woman’s Peace Society, á þá leið,
að ástandið í Norðurálfunni geri
það að verkum að harla erfitt sé
að ákveða eins og sakir standi,
.hvað hægt sé að taka til bragðs í
sambandi við takmörkun herbún-
aðar.
Hásetar á skipum Bandaríkj-
anna, ihafa gengið inn á 25 af
hundraði launalækkun gegn >ví
skilyrði að 1 maí n. k., verði skip-
uð nefnd, er taki launamál þeirra
til rækilegrar yfirvegunar, skipuð
af ibáðum aðiljum.
Stöðvarstjórar, brautarþjónar
og símamenn í þjónustu Pensyl-
vaniu járnlbrautarfélagsins, neita
að ganga að þýjt, að laun þeirra
verði lækkuð uþn 18 af hundraði.
Verkfall talið líklegt, svo fremi
að málamiðlun ekki komist á inn-
an skamms.
Mipon T. Herrick frá Oihio, hef-
ir verið skipaður sendiherra
Bandaríkjanna á Frakklandi.
Borgarstjórinn í Chicago hefir
ákveðið í sambandi við lögregluna,
að unglingar undir 16 ára, megi
ekki vera á strætum borgarinnar
eftir klukkan tíu á kvöldin, nema
þvú að eins að fullorðið fólk sé
þeitn til leiðbeiningar og varð-
veizlu.
Póstmálastjóri Hays, ihefir lýst
yfir því, að póstþjónar allir, er
fást við verðmiklar póstsendingar,
skuli vopnaðir vera í þeim til-
gangi að verjast ræningjum, en
slík rán eru nú alltíð í landinu.
Járnbrautir Bandaríkjanna
töpuðu $7,205,000 í fébrúarmán-
uði síðastliðnum, samkvæmt
skýrslu frá samgönguráðuneytinu.
Hundrað og sex járnbrautir höfðu
ekki afgangs starfrækslukostnaði,
r.ándar nærri nóg fyrir hinum
lögbundnu sköttum.
Verkamálaritari Davis, lýsti
r.ýlega yfir því, að Donald O’
Callaghan, borgarstjóri í Cork á
írlandi, yrði að vera allur á brottú
úr Bandaríkjunum fyrir 5. júní
næstkomandi.
Talsímabönd milli Bandaríkj-
anna og Cuba, eru nú komin á, og
skiftust þeir á samhygðar kveðjum
Harding forseti og Menocal forseti
lýðveldisins á Cuiba.
Harding forseti lýsti yfir því, í
hinu fyrsta forseta ávarpi sínu til
þingsins, að æskilegt væri að báð-
ar deildir þings ákvæðu með ein-
faldri þingsályktuti, að ófriðnum
milli pjóðverja og Bandaríkjanna
væri lokið.
Bretland
Einkennilegt samband á sér
stað á milli.fjárhunds í Swainsvick
á Englandi og gæsar, á þann hátt
a.ð gæsin fylgir hundinum hvert
sem hann fer. pegar hundurinn
fer hægt vappar gæsin á eftir
honum, þegar hann hleypur tekur
gæsin til vængjanna og fylgir
honum eftir á flugi. pegar smala-
maður er heima og hundurinn ligg-
ur í kofa sínum stqndur gæsin
vörð við kofadymar óg ræðst að
hvaða kvikindi sem nærri kemur,
og hafa sum þeirra farið rifin og
blóðug frá þeirri viðureign.
Alexandra drotning hefir átt
við sjóndepru að stríða undanfar-
andi. Nýlega var gerður upp-
skurður á augunum ií henni og lít-
il von gefin um bata. Drotn-
ingin hýst við að fara til bústaðar
síns nálægt Kaupmarinahöfn og
dvelja þar um tíma og sjá hvort
sér batnar ekki þar.
Sambandsþjóðirnar hafa lýst
yfir því að þær ætli sér að láta
viðureign Grikkja og Tyrkja af-
pkiftalausa.
Kosningahníðin í sambandi við
kosningar til hins nýja Ulster
þings sem ákveðið er að stofnað
verði undir hinum nýju heima-
stjórnarlögum, er nú hafin, og
búist er við að kosningarnav fari
fram frá 16—18 maí. Báðir flokk-
ar, Sinn Feinn og Nationalistarn-
ir hafa tilnefnt þingmannsefni
sín þó flest af þingmannsefnum
Sinn Feinnm anna sitji ií fangelsi.
Báðir flokkarnir hafa ákveðið að
halda istjórnmálafundi fyrir lok-
uðum dyrum.
Sir James Craig einn af Union-
ista þingmönnunum og leiðandi
maður í unionista félaginu í Ulst-
er, hefir skorað á alla þá seijj
hlyntir eru unionista stefnunni,
að gjöra alt sem þeir geti til þess
að sá flokkur hafi meiri hluta á
Ulsterþinginu, og ef það takist
ekki sjái hann ekki annað en Ulst-
er þingið og löggjöfin nýja verði
alt til einkis.
Austen Ohamberlain, hinn nýji
fjármálaráðherra Breta, flutti
fjármálræðu sína í þinginu á
mánudaginn var og var gerður
að góður rómur. Tekjur umfram
útgjöld námu 230,500,000 punda og
er það að eins 4,000,000 pundum
minna en áætlað var. Engir
nýjir skattar sagði fjármálráð-j
herrann að yrðu lagðir á, og eng-|
um heldur létt af nema lítils hátt—
ar af tóibaki.
Mikið höfðu Bretar 'borgað af!
skuldum sínum á árinu, peir hafa1
borgað Bandaríkjunum 75,000,000
pund, Canada 20,000,000, Japanit-
um, Spánverjum, Argentinumönn-
um, Uruguamönnum og Hollandi
hafa þeir borgað alveg upp. Ráð-
herrann gat þess að stjórnin hefði
gert alt sem hún gat til þess að
takmarka útgjöldin og lýsti yfir
því, að fjárhagslegt ástand þjóð-
arinnar mundi fara sí-batnandi
héðan í frá, svo framarlega að
friður kæmist á í iðnaðarmálun-
um. \
Sem betur fer virðist nú sam-
komulag vera að komast á, á milli
námamanna og námaeigendanna
á Bretlandi. Samkomulag þetta
virðist byggjast á því að báðir
málsaðiljar hafa slakað til. Náma-
mennirnir látið af þeirri kröfu
sinni að ákveðnar reglur séu sett-
ar um land alt, ákvæði um kaup-
giald og vinnutmaí. Og náma-
eigendurnir af því uppástandi sínu
að hið sérstaka ástand hvers hér-
aðs ráði að því er vinnutíma og
kap snertir.
Málsaðiljar virðast nú báðir
sjá að fyrsta aðal atriðið sé að
kolaframleiðslan geti borgað sig.
pegar það væri fengið þ áskal með
samning ákveða hagnað þann sem
námaeigendur eigá að fá, og fast-
ákveðið kaup námamannanna sem
tekið er fram að gangi fyrir öllum
'hagnaði. pegar námurnar gefa
meira af sér en til >ess að mæta
þessu tvennu, hinum ákveðnu
verkalaunum og hagnaði eigend-
anna, þá skal afgangur skiftast á
milli þeirra tveggja málsaðilja.
Sámning þennan kvað eiga að
reyna fyrst í þrjá mánuði fyrst og
ef hann reynist líklegur til varan-
legs samkomulags og friðar, þá að
framfylgja homim fyrir lengri
tíma.
Síðustu fregndr segja ástandið
brezka verra en nokkru sinni fyr.
árnforautarþjónar neita að flytja
erlend kol og horfir til hinna mestu
vandræða í landinu.
pingforsetinn Brezki Hon J. W.
Lowther, sem gegnt hefir því
vandasama verki í 25 ár, hefir
sagt af sér bæði þimgforseta stöð-
unni og þingmensku.
--------o-------
Hvaðanœfa.
Mexico stjórnin hefir skipað
sendiherra á Rússlandi og mun það
vera' fyrsta stjórnin, er gengst
inn á að stofna til opinberra full-
trúasamibanda við Bolshevikana
rússnesku.
Sagt er að stjórnin í Czecho-
Slovakia, hafi fooðið Frökkum lið-
veizlu, ef til þess komi að þeir á-
kveði að taka Ruhr héruðin þýzku
eftir 1. maí næstkomandi.
Socialistar á ftalíu vilja ekkert
með gerbyltingamennina ítölsku
hafa að gera lengur og er nú slit-
ið öllum samvinnuböndum milli
þessara tveggja brota, er lengi vel
héldust í hendur.
Harding Bandaríkjaforseti kvað
hafa boðið krónprinzinum jap-
anska til Bandaríkjanna í sumar,
en fengið það svar að prinsinn
igeti ekki þegið boðið að svo stöddu.
Hollenzka stjórnin bannaði Wil-
hjálmi fyrrum pýzkalandskeisara,
að fylgrja líki frúar sinnar til
landamæranna þýzku.
Sparifé á bönkum á pýzkalandi
jókst á 'árinu 1920 úr 45,000,000
marka upp í 6250,000,000.
Stjórn Ungverjalands Ihefir til-
kynt lýðveldisforseta Svisslands,
að hún skoði Oharles, fyrrum kon-
ung Ungverja, löglegan einvalds-
drottnara þjóðarinnar
Sagt er að pjóðverjar telji sig
fúsa til að greiða samiherjum í
skaðaibætur 200,000,000,000 gull-
marka, en uppihæðin sem af þeim
var krafist, nam 226,000,000,000
biljónum. —
Islenzkur myndar-
skapur.
pann 22. þ. m. flytur blaðið The
Saskatoon Daily Star eftirfylgj-
adi grein um landa vorn Júníus
Johnson: “Bærinn Saskatoon er
( þann veginn að tapa einum af
slnum allra beztu emfoættismönn-
um Júníusi Johnson, aðstoðar mæl-
ingamanni sem ibæjarstjórnin í
Pince Albert efir ráðið til sín sem
aðal umsjónar og yfirmann verk-
legra framkvæmda bæjarins, og
umsjónarmann stofnana hans — í
einu orði sagt aðal umsjónarmann
bæjarmálanna.
Bæjarstjórnin í Saskatoon hef-
ir látið hrygð sína í ljósi út af
burtför Mr. Johnson og vottað
honum opinfoerlega þakklæti fyrir
hið ágæta starf sem hann hefir
unnið í þarfir bæjarins.
Júníus er fæddur á lslandi en
kom til Canada árið 1900 og hefir
séð meira af kjörlandi sínu en
flestir aðrir Canadamenn. Fyrst
eftir að 'hann kom til þessa lands
settist hann að ásamt fólki sínu
í Nýja íslandi, en gekk í þjónustu
mælingamanna Dominion stjórn-
arinnar eftir eins árs dvöl þar.
Með þeim ferðaðist hann sem hér
segir: Árið 1902 Norður-Manitoba.
1903 um Saskatoon ihéraðið og um
part af Edmontori Ihéraðinu. 1904
var hann vestur í Klettafjöllum.
1905 um 150—200' mílur í norður
frá Prince Albert og suður til The
Pas, í Pasguia og Porcupine hæð-
inni. Árin 1906—7 var hann
aftur í Saskatoon héraðinu, en
1908 gekk hann í þjónustu Saska-
toon bæjar, útlærður mælinga-
maður.
♦^♦♦♦♦^^♦♦^♦^♦♦^♦^♦♦♦♦^♦^♦♦^♦♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦gÍÍ*
♦♦♦ >♦
Sumardagurinn fyrsti.’
4
t
t
❖
t
t
x
t
t
x
t
t
♦>
Þó brautin niín lengist og breytt sé nú bag
frá bernskunnar tíðum eg man þennan dag
við svstkinin gengum að sjónum,
þá brosti .hver alda um blikandi flóð
og bar okkur töfrandi fagnaðarljóð
með ástríkum unaðar tónum.
Hjá nágranua börnunum mæltum við mót
og munhlý var gleðin af einlægri rót.
við sólskin í suðræna fclænum.
Hver lækur var óður um unaS og frið
og elfurnar streymdu með vondjúpum klið
og svifu meS hraða að sænum.
Þar skeljar og kuðungar glóSu sem gull
og gleðin var saklaus og ánægjufull
4 ljósríkum bernskunnar 'bárum.
En framtíðar 'brautin var hulin í lijúp
með harmsins og sælunnar örlagadjúp
á flughröðum æfinnar árum.
Og margt hefir sumarið brosað mér blítt
með blikandi skrautiS og sólskiniS hlýtt
enn aldrei sem ungum þar heima.
Á sérhverju blómi, og líðandi lind
skein ljósið og gleðin í belgustu mynd
hve Ijúft er um dag þann að dreyma.
Kom vonblíða sumar með sælunnar klið
og syngdu þinn huggandi unað og friS
við söknuSiun, sárin og tárin.
Hver hjalandi lækur, og líðandi blær
og lauf sem við geislaj og dögg þína grær
er óður um bernsku-lífs árin.
M. Markússon.
*
f
♦
T
❖
i
t
t
1
t
♦;♦
t
t
t
t
t
X
t
x
t
x
x
i
x
x
x
t
t
t
x
t
x
t
I i
seta um að neita að bera dagskrá urnir lofsamlegum orðum um rit-
Um þennan landa vorn farast
borgarstjóranum í Saskatoon, Mr.
Young svo orð: “Einn sá allra
bezti maður sem við ihöfum nokk-
urntíma haft í þjónustu okkar.”
Borgar Commissioner Leslie, í
Sakatoon segir um ‘hann: “Mr.
Johnson ier undantekningarlaust
einn af þeim ágætustu embættis-
mönnum sem við höfum nokkurn-
tíma haft. Hann hefir verið ó-
sénhlífinn, einlægur og sannur í
öllum sínum verkum og deild
hans hefir ihaft umsjón á öllum
byggingum vatrisveitum og saur-
rennum fyrir bæjarins hönd í
mörg ár. Vér samverkamenn 'hans
samfögnum honum út af þessari
bættu stöðu hans og maklegu við-
urkenningu og árnum honum allra
'heilla í Ihenni. Og Prince Albert
búum óskum vér til Ihamingju út
af því að hafa foorið igæfu til þess
að fá slíkann ágætismann í þjón-
ustu sína.”
Mr. Jobnson tekur við emlbætti
sínu í Prince Albert 15. maí næst-
komandi.
--------o---------
Frá Islandi.
Vantraustsyfiríýsing.
Á fjórða tímanum í fyrrinótt
lauk loks sennu þeirri, sem staðið
hafði yfir tvo undanfarna daga
um afstöðiu þingsins til stjórnar-
innar. Var þar löng foarátta og
ströng til lítils háð og væri betur
að þingmenn væri ákveðnari og
aðstaða þeirra gleggri þegar líkt
mál kemur til þingsins kasta næst
svo að komist verði hjá að neyta
þeirra bragða sem orkað getur
tvímælis um a«5 sæmandi séu á
löggjafarþingi.
Tuttugu klukkustundir af ræðu-
höldum er of mikið til þess að
hægt sé að rekja Ihér. Enda er
kunnugt orðið‘hvað >að er, sem
stjórninni er helzt legið á hálsi
fyrir. Flutningsmaður tillög-
unnar drap á ýmislegt i framsögu-
ræðu sinni, svo sem framkvæmd-
ir stjórnarinnar í utanríkismálum,
fjármálum og viðskifta o. fl.
Aðrir ákærendur stjórnarinnar
voru Gunnar Sigurðsson, Eiríkur
Einarsson, Jakob Möller, Jón
Baldvinsson, Magnús Jónsson og
Magnús Pétursson. En J. A. Jóns-
son, Jón Porláksson, M. J. Krist-
jánsson, iSigurður Stefánsson og
pór. Jónsson héldu uppi vörnum.
Töluðu fleiri ræðumenn sig dauða.
Á miðvikudagskvöld bar Gunnar
Sigurðsson fram tillögu sína til
rökstuddrar dagskrár, sem 1 fólst
traustsyfirlýsing til stjórnarinn-
ar. pótti þeim stjórnarandstæð-
ingum auðsætt, að vantraustsyfir-
lýsing næði ekki fram að ganga,
en treystu því að traustsyfirlýs-
ing mundi fara sömu leið. Bar
þá J. p. fram áskorun sína til for-
þessa undir atkvæði, sem óþing-
lega, og ef þau tilmæli væri ekki
tekin til greina, þá að meðhalds-
menn stjórnarinnar neituðu að
greiða atkvæði. Enn fremur
kom hann fram með tillögu til rök-
studdrar dagskrár um það að van-
traustsyfirlýsingin kæmi ekki til
atkvæða. pótti M .P. sú tillaga
vera stjórninni í vil og kom fram
með breytingartillögu, er honum
þótti gera dagskrána óvilhalla.
pegar til atkvæðagreiðslu kom
um hina rökstuddu dagskrá G. S.
féll það í 'hlut hans að greiða fyrst-
ur atkvæði og sagði hann “nei”.
Jón A. Jónsson varð fyrstur til að
neita að, greiða atkvæði og bar
hann fyrir sig það, að dagskráin
og framkoma hennar væri óþing-
Ig. Neitaði forseti að taka þá
afsökun gilda og skaut málinu
undir úrskurð deildarinnar. Sam-
þvkti hún með 16 : 10 að afsökun-
in skyldi tekiri gild. peir 10 sem
greiddu atkvæði á móti voru: B.
J., E. E., G. S., H. Kr., Jak. M., J.
B„ M. J„ P. p„ p. G„ porst. J.
forseti greiddi ekki atkvæði.
Hélt þá aftur áfram nafnakall
um dagskrána. Fór svo að lok-
um að 12 sögðu nei, en 15 neituðu
að greiða atkvæði og var dagskrá-
in þannig feld. — peir sem sögðu
nei við dagskránni voru B. Sv„ B.
J„ E. E„ G. S„ H. Kr„ Jak. M„ J.
B„ M. J„ M. P. p„ p. G„ og porst.
Að þessu loknu lýsti flutnings-
maður vantrausttillögunnar, B. J.
því yfir, að hann tæki tillögu sína
aftur. Lauk málinu með því og
seinni dagskrártillagan og brtll.
við hana var aldrei borin upp til
atkvæða.
Gjörðabók þessa fundar var
ekki lesinn upp á fundinum í gær,
ccgna þess að hún var ekki til-
búin. Á að bera hana upp til
samþykkis í dag, er jafnvel búist
við að stímatbrak verði við það
tækifæri.
—Morgunblaðið 19 marz 1921.
Hjörtur Oddson, frá Eystri-
Kirkjubæ á Rangárvöllum lézt 12.
marz.
*
Ur bœnnm.
I
1 símskeyti frá íslandi stendur,
að 22. þ.m. hafi Indriði fyrrum
bóndi á Ytri Ey á Skagaströnd,
látist í Reykjavík.
Capitol hreyfimyndafélagið sem
sýndi ihér myndir úr sögunni al-
kunnu eftir Selmu Lagerlöf, “Kon-
an sem hann kaus,” foauð verðlaun
fyrir foezt skrifaðan ritdóm um
leikinn, en hann mátti ekki vera
lengri en 25 orð. Margir skrifuðu
en verðlaunin ihlaut ung íslenzk
stúlka, Kristín Frederickson, sem
heima á að 794 Victor .stræti. Næst
sigurvegaranum var stúlka, sem
heima á hér í borginni og heitir
Rai Lockwood og fóru dómend-
dóm foennar.
Séra Páll Sigurðsson frá Gard-
ar kom til borgarinnar síðastliðið
mártudagskveld og dvelur hér
fram i vikulokin.
Meðlimir Jóns Sigurðssonar fé-
lagsins eru beðnir að fjölmenna á
fundinn sem haldinn verður í
John M. King skólanum 3 maí n.
k.^ á þeim fundi verður dregið um
meðalaskáp sem Eiríkur Stíheving
á Lundar foefir smíðað og gefið
félaginu." Enn fremur fara þar
fram skemtanir. Miss Salome
Halldórsson flytur fyrirlestur og
Miss porvaldsson syngur.
pegar Njáli eitt sinn var
brugðið um fjarstæðu, mælti
Skarphéðinn: “Enginn sannur
maður hefir fyrri brugðið föður
mínum um þetta.” petta datt
mér (og reyndar fleirum) í hug,
þegar eg las kvæði í Heims-
kringlu eftir mannfýlu nokkra,
þar sem Doctor Brandson er
brugðið um ágirnd, sérdrægni
og illar hvatir. H.
At'hugið auglýsinguna í folaði
þessu um söluna miklu hjá Foote’s
Ltd„ í gömlu Dingwall búðinni,
að 614—616 Main Street. par eru
óvanaleg kjörkaup á hinum ýmsu
tegundum skófatnaðar.
Indriði Stefánsson, frá Pebbl-e
Beach, Man, bróðursonur Kristins
heitins skálds Stefánssonar, var
fluttur á Almenna sjúkráhúsið f
Winnipeg fyrir helgina. Hann
slasaðist af skoti. Ohr. J. Back-
mann, læknir að EiricsdaJe flutti
sjúklinginn til foorgarinnar.
Lögberg er að þessu sinni að eins
sex blaðsíður í staðinn fyrir átta,
sem það ihefir verið, og eru kaup-
endur blaðsins vinsamlega beðnir
að afsaka, þó vér að þessu sinni
ekki gefum ástæðuna fyrir þeirri
breytingu, Ihún verður innan
skamms kunngjörð kaupendunum
ásamt framtiðar fyrirætlunum
vorum í sambandi við folaðið.
Ferðir Gunnars B. Björnssonar.
Mr. G. B. Björnsson fer til Nýja
íslands seinni part þessarar viku
og heldur samkomur á ýmsum
stöðum þar n.vrðra:
í kirkjunni í Árfoorg föstudags-
kvöldið 29. apr„ kl. 8.30. í Fram:
uesskóla laugard. 30. apr. kl. 11 f.
h. í Víðir Hall sama dag, kl. 3 e.
h. í Breiðuvíkur kirkju sunnud.
1. maí kl. 2 e.h. 1 kirkjunni í Riv-
erton sama dag kl. 8 e. h. í Geys-
ir Hall mánudaginn 2. maí, kl. 2
c. Ih. Til Gimli kemur hr. G. B. B.
að morgni þriðjud. 3. maí og verð-
ur þar fundur um kvöldið. Mið-
vikudagskveldið 4. maí leggur
hann á stað vestur til Saskatche-
wan og verður um vikutíma í
ferðalagi um pingvalla-nýlendu
og Vatnabygðir.
I