Lögberg - 19.05.1921, Page 3
LöGBERG, FIMTUDAGINN, 10. MAí 1921
3
IIIMNIII
imiaiiiiHiiiii
muaiiiiiHiiiiHiiiimiiHnii
IIMCHBIMI—1IMI1II—lHil
iiHiuiBiiiiBiiiiaiiiaitiaiiiiaiiHHiiia
■UI’MllllHlllHllllBIUmiUWIIHIlll
lllinilllBlillBllilBIII
iinnniiiaiiiiBiBiiiiBitiiniiiBiiii^
Sérstök deild í blaðinu
<miiiimiiiiiiiMiiiiiiiiin
SOLSKIN
•iiiiii»iiiimiuiiiiiiiiiiiiiiiiiuiusiimiiii»iniuimmmiumiumiiiiuiiiiiiiiiminiiinmiuiiiifflnniii>
Fyrir börn og unglinga
iiniHiimiiii
■:''iBIIIIB:':i
IIIIB1!!
iiiwiiimiaiiiii
KimmHiHiHimn
■iiiiHiimiimimiiiniimimiiiiBiiiiBiimiuimiiHiiiiHiiii
Egill.
Eftir John Lie.
Soga frá Þelamörh.
Hann var svo ánægður, og honum óx sjálfs-
traust. Föðurbróðir lians hafði þó álit á honum.
“Eg iskal ekki bregðast trausti hanis,” hugsaði
hann imeð sér. Ilann tók bókina og fór að lesa,
og svo reyndi hann sig enn einu sinni, til þess
að vera vi®s um að kunna það.
“Á morgun'skal eg kunna alt reiprennandi,”
sagði hann öruggur og rétti úr isér.
“ Eg held þú sért að vaxa drengur minn,”
sagði Gunnar.
Egill gekk út. Það var glaða tunglsljós, og
stjörnurnar blikuðu á heiðurn himninum. Snjór-
inn huldi jörðina, hvítur og gljáandi. Svalinn
strauk blóðrjóðar kinnar hans, kælandi og hress-
andi. Hann gekk inn í eldiviðarskálann. Þar
‘lá fjalhögg allstórt. Hann tók á því af öllum
kröftum, en gat að eins bifað því. Hann skirpti
í lófana, og reyndi aftur, en gat ekki loftað því.
“Bíddu við,” sagði hann “eg skal einhvern-
tíma taka þig upp!”
Hann gekk aftur inn í stofuna. Ghmnar
stóð við hilluna, og hafði kveiikt á spýtu, sem hann
hélt í hendi isér, og var að skoða dýramyndir
Egils.
Hann hagræddi iþeim fyrir sér, brá hendinni
fyrir augað, og borfði svo á þær.
“Hann er furðu skarpsýnn, drengurinn.
Hann befir það úr honum afa sínum. H&fir nokk-
ur iséð líkara? Svona kemur sauðkindin, teygir
fram snoppuna og vonast eftir bita, saklaus og
einfeldnisleg; alveg\eins og sauðkindin er og á
að vera.”
Egill stóð í sömu sporum. Hann réði sér
ekki fyrir gleði.
Það sloknaði á ispýtunni. Gunnar snéri sér
við. “Jæja ert það þú drengur minn. Nú
er mál að hátta. Annað kvöld skaltu fá skíðin
þín.”
“Ó, hvað það verður gaman!” sagði Egill
glaður í bragði. “Þé- s/kal eg sýna þeim, hvern-
ig á að nota skíði!”
Egitl lá vakandi í litla fletinu sínu. Gunnar
sVaf í hárúmi mjóu við vegginn rétt hjá arninum.
Tunglið var komið svo vestarlega, að það
skein inn um gluggann á vesturíliliðinni, og á loð-
feldinn á rúmi Gunnars.
En hvað föðurbróðir minn er góður, hugsaði
Egill. Hann á engann sinn líka. Eg held
hann skilji alla hluti. Það er undarl'egt að hann
skuli búa svona einn.
Gunnar hraut ákaflega.
Egill hlustaði á hroturnar alvarlegur, eins og
það væri húslestur.
Loks sofnaði hann.
Hann dreymdi að hann Væri heima á Bakka.
Amma hans stóð á túninu, og hélt á körfu á hand-
leggnum. Hann var sjálfur kominn upp á
Gaukakleif með skíðin sín.
“Rendu þér ekkj þarna ofan!” hrópaði hún
til hans.
“Þú þarft ekki að vera lirædd, amma mín!”
kallaði hann aftur, “eg hefi oft rent mór hérna
niður.”
Hann var þegar kominn á flugferð, og steypt-
ist frarn af hverri hengjunni á fætur annari.
Var hann ekki enn kominn niður á jafnsléttu?
Nei, þetta var ekki Gaukakleifin. Hann var kom-
inn fram á Stígandablaup, fremst fram á þrítugt
bjargið, og neðan við var áin, djúp og freyðandi.
Hann varð dauðhræddur, og fleygði sér aftur
á bak, en skíðin báru hann áfram. Hann fann til
óþolandi kvalar, sem leið gegnum merg og bein.
Hann datt langt, — langt niður; hann hljóðaði
upp yifir sig, og vaknaði-----innilega glaður yf-
ir því að vera heill á húfi þarna á gólfinu, sterku
og stöðugu.
‘ ‘ Þú hefir sjálfsagt ekið hingað núna, og. beitt
hestinum íþínum fyrir vagninn,” sagði Níels við
Egill þagði og s'ettilst í sæti sitt.
Enginn hló. Þeir tóku ekki eftir fyndn-
inni hans Níelsar núna. Ólafur í Ási og fleiri
[drengir voru að taila um hann Larfa frá Bakka
og dýrin hans. Þegar Egill kom inn, læikkuðu
þeir róminn.
Stúlkurnar hvísluðust á, litu á hann, og fóru
svo að hlægja. Þær langaði svo mikið að sjá
þessi dýr, en þær gátu ekki farið heim til hans að
skoða þau' það var alveg ómögulegt. Svo hniptu
þær hver í aðra, pískruðu eitthvað sín á milli, og
fóru svo aftur að skellihlæja.
Egiil haifði ávalt dregið sig í hlé, þegar dreng-
irnir voru á sfcíðum, en þennan dag fór hann með
þeim til þess að horfa’ á þá.
Rétt hjá skólahúsinu var allbrött skíðabrekka.
Hún var orðin margtroðin og hál sem ís. 1 henni
rniðri höfðu þeir biíið til hengju. Egill horfði
á þá um stund. Honum fanst Iþeir ekki vera
neinir afbragðs skíðamenn. Að eins Ólafur í
Ási og Níels gátu staðið þar sem hengjan var hæst.
Það gerði þó varla betur núna, af því að brekkan
var svo hál, og erfitt að stýra skíðunum.
“Kant þú á skíðum Egill?” spurði einn
þeirra.
“Ójá.”
“Það væri nógu gaman að sjá hann skruðlast
hérna niður brekkuna,” sagði annar.
Allir fóru að hlæja, því að engum kom til
hugar, að hann h'efði nkkurn tíma reynt skíða-
hlaup.
Agli varð all-skapþungt. “Haldið þið, að
eS hafi aldrei séð skíði fyr?”
Nú var hann hugaðri en áður, af því að hann
vissi að hann myndi ifá skíðin sín bráðlega, og geta
sýnt þeim hvað hann kynni.
“Já, það ætlum við víst,” sagði Níels, “eða
heldurðu a ðþú standir þessa brekku?” bafti hann
við og reygði höfuðið liæðnislega.
“Það held eg, ef skíðin mín væri komin.”
‘ ‘ Heyr á endemi! Þú hefðir víst haft með
þér skíði, ef þú hefðir nokkuð kunnað á þeim,”
sagði Níels.
‘ ‘ Viltu reyna Egill ? Eg skal lána þér skíðin
mín,” sagði Ólafur í Ási. “Það eru ágæt skíði.
Hann Ólafur bejddr hefir smíðað þau.”
Egill leit á skíðin, þau voru ekki svo afleit,
en þó var annað lag á þeim en skíðunum hans
föður hans.
“Farðu nú af stað,” kölluðu margir í einu.
“Það er svo hart undir, að eg er hræddur um,
að eg kunni að brjóta skíðin.”
“Eg held þú sért hrædidur um að brjóta í þér
beinin,” sagði Níels og hló. *
“Egálbyrgist skíðin,” sagði Ólafur.
Egill steig í táböndin, og fór af stað.
Það var áð eins leikur fyrir hann að standa
þessa breklcu, hann hafði oft staðið verri brekkur.
Sá, sem aldrei hafði séð Egil á skíðum, þekti
hann ekki sem sama mann.
Hann hafði iðkað skíðahlaup frá því fyrsta
að hann mundi eftir sér. Hann var ekki hár í
loftinu, þegar faðir lians lét hann fara með sér
út í skóginn og upp á heiðina til þess að leggja
snörur með sér. Hann varð brátt leikinn í því,
og veiddi marga orra rjúpijr og héra.
Allir urðu sem teini lostnir. Því hafði eng-
inn trúað, að litli drengurinn, magri og fölliti,
sem ætíð sýndist svo lingerður og stirðbusalegur,
gæti breyst svona mikið.
Hann gekk upp brekkuna á skíðunum, fljótt
og fimlega, án þess að renna í spori um eina hárs-
breidd; og þegar hann var kominn upp, lagði hann
þegar af stað rýður brekkuna aftur, öruggur og
kvíðalaus. Hann stóð.
Svo fór hann upp á brekkuna í annað sinn,
og gerði nokkru lengra lofthlaup af hengjunni en
í fyrra skiftið. Augu hans bruunu sem eldur,
og kinnarnar voru orðnar blóðrjóðar. Hann
var öruggur og ófeiminn. 1 iþessum leik stóð
enginn honum á sporði, og enginn gat brugðið
honum um stirðbusahátt.
“Eru engar betri skíðábrekkur liér nærri?”
sagði hann og horfði í kring um sig.
Níelsi iíkaði Iiið versta. Ekki nema það þó,
að þessi hrafnsungi skyldi skáka þeim öllum.
“Það er líklega bezt fyrir þig að fara upp á
Glámujökul, og reyna þig þar,” sagði hann og hló
hæðnislega.
“Það er ekki til neins að reiðast, Níels,” sagði
Ólafur í Asi. “Þú kemst ekki til jafns við hann
í skíðahlaupi, það er eins gott fyrir þig að viður-
kenna það þegár.”
“Eg hefi nú staðið stærri brekku en að tarna
og tekið lengra lofthlaup en Egill gerði,” sagði
Níels vandræðalegur.
Nú sáu þeir mann koma akandi. Það var
læknirinn. Hann var hinn mesti atgerfismður,
og hvatti ávalt æskulýðinn til þess að iðka alls-
konar íþróttir. Einkum ])ótti lionum gaman að
skíðahlaupum. •
Hann kom að einmitt þegar Egill rendi sér
niður brekkuna í seinna sinni. Hann stökk af
sleðanum og hljóp upp til þeirra í brekkuna. Hann
hafði verið harðgjör og hinn mesti fimleikamað-
ur á unga aldri.
‘ ‘ Þetta er ágætt drengir mínir! Skíðahlaup
er hin fegursta íþrótt. Munið eftir forfeðrum
vorum, Arnljóti Gellina og mörgum fleirum. Við
skulum nú sjá, hver ykkar er færastur. Hérna
er tveggja króna peningur.”-------
Hann sneið dálitla grein af grenitré, klauf
upp í annan endann, og lét peninginn í rifuna.
Eftir það stakk hann sprotanum í snjóinn
fremst fram á hengjunni.
“Þarna eru nví verðlaunin, drengir!” sagði
hann.
“Sá, sem tekið getur sprotann um leið og
hann fer fram af hengjunni, og tekið lengst loft-
hlaup, fær verðlaunin. En þið megið ekki vera
með nefið iðri í snjónum; þið verðið að standa
beinir og stöðugir. ”
Drengir þektu læknirinn, og þótti vænt um
hann. Hann var mikill bamavinur. Hann
hafði oft veitt verðlaun, bæði börnum og fullorðn-
urn, á þjóðhátíðinni.
“Hvaða drengur er þetta sem rendi sér áðan,
eg man ekki eftir, að eg hafi séð hann?”
“Það er hann Egill á Bakka,” sagði Níels.
Hann studdist fram á stafinn sinn, sparkaði í
snjóköggul, og bar sig mjög mannalega.
“Einmitt það! — sonur skíðamannsins?”
Drengimir þustu af stað.
“Nei, nei, ekki nema einn í einu,” sagði lækn-
irinn, “alt verður að fara fram reglule'ga.
Flestir steyptust fram af hengjunni, þegar
þeir seildust eftir sprotanum. Sumir skeyttu
honum ekki^ og tóku alllangt lofthlaup af hengj-
unni, en svo kollveltust þeir, þegar niður kom.
Að þessu varð hin ibezta skemtun.
Nú kom Ólafur í Ási. Hann náði sprotan-
um, en slopti honum þegar aftur, er hann tók
lofthlaupið. I>á kom svo mikið fát á hann, að
hann misti annað skíðið. Hann misti jafnvægið,
hringsnerist á fluginu og steyptist kollhnís niður á
jafnsléttu.
T rumbuslagarinn.
Tvisvar til þrisvar á æfi minni, hefir guð af
mikilli mískunn sinni hrært hjarta mitt. Og tvisv-
ar á undan afturhvarfi mínu, var eg undir djúpri
sekt.
I borgarstríði Bandaríkjanna, var eg sára-
læknir í hernum, og eftir orustuna við Gettys-
burgh, voru mörg hundruð særðra manna á sjúkra-
húsi því, er eg starfaði við. A meðal þeirra
voru 28, er voru svo að þrotum komnir að eg varð
að sinna Iþeim strags. Af sumum iþurfti að taka
fæturnar, aðrir hofðu mist armleggi sína og
nokkrir hvortveggja. Einn af þeim síðast-
nefndu var drengur, er hafði verið að eins þrjá
mánuði í ófriðnum, ofungur til að vera í dáta fylk-
ingum, en hafði þá innritast sem trumbuslagari.
Þegar aðstoðar læknir minn og umboðsmaður
ætlaði að gefa honum klóroformið snéri hann
höfðinu til hliðar og þverrteitaði að taka það og
sagði honum að senda læknirinn til sín. Þegar
eg kom til hans sagði eg við hann:
“Drengur minn, því neitarðu að taka klóró-
formið ? Þegar eg fann þig á vígvellinum varstu
svo langt leiddur að eg hugði það vart ómaksins
vert að taka þig með, en þegar þú opnaðir þessi
stóru bláu augu, kom mér til hugar, að þú ættir
máske .móður þína á lífi og hún væri nú að hugsa
um hvar drengurinn hennar mundi vera. Eg
vildi þá eigi láta þig deyja þar sem þú varst
kominn, en skipaði að taka þig með. En nú
hefirðu tapað svo miklu blóði að þú þolir ekki
skurð án klóroforms, svo láttu mig nú svæfa þig.”
Hann lagði hönd sína ofan á mína, leit fram-
an í mig og sagði:
“Læknir, sumardag einn að aftni, og í sunnu-
dagaskóla, þegar eg var níu og hálfs árs gamall,
gaf eg Kristi hjarta mitt. Eg lærði að treysta
honum þá og eg hefi treyst bonum alla tð síðan.
Eg veit að eg get treyst honum nú. Hann er
styrkur minn og þol. Hann styrkir mig á meðan
þér takið af mér fótinn og handlegginn. ’ ’
Eg spurði hann að hvort að eg mætti þá ekki
gefa honum svolítið af brennivíni. Hann leit
aftur í andlit mér um leið og hann sagði:
“Læknir, þegar eg var í kringum það fimm
ára gamall, var það einu sinni, að móðir mín
kraup við hlið mér í bæn til guðs og með hendur
um háls mér beiddi hún þess að eg bragðaði aldrei
áfengi. Hún sagði við mig: Charlie, eg er
að biðja Jesúm að vernda þig fyrir áfengisnautn.
Faðir þinn hvílir í drykkjumanns gröf. Eg lof-
aði guði því, ef það væri hans vilji að þú kæm-
ist á legg, að þú skyldir vera vörn annara ungra
manna fyrir hinum eitraða drykk. Nú er eg
17 ára gamall og hefi aldrei bragðáð neitt sterk-
ara en te eða kaffi. Og þar sem eg að öllum lík-
indum innan skamms mæti frammi fyrir guði,
vilduð þér senda mig þangað undir áhrifum víns?”
Aldrei gleymi eg tilliti drengsns. Þá hat-
aði eg Jesúm, en virti drengirin fyrir trúmensku
sína, til frelsaraihans, og þegar eg sá hve einlæg-
lega hann eskaði hann og treysti honum, snart
eitthvað hjarta mitt .svo að eg gerði það fyrir
hann sem eg hefi aldrei gert fyrir neinn annan Eg
spurði hann hvort hann viidi sjá prestinn. Hann
tók því fegins hendi. Þegar séra R. kom, þekti
hann drenginn strax, því hann hafði oft séð hann
við tjaldstaða bænagerðirnar. JTann tók í
hönd honum og sagðist vera hryggur yfir því að
.sjá hann í svo aumlegu ástandi.
“Mér líður ekkert illa.” svaraði hann.
“Læknirinn hefir boðið mér að 'taka klóroform en
eg vil það ekki. Svo bauð hann mér vín, en eg
þáði það heldur eigi, s,vo ef frelsari minn kaJIar
mig, kem eg til hans eins og eg er.” “Það er
ekkert víst þú deyir Charlie,” .sagði prestur,
“en ef svo skyldi fara að drottinn kallaði þig,
er það nokkuð sem eg get gert fyrir þig eftir
á?” Gerið svo vel prestur minn og náið í bib-
líuna mína, undir koddanum. í henni finnið
þér heimilisfang móður minnar. Gerið svo vel
að senda móður minni hana og skrifið henni líka og
og segið henni, að síðan að eg fór að heiman, hafi
enginn dagur liðið svo að eg hafi ekki eitthvað
lesið í henni, og beðið til guðs að hann vildi blessa
mína ástkæru móður. Sama hvar eg hefi verið,
á ihergörrgu, vígvelli eða sjúkrahúsi.”
“Er það nokkuð fleira sem eg gæti gert
fyrir þig Charlie?” spurði prestur ennfremur.
“Já, gerið svo vel og skrifa yfirumsjónar-
manni Sanols Street sunnudagsskóía í Lynn, N.
Y., og segið honum að bœnin hans, vingjamleg
orð og góð ráð er hann gaf mér, ha.fi aldrei fall-
ið úr huga mínum, en verið með mér í gegnum
hættur vígvallarins og nú á dauðastund minni
bið eg Frelsarann að blessa minn kæra kennara,
þetta er alt.”
Svo snéri hann sér að mér og sagði: “Nú er
eg til læknir, og lofa yður því að eg skal ekki
einu sinni Stynja, á meðan að þér takið af mér
handlegginn og fótinn.” Eg kvaðst tilbúinn, en
sannleikurinn var sá að eg varð að fara í annað
herbergi og fá mér vænt staup af víni, því eg átti
sjálfur ekki ráð á því þrelri sem til þess þurfti
að skera af honum limina vakandi án þess að fá
mér þessa hressingu.
DR.B J.BRANDSON
701 Llndsay Building
Phone A 7067
Office tlmar: 2—3
Heimill: 776 Victor St.
Phone: A 7122
Winnipeg, Man.
Dr- O. BJORNSON
701 Lindsay Building
Offlce Phone: A 7076
Offflce tlnxar: 2—3
Heimili: 764 Victor St.
Telephone: A 7686
Winnipeg, Man.
=É=
Vér leggjum sérstaka áherzlu á afi
selja meCöl eftlr forskrlftum lækna.
Hln beztu lyf, sem hsegt er að fá,
eru notuð eingöngpi. Pegar þér komið
með forskriftlna tll vor, megið þér
vera viss um fá rétt það sem læknir-
inn tekur til.
COLCLET7GH & CO.
Notre Damc Ave. og Sherbrooke St.
Phones N 7659—7650
Giftingalyfisbréf seld
DR. B. H. OLSON
701 Lindsay Bldg.
Ofíice: A 7067.
Viðtalstími: 11—12 og 4.—6.30
10 Theljtna Apts., Iloine Street.
Phone: Sheb. 5839.
WINNIPEG, MAN.
Dr. i. Stefánsson
401 Boyd Buildir>e
COR. PORTf^CE AVE. & EDMOþTOþ IT.
Stundar eingonsu augna, eyma. nel
og kverka ajúkdðtna. — Er að hitta
frákl. 10-12 f. h. ag 2 5 e. h.—
Talstmi: A 3521. Heimili: 627
MicMiUan Ave. Tals. P 2691
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd BuUdlng
Cor. Portage Ave. og Edmonton
Stundar sérst&klega berklasýkl
og aðra iungnasjOkdéma. Hr að
flnna á skrlfstofunnl kl. 11—
12 f.m. og kl. 3—4 c.m. Skrlf-
stofU tals. A 3521. Heimili 46
Allow&y Ave. Talslmi: Shsr-
brook 3158
Dr. SIG. JÚL. JÓHANNESSON
Lækningstofa að
1446% LOGAN AVE.
Optin kl. 3—6 e. h. á hverjum
virkum degi. Tals. A9085
Heimilissími A8592
J. G. SNÆDAL,
TANNLŒKNIR
614 Somerset Block
Cor. Portage Ave. sg Donald Strest
Talslmi:. A 8889
ssssasae,
C.r.
MRS. SWAINSON, a8 696 Sar-
gent are. hefir áv< fyrirliggj-
andi úrvalsbirgðir af nýtízku
kvenhöttum.— Hún er eina 1*1.
konan sem slíka verzlun rekur í
Canada. Islendingar látið Mra.
Swainson njóta viðskifta yðar.
Talsími Sher. 1407.
Verkstofn Tals.
A 8383
Heim. Tals
A «384
G. L. Stephenson
PLUMBER
Aiiskonar rafmagnsáhöld, svo sem
straujárn vtra, allar tegundlr af
glösum og aflvaks jbatteris).
VERKSTOFR: G76 HDME STHEET
Dagatals. St. J 474 Nætur.: St. J. 866
Kalli sint á nétt og degi
1)U. B. GERZABEK
M.R.C.S. frá Englandi, L.R.C.P. frá
London, M.R.C.P. og M.R.C.S. frá
Manitoba. Pyrverandi aðstoðarlæknir
við hospltal I Vinarborg, Prag og
Berlin og fleiri hospitöl.
Skrifstofa á eigin hosptal 416—417
Prichard Ave., Winnipeg. Skrifstofu
tlmi frá 9-12 f.h.; 3-6 og 7-9 e. h.
Dr. B. Gerzabeks elglð hospital
415—417 Prichard Ave.
Stundun og lækning valdra sjúk-
linga, se mjást af brjöstveiki, hjarta-
bilun, magasjúkdömum, innýflaveiki,
kvensjúkdömum, karlmannasjúkdöm-
um, taugaveiklun.
sw
Thos. H. Johnson
°g
Hjalmar A. Bergman
Islenzklr lögfræðingar
Skrifstofa: Room 11 McArthur
Building, Portage Ave.
P. O. Box 1656
Phones: A 6849 og 6840
W. J. LINDAL, B.A.,L.L.B.
fslen/kur lögfræðlngur
hefir heimild til aO taka aO sér mál
bϚi i Manitoba ,og .Saskatchewan
fylkjum... Skrifstofa aö 1267 Union
' Trust Building, Winnipeg. Talsimi
A4963 — Mr. Lindal hefir og skrif-
stofu aö Lundar, Man. og er þar á
hverjum mlövikudegi
JOSEPH T. THORSON
íslenzkur lögfræðingur
Heimaf. Sher. 4725
Heimili: Alloway Court
Alloway Ave.
MESSRS. PHXLDIPS & SCARTH
Barristers, Etc.
201 Montreal Trust Bldg.,
Winnlpeg
Phons: A 1336—1337
Phone: Garry 2616
JenkinsShoeCo.
639 Notre Dame
Avenue
Vér geymum reiðhjól yfir vet-
urinn og gerum þau eins og ný,
ef þess er óskað. Allar tegund-
ir af skautum búnar til sam.
kvæmt pöntun. Áreiðanlegt
vexk. Lipur afgreiðsla.
EMPIRE CYCLE, CO.
641Notre Dame Ave.
A. S. Bardal
843 Sherbrooke St.
Selur likkiatur og annaflt um útfarir.
Allur útbúnaður sá bezti. Ennfrem-
ur selur bann aUkonar minniflvarða
og legsteina.
Skrifst. talsíml N 6608
Heimllis talsími N 6607
w
Phones: N6225 A7996
Halldér Sigurðsson
General Contractor
808 Great West Permaneat Lo&n
Bldg., 356 Main St.
SKRITLUR.
Prestur ætlaði að gefa saman 3 eða 4 hjóna-
efni í messunni, en gleymdi tölunni þegar til kom,
og segir því í vandræðum: “Allir, sem ætla að
giftast gjöri svo vel að standa upp.”
Þær stóðu upp flestar ungu stúlkurnar í kirkj-
unni.
Kaupstaðarstúlkan í heimibði upp í sveit: “En
hvað nautkálfurinn þarna lítur illilega til mín.”
Róndinn: “ Það gerir rauða sólhlífin yðar.”
“Ungfrúin: “Nú gengur fram af mér, eg vissi
vaunar að hún var ekki eftir nýjustu tízku, en eg
hélt að onginn mundi sjá það upp í sveit.”
MORRIS, EAKINS, FINKBEIN
ER and RICHARDSON
Barristers og fleira.
Sérstðk rækt lögð við miál út af
óskilum á korni, kröfur á hend-
ur járnlbrautarfél. einnig sér-
fræðingar í meðferð sakamála.
240 Grain Exchange, Winnipeg
Phone A 2669
Giftinga og
Jarðarfara-
blóm
með litlum fyrirvara
Birch blómsali
616 Portage Ave. Tals. 720
ST JOHN 2 RING 3
Simi: A4158. IsL Myndastofa
WALTER’S PHOTO STUDIO
Kristín Bjarnason eigandl
%
Næst við Lyceum leikhúsið
290 Portage Ave. Winni|»g
JOSEPH TAYLOR
LÖGTAKSMAÐUh
lleimnis-THls.: St. John I84s
Skrlf atof u-Tuls.: Maln 7978
Tekur lögt&ki bæöi húBalelguakuldlr.
veöskuldlr, vixlaskuldir. Afgreiölr &1<
setn aö lögum lýtur.
Skrlfetofa. 255 M«'n Street
ROBINSON’S BLÓMA-DEILD
Ný blóm koma inn daglega. Gift-
ingar og hátóöablóm sértaklega.
títfararblóm búin með stuttum
jfyrirvara. Alls konar blóm og fræ
'á vissum tíma. —íslenzka töluð I
búðinni.
Mrs. Rovatzos ráðskona.
Sunnud. tals. A6236
J. J. Swanson & Co. *
Verzla meö tasteignir. Sjá ur
leigu á húsum. Annaat lán o„
elasábyrgSir o. fl.
808 P&rls Bulldlng
Phones A 6349—A 6314
f