Lögberg - 30.03.1922, Síða 4
Bk. 4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 30. MARZ. 1922.
Gefið út hvem Fimtudag af The Col-
ombia Press, Ltd.,iCor. William Ave. &
Sherbrook Str.. Winnipeg, Man.
Talaimari >-6.327 oft N-6328
Jón J. Bíldfell, Editor
Utanáskríft til blaðsins:
THE COLUMBIA PRESS, Ltd., Box 3172, Winnlpog, Mar).
Utanáskrift ritstjórans:
EDiTOR LOCBERC, Box 3172 Wlnnipsg, Man.
The “Lögberg” ls prlnted and published by The
Columbia Press, Limlited, in the Columbia Block,
863 to 867 Sherbrooke Street, Wlnnipeg, Manitoba
Lífsánœgja.
Oss er sagt frá því víða í fornum munn-
mælasögum, að menn fóru í þá daga land úr landi
til ess að leita að gæfu sinni, eða lífsánægju.
Menn og lconur hafa víst verið að leita að gæfu
sinni frá upphafi vega, og eru að því enn í dag.
Flestir þeirra eða allir gjöra sér grein fyrir í
hverju að gæfan sé fólgin, þó sumir komist að
þeirri niðurstöðu, að hana sé alldeilis ekki að
finna, að hún sé ekki til í veröldinni, þá er það
undantekning frá hinu almenna.
Misjafnar eru hugmyndir manna um það,
hvar gæfunnar sé að leita. Sumir sækjast eftir
l'ífsnautnum, en hafa orðið fyrir vonbrigðum.
Aðrir sækjast eftir auðæfum, en hvorki eru þau
á allra færi né heldur er gæfuna þar að finna.
Enn aðrir þrá upphefð og völd ,sem að eins fáir
geta notið, og þeir fáu af öllum fjöldanum, sem
þeirra hafa notið, hafa ekki heldur fundið gæf-
una þar, því eins og Bjarni Thórarensen segir,
þá er ekki “holt að hafa ból, hefðar uppi á jökul-
tindi, því að þar er ekkert skjól, uppi fyrir frosti,
snjó og vindi.” Menn eru alt af að brenna eða
frjósa á þeim leiðum, og því auð sætt, að þaðan
er ekki neinnar varanlegrar lífsánægju að vænta.
Og þó hana væri þar að finna, sem ekki er, þá
væru það að eins fáir, sem gætu notið hennar,
því eftir að alt er sagt og gjört, þá eru það aðeins
fáir, sem hreppa þessi ímynduðu hnoss, sem
nefnd hafa verið. Hinir allir, þeir mörgu, yrðu
• þá að vera án ánægjunnar eða gæfunnar, ef hana
væri hvergi annars staðar að finna. #
En því fer fjarri að svo sé. Steingrímur
Thorsteinsson segir, að lánið eða gæfan ibúi í oss
sjálfum, ef vér höfum að eins vit til þess að
færa oss það í nyt. Lífsánægjan er list, sem
hver einasti maður og hver einasta kona getur
lært og átt, ef þau að eins vilja, og sú ánægja
er hvorki komin undir auðæfum, völdum, lífs-
stöðu og jafnvel ekki heilsu manna, heldur undir
hugsumun þeirra, sálarástandi þeirra, sem þeir
sjálfir eiga ráð yfir.
Sá er þessar línur ritar, þekti fyrir nokkr-
um árum mæðgur tvær, sem voru leiguliðar í í-
búð, sem hann veitti umsjón fyrir eigandann.
Móðirin var nokkuð við aldur, mærin sextán eða
seytján ára, en faðirinn var dáinn. Móðirin var
fyrirvinnan, en stúlkan hjálpaði eftir megni.
Mæðgurnar voru fátækar að húsmunum og öðr-
um þægindum, en þær voru ríkar að nægjusemi
og lífsgleði. Aldrei heyrðist eitt einasta æðru-
orð út af kjörum þeirra. Aldrei hnjóðsyrði til
neins manns. þær voru í sátt við alla menn og
lífið sjálft. Lífið var fyrir þeim fagurt, og þess-
ar konur báðar voru lifandi vottur þess, bæði
í orði og útliti. Kjör þeirra eru nú breytt. Á
stúlkuna ungu hefir hinn ægilegi “hvíti dauði”
sett merki sitt. Hún. er nú í sveit hinna sjúku
á Ninette. En hún er eins Hfsglöð og hún áður
var, og hún er, þótt kinnar hennar séu fölar og
hendurnar hvítar og holdlausar, sólargeisJinn í
sjúkrasalnum. Móðirin vinnur enn fyrir
sér og henni.
Um þetta atriði lífsánægjunnar segir hinn
nafnkunni læknir, Sir Alfred Fripp, nýlega með-
al annars þetta, og gefur svo eftirfylgjandi regl-
ur fyrir því, hvernig menn eigi að fara að til þess
að höndla það eftirsóknarverða hnoss:
“pað er nálega eingöngu sjálfum mönnum
að kenna, ef menn eru óánægðir, því ánægjan er
undir hugsunarlífi manna komin. Vér getum
ekki ávalt ráðið við hinar ytri kringumstæður,
en hver einn af oss er herra sinnar eigin sálar.
Ánægjan er list, og eins og allar aðrar listir,
þarf að æfa hana og þroska, unz vér höfum náð
valdi á henni eða hún á oss, og það er á valdi
hvers eins að veita sér hana. Leyfið mér að
bend* yður á nokkrar einfaldar reglur í þessu
sambawdi:
1. Hver og einn hefir sína sérstöku eigin-
leika og lyndiseinkenni. Verið þeim trú, en
reynið ekki að apa eftir öðrum.
2. Temjið yður góðlyndi, umhyggjusemi og
hjálpfýsi.
3. Verið ung í anda, yfirlætislaus. Verið
hugsjónum yðar trú, trú yðar, ímyndunarafli
yðar og áræði. Látið huga yðar aldrei dvelja
við það, að þér séuð tuttugu, þrjátíu eða fjöru-
tíu ára að aldri, h'eldur að þér séuð þrjátíu eða
fjörutíu vetra ungir. Látið hluttekning yðar
aldrei fyrnaat, hversu erfitt sem yður finst að
halda henni vakandi. Ekki heldur áhuga yðar
né bjartsýni. Á bak við ókyrðina og síngirnina,
sem heimurinn er nú fullur af og sem ber svo
mjög á og hefir svo eyðileggjandi áhrif, leynist
ein af skaðvænustu syndum mannanna—synd
vonleysisins. pví það er eins og japanska mál-
tækið segir: “Bíflugan stingur andlit þunglynda
mannsins. Vertu glaður, þá verða aðrir glaðir
með þér, því það er eðli ánægjunnar, að gleðja
aðra.
4. Láttu erfiðleikana aldrei ógna þér, fyr en
þú mætir þeim. Minstu þess, sem konan aldr-
aða sagði: “prír fjórðu partar af öllum erfið-
leikum lífs míns hafa að eins verið ímyndaðir og
aldrei verið til.”
5. Vendu þig á að umbera heimskuhjal ann-
ara með léttri lund og svara þeim í samræmi við
framkomu þeirra. J?að er yfirnáttúrlegt, hve
fádæma mikið af þekkingarleysi er að finna á
meðal allra stétta, og jafnvel á meðal fólks, sem
j er viðkunnanlegt og aðlaðandi.
6. Vertu forsjáll í vali vina þinna, og láttu
svo ekki vinskapinn fyrnast. ]7ví þú þekkist af
sessunaut þínum. En lífið er stutt.
7. Hafðu því frið við alla. Reiðinni hefir
verið vel líkt við bráðabirgða brjálsemi og sama
er að segja um öfundina. Reiðin er heimska, og
þó hún sé algeng, þá hefir hún orðið mörgum
dýr, og skaðsamleg er hún fyrir sjálfan þig, því
einn fjandmaður getur gjört þér meiri skaða, en
tíu vinir fá bætt. Reyndu að sjá það sem á milli
ber, með augum mótstöðumanns þíns. Sjónar-
svið hans, reynsla og smekkur er máske ólíkt
þínum — veslings maðurinn er máske veiklaður
á heilsu, eða hann á konu, sem alt af er sí-
nöldrandi út af einhverju, eða ungbam, sem
heldur vöku fyrir honum á nóttunni. Uppeldi
hans og hugmyndir eru máske ólík þínum. En
eftir alt saman getur máske ýmislegt verið nýti-
legt í hans aðferðum og hugmyndum, þó þær séu
öðruvísi en þínar. pví útsjón vor í sambandi við
spursmál lífsins er mismunandi.
8. Vemdaðu jafnaðargeð fþitt. pjóðimar
þurfa á fólki af öllum stéttum að halda. Vér
getum ekki búist við að búa saman við tómt fyr-
irmyndarfólk. Mismunandi smekk verðum vér
öll að hafa, en reynið að varast að afla yður ó-
vina. pað er gott til í hverjum einasta manni,
og-það er ekki ósjaldan að þegar maður þekkir
alt í fari hans, að maður er fús til fyrirgefningar.
9. Verndið sjálfstæði yðar, því eins og
Kipling segir: “Help me to need no aid of man,
That I may help such men as need.”
10. Haltu tilfinningu þinni vakandi fyrir
því hlægilega í lífinu, hún er hollur fömnautur í
hvaða stöðu sem er, og má ekki missast, því hún
er hjálparmeðal til lífsánægju og þroskunar.
11. Samræmið skaltu og láta þér ant um,
en til þess þarf menningarlegan þroska, því á
yngri ámm er mönnum hætt við að láta tilfinn-
inguna ráða fyrir dómgreindinni. Tækifærin til
þess að sjá og hagnýta sér tækifæri lífsins, eru
að miklu leyti komin undir þroskun þeirrar lynd-
iseinkunnar. En tækifærin verða á vegi allra
einhvem tíma á lífsleiðinni; á það geta menn
reitt sig.
12. Látið umhugsunina um peninga ekki
bera yður ofurliði. Hugsunin um peninga ber
flestar aðrar hugsanir ofurliði í heiminum nú í
dag. En henni ætti að vera haldið innan sinna
vébanda. pví vér höfum áþreifanlega gengið úr
skugga um, að það sé til, sem peningum er meira,
svo sem heilsa, lífsánægja, hrein viðskifti og fl.
13. Ef þú venur þig á samræmi í hugsun,
þá verður þú hóflegur i orði og áformum. pú
verðuf hægur og umburðarlyndur við aðra, sem
eru þér frábmgðnir í skoðunum; þú verður ekki
fráhverfur því góða, sem lífið hefir að bjóða, og
þú lærir að þekkja hinn verulega mismun, sem
er á milH þess að færa sér í nyt og misbjóða
því. Og hefir maður þá sérstaklega 1 huga
tóbaks og vínnautn og ummæli Kiplings hin
snjöllu: “Drekk þú ekki sökum þess, að annar
maður er þyrstur.”
14. Að síðustu: líttu aldrei til baka með
hrygð í huga. Endurminningar liðins tíma hljóta
að koma fram í huga þínum við og við. Bittu
hugann ekki of fast við þær, því það heftir fram-
sókn þína. Og ef þær ásæka þig um of, brjóttu
þá það helsi með því sem eg kalla hugarbreyting
frá lamandi hugsunum til glaðværðar og létt-
lyndis. Einhver hefir vel sagt, að minnið væri
falið.í þeirri list að kunna að gleyma.
---------o--------
Illgirni og afglöp.
Skáldið Longfellow talar um þá sameiginlegu
þrá allra manna, að eiga spor við tímans sjá, þeg-
ar árin dvína, sem geti vísað einhverjum, sem
síðar reikar um þær slóðir, veginn til sólar og
sannleiks hæða.
Að sjálfsögðu er þetta satt, yfirleitt talað.
En þó eru til menn, sem auðsjáanlega hafa ásett
sér hið gagnstæða. peir hafa rejmdar ásett sér
að eiga spor—skilja eftir spor. En ekki til þess
að lýsa þreyttum vegfaranda, heldur til þess að
villa hann. '
Slíkar þokusálir eru til hjá öllum þjóðum, og
allsstaðar er verk þeirra hið sama—að leiða af-
vega. pær hafa verið og eru til hjá íslendingum
heima á ættjörðinni, og þær hafa verið og eru
til hjá oss Vestur-íslendingum.
Ein slík lætur til sín heyra í síðustu Heims-
kringlu, í greín einni, sem nefnd er “Ástandið í
1 Manitoba.” Og er sú grein einkennileg fyrir
tvent: illgirni og afglöp.
Greinin fjallar um stjórnmál, mál sem alla
varðar og mál, sem hverjum manni í Manitoba
ber að athuga hreinskilnislega og hlutdrægnis-
laust. En þessi grein gjörir það ekki. Hún gef-
ur mönnum ekki rétta hugmynd um neitt, nema
þokusálina, sem á bak við hana stendur, útþanda
af illgirni.
pessi þokusál segir, “að Norrisstjórnin hafi
ekki brotið stjórnarboðorðin í stórum stíl. Að
fjármálin hafi farið í óreiðu. Fjárhagsferjan
stefndi út í hafsauga. Formenskan hefir verið
mjög á reiki”. Og samt hefir Norrisstjórnin
ekki brotið stjórnarboðorðin.
Til hvers skyldi nú vera að ræða stjórnmál,
eða nokkur önnur mál, á þennan hátt? Fyrst að
segja, að “ekki sé með sanni hægt að segja, að
Norrisstjórnin hafi brotið sitjómarboðorðin í
stórum stíl”, og svo að bera á móti því í næstu
setningu og sýna fram á, að hún hafi nú einmitt
gjört það, sem maður er nýbúinn að segja, að
hún hafi ekki gjört. pað eru ekki aðeins afglöp,
heldur er það að gjöra sjálfan sig að ósanninda-
manni og flóni í sömu andránni. Sé sannur þessi
vitnisburður þokusálarinnar í Heimskringlu um,
að fjármál Manitoba fylkis séu í óreiðu, að fjár-
hagsferjan stefni út í hafsauga, og að formenska
stjórnarinnar hafi verið mjög reikandi, þá hefir
Norrisstjórnin stórkostlega brotið stjórnarboð-
orðin. En nú er þetta ekki satt, eins og þoku-
sálin sjálf viðurkennir í þessari þokugrein sinni,
því ef hún hefði haft nokkur rök til að styðjast
við, þá hefði hún komið með þau, en það gat hún
ekki og það hefir enginn getað sannað Norris-
stjórnina að sök með óreiðu í fjármálum, né held-
ur í nokkrum öðrum málum, enn sem komið er.
Enn fremur segir þokusálin í þessari þoku-
grein sinni: “‘Á fyrra stjómar tímabili sínu fitj-
aði Norrisstjórnin upp á ýmsu, sem sumpart hef-
ir reynst þolanlega, en sumpart afleitt og ekki
annað en kostnað hefir haft í för með sér.”
Vér höfum verið að leita að vitinu í þessari
setningu, en því miður höfum vér ekki fundið
það enn sem komið er. Vér finnum ekkert í
henni annað en illgirni og afglöp.
pokusálin segir, að stjórnin hafi fitjað upp
á ýmsu, “sem sumpart hafi reynst þolanlegt, en
sumpart afleitt og ekki annað en kostnað hefir
haft í för með sér.”
Allir heilvita menn vita, að áður en hægt er
að segja um löggjöf, að hún hafi reynst þolan-
lega, eða þá að hún hafi reynst afleit, þá þarf að
gjöra meira en að fitja upp á henni. pað þarf að
prjóna hana alla og þæfa, eða með öðrum orðum,
gjöra hana að lögum. En það er bezt að sleppa
öllum afglöpum, en halda sig við það sem þoku-
sálin vill láta skiljast, nefnilega það, að löggjöf-
in, sem Norrisstjórnin hefir veitt fylkisbúum,
hafi sumpart verið þolanleg, en sumpart afleit.
Aftur viljum vér spyrja, til hvers er að ræða
stjórnmál eða nokkurt annað mál, á þennan hátt?
Hví tekur þokusálin ekki eitthvað af lögum þeim,
sem Norrisstjórnin leiddi í gildi, til umræðu og
rökræðir þau? T. d. verksmiðjulögin, lögin, sem
ákveða verkamönnum skaðabætur, ef þeir meiða
sig; lögin um styrk til ekkna; hin margbreytilegu
landbúnaðarlöggjöf stjórnarinnar, lögin um lán-
veitingar til sveitafélaga, lögin um lán á bújarð-
ir bænda, eða einhverja aðra löggjöf stjórnar-
innar ?
Ef hún veit nokkuð um löggjöf Norrisstjóm-
arinnar og getur komið hugsununum út frá sér,
svo að þær skiljist, þá gæti verið eitthvert vit
í því og líka gagn, en að ausa illgirni og aðdrótt-
unum órökstuddum að mönnum og málefnum, er
eins óærlegt og það er heimskulegt.
I niðurlagi þessarar þokugreinar stendur
þessi klausa: “óviðkunnanlegt er þó að heyra
málgagn Norrisstjómarinnar enn halda því
fram, að þann tíma (fram að kosningunum) sé
enginn fær um að stjórna nema Norrisstjórain
sæla. Ofan á alt það, sem á undan var gengið,
er það einna aumkunaverðasta lokleysan, sem
enn hefir komið úr þeirri áttinni, og var þó ekki
á sumar þeirra bætandi.” Finst mönnum ekki,
að svivirðingin sé farin að ganga nokkuð langt,
þegar þokusálin í Heimskringlu er farin að bríxla
öðrum um lokleysur?
En vér vildum benda lesendum á það, og líka
þokusálinni, að ef um lokleysu er að ræða í þessu
efni frá vorri hálfu, að þá hefir fylkisstjórinn,
Sir James Aikins, gjört sig sekan í þeirri sömu
lokleysu, því hann tekur skýrt og skorinort fram
í bréfi sínu til forsætisráðherra Norris, og það
með rökum, að ekki sé viðlit að nokkur þing-
flokkanna í Manitobaþinginu, að undanteknum
Norrisflokknum, sé fær um að mynda ábyggilega
stjóm og, og er sá vitnisburður eins mikils virði
til vor, og vitnisburður þokusálarinnar að
Heimskringlu.
--------o—--------
Nýtt rit.
Lögbergi hefir verið sent Cil umsagnar
ltíið rit, eftir Axel Thorsteinson, son góðskálds-
ins íslenzka Steingríms Thorsteinssonar, sem
hann hefir nefnt Rökkur.
í ritinu eru fjögur kvæði og ein smásaga,
og er efnið í öllum tilfellum fallegt og heilbrigt.
Nafn ritsins er einkar vel valið og minnir oss á
eina af hugðnæmustu siðvenjum hinnar íslenzku
þjóðar—rökkursöguraar, þegar heimilisfólkið
sat og hlýddi á vel sagðar sögur um ýms efni.
Ef þessi kvæði og sögur Axels eiga eftir að
vekja af dvala þá list og löngun hjá Vestur-
fslendingum, þá hefir þessi ungi og efnilegi landi
vor ekki komið erindisleysu í hóp vorn.
Fyrsta kvæðið í riti þessu heitir Bæn. Fall-
egt kvæði og lýsir hreinleik og hugsanafegurð
skáldsins. par stendur þetta:
“Veit mér lið og ljóss þíns bjarma
láttu signa hverja þrá,
svo eg fái huggað harma
hvers og eins, er sorgir þjá;
svo eg bræðrum mínum megi
mildi þinni segja frá.
. Faðir! þeim að vera á vegi
varða lítil er mín þrá.”
Vestur - fslendingar! þarna sjáið þér til
hvers þessi ungi íslendingur er kominn í hóp
vorn, og það er undir yður komið að miklu leyti,
hvernig að honum tekst þetta.
Axel kom fátækur til þessa lands fyrir
skömmu, innritaðist í herinn og var um tíma á
vígvöllunum á Frakklandi, enda ber sagan í þessu
hefti, “Góða nótt”, vitni um það.
petta hefti er byrjun á útgúfu á frum-
sömdum og þýddum kvæðum og sögum eftir
þenna höfund, sem hann hygst, ef vel gengur, að
1
MONEY ORDERS
eins og ódýrri og áreiðanlegri aðferS til þess
að senda peninga alt að $50 upphæð.
Gilda án aukagjalds við útibú allra banka hér í
dland) og Can hggá plandi (nema Yukon) og
í Newfoundland.
$5 og undir........ 3c. Yfir $10, upp að $30 lOc
Yfir $5, upp að $10 6c Yfir $30, til $50 15c
THE ROYAL BANK
OF GANADA
Rorgaður höfuðstóll og viðlagasj...... $40,000.000
AJIar eignir .................... $483,000,000
gefa út í heftum smátt og smátt. Hefti þetta
kostar fimtán cents og mælum vér hið bezta
með því og vonum, að Vestur-fslendingar ekki
að eins kaupi það, heldur gerist áskrifendur að
ritum Axels, sem út kunna að verða gefin á
þenna hátt, því með því gjöra menn tvent, að
eignast og lesa ljóð og sögur, sem einlægni, vel-
vild og sakleysi geyma í ríkum mæli, og'svo að
styðja efnilegan ungan íslending áfram og upp á
við á hinni vandasömu og erfiðu braut bóklist-
arinnar, sem sjálfur var þess albúinn, að leggja
alt í söluraar fyrir velferðarmál vor, þegar mest
á reið.
Menn sendi pantanir sínar til Axels Thor-
steinsonar, 662 Simcoe Street, Winnipeg, þar
sem þær verða tafarlaust afgreiddar. Annað
hefti af þessu riti kemur út í næsta mánuði.
Kristjana Johnson
pann 9. feb. 1922, andaðist á
heimili sínu að Mountain, N, Dak-
ota, ekkjan Kristjana Johnson,
fædd 1860 í Víðinesi í Skagafjarð-
arsýslu á íslandi . Foreldrar
hennar voru þau hjónin Símon
Kristjánsson og porbjörg Eiríks-
dóttir. Var Kristjana yngst af
þremum börnum iþeirra, hin voru:
Kriistján, fæddur 1855, dáinn sama
ár, Guðrún, fædd 1856. Mistu þau
föður sinn á unga aldri.
Noikkru síðar giftist porbjörg
móðir þeirra í annað sinn, Svein-
birni Jóhannessyni.
Árið 1876 fluttu þau hjón vest-
ur um haf, og settust að á Gimli
í Manitoba. Börn þeirra por-
bjargar og seinni manns hennar
— hálf syskin Kristjönu voru
fimm: Eiríkur, fæddur 1865, Sím-
on, fæddur 1866, Jóhannes, fædd-
ur 1867, Sigurlaug, fædd 1869,
dáin 1894. Guðmundur, fæddur
1872, dáinn 1876.
Árið 1884 giftist Kristjan Gísla
Jónissyni, Runólfssonar og Sigur-
laugu, Gíeladpttir, Konráðssonar
sagnfræðings.
Bjuggu þau um stutt skeið í
Winnipeg, en fluttu svo til Kee-
watin, Ont. og dvöldu þar allmörg
ár. Árið 1900, misti Rristjana
mann sinn, en tveimur árum síðar
flutti hún með tilstyrk frænda og
vina til Mountain, N. D. þar sem
margt af ættfólki hennar bjó, og
þar dvaldi hún til dauðadags.
pau Gísli og Kristjana eign-
uðust 6 böra, sem öll eru á lifi,
þau eru: Símon ógiftur að Moun-
tain. Sigurlaug ógift, vinnur við
hraðritunanstofu í New-York borg.
Porbjörg, gift Th. Thorarinson,
bónda við Amelia, Sask. Canada.
Jónína, gift Jóni S. Sveinssyni,
bónda við Svold. Konráð ógiftur
að Mountain. Indriði, giftur
skozkri konu, býr í East- Grand
Forks og stundar vélasmíði.
Pað er líkt um Kristjönu sáluðu
að segja og aðrar verkamannakon-
ur; Hfssaga þeirra ^r oftast hin
isama i höfuð atriðunum; hin
sama daglega umhyggja fyrir búi
og börnum, með öllum þeim marg-
breyttu störfum er þar að lúta. Og
svo þegar þar við bætist fráfall
heimilis föðursins, og ekkjan
stendur eftir með hóp af hálf-
þroskuðum börnum, litlum efnum
og biluð að heilsu og kröftum,
verður saga hennar raunasaga að
meira eða minna leyti. petta er
í fáum orðum saga hinnar látnu
konu:
Geta má nærri að mörg stundin
hefir verjð döpurleg og margur
hjallin erfiður undir fæti, en Hka
margur sólskíns bletturinn og
blóma brekkan á leiðinni, þar sem
eru í fylgd elskuleg börn og um-
hyggjuisöm móðir, og víða að mæta
ræktarsömum frændum og venzla
mönnum, auk velviljaðra vina og
kunningja.
Kristjana var góð kona og ást-
rík móðir, vönduð og dagfarsprúð,
Hún var mjög söngelsk og gat
tekið þátt í skemtunum. Lundgóð
var hún og glaðsinna að upplagi,
en stilt og hæglát í framgöngu og
bar raunir lífsins með rósemd og
þolinmæði.
Fullan þriðjung æfi sinnar átti
hún við mikla vanheilsu að búa
og bar hún hana vel, enda þótt
að lífsgleðin dapraðist eftir því,
sem árin liðu. En þrátt fyrir
alt var hin móðurlega ást og um-
hyggjusemi hennar fyrir börnun-
um hin sama fram til síðustu
stundar.
Hún átti góð börn, og iþau líka
góða móður, þau mistu mikið, enda
syrgja þau sárt, og munu æfinlega
minnast hennar með elsku og
þakklátssemi.
Allir vinir og vandamenn
hugsa til hennar með lilýjum- til-
finningum.
Jarðarför Kristjönu sáluðu, fór
fram þann 14. feb. frá kirkjunni
á Mountain, og flutti Séta Páll
,Sigurðsson, fagra og hjartnæma
líkræðu. Voru öll ibörn hennar
og tengdabörn þar við stödd, nema
Sigurlaug, isem var í fjærlægð og
gat elcki komið. Einnig gat ekki
Guðrún eða Mrs. Svein Sveineon,
ein systirin verið viðstödd.
vegna lasleika.
Blessuð sé minning hinnar
framliðnu konu.
Vinur.
Pakklætisorð.
í sambandi við framan skráða
dánarfregn, viljum við undirrituð
votta vort alúðarfylsta þakklæti
öllum þeim, sem með hjálp 6g
hluttekningu tóku þátt í hinu
síðasta striði okkar elskuðu l'átnu
rcóður Kristjönu Johnson. Sér-
staklega má þar til nefna, Miss
Kristinu porfinsson, sem var yfir
sjúku fullar tvær vikur. Einnig
þau hjónin Svein Sveinsson og
konu hans, Guðrúnu, móður systír
okkar. Enn fremur Mre. og Mr.
J. J. Myers, sem öll veittu alla þá
hjálp og aðstoð sem unt var til að
létta síðustu byrði, hinnar dey-
jandi konu. Ásamt fjölda mörg-
um öðrum, sem of langt yrði upp
að telja.
Hafið öll hjartans þökk góðu
menn og konur.
Börn og tengda 'börn hinnar
látnu.
Tilbreyting.
Norðra tíðar náhvelin,
niður skríða í sædjúpin,
himins þíða húsfrúin
haddinn fríða kembir isimn.
Brosir fjalar brúðir hreín,
báran hjálar ljúft við stein,
blærinn svalar bjarkargreÍTi
bætt er dala Vetrar mein.
Frjóguð lifna fræin »má
flíkur rifna klakans blá,
vættir þrifnar völdum ná
vofur drifnar flótta á.
Liljur vallar lyfta brá,
lífstns allar gígjur silá,
sólar-hálla sveitin frá,
sinn fer kalla makann á.
Seimahlíð og isverðagrér;
sikling tíða þökk fram 'ber,
vetrar hýði varpa af þér,
vorið blíða komið er.
pjalar-Jón.