Lögberg - 13.04.1922, Blaðsíða 4

Lögberg - 13.04.1922, Blaðsíða 4
Bla. 4 LÖOBEEG, FTMTUDAGINN 13. APRÍL 1922. Jögberg Gefið út hvem Fimtudag af The Col- umbia Preis, Ltd.^Cor. William Ave. & Sherbrook Str.. Winnipeg, Man. Talsiman N-6327 06 N-6328 Jón J. Bfldfell, Editor Dtan&skrift til blaðsins: THE eOLUMBIð PRESS, Ltd., Box 3172, Winnlpeg, Man- Utanáakrift ritstjórans: EDiTOR L0C8ERC, Box 3172 Winnipeg, M»n. The “Lögberg” ts printed and publiahed by The Columbia Press, Llmiited, in the Columbla Block, 853 to 857 Sherbrooke Street, Winnipeg, Manitoba Eitt er takmarkið. Á rneðan á stríðinu nýafstaðua stóð, tóku menn í öllum löndum, eftir því, ef þeim hefir ekki verið það ljóst áður; hvers virði að sam- vinna, eining og isamtök eru .mönnum. Menn finna til þess þegar um eitthvað* mi'kið er að ræða, einhverju Grettistaiki þarf að lyfta, einhverju erfiðu takmarki að ná, þá er það viljinn, einingin og hið sameiginlega afl, sem gjörir það mögulegt. A stríðstíðinni stefndi viljaþróttur, at- gjörfi og efni rnanna, að einu mark i — marki sigursins og það var aflið, sem gerði samband,s- þjóðunum sigurinn mögulegan. En á meðan það ægilega verfcefni var fyrir hendi gátu menn ekki gefið sig við hinum smærri verkefnum — verkefnunum hinum margvíslegu, sem nær manni I'águ — verkefnun- imi hinum mörgu, sem heima fyrir urðu að víikja, fyrir hinu vfirgripsmeira verkefni istríðsins. En undir eins að' stríðinu loiknu — undir eins að sú tíð kom, að menn máttu taka huga frá hemaði og hrvðjuverkum, snérist hann að viðfangsefnunum heima fyrir, sem höfðu verið látin sitja á nakanum; en sem þurftu og þurfa isvo mjög á sama viljaþrekinu, sömu eining- unni og sömu efnalegu fórfærsl.unni að halda, sem gjörði sambandsþjóðimar svo sterkar á stríðstímunum. Menn snéra sér frá taikmarkinu sem ein- ing, sameiginegt áhugaefni og fórnfýsi hafði flutt þá að á vígvellinum, en að takmarkinu sem beið þeirra og bíður enn heima fyrir. Vér Canadamenn töluðum um endurreisnar tímabil. Um aukna landbúnðar framleiðslu, um meiri jarðabætur, um víðtækari verzlun, um að sjá hennönnunum sem heim komu fyrir líf- vænlegum lífsstöðum, um sikattabyrðarnar sem stríðið hlyti að leiða af sér og mörg fleiri atriði, isem hvert út af fyrir sig, var víðtækt og stór- kostlegt viðfangsefni,- En þó þessi verkefni séu miikilsverð, nei, ómissandi, þá eru þau að eins þáttur í aðal verkefninu, að eins vörður á veginum til aðal takmarksins. sem framundan oss Canada- mönnum liggur. Og hvert er það takmark? Það er að byggja upp í þessu auðugasta landi heimsins, Canada. volduga einhuga, hreina og sterka þjóð. Verkefnið er mikið og takmarkið er hátt, en það er það eina sem oss er samboðið, og það er það eina sem getur komið oss út úr örbirgð og erfiðleiikum. / En það næst aldrei nema með ákveðnum vilja, einingu, sa.mhuga og fórnfýsi allra stétta og einstaklinga sem í landinu búa. Hugsun vor, sem við er að búast, hefir að mestu leyti snúist um atvinnuvegi þjóðarinnar, um hið daglega brauð vort, en vér höfum ekki lagt eins mikla rækt við hinar víðtækari og æðri þjóðar hugsjónir, en þó eru það einmitt þær, sem mestu varða. Vér höfum hér í Ganada tekist á hendur það mikla verk að endurreisa og endurbæta það sem aflaga fór á stríðstímunum og erum sjélfir skoðanalega og stefnulega allir í molum. Vér segjumst vera að vinna að velferð og framþróun þjóðarinnar, í heild sinni, en eram að berjast fyrir hag einsta'klinga og einstakra stétta. — Vér segjumst vera að efla frið og einingu þjóðfélagsins en erum með oddborgara- skap einstaklinga, flokka og stétta að spilia honum. Hvernig getur þjóð vor hin eanadidka þroskast á meðan að hver einasta stétt þjóðfé- lagsins er að berjast fyrir einhverjum sérrétt- indum f Hvernig má eining innan þjóðfélagsins ríkja á meðgn eigin hagsvon, valdasýki og sín- girai gagntekur smærri og stærri flofcka og stéttir innan þjóðfélagsins. Hvemig getur hús það staðist, sem er sjélfu sér sundurþykt. Sannleikurinn er, að erfiðustu örðugleik- arair, sem þessi þjóð verður að mæta og yfir- stíga, eru ekki skuldimar, e»k)ki að auka fram- leiðsluna, né efla vörumarkaðinn, okki að sjá hermönnunum sem í stríðinu voru; fyrir sæmi- legu lífsviðurværi, ekki jarðabætur og ekki skattaálögur, heldur óeining. Ef vér Canadamenn gætum gróðursett þá skoðun hjá einstaJklingum, flokkum og stéttum, að til þess að ná einhverju takmarki þá þurfa menn að vera samtaka. Ef við gætum gjört almenningi, af öllum stéttum þann sannlei'ka Ijósan, að hinar ýmsu stéttir þjóðfélagsins eru óaðskiljaniegur partirt- heildarinnar og að það er óhugsanlegt að veita einni heirra nein þau sérréttindi sem heildinni eru til tjóns, Ef vér getum komið öllum yngri og eldri, fátaLÍkum sem ríkum til þesis að sjá og skilja, að eini mögulegi vegurinn til þess að yfirvinna erfiðleikana og ná takmarkinu er að allir séu eitt. Að menn láti hin. smærri og þýðingar- minni mál, víkja fyrir. hinum þýðingarmeiri og stærri, að menn hætti að berjast fyrir réttind- um sérstakra flokka þegar þau koma í bág við framisóknar, eða þroska-mögu'leika heildarinn- ar, en sæki fram að hinu æðra og hærra tak- marki, sem einn maður og þá er 'ekkert sem igetur hindrað þessa þjóð, eða nokkra aðra þjóð, frá að ná því takmariri sem hún hefir sett sér, því: ‘ ‘ Sú þjóð, sem veit sitt hlutverk, er helgast afl um heim, eins hátt sem lágt má falla fyrir kraftin- um þeim.” ---------o-------- Pjármála-jöfur Póllarids. Síðan að stríðinu lauk, og Póliland varð sjállfstætt hefir sú þjúð átt við margvíslega erfiðleika að búa. Sundurlvndi innbyrðis. Þurð á framleiðslu, á verksmiðjuiðnaði og ilandsafurðum. En hvað erfiðust hafa fjármálin verið. Að loknu stríðinu vóru Pólverjar, sem náttúriögt var í fjárþröng eins og margar að- j rar þjóðir eða réttara sagt flestar aðrar þjóð- ir. Crræðin fyrir hendi voru fimm. Fvrst að auka framleiðsluna. Annað að minka út- gjöldin. Þriðja auka tekjur ríkisins. Fjórða lána peninga hjá öðrum þjóðum. Fimta að lána peninga hjá sjálfum sér, með því að gefa út svo mikið af bréfpeningum með ábyrgð ríkisins. —Eins og oft vill verða, þá gekk seint að auka framleiðsluna, mínka istjórnakostnaðinn, og auka ríkistekjumar, svo stjórniraar fundu sig neyddar til að snúa sér að úrræðunum tveimur sem isíðast eru talin, að lána útlent fé, en þó einkum að gefa út bréfpeninga með ríkisábyrgð. En slík aðferð er afar viðsjár- verð í fjármállum og ef ógætilega ef farið í þeim sökum, óhjákvæmileg eyðilegging. Þjóð- irnar á því svæði, eru alveg í sömu sporum og einstaklingurinn, sem heldur áfram að skrifa undir eigin handar veð, unz hann hefir tekið á sig meiri ábvrgð en hann getur mætt og þeg- ar svo er komið þá er traust hans farið og ó- lit lians, sem efnalega sjálfstæðs manns að engu orðið. Þannig er það með þjóðirnar, stór- ar og smáar og þannig var pólverska þjóðin að fara. Hún var á hraðferð, ekki aðeins til efnalegs ó>sj'áflfistæðis, heldur beint til gjald- þrota. Gjaildmiðill hennar var fallin ofaU í sama og ekki neitt, sem gerði henni nálega ókleyft að verzila við aðrar þjóðir, þegar hún gat ekki komið við vöruskiftum. Sparnaðurinn gekk illa, og skuldimar uxu miklu hraðara en framleiðrian. Enginn virtist sjá veg til þess að stemma stigu fvrir þessum vandræðum. Engin hönd nógu sterk til þess að taka í tau/mana og snúa fjármáHaistefnu eða fjármálaistefnuleysi henn,- ar inn á hollari og heil'brigðari brautir. Einstaka sinnum heyrðust þó raddir, en þær kvörtuðu allar undan ástandinu og hætt- unni, sem vofði vfir þjóðinni út af f jármálunum — allar nema ein. Bankastjóri einn tailaði öðru vísi enn ailir aðrir. Hann benti að vísu á hættpna, en hann sýndi líka fram á, hveraig ætti að fara til þess að komast hjá iskipbroti eða með öðrum orðum, hann benti á ráð til þess að daga f jármállin og hann talaði svo á- kveðið og djarft að menn neyddust til þess að taka eftir því sem hann sagði. En stjórnin á Pólllandi, isem var bænda- istjóra, sem svo mjög er talað um, um þessar mundir. undir forvstu M. Vitos, sem sjálfur er bóndi, sinti ekkert aðvörunum og ráðlegging- um þessa bankastjóra, sem Dr. George Mic- halski heitir, heldur hélt sitt strvk. Þar kom þó um síðir, að forsætis ráðherra pólverja Vitos varð að leggja niður völdin í október 1921, og nýtt ráðuneyti var mvndað undir for\rstu prófessors Pumjkowski, og er þá fjármálaráðherra embættiið boðið Dr. Mic- halski, og birtum vér hér nokkur atriði úr svari doktorsins, sem hann gjörir að skyldu fvrir því að hann taki embættið: “Eg verð að fá skýlaust Joforð þjóðarinnar fvrir auk- inni framleiðslu, í öðrulagi tryggingu fyrir því, að ríkisútgjöld verði færð niður og síðast að tekjur ríkisins aukiist. Lögin isem ákveða uim átta stundia vinnu á dag fyrir verkafóilk skulu standa, en «ú grein þeirra, sem tekur fram að það megi ekki vinna nema átta stund- ir á hverjum degi verður að falla burt. Engan miann á að neyða til þess að vinna lengur en átta istundir á dag ef hann viLl það ekki, en öHum skal vera frjálst að vinna lengur af þeir vilja. Stjórnarkostnaðurinn á PóHandi er alt of mikill. Eáðherrarnir eru of margir og em- bættismanna og þjóna fjöldi sá, sem hún hefir skipað í kringum sig, er aðail ástæðan fvrir tekjuhallanum sem á er. Þetta verður að lag- ast tafar llauist. Önnur óregla sem átt hefir sér stað er það, að ráðherrarair á fundi hafa kveðið á um útgjöld hinna ým'su stjórnar- deilda. Fjármálaráðherrann verður að fá rétt frá löggjafar þinginu til þess að ákveða um öll útgjöld stjómardeildanna önnur en þau, sem/ með lögum eru ákveðin. Atkvæðagreiðsla í þinginu um fjárlögin hefir oft komiið illu tiíl leiðar. Þingið verður að takmarka tilhneigingu sína til evðlslusemi, með bví að samþykkia lög, sem taka fyrir það að þingið geti samþykt útgjöld mót vilja stjórn- arinnar isjálfrar. Þingið verður að gefa stjórainni heimiild til bess að selja á leigu öll iðnaðar fyrirtæki þjóðarinnar, sem ekki borga sig, eða gefa sæmilegan arð af fé því, ,sem í þau hefir verið lagt. Verðmæti gjaldmiðils þjóðanna er hið ytra merki um efnalegt sjálfstæði þeirra. í landi því sem iðnaður, hagsýni og reglu- bundið iðnaðar fyrirkomulag á sér stað, er gjaldmiðiHinn ábyggilegur. Gjaldmiðils ispursmálið er ekki neitt sér- stakt fjármála- fræðilegt ispursm'ál, heldur er það í eðli sínu hagfræði og stjómmálalegt spursmál. Við verðum að endurbæta -fyrirkomulag vort í hagfræði og stjóraarfyrirkomulagi; og af þeiim ástæðum hefi eg ásett mér að fá bráð- lega lagt fyrir þingið frumvörp til laga um aðferðir til að bæta f jármála fyrirkomulagið. Þegar þau frumvörp eru orðin að lögum, þá á pólska þjóðin eftir að ganga í gegnum nýja eldraun; sú eldraun er að hefja markið til síns fyrra verðmætis. Undirbúningurinn undir nýjan gjaldmiðil verður að byrja tafar- laust.” Þetssar kröfur Dr. Michateki komu eins og þruma úr skýlausu lofti yfir stjóraárvöld og stjórnarþjóna Póllandis og er þarflaust að segja að ef þeir hefðu fengið að ráða, þá hefði þeim öllum verið hafnað. En stóriðnaðar- menn landsins tóku þeim með tveimur hönd- um og þóttust sjá í þessum kröfum veg til þess að komast út úr vandræðum og að gjöra þjóð- ina pólsku ekki að eins sjálfistæða efnalega, heldur imeð sjálfstæðustu þjóðum í Evrópu, og svo fór að mótstaðan gegn Dr. Michalski varð að lúta fyrir hinni heilbrigðari og þrótt- meiri kröfu þjóðarinnar og Dr. Michalski voru veitt öll þau réttindi sem hann fór fraan á,1 og hann tók við fjármalaráðherra embættinu í Póllandi í seftember 192L Hann hefir ekki verið ár í því embætti fenn þá, en breytingin sem á er komin er næstum yfimáttúrieg. Hann hefir sett í gegn skattlög, 'sem eru þyngri en nokkrum manni datt í hug að þjóðin myndi þola og það sem meira er, inn- heiimt S'kattinn án þeS's að baka isér óvild þjóð- arinnar. Á stuttum tíma voru Pólverjar búnir að borga hundrað miljón mörk í f járhirsluna. Hann hefir látið gjöra ábyggilega virð- ingu á öllum eignum þjóðarinnar svo hægt sé fyrir alla að draga glögt mark á milli þess sem þjóðin á og þess sem hún skiddar. Hann hefir keypt inn mesta kynstur af bréfpeningum þeim sem.þjóðin gaf út í ráð- leysi sínu, og er nú verðmæti marksins helm- ingi hærra, heldur en það var þegar hann tók við. Hann befir Mífðarlauist sfcorið niður öll óþörf stjórnarembætti. Breytingin isem á er komin í Póllandi á stuttum tíma er eins og vér sögðum, nærri yf- imáttúrleg, og fjármálamenn ýmsra þjóða horfa á þennan mann bankastjórann frá Land- búnaðarbankanum í Galiziu og segja: Pólland hefur fundið mann sem er þesis megnugur að Jiefja það upp í hefðarsæti það, isem því ber á meðal þjóðanna.” og Doktprinn sjálfur segir: “Með óskiftu fylgi þings og þjóðar skal eg gjöra það; án þesis, segi eg af mér”. Páskaundrið. “Eitt af hinum mestu hátíSarljóðum, scm til er á vorri tungu, endar meS þessum orSum: “SkrifaSu á himin, lög og láð: IJfiS er sigur og guSleg yiáS." . Og rétt á undan stendur þetta í sama kvœSinu: “Leiftri þau orS þar logandi rauð: Án lifandi vonar er þjóð hver dauð.’’ Sannleikur hvorratveggja orðanna stendur skrifaður Ineð guðlegri hendi í sögunni helgu um páska-undrið. —-------“Án lifandi vonar er þjóð hver dauð’’—seg- ir vonarskáldið, sóIarskáldiS íslenzka. Án lifandi vonar er hver cinasta mannssál stödd í ópnum dauð- anum.-------Eg get ekki h ugsað mér neitt grátlegra ástand hér í lífi.---- — Hvað þýðir nú evangelíum páskahátíðarinnar fyrir syrgjandi elskuna? — Það þýðir óendanlega miklu meira en fullvissu um líf eftir dauðann. Það þýðir það að hann, sem uppreis, á þá elsku, sem er sterkari en dauðinn.--- Hann upp- reis til þess að fullvissa ástvini sína um það, að elsk- an hans var dg verður œfinlega sigrihrósandi elska. Hann uppreis einnig til þcss að sannfcera þá, er hötuðu hann og ofsóttu, um elskuna hans. Hann leið fyrir þá alla. Hdnn dó af kcerleika fyrir þá alla. Hann lagði fram friöþœgingar-fórn með dauða sínum á krossinum fyrir mannkynið alt. Sú fórn er metin fullgild af réttlœti GuSs. Hann hrópaði í andlátinu á krossinum : Það er fullkomnað!” Og upprisu- undrið á páskadagsmorguninn er hátíðlegt já og amen því orði til staðfestingar. —----Og upprisinn er hann hér hjá ýður öllum í sínu frelsisorði og sínum heilögu sakramentum, og býður yður hið eilífa lífið að gjöf. Og þéir allir, sem þá gjöf þiggja, þurfa ekki að óttast dauðann. Þeir þurfa ekki að hníga máttvana undir byrði synda sinna. Þeir þurfa aJdrei að koma til dóms. Þeir þurfa ekki að syrgja án von- ar og huggunar. Og þeim er öllum óhœtt að elska. Og þeir fá þá sterkustu hvöt, sem gefist getur, til að elska vini sína, en líka óvini, ef nokkrir eru. — Þegar upprisu- evangelíið er orðið trúarleg eign mannanna, þá er óhcett oð setja þessa áskrift yfir þeim: , * “Lífið er sigur og guðleg náð.” J. Bj.—Guðspj.niál “Hann wpp er risinn,” hljómar gegnum hebninn og heyrist mí um löndin fjær og nær. “Hann upp er risinn,” ómar vítt um geiminn og ótalþúsund hjörtum gleði fær. Hinn dimma gröf ei honurn fékk að halda, því lialda skal og mér ei gröfin kalda, mér yfir dauða dýr er sigur vís. Pó er á Drottins degi lúður hljómar og dýrðarsól hinn efsta morgun Ijómar með dýrðar-líkam ungur upp eg rís” V. Br.—Bibl.ljóð. ELDUR EÐA ÞJÓFAR Geta stolið fjármunum yðar, ef þér geymið þá heima. ÖRYÍGGISKISTA mun gæta þeirra vandlega fyrir slíku. Skilmálar eru skýrðir hvenær sem er af THE ROYAL BANK OF CANADA Bors:aður höfuðstóll og viðlagasj..... $40,000.000 Allar eignir .................... $483,000,000 j I landsýn. Stafa í heiði strendur Iands, Strendur landsins kæra. Öldur ljúfa andvarans Mig óðum nær þeim færa. Dýrðleg sýn í drottins geim, Drafnarörmum bundin! Nú er eg kominn nærri heim, Nú eru brúuð sundin. — Þegar sé eg só'lroð á Snæfi-þöktum tindum, Bresta klaka-böndin frá Bundnum táralindum. Hregg það eru, ei hörð og sár, Heldur glieði-skúrir: Eins og barnsins angurstár, 'Er upp við móður kúrilr, Eftir langa útivist Frá elsku og móður-hótum, En er svo aftur klappað og kyst Er krýpur það henni að fótum'. Og þetta djásn er móðir mín. Mikli vörður laga! Vegsamleg eru verkin þín, Og verða það alla daga! Eins og blys við úthafs sker, Er áttir dimmar lýsir, Hinn bjarti tindur bendir mér Hver beztur er leiðarvísir. Eigi’ er furða’, þá eygló sikín Út við hafsins bauga, pótt blíð sé lund og börnin þín Beri tár í auga. pví varla fegra vekur lund, pótt viða um lönd sé farið, En kyrlát dýrð, er kvölds um stund Hún klippir af nóttu skarið. Og út við sjónar yztu ’leið, í öldum gulli reifðum, Sig hún laugar, helg ©g heið Und himni stjörnudreifðum. Ó, móðir, þú átt margt eitt skart Og mikið af lífsins gæðum. Sveipi þig ætíð sólskin bjart Sonarinis góða á hæðuml. Úr kjöltu þér væri kærst að sjá Kvöldsins hinzta roða. En ræður sá, sem ráðin á, Hvar rennur lífs míns hnoða. A. C. Johnson. --------o--------- Frá Gimli. “Þó að hverfandi — hvel sendi hraðsnúið él, niður á hauður og bylgjandi sjá; þó að hvíni í voð, þó að hnykti í gnoð, þá ei hefjum vér seglin af rá.” B. Gr. Mikið þreilcmenni getur hann verið danski kóngurinn, að eg ekki tali um drotninguna! Sú er eikki alveg ónýt að fylgja bónda sínum á öllu þessu ferðalagi. — En sú fjarstæða að segja að kon- ungar nú á dögum séu orðnir svo dáðlausir aumingjar og pappíris- búkar að þeir loki sig innan f jögra veggja dag eftir dag, og árs- tíð eftir árstíð af hræðslu fyrir þegnum sínum og ýmsum utan að komandi hættum. Sjáið þið danska kónginn, sem fer alla leið heim til Islands, rétt eins og það væri ekki lengra en að ganga út í skemmlu, — þar heim- sækir hann hraun og heiðar, kletta og klungur, fjöll og fossa, ár og uppsprettur, læki og lón, vötn og voga. — pví næst leggur hann leið yfir Tög og láð, þar til hann kemur til borgarmnar Winnipeg; spázérar þar frami fyrir öllu fólki. Og ekki nóg með það, heldur bregður hann sér út í eyðiskóana til að sýna, að hann sé ihvergi hrædidur við þá. par stendur borgi'n Gimli við hið mikla og volduga vatn. — par stígur hans hátign niður úr eim- lestinni með hinni hugprúðu drotningu sinni og öllu sínu skrautlegu fylgdarliði, og sýnir sig þar öllum lýð. Að Betel, og þar inn í sfcofu, varð hann endilega að koma. Eimhverjir urðu varir við að drotnimgin hvíslaði ein- hverju að honum, og sagði um leið: “elekan m'ín”, og það dugði. Heim til Betel, bauð hann óðara að halda. Og hér var honum vel tekið. — öllum karlmönnum, sem eg vi'ssi um þar, sem þau hjónin sýndu sig, þótti drotningin falleg en enginn hafði orð á því um kónginn; en aftur á móti hvisluðu stúlkur 'því hvor að annari að hann væri stór. Þesisi fyrri koma konungs-hjón- anna hingað til Gimli, varð til þess að drotnimgin vájrð óvana- lega ástúðleg og urrihyggjutsömi við kónginn, og vildi gera honum alt til geðs. Einhver sá hana taka með báðum höndum utan um höf- uðið á manni sínuim og líta bros- andi með hýrlegum svip inn í aug- un á honum, og heyrði h'ana segja: “Viltu, góði, koma aftur til Gimli? Mig langar til að sjá aftur einn 'gamla karlinn 'á Betel”. — “Já, sjálfsagt, elskan mín. Láttu þá forstöðumennina okkar vita, þessa tvo, sem nú öllu ráða að þeir eiga að flytja okkur með öllu fylgdar- liðinu til Gimli. Hver getur neit- að þér um nokkurn skapaðan hlut, góða mín?” Hi(ngað komu þeir Mr. J. Sig- urðsson og Mr. J. Thorsteinsson í annað sinn með “Konungskom- una”, til að sýna hana í hreyfi- myndum þann 4. apríl. Var húsið sem leikið var í, vel ásikipað, og margt af fólki, sem áður hafði ver- ið á sýningunni hið fyrsta skiftið. Við konunginn líkaði mér sérlega- vel, að hann skyldi vera svo hugs- unarsamiur við okkur, Gimli-búa, að koma hingað aftur. En enn betur er m|ér við drotninguna, — og mun eg ekki sá eini, því mörg- um þykir hún mikið fallegri en hann; svo er hún lí'ka svo rösk- leg og dugleg að fylgja manni sínum á allri þessari svaðilför. pað var nú skömmu áður en eg skrifa þetta, að tíðrætt var um illa meðferð á iskepnum. Og hefi eg oft fundið sárt til þess, hvað þær eiga alt of fáa vini. í sam- bandi við það samtal, sagði gam- all miaður hér á Betel, að Árni Árnasori í Churehlbridge, (sem eg hefi aldrei séð né þekt) — hefði oft tekið og sett inn hesta, sem skildir hefðu verið eftir úti í vet- rarhörkum og vondum veðrum, — tekið þá, hestanna fasta, þann- ig, að eigendurnir hefðu þurft að kaupa þá út aftur, svo þeir gætu betur munað eftir að bl'essaðir málleysin'gjarnir hafa sama rétt til vellíðunar einis og mennirnir, og engu minni, þar sem þeir aldrei brjóta guðs boð. — Heyrandi þetta sagði eg: “pennan mann sikyldi eg hafa faðmað að mér og kyst”. pá sagði við mig önnur forstöðu- konan, Mrs. Hinriksson, sem var þátttakandi í samtalinu 'eða áheyr- andi: “Sá hefði þá fengið borgun- ina!” — Svona geta stundum á- gætis manneskjur snuprað mann svo napurt, þegar maður á sízt von á því. En “kúnstin” er að gjöra það svo laglega að isá, sem fyrir því verður, geti ekki annað en skellihlegið og dáðst að því. — Og það gjörði eg. Nú dettur mér í hug hvort að drotningin myndi hafa sagt þetta við mig. — Hvort hún er eins fyndin, með hnyttin og heppileg svör, eins og hún er röskleg og dugleg að ferðr ast, og að koma hingað aftur að Gimli. En hvað sem nú því líð- ur, þá blessuð veri mlinning allra, sem eru vinir dýranna, hvort sem þeir eru hér á jörðinni, eða farnir héðan aftur. pað þykir máski nokkuð skrítið, eða jafnyel ásakanleg heimlska, að eg útúr þessari viðkynningu við drotninguna og kónginn iskuli vera farinn alt í einu að tala um vini mína, dýrin. En svona er það. — pað er mieð hugsana-keðjuna eins og tavika-keðjuna; þar gríp- ur hlekkur í hlekk, og af því m(ynd- ast keðjan. En svo slitnar oft keðj- an, því engin keðja er sterkari en hennar veikasti hlekkur. Svo tengist hún aftur með nýjum hlekk, og svona gengur það koll af kolli. — Hafi nú drotningin, —eða það, að detta hún í hug, — orðið til þess að leiða huga minn og þeirra, sem þetta kunna að lesa tii umhyggju og velvildar til dýranna, kalla eg ekki drotn- inguna og kónginn hafa farið til

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.