Lögberg - 20.04.1922, Side 5
LÖGBERG, FIMTTJDAGINN 20. APRIL 1922.
Bk. K
Dodds nýrnapillur eru bezta
nýrnameðalið. Lækna og gigt,
bakverk, hjartabilun, iþvagteppu
og önnur veikindi, sem starfa frá
nýrunum- — Dodd’s Kidney Pills
kosta 50c. askjan eða sex öskjur
fyrir $2.50, og fást hjá öllum lyf-
sölum eða frá The Dodd’s Medi-
cine Co.. Ltd., Toronto, Ont.
Norðurlanda brunnu í (blóði þeirra.
Fljótir til að reiðast, fljótir til að
hefna sín, fjótir til að drepa, en
>]íka ihugprúðir og 'vinfastir.
Skarphéðinn lætur hina bitru egg
Rinönigýgjar svala sér í blóði.
Gunnar kastar oddhvössu spjóti í
fylkingar óvina sinna. í sög-
um fornald'a sjáum við altaf hve
mikil áherz'la er lögð á verknað.
Jafnvel Valhöll hetjanna var
bardagavöilur, þar <sem þeir gátu
barist frá morgni til kvölds. Ei er
hér með sagt að þessir menn hafi
ekki verið vitrir, þvert á móti, en
•þeir vi'ldu ekki eiga það á hættu
að hugisa sig um of lengi. Hetjur
eru þeasir menn og hetja er líka
Hamlet, sem glímir einn við ótta
sinn. Fljótfærni fornmanna
varð þeim að bana en Hamlet dó
af því að íhuga of lengi.
Hver er ráðning gátunnar? Er
hvorutveggja hættulegt, að hugsa
of lítið, og að hugsa of mikið?
þegar við liesum sögur af Gunn-
ari prúðmenninu igóða fyllumst
við aðdáun og ofurhuga. Gotter
að vera í ætt við slíkan mlann.
Unglingurinn fýllist hetjumóði,
því unglingurinn þekkir bezt af-
reksverk Ihetjunnar. “Fara á
braut með víkingum”, mællti Egill
átta vetra gamall. Með jafn-
mikilli. aðdáun stöndum við
fyrir hinum draumþrungna hugs-
andi Hamlet. “Ógurleg er and-
ans leið upp á sigurhæðir”, ómar
aftur í eyrum vorum. Ráðgáta
lífsins bregður sér aftur fyrir
sjónir, Hvers á að leita? Eg
vil snúa mér að Lessing og reyna
að segja með honum: “Ef eiiífur
guð héldi í ihægri hendinni heiiög-
um sannleika, en í hinni vinstri
leit sannleikans og biði mér að
kjósa, þá félii eg í auðmýkt fyrir
vinstri hendinni og segði — ‘Gef
ntér ó guð, heilugur sannleikur er
fyTÍr þig einan’.”
pað er leit sannleikans, sem
hreinsar og göfgar — það er
löngunin eftir fulikomnun, sem
við getum eikki og villjum ekki ná,
því fullkomnun er dauði, þegar
henni er náð er ekkert til að vinna
fyrir. Við getum verið glöð yf-
ir því að okkur er lleyft að ganga
torfærurnar og að við höfum
tækifæri tiil að ieyisa úr einni iífs-
ins ráðgátu — því “gegnum nótt
dauðams sér maður glampa á
stjörnu og ástin hlustandi heyrir
vængjaþyt.”
Islenzk tunga,
söngur þinn.
eftir
Jóhannes Jósefsson.
Ljóð þetta sendi höfundur-
inn, hinn frægi glímukappi,
séra Jónasi A. Sigurðssyni.
Sýnir það, að ekki hefir útlend
nienning heillað svo hug hins
víðförla og vaska manns, að
andi hans gangi fram hjá ís-
landi né því sem íslenzkt er.
Megi óður og tunga íslands
neynast öðrum jafnvel sem
Jóhannesi Jósefssyni.
Pegar vantar viljaþrekið,
vit og djörfung, framtaksþrótt,
næstum alt í nauðir rekið,
nöpur kvelur efans nótt.
pá er eitt, sem öraium vefur,
andann mest til dáða knýr,
sannan dug til sigurs krefur:
Söguþjóðar óður dýr.
pegar mótgangs stormar stríða,
sturlast geð við bitran harm,
horfin gleði, hugró, blíða,
hrygðartárin væta hvarm.
pá er eina yndi’ í hjarta,—
eitt, sem friðar geðið mitt:
Goðumborna, glæsta, bjarta,
góða fóstran, málið þitt.
pegar fátækt að þér amar,
enginn sjóður, gæfustans,
útlendinginn eymdin lamar
útí löndum nútímans:
Samt er eitt, er sýnu betur
silfri, gulli og aurasjóð,
huga mannsins huggað getur:
Heimalandsins fögru ljóð.
pegar vildar vinir fækka,
vonir glatast, trygðin þver,
böndin slitna, býsnir hækka,
brotsjór tímans ógnar þér.—
pá er eitt, sem altaf bætir,
allra vina tengsla fæð,
öllu fremur ásta gætir:
íslands þjóðar lífsins æð.
pegar kraftur tþverra tekur,
þegar ellin fer í hönd,
þegar hrellir þungi frekur
þráir muninn feðraströnd.—
pá er eitt, er sálu seiðir,
sólu fyllir huga minn,
æðra kraft í æðar leiðir:
íslenzk tunga, söngur þinn!
Vesturför frú Stefaníu.
Frú Sfcefanía Guðmundsdóttir
befiir verið að leika heima í
Reykjavík í vefcur og 21. febrúar
lék hún “Kinnarhvolssystur” í
6C' skiftið og “það er tiltölulega
sjaldgæft,” segir fréttaritari
“Morguniblaðsins” er tal Ihafði af
firúnni uim það leyti. “að íslenzk-
ir leikendur fái tækifæri, til að
leika sama hlutverkið svo oft.
Stafar það af fámenni og strjál-
býli. En það sem valdið hefir
því, að frúin hefir leikið hlut-
verkið isvona oft, er fötrin til
Ameríku. Kinnarhvolssystur”
voru það leikrit, sem frú Stefanía
lék oftast, meðan hún dvaldi fyr-
ir vestan. í tilefni af því að
leikurinn kemur í 60 skifti fyrir
sjónir íslenginga austan hafs og
vestan, höfum vér beðið frúna að
segja 'lesendum blaðsins lítilshátt-
ar frá fytrri sýningum leiksins,
einkum í Ameríku.”
í tilefni af þeirri beiðni, hefir
fréttaritarinn þetta eftir frúnni
í isamtalinu:
“pað yrði sama sem að segja
langa og skemtilega ferðasögu,
segir frúin. Af ýimsum ástæð-
um eru sýningarnar fyrir vestan
mér hugstæðastar af öllum sýn-
inguim' Kinnalrhvolssystra. par
kyntist eg nýjum áhorfendum í
ókunnu landi, og kom| á leiksvið
sem eg hafði aldrei komið á áður.
— Hve oft llékuð þér Ulrikku
í Amieríku?
— Látuim osiS' sjá. — Frúin tel-
ur staðina, fyrst Winnipeg með
magar sýningar og svo hleila
runu af bæjum víðsvegar um Can-
ada og í Bandaríkjunum, Wyny-
ard, Mountain....... Minneota og
marga fleiri. — pað verður alls
22 sinnum.
“Og Ihvernig voru viðtökurn-
ar?”
“Eg á ekki orð til að lýsa þeim.
Hvernig leiknum var tekið, getið
þér séð af þessum 'blöðum). pér
munuð hafa séð íslenzku Vestur-
heimsblöðin áður, en þessi hérna
hafið þér llíklega ekki séð.”
Frúin kemur með heilan bunka
af enskum' blöðum “Free Press”,
“The Wynyard Advance”, “Minne-
>ta Mascot” og ýms fleiri. Eru
ummælin mjög á einn veg, og
skulum vér gefa lesendunum of-
urlítið sýnishorn.
I>etta er tekið úr blaðinu “The
Wynyard Advance”:
“Frú Stefanía er 'blátt áfram
aðdáanleg. I>að er ekki að á*
istæðulausu að hún hefir Motið
nafnið “drotning leiksviðsins” á
íslandi, þv*í beztu leikkonur ann-
ara þjóða mlega gæta sín í sam-
anburði við hana. Eg hefi séð
frægar leikkonur, bæði á sviðinu
S I
Brick Tile og
Lumber Go. Ltd.
P
Brick og Hollow Tíle framleiðendur
Timbur og annað Byggingarefni.
Afgreiðum pantanir utan af landi fljótt og vel.
BRICK MANTELS
200 Tribune Bldg. WINNIPEG Talsími A5893
—•
og kvikmyndatjaldinu, en engin
!ber af henni, nema hvað shertir
nafnfrægðina. Ef forsjónin hefði
gefið henni 'betra starfisvið, mundi
nafn frú Stefaníu vera á hvers
manns-vörum 'í hinum mentaða
•heimi.”
“En blöðin segja ekkert frá því,
sem mér er ógleymanlegast við
vesturförina, og það er hin dæma-
iauisa alúð, sem hvervetna andaði
á móti mér, þar sem eg kom fyrir
vestan. Eg gleymi aldrei alúð
og elju íislenzka leikfélagsins í
Winnipeg. Aldrei var hugsað
nema um eitt; að eg hefði sem
mesta ánægju og ábata af ferða-
laginu. Eg gleymi heldur ekki
viðtökum og fraonkomu fólksins
í Winnipeg og úti[ í íslendinga-
'bygðunum. Alistaðar tóku opnir
armar á móti okkur. 1 smá-
bæjunum, sem' við komum í, voru
víða ófullkomin gistihús, en það
var að kal'la undantekningarlaust,
að landar í þessum bæjum komu
og sóttu okkur á giistiihúsin, til
þess að láta okkur gista heima
hjá sér, ef þeir þá ekki voru bún-
ar að senda okkur boð áður sím-
'leiðis, og stóðu á járnbrautarstöð-
inni til að taka á móti okkur þeg-
ar við komum. — petta er máske
útúrdúr frá efnimu. En eg get
ekki minist á leikinn fyrir vestan,
án þess að minnast á þetta um
leið.”
“Og um efni Kinnarhvolssystra.
— Kunni fólkið við það?”
“Já, eg held að mér sé óhætt
að segja, að fólki hafi geðjast
bezt að þessum 1-eik, af þeim, sem
við 'sýndum í vesturförinni.”
“Hverjir voiru helztu meðleik-
endur yðar í leiknum?”
“Ólafur ThorgeirS'Son, frú G.
Athelstan, O. G. Eggertsson, H.
Metúsalemis', Fr. Swanson, Oskar
Sigurðsson, Bjarni Björnsson og
'börnin mín þrjú, Emelía, Anna og
Óskar.”
Talinu víkur að lleiknum hér
heima.
“Eg bjóst ekki við að mega
leika í vetur,” segir frúin. “Lækn-
arnir bönnuðu mér að leika í
haust, en heilsan hefir (batnað og
eg var “leyst úr banninu”. pér
getið nærri að eg var glöð. Við
byrjuðum með Kinnarhvolsisystr-
um', því þar voru margir 'leikendur
til taks frá fyrri tíð, svo að það
var tiltöluega fljótilegt að búa
leikinn undir sýningu.”
—Morgunblaðið frá 21. febr.
--------o--------
Egyptaland
og sjálfstæði þess.
Hinn 15. maí síðastliðinn var
Egyptaland lýst frjálst og sjálf-
stætt konungsríki, þó d vissum
skilningi undir brezkri vernd.
pann sama dag tók Ahmed Fuad
Paisha sér konungstitiil, til þess
“að sjá heiðri ríkisins borgið út á
við,” ein® og ihann komst að orði.
Bretland hið mikla hefir eftir
sem áður yfir umsjón með síma-
línum öllum og samgöngutækjum,
svo sem Suezskurðinum mikla, en
samkvæmt blaðinu Providenoe
Joumal veikir slíkt eftirlit á
engan hátt fullveldi hins nýja
konungsríkis. Sama blað 'lætur
þes® getið, að það komi að vísu
nokkuð undarlega fyrir sjónir,
að konungsríki isé stofnað á þess-
um lýðveldistímum, en lætur þess
jafnframt getið, að land Faraos
konungs, sé enn hvergi nærri und-
ir það búið, að taka við lýðveldis
fyrirkomulagi og fara með það á
viðeigandi hátt.”
Blaðið New York Herald segir,
að úrlausn egypsku sjálfstæðis
baráttunnar, sé meira að þakka
General Allenby en nokkrum öðr-
um einum manni og sé í rauninni
bein, persónuleg sigurvinning fyr-
ir hann. Enda voru það tillög-
ur hans, eins og hann lagði þær
fram fyrir ráðuneytið tbrezka, er
riðubaggamuniinn. Fyrir hans til-
stilli er það, eftir því sem New
York Evening Post farast orð, að
Egyptaland skipi nú sess meðal
hinna frjálsu þjóða heimsins,
eftir aldakúgunina tyrknesku.
Hin nýja istjóm Egypta, ber
sjálf fulla ábyrgð á meðferð utan-
ríkismála sinna, og sendir væntan
lega innan skamms sína eigin
sendiherra og ræðismenn út um
allan hinn mentaða heim.
Hinn nýji konungur er hinn
áttundi í röðinni af kynstofni
Muhameðs Ali, hins kæna og fjöl-
hy'gna manns frá Al'baniu, er
lagði undir isig landið með vopn-
um árið 1805. Fuad konungur
hinn fyrsti, er sonur Ismail I., er
sökum áhrifa frá Bretum og
Frökkum neyddist til að láta af
vöildum 1879. Abbas Hilmi,
sonarsonur Ismail, var rekinn
frá ríkjum skömmu eftir að heims-
ófriðurinn frá 1914 hófst. Huss-
ein Kamil, sá er síðast réði irík-
um á undan núverandi konungi
áður en Bretar tókust á hendur
aðal eftirlit með landinu, lézt
árið 1917. Hinn nýji konungur
hefir vitanlega ékki mlikið sýnt
isiig enn, þó hefir hann samt safn-
að að sér eins miklu af dugandi
stjórnmálamönnum og kostur var
á, og spáir það góðu um fram-
tíðarstarfsemi hans.
Blaðið Brooklyn Eagle, kveðst
þeirrar skoðunar, að þótt umráð
Breta yfir landinu frá 1914, sé á
enda að nafninu til, þá sé svo
llangti frá, að hér sé um að
ræða frjálst og óháð ríki, og
Boston Tiranscript tiekur í sama
streng og isegir Egyptaland að
eims hafa hlotið sjálfstáeði á papp-
írnum. pegar til efnisins komi,
sé sjálfstæðið takmarkað tilfinn-
anlega á m|argvíslegan hátt.
Ríkistaka Fuad’s konungs og
fullveldis yfirlýsing, leiðrétiti
þann miiisskilning, sem allmjög
virtist víða bera á, semsé, að Bret-
land, skömmu eftir að ófriðurinn
braust út, hefði lagt framtíðarhald
á hina egypsku þjóð. Slíkt hefði
verið öldungis óþarft, með því að
Bretar nutu þar allra þeirra
hlunninda, er iþeir æsktu. Enda
hafði stjórn Breta lýst yfir því
hvað ofan í annað, að umráð þeirra
með landinu, væri að eins til
bráðabirgða, eða >ar til að séð
væri fyrir endann á ófriðnum.
pað hefði líka verið til lítils þótt
brezk stjórnarvöld hefðu reynt að
spyrna á móti firelsisöldun-
um á Egyptalandi, sem eins og
svo víða annarstiaðar, höfðu hækk-
að af völdum stríðsins. Fólkið
var orðið fastákveðið í því að
skapa sér sjálfstijórn í einhverju
formi, hvað svo sem það kostaði.
Blaðið Springfield Republican
kemst, að þeirri niðurstöðu, að
þótt hið nýja sjálfstjórnar-fyrir-
komulag kunni ef til villl að friða
hina egypsku þjóð til muna í bráð-
ina, þá sé sannleikurinin isá, að
eftir alt saman ráði Bretar þar
lofum og lögum. peir geti í
raun og veru haft öll þau áhrif
á meðferð utanríkismálanna, er
þeir telji æskilegt og gert hvaða
ráðstafanir, sem þeim þóknist.
Suezskurðinum til varnar. Sjórn-
ar afstaða Egyptalands, líkist
miklu fremur því, sem gildir um
Cuba, heldur en Porto Rico, að
því er sama blað hyggur.
Blaðið Detroit News, Syracuse
Post — Standard og New York
Evening Post, eru öll þeirrar skoð-
unar, að óeirðirnar á Indlandi,
hafi mjög flýtt fyrir >ví, að Egypt-
ar fengu fullveldis viðurkenningu.
Einkum heldur hið síðastnefnda
blað því fram, að stjórnin brezka
hafi breytt viturlega og skilið
rétt á hinum rétta tíma, sjálfstæð-
iskröfur hinnar egypsku þjóðar
og greitt þeim veg.
BlaCinu Phil'adelphia Public
Ledger, farast þannig orð um af-
skifti Breta, af sjálfstæðismáli
hinnar egypsku þjóðar: “Stjórn
Englands hefir þegar stofnað til
svo margra og mikilvægra fram-
fara fyrirtækja á Egyptalandi, að
hin nýja konungstsjórn þar, lætur
sér sannarlega ekki til skammar
verða, ef hún heldur þeim áfram.
p»að eru Bretar, sem áttu upptök-
in að því að veita Níl yfir hin
skrælnuðu landflæmi og gera þau
gróðurhæf. pað eru lí'ka Bret-
ar, sem létu koma upp flestum
hinum meiri háttar samgöngu-
tækjum og sem komu á fót dóm-
stólum, skólum og sjúkrahúsum.
í blaðið New York Times, rit-
ar Mr. Frederick Cunliffe-Owen
nýlega eftirfylgjandi hugleiðing-
að hin egypska >jóð lýsti yfir
sjálfstæði isínu:
“pegar eftir árásina á Alex-
andríuborg árið 1882, mæltu
margir 'leiðandi stjórnmálamenn
og auðmenn hinna ýmsu þjóða,
mjög fast fram með þvií, að Bret-
ar tækjust á hendur varanlegt
eftirlit með Egypta/landi. Stjórn
Breta lagði málið fyrir þingið, en
svo fóru leikar, að uppástungan
var feld.
pegar ófriðurinin hófst 1914 og
Tyrkir höfðu afráðið að veita
pýzklands fceisara að málum, þá
lögðu Bretar bráðabirgðarha'Id á
landið og settu þar til valda sem
soldán, Hussein prinz, hinn lang-
færasta af ödlum Tewfic bræðrum.
Við fráfall hansi tófc yngsti bróð-
irinn Fuad við völduml.
Samkvæmt áfcvæðum þeim, er
General Allenby lagði til grund-
vallar fyrir sjálfstjónar kröfum
Egypta og þing Breta félzt á, er
hinni egypzku þjóð heimilað, að
stjórna öllum sinum innanlands-
málum á þann hátt, er hún hyggur
sér bezt henta og vera í beztu
samræmi við sinn eigiin þroska.
Bretar heita landinu að tryggja
það gegn ágangi erlendra þjóða,
en áskilja sér í þess stað ýms for-
réttiindi, sem öðrum þjóðum er
synjað um. Stjórn Breta tekst
á hendur að ábyrgjasti eignir út-
lendinga í Egyptalandi og heitir
því enn fremur, að tryggja rétt
hinna ýmsu flofcka, sem' í minni
hluta eru, innan vébanda þjóðar-
innar. Enn fremur áskildi stjórn-
in 'brezka sér fullan og ótakmark-
aðan irétt, tiil þess að neyfca hvaða
meðala sem vera vill til verndun-
Lifebuoy er notuð í hverju landi
í víðri veröld.
Hinir dæmafáu yfirburðir, eru
viðurkendir um allan heim.
Ánægjan, sem af Rotkun Lifebuoy
leiðir, er kunnug um veröld alla.
ar samgöngutækjum landsins, svo
og talsímum og ritsímum. En
umfram alt annað krefjast Bret-
ar ótafcmarfcaðra umráða yfir Su-
dan, að því þó undantefcnu, er á-
hrærir vatn til áveitu úr Níl, sem
á öllum tímum skoðaist bráðnauð-
synlegt fyrir akuryrfcju og annan
jarð^r gróða landsins.
pað er ekki ólíklegt, að ein-
hvterjir kynnu að spyrja, hvernig
kynni að fara, eftir að General |
Allenby hefir dregið meginher |
sinn burt úr landinu, í þvi fállli
að hin nýja stjórn Egypta reynd-
ist þess ómegnug, að fullnægja
fyrirmælum fullveldissamning-
anna. Svarið er að eins
eitt. Bretland hefir óhindruð
urnráð yfir Sudan svæðinu og þar
af leiðandi einnig meðfram efri
Níilárhéruðunum, frá suður-landa-
mærum Egyptalands tiil Vatnanna
miklu í Mið-Afríku.”
Af þesisu sézt, að Bretar hafa
allar samgönguleiðirnar á valdi
s'ínu, nær sem til þarf að taka.
--------o--------
Eimreiðin. 1. hefti 28 árg.
er nýkomið út. 1 það skrifa ýmsir
nafnkunnir menn, svo sem Guðm.
Hannesson langa ritgerð um
“hvernig getum við bygt landið
upp á 25 árum!” Guðmundur Finn
bogason prófessor skrifar um
“veðurspá dýranna”, Jak. Jóh.
Smári um hugljómun, Alexander
Jóhannesson um “málaralist nú-
tímans” séra Sig. Gunnarsson þýð-
ir þar grein eftir J. Brierley, er
nefnist “Andlegleifci”. Saga er
ennfremur í heftinu eftir H. G.
Wells “Tímavélin” og loks ritsjá.
— Lögrjetta.
*i**t*****i**i**i**i^t**************Í**i**i**i**i**i**i**i**i**i**Í*****************************i***********i**i**i**i**i**i**i**i**Í**i**i*******************
?
f
f
❖
f
f
f
f
f
f
*t*
OVERLAND
♦>
V0RURNAR VERÐAÍ
AÐ SELJAST STRAX
Vér erum heimilislausir — leigu-umboðsmaðurinn hefir sagt oss að flytja. Vér erum á för-
um, en þurfum fyrst að selja $75,000.00 virði af húsgögnum. — Sérhver húsmunur í búðinni er
stórkostlega lækkaður í verði. Athugið upprunalega verðið og berið saman við “No Home Sale
Price”. í viðbót j
VEITUM VÉR YÐUR LÁN
ókleift að gefa hér lista yfir öll kjörkaupin; bezt að athuga næstu blöð grandgæfilega. Látið
ekki tækifærið ganga úr greipum yðar. Kaupið meðan úr nógu er að velja. Lesið vandlega.
$19 Tapestry Gólfteppi fyrir $13.45
pessi eru algerlega ósamskeytt, efnið úr dýrindis
líni, með alla vega fögrum litum. Stærðin er
6 fet 9 þuml. og 9 fet.
Cocoa Dyramottur fyrir $1.25
Að eins 25, mjög sterkar og vel ofnar, grænar,
bláar og eiga mjög vel við fyrir útidyr. Stærðin
er 14 x 24.
Japanskar Dyramottur $1.75 hver
Sterkar og fallegar japanskar grasmottur, grænar
og bláar, afbragð fyrir útidyr. Stærð 3 ft. og 6 ft.
$195 Chesterfield fyrir $157.50
Stór Pillow Arm Chesterfield, 80 þuml. að ummáli,
klæddur mjög hentugu tapestry. Lausir púðar,
dýnur og fjaðrasæti.
$30 og $32 Linoleum Rugs $18.75
Að eins 25 eftir og öll af sömu gerð, græn og brún-
leit. Afar haldgóð. Veljið strax, Stærðir eru
9 x IOV2 eða 9 x 12.’
Takið þœr með yður. Ekki sendar út
$1.00
Um 75 myndir í römmum, svo sem Crayons, lands-
lagsmyndir, skopmyndir o. s. frv. — Jafnvel ramm-
inn kostar méira en myndin selst fyrir. Venjulegt
verð á mynd var um $5.00.
Aðeins 10 á þessu verði $2 hver
Dálítið þvældar matressur, úr fínustu baðmull, vel
stoppaðar og með ágætum verum. Sumar af þeim
kostuðu um $20.00. Að eins tvær stærðir—4 fet
og 4 fet 6 þuml.
$135 Chesterfield fyrir $108.50
pessi Chesterfield er af fullri stærð, fjaðrasæti og
fjaðrabak; sætin eru laus, fóðruð með afbragðs
tapestry. petta er gjafverð.
$257.50 Chesterfield á $214.50
Mjög fallegur Arm Chesterfield. Marshall dýnur,
f jaðrasæti og bak. Klæddur með tapestry af Aust-
urlanda gerð.
Japanned Coil Rúmfjaðradýuur $8.95
Olíu-stilt Japanned Coil Rúm-fjaðradýnur, full
stærð; hafa 100 pílára festa við málmumgjörð.
Veita beztu hvíld, sem hugsast getur.
Þetta eru ekki misgrip $1.50 parið
Að eins 75 pör af fiðurkoddum, með húðþykkum
verum. Á þessu verði áskiljum vér oss rétt til að
synja einstökum kaupendum um meira en 3 pör.
Kaupið Vorhúsgögnin núna
hjá tiverlands ð o Home Sale
MUNIЗVér seljum lægst og veitum lán.
Over-Land House Furnisliing Co., Ltd.
576-580 Main Street
■We sell for less-
5-5
Cor. Alexander Ave.
?
?
?
?
T
?
?
T
?
T
T
T
T
?
?
?
?
T
T
?
?
x
?
?
x
?
❖
f
i
f
x
x
f
x
f
x
f
f
f
x
f
x
x
f
♦!♦
^^^♦♦^♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦^^♦♦♦^^♦♦^^♦♦^♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦♦♦^♦^♦♦^♦♦^♦♦^^^♦♦♦♦^♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦^^♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^^♦♦♦♦^♦^♦^♦-