Lögberg - 27.07.1922, Qupperneq 4
«
LÖGBERG, FIMTTOAGINN 27. JÚLÍ 1922.
IJtigberQ
Gefið út hvem Fimtudag af The Col-
ambia Press, Ltd.^Cor. William Ave. &
Sherbrook Str.. Winnipeg. Man.
Tnlsimor* N-6327 N-6328
Jón J. BfldfeU. Editor
Ltanáokríft til blaðsino:
TtyE COLUNIBIA PRESS, Ltd., Box 3172, Wnnlpeg,
Utanáokrift ritstjórans:
EDiTOR LOCBERC. Box 3172 Wlnnlpog, ^an.
The “LögberK’1 le printed and publiahed by The
Columbia Presa, Limtted, in the Columbia Block,
853 to 857 Sherbrooke Street, Winnipeg, Manttoba
Sex mestu menn sögunnar.
Napoleon.
Þegar 'W’ells er að athuga hvar Napoleon
skuli skipað á meðal stórmenna sögunnar,
hendir hann til þess, er hann segir um hann í
“Outline of History” (frumdráttum sögunn-
ar), hinu mikla og skýra ritverki sínu, en þar
stendur um þetta efni:
“Vissulega stóðu honum fleiri tækifæri
opin, en áður höfðu staðið nokkrum manni.
Hér var staða, sem maður mátti falla í ótta
fram fvrir sjálfum sér, og rannsaka hin leynd-
ustu fylgsni hjarta síns, og staða sem krafðist
hinnar fylstu þjónustu til handa guði og mönn-
um.
Hið gamla fyrirkomulag og vani, var
hrunið eða hreytt; nýtt og óþekt afl ha.rði að
hvers manns dyrum, leitaði að framrás og föstu
formi; sem lofaði alheims lýðveldi og hvísl-
aði alheims friði í eyru hins þreytta og þjakaða
lýðs. Ef þessi maðurTiefði haft þróttmikla
framsýni, og skapandi frumleik, hefði hann
verið meðtækilegur fyrir metnað, sem var ó-
eigingjarn, þá hefði hann getað unnið mann-
'kyninu það gagn, sem 'hefði skipað honum sól-
armegin við sæmdarborð sögunnar.
Það var ekkert sem var til fyrirstöðu,
nema fagrar framtíðarhugsjónir; en það var
nóg til þess að Napoleon gat aldrei komist
lengra, en að hreykja sér upp á hinum mikla
sjónarhól sartnleikans, eins og hani á hesthús-
haug. Eins og Victor Hugo sagði á sinn ó-
viðjafnanlega hátt, að guð varð þreyttur á
honum ...... ! ”
Asoka elsliaði friðinn.
Næstur Aristotle kemur Asöka. “Hann
réði ríkjum frá Afghanistan til Madras”,
segir Mr. ‘Wells. “Og hann er sá eini af
herkonungum heimsins, sem sagan getur um,
sem lét af hernaði eftir sigurvinningar. Eft-
ir það eina stríð, sem hann háði, lét hann það
hoð út ganga, að hann tæki ekki þátt í fleiri
orustum. en helgaði það sem eftir var af lífi
sínu velferðarmálum þegna sinna. Hann
var fvrstur manna til þess að tryggja þegnum
sínum varanlegt vatnsból, með því að hjálpa
þeim til að grafa hrunna, og einnig gjörði
hann mikið til þess að hjálpa þeim til að
planta tré. Hann skipaði ríkisþjóna, til þess
að koma upp og standa fyrir líknarstofnunum.
Hann valdi reiti, lét rækta þá og sá í þá með
allskonar lyf-jurtum, og gaf út skipun um
•mentun kvenna.
Hann var öflugur talsmaður Buddha
trúar og gjörði sitt ítrasta til þess að út-
breiða hana meðal þegna sinna, sem hin á-
reiðanlegasta mælikvarði lífs þeirra.
Þannig vann hann að velferðarmálum
fóliks síns í tuttugu og átta ár af hinni mestu
einlægni og með góðum árangi.
A meðal allra hinna mörgu þúsunda af
konungum, keisurum, stórum og smáum, er
Asoka sá eini sem lýsir skært á himni sögunnar.
Það eru fleiri menn, sem nú lifa, sem geyma
nafn hans í kærleiksníkum huga, en heyrt hafa
Karla Magnúsar getið”.
Eftir að Mr. Wells hefir minst á nafn-
kunna stjórnmálamenn, svo sem Riehellieu,
Tollervrand og Pitt, og fundið þá léttvæga, þá
segir hann:
“Mér virðist að það sé einn Englending-
ur, sem eigi skilið það hefðar sæti, sem hér
er um að ræða; það er Bacon, maðurinn sí-leit-
andi. Að vísu skortir hann margt, sem ein-
kennir sannarleg mikilmenni, en hann var afl
á framfarabraut mannanna.
Við vitum lítið um Roger Bacon, eða lífs-
feril hans. En í gegnum hækur hans, sem eru
skrifaðar með fjöri og eldlegu afli og sem
stundum eru svo skorinorðar, að næst gengur
ókurteysi, gengur þráin til meiri þekkingar og
rannsókna. “Leita, leita”, hrópaði hann
arftur og aftur, og sem fyrirboða framkvæmda
þeirra, sem leit og rannsókn mundi hrinda í
framkvæmd, þegar menn hefðu brotið af sér
ok vanþekkingar og harðstjórnar, skrifaði hann
þessi óglevmanlegu og víðfrægu orð, sem svo
oft hefir verið bent á. Munið. eftir, að
Baeon ritaði þetta fyrir sex hundruð árum
síðan, á tímabilinu frá 1210 til 1293.
“Vélar til siglinga em mögulegar, sem
koma í stað ræðara, svo að hin miklu hafskip,
eða minni skip á vötnum og ám, geta verið
knúð áfram ineð miklu meiri hraða, heldur en
þó þau væru eins vel skipuð ræðurum og föng
eru á, og slík skip geta farið ferða sinna undir
stjórn eins manns. Það er og unt, að búa til (
sjálfhreifi vagna, eins og sumir halda að átt I
hafi sér stað með hervagna fornaldarinnar.
Og það er líka á valdi manna, að framleiða
flugvélar, þar sem maður situr í miðri vélinni
og með einhverju fyrirkomulagi snýr hjólum,
sem aftur setur í hreifingu vængi, sem lyfta
vélinni á loftöldunum, og knýja hana áfram eins
og vængir fugla.”
Þannig benti Roger Bacon mönnum í átt-
ina og kom þeim til þess að fara að hugsa nm
það, sem nú er fram komið og orðið að raun-
veruleika.
Mannvinurmn Lincoln
Sjötti maðurinn í röðinni var Bandaríkja-
maður; vegna þess segir Mr. Wells :
“ Að þau eru ímynd þess nýja og mikla, og
lofa svo miklu til betrunar í heiminum”.
Mr. Wells hafnar George Washington, en
velur Abraham Lincoln. Washington, segir
hann, getur ekki kallast Bandaríkjamaður í
þeim skilningi, sem um er að ræða, heldur
enskur herramaður. En um Lincoln segir
hann:
“1 honum virðist mér að fram hafi komið
hinir sönnu eginleikar Bandaríkjaþjóðarinn-
ar. Hann var málsvari jafnréttis manna að
þvlí er til borgarlegra réttinda kom, — réttar
og tækifæra afkomenda þeirra lítilmótlegustu
í þjóðfélaginu, til þátttöku að jöfnu við þá, sem
meira máttu sín til æðstu embœtta þjóðfélags-
ins. Þjóðlegheit hans, findni, þolinmæði,
bjartsýni hans á' sigur sannleikans og réttlæt-
isins í öllum málum — alt þetta virðist vera
ímyndun þess besta, sem vér mennirnir getum
látið í té, og slíkar gjafir eru sannarlega verð-
rnætar. Það er eftirtektavert og þýðingar-
mikið fyrir sagnritara, hve feikimikið af þjóð-
sögnum hefir þegar myndast um þann mann.
Þó að ekki séu meira en fimtíu ár síðan hann
var uppi, þá er minning hans orðin mönnum
hjartfólgin og það ekki aðeins í hans heima-
landi, heldur út um heim allan. Eg held að
óhætt sé fyrir okkur að telja Abraham Lin-
coln einn af þeim varanlegu mikilmennum
heimsins, sem vér hér ræðum um. Samt er
það ekki eingöngu fyrir það, hve mikill af-
burða maður að hann var sjálfur, heldur og
líka fyrir þann hugsjónaauð, sem Bandaríkja-
þjóðin á yfir að ráða, og sem kom fram í
lyndiseinkennum hans og verkum betur en
nokkurs annars manns.”
Skriflega var Mr. Wells spurður að, hvort
að nokkur kona ætti sæti á meðal þessara sex
mikilmenna sögunnar, og var svar hans þetta
við þeirri spurningu.
“(Ef hin riddaralega tilfinning manns ætti
að ráða þessu svari, þá yrði það já. En ráð-
vandur sagnaritari verður að svara nei.”
--------o--------
Indíánar í Canada
skjóta máli sínu til gjörðardómsins í llague.
Samband Indíána í Canada, sem sagan
nefnir “þjóðiraar sex”, hefir verið, og er í
stríði við stjóm Canada, út af því, að þeir
segjast vera með öllu óháðir Canadastjórn,
að þeir samkvavnt sáttmála, sem þeir gerðu
við Georg þriðja Breta konung, eftir þátt-
töku þeirra í frelsisstríði Bandaríkjanna, á
hlið Bretakonungs, séu.* í sérstöku konungs-
sambandi og öllum öðrum óháðir.
Flokkar 'þessir telja allir frá 7 til 10 þús-
undir manna, og í sambandi þessu eru: Mo-
hawks, Senecas, Suscaroras, Onondagas, Cay-
ugas og Oneidas kynþættimir.
Indíánar þessir fluttu til Canada eftir að
þeir höfðu gjört sáttmálann við Bretakonung
og hafa dvalið þar síðan, og er höfuðborg
þeirra Oksweken í Ontariofylkinu, en þar ut-
an hefir hver kjmþáttur sérstakan aðal að-
seturs'stað.
Sumir af þessum flokkum hafa spornað
við siðmenning hvítra manna af öllum mætti,
og halda við reglur forfeðra sinna. Má þar
telja fremstan Oneidas flokkinn, hann hefir
haldið Sér frá áhrifum hvítra manna af öll-
um mætti, svo ákveðinn hefir flokkurinn verið
í þessu, að hann hefir jafnvel ekki hleypt
kristniboðum inn til isín. En heldur fast við
hinn heiðna sið feðranna. Hátíðahöld
þeirra eru aðallega fjögur á árinu, það eru:
vor, sumar, haust og vetrarhátíð.
Vetrarhátíðin erí haldin í febrúarmánuði
og fer þá fram fórnfærsla, — hvítum hundi er
fómað, til endurminningar um hinn mikla
anda vatnanna.
Osamkomulag það, sem er á milli Indíána
þessara og stjómarinnar, á rót sína aðallega
að rekja til stríðsins.
Af einhverjum klaufaskap þeirra, sem sáu
um framkvæmdir á herskyldulögunum, var
reynt að herskylda suma af þessum Indíán-
um, og risu Iroquois Indíánarair á móti því.
Svo þegar stjórnin í Ottawa ætlaði að
fara að veita þeim atkvæðisrétt, sem náttúr-
lega meinti, að þeir yrðu að verða Canadiskir
borgarar, þá risu þeir aftur upp til handa og
fóta, og neituðu bæði atkvæðis- og borgara-
réttinum.
Þegar svo var komið, að þeir þóttust sjá,
að ekki væri neins að vænta í þessu sambandi,
frá Canadastjórn, skutu Indíánar á þjóðfundi,
og á þeim fundi, sem haldinn var fyrir meir
en ári síðan, kusu þeir nefnd, til þess að fara
á fund Bretakonungs, og var Indíánahöfð-
inginn Deskaheh foringi nefndarinnar. Þeg-
ar nefndin kom til Englands, var öllum nefnd-
armönnum tekið vel af konungi og embættis-
mönnum Breska ríkisins, en einkum þá Deska-
heh, sem var í hátíðabúningi stéttar sinnar.
En enga úrlausn fékk nefndin, sem ekki var
heldur að biiast við.
Þeir fóru, þar fyrir handan, frá einum
stórhöfðingja til annnars, unz að lokum að ut-
anríkisritari Breta, Winston Churchill vísaði
þeim til stjómarinnar í Ottawa til frekari
*
Astœðurnar
fyrir því að hugur íslenzkra bænda
hnegist til Canada.
Annar kafli
í síðasta blaði var vikið nokkuð
að því, hve athygli manna og
kvenna, hefði dregist meir og
meir að landibúnaðinum, síðan að
stríðinu lauk. Á bændabýlum er
ávalt nóg um atvinnu; altaf nóg
að borða og oftast nær tækifæri
fyrir hendi, til að draga eitthvað
saman af fjármunum. Ef til vill
bjóðast hvergi slík tækifæri í þá
átt og í Vestur-Canada.
í hinni fyrri grein, var útliti
landsins, jarðvegi og jurtagróðri
lýst að nokkru yfirleitt í Vestur-
Canada. En í þessari grein verð-
ur leitast við að lýsa Manitoba
fylki talsvert nánar.
Manitoba liggur austast af
sléttufylkjunum og þangað flutt-
ust fyrstu nýbyggjarnir. par var
það að lávarður Selkiirk stofnaði
nýlendu af skozku fólki á önd-
verðri nítjándu öld. þessir fyrstu
landnemar vissu vel, hvað harð-
rétti frumbýlingsáranna þýddi.
Fátt var iþá um áhöld til akur-
yrkju og samgöngur sama sem
engar. pess vegna var ekki urn
að ræða greiðan aðgang að mark-
aði, fyrir það litla, sem framleitt
þurfa ekkert að óttast í því tilliti,
með að ræktaðar eru þar nú aðr-
ar og þolnari kórntegundir. Ak-
uryrkjuáhöldin voru lí þá daga ó-
handhæg og fullnægðu engan
veginn nauðsynlegum skilyrðum.
Annað var þó verra, sem sé það,
að bændur gátu lítillar sem engr-
ar leiðbeiningar notið frá sér-
fræðingum, því þá var tæpast að
finna. Markaðs skilyrðin voru
afaróhentug og samgöngutækin
ófullkomin og ófullnægjandi.
Breytingin til batnaðar, sem á
öllu slíku hefir orðið í Vestur-
Canada, á tæpast nokkurn sinn
líka.
En þrátt fyrir örðugleika frum-
býlings áranna, gengu landnem-
arnir samt sigrandi af hólmi. Og
nú í dag sjást víða um Vestrænu
slétturnar, öldungar með fjöru-
tíu ára landnemastrit að baki,
fagnandi yfir kigurvinningum og
þakklátir skapara sínum, fyrir
hlutskifti sitt. peir hafa lifað
það, að sjá þykkum skógarbeltum
ibreytt í fögur og arðberandi sáð-
lönd. peir hafa séð menninguna
ná tangarhaldi á hinni viltu eyði-
mörk, og gera sér hana undir-
gefna. par sem áður voru heim-
kynni Buffalóanna, eru nú fagr
ar borgir, og um slóðir uxapar-
anna, liggja nú járnbrautir um
landið þvert og en'dilangt. Skól-
ar eru nú í hverri sveit, og er
var af vörum. Samt sem áður þeim þannig fyrirkomið, að börn
létu landnemarnir ekkert á sig fá,geta víðast gengið þangað á
morgnanna og heim að kveldi.
og lögðu fyrstir traustan grund-
völl að bygð hvítra manna í Vest-
ur-Canada. Selkirkbær, sem
liggur við Rauðána, skamt frá
nafn
Winnipeg, ber
nýlendunnar.
Árið 1870 var Manitobafylki
stofnað og tekið inn í fylkjasam-
bandið. pá var fylkið í iraun og
veru lítið annað en mjóar ræmur
lands, beggja vegna Rauðár, en
nú er það meira en tvisvar sinn-
um stærra, eða 251,832 fermiíl-
ur. í viðbót við hin lítt viðjafn-
anlegu skilyrði til akuryrkju, er
þar mikið af ám og stórum fiski-
vötnum, svo sem Winnipeg
vatn, eitt af stærstu vötnum í
heimi, um 260 mílur á lengd.
Mikið er og um málmtegundir í
fylkinu, þótt Manitoba sé í raun
og veru á miðju meginlandi Am-
eríku, þá nær það þó á stóru
svæði að sjó, meðfram Hudson
flóanum.
í viðbót við það, sem áður hef-
ir sagt verið um Selkirk nýlend-
una, má því viðbæta, að Manitoba
sem akuryrkjuland, fór fyrst
verulega að njóta sín, eftir að
Canadian Pacific járnbrautar-
félagið var stofnað og tengdi
strönd við strönd. Við það skap-
ist markaðurinn fyrir afurðir
landsins. Áræðnir og þraut-
segir nýbyggjar höfðu þyrpst inn
i landið, áður en þar voru nokkr-
ar járnbrautir, og fluttu varning
og lífsnauðsynjar, langar leiðir
á uxapörum. pannig urðu land-
nemarnir að ferðast, stundum
langar leiðir með konu og börn,
meðan þeir voru að skygnast um,
eftir löndum, er líklegust þóttu
til heimilisfestu. peir fengu
jarðirnar ókeypis hjá stjórninni,
gegn því skilyrði, að þeir intu af
hendi tilteknar umbætur. Kjör
nýbyggjanna vo-ru ekkert leik-
fang, en samt létu þeir aldrei
hugfallast. Gróðrarsæld jarð-
vegarins þekti engin takmörk, en
á meðan menn voru óvanir við
kornrækt, og vissu eigi rneð vissu,
hverjar tegundir skyldi helst
rækta á þessum og þessum stað,
eyðilagðist oft mikið af uppskeru
sökum frosts í héruðum, sem nú
parna birtast landnema verkin
miklu. parna er ýmist þeirra
eigið starf, eða áfarmhald þess.
stofnanda P6 þú færir um alt Manitoba-
fylki og spurði sérhvern bónda
hvort hann iðraðist eftir að hafa
flutt þangað, mundi svarið ár
valt verða nei.
Og nú hefir örðugleikum frum-
býlingsáranna að mestu leyti ver-
ið velt úr vegi. Breytingin er
stórvægileg. Jafnvel veðráttu-
farið hefir breyst. pekkingin á
öllum sviðum hefir breytt ástand-
inu til muna.
Viísindaþekkingin á sviði land-
búnaðarins, hefir trygt uppskéru
og aðrar afurðir bóndans meira
en nokkurn hafði dreymt um. Nú
vita menn hvaða korntegund á
best við á þessum og þessum stöð-
um. Nú flytja eimlestirnar af-
urðir bóndans hvert sem vera
vill á afar skömmum tíma. Sum-
ar járnbrautirnar eru ríkiseign,
aðrar einstakra félaga. Samvinna
í því, að selja vörur með sem
bestu verði, er nú algeng. Eink-
um gildir slíkt um hveitifram-
leiðsluna. Um land alt, er að
finna veglega skóla, kirkjur, síma
og póstsambönd, yfirhöfuð öll
menningartæki nútíðarinnar.
Landið er nú ekki lengur látið
af hendi ókeypis til almennings,
en fæst fyrir afar lágt verð, því
þegar hlunnindi nútmans eru tek-
in til greina, mun mega segja
með sanni, að sá nýbyggi, er
kaupir land fyrir ti^tugu, fjöru-
tíu eða jafnvel sextíu dáli ekruna,
sé að fá það við lægra verði, en
landnemarnir fornu, þótt þeir í
orði kveðnu fengi það fyrir ekki
neitt. Manitoba er enn tækifær-
anna land. Tækifæri Vestur-
landsins, eru óútreiknanleg og
hafa ef til vill aldrei verið meira
aðlaðandi en einmitt nú í dag.
Peir lesendur Lögbergs, er æskja
kynnu frekari upplýsinga um
Canada, geta snúið sér bréflega
til ritstjórans, J. J Bíldfells, Col-
umbia Bulding, William Ave.. og
Sherbrooke St., Winnipeg, Mani-
toba.
Framh.
Electro Gasoline
framkvæmda í málinn.
Þannig lá málið í kyrrð nokknm tíma, en
svo blossaði aftur upp óvinátta á milli stjóm-
arinnar og Indíánanna í sambandi við landa-
kaup og sölu stjómarinnar banda heimkomn-
um hermönnum.
A meðal heimkominna hermanna, voru þó
nokkuð margir úr hópi Indíánanna, sem af
frjálsum vilja höfðu farið í stríðið, handa
þeim mönnum keypti nefndin, sem fyrir landa
kaupunum stóð, land af Indíána höfðingjunum.
En þegar þessir afturkomnir Indíánar
fóm að búa, fór fyrir þeim eins og mörgum
öðmm, að sumir flosnuðu upp, en aðrir
héngu á löndum sínum og hanga enn.
Lönd þeirra, sem upp flosnuðu féllu aft-
ur til stjómarinnar, og seldi hún þau aftur
hverjum, sem hafa vildi. Þetta mislíkaði
Indíánum mjög, og í einu tilfelli höfðu Indí-
ána-höfðingjar fund með sér, og afhentu ein-
um af mönnum sínum eitt slíkt land, sem
stjórnin hafði keypt, til ábúðar.
Stjómarþjónarnir skipuðu Indíána
þessum af landinu, en hann kvaðst hvergi fara
og dróg að sér lið og bjóst til varnar.
Þegar stjómarþjónarnir hugðust fyrst
mundu fara að þessum manni með hervaldi,
og reka hann af landinu, var útlitið hið í-
skyggilegasta um tíma á milli beggja málsaðila.
Indiíánar hervæddu sig, sungu sína hersöngva
og dönsuðu herdansa sína, eins og þeirra var
siður áður en þeir lögðu til omstu, og sem var
nýlendufólkinu á fyrri árum, hinn ægilegasti
fyrirboði.
En þegar Kingstjórnin kom til valda í
Ottawa, tók hún að athuga þetta mál og Hon.
Charles Stewart innanríkisráðherra Canada
fór á fund Indíánanna, og talaði við þá sjálf-
ur um þessar sakir og lofaði þeim, að mál
þeirra skyddu vera rannsakað frá rótum; sef-
uðust Indíánar þá og tóku þessu boði.
Þannig stendur þetta mál nú, og þó það
sé komið í betra horf en það var í, þá er því
engan vegin ráðið til lykta enn.
TAO TEH KING.
Svo heitir ritsa.fn eitt, sem er sagt að sé
eftir kínverska heimspekinginn Lao- Tze
sem á að hafa verið samtðarmaður Confuciusar.
Bók þessi, eða ritverk, er sagt merkilegt,
meðfram fyrir það, að í því ber meira á dul-
speki, heldur en í öðram bókmentum Kín-
verja, sem meira eru bundnar við hið dag-
lega og hagnýta', heldur en við það fjarlæga og
dularfulla.
Fjóra stutta kafla úr ritverki þessu, hefir
prófessor A. E. Anderson við háskólann í
California þýtt á enskt mál í “The Universety
of California Cronicle.”
Mr. Anderson segir, að Tao þýði orðið,
og að það geti einnig þýtt “Yeg” eða
“BraAit”. Teh þýðir “Dygðir” og Kvng
“ fíeglur”. Á íslensku mætti því þýða þetta
“Reglur-dygða og hugsunar”.
Kaflar þessir era eftirtekta verðir og
þess virði, að koma fyrir almennings sjónir.
7. Um Tao (orðið).
Orðið, sem mennirnir geta skilið, er ekki
orðið eilífa.
Nafnið, sem nefnt verður, er ekki nafnið
eílífa. Það sem menn horfa á, en sjá ekki,
er kallað litlaust. Það sem menn hlusta eft-
ir, en heyra ekki til, er kallað hljóðlaust.
Það sem menn reyna að þreifa eftir, en finna
ekki, er án líkama.
Það er erfitt. að skilja orðið (Tao), samt
inniheldur það alt, og allir hlutir eiga upptök
sín í því. Það rennur í gegnum heiminn
eins og lækir renna í ár, og árnar renna í
hafið.
Tao er voldugra en konungar. Sá sem
lætur það lýsa sér og snýr heim við birtu þess,
er ekki evðiieggingunni háður. Hann er á
vegi eilífðarinnar.
Þetta er vegur himinsins: hann veitir
ekki mótspymu, en sigur hans er ómótstæði-
legur; hann talar ekki, en svar hans er ákveð-
ið; hann kemur af sjálfsdáðum, þótt hann sé
ekki ákallaður. Hann er þolinmóður, en á-
form hans era óraskanleg. Net himinsins
nær um alt. Möskvar þess eru stórir, þó kemst
ekkert fram hjá þeim. Vegur himinsins, er
líkur boga, sem er spentur. Hann lítillækkar
'þá dramblátu, en upphefur þá lítilmótlegu.
Vegur mannanna, er aftur að taka frá
þeim, sem lítið eiga, til þess að gefa þeim,
sem miikið hafa.
Hið mikla Tao, er blátt áfram, en fólkinu
era sniðgötumar kærar.
Að bera skrautklæði, að montast af beitt-
um sverðseggjum, að eta eða drekka í óhófi, að
draga saman óþarfa auð, er eyðslusemi og
rán. Það er sannarlega ekki Tao!
II. Um stjórnir.
Þegar hið mikla Tao gleymist, þá sljóvg-
ast velgjörðar og réttlætis tilfinning manna.
Sérdrægni þeirra kemur í Ijós og óeinlægnin
fer vaxandi.
Þegar stjórnað er í anda Tao, þá eru
fljótustu hestarnir notaðir til þess, að flytja
áburð á akra. Þegar Tao ræður eikki, þá eru
hestar aldir upp á 'hverjum bæ til hemaðar.
Þegar stjómir láta lítið á sér bera, þá er
fólk löghlýðið og lítillátt. Þegar þær ger-
ast afskiftasamar þá fyllist það óhug.
Þegar ofmikið er um löggjöf, þá þróast
glæpir og landráð.
Voldug ríki ættu að temja sér lítillæti.
Vopn eru blölvuð á meðal veíkfæra. Að
fagna yfir sigri, er að gleðjast yfir hinum
mörgu dauðu. Sigurs í stríði ætti að minn-
ast með sorg, eins og að hann væri stórkost-
leg jarðarför.
Þróttlítil þjóð yfirvinnur þá, sem sterk-
ari eru, með því að láta undan.
Líitum al'lar stjórair muna eftir því, að
vera lítillátar. Framh.
“Best öy Every Test”
pessi Gasolía endist yfir mestan mílufjölda og
fyrirbyggir ólag á mótornum.
Skjót Afgreiðsla hjá vorum Sjö
Service Stations:
Sérstök þægindi við fylling og hreinsun Transmissions
og Crank Case
No. 1. Corner Portage og Maryland.
N. 2. Main Street, gegnt Union Deiiot.
No. 3. McDermot og Rorie, Sts., gegnt Gr. Exchange.
No. 4. Portage Ave. og Kennedy St.
No. 5. Rupert og King, bak við McLaren Hotel.
No.6. Osbome og Stradbrooke St.
No. 7. Main Street North og Stella Ave.
Einnig til sölu hjá eftirgreindum Garages:
Willys-Overland, Cor. Portage og Marylana.
Cadillac Motor Sales, 310 Carlton.
Imperial Garage, Opp. Amphitheatre.
Biðjið kaupmann yðar um:
Buffalo English Motor Olíu, Tractorlene Olíu og Greases.
Prairie City Oil Go., Ltd.
601-6 Somerset Building
Phone A 63411