Lögberg - 07.09.1922, Síða 3
LOQBSBG. FIMTUDAGINN
7. SEPTEMBER 1922.
t
U9
mmmmmtmmMmsammmmamamm*
Sérstök deild í blað inu
SÓLSKIN
Ottilía og höíuð dauðans.
Ottilía var fátæk ibóndadóttir, sem ólst npp
hjá foreldrum sínum í smábæ einum, sem Schwatz
heitir. Svo vildi til, að móðir hennar, sem hún
unni hugástum dó, og fékk það Ottilíu mikillar
sorgar. jBn hún mátti ekki geía sorginni laus-
an taurn, því það var engin á heimilinu, önnur
en hún, sem gat gjört húsverkin. Svo hún þurk-
aði tárin af augum sér og fór að gegna húsverk-
unum eins vel og hún gat. Hún bakaði brauð
bætti föt, spann og sópaði allan daginn, en af
því að hún var enn óþroskuð þá entist dag-urinn
ekki til þess, að ljúka við alt sem hún þurfti að
gjöra og eins og hún móðir hennar hafði gjört.
Grísarnir smugu út úr stíunni, hænsnin flug-
ust á, og heyið lá órakað á enginu. Faðir henn-
iar umbar þetta nokkurn tíma, en svo fór þó, að
hann þreyttist á iþví og fékk sér aðra konu.
Stjúpmóðir Ottilíu hét Sennal. Hún var
há vexti og andlitssvipur hennar var harðlegur
og þegar Ottilía sá hana fór hún að gráta og
sagðist aldrei geta kallað hana “mömmu”. Henni
fanst að koma hennar á heimilið, væri van-
virða fvrir minningu móður hennar og neiaði að
hlýða benni. Þetta upþátæki Ottilíu sneri Senn-
al aveg á móti ihenni og hún varð enn kaldari í
lund og harðari í viðmóti við hana. Sennal og
Ottilíu kom mjög illa saman þegar þær voru ein-
ar heima á daginn, en á kveldin þegar faðir Otti-
líu kom heim stilti hann til friðar á þann hátt, að
hann tók Ottilíu á kné sér og sagði henni sögur
unz hún glevmdi raunum sínum og brosti góð-
látlega framan í föður sinn, sem þá kvsti á kinn-
ina á henni og sagði henni að fara að hátta.
Svo var það einn dag unj veturinn, að þungt
•var í lofti, og þegar fram á daginn kom brast á
versti bylur og harðviðri. Dagurinn leið að
kveldi og svo fram eftir kveldinu, að faðir Otti-
líu kom ékki heim. Þá fóru þær Sennal og Otti-
lía að verða hræddar um hann. Sennal kveikti
á luktinni og bað nágranna sína að koma með
sér að leita að manni sínum, og leitarmennirnir
ásamt konunni leituðu uppí fjöllin, en vindur-
var mikill og brátt sloknaði ljósið á luktum
þeirra, og köll þeirra mistu mátt sinn í stormin-
um. Heima kraup Ottilía ala nóttina við stól
föður síns, og bað guð að vemda föður sinn, með
tárvota kinn. Morguninn eftir var komið gott
veður, og þegar á daginn leið komu menn, sem
verið hötfðu við skógarhögg upp á fjöllum, með
föður Ottilíu örendann.
Ottilía kraup í leiðslu við stólinn, sem faðir
hennar var vanur að sitja í, á meðan að ókunn-
ugir rnenn létu hann í líkkistu og fóra svo með
hann út í kirkjugarð og jörðuðu hann.
Að síðustu skildi hún, að faðir hennar væri
farinn frá henn fyrir fult og alt, og að hún sæi
hann aldrei framar. Varð hún þá yfirkomin
af harmi og óhuggandi.
iSennal umbar þe'tta um stund, en svo fór
henni að leiðast unz hún sagði í hörku rómi: —
“Þá getur ekki grátið svona alt af, barn.
Farðu og gefðu svínunum.” '
“Eg er ekki þitt barn”, svaraði Ottilía, sem
reiddist myndugleikanum í rodd Sennal. “Eg
skal aldrei gleyma honum föður mínum, né held-
ur skalt þú gleyma því, að hann knúði þig til
þess að verða ekki vond við mig”.
1 iSennal svaraði engu, og hélt að Ottilía hefði
unnið sigur.
Daginn eftir var samkomulagið ekki betra,
og af því, að engin var nú til að stilla til friðar,
þá óx ósamkomulagið með hverjum deginum.
Að síðustu þoldi Sennal mátið ékki lengur
■og einu sinni, þegar þeim hafði komið óskup illa
saman rak hún Ottilíu í burt úr húsinu og sagði
að hún skyldi aldrei koma inn fyrir dvr þess
framar.
lEftir dálitla stund var Sennal nmnin mesta
reiðin. 'Sá hún þá eftir því, sem hún hafði gert
og hljóp út og kiallaði á Ottilíu, en hún var þá
komin langt upp í fjalls-hlíðina og heyrði ekki
til hennar. ! 0"^^
Vesalings Ottilía flýtti sér alt, sem hún gat
þangað, sem faðir hennar hafðii orðið úti, til
þess að geta verið þar ein með endurminningun-
um umi hann.
iHátt upp í fjallshlíðinni fann liún staðinn,
þar var samkvæmt landsvenju, reist upp' kross- i
merki og á það var ritað á hvern hátt hann hatfði
mætt dauða sínum. Hún fleygði sér niður við
krossmarkíð og grét sáran, þar til að öll beiskja
var horfin xír sál hennar. Þá fanst henni, að
hún hevra rödd föður isíns, og henni tfanst hann
vanda um við sig með kærleiksríkum orðum og
rödd samviskunnar á.sakaði hana fvrir mótþróa
bann, sem hún hafði sýnt konunni, sem hann fað-
ir hennar hafði gifst og hefði hann verið lífs, þá
hefði liún snúið aftur og beðið fvrirgefningar
Evo fór hún að hugsa um kveldin skemtilegu,
begar hún sat á knjám föður síns, og eldurinn
brann glaðlega á aminum, og hún ihíustaði r, mál-
róminn þýða og innilega. “Settu traust bitt
til guðs og þá fer alt vel”, fanst henni, að hann
segja. Alt í einu mundi hún eftir að hún var al-
ein uppi í fjöllum, og að dagur var að kveldi
kominn. Hún var hálf máttfarin af kulda, en
samt komst hún á fætur og reyndi að hrista af
<sér deyfðina og dofann, sem að hún skildi, að
mundi leiða til dauða ef hún gæti ekti sigrað.
Kvéldhúmið lagðist þykkara og þykkara vf-
ir hana, og alt, sem umhverfis ihana var og hún
dauðhrædd um, að hún gæti ekki haldið veginum.
Hún hugsaði um heimilið sitt bægilega, bar sem
hún hafði ávalt átt skjól fyrir kulda og óveðrum
og maturinn hafði beðið hennar, þegar hún var
svöng oig hún var að því komin, að missa móðinn.
Alt í einu kom máninn fram undan einum |
fjallshnjúknum og helti hinni silfurtæru birtu
sinni yfir Ottilíu, og allan fjallahringinn og á
einum fjallatindinum sá hún kastala rústir í
tunglsbirtunni. Þessi tfagra sýn rak allan ótta
úr huga Ottilíu og gaf henni þrek til þess, að
Ihalda áfram, eftir brautinni bröttu og hættulegu,
sem lá upp á fjallsbrúnina. Þegar hún færðist
nær brúninni og kastala-rústunum, sá hún að
kastalinn var ekki eins illa fallinn og henni hefði
sýnst í fyrstu, og nú tók ihún einnig eftir því, að
í glugga, sem var á turni kastalans var ljós, sem
eins og benti henni til sín, og gaf henni nýja
djörfung, til þess að brjótast áfram að kastal-
anum. j"
Þegar að síðustu, að hún var komin að kast-
ala-hliðinu varð hún nálega yfirkomin af mikil-
leik og fegurð kastalans, og var að hugsa um
hvort iað fólk bað, sem bvggi í svo veglegu stór-
liýsi, mundi vilja skjóta skjólhúsi vfir umkomu-
lausa bóndastúlku, sem bæri að garði um hánótt.
“Settu traust á guð”, fanst henni að faðir sinn
hvísla í eyra sér, og hún tók lúður, sem hékk við
kastalahliðið og blés í hann. Undir eins opnað-
ist glugginn á turninum, þar sem liún hafði séð
ljósið. En í stað þess,1 að dyravörður gengdi
kalli hennar, eins og hún átti von á, þá kom
höfuð dauðans í Ijós og vi'ð þá sýn varð Ottilía
mjög óttaslegin. 1
“Hvers þarfnast þú”? spurði höfuð dauð-
ans.
“Matar og húsaskjól í nafni Krists”. svar-
aði Ottilía lágt.
“Ef eg kem þaraa ofan til þín”, sagði höf-
uð dauðans, “viltu þá loifa mér því, að bera mig
hingað upp aftur?” svo glaðlega, að Ottilía var
búin að lofa því áður en hún vissi af.
“Eg reiði mig á loforð þitt”, mælti höfuð
dauðans, því hélt það áfram þó eg geti komist
þangað ofan, sem þú ert og lokið upp, þá kemst
eg ekki hingað upp aftur, nema að þú hjálpir
mér”.
Ottilía liugsaði um viðfangsefnið, sem Senn-
al hafði krafist af henn, og fanst þau nú vera
leikur hjá þessu.
Ofur litla stund stóð hún hugsandi, svo
hevrði hún drunur og hávaða, eins og að væri
verið að velta einhveriu þungu ofan eftir stigun-
um í kastalanum. Hún varð ósköp hrædd, og
þegar hún heyrði að jámslánum, sem voru fyrir
hurðinni að innan var lyft frá, fanst henni eins
og faðir sinn hvíslaði’ einhverju að sér “trevstu
enði”, og hún herti upp hugann og gekk inn úr
liliðinni og sá hið ægilega höfuð við fætur sér.
'Henni flaug í hug, að hlaupa fram hjá því, og
upp kas'talastigann, og skilja það eftir, þar sem
það var komið. |Bn hún mundi eftir loforði
sfnu, og herti upp hugann, tók það í fang sér og
gekk upp stigann með það í fanginu. Þegar hún
kom upp úr stiganum talaði höfuðið til hennar
aftur og sagði: — T " I
“'Settu mig á borðið, og farðu svo ofan í
eldhús og búðu mé til pönnukökur”.
“Ottilía var hálfsmeik, að fara í gegnum
herbergin í kastalanum, þau vora mörg og stór,
og þegar hún gekk um þau, var eins og undir tæki
í öllum kastalanum. Að síðustu kom hún í eld-
húsið, sá hún þá, að á gólfinu voru bein, sem láu
í kross og dönsuðu fram og aftur um gólfið. Otti-
lía tók nærri sér að hljóða ekki upp og hlaupa
í burtu frá ])essum ófögnuði, samt herti hún upp
hugan og fór að litast um eftir efni í pönnu-
kökurnar og fann það, og eftir lítinn tíma hafði
hún degið tilbúið og þær snörkuðu í pönnunni á
eldinum. Beinin héldu áfram að dans'a um
gólfið, og það var eins og þau væru alt af fyrir
fótunum á henni. Að síðustu voru pönnukök-
urnar tilbúnar, og fór hún þá með þær upp í
turainn og setti þær á borðið fyrir framan höfuð-
ið, sem bað hana að borða með sér. Eftir að
þau höfðu matast, mælti höfuðið: —
“Nú skalt þú fara upp stigann, sem liggur
upp Itil vinstri handar, þar finnur þú svefnher-
bergi, sem þú getur solfið í. Klukkan tólf í nótt
mun koma beinagrind að rúmi þínu, og reyna að
toga þig fram úr rúminu, en ef þú verður ekki
hrædd, þarft þú ekkert að óttast”.
Ottilía var orðin svo þreytt,1 að hún varð
dauðans fegin, að hvíla sig, svo hún gjörði eins
og höfuðið sagði kenni, og stein sofnaði. ’
I m miðnætti vaknaði hún við ákaflegt skrölt
í herberginu, og niðri lieyrði hún að höfuðið
sagði: “Það er miðnætti, mundu eftir að vera
hugrökk”.
Tunglsbirtan skein inn um gluggann og svo
bjart var í herberginu, nð Ottilía sá beinagrind-
ina ganga eftir gólfinu og að rúmi hennar.
“Treystu guði”, hevrðist henni að faðir
sinn hvísla að sér, og hún lá hreyfingarlaus í
rúminu þó beinagrindinn rétti tít 'handleggina og
stryki henni með ísköldum höndum. Hugrekki
hennar vemdaði hana tfrá öllu grandi. og innan
lítillar stundar íhvarf beingrindin úr herberginu.
En svo var Ot'tilía þrevtt, að þrátt Ifyrir þessa
viðburði steinsotfnaði hún undir eins og beina-
grindin var farin.
Þegar liún vaknaði um morguninn, skein sól-
in inn í herbergið til liennar, og við rúm henn-
ar stóð hvítklædd kona, og var eins og geislar
stöfuðu út frá henni og hrin var svo fögur, að
Ottilía undraðist og sagði: “Hvers óskar þú
fagra kona?”
“Eg var einu sinni eigandi að þessum kast-
ala”, svaraði þessi vera, en sökum syndsamlegs
yfirlætis og evðslusemi, var sú iþraut lögð á mig
að bein mín skyldu engan frið hafa, heldur vera
á róli í þessu herbergi, unz einhver, sem væri
nógu hugprúður og lítillátur kæmi og leysti mig
úr ])eirri ánauð. Þú hefir nú leyst mig, en áð-
mn
Fyrir börn og unglioga 1
Proíessional Cards
ur en eg fer og nýt hvíldar, þá vil eg í þakklætis-
skyni gefa þér kastalann og alt, sem honum til-[
heyrir”.
Þessi fagra vera hætti að tala og hvarf, en
fáum mínútum síðar, sá Ottilía hvíta dútfti fljúga
frá kastalanum og út í himinn geiminn.
Veran fagra hafði sagt satt. Umkomu-
lausa s'túlkan fátæka, varð eigandi að kastalan-
um, og það fyrsta, sem hún gerði var að senda
eftir iSennal, og biðja hana fyrirgefningar á
stórlæti sínu. Og Sennal fyrirgaf 1 henni ekki
að eins, heldur bjó hún hjá henni í kastalanum,
það sem eftir var æfinnar og var ávalt ástúðlegt
með þeim upp frá því.
DR.B J.BRANOSON
701 UadM| BalKHnd
Phon* ▲ TMT
OfCtoa tlmw: I—>
: 770 Viotor
*hra«: ▲ TlSf
Wtnmtpec, Mnn.
Dr- O. BJORNSON
701 Undaajr Bulldlns
Offlo* Phone: 7067
Offflca tlmar: S—3
HetinUl: T»4 Vlctor St.
Telephona: A 7b86
Wlnnlpeg, Man.
VILLIGŒSIRNAR.
Það var einhvern liaustdag, að villigæsir
nokkurar flugu hátt í loifti yfir fjöll og dali. Þær
ætluðu langar leiðir og var ekki annað, sem knúði
þær áfram, en ferðalöngun sú, er skaparinn hafði
innrætt eðli þeirra í öndverðu. Þá stóð svo á,
að ein spikfeit heimgæs stóð etandi við úrsigtis
kyrnu í húsagarði á tóndabæ og bar sig drjúg-
um eftir björginni. Hún heyrir nú ferðaþysinn
og fjaðraþytinn til villigæsanna nppi yfir sér,
teygir upp álkuna og kallar til þeirra með undr-
un: “Hvaða læti eru í ykkur þarna uppi syst-
ur mínar! hvert eruð þið að fara?” —v “Lang-
ar leiðir”, svöruðu villigæsiniar. “langar
leiðir til fjarlæga landsins, þar sem okkur er ætl-
að að vera”. — “Nvi, hafið þið nokkura tíma séð
fjarlæga landið?” — “Nei, ekki höfum táð það”,
svöruðu hinar, “en léttu þér nú upp í loftið til
okkar og slástu með í tferðina”. — “ Já, eg er nú
lielst á því”, sagði heimgæsin; l<því ætti eg að
vera að því? komið þið heldur ofan til mín, því
bérna getur maður fitnað og átt góða daga, og
bvers ge'tur maður fremur óskað?” — “Það ger-
um við aldrei”, svöruðu villigæsirnar, ‘‘við vilj-
um fyrir hvern mun fara til fjarlæga landsins
og erum ekki í rónni fyr en við erum þangað
komnar”. — “Nú, því þá?” segir heimgæsin.
— “Það er í okkur einhver óstöðvandi löngun”,
mæltu hinar, “eirihver eirðarlaus þrá, sem knýr
okkur áfram, og vel segir okkur bugur um það,
að við nluaum eiga góðs von í fjarlæga landinu”.
— “Þetta er sá hégómi, sem engu tali tekur”,
sagði lieimgæsin, “eg er þó líklega eins góð og
hver af ykkur og hef eg samt aldrei fundið til
neinnar þesskonar löngunar.” — “Verði þér að
góðu,” sögðu villigæsirnar, “og kúrðu kyr þar
sem þú ert, en við verðum að halda þangað, sem
löngunin dregur ókkur.” Þannig mæltu þær
og flugu áleiðis, en heimgæsin sagði með þjósti:
“Ekki get eg að mér gert að hlægja að beimsk-
unni. Ekki nema það að láta gabba sig með
öðrum ens hégiljum frá blessuðum matnum og
gana út í óvissuna í staðinn fvrir að halda sér
við það vissa! Nei, nei, eg er vitrari en svo”.
Með þessum orðum tók hún til óspiltra málanna
og stakk nefinu niður f troðfulla fóðurkirnuna.
En þrátt fvrir alla þessa speki var hún samt
bráðfeit og daginn eftir var henni stútað.
Thos. H. Johnson
•C
Hjalmar A. Berpun,
■krlteUta »ram 111
BulMlnK. Partoc* Ar».
P. O. Bw 1(M
Pbraw: ▲«!«• M ••«•
DR. B. H. OLSON
781 Lindsay Blde>
Offloe: A 7067.
ViCtalatkni: 11—12 og L—6.80
10 Thelma Apls., Uonu Sireet.
Phone: Sheb. 58M.
WINNIPBQ, MAN
W J. IjINDAIj, J. H. IJNDAIj
B. STEFANSSON
Islenzkir lögfræðlngar
3 Home Investment BuUdlng
468 Maln Strect. Tals.: A 4963
l>eir hafa einnig skrifstofur aö
Lundar, Riverton, Gimli og Piney
og eru þar aíS hitta ö. eftirfylgj-
andi timum:
Lundar: annan hvern miðvikudag.
Riverton: Fyrsta fimtudag.
Gimliá Fyrsta miSvikudag
Piney: þriSja föstudag
I hverjum mánuSi.
Dr- J. Stetansson
600 Sterling Bank
Stundar augna, eyrna, nef og
kvericasjúkdóma. Er aC hitta
kl. 10-12 f.h. og 2-5 e.h.
Ta!s. A3521. Heimili 627 Mc-
Millan Ave. Tals. F 2691
Dr. M.B. Halldorson
«01 Bo;d BuUdtnc
Cor Portuge Ave. og Bdmonton
Stundar s«rstaklaga berklaaykl
ag aJBra hingnaajúkdöma Br atl
ftnna I ekrlfstofnnnl kl. 11—
lí f.m. ug kl. 1—4 c.m. Skrlf-
stofu tals. A 3521. Heimlli 46
Alloway Ave Talalml: Hher-
hrook IIM
Dr. Kr. J. Austmann
M.A. MÐ. LMCC
Wynyard, Sask.
awaai.T.T" s
Arni Anderson,
ial. lörmalhir
1 félagi viö E. P. Gariaad
Bkrifatofa: 801 Bleotric Ba»-
way Chambera.
Telephone A 21®T
gn
ARNI G. EGGERT8SON, IXA
tslenzkur lögfræDiiigur.
Hefir rétt tll a8 flytja mll b«Ci
í Manitoba og Sarkatchewaa.
Skrifstofa: Wynyaro, Sa*.
Phona: Garry 201€
JenkinsShoeCo.
639 Notre Dame
Avenue
DR. A. BLONDAL
818 Somerset Bidg.
Stundar sérstaklega kvenna og
barna sjúkdóma.
Er aö hitta frá kl. 10—12 f. h.
3 til 5 e. h.
Talsími A 4927
Heimili 806 Vlctor Str.
Simi A 8180.
HANINN OG ÖNDIN.
“Sér er nú 'hvað, andar tetur!” sagði hani
yið önd, sem vagaði niður að tjarnarpolli, en
hann gekk við hliðina á henni keikur og hnar-
reistur, “það sér á, að sá hefir ekki verið neinn
dansmeis'tari, sem kendi þér ganginn”. Öndin
svaraði honum engu, en synti rólega út á pollinn.
Haninn stóð á hakkanum og horfði á hana. í
sanm bili heyrðist byssuskot; varð baninn þá
skelkaður og hoppaði í loft upp, en gáði ekki að
sér og steyptist ú't í vatnið á eftir öndinni.
iHann rétti frá sér fæturna og harði um sig
vængjunum, svo þeir urðn óðara gagndrepa og
héldu honnm ekki lengur uppi. Var þá bæði
ilt og broslegt að sjá aðfarir lians. “Sér er nú
hvað, hana tetur!” sagði öndin kankvís nm leið
og hún srati kringum hann, “það sér á, að þú
eht ekki kominn langt í sundlistinni”.
J. G. SNÆDAL,
TANNLŒKNIR
614 Somerset Block
Cot. Portege Ave. eg Donald Street
Talstmi:. A 8889
DR. J. OLSON
Tanniæknir
6C2 Sterling Bank Bldg.
Talsími A 3521
Heimili: Tal.s. Sh. 3217
V6r lefgjiun eéretaka áhenrtu » a»
aelja meÖöl aftlr forakHftum Irakoa.
Hln bentu lyf, »em h*«t or a« <▲,
eru notuC eln*tVn*u. Pegar b*r komfB
meB forakrlftlna tll vor, megif þér
vera vtM um fá rétt þeB aem Iraknla-
inn tekur tH.
OOIiODBHGH * OO
Notre Dame Avo. og Sherbrooka M.
Phonee N 7«5»—7«**
Gtftingalyfiabréf aeld
A. S. Bardal
843 Sherbrooke St.
Selui llkkietui og annaet um útfarii.
Allur útbúnaður sé bezti. Enafrem-
ur aelur Kann alakonar minniavarÖa
og legeteina.
bkrllal. tiUaiml N MW
lleimilis talaimi N
f— t
Vér geymum reiöhjéi yflr v«t-
urinn og gerum þau ein* og
•f þeéfi er óskaö. Aliar tegund-
ir af skauturo búnar til sani
kv»mt pöntun. Áreiöanlagt
v«rk. Lvpur afgreiöaia.
EMPIRE CYCLE, CO.
641Notre Dame Are.
>. i- ■ >
.IJ_-...J.J_ ...L_.LI_IJ-gaJ-.JUUP1.1*
Eiður úlfsins.
Úlfur hafði fest sig í snöru. Kom þá bónd-
inn þar að, sem engt hafði snörnna, og ætlaði
að drepa liann, en þá grátbændi iilfurinn hann
að gefa >sér líf í þetta sinn; ef hann gerði það,
þá skvldi bann iðrun gera og afturbvarf og bæta
ráð sitt. “ Ja, það or nú svo”, mælti bóndi, “en
þrátt fyrir ])að muntu nú samt ráðast á björðina
og rífa sundur kindnmar mínar, og hvar er svoj
lífernis'betrunin?” — “Eg rífa sundur kind-j
urnar!” kallaði úlfnrinn, “nei! hér vinn eg þess
dýrastan eið, að eg skal aldrei framar kjöt eta;
grös og jurtir skuln vera mín fæða héðan í frá;
í mesta lagi mnn eg veiða mér fisk, éf mig skvldi
langa í kjöt”. Bóndi lét teljast á þetta og gaf
bonum líf. En er úlfurinn fór leiðar sinnar,
feginn fjörlausninni, þá sá liann að baka 'til við
bæjarbús bóndans, hvar grís einn var að velta
sér í forarpolli. Þá var honnm öllum lokið og
fékk hann ákafa löngun í svo feita krás. “Lát-
nm okkur nú sjá!” segir hann, “ forarpollurinn
■er í rauninni vatn og dýrið, sem unir sér «vo vel
í lionum, er án efa lagardýr. Já, það veit heilög
hamingjan, ])iað er tfisknr, það er fiskur. Og
fisk er mér heimilt að éta; það bannar eiðurinn
mér ekki”. Þar með rauk hann í grísinn og
hvomaði hann í sig. i
DR. W. E. ANDERSON
307 Kennedy Bldg, Ph. A 7614
(gagnvart T. Eaton Co.) '
Sérfræðingur í augna, eyrna,
nef og kverkasjúkdómum.
Viötalstími: 9-12 f.h. 2-6 e.h.
Heimili 137 Sherbrooke Street,
Sími Sher. 3108
Lafayette Studio
G. F. PENNY
l.jósmyndasmlöur.
SérfræCingur 1 aC taka hópmyndir,
Giftingamyndir og myndir af heil-
um bekkjum skðlafölkj.
Phone: Sher. 4178
489 Portage Ave. Wlnnipe*
Verkatoío T»K'
A 8383
Heim Taia.
A «384
G. L Stephensen
PLUMBER
Allsi.onar rarmiMnwAhfild. «,«
«fraujArn Tira, allar t*irni:d>. *■
glösum œ aflvaka 'bnlieHs!.
VERKSTOFA: 676 KOME STREET
Phones:
Office: N 6225. Heim.: A7996
Halldór Sigarðsson
General Contractrai
808 Great Weet Permanent iraar
Bldg., 866 M&in ftt.
I
Giftinga og , ,,
Jaröarfara- P!om
með litlum fyrirvera
Rirch hlómsali
616 Portage Ave. Tals. 720
ST IOHN 2 RING 3
J. J. Swanson & Co.
Verzla meö fastelignlr. SJá. u.m
leigu 4 híisum. Annast 14n og
eldsábyrgS o. fl.
808 París Building
Phontis A 6349-A GSIO
JOSEPH TAVLOR
LÖGTAKSMAÐUR
Heiinllistals.: St. John 1844
Skrifstofu-Tals.: A 6557
Tekur lögtaki bæöl húealeiguekuldJ^
veöskuldir, vixlaskuldir. Afgreiöir al
sem aö lögum lýtur.
Skrilatofa 255 Maln Strarat.