Lögberg - 03.04.1924, Síða 4

Lögberg - 03.04.1924, Síða 4
ELs . 4 é LÖGBERG, FIMTUDAGINN 3. APRÍL 1924. T ; * • 3Lögberg Gefið út hvern Fimtuclag af The Col- ambia Pre*s, Ltd., iCor. Sargent Ave. & Toronto Str., Winnipeg, Man. TnUimnr. >-6327 o& N-6328 JÓN J. BILDFELL, Fditor | (Jtanóskrift tii blaðains: THt COlUMÐiH PRES8, Ltd., Box 3172, Winnipeg. IVlan. Utanáskrift iitat)órans: tiDiTUft L0CBERB, Box 3172 Winnipeg, Man. | The "Lcigberg” is printed and published by The Columbia Press, Limited, in the Columbia Building, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba. | Woodrow Wilson. “Eg er niSurbrotinn maður, og þegar umbúðir sálarinnar eru brotnar—þá er tími til þess að fara”. Þessi síðustu orð stríÖsforsetans í Bandaríkjunum, Woodrow Wilson, eru þung eins og niSur margra vatna, og í þeim felst þaö undra afl, sem kemur mönnum til þess að beygja höfuö sín í sorgblandinni hrygð, hvar svo sem þau berast til eyrna þeirra. Þessi misskildi raunamaður, sdm með þessum fáu orðum, er hann verður að tala meö hvíldum, vegna sigðar dauðans, sem gripið hefir hjarta hans, hver er hann ? Hann er og verður ieinn af stærstu mönnum, ekki að eins Bandaríkjaþjóðarinnar, heldur heimsins. En hann er enn of nærri þeim eftirlifandi til þess, að nokkur líkindi séu til, að hann geti veriS metinn aS verSIeikum. Vér sjáum Woodrow Wilson á æsku -og náms- sbeiði, gáfaðan, námfúsan, alvarlegan frá byrjun, hreinan í hugsun og í orði, dálítið einrænan og ákveS- inn frá byrjun í því, að gjöra það, sem hann áleit skyfdu sína, og gjöra,það vel. Vér sjáum hann sem mentamanninn, virtan af öll- um, sem til hans þekkja, í fremstu röð mentamanna þjóðar sinnar, með skarpan skilning á mannfélags- málum, hagfræði og réttarfarssögu þjóðarinnar. Vér sjáum hann sleppa hendinni af Princeton- háskólanum, sem hann hafði veitt forstöSu í átta ár, frá 1902—1910, til þess aS takast á hendur ríkisstjóra- embættið í New Jerséy, og meS atorku sinni og fram- sýni vinna sér einnig í því tiltrú, traust og vi’rðingu samborgara sinna. Fram að þessum tima er líf Woodrow Wilsons glæsileg sigurför. ÞaS er eins og hvert einasta verk hans sé að benda þjóðinni á, að þarna sé um að ræða mann, sem gjöri alt sem honum sé falið að gjöra, vel, og leysi það af hendi með trúmensku og skörungs- skap.. Það gat því naumast hjá því fariS, að manni eins og Wloodrow Wilson yrði veitt ailmenn eftirtekt, og aS hann yrSi kvaddur til þess að taka þátt í hinum þýðingarmestu og vandasömustu viðfangsefnum þjóS- ar sinnar. Enda er þess ekki langt að bíða, því árið 1912 var hann kosinn forseti Bandaríkjanna og aftur 1916, og það er einmitt í þeirri stöðu, æðstu stöðunni, sem sú mikla þjóð getur veitt nokkrum manni, að sig- urför þessa glæsilega og yfirlætislausa manns breyt- ist í hina átakanlegustu sorgarsögu, sem hjá þeirri þjóð hefir nokkurn tíma veriS skráð. Til þess að geta gert sér grein fyrir því, hve beisk- ur bikar það hefir veriS, sem Woodrow Wilson þurfti aS drekka, er nauSsynlegt að gjöra sér grein fyrir upplagi mannsins. Woodrow Wilson var maður dulur í skapi og ein- rænn. Frá æskuárum hafði’ hann vanist á að brjóta viðfangsefni sín til mergjar sjálfur og reiða sig á sína eigin niðurstöðu. En hann var aillra manna vandað- astur að þeim niSurstöðum, og þegar hann var kom- inn að því sem hann áleit rétt vera, stóS hann við það, hverjir sem í hlut áttu, og á þann hátt lærSi aS bera virðingu—kannske meiri virðingu fyrir skoðunum sjálfs sín, heldur en skoðunum annara. Annað var það, að Woodrow Wilson átti mjög erfitt með að opinbera fjöldanum alvöru og áhuga- mál sín, og allra manna var hann fráleitastur þvi, að kaupa sér hylli annara með yfirlæti eSa útslætti. Afleiðingin varð sú, að hann var þegar í byrjun mjög misskilinn af þjóS sinni, og hvað hann tók sér þann misskilning nærri, má meðal annars marka á þvi. er hann sagði einu sinni við ritara sinn, sem Joseph P. Tumulty heitir: “Ó, hvað eg þrái kærleik þjóðar minnar; en eg fæ aldrei notið hans.” Vilja menn veita eftir^pkt, hve skerandi þessi orð forsetans eru? líonum finst hann vera einn og yfir- gefinn og kuldinn nístir hann frá ö'llum hliðum. Samt getur hann ekki fengið sig til þess aö finna þenna kær- leiksyl, sem hann þráir, leika um sig og fylla hjarta sitt, af þvi, að honum finst að hann þurfi aS bregð- ast æðstu hugsjónum íinum til þess. Og það er ein- mitt þetta, sem gjörði manninn stærstan. Enginn þjóðhöfSingi BandarikjaþjóSarinnar hefir nokkurn tima verið i eins miklum vanda staddur og Woodrow Wilson á striðsárunum. Umhverfis þjóð ma logaði striðseldurinn. Ótal raddir úr öllum áttum kváðu við, sem kröföust, að forsetinn gerði þetta eða hitt. En hann sigldi sinn sjó—hann vissi, aö þjóðin sín var ekki eitt, þegar til striðsmálanna kom, og hann skildi lika, að það var hið mesta óvit, aö ætla sér aö þvinga hana á einn eða annan hátt, að þvi er til þátt- töku hennar kæmi i stríðinu, og því var óumflýjan- legt aS bíða—bíða unz hún var reiðubúin. Þvi oss dylst ekki, að hann hafi séð, aS að þeirri stundu hlyti að koma. Og svo kom hún. Þjóðverjar veittu Banda- ríkjaþjóöinni það sár, sem hún ekki þoldi, og þá kvaddi hann þjóöina til striös. En þess skyldu menn mínnast, að hann kvaddi hana ekki til hefndar fyrir fólk sitt, sem saklausu var sökt í sjóinn. Hánn kvaddi hina þróttmiklú Bandaríkjaþjóð til þátttöku í striðinu.til þess að vernda rétt lýðfrelsisins í heim- inum. Um það atriöi þarf ekki að skrifa langt mál. Skýrt og greinilega gjörir Woodrow W'ilson grein fyrir þátttöku þjóðar sinnar í stríöinu í ræðu þeirri hinni heimsfrægu, er hann flutti í þjóSþingi Banda- ríkjanna 2. apríl 1917, þar sem hann í fjórtán atrið- um tekur fram rétt þjóðanna og hugsjón þá, sem þær verði að stefna aS. Öllum er nú kunnugt um, meS hve miklum mynd- arskap aö BandaríkjaþjóSin gekk í þetta mál og endalok þau, sem á stríðinu urðu, og þó þjóðin öll eigi þar að óskift mál, þá er samt forsetinn, Wood- row Wilson, aðal afltaugin í þeirri frábærlega miklu atorku, sem þjóðin sýndi. Svo kemur stórkostlegt atvik fyrir í lífi þessa manns, sem sýnir ef til vill betur en nokkuð annað, hvaða mann hann haföi að geyma. ÞaS var kveld eitt, Woodrow Wilson var staddur í Metropolitan leikhúsinu, þegar honum var rétt símskeyti, sem til- kynti honum, að vopnahlé væri komið á, og að til grundvallar fyrir því hefðu verið lögð þau fjórtán atriöi um þjóöréttindi, sem að hann hafði tekið fram í ræðu sinni 2. apríl 1917. Flestir menn mundu hafa látið í ljós gleði sína út af þeim fréttum—en forset- inn beygir sig ofurlítið áfram, svo að hann geti betur lesiö símskeytið viB ljósbirtuna, sem var dauf, og enginn maður sá honum bregða, né vissi um hvað um var að vera, fyr en leikn^nn var lokið. Svo þekkja menn sögu Wöadrow Wilsons. Hann var alt í einu orðinn voldugasti þjóðhöfðingi í heimi Hann fer til Versála 1919 tii þess aS taka þátt; í friSarsamningunum. Þjóðhöfðingjarni'r í Evrópu keppast hver viö annan um að veita honum virðingu, og lýSur landanna fagnar honum sem vel- gjörðamanni og vin. En í þeirri ferð mætir honum Waterloo hans. Um það farast skáldinu Anatole France orS á þessa leið: “Hann þekti ekki myrkra- öfl þau, sem hann átti þar við að etja, og þau urðu honum yfirsterkari.” En sárustu vonbrigðin verða þó, þegar aö hann kemur heim og þjóðin hans snýr við honum bakinu og aS hann stendur einn uppi með hugsjónir sínar atyrtur og yfirgefinn. Samt lætur Woodrow Wil- son ekki bugast, en berst eins og hetja, og kveðst heldur vilja falla meö máiefni því, sem hann viti að vinni sigur fyr eða síðar, heldur en að sigra með því málefni, sem hann viti að verði aS falla. Og hann féll—féll eins og hetja, sem ekki kunni að hræðast, og sem kaus sér heldur dauða, en að svíkja hugsjónir þær, sem hann var sannfærður um að væri sannar, — féll í þjónustu réttlætisins, bróSur- kærleikans og mannúðarinnar, — fédl, en hélt þó velli. ---------o------— Fjármálin á íslandi. ÞaS getur ekki hjá því farið, að fjármála ástandiö á íslandi, eins og það kemur fram i fjármálaræðu fjármálaráðherrans, Klemens Jónssonar, og í ræSu alþingismanns Jóns Þorlákssonar, er hann flutti ný- lega í Reykjavík, veki almenna eftirtekt, og lika kvíða hjá hverjum hugsandi manni um, að hagur þjóöarinn- ar íslenzku sé kominn í verulega alvarlegt ásigkomu- lag. Báðir þessir menn, sem eru glöggir og þjóðkunn- ir, ganga hreint til dyra, fletta hóflega, en þó ákveSiS ofan af ástandinu, svo að hver maður getur séð, aS í fjármálunum er ekki nema um tvent að velja fyrir þing og þjóS: Anað hvort að sjá aS sér og taka i strenginn, eða gjaldþrot að öörum kosti. Oss skilst, hve sárt að báðir þessir menn hafi fundiö til, þegar kringumstæðurnar neyddu’ þá til þess að kveða upp þenna alvarlega dóm—yfir þjóö og landi, sem þeir báöir unna, og oss finst að þjóðin öll muni nema staðar við orð þeirra og leggja sér þau á> hjarta í allri einlægni. Jón alþingismaöur Þoriáksson sýnir fram á, að tekjuhalli stjórnarinnar á íslandi frá árinu 1917 og til enda ársins 1922, nemi 16,213,812 kr. og 20 au. Svo sýnir fjármálaráðherrann, Klemens Jónsson, í sinni ræSu nú í þingbyrjun, sem partur er prentaSur af hér í blaðinu, að tekjuhallinn á árinu 1923 hafí numiö 1,380,000 kr. Svo allur tekjuhallinn, sem orðið hefir þessi árin, að árinu 1917 meötöldu, nemur 17,593,812 og 20 aurum, eða nálega 108 kr. og 52 au. á hvert mannsbarn í landinu, með því að telja 95,000 íbúa, og er sízt áS furða, þó hugsandi mönnum þylci búskap- urinn all-ískyggilegur, þar sem þetta er að mestu eða öllu leyti tapað fé. Það er aS visu ekkert sérstakt fyrir íslenzku þjóð- ina, aö vera í erfiSum fjárhagslegum kringumstæSum nú sem stendur. Það eru Frakkar, Þjóðverjar, ítalir, Pólverjar, Austurrikismenn lika, og helzt allar eða Tlestar þjóðir heimsins nú. En það stendur ef til vill ver á fyrir íslendingum, en nokkurri annari þjóð að mæta hinum erfiöu kringumstæöum, og þaö er sökum þess, hve þjóðin er fámenn og þar af leiðandí hvað framleiðslan er takmörkuð. Blöð þau og einstaklingar, sem til sín hafa látiS heyra í sambandi viö fjármálaástandiS á íslandi, hafa gjört sitt ýtrasta til þess að láta þjóðina skilja, að þó útlitið sé ískyggilegt, þá samt sé ekki ástæða til þess að æðrast, ef rækilega sé í taumana tekiö. En því miöur hafa fæstir þeirra sýnt fram á, hvernig að í taumana eigi að taka. Að vísu hefir fjármálaráð- herra landsins, Klemens Jónsson, bent á þrjár leiðir, sem þjóð og þing geti fariS: x) að láta útgjöld og ihntektir þjóöarinnar mætast; 2) aS innheimta tekjur landssjóðs með 25 prct. álagningu, sem tilsvari falli á gjaldmiðli þjóðarinnar, sem áfallinn sé, og 3) að banna meS lögum innflutning á óþarfa vörum. Tillögur þessar eru allar skynsamlegar, og eru þau ráðin, sem flestir grípa til undir slikurn kringum- stæðum. En eru þau ráS einhlít, eSa þá þau farsæl- ustu undir kringumstæðunum ? EngUm manni blandast hugur um, að fyrsta ráðiS, sem ráðherrann bendir á, er lifsspursmál — þaS, að inntektir og lítgjöld ríkissjóSsins að minsta kosti mæt- ist. En undir kringumstæðunum dugar það ekki; það verður að vera tekjuafgangur og hann aS mun. hvernig svo sem að landar vorir fara aö því að ná því takmarki; en það er jafn áríðandi fyrir þá og aö láta inntektir og útgjöld ríkissjóðsins mætast. Og af hverju? Af því að það er eini vegurinn til þess aö bjarga trausti útlendra lánardrotna á þjóðinni. ASal vandinn og hættan í þessu máli’, er falliS á gangmiðli þjóðarinnar, og þvi líka aðal viðfangsefni hennar nú. Aðal ástæðan fyrir þvi gjaldmiSilj falli er ekki fólgin í því, aö vörur þær sem þjóðin hefir til aS selja, séu minni' heldur en þær, áem hún kaupir, heldur eins mikið eða jafnvel meira í því,, að lánardrotnar þjóSarinnar álita ríkisskuldirnar vera orðnar meiri, en þjóðin geti vel staöiö. straum af; eöa með öðrum orð- um, aö pantur sá, sem þeir halda fyrir lánum sínum, sé ekki tryggur. Þegar svo er komið, að lánardrotn- arnir fara aS búast við aS tap sé mögulegt, þá er það tap metið og gjaldeyrir eða gjaldþol fellur í hlutfalli við hið áætlaða tap, eða fyllikga það. ÞaS er því ekki nóg, þó aS þjóöin, sem í hlut á, geti látið inntekt- ir og útgjöld mætast hjá sér. Hún verSur líka að end- urreisa tiltrú og gjaldvissu skuldheimtumanna sinna, og fyr en það er giört, nær gjaldmiðiílinn aldrei sann- verSi sínu. Hver eru þá úrræðin ? Þau sem ráSherrann bend- ir á? Hið fyrsta þeirra er sjálfsagt, eins og vér höfum þegar tekið fram. AnnaS, að leggja 25 prct. skatt á tolla og gjöld, er neySarúrræði, sem ekkert gott get- ur gjört, annaS en mæta halla þeim, sem á er orðinn gjaldmiðlinum, en getur ekki aS neinum mun aukiS möguleika stjórnarinnar til þess að grynna á skuld- unum. Svo er þaö lika hættuleg aðferð, því þaS hlýt- ur aS verða tilfinnanlegur skattur á gjaldendur þjóð- arinnar, án þess þó að bæta nokkuS verulega fyrir henni. Plugsum oss, að þessi aÖferð verði notuS al- ment í viSskiftum manna á íslandi. Hvíjíkur geysi- skattur yrði’ þar þá ekki. Tolltekjur stjórnarinnar á íslandi námu 3,787,000 kr. árið 1922. Af þeirri upp- hæð yröu menn að borga með þessu nýja fyrirkomu- lagi 946,750 kr.,eða nærri xo kr. á hvert höfuð í land- inu. Ef sama aðferS væri notuB við allar innkeyptar vörur, sem námu 47,200,000 kr. áriS 1922, þá fer sá skattur upp í 11,800,000 krónur, eða rúmlega 124 kr. á ári á hvert mannsbarn í landinu, og er það enginn smáskattur. Samt er það ekki það versta. ÞaS versta er, aS þó menn haldi áfram að borga þenna gengis- falls skatt í 50 ár, þá lagar hann ekki'sannvirði gjald- miðils þjóSarinnar, né heldur léttir hann skuldabyrð- in af henni'. Hann aS eins veikir gjaldþol hennar, sýgur úr henni þrótt og veikir sjálfstæSisvon hennar. Hann færöi þjóSina að engum mun nær því þýðingarmikla takmarki, að rétta við gengismuninn eSa gengisfallið á gjaldmiðli hennar. Þriðja úrræöið, að banna meS lögum innflutning á óþarfa varningi, eða vörum, sem þjóðin getur vel ver- iS án, nær naumast tilgangi sínum, nema því að eins, aS ríkissjóði sé trygSur hagnaöur sá, sem við þá ráð- stöfun sparaðist. Þó að innflutningur á óþarfa vörum sé takmark- aður meS lögum, þá hjálpar það þjóðinni ekki minstu vitund, ef hún eySir því fé, sem henni á þann hátt sparaðist , til annars en aS1 tryggja sannvirði á gjald- miðli sínum. ÞaS sem oss virðist óhjákvæmilegt fyrir þjóðina að gera, er fyrst að gjöra sér grein fyrir fjárhagsástand- inu, eins og þaS i raun og sannleika er, og ef hún öll sem einn maður kemst aS þeirri niðurstöðu, að veru- legur fjárhagsvoði sé fyrir hendi, þá byggjast mögu- leikarnir til þess að komast út úr honum á einu, og aðeins á einu. Hvað vill þjóöin leggja mikið á sig, til þess aS afstýra vandræðum? Vill hún leggja fram frá 5—6 miljónir króna á ári í 3—4 ár, auk hinna al- mennu útgjalda, til þess að borga niður í ríkisskuld- Inni, og með því tryggja aftur fult traust lánardrotna sinna, og þá líka sánnvirði’ gjaldmiöilsins ? Vér búumst við, aS slíkt þyki hart brauð. Þó er það engan veginn frágangssök, ef a'llir eru eitt um það, og satt aS segja eina ráðið til þess aS bjarga f jár- málum þjóðarinnar viS. Því það er ólíkt betra, aS þola harðrétti yfir stutt tímabil og lifa svo, heldur en aS rogast með byrði, sem menn rísa varla undir, í tugi ára og geta aldrei um frjálst höfuð strokiS. ---- ----—o------—— Stjórnin á Islandi biftur um lausn. Forsætisráðherra lýsti 'því yfir í fundarbyrjun í ibáðu'm jþingdeild- um í gær, að stjórnin hefði beiðst lausnar af konungi. Væri þau til- drög til jþess, að í þingibyrjun hefði stjórn “íhaldsflokksins” æskt Iþess, að ráðuneytið segði af sér, því að flokíkurinn óskaði að taka við stjórninni, en “fram- sóknarflokkurinn” hefði þá iýst því yfir, að ráðherrann, sem hann styddi sérstaklega, skyldi beiðast lausnar. Þegar svo var komið, kvaðst forsætisráðherra ekki hafa séð sér fært annað en að beiðast lausnar fyrir sig og samverka- mann sinn. og 'hefði hann 'því símað til konungs og skýrt honum frá því hvernig komið væri, og þar með, að “íhaldsflokkurinn” undir forystu Jóns Þorlákssonar, teldi sig færan um að mynda nýja stjórn, þótt ekki hefði hann vneíri hluta þingsins innan sinna vé- banda. Svar hafði þegar borist frá konungi, þess efni.s, að stjórn- inni væri veitt lausn, en falið að gegna stjórnarstörfum, þar til ný stjórn væri skipuð. Vísir. 7. marz. CANAOIAN PACIFIC STIiAMSHlPS beinar ferðir milli bretlands og canada Ef þér ætlið að flytja fjölskyldu yðar, frændur eða vini til Canada, þá skul- uð þér gæta þeas vandlega að á eimskipafarseðlinum standi CANADIAN PACIFIC STEAMSIIIPS Það nafn tryggir yður beztu afgreiðslu, sem hugsast getur. Eimskip vor sigla meö fárra daga millibili frá Glasgow og Liverpool beint til Canada. Frekari upplýsingar verða gefnar með ánægju án nokkurra kvaða að yðar hálfu af umboðsmönnum vorum. Einnig H. S. BARDAL, 894 Sherhrook Street, eða W. G. CASEY, Gcneral Agent Canadian Pacific Steamships, 364 Main St., Winnipeg, Manitoba Fjáriiagsástand og horfur. 20. þ. m. lagði Klemens Jónsson fjármálaráðlherra fram í neðri deild fjárlagafrumvarp stjórnar- innar fyrir 1925 og flutti jafn- framt yfirlitsræðu þá u'm fjárhag landsins og ihorfur, sem venja er. Verður sagt hér nokkuð frá aðal- efni ræðunnar, en vísað að öðru leyti um fjárlögin alment til yfir- lits þess, sem fyr er komið hér í blaðinu. Ráðherrann sagði frv. þetta að- allega bygt á útkomu ársins 1922. Lýsti hann fyrst istuttlega fjár- hagnum á undanförnum árum og þeim tekjuhalla, sem sífelt ihafi verið frá því 1920'. Eftir athugun sinni á því máli fiagði hann, að sér hefði talist svo til, að hallinn væri alls (1920 til 1922) um 6% miljón. pó kvaðst hann eiginlega ekki hafa trúað þessu fyrst og fundist svo sem frá þessu mætti “Öraga t. d. afborganir af lánum. En þó sagðist hann ekki hafa komist lengra niður með hallan en að hann væri um 4 miljónir. Annar maður (Jón 'porláksson) hefði einnig rannsakað þetta mál ýtarlega frá 1917 og teldi hann hallann ennþá meiri eða um 7.4 milj. og kvaðst ráðiherra ekki geta véfengt um það. En við þetta bættist 'Svo nýjasti tekjuhaílinn, sem væri um 1 milj. 380 þús. petta á'Stand sagði hann að væri mjög ískyggilegt, og ef haldið yrði á- fram á þessari braut leiddi hún óhjákvæmilega að gjaldþroti. Ráðherra sagði, að sér hefði að vísu verið það ljóst, þegar hann gekk í stjórnina, að fjánhagurinn hafi verið ibágur. Hinu sagðist hann hinsvegar ekki hafa búist við eða vitað, að hann væri eins lakur og raun varð á, því þá sagð- ist ’hann ekki mundi hafa tekið það í mál að ganga í stjórnina. Fjárfarið 'hefði reynst þannig, að oft Ihafi verið allörðugt að komast yfir mánaðarmótin, og hefði hann þá stundum hugsað til Árna ga'mla landfógeta og hans tíma, og hvað hann mundi hafa sagt, ef þá ihefðu aðeins verið um 20 þús. kr. í sjóði við «Hk tæki- færi, hann sem aldrei hefði verið ánægður með það, að hafa minna en 100 þús. og hafi velta fjárlag- anna þó öll verið miklum mun minni en nú. Ráðherrann sagðist af öllu þessu 'hafa ákveðið að draga úr eða jafnvel hætta öllum verkleg- um framkvæmdum, þar sem unt hafi verið, t. d. ekki átt við lagn- ing símalína eða vega, nema rétt viðhaldið eitt. Eitt stórfyrirtækið enn hefði einnig orðið fyrir töf- um af þessu, og það væri Flóaá- veita'n. Frumskilyrði þess, að unt væri að lagfæra þetta taldi ráðherran það, að fjáriögin væru ihöfð ekki einungis með jafnvægi, heldur með sæmilegum tekjuafgangi. Þessu mætti ná á tvennan hátt, með því að áætla tekjurnar mjög varlega og með því að draga út gjöldunum. Þetta kvað hann stjórn- ina hafa reynt að gera. Að vísu hefði sér verið það sárnauðugt að fella niður suma liði og sleppa t. d. verljlegum framkvæmdum. pað, sem unt væri nú ihelst að tala um í Iþví sambandi félli nú á Búnað- arfélagið og Fiskifél. og hefði þó orðið að skera af styrknum til 'beggja. Hann sagði einnig, að unt hefði verið að skera nokkuð meira niður af svonefndum bitlingu'm í 15. gr. En ihann hefði þó ekki gert það því bæði væru ýmsir þeir liðir orðnir gamlir, þó máske hafi ekki verið svo til ætlast í öndverðu, og svo væri álitamál hverju ætti aðj sleppa og hverju að ihalda og loks | væru flest af þessu liðir, sem ekki: munaði mjög mikið um. En sem: þingtnaður kvaðst hann greiða atk.; með öllum slíkijm sparnaðartill. j Því næst gaf ráðherra töluyfirliti yfir helstu liði fjárhagsins á ár-l inu 1923 eftir því sem nú væri unt; að trera hann urxn. og bar samanj áætlun fiárlaganna oe hina rann-' verulegu útkomu. Ýmsir tekjuliðir höfðu farið nokkuð fram úr áætl- un, svo sem vitagjöld. áfengistoll- ur og vörutollur. Sumir liðir væru einnig undir áætlun s. s. tóbaks- tollur, stimpilgjald og símagjöld. En flestir aðrir liðir reydust svip- aðir og áætlað ihafði verið. Gjöldin höfðu hhisvegar mörg farið fram úr áætlun. Má þar t. d. nefna vexti af lánum eríendis vegna gengismismunar og þing- kostnað. Skoraði ráðherra í því sambandi á forseta og þingmenn nú að gæta allrar sparneytni i þinghaldinu. Ein'nig' höfðu Ihækk- að allmikið liðirnir: ýmisleg gjöld aðallega vegna aukinnar land- helgisgæslu, eftir ósk landsmanna sjálfra. Einnig höfðu gjöldin til síma hækkað nokkuð einkum vegna aðgerða og breytinga í Rvík og á Akureyri, sömuleiðis gjöldin til vegamála og vitamála og til and- legu stéttarinnar. Ráðherra áleit því, að afkoman árið 1923 hefði orðið sæmileg, ef fjáraukalögin hefðu ekki komið , fram, og ef ekki ihefði þurft að greiða ýmislegt utan fjárlaga, .samkvæmt sérstökum lögu’m. Að því er til frv. kæmi, st'm nú lægi fyrir sagði hann að hann teldi tekjurnar yfirleitt varlega á- ætlaðar, og þó fullháar t. d. auka- tekjur, kaffi- og sykurtóllur, og einkum vlörutollurinn. Hinvegar mætti útflutningsgjaldið senni- lega vera áætlað nokkuð hærra. (Þess skal getið, að fjárlaga- frv. er fullsamið áður en skýrsl- urnar um útkomuna á síðasta ár- inu ,.sem tekið var til samanburð- ar, voru kovnnar til stjórnarinnar. Þessu næst snéri ráðherrann sér að því, að tala um framtíðarhorf- urnar. Fyrstu og helstu nauðsyn- ina taldi hann þá, að spara, ekki einungis í orði, heldur á borði. Hann kvaðst ávalt hafa verið fremur bjartsýnn en hitt og áliti að hann gæti verið það enn, ef I rétt og skynsamlega væri að far- i ið. Nú hefði verið undanfarið fremur gott ár, horfurnar langt frá því slæmar, eftirspurn góð eftir íslenskum afurðum, s. s. fiski og verðið gott. Hinsvegar hefði ennþá ekki tekist að fá lagfæringu á kiöttollinum norska, en heyrst hefði þó, að þessa dagana væri að , kom fram í n-orska stórþinginu frumvarp í þá átt, að slaka eitt- hvað til, hvernig se*m það annars væri, eða hvað sem úr því yrði. Annars sagði hann, að aðalá- 'hyggjuefnið hlyti nú að vera I fallandi gildi íslensku krónunnar ! og þar af leiðandi hækkandi ýms útgjöld ríkisins, beinlínis og ó- beinlínis. Rakti hann síðan nokk- uð sögu þessa gengismáls í Dan- mörku og hvernig Dönum hefði mistekist að halda uppi gengi sínu með þeim lántökuráðstöfun- um til gengisjöfnunarsjóðs, sem þeir hefðu gert. Orsakir gengis- hrunsins væru venjulega taldar, annarsvegar inflationin, eða of- mikil útgáfa ógulltrygðra seðla, og 'hinsvegar negativur verslun- arjöfnuður, eða meiri iniT- en út- flutningur. Þessar s'ömy ástæður væru einn- ig fyrir hendi’ hér. pegar íslands- ibanki var stofnaður var danski þjóðbankinn spurður ráða um seðlaþörfina og taldi hana um 30 krónur á mann. Að vísu kvað ráð- herra það auðséð, að þ^tta hefði ekki getað staðið í stað en befði orðið að aukast, en sú aukning ihefði átt að koma hægt og nægt, eins og líka hefði verið fyrstu ár- in. En svo hefði seðlafúlgan stöð- ugt farið vaxandi fram úr öllu hófi og ihafi t. d. 1919 verið 11 miljónir eða um 110 kr. á mann. í þessu taldi hann fólgna aðal- uppsprettu allrar ógæfunnar. Nú væri seðlafúlgan aftur ko'min í sæmilegt-horf, fyrir inndrátt seðl- anna, og 1. febr. þ. .á voru t. d. seðlar í umferð um 5 miljónir og kvað ráðherra það á engann hátt geta talist óhæfilegt og væri það mál nú alt á góðri leið. pví næst vék hann að annari meginorsökinni; þeirri, að meira væri flutt inn en út og munaði það allmiklu og stæði nú illa. Að öðruleyti kvað hann það ástæðu- laust að vera að brjóta heilann um orsakir þess, þetta ástand væri staðreynt hvort sem væri. í þessu sa'mbandi gat hann þess einnig, að sér væri ekki ljós nauðsyn þess, að íslenska og danska krón- an þyrftu að fylgjast að, eða falla saman. Að þessu loknu snéri ráðherr- ann sér að því, að athuga ráðin, sem möguleg væru út úr þessum ógöngum. Ekki sagðist hann þó vera gáfaðri en svo, að hann hefði ekki getað fylgst með eða skilið all- ar þær tillögur, sem fram hefðu komið í þessum málu’m og síst það, hvernig ætti að framkvæma þær. en skýra heldur aðeins frá ráðum stjórnarinnar í þessum efn- um. Fyrsta úrlausn stjórnarinnar

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.