Lögberg - 22.05.1924, Qupperneq 2
Bls. 2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN,22. MAf. 1924.
P:
KVALDIST I
ÞRJÚ ÁR-
Ósjálfbjarga af gigt
en Fruit-a-tives
hjálpaði mér
roe. p e
BOISSINOT
Þaí er engin furÖa, Jx') fólk lialdi upp á “Fruit-a-tives” og telji
{>að, sannan vin hverrar fjölskyldu.
Það er ekki nema eölilegti aö fólk, sem þjáðst hefir árum saman,
gleðjist yfir því, aö losna við þjáningar sinar.
Mr. P. R. Boissinot, að La Broquerie, Man., skrifar: “Eg varð
að hætta starfi mínu, handleggirnir voru stokkbólgnir og mátturinn
þvarr óðum. Mér fanst, sem eg mundi aldrei framar geta gefiS mig
við bændavinnu. En dag nokkurn sagði frændi minn einn mér af
"Fruit-a-tives”, sem ágætis gigtarmeöali og ráölagði mér aö reyna
það. Eftir pvi iðrast eg ekki, því innan skamms tíma, var eg oröinn
heill heilsu.
“Fruit-a-tives'’ er undrameöal, unnið úr epla, appelsínu, fíkjy. og
sveskju safa, og er bezta meðaliö, sem þekst hefir. við gigt, bakverk,
höfuðverk, taugaslappleika og meltingarleysi.
25c- °S 5°°- askjan, hjá öllum lyfsölum, eða beint frá Fruit-a-
tives, Limited, Ottavva, Ont.
Œfiminning Jóhannesar Vigfússonar, prentara
Þetta er marzmánuður og í dag
er sá tuttugasti og þriðji', svo á
Jtessari stundu má rétt ár heita lið-
ið síðan Jóhannes Vigfússon var
lagður í gröf sína.
Hann var maðurinn, sem ekki
fanst forðum daga, þegar til hans
átti að taka, að bera vitni á rnóti
Skúla Thoroddsen í isfirzku mál-
ununt. Ekki hæfir að leggja hér
neinn dóm á dómsúrslit þessara is-
firzku mála. Bæöi það og annaö,
sem Skúli átti aö mæta fyr og sið-
ar á sinni lífsleiö, hlýtur aö hafa
sinn dónt með sér i sögu íslands,
þegar frant liða stundir. Hitt má
hér fullvrða, að Jóhannes Vigfús-
son hafði’ sjálfur verið saklaus
eins og barn i þeim málurn, en
Skúla var hann eins trúr og bezti
bróðir, og starf hans hafði um
stund verið möndullinn. sem þau
málaferli snerust um. Með Ame-
rikuför Jóhannesar hvarf hans
nafn úr þeirri sögu, en eftir stóð ó-
gleyntd fyrir almenningsaugum hin
stærri nöfnin: Hannes, Lárus og
Skúli’.
Ti! dauðadags gleymdi Jóhannes
því víst aldrei, að bæöi jón Sig-
urðsson og Skúli höfðu umboð sitt
i þjóðmálabaráttunni frá sama
kjördæminu, og allur hans hugsun-
arháttur í islenzkum málum kvaö
til æfiloka viö þann tón, sem hon-
um fanst, að til þeirra manna
mætti rekja. Eg minnist þess
lnegst, hve vel honttm leið við að
setja litla kvæðið: “Og hvað er
betra að höggva i skóg sinn rjóöur,
ef höllin bygð á annars land er
sett?” eftir Stephan G. Stephans-
son, enda mun honum þar hafa
þótt kenna rétta tónsins. Upp úr
því litla kvæöi árið 1908, kváðu
sömtt strengirnir víðar viö. Þá
skeöí sá óvanalegi atburöur, aö Öll
vestur-islenzku blöðin urðu á sama
bandi. Það var i afskiftum sínum
af islenzku kosningunum, sem þá
fórti fram. Fylgi Vestur-íslend-
inga við málstað Skúla, varð þá svo
eindregið, að einir fjórir menn
hérna megin hafsins urðu að þvi
kunnir, að vera þá andstæöingar
|>ess málstaðar. í öllum þeim um-
brotum, sent þessi allsherjar áhugi
vestur-íslenzkra manna var valdur
að, átti verklega framkvæmdin upp-
haflega rót sina að rekja til hinnar
órjúfandi trygðfestu Jóhannesar
V igfússonar í garö fornvinar sins,
Skúla Thoroddsens.
Að slikt gat borið sig, stafaði af
því, hve einkennilega dulkend á-
hrif Jóhannes haföi á þá, sern nána
umgengni höföu við hann, næstum
því án þess þeir vissu sjálfir af
því. Menn festu ósjálfrátt traust
á skoðunum hans og ráðum, þegar
þau var að fá, því skipuleikinn á
11.3 J m Þ0 gerir enga til-
■ 1^1*1 raun út 1 blAinn
S meB þvl a« nota
E>r. Chase's Ointment viS Kczema
og öBrum húösjúkdSmum. paS
græSir undir eins alt þesskonar. Kin |
sskja til reynslu af Dr. Chase s Oint-
ment send frl gegn 2c frimerki, ef
nsfn þessa blaSs er nefnt. 60c. askj-
nn I öllum lyfjabúöum, eSa frá Ed-
vutnson, M it- t & Co„ Dtd.. Toronto.
öllum hugsunum, athöfnum og á-
höldum var á svo háu stigi', að ekki
verður sanngjarnlega við neitt
jafnað annað en klukkuna. Þetta
er svo bókstaflega rétt, að fólk í
húsum, þar sent hann fór um far-
inn veg, setti klukkuna sína eftir
því, hvenær hann gekk að eða frá
verki. Hlvað eina, sem hann haföi
um að fjalla, gat hann jafnt fund-
íð á nóttu sem degi á sinum stað.
Alt stöð eins og stafur á bók. Og
það var við hæfi. Hann var
prentari:
Prentun er rnargra manna iðja,
Nokkrum þeirra verður það prent-
list. Um þá íþrótt má sama segja
og merkur tónfræðingur sagði um
hljóðfærasláttinn:
“Maður spilar ekki meö fingr-
unum.” Auðvitað bendir sú stað-
hæfing til sálarlífsins, sent bak við
hendina liggur. Og þannig var
prentun Jóhannesar Vigfússonar
varið. Það er alkunnugt, að eng-
in iðnaðarmannastétt er, upp til
tópa, jafn-sannmentuð eins og
jtrentarastéttin. Hún hefir á hendi
ferjumensku allra bókfærðra hugs-
ana frá einni sál til annarar. Að
vísu smiöar hún ekki bátana sjálf,
en henni ber að gæta þess, að þeir
laskist hvergi. Á því verður prent-
arinn sérfræðingur í einni eða ann-
ari grein, og í íslenzku nútíðar-
máli mátti Jóhannes áreiðanlega
teljast það. Hann virtist lifandi
persónugjönvingur staf- fræðinnar,
og gat sýnt öllum hennar blæbreyt-
ingum jafnan sóma, hlið við hlið.
Að hafa ekki til flýtisauka, num-
ið af honum þá þekkingu, meðan
tími var til, er sú yfirsjón, sem
mér er nú hin mesta eftirsjón.
Það mætti af þessari frásögn
virðast svo, sem Jóhannes prentari
hefði ekkert veriö nema vaninn, en
sú ályktan færi þó harla mjög vill-
ur vegar. Óhlekkjaðra sálarlíf, en
hans, á öllum almennum hugsana-
svæöum, væri ekki vandalaust verk
aö finna. Uppí á hinu háa fót-
stykki tamdrar háttsemi, var þeim
mun betra svigrúm og útsýni fyrir
siviðbúinn og æðrulausan anda.
Hverri nýjung, sem að höndum bar,
var mætt með ró og gætni. Ekk-
ert þurfti að fara í fumi og handa-
pati. Honum lá alla jafna í augum
uppi, hverju næst bar að sinna, og
það eins og sagði sig sjálft, hvern-
ig bezt væri aö sinna því. Ekkert
var að óttast, ár og síð og alla *íö
var um ekkert að ræða, nema sama
jafnðargeðið af sama toga spunnið.
Innan um alla þessa kyrð var þó
eftirtektin líkust því, að maðurinn
væri allur saman augu. Það var
ekki mikið varlegra aö fara á bak
viö hann með þaö, sem fela skyldi,
heldur en að ganga hreint til verks
að framan við hann. Ekki þurft’ þó
vinum hans að standa neinn beigur
af því, hvaö hann kynni aö vita, en
öðrum gat af og tll hlotist af þvi
eitthvert ónotalegt gamanyrði. Með
ahri hægðinni, átti hann talsvert
af gletni í fórum sínum, en aldrei
mátti spaugið þó ná svo langt, að
neinn skyldi meiðast. Það var í
samræmi við annað. Alt skyldi
síilla viö hóf.
Jóhannes Vigfússon var fæddur
í Hítarnesi í Kolbeinsstaðahreppi í
Hnappadalssýslu, 10. dag desember
mánaðar 1840. Að ætterni, þegar
miðaö er við eftirlifandi menn hér
vestra, var hann í aðra ættina þre-
menningur við Bergþór Þórðarson,
fyrverandi bæjarstjóra á Gimli, og
í hina ættina þremenningur við
Guðmund Fjeldsted fyrv. þing-
mann Gimli-kjördæmis, en einum
lið enn þá nánari, nefnilega að öör-
um 'og þriðja, var skyldleiki hans
við Soffíu, konu Jóns ritstj. Bild-
fells, og við Þorkel Sveinsson
kaupmann í Selkirk, og alsystkin
hans.
Vigfús, faðir Jóhannesar, vann
við verzlun í Búðakaupstað, og dó
ungur. Faöir Vigfúsar var Guð-
mundur Sigurðsson, 'bóndi í Kol-
beinsstaða hreppi; en móöir hans
var Sigríður, systir Bergþórs á
Ánabrekku í Mýrasýslu.1
Guðrún, móðir Jóhannesar, var
dóttir Vernhards Þorkelssonar i
Reynholti og Ragnheiðar Einars-
dóttur, sem var systir Eyjólfs í
Svefneyjum, Magnúsar í Skáleyj-
um, Katrínar í Látrum og Þor-
bjargar konu Andrésar Fjeldsteðs
hins eldra á 'Hvítárvöllum. Systir
Guðrúnar var Ástríöur, amma
Soffíu Bíldfell; en bróðir Guörún-
ar var Þarkell, faðir Jóhanns dóm-
kirkjuprests og Veroníku, sem var
seinni kona Sveins Kristjánssonar,
bónda á Framnesi í Víðirbygð í
Nýja íslandi. Allur þessi afspreng-
ur séra Vernharðs, er af sama bergi
brotinn sem Jón skáld Þorláksson,
kominn af Vídalínsætt og frá Jóni
biskup Arasyni, en sú ætt veröur
aftupr rakin til Ragnars loðbrókar.
Árið 1883 kvongaðist Jóhannes.
Kona hans varð Ólöf Guðmunds-
dóttir, Vigfússonar frá Bíldhóli á
Skógarströnd. Hún lifir 'mann sinn
og er til heimilis í Álftavatnsbygð-
inni. Börn þeirra eru :Ragnheið-
ur, kona Haraldar Davíössonar i
Winnipeg, og Guðmundur, sem
einnig er þar til heimilis.
Prentlistina nam Jóhannes í
Kaupmannahöfn á unga aldri, og
gaf sig meira og minna við henni
fram undir sextíu ár. Fyrst í
Reykjavík og á ísafirði, þangað til
hæði “Þjóðviljinn” og “Þjóðviljinn
Ungi” voru fallnir í valinn; og síð-
an hér vestan hafs, um lengri eöa
skemmri tínia við allar ísl. prent-
smiðjurnar í Manitoba.
Jóhannes Vigfússon varð rúmra
82 ára gamall. Andlát hans bar aö
höndum á heimili dóttur hans
í Winnijæg, 13. marz 1923. Tiu
dögum síðar var hann jarðsettur í
Brookside grafreitnum.
Á vöxt var Jóhannes fremur
smár, en fríður sýnum og samsvar-
aði sér ágætlega. Snyrtimaður var
hann svo mikill, að hann gætti
sjálfur hárs síns og skeggs, og alls
klæðaburðar til dauðadags síns og
bezt er á tvítugsaldri; enda minn-
ist eg þess, að heyra það eitt sinn
í umtali um ’Jóhannes Vigfússon,
aó hann væri geðfeldur eins og ung-
ur maður, og var hann þó þá kom-
inn yfir sjötugt.
Það hygg eg rétt með farið, að
af störfum Jóhannesar hér vestra,
hafi Baldursverkin orðið honum
ástfólgnust, og næst störfum hans
við “Þjóðviljann.” Samverka-
mennirnir við “Baldur” höfðu all-
margir veriö bornir til grafar á
undan honum,1 þótt hann væri
þeirra elztur: Hjörtur Björnsson,
Páll Jónsson og Pálmi Einarsson,
á unga aldri; Einar ritstjóri Ólafs-
son, miðaldra; og Jóhannes Ólafs-
son, á næsta reki við hann sjálfan.
Þegar röðin kom að honum sjálf-
um, báru prentararnir úr íslenzku
prentsmiðjunum í Winnipeg lik
hans til grafar. Enginn þeirra
Baldursmanna, sem enn lifa, mun
í tima hafa vitað um utför hans.
Heldur en ekki neitt, verður því
einum þeirra nú svona skrafdrjúgt
um ársgamla minninguna, — þó
seint sé.
/. P. Sólmundsson.
-------0------
Innflutningsbann.
Atvinnumálaráðuneyti fslands
gefur út nýja reglugerð.
I.
Atvinnu og samgöngumála ráðu-
neytið hefir 14. marz 1924 gefið út
eftirfarandi reglugerð til bráða-
birgöa um bann gegn innflutningi
á "óþarfa varningi’’. Reglugeröin
er undirskrifuð af Klemens Jóns-
syni, þáverandi ráðherra, og er svo
látandi':
“Samkvæmt heimild í lögum No.
1, 8. marz 1920, um heimild fyrir
landsstjórnina til að takmarka eða
banna innflutning á óþörfum
varningi, eru hér með sett eftírfar-
andi ákvæði um bann gegn inn-
flutningi á óþörfum varningi:
1. gr.
Bannað er að flytja til landsins
vörutegundir þær, er taldar eni
hér eftir:
a. Allar brauðtegundir.
b. Smjör, smjörliki og öll önnur
feiti, nema til iðnaðar.
c. Ostar allskonar.
d. Saltkjöt, flesk, pylsur.
e. Niðursoðið kjöt og fiskmeti,
og allar niðursoðnar vörur
nerna mjólk.
f- Egg, aldini, nema epli og
sveskjur.
g. Kaffibætir, súkkulaöi, síróp,
htinang, brjóstsykur, konfekt,
karamellur, lakkrís, marsipan
og annað efni til konfektgerð-1
og brjóstsykurgerðar, vindl-
ingar.
h. öl, gosdrykkir, óáfeng á-
vtaxtavín
i. Hverskonar vefnaðarvörur og
tilbúinn fatnaöur og höfuð-
föt, nema tvistdúkar, léreft,
molskinn, boldang, segldúkur,
pokar og pokastrigi, fiskum-
búðir JhessianJ, lóðarbelgir,
lampakveikir, sára - umbúðir,
régnkápur, sjóklæði. Enn-
fremur eru undanþ. banni:
vefnaðarvörur, sem unnar eru
úr ísl. ull í erlendum ('norsk-
um) tóvinnu verksmiðjum,
enda séu þær ætlaðar ein-
göngu til heimilisnota, en
eigi til sölu.
j. Doðskinn, hanzkar, reiðtygi,
töskur, veski og aðrar vörur
úr skinni, fjaðrir til skrauts,
fiður og dúnn.
k. Skófatnaður úr skinni, nema
sjóstígvél.
l. Skó-áburður, leöur-áburður,
gólfáburður, vagnáburður, og
fægiefni, baölyf, kerti, sápur,
ilmvötn, hárvötn.
m. Tilbúin stofugögn.
n. Lifandi jurtir og blóm, jólatré.
o. Bréfspjöld, myndabækur,
veggmyndir, kvikmyndir,
myndarammar, rammalistar.
p. Úr, klukkur og hvers konar
gull-, silfur-, plett-, eir og
nikkelvörur, gimsteinar, og
hvers konar skrautgripir.
r. Hljóðfæri hvers konar og
gramophone plötur.
s. Bifreiðar, bifhjól, reiðhjól.
t. Glysvarningur og leikföng,
hverju nafni sem nefnast, flug
eldar.
2. gr.
Nú telur einhver vafa á því, hvort
vara sú, sem hann vill flytja til
landsins, falli undir ákvæði 1. gr.,
og getur hann þá leitað úrskurðar
atvinnu- og samgöngumála-ráðu-
neytisins hér að lútandi, og er það
fullnaðar úrskurður.
3- gr-
Þær vörur, sem komnar eru í
skip i útlöndum áleiðis hingað,
þegar reglugerð |æssi öðlast gildi,
og skipið heldur að fermingu lok-
inni til hafnar hér á landi, má
flytja inn á sama hátt og hingaö til,
sama gildir um vörur, sem þegar
eru keyptar og sendar af stað á-
leiðis hingað á farmskírteini, alla
leið frá sendanda til viðtakanda,
]iótt ekki sé á einu og sama flutn-
ingstæki.
4- gr-
Lögreglustjórar skulu hver í sinu
umdæmi' hafa gætur á þvi, að fyr-
irmælum reglugerðar þessarar *sé
stranglega fylgt, og er þeim heirn-
ilt að setja þær reglur og gera þær
ráðstafanjr hér að lútandi, sem
þurfa þykir.
5- gr-
Brot gegn ákvæðum 1. gr. reglu-
gerðar þessarar varðar sektum, alt
að 100,000 kr.
6. gr.
Með mál út af brotum gegn reglu-
gerð þessari skal fara sem almenn
lögreglumál.
7-. gr-
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi
og fellur þegar úr gildi reglugerð
31. marz 1921 um sama efni.
Þetta er hér með birt öllum þeim
til eftirbreytni, sem hlut ei'ga að
máli.
Merkileg uppgötvun.
Lars Vegard, prófessor við há-
skólann í Kristjaníu, hefir gert
mjög merkilega uppgötvun við
rannsóknir sínar á norðurljósun-
um. Hann hefir komist að þeirri
niðurstöðu ,að utan um gufuhvolf
jarðarinnar sé eins og hjúpur úr
föstum köfnunarefnis- saltpéturs-
samböndum ( nitrogeniumnitrum ).
Hann telur fulla vissu fengna fyr-
ir því, að það sé þessi hjúpur eða
hvolf sem gefi himninum bláa lit-
inn. Enn fremur segir hann, að
frá honum kastist þráðulausu loft-
skeytabylgjurnar aftur svo hægt sé
að senda þráðlaus skeyti' um víða
veröld t. d. alla leið til Ameríku,
en ef að þessi hjúpur veitti ekki
viðnám, væri það gersamlega ó-
mögulegt, því skeytin mundu þá
fljúga hindrunarlaust út í endalaus-
an geiminn og ekki vera hægt að
hemja þau. Fullyrt er,' að fleiri
ráðgátur himingeimsins séu leyst-
ar með þessari uppgötvun.—Ifœnir.
------o-----
Þjóðeraisrækt.
í vetur dó norskur maður i Wis-
consin í Ameríku, að nafni Torger
G. Thompson. Faðir hans, Gull-
eik Thorsteinsen, fluttist frá Voss
í Noregi til Ameríku 1841. Þar
skifti hann um föðurnafn og kall-
aði sig Thompson. Þegar hann dó,
var hann ríkasti bóndinn í sínu
héraði'. Sonurinn, Torger ('Þor-
geirj tók við búinu eftir föður
sinn og varð bóndi svo mikill, að
hann bar af öllum á nálægum slóð-
um, hinn mesti framkvæmdamað-
ur og safnaði miklum auði. Hann
hafði mentast í Vesturheimi, en bar
ávalt ódauðlega ást til alls sem nor-
rænt var, ‘sérstaklega máls og
menta. Og bæði' um það og auð-
magnið ber hin merkilega arf-
leiðsluskrá hans ljósast vitni, um
leið og hún lýsir göfgi og mann-
gildi.
í arfleiðsluskránni mælir hann
svo fyrir, að ekkjan skuli njóta
allra eignanna eftir þörfum meðan
hún lifir. En þegar hún deyr, á
að selja búið og allar eignir og
skifta fjársjóðnum þannig:
40,000 dollarar eiga að renna til
St. Olafs skólans í Minnesota og
vöxtunum af því á að verja til
styrktar fátækum stúdentum, 'sem
hann sækja. 10,000 dollara eiga að
renna til norsk-Iútersku kirkjunnar
í ameríku, og vöxtunum skal verja
til útbreiðslu. Síðan fá ýmsar
smærrí mentastofnanir nokkrar
fjárupphæðir. En því, sem þá er
eftir, sem gert er ráð fyrir að verða
muni kring um 300 þús. dollarar, á
að verja til þess að setja á stofn
kennarastól í norrænum tungumál-
um við háskólann í Wisconsin. Há-
skólinn á að fá þessa fallegu upj>-
hæð til umráða í þessu augnamiði,
og til þess að kaupa og setja þar á
stofn bókasafn norrænna bókmenta
og tungumála, og enn fremur til
þess að styrkja þar til náms stú-
denta af norrænum ættum, en þei'r
verða að geta talað norsku, sœnsku,
dönsku og íslenzku■
Það getur maður nú sagt að sé
að kannast við þjóðerni sitt.
Slíkir synir mega heilir heiman
fara af fósturjörð sinni, er svona
dyggilega vinna sjálfum sér fé og
frama og þó þjóð sinni' mestan.
Þessi Þorgeir fór vestur um haf
og plægði hveitiakra, en sáði fræ-
korni norrænnar sálar i plógfarið.
—Hcenir.
MATTHÍAS LÁTINN
ísland syrgir mætan mög,
— Matthias er látinn. —
Þjóðin situr þögul mjög,
því hún byrgit; grátinn.
Enginn náði hærri’ en hann,
né heldur dýpri tónum;
er guðmóðs-loginn bjarti brann,
þá birti’ oss fyrir sjónum.
Mjög þó Braga blóma krans
beri skáldin yngri,
lengur vara ljóðgull hans
og ljóma’ á tímans fingri.
Taflið aldrei sál hans sveik;
sæi’ hann leik á borði,
sló hún eld, við ljóðaleik,
unz logaði’ á hverju orði.
Litla, krafta-kvæða þjóð,
kalla má þig ríka,
ef þér að eins gæfan góð •
gefur marga slika.
Erlendur Gíslason.
I slandsf r éttir.
Seyðisfirði 12. april.— Nýlátinn
er einn skólapiltur á Eiðum, að
nafni Þorkell Björn Hartmanns-
son, Ásgrímssonar, kaupmanns á
Kolkuós. Banameinið var lungna-
bólga.
Látinn er fyrir nokkru í Jökuls-
árhlíð í No-Múlasýslu, öldungur-
inn Sigurgeir Friðfinnsson, nær-
felt 93 ára gamall. Hann var fram-
úrskarandi ern og hraustur og hafði
fulla sjón fram á dánardag Síð-
astliðið sumar gekk hann alt af á
engjar og meira að segja að slætti’,
og mun það fátitt um mann í svo
hárri elli. — Hleimili átti Sigurgeir
sál. í Mágsseli í Jökulsárhlíð, en
var staddur sem gestur i Bakka-
gerði, er hann veiktist af inflúenzu
og dó þar efti'r viku lgeu.—Hœnir.
AWinnuleysi hefir verið með
mesta móti hér í Reykjavík í vet-
ur. Hefir margt manna verið at-
vinnulausir í allan vetur.
Um 200 manns Ihafa nú sent
ríkisstjórninni áskorun um at-
vinnubætur.
Tracom sjúklingurinn er nú á
batavegi. Augnlæknirinn hefii
skoðað fólk það, sem mest vai
hættan á að smitast Ihefði af hon
um og telur hann nú, að sæmilega
öruggt sé Orðið, að enginn hafi
..smitast.
' Þórhallur Jó'hannesson læknir
andaðist í sjúkrah'úsinu á ísafirði
36 ára gamall. Hann ihafði verið
8 ár læknir á pórshöfn á Langa-
nesi, en var nú að flytja til Flat-
eyrar, en komst ekki lengra en til
ísafjarðar. Hann var kvæntur Á-
gústu Jóhannsdóttur, og lifir hun
mann sinn.
Þóúhallur sálugi hafði lengi
þjáðist af brjósttæringu, og varð
hún banamein hans. Hann var
mætismaður, góður læknir og vin-
sæll mjög. *
Séra Sigurður frá Vigur andað-
ist i Landakotsispítala í gærkveldi.
Hann kom hingað frá ísafirði á
laugardaginn fyrir páska, til þess
að leita sér lækninga, en hafði áð-
ur legið í isjúkrahú'si á ísafirði.
1 Seyðisfirði 19. apríl.
Véltoáturinn Seyðfirðingur fórst
í morgun framundan Stöðvarfirði,
er hann var á Teið hingað heim
frá Djúpavogi. Er giskað á, að
báturinn (hafi rekist á blindsker.
Á toátnum voru 8 menn og fór-
ust þeir allir. Voru þeir þessir.
Þórður Guðmundsson, sem var
formaður bátsins, Ólafur Einars-
son, óli Steinn Jónsson, Sigurður
Gunnarsson og vermennirnir Ei-
ríkur Kröyer, Magnús þorsteins-
son og Guðmundur Haraldsson.
Voru allir þeasir vnenn héðan úr
bænum. Ennfremur Sigþór Þrynj-
ólfsson frá pórarinsstaðaeyrum.
í dag fundu róðranbátar fra
Stöðvarfirði fimm af líkunum og
voru þau öll með flotbelti. Enn-
GIGTIN HORFIN SEGIR
GESTGJAFIIMONTREAL
F. A. Mongeau skýrir frá því,
hvernig hann fékk heilsuna
eftir .átta ára þjáningar af
gigt.
F. A. Mongeau, velþektur hótel-
maður á Prince of Wales hótell-
inu, nr. 17 og 19 McGill College
Ave., Montreal Canada, gefur út
eftirfarandi vitnisburð um gildi
Tanlac meðalsins
“Eftir þaÖ, sem Tanlac hefir
gert fyrir mig, vildi eg geta hælt
því viS alla menn. Eg hafði þjáðst
í 8 ár af gigt og mátti mig tæpast
hræra. Neyddist eg til þess að
ganga við staf. Taugamar voru
orðnar svo ónýtar, að eg fékk ekki
notið svefns um nætur.
Sex flöskur af Tanlac læknuðu
mig gersamlega af gigtinni, og nú
kenni eg mér einskis meins fram-
ar. Taugamar eru komnar í sitt
rétta horf, og eg sef vært og rólega
á hverri einustu nóttu. Þeir, sem
vilja leita frekari upplýsinga, geta
látið mig vita.”
Tanlac fæst hjá öllum ábyggileg-
umlyfsölum. Varist eftirstæling-
ar. Meira en fjöratíu miljón
flöskur seldar.
Notið jTanlac Vegetable Pills
við stýflu.
Búnar til hjá framleiCendum
Tanlac’s.
fremur fundu bátarnir isiglurána
af toátnum, og er giskað á, að tveir
mennirnir, sevn ekki hafa fundist
hafi ætlað að haldá sér uppi á
henni. Líkin, sem fundist hafa,
verða flutt hingað í kvöld.
Báturinn var óvátrygður og
.sömuleiðis fiskfarmur isá, er hann
var. með
,,Menn og mentir”, eftir Pál
Eggert Ólafsson (III. toindi Guð-
torandur biskup þorláksson og öld
hatís) koma út í dag. Þetta bindi
er 9 örkum stærra en annað toind-
ið, og má isvo að orði kveða, að
mestur íhluti efnisins sé áður ó-
kunnur öllum þorra manna.
Árið 1914 reisti hr. Gísli J. John-
,sen, konsúll í Vestmannaeyjum,
varsmiðju til að vinna áburð og
fóðurmjöl úr fiskúrgangi, og hefir
hún starfað óslitið síðan. Hefir
framleiðslan verið 150—330 ismá-
lestir á ári.
Fyrstu árin, meðan mjölið var
óþekt erlendis, — innlendur mark-
aður hefir til þessa enginn verið—
valt á ýmsu með hagnaðinn. En
síðustu árin hefir mjölið selst á-
gætiega; til dæmis hafa Englend-
ingar keypt meginið af þessa árs
framleiðslu fyrir hátt verð.
Annars hefir mjölið verið selt
til flestra landa í Evrópu og alla
leið til Japan, en Japanar nota
manna mest slíka /hluti til átourðar
og eru forvígismenn á því sviði;
hafa bændur í Ameríiku og Eng-
landi mjög notað sér reynslu
þeirra hin síðari ár, með ágætum
árangri.
Mjöl þetta má nota jöfnum hönd-
um til iskepnuifóðurs og áburðar
og er í því tiltölulega mikið af
köfnunarefni'skendum efnum.
Bætiefni (vitamin) eru mjög mik-
il í ’mjölinu, en þau eru jurta-
gróðri sennilega engu ónytsam-
legri en skeþnum. Þau efni vant-
ar algerlega í þann “tilbúna á-
burð”, sem unninn er úr lofti, eða
á annan hátt, efnafræðisTega, og
hingað hefir verið fluttur í stór-
um stíl frá útlöndum hin síðari
árin. — Fiiskúrgangsmjöl þetta
fæst nú keypt hér, sem sjá má af
augýsingu í blaðinu.
Kjartan Jóhannesson hér úr
bænum, andaðist á VífiTstaðahæT-
inu aðfaranótt sunnudagsins 6. þ.
m. Foreldrar hans voru Jcihanne3
Oddsson, verkamaður, og kona
han Sigríður Bjarnadóttir hér 1
toænum.
Frú Kristín Arngrímsdóttir frá
Höfn í Hornafirði andaðist a
Voirdingtoorg-spítala í Danmörku
í gærmorgun, 4. þ. m.
Hinn 9 marz síðaistl. lést að
Þorgerðarstöðum í Fljótsdal einn
af heldri toændum í Héraði. Magn-
ús Óláfsson, fullra 63 ára að aldri.
Um daginn veiddust um 20
strokkar af fallegri imillisíld I
Hornafirði. Mun það eins dæmi
þar, og- ætti að spá góðu um síld-
argönguna. Ekki ólíklegt ireyndar
að Ihún hafi komið þar áður, þótt
eíkki hafi Ihún vakið á sér eftirtekt.
Hænir 4 ,—12. apríl.
Berklavarnafélag ísland's var
stofnað í gær, og kemur í stað
Heilsuhælisfélagsins', sem hér var
áður. Tilgangur félagsins er að
vinna á móti útbreiðslu berkla-
veikinnar, með þeim ráðum, sem
nánara eru tilgreind í lögum fé-
lagsins. í stjórn voru kösnir:
Magnús Pétursson, toæjarlæknír
Sæmundur prófessor Bjarnhéðinss.
Eggert Claessen bankastjóri, K.
Zimsen, borgarstjóri, Haraldur
Árnason kaupmaður, en til vara
Sighvatur Bjarnason justitsráð.
fslendingabók er nú kofmin af
stað. Er ihún toundin í íslenskt
kópskinn, gylt í sniðum og skreytt
greyptum messingtoúningi. Er
hann hið mesta listavark, unnið af
Birni Björnssyni gulTsmið. Mun
bókin hafa ihaldið á þing í dag.
Frú Janþrúður Jónsdóttir kona
Hannesar þjóðskjalavarðar Þor-
steinsisonar dó á heimili sínu,
Klapparstíg 11, ihinn 16. þ. m.
eftir all-langa vanlheilsu. Hún var
dóttir Jóns heitins Péturssonar
háyfirdómara og fyrri konu hans
Jólhönnu Bogadóttur frá Staðafelli
Fædd var hún árið 4851, en giftist
Hannesi 1889. Með, frú Jarþrúði
er ein af mestu merkiskonum þessá
Tands hnigin í faðm idauðans. Hún
var stórgáfuð, vel skáldmælt og
hámentuð. Þar að auki var hún
mikil ihannyrðakona og unni isér-
hverju sem ísTenskt er og fagurt.
Mest er þó um ,það vert, að þessu
fylgdu ágætis mannkostir, því að
hún var mesta gæða kona, kristi-
lega trúuð, afar trygglynd, frænd-
rækin og vinföst. petta fundu aTl-
ir þeir, er náðu vináttu hennar
eða manns ihennar, og þessum
kostum isamferða voru alúð og lít-
illæti göfugrar sálar. Mótlætið í
Tífi isínu og svo heilsuTeysið toar
ihún \neð stillingu og jafnaðargeði
trúaðra manna, er treysta drotnt.
Eigi varð þeim hjónum toarna auð-
ið, en þau ólu upp frá hér um toil
10 ára aldri, 4 ibörn, hvar af 3
voru bróðurbörn ihinnar framliðnu
og 1 toróðir eiginmanns 'hennar og
reyndist hún þeim öllum sem
ræktarsöm móðir. Hún var gervi-
leg kona 0g á yngri árutn, mær
fríð sýnum. í 4 ár var hún ásamt
Ólafíu Jóhannsd'óttur ritstjóri
kvennafblaðsins “Framisókn” sem
upplhaflega var gefið út á Seyðis-
firði að ausitfirskum konum, en
áður hafði hún í félagi við syst-
ur isína og frænku sína gefið út
“íslenska hannyrðaibók,” sem
komst í mikið álit meðal kvenna,
bæði á 'Sveitabæjum og í sjótún-
um. Jarþrúður sál. var heimilisræk
in og starfsöm kona, og auk þess
var hún í ýmsum kvenfélögum og
gerði margt nytsamt, enda var
henni yfirleitt um það Ihugað, að
láta gott af sér Teiða. Hún var
hinn fynsti kvenmaður er kendi
bóklegar námsgreinar í Kvenna-
skóla íslands, einkum tugumái.
enda var hún vel að sér í þei'm. í
stjórnmálatoaráttu íslendinga
fylgdist hún jafnvel með, og vildi
í engu kvika frá fylstu réttarkröf-
um þessarar þjóðar. Guð gleðji
nú sál hennar, og minning henn.
ar geymist tolessuð hjá oss.
Jóh. L. L. Jóhs.
Vantar land til kaups.
1. T4 Sec. 'með iskepnum og á-
höldum, niðurborgun $500.
2. % Sec. Endurbætt. Mixed and
dairy. Tekur við í haust góð nið-
urborgun.
3. T4 Sec. Gott land en ódýrar
byggingar, $500 niðurtoorgun.
4. I/2 Sec. Fyrir kindur og mixed
farming. Getur skift 80' ekrum við
strætisvagnalínu. Góðar toygging-
ar. ínnan við 1J4 m. til járnbraut-
arstöðvar.
5. Starfandi jörð til leigu, til
hluta.
G. S. Guðmundson.
Ártoorg, Man.
NOTIÐ
HANA í
HVERT
SINN OG
YÐUR ER
SAGT AÐ
NOTA
MJÓLK.