Lögberg - 02.04.1925, Blaðsíða 1

Lögberg - 02.04.1925, Blaðsíða 1
Látið taka af yður MYND í nýju loðyfirhöfninni W. W. ROBSON CEECB GÖB4B UYNDIR AÐ S17 POKTAGF, AVE, PR OVINCEK THEATRE pessa vlku Margaret de la Motte í “The BELOVED BRUTE” Næstu viku. Seena Owen í “The Hunted Woman ’ 38. ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 2. APRÍL 1925 NÚMER 14 Helztu heims-fréttir Canada UM RANGÁRÞING. Víðförul, vegmóS vakurt skeiðar bifreið frjóum lendum íramhjá. Fríðinda vortíð dýrindi bygðum ber: brosljóma, silki, flos. Liðast um, lund'góð, lásveitir tíbrá. Hulda með hreinni snild handan við Eyjasand. Vestmanna bergbust bláslikju setur á. Gu'dkofra á gömul fjöll getur fest um hávetr. Svimar í hennar heim huga, sem kenist á flug. Andrí'k um laugalönd lýðholl ihverja árstíð, skáldi sýnir velvild, verðmæti fagurgerð. Sendir hún sveit og strönd sólbliki ofinn kjól; eyðimörk aftanglóð, — jökultindi pellshökul. Langað ihefir ljóðdreng löngum, en vantað föng, friðstól í Fljótshlíð færa — búa sunnu nær. Hillir nú háfjöll handan við -Rangársand. Þæfir Hekla þokukúf; Þríhyrning rofar í. Eftir Guð'mund Friðjónsson. Hlakkar til hugrökk hyggja mín, sögutrygg arfasátu umhverfi augum leiða og Gunnarshaug, Bergjþóru brunatorg, — bregða lófa í Káragróf; löspeki og lífsrök líta, þar sem bezt nýtr. Barnlund minni brjóstvörn bilaði við skálaþil; örðuga átti ferð inn með Njáli mín sál; gekk um eldinn grátklökk, gönuskeiöum þó vön; ómur stáls og eldbrim urðu að ljósum fyrirburð. Ennþá vætir karlskinn, köldu læknar, söguöld; neitt getur næmar hitt Njálu stýl frónska sál. Leitt er hvert lágnætti, ljómi hvergi á helgan dóm. Faldað svörtu fortjald felr víða gull í skel. Þó er verri Þverá; þindarlaus ókind, ergi þrungin, mýmörg misendi vinnur grend. Flæðisafa Fljótshlíð fórnar þeirri óstjóm. ílin sýnir ónot álavargur Njálshvál. Tætir sundur túnfit, tröllaukin drýgir spjöll, engjum veitir ágang, ólm að vinna GunnarshóLm’; Landeyjum "verri en vond, viíhöll hverjum sandþyl, villistrauma vatnsfalí, veiðileysa sireið! Móti vega þeim þyt: þíð í bragði FljótshKð, safamýri, guðsgjöf — græðidísir sammæðra. Gróðursæld gjafmild getur sigrað fimbulvetr, aldarfarsins ósnild, áttaviltan flokkadrátt. Sandroka sólbrend situr um skáldsins vit; sumardaginn söngrám sendíst um Oddagrend. Blótað getur blómlit, bótum neitað grasrót, heiftúð sent hátt 1 loft, hrundið flötum birkilund. Landeyjar í ljósmynd loftblámi setur oft. Ljómað getur ljósbrum Landeyja brimsand. Hillinga hvika-gull Hváli berst um dagmál. Allvel á Eyjafjöll eldi varpa sólkveld. —Vörður. Fullyrt er að atkvæðagreiðsla •um vínsölumálið, muni fara fram í New Brunswick, í öndverðum júnímánuði næstkomandi. * • • Col. Ro'bert McEwen í London, Ont. hefir verið kjörinn forseti 'ullarsölusamlagisins canadiska. * * * Hinn setti fjármálaráðgjafi •sambandsstjórnarinnar, Hon. James Robb, lagði.fram í þinginu fjárlagafrumvarp sitt í vikunni, sem leið. Eru tekjur yfirstand- andi árs, áætlaðar $344,000,000. Er sú upphæð nálægt fimtíu og þrem miljónum lægri en í fyrra. Svo verða útgjöldin lækkuð mik- ið, að tekjuafgangur á fjárlögun- um nemur hart nær tveim miljón- um. Breytingat á tolllöggjöfinni, eru ekki miklar að þessu sinni. í einstöku tilfellum er þó gert ráð fyrir frekari lækkun verndartolla. Sir Henry Drayton, fyrrum fjármálaráðgjafi og einn af á- hrifamestu þingmönnum íhalds- flokksins ,hefir borið fram breyt- ingartillögu við fjájrlagafrum- varpið, sem í sér felur beint van- draust á stjórninni. Litlar sem engar líkur munu þó til, að til- laga sú hljóti samþykki. Ýmsir þingmenn ibændaflokksins eru þó sagðir að vera hálfóánægðir vlð stjórnina út af því, að ekki er farið fram á víðtækari lækkun | verndartolla. En tiltölulega fáir munu þeir jþó vera, er líklegir eru til bandalags við íhaldsliðið, er vantraustsyfirlýsingin kemur til atkvæða. * • • Nefnd sú í samfoandsþinginu, sem íhuga skal farmgjaldamálið og samninginn við Peterson’s eimskipafélagið, er þannig sam- sett: Sir Henry Drayton, Hon. H. H. Stevens og W. A Black frá Hali- fax, allir úr íhaldsflokknum. J. F. Johnston, R. H. Halbert, J. W. Kennedy og Harry Leader, af hálfu bændaflokksins. En fyrir stjórnarflokksins hönd eiga sæti í nefndinni Hon. John E. Sinclair, Hon. E. J. McMurray, A. R. Mc Master, Fernand Rinfret, Mat- hew McKay, William Duff og Slr Eugene Fiset. • • • Látinn er nýlega capt. John Henry Mulvey, skólastjóri við Isaac Brock skólann hér í borg- inni, vinsæll maður og vel met- inn. • * • Fylkisstjórinn í iBritish Col- umbia, Hon. W. C. Nic'hol, er ný- kominn heim úr ferðalagi um Norðurálfuna. Telur hann fjölda! fólks á bresku eyjunum, hafa í hyggju að flytja búferlum ti! Canada, á öndverðu komanda sumri. * * * Robert G. Persse, hefir verið kjörinn forseti viðskiftaráðsins— Winnipeg Board of Trade, fyr'r yfirstandandi ár. • • • Rev. G. H. Rusihibrooke, baptista trúboði, sem dvalið ihefir á Rúss- landi undanfarandi, er nú nýkom- inn heim til Toronto. Telur hann ástand rússnesku þjóðarinnar vera fremur að 'batna, iþótt hægt fari. • • • Fregnir frá Three Rivers í Quebec fylki segja þar vera í velt- unni, um þessar mundir, allmik- ið af fölsuðum tíu dala banka- seði um. Bandaríkin. Senatið hefir fallist á útnefn- 'ngu Lieut.-Col. James E. Fechet L'* aðstoðar ráðgjafa Ioftflota- ^álanna. • • • Charles C. Eberhardt frá Kan- sas. hefir verið skipaður sendi- 'ierra í Nicaragua, en George T. Sumnierlin í Honduras. * • • Nýlátinn er i New Yor, Walter Camp, einn af nafnkendustu knatt- spyrnumönnum Bandaríkjaþjóðar- mnar, sextíu og sex ára að aldri. * * * Coolidge forseti hefir tilnefnt John Garibaldi Sargent frá Ver- mont til dómsmálaráðgjafa og Sen- atið fallist á útnefninguna i einu hljóði. • * * Maður einn, Barney Williams að nafni, í Yonkers, N. Y., þriggja barna faðir, sem öll eru á ómaga- aldri, veSjaði nýlega um það, að hann gæti tæmt pottflösku af whiskey án þess að taka hana frá munninum á sér. Hann vann veð- máliö, en féll dauður til jarðar innan klukkustundar. ------o------- Hvaðanœfa. Forsetak’osningar á Þýskalandi fóru fram síðastliðinn sunnudag. Ekert forsetaefnið ihlaut nægilegt atkvæðamagn, til að ná kosningu. Varð frambjóðandi keisarasinna, Dr. Karl Jarres, þó jþeirra sterk- astur. Atkvæðin skiftust sem hér segir: Jarres, keisarasinni, 10,020,000 Braun, jafnaðarm. 7600,000 Marx, centrist, 3,850,000 Thaelmann, commúnisti, 1,860, 000. Helpacht, demokrat. 1,560,000, Held, Bavaríu.fl. 1,000,000, 'Ludendorff ,fascisti, 330,000 Nýjar kosningar Ihafa verið fyr- irskipaðar hinn 26. þ. m. — Dr. Jarres skorti sex miljónir atkvæða til að sigra í kosningu þessari. * * * Ferdinand Rúmeníukonungur, ligur all-hættulega Veikur um þessar mundir. • * * Japanska þingið hefir afgreitt ný kosningalög, er skipa svo fyrir að sérhver karlmaður, tuttugu og fimm ára að aldri, að undanskild- um þeim, er þiggja af sveit, skuli hafa kosningarétt og kjörgengl til þjóðþingsins. • • • Siglingaráðuneytið franska hef ir lögleitt átta klukkustunda vinnu á verslunarskipum þjóðar- innar, þrátt fyrir ströng mótmæli útgerðarmanna. Ný bók. Nýkomin er á markaðinn bók, Baugabrot að nafni, er hr. Stefán Einarsson fyrrum ritstjóri Heims kringlu, hefir safnað til. Inni- hald bókarinnar, er ágrip af stjórnartilhögun Canada og fleira til minnis og fróðleiks. Kver þetta er á annaðhundrað blaðsíður og að öllu leyti hið þarfasta. Fram- setning málefna þeirra, er bókin fjallar um, er hin .skipulegasta og málið yfirleitt gott. Bókin er prentuð hjá The City Printing & Publishing Oo., kostar 85c og fæst hjá útgefandanum að 681 Alverstone street og þeim bók- sölum Finni Johnson og Hjálm- ari Gíslasyni. Islendingur gerir jafn- tefli við heimsmeistara. Hingað kom til borgarinnar um síðustu helgi, ungverzkur skák- meistari, Geza Maroszky að nafni, til þess að þreyta íþrótt sina við Winnípeglýúa. Fór fram sam- kepni á mánudagskveldið i Marl- borough hótelinu. Níu menn úr taflfélaginu “ísland” tóku þátt í samkepninni og voru það þeir Agnar Magnússon, Guðjón Krist- jánsson, Kristinn Pétursson, Mag- nús S'kaftfeld, Carl Thorláksson, Ólafur J. Ólafsson, Gilbert Árna- son, Leifur Sumarliðaspn og Grímur Gjiðmundsson. Jafntefli við kappann gerði hinn efnilegi landi vor hr. Agnar Magnússon. og má slíkt vera þjóðflokki vor- um ‘hið mesta ánægjuefni. Fjöru- tiu menn aðrir keptu við Ung- verjann, og hlutu þeir að eins tvö jafntefli Er það því sýnt, hve landinn spjaraði sig stórum betur. Taflfélagið “ísland” er ungt enn, og á vafalaust fagra framtíð fyrir höndum. Er óskandi, að al- menningur sýni því sem mesta samúð i komandi tíð. Jón Ragnar Johnson. sonur'þeirra Mr. og Mrs. Finnur Johnson að 668 McDermot ave., er orðið hefir fyrir þeim theiðri, að vera kosinn forseti félags þeirra stúdenta, er lögvísi stunda við Manitoba háskólann. Er Ragnar einn af vorum allra efnilegustu, yngri mentamönnum vestanhafs. Frá Islandi. i stórhríðarlbylnum um fyrri helgi varð úti húsfi-eyjan í Skyttu dal í Laxárdal í Húnavatnssýslu. Rósa Helgadóttir að nafni. Svo raunalega bar til, að hún var ein heima á bænum þegar brast á, en fé var á beit. Fór hún til iþess að bjarga fénu, en fórst sjálf Getur vart raunalegri atburði. Rósa var systir Kristjáns Helgasonar versl- unarmanns í Kaupfél. Eyfirðinga og Sigríðar konu Bjarna Pálsson- ar beykis hé? í Ibænum. Rauði krossinn var stofnaður í Reykjavík fyrir skömmu síðan. Nú þegar eru á 2. ’ þúsund manns gengnir í þá deild og fjölgar þeim óðum. Hér er sömu leiðis verið að istofna deild. Hafa á 2. hundr- að manns þegar skrifað sig í deild ina. Bráðabirgðarstjórn er kosin til þess að semja lög. |3tjórnina skipa: Séra Geir vigslubiskup, Steingr. bæjarfógeti og frú, Jón Guðlaugsson settur bæjarstjóri, frú Júlíana Friðriksdóttir, frú Valgerður ólafsdóttir, frú Laufey Pálsd'óttir, Jón E. Sig. kaupm., frú Guðfinna Antonsdóttir, Stgr. Matthíasson, héraðslæknir, og frn. Tréskurðarsýning var haldin í I bæjarstjórnarsalnum á sunnu- daginn var og sýndir smíðisgrip- ir, er gerðir hafa verið á náms- skeiðinu, sem staðið hefir hér í bænum undanfarna mánuði. Voru iþar margir eigulegir gripir. Einna best mun vera gert hyllubak ®kor- ið í fornum íslenskum stíl, skor- ið af Bryndísi Ingvarsdóttur. Eru námsskeið þessi stórþörf og verð athyglis. ísalög eru nú á Akureyrar- polli svo að sjaldgæft mun, að svo isléttur ís komi á pollinn. Er hann óspart notaður af bæjarbú- um. í gær gekst U. M. F. Akur- eyrar fyrir því, að ljósleiðsla var sett á ísinn og bekkir fyrir fólk að hvíla sig á. 1 gærkvöld fékk svo félagið lúðrasveit bæj- arins, til þess að spila á intnrl bryggjunni. Dagur 19. febr. ’25 Nýtt prestakall. Alþingism. Jón A. Jónsson ber fram frumvarp í nd. Alþingis um stofnun prestakalls í Bolungarvík. Mörgum er það kappsmál þar vestra, að frumvarp þetta nái fram að ganga, og liggja m. a. til þess þær orsakir, sem nú skal greina: Bolungarví'k er orðin með stærri verstöðum landsins; íbúar um 850 til 1000 og stundum jafnvel fleiri. Þeir eiga prest að sækja til ísa- fjarðar, en svo háttar til, að þar á milli er oft stórháskaleg leið á landi, og aldrei hættulaus, en ill- fært eða ófært á sjó í uinhleyp- ingatíð. Þó hafa prestar á ísa- firði rækt svo samvizkusamlega messuferðir út þangað, að þeir hafa í raun og veru stofnað lífi sínu í háska, ekki einu sinni, heldur margsinnis. — Þó að prestur Is- firðinga missi nokkrar tekjur við stofnun þessa nýja prestakalls,. þá er hann því mjög fylgjandi, að frv. J.A.J,. ná(i fram ,að ganga. Eins er það vilji ísfirðinga, því að þeim þykir prestur hafa nóg að starfa heima fyrir, þó að Bolung- arvík sleppi. Kaupstaðarbúr eru um 2000, Hnífsdælir um 450, og að auki nokkur sóknarbörn í Am- ardal og inni í firði. — Hnífsdæl- ir ætla nú að koma upp kirkju hjá sér, og væri þá ekki nema sann- gjarnt, að hann losnaði við Bol- ungarvík. Af embættismönnum er nú ekki í Bolungarvik nema læknir, sem þó kom þangað seinna en átt hefði að vera. Aðstoðarprestur var þar um skeið i tíð séra Þorvalds sál. Jónssonar, og fríkirkjupresar hafa þar verið tvivegps, þó að nú sé enginn. Þykir Bolvíkingum mik- il eftirsjá að prestinum, því að hann getur, auk embættisstarfa. verið oddviti og frömuður um kenslu barna og unglinga þar í þorpinu. En það, sem þyngst ætti að vera á metunum, þess umáli til stuðnings, er þetta: Á meðan presti á ísafirði er gert að skyldu að þjóna Bolupgar- vík, þá er lífi hans og þeirra, sem með honum eru, oft og einatt stofnað i ‘hás'ka á embættisferðum þangað, og þaðan.— Hér verða svo mörg slys, að skylt er að varna þéim, sem varnað verður, einkan- lega þegar ekki þaif meira í söl- urnar að leggja en þetta: að sam- þykkja eitt lítið lagafrumvarp.— Vísir. ( Vothey. ("Eftir Lógréttu.) H)r. Erasmus Gíslason á Vatns- enda í Flóa er hér nú staddur. Lögrétta hefir áður sagt frá vot- heysgerð hans, og hefir hann nú ár eftir ár unnið að því, að kenna hana þar eystra, og sýnt í því mik- inn áhuga, dugnað og ósérplægni. Bæði sýslunefnd Árnessýslu og bændur í Villingaholtshreppi sendu nú I vetur Búnaðarþinginu áskor- anir um, að taka mál þetta til rækilegrar athugunar og styrkja hr. E. G. í starfi hans. Hefir Lögr. séð skjalið, sem bœndur í Villingahottshreppi sendu, og segja þeir þar, að þeir álíti, að hér sé um þýðingarmikið mál að ræða fyrir landbúnaðim. og að þeir óski að það mál komist nú þegar í fyrsta flokkj búnaðarframkvæmd- anna, að koma upp steinsteyptum votheyshlöðum eftir gerð hr. E. G., og að féngnir séu menn til að læra verkið og kenna það aftur út frá sér. Þórarinn bóndi Sigurðsson á Vatnsenda segist hafa byrjað að gefa votheyið nú með nóvember- byrjun í vetur, bæði kúm og hest- um, og hafi þá komið fljótlega í ljós á kúnum, að um betra fóður var að ræða en venjulega, þvi að kýrnar mjólkuðu meira en venju- legt var og héldu betur á sér mjólkinni. Segir hann einnig, að mjólkin sé kostameiri en áður og líkist mjög gróðurmjólk. Einnig segir hann, að sér hafi reynst vot- heyið eiga vel við hesta. — Líkan vitnisburð hefir Guðmundur bóndi Lýðsson á Fjalli gefið votheys- gerð E. G. Hr. E. G. segist altaf vera að gera tilraunir til fullkomnunar á heyverkun sinni. Nú síðast hefir hann fundið upp útbúnað til þess að ráða yfir kælingu heysins, og telur það mjög mikils vert. Hann hefir nú gert votheyshlöður hjá ýmsum bændum í Árnessýslu, þar á meðal hjá Guðmundi í Skip- holti, og hvervetna liafa þær gef- ist vel. En sjálfur verður hann að vera við, þegar látið er í hlöð urnar, og eins að hafa eftirlit með heyinu meðan aðrir eru að læra verkunaraðferðina, og hefir þv'í þetta starf kostað hann rnikla fyr- irhöfn, sem hann hefir á sig lagt vegna þess mikla áhuga, sem hann hefir á málinu, og trú á því, að verkunaraðferð sín hljóti að ryðja sér til rúms og verða landbúnaðin- um að miiklu gagni. Biuiaðarþingið hefði vel mátt veita áskorun sýslunefndar Árnes- inga og bænda í Villingaholts- hreppi meira athygli en það gerði. Það samþykti svohljóðandi til- lögu: “Enda þótt Búnaðarþingið viðurkenni fyllilega lofsamlegan á- huga og starf hr. Erasmusar Gísla- sonar við súrheysgerð, sér það sér elcki fært að styrkja hann frekar en orðlð er f járhagslega.”— Þess- ar undirtektir valda því, að hr. E. G. getur ekki gefið sig við því. að kenna heyverkun sína svo ört og víða, sem vera ætti, en hugsun hans mun hafa verið sú, að Bún- aðarþingið léti rannsaka heyverk- un hans og árangur hennar, svo að algildur dómur fengist fvrir því, að þar væri um verulega gagnlega framför að ræða. Sjálf- ur kveðst hann hafa fengið ó- yggjandi reynslu, og sama er að segja um þá bændur eystra, sem hafa notfært sér tilsögn hans. IHann telur súrheysverkun þá, sem áður hefir tíðkast hér, rrpög ófullkomna og varhugaverða, seg- ir. að»með henni hafi hey verið skenid víða til stórskaða. Dönsk menning og íslenzk. Bók Axels heitins Olriks pró- fessors, Nordisk Aandeliv í Vik- ingatid og tidlig Middelalder, má víst telja með fegurstu ávöxtum danskrar menningar. Hæst nær •bókin í þessum orðum (S. 81): Islændinge-sagaen — naaede kunstnerisk — tildgls ogsaa vid- enskabelig — til Höjder som Menneskaanden kun sjælden naar: fslendingasögur náðu sem lista- verk, og að nokkru leyti einnig sem visindaverk, hæðum sem mannsandinn nær aðeins sjaldan. Það er eitthvað annað að segja Þetta en að segja eins og áður hafði verið gert, að sögurnar hafl nálega samið sig sjálfar. íslenskt snildarvit (Geni) er þarna viður- kent. En sjálfir höfðu íslending- ar ekki áttað sig á þessu eins og lurfti, og verið svo vaniþakklátir höfundunum, að þeim þótti ekki taka því, að láta nöfn þeirra fylgja sögunum. Olrik ritar sérstaklega fróðlega um Egilssögu, en þó tel eg víst, að sú saga sé sannari en hann hyggur. Og náttúrlega veit Olrik ekki að Egilssaga er eftir Snorra Sturluson. En það má vita þetta með jafnmikilli vissu og Snorri hefði oss sjálfur sagt.. Eg hefi vandlega rannsakað rithátt Snorra, fundið hin sérstöku ein- kenni á máli hans, borið nákvæm- lega saman við málið á Heims- kringlu og Egilssögu og eg segi það alveg hiklaust, að þær bsgkur eru eftir sama höfund. Um ís- lensku Snorra Sturlusonar er dá- lítill kafli í Nýal, og enn mun eg rita nokkuð um sama efni síðar. VJrðist mén það undarlegt, að enginn íslenskur málfræðingur skuli hafa einu orði á þetta minst því að hér ræðir þó um efni, sem hefir ekkert litla þýðingu fyrir skilning vorn á sögunum. Vil eg ekki leyna því, að mér þykir hár kenna Þorvaldarskapar nokkurs, og verða mikil og góð umskifti fyrir mér, þegar eg þarf ekki slíkt að reyna af íslendingum framar. En eg hefi svo mikið álit á mönn- um, að eg álít að svo muni verða. Fer nú að verða auðveldara fyrir menn að átta sig; hinn fyrsti fyr- irlestur um kenningar mínar, hef- ir þegar verið fluttur í einni aí hðfuðborgum ! jarðarinnar (9. janúar), og verður ekki hinn síð- asti. Þarf nú ekki að því að spyrja, hvort mál mitt muni haf- ast fram, heldur aðeins að hinu, bvenær þetta muni verða. r II. Eitt af því, sem mér þykir eft- irtektarverðast um þessa bók próf. Olriks, er að hann hefir ekki veitt eftirtekt því höfuðatriði, að danska vorra tíma er ekki dóttur- mál hinnar fornu dönsku tungu Ef vér viljum vita hvernig á þessu stendur, þá þurfum vér ekki ann- að en virða fyrir oss yfirstéttina dönsku. Hún er að miklu leyti at útlendum ættum. útlendingar og útlend áhrif hafa að miklu leyti skapað nútíðarmálið danska. Um Noreg er líkt að segja og jafnvel um Svíiþjóð, en þótæpast eins frek lega. Hér ræðir um mál, sem tek- ur mjög til vor íslendinga. Því að það er svo mikilsverður þáttur ! voru þjóðlega hlutverki að stuðla að því, að ráðin verði bót á þeim vandræðum, sem af því stafa, að Nlorðurlandabúar hafa gleymt máli ágætra forfeðra, en mikil! hluti landslýðsins þó ekki lært til fulls hið meir en hálfútlenda nýja mál. Og vér verðum að vinna að því samtaka að á Norð- urlöndum verið talið sjálfsagt að hver maður, sem nokkra skóla- mentun hlýtur, geti lesið hið forna mál.. íslenskar bókmentir komast ekki í það horf sem vera þarf, fyr en íslenska er lesin al- staðar á Norðurlöndum. Og bók- mentir . frændþjóða vorra ekkt heldur, þó að margt sé þar vel nfl þegar. Norðurlönd fá e'kki sinn rétta svip gagnvart heiminum, og hinir stórkostlegu hæfileikar vorra ágætu frændlþjóða, koma ekki að fullum notum í framsókrt mannkynsins, fyr en Tnenn upp- götva þar, Ibetur en enn er orðið, það gagn, sem þeir geta haft af íslendingum. Helgi Péturss. Morgunblaðið 28. fébr. ’25, Úrherbúðum sambands þingsins. Eftir sjö daga snarpar umræður, var frumvarp stjórnarinnar um samninginn við Peterson eimskipa- félagið, afgreitt frá annari um- ræðu og því síðan vísað til sér- stakrar þingnefndar. í Fimm af ráðgjöfunum tóku til máls, auk leiðtoga ihaldsflokksins, Mr. Meig- hens, og Robert Forke, foringja bændanna. Stjómarformaðurinn, Rt. Hon. Wl L. MacKenzie King, sýndi fram á það með ómótmæl- anlegum rökum, að kærur Mr. Prestons í farmgjaldamálinu, væru þegar sannaðar, og þess vegna hefði stjómin talið það skyldu sina, að skerast í leikinn tafar- laust. Kvað hann canadiskt við- skiftalíf hafa beðið svo mikinn hnekki við einokun North Atlan- fið eimskipasamkundunnar, að slikt mætti ekki lengur viðgangast bóta- Iaust. Stjórnin hefði ákveðið, að vefta Peterson f eimskipafélaginu fjárstyrk nokkurn 'í þeim tilgangi, að hún gæti í framtíðinni haft full umráð yfir flutningsgjöldunum. Fyrirrennarar sínir í sjórnarsess- inum hefðu reynt hið sama, en því miður látið sitja við orðin tóm. Afstaða bændaflokksins. Bændaleiðtoginn, Robert Rorke, kvaðst ekki vera allskostar ánægð- ur með samning þenna, en lýsti þó yfir því, að ef það sannaðist að kærur Mr. Prestons væru á gild- um rökum bygðar og önnur heppi- legri leið út úr ógöngunum væri ekki finnanleg, þá mundi hann að sjálfsögðu greiða atkvæði á hlið stjómarinnar og hið sama mundí meginþorri flokksbræðra sinna einnig gera. . Stefna íhaldsmanna. Ræða Mr. Meighens gaf -ótví- rætt í skyn, að ihann og flokks- bræður hans myndu hiklaust greiða atkvæði á móti samningunum við Peterson eimskipafélagið. Taldi hann uppástungur stjórnarinnar með öllú ófujllnægjandi, hversu góður 1 sem tilgangurinn annars kynni að vera. Fylgifiskar hans tóku flestir í sama streng og jafn- vel sumir þeirra gengu það langt, að bera Mr. Preston persónulegum brigslum. Svar stjórnarfomannsins. Eftir að stjómarand'htæðingar höfðu lokið máli sínu, svaraði for- sætisráðherra Mckenzie King, með áhrifamikilli ræðu. Lagði hann á •það mikla áherzfu, hve hin rang- látlega háu farmgjöld hefðu í lið- inni tíð staðið bændum og liúalýð fyri'r þriíum. Stjóminni hefði verið ljóst, að við svo búið hefði ekki lengur mátt standa, og af I þeirri ástæðu hefði hún látið rannsaka farmgjaldamálið til hlít* ar og borið fram í því ákveðnar tiilögur. Næst tók til máls’ ráðgjafi járn- brautarmálanna, Hion. Geo.. P. Graham. Kvaðst hann ekki vera í nokkrum minsta vafa um það, að stórmikill meiri hluti kjósenda fylgdi stjórninni í baráttu hennar gegn einokun farmgjalda. Peter- son’s samningurinn væri spor í rétta átt, spor sem átt hefði að vera stigið fyrir langa-löngu. Fullyrti ráðgjafinn, að er fram lilu stund- ir, mundi stjórnin ganga enn lengra og ekki skiljast fyr við mál- ið. en hún hefði fengið full um- ráð yfir flutningsgjöldum með öllum þeim eimskipum. er sigla milli canadiskra og brezkra hafna. Var ræðu hans tekið með dynjandi lófaklappi, af meginþorra þing- nianna.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.