Lögberg - 02.04.1925, Qupperneq 4
Bto. 4
ZiócrBERG, P ÍMTUDAGINN 2. APRÍL. 193S.
Jógberg
Gefið út hvern Fimtudag af The Col-
wnbia Preis, Ltd., (Cor. Sargent Avet &
Toronto Str., Winnipeg, Man.
TaJsi-mart N-6327 o£ N-6328
JÓN J. BILDFELL, Editor
Utan&akrift til blaðsins:
Tt(E SOLUMBI/V PRESS, Ltd., Box 3172, Winnipag, N|an-
Utan&akrift ritatjórans:
EOtTOR LOCBERC, Box 3171 Wlnnipog, Man.
The "Lögberg” ls prlnted and publlshed by
The Columbia Press, Llmlted, ln the Columbla
Buildlng, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba.
”The Nazarene”.
Svo heitir málverk éitt fagurt og tilkomumikiÖ,
sem nýlega var meðal annara listaverka sýnt í bænum
Santa Monica, í California ríkinu, og dró þaö mjög
aÖ sér athygli allra sýningargesta. MeÖal þeirra var
Hattie B. Colcleugh, hé'ðan frá Manitoba, er varð
mjög hrifin af mynd þessari, bæði vegna efnis og list-
arinnar, sem þar er augljós. Um þetta farast henni
orð í “Manitoba Free Press” síðastliðinn laugardag á
þessa leið:
“Eg sá núna í þessarl viku á sýningunni í Santa
Monica, undursamlega mynd, er nefnist “Nazareinn
(The Nazarene). Þetta er frummynd af meistara-
verki danska málarans Carl Thomtay. Myndin er
átta og hálft fet á hæð og tíu fet á breidd; heitir eig-
andinn M. Le Fontaine, og er franskur Canadamað-
ur. Nýlega buðust honum $84,000 fyrir myndina en
hann lét hana ekki fala að heldur, kvað hana ekki til
sölu vera. Eg vona þó, aS ihann sé nógu þjóðrækinn
,til þess með tíð og tima að gefa málverkið einhverju
listasafni í Canada, svo að hún verði þar heimilisföst
“Nazareinn” er mynd af Kristi, þar sem hann
hefir dvalið næturlangt á bæn í fjállendinu við Kap-
ernaum. Um sólaruppkomu krýpur hann enn að
bæninni og horfir við austri. Andlit reisir hann gegn
himni, með lokuðum augum, og réttir upp greiptar
hendur í sannri bænar-ákefð. Geislaflóð sólarupp-
komunnar, sem dreifir sér um klættahæðir og hnjúka,
endurskín á dýrðlegri ásjónu biðjandans, en roðinn
á neðri rönd nálægra skýja í dimmbláma morgun-
loftsins umvefur alt í mildum bjarma. 1 sjö milna
fjarlægð sjást rústir Kapemaum-þorpsins og Galíleu-
vatniö.
• Svo gagntekin varð eg af listaverki þessu, að
mér virtist þaðan er eg stóð og starði á það, sem eg
liti þar lifandi mann á bæn og að endurskinið, er um-
vafði hann, væri bjarmadýrð hinnar náttúrlegu morg-
unsólar. Þetta er hin fyrsta mynd, er eg hefi séð,
þar sem Kristur er sýndur með skegglaust andlit.
Fyrst eftir að myndin var hengd upp til sýnis, urðu
út af þessu allmiklar þráttanir, en sagan gefur n^anni
enga heimild til að slá því föstu, að hann hafi ávalt
verið alskeggjaður. Það eru nú fjögur ár liðin, síð-
an málarinn lauk við mynd þessa, og hafði hann unn-
ið að henni í sjö ár.
Carl Thomtay er einn af fremstu landlags-mál-
urum, þeirra er nú eru uppi, og meistari i að blanda
liti; enginn mun nú taka honum fram um að túlka í
lifandi dráttum á tjaldi mikilfenglegar sýnir úr hinni
helgu bók, bibliunni. — Hann var fæddur í Kaup-
mannahöfn árið 1865; 15 ára gamall hóf hann lista-
nám sitt og dvaldi um hríð við það 5 Paris undir leið-
sögn Jerome og Constant, og annara meistara. Nú
heldur hantt verðlatma-jpeníingi frá franska lista-
safninu fræga, sem nefnist Grand Salon. Verkstof-
ur hefir C. Tt. tvær, aðra í Joppa í landinu helga, en
hina í fæðingarborg sinni, Kaupmannahöfn.. Mál-
verk hans eitt, er nefnist “Mariurnar tvær við gröf-
ina,” er i eigu frönsku stjómatinnar og hangir í
Luxemborgar-höllinni.”
Sun Yat-Sen.
Þess hefir fyrir skömmu verið getið, að látinn
væri Sun Yat-Sen, fyrsti lýðveldisforseti Kínverja.
Hafði hann verið um all-langt skeið, einn af nafn-
toguðustu leiðtogum þjóðar sinnar, þótt mjög greindi
menn á um hæfileika hans til hagkvæmrar lýðforystu.
Það var árið 1912, að Sun Yat-Sen kom fyrst
verulega við sögu. Steypti hann þá af stóli Man-
chus ('ManchuriaJ keisarafjölskyldunni, er setið hafði
við völd í Kína í fjögur hundruð og fimtíu ár, grund-
vallaði þar lýðveldi og tókst sjálfur á hendur forseta-
enibætti til bráðabirgða.
Sun Yat-Sen var einlægur og ákveðinn þjóðern-
isvinur, hann unni sögu og siðvenjum þjóðar sinnar,
þótt sál hans, einkum hin síðari árin, virtist hafa orð-
ið fyrir djúpum blæbrigðum vestrænnar menningar.
Þegar eftir að Sun Yat-Sen kom til valda, var
eins og honum féllist hendur, eða starfi hans í þarfir
lýðs og lands væri í raun og veru lokið. Honum
veittist örðugt, að samrýma nauðsynlega ráðdeild
hins ytra stjórnarfars, við hugsjónahftann. Þetta
var honum svo ljóst, að hann lét af embætti 1913, og
fékk Y uan-Shai-Kai stjórnartaumana í hendur. Hve
misráðið slí’kt var, má glegst af því marka, að eigi
hafði Y uan fyr komist upp í veldisstólinn, en hann
brást lýðstjórnarhugsjóninni og gerðist einvaldur
keisari. \ arð Sun Yat-Sen þá eigi lengur vært í
landinu, en fékk borgið lífi sínu, með því að flýja tii
Japan.
Arið 1921 var Sun Yat-Sen kjörinn forseti stór-
fylkjanna sex, er mynduðu Suður-Kína sambandið.
Flestir leiðandi mennirnir, er þar áttu hlut að máli,
höfðu setið á hinu fyrsta lýðstjómarþingi þjóðarinn-
ar og verið þar af leiðandi samverkamenn Sun Yat-
Sen’s. Engu happasælli varð stjórnarstarfsemi hans
að þessu sinni, en fyr. Lenti hann brátt í mótsögn
við ýmsa fjá, er fylgt höfðu honum fast að málum, en
sýndi aftur á hinn bóginn óskiljanlega mikla samúð
hinum ókrýnda herkonungi þeirra Manchuriu-manna.
Chang Tso-lin.
Ekkert var Sun Yat-Sen skapi fjær, en söfnun
auðs í eigin vasa. Alt hans stárf var helgað þeim
tilgangi, að verða öðrum að liði, — og þess vegna get-
ur tæpast hjá því farið, að upp af leiði hans spretti
einhver þau ódáinsblóm, er skreyta muni kínverskt
þjóðlíf fram í aldir.
Sjálfur lýsti Sun Yat-Sen lífstilgangi sinum
þannig: '“Hver einasti þlóðdropi æða minna skal
vígður lýðfrelsinu, — æðstu hugsjón réttlætisins.”
---------•--------
Gestsaugað.
Hundrað ára afmæli Norðmanna hér í Minneapol-
is, sem haldast á í júníniánuði þetta ár, hlýtur að vekja
athygli okkar Vestur-lslendinga. Við höfum ekki
hér í álfu haldið neina afmælishátið í stórum stíl. En
hvað sem segja má um það, getum við þó að minsta
kosti fylgst með frændum okkar i þetta sinn og auð-
sýnt þeim alla samúð, þar sem þeir hafa ekki gleymt
frændseminni og vottað okkur sérstakan heiður.
Bandarikjastjóm hefir verið falið að bjóða fyrst og
fremst til þessa mikla móts fulltrúum frá þremur
löndum: Canada, Noregi og íslandi.
Feðraland okkar, fsland, þó fjarlægt sé og litið
þekt, hefir hér verið sett af Bandaríkja-Norðmönn-
um samsíða heimalandinu Noregi og nágrannalandinu
Canada. Mann furðar nærri því, að ísland skuli eiga
slík ítök í hugum manna hér, er boð -þetta ber vott
um. Eg gat ekki annað en glaðst af iþessu, og fanst
mér hinir norrænu ibúar þessarar borgar hafi nú
stigið spor í þá átt að sanna, frændur séu frændum
beztir.
Alt bendir til, að hátíð þessi verði al’l-merkur
viðburður i nútíðar-sögu Bandaríkjanna. Coolidge
forseti hefr lofað að sækja mótið, ef ófyrirsjáanleg
atvik koma ekki fyrir. Hinn mikilhæfi, núverandi
forsætisráðgjafi Canada er líka sagður væntanlegur.
Vonandi hafnar stjórn íslands heldur ekki boðinu.
Flestir íslendingar hér um slóðr munu renna tilhlökk-
unaraugum framundan, unz þeir eiga kost á við þetta
tækifæri, að klappa lof í lófa fulltrúa íslands.
Gestsaugað er sagt að vera glögt, en nú liggur
mér við að efa sannleiksgildi slíks málsháttar. Við
hingaðkomu mína fanst mér eg ekki verða var við
neina sjáanlega rækt til okkar upprunalegu sögu. Eg
sá víða rækt til hinna norrænu brautryðjenda hér i
landi, en yfirleitt virðist engin tiiraun eiga sér stað til
að seilast lengra aftur í tímann. Einn maður hér,
þolanlega vel mentaður, stóð á því fastar en fótum,
að vikingarnir gömlu hefðu verið norskir—vildi ekki
heyra það, að þeir hefðu lika verið íslendingar! Eftir
all-mikið þjark, gat eg þó skilið við hann í því efni
ögn fróðari eftir en áður.
Eg þóttist sjá, að viðar væri pottur brotinn, en
hjá okkur íslendingum. Sýndist svo margir af þeim
>ngri hér mótaðir í andrúmslofti þess hugsunarleys-
is, að gefa engan gaum þjóðernislegum uppruna sín-
um. Hinum sönnu gimsteinum hefir þá oft verið
varpað fyrir borð, en knörinn hlaðinn hégóma-djásni
nútíðar-menningar. Er þetta þeim mun sárara, þeg-
ar um ræðir gáfað og velgefið fólk, sem öll skilyrði
hefir til að keppa að hærra þroskunarsviði. “Bræðslu-
potturinn” okkar stórkostlegi, er ekki neitt dásamleg-
ur, ef hann ekki veitir móttöku óbrceðanlegum gim-
steinum, sem feður okkar fluttu með sér yfir hafið.
Undantekningar eiga sér þó æfinlega stað. Ný-
lega kyntist eg hér manni, sem hverjum íslendingi væri
ánægja að mæta. Heitir hann Peer Storeygard; er ekki
óhugsandi að einhverir af lesendum blaðsins kannist
við nafnið, þar sem ljóð hafa birzt eftir hann i Lög-
bergh ort á Iandsmálinu norska, eða nýnorskunni.
Hann kom ungur hingað til lands og mælir enska
tungu sem innfæddur væri. En að því leyti hefir
hann höfuð og herðar yfir marga samlanda sína, að
hann heldur vakandi rækt sinni til hins dýrmæta og
góða í fari heimaþjóðar sinnar.
HÍerra Storeygard lætur sér ekki nægja, að láta
augu sin hvila á nútíðarsögu þjóðar sinnar. Hann
skygnast lengra aftur í timann. Hin forna söguöld
Norðmanna er honum hugðnæm. Til að geta sem
bezt lært að þekkja fornsöguna, hefir hann lagt stund
á íslenzku. Elg fékk honum Njálu( og Ias hann upp-
hátt fyrir okkur fyrstu síðuna. Við höfðum full not
af lestri hans, þó framburðurinn væri ekki gallalaus.
Eins las hann fyir okkur kafla úr smásögunni “Snjó-
þyngsli”, er nýlega birtist í Lögbergi. Leiddi það í
ljós, að hann er jafn-vígur á nútíðarmálið og fortíð-
armálið okkar.
Tungumálin eru hans "hobby”, eins og hann
sjálfur komst að orði. Skoðun hans er, að málið sé
dýrmætasta eign hverrar þjóðar. • Hástigi mannsand-
ans sé náð, þá málið sé kraftmikið og fagurt. Tilvera
hugsanalifsins hvíli á gildi málsins. Segir hann
sagna-íslenzkuna sér kærari en öll önnur mál, sökum
þess, að þar ræði um frummál þjóðar sinnar og af
þvi, hve hrein hún sé og sterk. Yndi hefir hann af
þvi, að rekja sögu orðanna inn í hinar ýmsu kvíslir:
nýnorskuna, dönskuna, enskuna — og jafnvel nútíð-
ar-íslenzkuna. Þannig kvaðst hann einlægt vera í
skóla, á hverjum degi eitthvað að læra. Hann er
maður á bezta aldri, og nær óefað enn hærra full-
komnunarstigi í islenzku-kunnáttu sinni.
Betur við ættum sem flesta íslendinga, er svipað
sinni hefði og þessi eftirtektaverði maður. Það
kastar engum skugga á enskuna okkar, þó við viljum
kunna fleiri mál en eitt. Við erum heldur ekki neitt
að níða enskuna, þó við segjum okkar eigið mál auð-
ugra að tign, hreinna og fegurra. Flestir enskumæl-
andi mentamenn, er sllkt fengjust til að • brjóta
til mergjar, myndu samþykkja slíka ályktun
rétta áður lyki. Enskan er samsetningur ótal annara
mála, tilveruréttur hennar því ekki æðri en þeirra
mála, sem hún hefir þegið afltaugar sínar frá.
Eins og nú er komið fyrir okkur Vestur-Isler.d-
ingum, er enskan að verða okkar kröftugasta von um
viðhald íslenzkunar hér í álfu. Við höfum verið of
seinir, íslendingax, að átta okkur á þeim sannleika.
Frændur okkar, Norðmenn, hafa í því efni reynst
okkur snjallari. Fyrir nokkuru kyntist eg hér tíngri
íslenzkri stúlku, er gengið hefir hér mentaveginn. Is-
lenzku talar hún nokkurn veginn vel og les hana
eitthvað og skrifar. En norskuna kann hún mfeð af-
brigðum og er þaulkunnug norskum bókmentum.
Hefir hún átt því láni að fagna, að eiga kennara, er
lagt hafa sig fram til að innræta henni gildi norsk-
unnar. Auðvitað hefir sú kensla mest farið fram á
ensku.
Mér er sagt, að norskir prestar hér margir, séu
engu síður norskir i anda, þó þeir flytji ræður sínar
á ensku. Enskumælandi ræðumenn koma hér fram
á samkomum og tala með mæls'ku tilþrifum um norsk-
ar, sænskar eða danskar bókmentir. Bæklingar eru
gefnir út á ensku í sama augnamiði. Árangur slíkra
tilrauna hlýtur óneitanlega að verða sá, að heilla æsku-
lýðinn, sem einungis ensku skilur, smátt og smátt til
umhugsunar, og leiða anda hans í þá átt, að veita at-
hygli arfi þeim er forfeðurnir fluttu með sér yfir
hafið.
Það er bjargföst sannfæring mín, að við Vestur-
Islendingar séum í þessu tilliti eftirbátar frænda okk-
ar. Við erum enn þá ekki vaknaðir til nokkurrar
verulegrar meðvitundar um slíka mögulei'ka til að
viðhalda hér islenzkunni og þekkingu komandi kyn-
slóðar á okkar íslenzka arfi. Viljinn getur verið góð-
ur, en eintómur vilji dregur ekki nema hálft hlassið.
En það sem heilt á að verða, má ekki vera hálft. Við
stofnum félög í góðum tilgangi, en þó þeir eldri sæki
fundi og haldi langar ræður á íslenzku, sjálfum sér
og öðrum til ununar — þá er haött við, að okkar táp-
mikli og fjörmi'kli æskulýður fari dansandi og syngj-
andi fyrir utan það alt! Eins og nú er komið, er
okkur nauðugur einn kostur, að tala við þá ungu um
þessa hluti á því máli, sem þeir fyrirhafnarlaust
skilja. •
Vestur-íslenzku blöðin eru sterkasta afltaug ís-
lenzks þjóðernis hér í álfu. Falli þau úr sögunni, er
íslenzkan tafarlaust gleymd og grafin. Þó áhrif
þeirrá nái nú að eins til þeirra eldri, þá eru það einu
áhrifin í slíka átt, sem við eigum. Þeir 'íslenzku ung-
lingar eru teljandi, sem íslenzku blöðin lesa, og hver
hugsandi maður hlýtur að sjá, að við svo búið má
ekki lengur standa.
Enginn má halda það, að okkar vestur-islenzki
æs'kulýður sé neitt gáfnatregari nú en til forna. Hin
dreymandi æska er eins á öllum tímum og ætíð jafn-
næm fyrir áhrifum, er til hennar ná. Það, sem fag-
urt er og aðlaðandi, heillar hugi æskunnar, eins nú
og nokkuru sinni áður. Enginn kippir sér upp við
það, þó æskulýður okkar sé ekki rokinn upp til handa
og fóta til þess að veita því móttöku, sem hann botn-
ar lítið eða ekkert í.
Tilraunir að kenna þeim ungu íslenzku á íslensku,•
hljóta eðlilega að hafa mjög takmötíkuð áhrif. Hætt
við, að margir unglingar l'iti slíkt svipuðum augum
og okkar íslenzku unglingar til forna litu kverið.
Islenzkan verður ekki aðlaðandi með eintómri kenslu.
Við þurfum einnig að skemta þeim ungu með heill-
andi sögum á því máli, sem þeir þvingunarlaust
skilja. Verðum að kynna þeim ísland að fornu og
nýju með aðlaðandi myndum, er æskusálina hrífa.
Eg hefi sjálfur reynt hve mikið yndi það er, að tala
við greindan vestur-íslenzkan ungling á ensku lun
ísland og dýrmætar íslenzkar séreignir. Nú kunna
flestir þeir eldri ensku nægilega vel til þess, að geta
þannig á hverjum degi talað við þá unglinga, sem
þeir ná til. Uppskera sliks getur áreiðanlega orðið
góð og mikil, það er alt undir okkur sjálfum komið.
Vestur-íslenzku blöðin mega ekki lengur hika
við, að birta enskar ritgerðir fjallandi um íslenzk
efni. Margt hefir þannig á ensku verið ritað, margt
okkur s'kylt birtist á ensku — t. d. bækur Vilhjálms
Stefánssonar, — og mætti í blöðunum taka upp kafla
úr slíkum bókum og ritum, 'íslenzks æskulýðs vegna.
Með þeim hætti tækju áhrif íslenzkra blaða að ná til
æskulýðsins, verða víðtækari og meiri.
“Sólskins” síða Lögbergs var gott spor í rétta átt.
Það sólskin þó trauðlega nógu bjart og aðlaðandi fyr-
ir þá ungu hætt við að margir vestur-íslenzkir ung-
lingar vilji heldur vera í skugganum, en stafa sig í
gegn um langar islenzkar sögur, sem ekki neitt eru
skýrðar. Við megum ekki lá þeim það.
Hví ekki að hvetja þá, sem ritfærir eru á ensku,
kennara og aðra, að semja stuttar ritgerðir eða sögur
með því augnamiði, að hafa áhrif á æákulýðinn? Við
eigum fríðan flokk af mentuðum Vestur-íslending-
um, körlum og konum, sem ritkærari er enksan en
feðramálið, og margt af fólki þessu myndi fúslega
bregða við slíkri bón. Höfundamir myndu fara að
kynna sér alt betur sjálfir — þetta því hafa góð áhrif
fyrir þá sjálfa, engu s'íður en hina yngstu kynslóð.
En til að ná til slíkra höfunda, verða hvatningarorð
ritstjóranna að vera á ensku, engu síður en íslenzku.
Þeim yngri svo boðið að rita ritstjórunum bréf, er
svo séu birt í barnadálkum blaðanna. Úrval slíkra
bréfa að minsta kosti.
Mörgum kann nú að finnast þetta all-djarft stig-
ið. En mikið skal til niikils vinna. Og það traust
ber eg til þeirra eldri, að þeir myndu ekki sjá ofsjón-
um yfir rúmi blaðanna til slíks.
Ásetningur okkar er ekki sá, að skapa annað
Island í Vesturheimi, heldur að glæða og þroska anda
þeirra yngri. Við*viljum stuðla að iþví, að skerfur
íslands til þjóðmyndunar þessa lands sé sem fegurst-
ur og beztur — og að hann gleymist ekki. Ekkert
hér er eilíft, ekki einu sinni enskan okkar; alt á hraðri
leið til þroskunar og framþróunar, að við þeir bjart-
sýnu fastlega trúum. Og kjarni okkar góða vilja er
sá, að okkar íslenzki arfur leiði til meiri og stærri
þroska í okkar nýju heimkynnum.
Ef maður eins og Peer Storeygard skoðar það efl-
andi og lærdómsríkt fyrir sig, að Iæra íslenzka sögu
og kynnast íslenzkum bókmentum, hví skyldum við
þá hika við að hvetja sem flesta vestur-íslenzka ung-
linga til að feta sömu leið?
Eg hefi smátt og smátt verið að átta mig á þessu
hér syðra. Gestsaugað er ef til vill furðu glögt eftir
alt saman.
0. T. Johnson.
805—I5th Ave. South,
Minneapolis, Minn., U.S.A.
------0-------
Tímarit Þjóðrœknisfélagsins,
fFramh.J
“Þrjár venzlakonur” heitir ritgerð eftir skáldið
á Sandi, er næst kemur á eftir sögpunni, “Eitt er nauð-
synlegt.” Konurnar, sem höf. minnist, eru þær:
Katrín, móðir Einars skálds Benediktssonar, Þor-
björg ljósmóðir, systir Benedikts, og Ólafía fóstur-
dóttir Þorbjargar. Allar voru konur þessar mælsk-
ar og bráðgáfaðar, og ei* þeirra minst að maklegleik-
um í greinarkorni þessu.
Um Ólafíu 'kemst höf. meðal annars þannig að
orði:
“Trú og manngöfgi Ólafíu gnæfði yfir gáfurnar,
eða kórónaði þær. Henni varð víst aklrei orðfall í
ræðustól og aldrei ráðafátt, þegar vanda bar að hönd-
um. Þó var hún um langan aldur heilsubiluð svo
mjög, að hún treysti sér varla til að ferðast yfir ís-
landshaf. En þrátt fyrir heilsuskortinn, óð hún eld
brennanda—eldinn og eiturárnar, sem voru á milli
hennar og spillingarinnar í borgunum. Hugrekki henn-
ar studdist við trúna og kærleikann og vonina um
árangur.
Eg sá Ólafíu ári áður en hún
lézt, — snjóhvíta af hærum. Var
að sjá aftan á höfuðið eins og álft-
arham.
En hvað er eg að hugsa! Eng-
inn lýsir með orðum yfirbragði
konu, sem helgað hefir allar gáf-
ur sínar málefnum eilífðarinnar og
mannkærleikans.”
Tvö kvæði koma næst: “Við
fregn hins íslenzka fána” og
“Heimþrá”, eftir Jón Kernested,
meinlaus og gagnslaus.
“Þá birtist ritgjörð, “Enn um
Vínlandsfundinn”, í íslenzkri þýð-
ingu eftir Gísla Jónsson. Fylgja
henni inngangsorð og nákvæmar
athugasemdir þýðanda, ásamt
myndum. Grein þessi hefir að
geyma margvíslegan fróðleik og
er ritin á hreinu ,kjarnyrðamáli.
ritin á hreinu, 'kjarnyrðamali.
Næsta ritgerðin nefnist “Þjóð-
ræknissamtök Islendinga í Vestur-
heimi”, eftir séra Rögnv. Péturs-
son, fróðlegt yfirlit yfir sögu Is-
lendingadagsins, fram til síðustu
ára. Getur höf. þess í niðurlagi
greinarinnar, vafalaust með sanni,
“að Islendingadagurinn hafi verið
að mörgu leyti einhver áhrifa-
mesta qg vjðtækaista þjóðernis-
hreyfingin í sögu Islendinga vest-
an hafs.”
Þá kemur fundargerð 5. árs-
þings Þjóðræknisfélagsins, og að
henni lokinni, kvæði eftir skáldið
Guttorm J. Guttormsson, er nefn-
ist “Morðið”, efnisr'íkt og slétt að
formi. Les1,ina rekur brot úr
ræðu, eftir íslendingavininn, Duf-
ferin lávarð, er gegndi landstjóra-
embætti í Canada frá 1872-78.
Þessa nýjasta árgangs Tímarits-
ins, hefir nú að nokkru verið
minst, og þótt vafalaust hefði mátt
gera það enn ítarlegar, þá er sú
trú vor, að athuganir þessar hafi
fært öllum sanngjörnum lesendum
iheim sanninn um það, að ritið
hafi mikinn og margbreytilegan
fróðleik að geyma og verðskuldi
að það sé alment keypt.
Verð ritsins er hið sama og áð-
ur, að eins $1.00. Aðal útsölu
hefir á hendi skjalavörður Þjóð-
ræknisfélagsins, hr. Arnljótur B.
Olson, 594 Alverstone St., hér í
borginni. r
Hvítir fuglar.
Eg gekk um göturnar I mok-
andi Ihríð og mætti Jóni bónda frá
Krossstöðum. Hnn er nú á ní-
ræðisaklri, eftir því sem mig minn-
ir, þykkur og mikitll, fer einn í
kaupstaðinn langa leið og fær sér
á pelann, svipað því sem hann
gerði þjóðhátíðarárið 1874, og svo
árið það, sem 1000 ára hátíð Eyja-
fjarðar var haldin, og aldamóta-
árið. Jón er sá sami svo að segja
og klæddur svo sem á hinni öld-
inni.
En sú heiðingja heilsa og vík-
ingsdugnaður! Göngulagið er þó
orðið 'nokkuð hikandí og vagg-
andi, þó það væri nú, að fóstra
Útgarðaloka kæmi á hann bragði.
Samt fer hann sína götu enn,
Iivað sem kerling blæs, og alt ráðu-
neyti nýja tímans — það orkar
ekki á Jón bónda og ekki heldur
tízkan. Hann lítur ekki við henni,
skeytir ekki. um stórstúkuna, hugs-
ar ekki um Hjálpræðisherinn; ekki
tekur hann ofan fyrir fósturbörn-
um Lenins, né skólasiðvenjunni.
Hann dýjar skegginu svo íítið,
þegar hann stígur á bak hesti sín-
um og ríður heim götuna, sem
liggur gegn um bæinn óg bygðina.
En báðu megin drotnar hríðin
og hleður niður fönninni kring um
bóndann, sem alt af ratar heim,
þó að sumir villist. Þegar eg var
á Möðruvallaskóla fyrir rúmum
30 árum, var Jón kallaður bóndi
einn allra stéttarbræðra sinna. Lík-
lega endist hann svona vel, af því
að hann er íslenzkur bóndi í 'raun
og veru — kann að lifa t landi
feúra sinna.
Nokkrum dögum áður sá eg
Magnús á Grund í bænum, sjötíu
og átta ára gamlan — og þó ekki
ganflan: rjóðan í kinnum, svo að
fáa getur slíka tvítuga, nýkvong-
aðan ungri, geðfeldri konu. Geri
aðrir betur, eða þó ekki væri nema
r?ærri því svo vel. Magnús hefir
verið mikill athafnamaður og af-
reksmaður er óhætt að segja. Þetta
er það minsta og þó vel gert á hans
aldri: að leggja af stað heim í hrið
og náttmyrkri. Og hann reið ber-
hentur alla götu inn að Grund.
Mér er kunnugt um það, því að
eg varð honum samferða — með
vetlinga á höndtínum.
Svo er að orði kveðið i Skarðs-
árannál:
“Var sén hvítur hrafn í Skaga-
firði og vildi biskup að tekinn
yrði, en varð eigi veiddur.” —
Hvitir hrafnar eru fágætir. Og
menn sem eru þvílíkir, sem Jón
bóndi og Magnús á Grund, eru og
fágætir.
Þar sem þessir öldungar fara,
sér á herðar máttarstólpa, sem
taka upp úr því, sem alment ger-
ist. Þeir hafa spent sig megin-
gjörðum Þórs á sína vísu, og næfr-
um Birkibeina ‘— meðan hvers-
dagsþytur aldarfarsins hefir farið
um láglendið og föndrað við punt
og snarrót í höllunum meðfram
þjóðgötunni. G. F.
—Islendingur.
Búnaðarþing Isiands.
Búnaðarþingið var háð hér i
Reykjavik dagana 4.—21. febrúar.
Er þetta 14. búnaðarþingið í röð-
inni.
Á þinginu áttu sæti: Björn Halls-
son, Rangá; Guðm. Þorbjarnar-
son, Stóra-Hofi; Hallgrímur Þór-
arinsson, Ketilsstöðum { Hajldór
Vilhjálmsson, á Hvanneryri; Jak-
ob Líndal, Lækjamóti; Kristinn
Guðlaugsson, Núpi; Magnús Frið-
riksson, Staðarfelli; Magnús Þor-
láksson, Blikastöðum; Páll Zoph-
oníasson, Hólum; Sigurður Bald-
v\nsson, Kornsá; Sigurður HHið-
ar, Akureyri; Tryggvi Þórhalls-
son, Laufási.
Málfrelsi á þinginu höfðu, auk
fulltrú'anna, ráðnautarnir, félags-
stjórnin og húnaðarmálastjóri og
tóku þeir ýmsan þátt í þingstörf-
um.
Fundarstjóri var form. félags-
ins, Guðjón Gúðlaugson, og skrif-
arar Steinar Stefánsíon og Theó-
dór Arnbjarnarson ráðunautur.
Fyrir þingið vöru lögð 62 mál.
Merkust þeirra voru:
Athuganir og tillögur um láns-
stofnanir til stuðnings rcektun og
bygging landsins.—Var það frum-
varp frá nefnd þeirri, er Búnað-
arfélagið skipaði i vetur, til að
iannsaka hvernig helst mætti koma
á fót sterkri lánstofnun fyrir
bændur, þar sem lánskjörin yrðu
sniðin eftir þörfum þeirra, bœði
hvað vaxtahæð og afborganir
snerti, en á móti yrðu veðin að
vera svo trygg, að lánsstofnunin
þyrfti ekki að voga fé sínu. I
nefnd þessari voru: Halldór Vil-
hjálmsson skólastjóri á Hvann-
eyri, Sigurður Sigurðsson búnað-
aimálastjóri og Thor Jensen for-
stjóri. — Komst nefndin að þeirri
niðurstöðu, að til þess að lánstofn-
unin kæmi að tilætluðum notum,
yrði hún að ráða yfir allmiklum
sjóðeignum, og benti nefndin á
leiðir til þess. Búnaðarþingið félst
á tillögur hennar og skoraði á Al-
þingi að koma þeim í framkvæmd.
Lög búnaðarfélaga. Uppkast að
lögum fyrir búnaðarfélög var sam-
þy'kt. Er það mjög ýtarlegt og ætl-
að einstökum búnaðarfélögum til
lieðbeiningar, er þau semja sér
lög-
Skeiðaáveitumálið. — Þá hafði
þingið Skeiðaáveitumálið til með-
íerðar, rannsakaði það eftir þeim
gögnum, sem eru fyrir hendi, og
afgreiddi um það rökstuddar til-
lögur til Alþingis.
Jarðrœktarlög, reglugerð um
stjórn búnaðarmála og styrk úr
rí'kissjóðí. Lagði Búnaðarþingið
til við Alþingi að styrkveitingar
samkvæmt II. kafla jarðræktar-
laganna yrði ákveðnar þannig, að
fyrir hvert dagsverk í áburðar-
næmi 1.50 á dagsverk, við túnyrkju
1.00 á dagsverkið og vð graðrækt
0.80.
Tryggingarfélög. — Þá hafði
þingið til meðferðar uppkast að
ifrumvarpi fyrir búfjártrygginga-
félög og um stofnun búfjártrygg-
ingsajóðs íslands. Er fyrirkomu-
lag þessara mála helst hugsað
þannig, að tryggingarfélögin séu
eigi stærri en svo, að ’hvert nái yf-
ir eina eðtf tvær sveitir og aðeins
SPARAÐ FÉ SAFNAR FE
Rf þér liafiC ekki þegax SparlsjéðsreiknLng, t>4 Ketfð þér ekkl
breytt hyKifileKar, en að lcKKja peningn yðar inn á oitthyert af Tor-
nm næatu útlbíium. par bíða þeir yðar, þegar réttl tíminn kemur tll
að nota þá yðnr tU sem meste hagnaðar.
Tlnion Bank of Canada hefir starfað £ 58 ár og hefir & þeim tíma
komið upp 345 útibnum frá strönd tU strandar.
Vér bjéðum yður lipra og ábygffilefta afftreiðslu, hrort sewt þér
gerið mlkil eða lítil viðskifti.
Vér bjóðum yður að heimawkja vort næsta útibú, ráðsmaðurinn
og starfsmenn hans, munu flnna sér IJúft og skylt að leiðbelna yður.
ÚTIBÚ VOR RIUJ A
Sargent Ave. og Sherbrooke Oeborne og Oorydon Ave.
Portage Ave. og Arlington Iiogan Ave og Sherbrooke
Portage Ave. og Good St. og 9 önnur útibú í Wkinlpeg.
ABALSKRIFSTOPA:
UNION BANK OF CANADA
MAIN and WIIJLJAM — — WINNIPBG