Lögberg - 02.04.1925, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FTMTUDAGINN. 2. APRfL. 1926.
Bhs. 7
Skemlanir til sveita.
Framh-
IV. Kvöldvökurnar.
Fyrir 30|—40 árum mun eögu-
lestur og rímnakve§skapur hafa
verið all almennur hér á landi.
foæði við sjávarsíðuna, iSíénstaklega
í verstöðunum, og til sveita.
í ferðaögu þeirra Eggerts Ólafs
sonar og Bjarna Pálssonar er að
því vikið, að þá, er þeir ferðuðust
ihér um landið, 1750—1757, hafi
sögulestur, og rímnakveðskapur
verið í afturför, enda minna gert
að því en áður var. Það má vel
vera, að svo hafi verið, og eitt-
ihvað hafa (þeir haft fyrir sér í
þessu.
Það er ekki ósennilegt, að dreg.
ið hafi úr 'skemtunum fólksins um
og eftir miðja 18. öld, og þar á
meðal úr sögulestri og rímnakrveð-
ekap. Árferði var oft stirt og af-
koma manna erfið síðari hluta ald-
arinnar og þetta dró kjark úr
mönnum, svo í einu sem öðru- Út
yfir tók þó þegar móðuharðindin
geysuðu yfir landið 1783—1786.
Er skiljanlegt að þá Ihafi oft verið
dapurt og dauft í bygðum landls-
ins og lítið um skemtanir.
Sennlega hefur nú sögulestur og
kveðskapur aldrei lagst niður með
öllu. Líkur eru til að þessi gamli
þjóðsiður hafi glæð'st aftur nokkru
eftir aladmótin 1800, Og einkum
þó eftir 1830. Að minsta kosti
sagði mér gamalt fólk um 1875—
1880, að i þess ungdæmi hefðu sög
ur verið lesnar og rímur kveðnar
á vökunum.
Maður, sem ólst upp austur í
Mýrdal hefir sagt mér, að á han®
unglingsárum, 1860—1870, hafi
lítið verið þar um isöguleistur, enda
skemtanir yfirleitt. En um og eftir
1874 verður breyting á þessu.-. Þá
er farið að leisa þar sögur víða, og
kveða rímur.
Eftir því 'sem eg kemst næst, og
minnir, mun rt'mnakveðfekapur
hafa verið í minna gengi 'hér
syðra, en annarsstaðar á landinu,
isértaklega nyrðra. Dreg eg það
meðal annarsi af því, að á mínum
fyrri árum kyntist eg tiltölulega
fleirum Norðlendingum en Sunn-
lendingum, er voru góðir kvæða-
menn, eða þeir ekki gefið sig fram.
Sum rímnalög og rímnabragir
voru hér áður fyr, og eru enn,
kendir við Norðurland, t. d- Skag-
firska stemman, Vatnsdælinga.
bragir o. iS' frv.
Til þess að lesa isögurnar vald-
ist isá, er til þess þótti ibest fær á
heimilinu, enda voru til á mörgum
bæjum góðir lesarar. Ef enginn
gat eða fékst til að lesa, var feng.
inn til þesis maður af öðrum bæ.
Stundum fóru menn um og lásu
fyrir fólk' og kváðu rímur. Þeir
þóttu góðir gestir þar sem fólk
kunni að meta slíkt.. En á hinum
bæjunum nefnduist þeir flakkarar
og voru miður vel 'séðir.
Sögurnar, sem lesnar voru á
kvöldvökunum voru helstar: Forn-
aldiársögurnar og þar á meðal
Hrólfls'sögurnar, er jþótti miikið í
varið og voru alment vinsælar.
Noregskonungasögur — Heims.
kringla íislendingaisögur o. s. frv.
Sögur Jóns Thoroddsens — Piltur
og stúlka og Maður og kona ••—
voru og mikið lesnar. Einnig
Mannamunur , Smásögur Péturs
biskups o- s. frv. — Þá var og les-
ið mikið af allskonar iskrifuðum
riddarasögum er einstakir sögu-
fróðir menn höfðu safnað og 'skrif
að upp sér til gamans og dægra-
styttingar.
Oft var erfitt að ná í sögurnar.
Þær voru ekki til nema á stöku
stað og þá vitanlega helst hjá bók-
hneigðu fólki, er unni sagnafróð-
leik. Og þeir er áttu bækurnar
höfðu aldrei frið á isér fyrir foóka-
kvabbi hinna. Einna erfiðast var
að ná í sumar íslendingasögurn-
ar. Þær voru margar enn þá isjald-
gæfari en ýmsar aðrar sögur- —
Það var því þarfaverk er Sigurður
bóksali Kirstjánsison réðist í að
- i ',
Undursamlega, Nýtt Meðal Fyr-
ir Gamla og Unga.
Það Hoflr TVJfraáhrif á Veiklaðar
TttMgor, Veltir Matarl yst og
Va'ran Svefn.
Hið nyja meðal Nuga-Tone, hefir
somlð þúsundum manna til fullra.r
ehsu, sem orðnir voru úrkulavonar
uni hqilsubót. Sé um taugaslappleik
hofu5Vf,rki1 svefnleysi og Jystarleysi
a® r®ða, er ekki unt að fá betra
þ^eoal. Nuga-Tone hefir inni atS
oaida járnefni, sem blóðlð má ekkl
hv Vera' er nærr> Þvt ðtrfllegt,
e meSal þetta styrkir líkam-
n og fyiijr ffllk nÝju starfsfjöri.
MatarlyBtin eykst á svipstundu og
eltingin verður eins skörp og
rrekast verður ákosið. Liði yður ekki
®em bezt, ætituð þér að fá yður
rltku af Nuga-Tone, Batni y'ður
e ki, getið þér skilað pakkanum aft-
Ar x ** lyfsa'ans og fengið peningana.
Meðal^ þetta fæst hjá öllum lyfsöl-
m- Framletðendur Nuga-Tone hafa
evo miklð traust á meðali þessu, að
eir hafa falið ölJum lyfsölum að
.,.ÍTglasl t>aS' Meðallð er einkar-
P a*Böngu. Mánaðar skerfur,
os ■ r ekki meira an svo s©m einn
gefa þær út, um 1890 og verður
honum það seint fullþakkað.
Kvöldv<\kunum sjálfum ætla eg
ekki að lýsa hér. Það hafa aðrir
gert, og gert vel. Fjögur nafnkend
skáld, sem eg man eftir hafa lýst
þeim í bundnu og óbundnu máli.
Það eru þeir Eggert Ólafsson, Ein.
ar Benedikbssón í mansöngnum
fyrir Ólafs rímu Grænlendings,
Jón Thoroddsen í Manni og konu
og ólína Andrésdóttir í Breiðfirð-
ingavísum sínum. Lýsing þeirra
>er sannur ispegill af vökunum áður
og eins og eg man fyrst eftir iþeim-
Eggert ólafsson kveður í “Heim
ildarskrá’’ eða “tileinkun sagna og
kvæða til kvenna á íslandi." Hann
'segir 'svo:
Þegar hjá þeim húmar að
og hjarnar ljós í ranni,
margt þær raula rímnablað
0g reka hrygð frá manni.
Drósir jafnt með dygð og ást
dýrum hlýða sögum,
að feðra vorra frægðum dást,
er fyrri voru á dögum.
iSauma, greiða, karra, kljá,
kappið 'sagan eykur,
spinna, prjóna, þæfa þá,
það er einis og leikur.
Á þeim hfergi svefninn sér,
iseggir tíðum heyra,
lesari þegar letjast fer,
■ lostu núna meira.
Einar skáld Benediktsson kveður:
Vakan ómar háreyst hér,
hurðu fyrir innan
'stakan ihljómar- Úti er
utan dyra vinnan.
Saman bekkjast kona og karl.
kvæðamanninn heyra,
Gaman ekkert prúðan pall
prýðir annað meira.
Handa allra milli má
margvíst skoða ,tóvið,
banda karlsins 'fléttu frá
fram í voðarþófið.
Stálið óðar þróttar þungt,
þrumulagi kveður.
Málið góða altaf ungt,
allan bæinn gleður.
öngum istundin leiðist löng,
léttar mundin vinnur,
lðngum undir sagna söng
silkihrundin spinnur-
Situr stokkinn fljóðið frítt,
feimin undan lítur,
flytur ihnokkann, brosir blítt,
foláþráð sundur slítur.
Friður haldist. Blómgist 'bú.
Bleisisist frúar arinn.
Siður aldinn tengist trú,
tryggist hjúa skarinn.
Jón Thoroddsen segir fyrst frá
aðsókn Þuríðar gömlu. Þar næst
lýsir hann Þorsteini kvæðamanni,
föður Sigrúnar og isegir frá komu
smalans- —“Liður nú svo um hríð
að allir jþegja í baðstofunni og
situr hver þar sem hann er kominn
við sína vinnu.
Því næst ávarpar húsfreyja Þor
stein. Þykir henni fólkið dauft og
þegjandi og mælist til við hann er
hann ihafi lokið við að búa til skaft
á nafarinn, að hann lesi eða kveði
eitthvað fyrir stúlkurnar. Gerir
heimilisfólkið góðan róm að máli
húsfreyju og ibáðu allir Þorstein
kveða. 'Er nú fyrst um það rætt,
hvað kveða skuli, og verða ekki
allir á eitt sáttir um það. Tekur
Þorsteinn 'síðan af öll tvímæli um
það og hóf að kveða rímur af'
Úlfari sterka.
Þorsteinn kvað hátt og .snjalt;
það var hin besta skemtun; þögn-
uðu nú allir í foaðstofunni og
Ihlýddu, og var sem allir yrðu hýr-
ari og kviklegri í bragði en áður;
nálin hjá húsfreyju gekk tíðara
og li^Sugra. ^Ástríður vinnukona
kvað undir með Þorsteini, sagði
undir flatt og dillaði og var öll
siem á hjólum; þær Sigríður og
Guðrún teygðu þriðjungi lengra
úr lopanum en áður. Sigurði
bónda sóttist og ibetur verkið,
fléttaði hann nú (reiptagl) miklu
hraðar en áður og hnikti fast á
við hverja hendingu, eftir því sem
kvæðamaður hóf og herti á rödd-
inni. Kveður nú Þorsteinn lengi
og vel, og kemur svo, að hann he’f-
ir lokið hinni fynstu rímu; tekur
hann þá hvíld nokkra áður en
hann 'byrjar næistu rímu og fara
konur að tala um söguna.
Nú heyrist Ibarið eitt eða tvö
högg úti á bæjardyrahurð og trufl
ar það kveðskapinn- Ekki vill
bóndi að gengið sé til dyra. Segir
hann !það ekki sið kristinna manna
að knýja hurðir eftir dagsetur og
fara ekki á bæ og guða á glugga,
enda séu það fjandar og forynjur
einar, sem ekki berji þrjú hðgg.
Er svo ræct um þetta fram og aft.
u.r, og heyrast þá barin þrjú högg.
Fer þá bóndi til dyra en kemur
forátt aftur o.g kveðst einkis hafa
orðið var, en hundarnir hafi
allir hlaupið út með gelti og
ispangóli. Þetta þótti mönnum all-
kynlegt, en ræða þó fátt um. Tek-
uir Þorsteinn enn að kveða og
kveður umi hríð og líður á seinni
hluta vökunnar.’’
Ólína Andrósdóttir lýsir þann-
ig kvöldvökunum í Breiðafjarð-
areyjum:
Hver sér réði rökkrum í,
rétt á meðan áttum frí;
þá var kveðið kútinn í,
'kviknaði gleði oft af því.
Vetrar löngu vökurnar
voru engum þungbærar,
við ljóðasöng og sögurnar,
isöfnuðust föngin unaðar-
Ein þegar vatt og önnur spann,
iðnin hvatti vefarann,
þá var glatt í góðum rann,
gæfan spratt við arin þann.
Teygjast lét eg lopann minn;
ljóða metinn isöngvarinn
þuldi hetju þrekvirkin;
íþá var setinn bekkurinn.
Nú eru kvöldvökurnar í hinum
“gamla stíl" að leggjast niður.
Söguliesturinn og rímnakveðskap-
urinn er viða horfinn, eða óðum
að Ihverfa. Alt er foreytingu undir-
orpið í 'þessum heimi. — Þeir sem
c.itth'vað lesa gera það flestir í
foljóði. Af því leiðir, býst eg við,
að lestri manna fer aftur- Eg hefi
heyrt málsmetandi menn “fínar
frúr’’ oig menn í opintoerum trún-
aðarstöðum lesa, og það var eng.
inn lestur. Þetta fólk var ekki
bænabókarfært. Þeir sem iðka lést
ur í hljóði verða aldrei góðir les-
arar.
V. Skemtanir nútímans.
Skemtanir til sveita nú á tím-
um eru margar þær sömu og áður
gerðist. Það er farið á skíðum,
einkum í snjóahéruðum landsins,
hlaupið á skautum, glímt, farið í
reiptog, leiknir pantaleikar o- s.
frv. Þá er spilað á spil, engu
minna en áður. í sumujn sveitum
ihefir spilafiknin aukist til muna
síðustu tvo áratuginga, eftir því
sem sagt er. Áður létu flestir sér
nægja að spila um hátíðar og á
sunnudögum, en nú spila menn
al'la daga og vökurnar út. Á öllum
mótum og skemtisamkomum er
spilað. Undir eins og fyrirlesar-
inn hefir lokið -máli sínu, t. d- á
námiskeiðum, eru spi.lin tekin. Og
borið hefir það við að góðir’ og
gætnir menn 'hafa verið fengnir
til þess að hafa eftirlit með ung-
um mönnum, að þeir ekki spiluðu
meðan á erindisflutningi stóð.
Af spilum, er lítið eða ekkert
tíðkuðust fyrr 40 árurn, má nefna
“Lomfoer’ og “Bridge”. Auk þess
ispila margir Vist, Gasa, Kött, og
fleiri spil er algeng voru hér áður.
’Síðan Um aldamót hafa ýmsar
skemtanir rutt sér til rúms 1
sveitunum, er áður voru lítt þekt-
ar eða ókunnar með öllu. Flestar
þær skemtanir eru í eðli sínu fjðl-
mennisskemtanir, log stofnað til
þeirra með samkomum, er boðaðar
eru um stærri eða minni svæði
eftir ástæðum-. Þær eru jafnaðar-
lega 'bundnar við ákveðna staði,
þar sem rúmgóð hús eru á tak-
teinum, eða sérstakur undirhún-
ingur hefir verið gerður með til-
liti til íþrótta eða annara iskemt-
ana, svo áihorfendur geti séð hvað
fram fer. Slíkur undirbúningur
hefir verið gerður t. d. að Þjórs-
ártúni og víðar.
Skemtanir þessar og íþróttamót
eru því mjög frábrugðnar iskemt-
unum fyrir 40 árum. Þá voru þær
alment tengdar við heimilin, þar
sem heimilsfólkið og' fólk aðeins
af næstu bæjum kom saman til að
iskemta sér. En nú byggjast skemt-
anirnar á almenningsmótum, meir
cg minna fjölmennum-
Þetta er verulegur munur, á
skemtunum fyr og og nú.
Þær nýtískuskemtanir er eg
átti við, að flust hafi út um isveit-
irnar síðustu áratugina eru: ræðu
íhöld og fyrirlestrar, knattspyrnu-
ieikar, sjónleikar, flokksöngur og
dans. Alt geta jþetta verið góðar
skemtanir, þegar vel er með þær
farið. Þær hafa eins og flest ann-
að, 'borist hingað fynst frá útlönd-
um, og síðan breiðst út um bygð-
ir landsins frá kaupstöðunum og
sjáVarþorpunum.
Eins og þegar var getið, er
grundvöllurinn undir þessum
skemtunum, mót eða samkonvur.
Á sama mótinu er oft skemt með
flestu eða öllu þessu, er nú var
nefnt, í ákveðinni röð eða eftir
dagskrá. Það er oft byrjað á því,
að einn eða fleiri menn fljdja er-
indi eða ræður- Þá hefjast íþrótt-
ir, söngur o. s. frv., og venjulega
rekur svo dansinn lestina- Og
cftir honum bíður unga fólkið
með langmestri óþoilnmæði og
eftirvæntingu. Það er eins og
dansinn sé í augum margra kór-
ónan á skemtuninni.
Þessar samkomur og mót nefnd.
ust ýmisum nöfnum, eftir tilgangi
þeirra eða þá því, hver er aðal-
skemtunin.
Sæluvika Skagfirðinga er eitt
þessara 'skemtimóta- Þessi sam.
koma hefir verið haldin nú um
nokkur ár, um isama leyti og sýslu-
fundur þar er háður. Fundurinn
stendur venjulega yfir viku, og
mótið líka. Þangað sækir múgur
og margmenni, flest úr Skagafirð.
inum. Margt er þarna um hðnd
haft til skemtunar og fróðleiks.
Það eru flutt fræðandi erindl,
'Sýndir sjónleikar, sungið,, æfðar
íþróttir og jafnvel leikfimi, dans-
að o. s. frv- Þarf ekki neitt að lýsa
því, að fólkið skemtir sér þarná
ágætlega, svo sem nafnið “Sælu-
vika’’ bendir til. Og það sem er
best og virðingarverðast við þetta
Skagfirðingamót er, að reynt er
eftir megni að sameina gagn og
skemtun.
Námskeiðin í sveitunum —
kvenna og karla — eru nú i aðra
röndina skemtisamkomur. Þar er
einnig reynt að sameina gagn og
gaman. Aðaltilgangur þeirra er í
raun og veru sá, að fræða og leið-
beina- En maðurinn lifir ekki a
brauði einsömlu. Gamanið er haft
til uppfyllingar og — smekkbæt-
is.
'Skemtanirnar eru venjulega
samræðufundir — þeir geta líka
• verið skemtilegir — söngur, tspil,
íþróttir og svo lokadagskveldið
dans. — Námisskeiðin istanda yfir
3i—6 dag'a, og eru oft fjölmenn.
Uíigmennafélagamótin eða í-
þróttamót þeirra eru jafnan vel
sótt, hverju sem viðrar. Þau eru
tíðast héraðamót, iþar sem ein eða
fleiri sýslur taka þátt í þeim. —
Aðalskemtunin eru fþróttirnir-
Þar tíðkast og ræðuhöld og söng-
ur, að ógleymdum danisinum.
Þessar samkomur ungmennafé-
laga eru jafnaðarlega fjölmennar,
einkum þegar þeim er skipað vel
i sveit, og tiltölulega hægt að
sækja þær langt að. Á íþrótta
mótin að Þjórsártúni sækja menn
úr sýslunum Austanfjalls og sunn
?n yfir fjall og þar á meðal úr
Reykjavík. Á mannflestu mótun-
um þar, hafa verið síðuistu árin
um 3000—4000 manns, og þegar
flest var, nálægt 5000.
íþróttamótin er vinsæl um land
alt, jafnvel þó að hluttakan í sjálf-
um íþróttunum isé oft af skorn-
um skamti.
iSkemtanir eru einnig oft í sam-
Ibandi við fundi ungmennafélag-
anna inn/byrðis í Ihverju einstöku
félagi. Sama er og að segja um
fundi lestrarfélaga, kvenfélaga,
stúkufundi o- s. frv. Og skemtan-
irnar á þessum fundum eða sam-
komum eru venjulega hinar sömu :
ræðuhöld, söngur, spil og dans.
Það Iber og við, að í sambandi við
þessi mót sé stofnað til hlutaveltu
eða “böglakvelds” til ágóða fyrir
félagsskapinn á einn eða annan
veg, eða þá í þeim tilgangi að
styrkja þarfleg fyrirtæki I sveit-
inni, líknarstarfsemi eða annað
þessu skylt. — Hlutavelta og
“böglakveld’’ þektust ekki upp til
sveita hér áður, svo eg muni eftir.
En “böglakveldin’’ eru oft fjörug
og vekja hlátur, enda draga þauj
fólk að sér.
Auk þeirra skemtimóta er nú:
hafa verið talin, eru ýms önnurj
mót eða samkomur haldnar í sveit-;
iinum, að gefnum tækifærum.;
Stundum er það æfður söngflokk-j
ur er boðar söngskemtun, eðai
knattspyrnufélag, er stofnar til j
knattspyrnuleiks, eða loks leik-l
endaflokkur er sýnir sjónleik með
fjölbreyttri skemtun á eftir.
Þá ber það og við, að söngmað-
ur úr Reykjavík eða annarsstaðar
frá, bregður sér upp í sveit ’og
-syngur “fyrir fólkiðf’— En alt
kostar 'þetta peninga, þó ólíku sé
saman að jafna við það, sem skemt
anirnar i bæjunum kosta,.
Þorrablót eru gömul og þjóðleg
samkoma. — En fátíft munu þau
hafa verið í sveitunum fram um
síðustu aldamót, og eru enda enn.
f sveitunum hér syðra og vestra
man eg ekki eftir þeim. Hinsveg-
ar eiga þau isér stað við og við
norðanlands og austan. Á Hólum
í Hjaltadal hafa þau verið öðru
hvoru um langt skeið, og þaðan
hafa þau líklega breiðst út um
Norðurland-
Þegar skemtunum hinna mörgu
félaga, hverju nafni sem þau nefn
ast, lýkur, þá koma stundum ein-
stakir ungir menn til sögunnar,
sem þyrstir eru í dans og aðra
gleði, og hóa fólki saman. Á skemti
samkomum er það oftast dansinn
sem skipar öndvegið, og þá er
nóttin látin ráða. Enda ekki um
annað að gera þegar vetrarskemt-
anir eiga í ihlut, nema tunglskin
sé og- gott veður. Nl.
S. S.
Lögrétta 25- febr. 1925.
Heimsdkn á Betel.
Sunnudaginn 1. marz, var venju
fremur g*latt á hjalla á Betel. Svo
stóð á, að þann dag var tíunda
afmæli stofnunarinnar. Þrátt fyr-
ir frost og kulda þann dag, kom
kvenfélagið ’Fram!sól<n’ með
fylktu liði, ásamt allmörgum úr
söngflbkki lúterska safnaðarins.
Einnig voru þau séra Rúnólfur
Marteinsson og frú hans stödd
hér. Mijs- Marteinsson stjórnaðl
isöng við þetta tækifæri. — Kven.
félagkonurnar slógu umsvifa-
laust upp afmælisveizlu. Miklar
veitingar vocu fram reiddar. Sam
timiis því skemti hópur kvenna og
manna með söng, sem vistfólkið
og flestir viðistaddir tóku þátt í.
Þótti eldra fólki mikil skemtun að
því fátt færir glöggar gengna
gleði æskunnar til til báka, en
söngvar, er sungnir voru í foernsku
Söngur •íslenskra sálma og ljóða,
á sér undur djúp tök í hjörtum
foinna eldri. Þegar svo leið dagor
að kveldi, hélt fólk heimleiðis aft-
ur, en skildi eftir gleðigeisla í
“Reyndist $ 100 virði, lœknaði
Eczema og gylliniœð”
Mrs. Peter Palmer, Saltburn, Sask., skrifar:
“Dr. Chose’s Ointment, hefir læknað mig gersamlega af
eczema og gylliniæð. notaði þetta meðal einnig handa barn-
inu mínu, sem varð útsteypt í
klá'Sa. Eg þurfti ekki aS bera
hieSaliS á nema nokkrum sinn-
um’. Dr. Chase’s Ointment, hef-
ir, reynst mér mörg hundruð
dala virSi, — áður en eg reyndi
það, hafSi eg eytt stórfé i á-
rangurslaus meSöl frá læknurrt.
Eg hefi notað fleiri Dr. Chase’s
meðöl, svo sem Nerve Food, er
læknaSi mig af taugaveiklun,
þegar eg var ung stúlka.’’
DR. CHASE’S OINTMENT
60 cents liylkið, lijú Iyfösliun eða Kdmanson. Bntcs & Co., Ltd. Toronto
hjörtum gamla fólksins fyrir
“góða stund’’ sem allir nutu sam-
eiginlega- Þetta er heldur ekki i
fyrsta skifti, sem “Framsókn" hef-
ir glatt Betelábúa með heimókn
sinni. Hugheilar þakkir húsb^enda
og vistmanna, til kvenfélagsims,
og til' söngfólksins og annara
gesta, fyrir gleði þá isem þið veitt-
uð með komu ykkar.
Viðstaddur.
Sunnudaginn 1. marz s- 1. isíð-
degis, gerðu konur kvenfélagsinis
“Framsókn’’ á Gimli, fjölmenna
heimókn að Gamalmennaheimil-
inu “Betel” og veittu viistmönnum,
gamalmennum heimilisius rausn-
arllegar veitingar, með miklum
mannfagnaði.
Tilefni þefssarar heimsóknar
var, að þann dag (1. marz 1925)
var 10 ára afmæli gamalmenna-
heimilisins Betel. Með öðrum orð-
um: það var þá búð að starfa í tíu
ár, tók til istarfa 1. marz 1915.
Kvenfélagið “Famsókn’’ á
Gimli, hefir um undanfarin ár
styrkt Betel, með fégjöfum og
veitt þar iheimsóknir með mann-
fagnaði.
Fyrir umrædda heimókn iþakk-
ast kvenfélaginu hið allra beista,
sem og fyrir gjafir og heimsóknir,
er það hefir veitt Betel, um undan
farin ár. Um leið er öllum félögum
einstökum mönnum, körlum og
konum, fjær og nær, isem hafa
styikt Betel, með fégjöfum eða á
annan hátt, í orði og verki, vottað
hið. allra besta þakklæti og þeim
ðllum óskað allrar bleslsunar “árs
og friðar.”
Fyrir hönd vistmanna að Betel.
Halldór Daníelsson.
Frá Islandi.
Bátur ferst með sjö mönnum-
Vélbáturinn Oddur, eign Jóhan-
sens á Reyðarfirði fórst í fyrri-
nótt með sjö mönnum í ofsaroki,
sennilega nálægt Stokkanesi, þar
fundust í gær á floti olíutunnur,
poki, koffort o. fl. Báturinn fór f
fyrradag áleiðis til Hornafjarðar
og sást seinast vestur undir Papey
kl. 4 síðdegis1. Formaðurinn hét
Jón Árnason, vélamaður-Sigurður
Magnússón, hásetar voru: Ágúst
Gíslason og Bóas Malmquist, og
landmenn Guðni Jónsson, Gunnar
Malmquist og Emil Beck. Þrir
þessara manna voru gitir barna-
menn.
iBre<3ku beitiskipin, sem leituðu
togar?inna fyrir sunnan og austan
land urðu einskis vör- Fór annað
heimleiðis í gær, hitt fer í kveld.
Togarinn Vera frá Hull strand-
aði í nótt á Kerlingardalsfjöru á
Mýrdalssandi. 15 menn björguðuist
og komu þeir til Álftavers í morg-
un. Talið er ókleift að ktomast út
í skipið. Fregnirnar um strandið,
aðrar en þær, sem að framan eru
nefndar, eru óljósar-
Jón Benedikts Jónsson cand.
phil. andaðist í franska spítala 1
fyrrakveld, eftir langvinnan sjúk-
leik. Hann lauk stúdentsprófi vor-
ið 1902, stundaði síðar laganám
. um hríð, en hvarf frá því áður en
til prófs kæmi. Jón var mikill mað-
j ur vexti og hinn gervilegasti, ein-
kennilegur í háttum og ekki hvers.
dagslegur- iHann orti nokjkuð á
síðari árum og var vel hagorður.
Vísir 3. marz. ’25
Hin Eina Hydro
Steam Heated
BIFREIDA HREINSUNARSTDO
i WINNIPEG
Þar sem þér getið fengið bílinnyðar þveginn,
það er að segja hreinsaðann og olíuborinn á ör-
stuttum tíma, meðan þér standið við, ef svo
býður við að horfa, eða vér sendum áreiðanleg-
an bílstjóra eftir bíl yðar og sendum yður hann
til baka, á þeim tíma er þér œskið. Alt verk
leyst af hendi af þaulvönum sérfrœðíngum.
Þessi bifreiða þvottastöð vor er á hentugum
stað í miðbœnum, á móti King og Rupert St.,
á bak við McLaren hótelið.
V
Ppaipie City Oil Company
Liimited
Laundry Phone N 8666 Head Ofíice Phone A 6341