Lögberg - 25.03.1926, Blaðsíða 4

Lögberg - 25.03.1926, Blaðsíða 4
% Bís. 4 LÖGBERG FIMTUDAGINN, 25. MARZ 1926 tf~ Jogbeig Gefið út Kvem Fimtudag af Tbe Col- Hmbia Press, Ltd., (Cor. Sargent Ave. & Toronto Str.. Winnip>eg, Man. Tal.iman N-6327 o& N-6328 JÓN J. BILDFELL, Editor Otanáskríft til blaðsins: THE C0LUN|BtA PRE88, Ltd., Bo« 317*, Wtnnlpeg. Hai\- Utanáakrift ritatjórans: EOlTOR LOCBERC, Box 3172 Wlnnlpeg, tyan. Th« "Lögberg” is prlnted and publlshed by The Columbla Preas, L.lmited, in the Columhi* Bullding, CS5 Sargent Ave, Winnipeg. Manitoba. Hon. Charles Dunning. Saga þes3a einkennilega manns, minnir mann á sögurnar fornu, þegar konungur og drotning bjuggu í ríki sínu, en karl og kerling í koti, og börnin beggja uxu upp—konungsdóttirin fögur og fyrirmai-.nleg, en kotungssonurinn í fátækt og fyrirlitningn. En svo komu starfsárin. Auðugir og voldugir þjcð- höfðingjar, frægar og margreyndar hetjur, krupu að fótum konungsdótturinnar og buðu henni kosta- boð, ef hún vildi gefa þeim hug sinn og hjarta. Kotungsscnurinn, sem líka dreymdi um ást hennar, átti ekkert til að bjóða annað en viljaþrek sitt og mannskap, og stundum kom það fyrir, að það mátti sín meira en auður, völd og virðingarstöður hinna. Árið Í903 kom seytján ára gamall unglingur með innflytjenda lest til Winnipegborgar. Hann var einn síns liðs. Fátækur eins og flestir aðrir innflytj- endur—átti fötin, sem hann stóð í, hálslín og aðra verðlitla muni í tösku, sem hann hélt á í hendinni. Hann var að leita gæfunnar í framtíðar og tækifæra- landinu Canada, eins og svo margir aðrir höfðu gjört á undan honum, síðan hafa gjört og væntanlega gjöra á komandi árum. Hvað hann ætlaði að gjöra, eða hvar hann ætlaði að setjast að hér í landi var hon- um ekki ljóst. En faðir hans, sem líklega hefir ver- ið einn af þessum gamaldags sérvitringum, bað hann að skilnaði að velja sér stað í landinu nýja, þar sem bæði væri skógur og vatn. Þessi piltur sá, að um ekkert slíkt var að ræða í kringum C. P. R. vagnstöðina í Winnipeg, og hann vissi, að óhugsan- legt var að eyða tíma í að leita slíkan stað uppi, því kröfur daglegs lífs kröfðust sinna þarfa, svo hann lagði eyra við mál manna þar á vagnstöðinni, er voru að fala menn í daglaunavinnu til Yorkton í Sskatchewan, og tók hann tafarlaust tækifærið til þess að vinna fyrir mat sínum og fór til Yorkton. Þessi unglingur var Charles Dunning. Vér vitum ekki um allar athafnir Charles Dun- nings í Saskatchewan. Vér vitum, að hann tók sér þar heimilisréttarland og bjó áí því góðu þúi og á landið enn. Vér vitum, að hann var aðal driffjöðr- in í að mynda kornhlöðu sameignafélagið í Saskat- chewan — stærsta og stórkostlegasta sameignar- félagið í Canada»og það þarfasta, og stjórnaði því með snild. Vér vitum, að hann var valinn af stjórn Saskatchewanfylkis í eitt af vandasömustu, ef ekki vandasömustu stjórnarráðsembættum í fylkinu. Vér vitum, að hann síðar var kjörinn forsætisráðherra þess fylkis, og vér vitum að naumast er til sú hreyf- ing í því fylki, til heilla fylkisbúum, sem hann hef- ir ekki verið riðinn við, og vér vitum, að alt, sem hann hefir tekið sér fyrir hendur að gjöra, hefir honum farist snildarlega vel úr hendi, — svo vel úr hendi, að álit hans, vegur og orðstír hefir vaxið afi hverju hans verki, unz nú að þessi karls- sonur er orðinn ástmögur hinnar canadisku þjóðar —elskhugi ungfrú Canada sjálfrar, og hefir verið kvaddur til þess að gegna einu allra vandasamasta embætti ríkisins. Og er það von allra, að hann bregðist ekki því mikla trausti, sem honum hefir með því sýnt verið, né heldur gleymi ábyrgð þeirri, er því fylgir. Eins og menn vita, hefir Hon. Charles Dun- ning verið skipaður járnbrautamála ráðherra og innanlands skipaskurða í Canada, og var kosinn í bænum Regina gagnsóknarlaust til þess embættis. Á fimtudaginn var kom hann til Winnipeg á leið til Ottawa, þar sem framtíðarheimili hans verður, og var honum haldið samsæti að kvöldi þess dags á Fort Garry hótelinu hér í bæ. Samsæti það var eitt hið fjölmennasta, sem hér hefir verið haldið, því stærsti veizlusalur hótelsins reyndist of lítill til þess að rúma gestina, en í honum sátu þó um fimm hundruð manns til borðs. MannfjöMi þessi var ekki allur tilheyrandi sama stjórnmálaflokki í landsmálum og heiðursgesturinn — þar voru menn úr öllum stjórnmálaflokkum, sem til eru í landinu. En þeir voru þar allir til þess að heiðra Hon. Char- les Dunning — karlssoninn, sem fyrir 23 árum kom allslaus til landsins, en nú var orðinn einn af æðstu embættismönnum þess, og er það enn einn vottur um orðstír þann og álit, sem þessi einkennilegi mað- ur hefir áunnið sér á því tímabili. Hon. Charles Dunning er meðalmaður á hæð, þreklega og vel vaxinn. Andlitið er hreint, svipur- inn gáfulegur og einarður og má hver maður sjá, er hann Iítur, að hjá honum fer saman sjálfstæði og þrek. Hann er afbragðs vel máli farinn. Mál- rómurinn hreinn og skýr, framburðurinn þróttmik- ill og orðaval ákveðið og óþrjótandi. Eins og búist var við og enda sjálfsagt, flutti Mr. Dunning aðal ræðuna við þetta tækifæri — hina fyrstu opinberu ræðu sína, eftir að hann varð járnbrautamála ráðherra, og var hún bæði snjöll og vel flutt. Mintist hann fyrst á hina sýnilegu framför þjóðarinnar á vegi velmegunar, og þá brýnu skyldu allra. góðra borgara, að. hafa traust á fram- tíð lands og þjóðar. Um járnbrautarmálin komst hann svo að orði: “Það er eitt, sem þið Winnipeg- búar þurfið að venjast við eins og fólkið í Saskat- chewan, og það er að heyra sannleikann. Vér höf- um tvö járnbrautarkerfi Canada, sem báðum er bet- ur stjórnað, en nokkrum öðrum járnbrautum í heimi.” Um flutningsgjöldin sagði hann: “Flutnings- gjöld á járnbrautum í Canada eru lægri, en flutn- ingsgjöld á nokkrum öðrum járnbrautum veraldar- innar, og eg er sannfærður um, að- það er ekki unt að vonast eftir lækkun þeirra undir núverandi kringumstæðum. Aðal verkefnið er, að koma jafn- vægi á þau þannig, að þau séu ekki hærri að tiltölu á einum parti brautanna en öðrum, í einu héraði landsins en öðru.” Svo sneri ræðumaður sér að borgarstjóra Webb og mælti: “>Eg sé að hinn virðulegi borgarstjóri yðar vill að eg segi eitthvað um Hudsonsflóa braut- ina. Um það mál þýðir ekki; að fara mörgum orð- um. Brautin verður bygð, og eg ætla að sjá um, að við það verk verði lokið. En á því máli eru tvær hliðar. Sú, sem að stjórn Canada, eða mér, snýr — að ljúka við brautina. Hin snýr að yður, verzlunar- menn í Wínnipeg) — sú, að sjá um, að nægilegur flutningur verði til að flytja með brautinni, eftir að hún er fullgerð. Munið, að það er þýðingarlaust að byggja brautina, ef ekkert er til að flytja með henni.”' Auk Hon. Charles Dunnings töluðu í þessu samsæti, Hon. T. C. Norris, leiðtogi frjálslynda flokksins í Manitoba og fyrverandi forsætisráð- herra fylkisins; W. G. Rumble, meðlimur í félagi ungra frjálslyndra manna í Winnipeg, og Hon. John Bracken, forsætisráðherra Manitoba fylkis. — Sam- sætinu stýrði Mr. A. E. Rosevear, forseti Young Men’s Liberal Club, er fyrir samsæti þessu stóð. * .Hon. Charles Dunning fóf héðan áleiðis til Ot- tawa á föstudagsmorguninn í síðustu viku. Skuggahverfi. Flestir menn, sem komnir eru til vits og ára í þessu landi, kannast við orðið “Underworld”, og vita hvað það meinar — vita, að það er nafn á fólki þessa þjóðfélags, sem fallið hefir ofan í eymd og ógæfu mannlegs lífs, — vita, að það er nafnið á samvizkulausum mönnum og konum, er starfa í skuggahverfum lífsins og veiða þangað til sín sak- ieysið, æskuna og ósjálfstæðið. Þessi skuggahverfi er víðar að finna, en í þessu landi. Þau eru fylgifiskar flestra þjóða og ljótasti blettur allra stórborga. Þau eru heim- kynni, sem engir vilja búa í, er ant er um mannorð sitt og heiður, né heldur hafa nein mök við. Um orsökina fyrir tilveru þeirra og þroska inn- an þjóðfélaganna er ekki áform vort að tala að þessu sinni. Það er nóg að menn vita að þau eru þar og að þau eru ekki að eins ljót, heldur líka stór- skaðleg fyrir velferð einstaklinga og heildar. En þó þessi skuggahverfi séu þjóðarlestir og þjóðardrep, og þó. þau séu þeir blettirnir á lífi stór- borganna og þjóðfélaganna, þá eru þau ekki þeir einu lestir, þau einu skuggaahverfi, sem breiða eiturvængi sína yfir líf vort mannana. Þó þau valdi vanalega mestu umtali sökum þess, að á þeim ber mikið, og hættan, sem af þeim stafar, er svo sýni- leg og jafnvel áþreifanleg. Það eru til fleiri skuggahverfi og þau að engu hættuminni fyrir menn, en þau, sem blasa við allra augum í stórborgunum, — það eru til skuggahverfi andans, sem eitra út frá sér, ekki síður en skugga- hverfi borganna. Það er til eins mikið af andlegri rotnun og siðferðislégri, eins mikið til af andlegu eins og af líkamlegu siðleysi. Oft höfum vér hlustað á tal manna, sem greini- Iega hefir borið með sér, að þeir hafa átt heima í hinum andlegu ' skuggahverfum lífsins. Háværir og hrottalegir hafa þeir haldið fram málefnum bg hugmyndum, sem hafa ekki verið vitund hreinni né heldur uppbyggilegri, en tal og athafnir fólks þess, sem heima á í hinum vanalegu skuggahverfum. Myndirnar, sem þeir með orðum sínum drógu, voru falskar, orðin ósönn og afleiðingar þeirra sýkjartdi. En þó hinu daglega máli manna sé þannig ábóta- vant og þó að menn miklist af þeim siðspillandi og afvegaleiðandi orðaflaumi, þá er hann ef til vill ekki hið stærsta eða hættulegasta eyðileggingarfl í hin- um andlegu skuggahverfum mannanna, heldur bæk- urnar og blöðin, sem ritaðar og rituð eru í þessum sama anda, og sem, dag út og dag inn halda að mönnum fölskum mannlífsmyndum, hálfköruðum sannleika og getgátum, sem hálfbakaðir gutlarar með spekingssvip halda að mönnum sem óyggjandi sannleika, og svo þrátta menn og rífast um hitt og þetta, um kirkjumál og vísindi, án þess að byggja á nokkru öðru en sínu eigin hugmyndasafni. Fyrir nokkru síðan lásum vér ritgjörð eftir nafnkendan vísindamann, Dr. David Starr Jordan, sem hann nefnir “Vitleysis kögur vísindanna” (The Lunatic Fringe of Science). Er það harðorð ádrepa til manna þeirra og rithöfunda, sem eru að slá einu og öðru föstu í nafni vísindanna, sem að vísindin gefa enga heimild til. Dr. Jordan segir í þessari á- minstu ritgjörð, að fáir rithöfundar gjöri sér grein fyrir, að bókmentirpar eigi sín skuggahverfi — underworld—, 'eða þó öllu heldur, að heimilisfang sumra rithöfunda *— vísindalegra rithöfunda, sé í þeim skuggahverfum; — þeir riti og riti í nafni vísindanna, án þess að gjöra sér grein fyrir grund- vallaratriðum þeirra eða takmarki. Hlutverk vís- indanna er, segir Dr. Jordan með Agassize, að leit- ast við að skýra eðli hlutanna eins og það í raun og sannleika er. En slíkt er ekki áhlaupaverk, og það krefst nákvæmni, og hvert spor sem stigið er, hvert sannleikskorn, sem fundist hefir, leysir aldr- ei spursmálin til fulls. Hvert atriði, sem leyst er úr dróma vanþekkingarinnar, er lykill að heilum heimi, sem enginn þekkir enn. Uppgötvun á nýjum sannleika er aldrei tilviljun. Þar hefir auga meist- arans og tilraunir verið að verki. Alt það, sem skilningi almennings er auðráðið, hefir fyrir löngu verið leyst. En menn eru óþolinmóðir að bíða eftir hinum seinlátu fullnaðarúrslitum vísindanna, og leita því bráðari úrslita, ekki á vísindalegan hátt, heldur með því að slá hlutunum föstum, að svona séu þeir, og láta sem slíkt sé óyggjandi úrskurður vísind- anna. Ferðmikil hástökk gjöra engan greinarmun á líkingu eða tilviljunar samstæðu, og líkur um sam- eiginlegan uppruna, eru frumeinkennin. Þessir menn, segir Dr. Jordan, blanda þannig saman því, sem líklegt þykir, við raunverulegan sannleika. Dr. Jordan tekur tvær bækur sérstaklega til at- hugunar og bænar í þessu sambandi. önnur þeirra \er um stjörnuspár (Astrology). iHin um apaupp- runa manna, og telur þær báðar tilheyra skugga- hverfum bókmentanna. Um þá síðarnefndu farast Dr. Jordan þannig orð: “Annar höfundur, máske í gamni og í dularklæðum, færir fram mál mikið til sönnunar uppruna hinna þriggja upprunalegu kyn- þátta mankynsins. Þeir eru frá þremur mismun- andi apategundum komnir. f þeim fyrsta eru Ary- ar, sá norræni, slavneski, latneski ög Hindúar, og eru þeir komnir út af apategund þeirri, er Chim- panzee nefnist. Mongolar frá orangeutan apateg- urid og Negrar frá Gorilla öpum. Einstaka kyn- villingur, sem finst á meðal hvítu kynþáttanna, er þar kominn á þann hátt, að feður hans hafa bland- að blóði við hina útvöldu chimpanzee afkomendur. Slík mannfræði getur hoppað áfram eins gleiðgeng frá einni ágiskaninni til annarar og stjörnuspá- dómarnir. Höfundar slíkra bóka kvarta oft sáran undan því, að það sé samkomulag á meðal vísindamanna, að þegja slíkar bækur í hel og kefja niður þekkingu og andagift höfunda þeirra, eða hin innblásnu verk þeirra. Það er satt, að vísindamenn gefa þeim sjaldan þann gaum, er þeir eiga skilið fyrir þessar skuggahverfis athafnir þeirra í sambandi við þessi líkingarmál og getgátur. Þessi vitleysishringur ut- an um vísindin, er atriði, sem er þess vert, að það væri athugað útaf fyrir sig. Tímarit Þjóðræknisfélags íslendinga. VII. ár. Viking Press. Winnipeg. 1926. Þetta nýkomna hefti er myndarlegt og vel úr garði gjört frá prentaranna hendi, og sama má segja um innhaldið; það er fróðlegt og all-marg- brotið. Fyrst í heftinu eru tvö ljóð eftir skáldið Step*han G. Stephansson. “Skjálfhendan” er fallegt kvæði, þar sem skáldið lýsir vissu tímabili í lífi íslenzku þjóðarinnar, rökkurs og rauna tímabili, er hann líkir við ástand Veila og skipbrotsmanna hans, er þeir lágu í útskeri einu kaldir og illa klæddir, “Og beljandi stcrmur og brimið sauð Við bergið, og náttmyrkrið flæddi, og skammdegis nístingur næddi, og hvergi fanst skúti, sem skjól honum bauð”. Skáldið minnist á Veila og segir, að um hann viti menn ekki annað, en að hann hafi kveðið skjálfandi á skeri þessu, sem hafi nötrað í sjávarrótinu, sem hafi bjargað lífi skipbrotsmannanna. Svo snýr hann aftur til þjóðarinnar og segir: “Lát þig ei lygasögu gruna. Leitaðu inst þér í muna: Uefurðu ei sungið þér sálarbætur Svartar, illar veðra nætur? í skeri, við skiptjón beðið skjálfhent kveðið?” Þarna er skýrt, en stutt yfirlit gefið yfir hin dimm- ustu stríðsár hinnar íslenzku þjóðar Hitt kvæðið heitir “Metnaður”. Er efni þess tekið úr þeim parti sögu Egils Skallagrímssonar, er hann sat úti í skemmu og var að skoða fé það óg muni er hann hafði fengið eða heimt af útlendum höfðingjum, og minningar liðinna ára og metnaður sjálfs hans kemur fram í huga hans. Mörg eru yrkisefnin mikilfeng í fornsögum þjóðar vorrar, og mörg skáld þjóðarinnar hafa gjört þeim góð skil. Eri fá eru mikilfenglegri en bóndinn á Borg, eins og -Stephan G. Stephansson s^r hann í þessp sambandi. Undir æfilokin situr hann með merki minninganna fyrir framan sig. Minningarnar um liðið líf — dáðmeira, listfengara og lundríkara en flestra samtíðarmanna hans, sem sagan getur. Og hann sér samtíð sína og honum finst hún smá. Hinn arnfrái andi hans kemst við og særist af skilningsleysi manna, sem meta þá eins og nú, auð, metorð og völd, meira en andans göfgi, eða oss fínst, að sú tilfinning hafi hlotið að liggja til grundvallar fyrir því áformi Egils, að ríða til þings með fjársjóðu sína — gull sitt — og strá því fyrir Áætur lýðsins, svo hann berðist um haldréttinn á því. — Eitt var það, sem truflaði Eg- il, er hann lauk upp kistu þeirri, er menjagripina geymdi. Hann sá, að klæðin góðu, er Arinjörn hafði gefið honum, höfðu verið brúkuð, og sá, er bar þau, ekki getað'upp borið og þau því saurgast. Við það stygðist Egill, svo að hann hefði sjálfsagt drepið hvern þann óviðkomandi mann, sem slíkt gjörræði hafði framið En kona Egils sá hvað hon- um leið, og kvaðst hafa lánað Þorsteini syni þeirra klæðin; en Ásgerður kona Egils var sú eina, sem þá gat stilt skap hans Þessu atriði lýsir skáldið fallega, sem og öðrum í þessu kvæði: Fóru flughraðar, er fljóð sitt leit, margar miningar um muna Egils, sem yfir húm-himin hríslast eldingar.” —'En það er ekki ætlunarverk vort, að fara að prenta þessi kvæði upp. Menn geta lesið þau í ritinu og þar njóta menn þeirra bezt. Fyrsta ritgerðin í ritinu heitir “Aftur og— fram”, eftir Eggert Jóhannsson, fyrrum ritstjóra Heimskringlu, endurminingar frá verutíð höf. í Nýjtf íslandi og athuganir og bendingar í sambandi við þjóðræknismál Vestur-fslendinga. Er þessi grein hógvær, skipulega rituð og vingjarnleg, eins og frá hendi þess manns var við að búast. í þess- um endurminningum, sem ná yfir tíu mánaða veru Eggerts í nýlendunni, frá því í september 1866 og þangað til í júlí 1877, gefur höfundurinn skýra lýsingu á landnámi fyrstu íslendinga við íslend- ingafljót á landsvæði því, er þeir námu, erviðleik- um fólksins, sem það átti allslaust við að búa, húsakynnum þess, er það var búið að koma sér upp skýlum, vonum þess um framtíðina, og einnig sorg- um þess, er bólusóttin lagðist að bygð þess. öll er þessi frásögn vandvirknislega af hendi lgyst óg góður viðbætir við heimildir þær, sem áður voru fengnar til sögusafns þeirrar bygðar. Annað spursmál kemur fram í þessari grein Eggerts, sem er mjög tímabært og snertir ekki að- eins Nýja fsland, heldur og allar bygðir Vestur- Islendinga, en það er burtflutningur unga fólksins úr sveitabygðum í bæi og borgir. Hér er ekki að- eins um meinsemd að ræða, sem snertir íslenzkar bygðir, heldur og allar sveitabygðir þessa lands og sveitabygðir flestra annara landa um þessar mund- ir Straumur fölks úr sveitum í borgir og bæi og þá ekki sízt þeirra yngri, sem öll framtíð byggist á, er allsherjar spursmál, eða allsherjar mein vorrar tíðar; en við því er ekki þægilegt að gjöra Skemt- anirnar og hið margbreytta samkvæmislíf bæja og borga, lokkar ungdóminn að sér. Hugsunarhátt- urinn, sem skólarnir eiga alt of mikinn þátt 1 að mynda, krefst nautna og og skemtana lífs, sem bæ- irnir einir geta. veitt, og svo á verðfall á flestum landsafurðum síðari árin og megn óbeit á allri stritvinnu, sinn mikla þátt í því ástandi. Þetta á- stand, þenna útflutning, þann tvístring, telur Eggert ÞEIR SEM ÞURFA LUMBER KAUPl HANN AF The Empire Sash& DoorCo. Limited Office: 6th Floor Bank of Hamilton Chambers Yard: HENRY AVE. EAST. - - WINNIPEG, MAN. VERÐ og GŒDI ALVEG FYRIRTAK mesta þröskuldinn á því, að íslendingar þekki sjálfaa sig og móðurmál sitt að fimtiu árum liðnum, og er það óefað rétt skilið. En báran sú er þung og erfið viðureignar, því hún fær afl sitt frá því, sem ríkast er í manneðlinu nú á dögum — að njóta gæða lífs- ins án sveita síns andlitis. iMeðulin, sem Eggert bendir á í þessari grein, eru mörg góð og líkleg til bóta, ef menn fengjust til að sinna þeim. En ef1 til vill fæst aldrei algjör breyting í þessu efni, en sú breyting, sem kann að fást með breyttri aðstöðu til mentamálanna, þannig, að hætt sé við það óvit, að menta hvert mannsbarn til skrif-iðnar, eða til þess að taka að sér lærðar stöð- ur, en láta sig atvinnuvegi þjóðarinnar, sem velferð og framtíð hennar byggist á, engu skifta. f voru landi er sá hugsunarháttur — sá andi í mentamál- unum, að verða að vandræða viðfangsefni. Ef það ekki fæst, þá er hætt við, að þessi vellystingaralda tuttugustu aldarinnar verði að rísa og æða, þar til hún brotnar og þeir, sem þá komast upp úr volkinu, reki sig sjálfir á. Framh. Sjöunda ársþing (Framh.j • Sama kvöld'var haldin samkoma, íslendingamót, í Goodtemplarahúsinu, fyrir tilstilli deildarinnar “Frón” For- maöur deildarinnar, Hjálmar Gísla- son bóksali, bauð gesti velkomna, og flutti síöan stutt erindi, er gerður var hinn bezti rómur aS. Því næst söngl flokkur manna og kvenna undir stjórn DavíSs Jónassonar, ungfrú Ásta Her- mannsson lék á fiölu, forseti ÞjóS- ræknisfélagsins, séra Jónas A. Sig- urðsson, flutti erindi. br. Kinar Páll Jónsson flutti kvæði, Mrs. S. K. Hall söng, séra Guðmundur Árnason Tlutti erindi, Lúðvík Kristjánsson flutti kvæði, hr. Ragnar H. Ragnar lék á píanó og aö endingu söng flokkur hr. Daviös Jónassonar. Fór þetta alt á- gætlega úr hendi, aö því undanteknu að svo mikill kliöur var stundum í húsinu, af umgangi og hljóðpískri, aö ýmsum þeim er aftarlega sátu veitti erfitt aö heyra. Aö þessari skemtan lokinni, var boöiÖ til veitinga í neöri sal hússins, og um leið gengiö aö dansi í efri salnum,. Höföu menn af því ágæta skemtun til þess er lokaö var, hálfri annari stundu eftir mið- nætti. Næsta dag, föstudaginn 26. febrúar var fundur settur aftur kl. 10.30 f. h. Var fundargerð síðasta fundar lesin og samþykt í einu hljóöi, breytingar- laust. Þá lá fyrst fyrir aö kjósa þriggja manna milliþinganefnd, til þess aö starfa að félagsheimilismálum. Var stungiö upp á Árna Eggertssyni, séra Rögnvaldi Péturssyni, Friöriki Krist- jánssyni. J. J. Bíldfell, Ásmundi Jó-| skyldi frestað unz nefndarálitið í út hannssyni. Tveir hinir síöastnefndu| hreiöslumálinu heföi komiö fyrir tók þingheimur því. þ'ngið. Var sún samþykt í einu hljóði. nú í sjóöi sé afhent væntanlegri milli- þinganefnd, að yfirskoðun afstaöinni, til nota á fjárhagsárinu. Tillaga kom frá Þorsteini Guð- mundssyni, studd af Einari P. Jóns- syni, aö samþykkja nefndarálitið sem lesiö. Var hún sþ. í einu hljóði. Þá kom fram nefndarálitið i tíma- ritsmálinu, í þrem liðum. Vildi nefnd- in leggja til: 1. “Aö stjórnarnefndinni sé falið aö annast um útgáfu Tímaritsins á yfirstandandi ári, í sama formi og áður, aö ööru leyti en því, aö lesmál sé minkað um 16 bls., en í þess stað sé gefiö út fylgirit fyrir börn og ung- linga, 16 bls. aö stærð, auk kápu, er sent sé ókeypis öllum kaupendum Tímaritsins, en selt í lausasölu fyrir 25 cents. 2. Nefndin leggur til, að allir full- orðnir meölimir, skuldlausir við fé- lagið, og nýir meðlimir, fái Timaritiö fyrir hálft verð. 3. Aö framkvsemdarnefndinni sé falið að ráða ritstjóra meö sömu kjör- um og áöur.” Tillaga var samþykt frá séra Rögn- valdi Péturssyni, studd af A. Skag- feld, að ræða nefndarálitiö lið fyrir lið. ' Við fyrsta lið kom fram breyting- atillaga frá Sigfúsi Halldórs frá Höfn um, að öll orðin eftir “í sama formi og áður” falli burtu, en liðurinn að þeimsé samþyktur sem fyrsti liður. Var þessi breytingatillaga samþykt í einu hljóði, og allur liðurinn síðan samþyktur í einu hljóði með áoröinni breytingu. Við annan lið kom fram tillaga frá séra Rögnvaldi Péturssyni, studd af J. Finnssyni, að umræðum um hann afsökuðu sig, og tók þingheimur því Með því að þá var ekki stungið upp á fleirum, voru hinir þrír fyrst töldu kosnir í nefndina, Þá gat séra Fr. A. Friðriksson þess, að dr. J. P. Pálsson hefði beðist und- an störfum í bókasafnsnefnd, sökum anna. Tók forseti gilda afsökun hans og skipaði séra Guðmund Árnason í hans stað í nefndina. Þá kom fram álit þingnefndar um bókasölumáliff, í þrem liðum. Viidi nefndin leggja til: 1. Að bóksalafélagið i Reykjavík setji hér á fót umboðsverslun í lík- ingu við umboðsverslun Gyldendals í Minneapolis, og víðar, og setji mann fyrir verslunina hér. 2. Umboðslaun skulu greidd af bók- salafélaginu eftir samningum, en þó svo, að bækur séu ekki seldar hærra verði hér en í Rvik. Sé þetta fyrirkomulag tekið, vill þjóðræknisfélagið bjóðast til að að- stoða bæði umboðsmann og eigendur verslunarinnar, svo að verslunin geti staðið á sem sanngjörnustum við- skiftagrundvelli. Tillaga kom frá A. B. Olson, studd af A. Skagfeld, að samþykkja nefnd- aálitið var lesið. Var hún sþ. í einu hljóði. Séra Rögnvaldur Pétursson bar fram tillögu, studda af P. S. Pálsson, að afrit af nefndarálitinu skyldi sent ibóksalafélaginu í Reykjavik, var hún samþykt í einu hljóði. Þá kom fram íþróttanefndarálit í fjórum liðum. Vildi nefndin leggja til: 1,. Að kosin sé þriggja manna milli- þinganefnd, er annist íþróttamálin, sérstaklega glímuna, líkt og í fyrra. 2. Ap væntanlegum yfirskoðunar- mönnum sé falið að yfirskoða reikn- inga milliþinganefndarinnar í fyrra hið fyrsta. 3. Að sökum þess, að nauðsyn beri til að gera glímuna að þjóðíegri í- þrótt í Ameríku, eins:' og t. d. skíða- hlaup, og með því að sá einn kostur sé þess, að glíman eigi sér verulega framtíð fyrir höndum, þá sé æskilegt að mönnum af öðrum þjóðflokkum sé gefinn kostur á að keppa um glímu- verðlaun til jafns við íslendinga á glímumótum þjóðræknisfélagsins, þó með því skilyrði, að fyrstu 19 árin sé til þess leitað samþykkis Jóhannes- ar Jósefssonar glímukappa, sem gef- ið hefir verðlaunin ti! þingglímunnar. 4. Að fé það er glíniunefndin hefir Svo kom tillaga frá Árna Eggerts- syni, studd af O. Olson, að alt nefnd- arálitið nema fyrsti liður, sé látið 'bíða sama tíma. Var það samþykt í einu hljóði. Þá kom fyrir nefndarálitið um framkvæmdarstjóramálið í fimm lið- um: 1. Nefndin álítur að sem mest beri að breiða út rétta jþekkingu á íslenzkri þjóð og bókmentum meðal Canada og Bandarikjaþjóðanna. Vill því leggja til að kosin verði þriggja manna milli- þingafiefnd til þess að starfa í þessa átt. 2. Nefndin xtti að grenslast eftir hvort unt sé að fá flutta fyrirlestra um íslenz'k efni við ihærri mentastofn- anir. Ennfremur að íhuga 'hvort nota mætti ensk blöð og tímarit til út- ibréiðslu almennrar þekkingar á ís- lenzkum málum, 3. Nefndin skal í samráði við stjórn- arnefnd félagsins, ef kostnaður levf- ist, útvega mann eða menn til fyrir- lestra þar sem hentugast þykir eftir ástæðum. 4. Þá skal nefndin fá hæfan mann eða menp til þess að rita i þau blöð og tímarit, sem hún tiltekur um ís- land — landið, þjóðina, sögu, þjóð- sagnir, náttúru landsins og bókment- ir að fornu og nýju og hvað annað, sem nefndinni sýnist gjörlegt, að rit- að sé um. Nefndinni dylst ekki, að með þess- ari aðferð má gjöra mikið til þess að kynna enskumælandi þjóðum ættland vort og þjóð, Og með því að sú að- ferð niundi hafa hlutfallslega lítinn kostnað i för með sér, vill nefndin mæla eindregið með að hún sé notuð. 5. Ennfremur skal nefndin sjá um að Ieiðrétta missagnir um ísland og íslendinga ef þörf þykir. Einnig viil nefndin leggja til að skrífara félags- ins sé falið að þakka forstöðumanni lagaskóla Manjtobiafylkis, hr. Jósep T'horson fyrir ágætt fvrirlestrarstarf um íslenzk efni srðastiiðinn vetur, á sama hátit vildi nefndin nefna og þakka meðal margra annara hr. Jóhannesi Jósefssyni, Miss Þórstínu S- J.vckson, og B. L- Baldv-insson, er tekið hafa málstað Vestur-Islendinga og gert þá kunna. Tillaga var samþykt að samþykkja nefndarálitið. t milliþinganefnd var stungið upp á Árna Eggertssyni, Sigfúsi Halldórs frá Höfnuni og J. J. Bíldfell. Var

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.