Lögberg - 16.12.1926, Page 2
Bls. 2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. DESEMBER 1926
Haustið 1904 var eg staddur í
borginni Swansea í Wales á vest-
urströnd Englands. Um sumarið
hafði eg verið í siglingum milli
New York, Nýfundanlands og
Swansea; en nú var komin desem-
ber mánuður og langaði mig ekki
beinlínis til að sigla yfir Atlants-
hafið aftur um veturinn. Hinn
undanfarna vetur hafði eg haft
bæði jól og nýár úti á Atlanshaf-
inu og höfðum vér ofsaveður alla
leið frá Nova Scotia til Englands.
Nú ætlaði eg í staðinn að fara
suður í hlýrra loftslag og reyna
að koma aftur til Englands með
farfuglunum um vorið. Skipið,
sem eg ætlaði að sigla á, mundi
sem sé fara suður í Miðjarðarhaf-
ið. í>að hafði tekið inn kolafarm
í Swansea og lét í haf seint um
kveldið þann 16. desember áleið-
is til Feneyja á ítalíu. Feneyjar,
eða Venezia, eins og ítalir nefna
þær, liggja úti í Adríuhafinu og
eru 117 að tölu. Aðalborgin ligg-
ur á 82 eyjum, en í hinum eru víg-
girðingar, forðabúr, verksmiðjur,
fangelsi, vitfirringahæli og graf-
reitur. Það eru 150 skurðir á
milli eyjanna, og 378 brýr yfir
skurðina. Á skurðunum er mikil
umferð dag og nótt á bátum, sem
á ítölsku eru nefnir gondólar.
Það er einnig brú frá meginland-
inn út til borgarinnar; er hún
3,600' metrar á lengd, eða rúmlega
tíu þús. og átta hundruð fet. i
henni eru ekki færri en 222 bogar.
Allar byggingar eru úr steini og
meðal þeirra eru Dogehöllin og St.
Markúsarkirkjan hinar helztu,
annars eru kring um 140 hallir og
100 kirkiur. Þessi borg, sem er á-
litin hin einkennilegasta í heimi
og talin meðal hinna fegurstu,
var á miðöldunum hin mesta
verzlunarborg heimsins. Og þó
að eg hefði séð margar af hinum
stærstu borgum begja megin At-
lantshafsins, þá hafði eg aldrei
komið í Feneyjar og hlakkaði eg
mjög til að sjá þær. Frá Feneyj-
um mundum vér svo sigla til
þriggja borga á Grikklandi, og
þaðan til Algeria í Norður-Afriku,
þangað sem Tyrkir fóru með ís-
lendinga, sem náðust í ráninu
árið 1627; að því loknu mundum
vér snúa heimleiðis til Englands
aftur.
Á þessu gufuskipi voru 22 sigl-
ingamenn og einn brezkur far-
þegi, sem ætlaði sér suður í lönd-
in, til þess að reyna að fá lækn-
ingu við brjóstveiki, sem hann
þjáðist af. Hafði einhver sérfræð-
ingur ráðlagt honum sólböð og
fór hann nú þess vegna þangað,
sem hægt væri að taka þessi böð
daglega alt árið í kring. Sáum vér
mjög lítið til hans, eins lengi og
vér höfðum óveður og úfinn sjó
yfir Spanska flóann, en þegar vér
sigldum suður með Portúgals-
ströndinni, kom hann oft upp á
þilfarið.
Þegar maður siglir út frá vest-
urströnd Englands um það leyti
ársins, sér maður venjulega mjög
lítið til sólar á daginn og eru næt-
ur oftaSt nær mjög dimmar; en
hin afar sterku og skæru ljós frá
vitunum á Landsend í Cornwall, á
Scilly eyjunum, á Quessant fyrir
utan norðvesturodda Frakklands
og á Cape Finisterre á norðvest-
urhorni Spánar, lýsa skipunum
leiðina. Ferðin yfir Spanska fló-
an um hávetur er sjaldan skemti-
leg. Mörg holskeflan veltir sér
yfir skipið fyr en það kemst fram
hjá Cape Finisterre. Þaðan er sem
oftast fagurt iveður og sléttur
sjór með fram vesturströnd Por-
túgals.
Fyrir utan Lissabon, höfuzborg-
ina á Portúgal, hittum vér eina
nótt stórt enskt gufuskip, sem rak
á reiðanum. Hafði vélin bilað í
því. Vér buðumst til að draga það
inn til Lissabon, en skipstjórinn
hélt að það væri hægt að gjörá
við vélina aðstoðarlaust og neit-
aði því að þiggja neina hjálp, svo
vér héldum leiðar vorrar.
Margir sögulegir staðir eru á
þessari leið. Meðal þeirra er Ca-
diz, sem er af sagnfræðingum
talin elzta borgin í Nrðurálfunni.
Hét þessi borg í fornöld Tarsis og
var það í hana, sem Jónas spá-
maður ætlaði að flýja, þegar Guð
bauð honum að fara til Níníve.
Fyrir sunnan Cadis er Cape Tra-
falgar, þar sem hinn frægi enski
sjóforingi, Nelson lávarður, féll í
crustunni, er hafin var 21. októ-
ber 1805.
Daginn sem skipið sigldi inn í
Njörvasundið (Straits og Gibralt-
ar), var hvassviðri á suðaustan,
en sól stafaði hlýjum geislum og
var enginn ósjór í sundinu. Var
það mín stund við stýrið, og hafði
eg þess vegna næði til að athuga
þessar sögulegu stöðvar. Út og
inn um þetta sund höfðu Fönisíu-
menn siglt mörgum öldum fyrir
Krists burð. Hér höfðu Rómverj-
ar og Kartagóborgarmenn barist
um herradæmið. Hér höfðu Van-
dælir farið yfir um sundið árið
429 e. Kr. og stofnað voldugt
ríki í Norður-Afríku, sem var við
lýði í hundrað ár. Svo komu Ar-
abar yfir þetta sund frá Afríku
árið 711 og eyðilögðu hið mikla
vestur-gotneska ríki á Spáni. Ár-
ið 1109 sigldi Noregs konungur,
Sigurður Jósalafari, með 60 lang-
skip inn um þetta sund á leið til
hins heilaga lands, þar sem hann
lenti ári seinna. Hér höfðu marg-
ir af ættmönrmm mínum siglt inn
og út á undan mér. — Meðal bæj-
anna, sem eru Afríkumegin sunds-
ins, eru Tanger ' og Ceuta hinir
helztu. Spánarmegin sundsins eru
Tarifa, Algeciras' og Gibraltar,
sem sundið dregur nafn sitt af.
Eg stóð þar við stýrið og hugsaði
um, hvernig grimmir sjóræningj-
ar frá ströndum Norður-Afríku
höfðu oft og^ tíðum tekið kaup-
ma^fcaförin í þessu sundi og myrt
skipshafnirnar með köldu blóði.
Hér höfðu Bretar með kænsku
sinni sölsað Gibraltar og hið
undraverða fjall, sem víggirðing-
arnar eru í, undir sig og halda því
sem lykli, er opnar og læsir dyr-
um Miðjarðarhafsins að vild
þeirra.
Eg horfði ýmist Ji bæina og
landslagið Afríku megin sundsins
og svo Spánar megin á Gibraltar,
hina fögru höfn, hin miklu forða-
búr Breta, þar sem þeir venjulega
hafa vistir til fleiri ára, og her-
mannaskálana. Nokkrar brezkar
herdeildir voru að æfa sig á
grasflötinni fyrir sunnan skálana
að vestan verðu við fjallið. Eg
hlýt að hafa haft hugann við
mannkynssögu og það, sem fyrir
augað bar, því eftir dálitla stund
kom skipstjórinn upp á pallinn og
skammaði mig fyrir illa stjórn á
skipinu. Hann vissi, sem sé ,að eg
kunni að stýra því, ef eg að eins
hefði hugann við það. Eftir mín-
útu hurfu allar bugður úr kjöl-
farinu.
Það er mjög skemtilegt að sigla
inn í Miðjarðarhafið um þetta
leyti ársins. Til suðurs sér mað-
ur hina grænu hóla og hæðir í
Marokkó, en það land hverfur
fljótt bak við sjóndeildarhring-
inn. Til norðurs blasa við hin
mliklu fjöll, sem Spánverjar nefna
Sierra Nevada. Eru þau snævi
þakin og er það mjög svo fögur
sjón, að sjá jöklana tindra og
glitra í skini hinnar suðrænu sól-
ar.
Snemma um morguninn aðfanga-
dag jóla st*eig Sikiley upp úr haf-
inu yzt úti ,við hafsbrún í suð-
austrinu. Sigldum vér með fram
norðurströnd hennar allan dag-
inn. Þar er borg, sem heitir Pal-
ermó og sÉjum vér til hennar. Eft-
ir hádegi sáum vér einnig eld-
fjallið Etna. Er það hér um bil
tíu þúsund fet á hæð og. snævi
þakið, þótt sunnarlega sé. Til
norðurs eru einnig fleiri eldfjöll
í Lípdrisku eyjunum. Er Strom-
bolí hið helzta þeirra. Var um
það leyti reykjarmökkurinn upp
úr því miklu dekkri og stærri en
sá, sem streymdí úr Etnu.
í eldhúsinu áttu tveir mat-
reiðslumenn og lítil drengur mjög
svo annríkt með að tilbúa jóla-
matinn. Svínakjöt og karftöflur
með káli, stór hrísgrjónabúdd-
ingur, skorpusteik (pie) og nýbak-
að brauð, voru kræsingarnar, sem
siglingamennirnir áttu von á það
kveld. Til þess að geta rent matn-
um niður og vökvað kverkarnar á
eftir, fengu þeir einnig nokkrar
flöskur af hollenzku brennivíni,
svo nú ætluðu þeir að fylla sig
vel.
Eg vissi af reynslu, hvernig alt
mundi verða. Eg fór þess vegna
að tala við annan stýrimanninn,
að hann færi ekki að drekka fyr
en vér værum komnir gegn um
Messína sundið, sem er mjög svo
straumhart. Var hann ungur mað-
ur frá Leith á Skotlandi, og vor-
um við góðir vinir, eins lengi og
við vorum saman. Var eg á vöku
hans. Á sömu vökunni var einnig
ungur Norðmaður. Meir en
venjuleg vinátta var á milli okk-
ar; það var einskonar fóstbræðra-
lag. Höfðum við í félagi farið 20
ferðir yfir Atlantshaf og siglt
undir fána ýmsra þjóða. Höfðum
við verið saman á skipi, sem hafði
verið innilokað milli ísjaka, sem
voru hærri en reiðinn á skipinu,
og áttum við þá stundum litla von
um nokkurn tíma að l<;omast heil-
ir á húfi úr þeirri ferð. Við höfð-
um einnig setið saman und'ir
pálmaviðargreinum og myrtus-
trjám í hitabeltislöndum, þar sem
menn ala allan sinn aldur án þess
að sjá efina einustu snjóflyksu.
Eg hafði séð Herman, svo hét
þessi ungi maður, detta útbyrðis
klukkan eitt um nóttina í ofsa-
veðri við vesturströnd Englands,
en vér náðum honum aftur. Við
höfðum einnig á ferðum okkar
lent í æfintýrum í ''stórborgum
víðsvegar um heiminn. Hann var
rammefldur og greindur drengur,
en hafði ekki fengið þá mentun,
sem eg hafði, svo oft og tíðum
varð eg að treysta afli hans og
hann að treysta þekkingu minni.
— Eg bað hann að halda sér alls-
gáðum og gjörði hann það.
Klukkan átta. um kveldið fórum
vér á þilfarið, því þá byrjaði
vaka vor. Skipið var þá komið að
norðvesturhofni Sikileyjar og
snerum vér fáeinum mínútum
seinna inn í hið straumstríða
Messína sund. Það var mín stund
við stýrið og var það mjög svo
erfitt að stýra skipinu gegnum
allar þessar hringiður. Skipstjór-
inn, og fyrsti stýrimaður stauluð-
ust upp á stjprnpallinn og voru
þeir báðir orðnir svo fullir.i að
þeir gátu ekki staðið á fótunum
nema þeir styddust við eitthvað.
Á þilfarinu nálægt framstafni
skipsins vOru nokkrir hásetar
annars vegar, en kyodarar hins-
vegar, að selja upp jólamatnum.
Höfðu þeir nú tvær klukkustundir
verið að eta svínakjöt, hrísgrjóna-
búdding og drekka hollenzkt
brennivín eins og svín, og afleið-
ingarnar voru þær, að fiskarnir
fengu einnig sinn skamt af
kræsingunum. í hjarta mínu fyr-
irleit eg skipstjórann fyrir að
drekka sig sjálfan fullan, og svo
að gjöra alla skipshöfnina ölvaða,
nema okkur Herman. Annar
‘stýrimaðurinn hafði smakkað á
víni, en hann vissi enn þá hvað
hann var að gjöra. Eftir klukku-
tíma siglingu komum vér í
straumlygnara vatn. . Sigldum
vér um það leyti fram hjá borg-
unum Mésína og Reggio, þar sem
Páll postuli lenti, þegar hann sem
fangi var sendur til Rómaborgar,
til þess að mæta fyrir dómstóli
keisarans.
Nú hélt annar stýrimaður að
það væri óhætt að fara af stjórn-
pallinum og skilja Herman og
mig eina eftir til að stýra skip-
inu og vera á gægjum svo að vér
rækjumst ekki á neitt af öllum
þeim skipum, sem vér * mættum.
í Miðjarðarhafinu mætir maður
venjulega að jafnaði 200 skipum
á sólarhring, því mikil er um-
ferðin. Þegar annar stýrimaður-
inn kom ofan í hina stóru og fínu
káetu, sátu þar vélameistarar
annars vegar við hið mikla ma-
hóni borð, skipstjórinn skipaði
öndvegi, og hins vegar sat fyrsti
stýrimaður og farþeginn. Á borð-
inu var fult af flöskum, sem
geymdu ýmsar víntegundir. Skip-
stjórinn var Norðmaður. Þegar
hann kom auga á annan stýri-
manninn í dyrunum, segir hann
við hina gestina: “Haha, sjáið
þér þessa feitu skepnu, sem þar
kemur inn.” Annar stýrimaður
svaraði: “Þú þarft sannarlega
ekki að tala um neinn mann á
þessu skipi; því að eg er sann-
færður um, að strákarnir uppi í
Noregi hefðu getað búið til betri
mann úr snjó en þú ert.” Ekki
var seinasta orðið af vörum hans,
fyr en skipstjórinn, þótt fullur
væri, stökk upp úr sæti sínu og
varð undir eins bardagi milli
þeirra. tlrðu hinir að ganga á
milli og skilja þá að. Settust þeir
aftur að drykkju eins og ekkert
hefði hent, en það ólgaði í brjósti
annars stýrimannsíns.
Klukkan 12 um nóttina var vaka
vor á enda, og kom fyrsti stýri-
maðurinn upp á stjórnpallinn,
eftir að hafa fengið klukkutíma
svefn, og var hann ■ nú viti sínu
svo nær, að hann vissi einhvern-j
veginn hvað hann var að gjöra.
Nóttin var fögur og himininn al-
stirndur.
Um morguninn kl. 4 komum vér
aftur á þilfarið. Þá var kolniða-
myrkur og mundi ekki birta af
degi fyr en eftir kl. 6. Annar
stýrimaðurinn kom ekki upp á
stjórnpallinn og bað fyrsta stýri-
maðurinn mig að fara að leita að
honum og feyna að koma honum
upp á stjórnpallinn, til þess að
hann tæki við næstu vökunni. Eg
leitaði að honum í herbergi haris,
í káetu skipstjórans, í borðsal yf-
irmanrianna, en hann var hvergi
nokkurs staðar að finna. Loks-
ins fann eg hann í eldhúsinu. Þar
sat hann með andlitið í báðum
höndunum og leit ekki upp einu
sinni þegar eg talaði til hans. Eg
spúrði hann hvort hann hefði
ekki heyrt klukkuna slá fjögur, og
hvort hann vissi ekki, að hann
hefði átt að vera kominn upp á
stjórnpallinn fyrir hálftíma síð-
an. Hann svaraði mér þá og sagð-
ist vera búinn að gjöra sitt síð-
asta handarvik á þessu skipi og
væri laus við öll skylduverk. Eg
fór að hlæja að þessu og spurði
hvort hann hefði í hyggju að
leggja niður verk sitt úti á haf-
inu fyr en skipið kæmi í höfn.
Harin svaraði því játandi. Eg
reyndi að draga hann út á þil-
farið, en hann fór að spyrna á
móti. Meðan eg var að eiga við
hann kom skipstjórinn skjögrandi
að eldhúsdyrunum. Hann hlaut
að hafa sofið einn eða tvo klukku-
tíma, því að hann gat gengið nokk-
urn veginn, en talaði eins og
fullir .menn venjulega gjöra.
Hann spyr mig, hvað eg sé að
gjöra hér. Eg segi honum þá eins
og er, að annar stýrimaðurinn ætli
ekki að taka við og að fyrsti stýri-
maðurinn sé enn að bíða eftir
honum. Hann segir þá við annan
stýrimanninn: “Hvað gengur nú
að þér, George ÆtlaT þú ekki að
gegna skyldu þinni?” Hinn svar-
ar: “Nei, eg er búinn að gjöra
alt það, sem eg ætla mér á þessu
skipi; eg gjöir hér aldrei hand-
arvik framar.” Skipstjórinn seg-
ir þá við hann: “Hættu nú þessu
bulli og farðu að sofa, og mun eg
sjálfur taka vökuna þína.” Ann-
Framh. á bls. 3.
V
1
V
f
f:
f,
f ■
ff
f-
V
f
f?
'fs
fl
t?
T
f f
f ■
♦!♦:
T
f ?
f 1
f;
f
♦♦♦
f
f:
f?
v
h
f m
f#
4j
f:
fJ
f:]
fí
fí
fJ
fJ
f i
f i
f;
f:
♦♦♦ í.
fi
BANFIELD’S CHRISTMAS GIFT SALE
to
Offers you a wonderful opportunity to get your Christmas necessities at sale prices, and
make gifts that wiil be appreciated and give entire satisfaction, which together with our popu-
lar “Charge it Plan ‘ will add the convenience to make possible the gifts of your desire. Every
article in our t ntire stock is sale priced. Shop early, and receive the advantageous values.
ODD DRESSING TABLES
Triple Mirror styles, in black walnut finish Dress-
ing Table, medium size and nicely finished. She
will appreciate this ideal gift.
Xmas Special .....................
19.85
CHINA TEA SET.
Beautiful shell tinted twenty-three piece China Tea
Set, neatly decorated with floral design traced with
gold lines and mat handles.
Xmas Special .....................
9.85
QUEBEC HEATERS
An unexpected value in a square top Quebec Heater,
with two-hole top, heavily brick lined and neatly
trimmed ,with nickel. Twelve of these will find
waiting buyers **
Xmas Special .......................... J,OJ
Speciel Terms: $1.00 cash; $1.00 pær week.
Hundrtds of Toys, Nothing Priced Bver $1.00
A F£W EXAMPLES
All Iron Tractors .................................. 69c
Heavy Metal Ford Sedan.............................. 69c
Real Steam Engine ...............' ..,.............. 87c
Dressed Mama Dolls, 13 in. nigh .................... 79c
Tool Set in Chest................................... 29c
Train on Track with Station......................... 98c
Sleeping Dolls, moveable arms and legs ...-....... 39c
Good strong Pop-Guns................................ 37c
Garage with two cars ............t.................. 79c
Toy Horse on wheels ................................ 19c
Childs Tea Set ................................... 39c
Set of Soldier Nine Pins.).......................... 67c
Large Sleeping Dolls, beautifully dressed .......... 98c
A good assortment of similar values affording savings
to our customs.
WALNUT METAL BED
An exclusive Simmons walnut finish OBed; massive
in appearance, with floral decorated triple panels
and foot. i p
Xmas Special ......................1D, f O
SIMMONS DAY BED
Six only Day Beds, in two designs, one with cane
panel ends. These have heavy coil spring seats and
have heavy cretonne covered mattresses. oa r a
Xmas Special ............. ........
HAND CLOTHES WASHERS
How easy and how clean wash day becomes with
one of these machines. All metal. Put in the
clothes, plenty of soap and water, then turn the
crank. Will not injure the finest fabric.
One dozen only to go at ...........
9.95
WE HAVE A SPLENDID SHOWING OF
DINNER-WEAR
Dinner Sets of 97 pieces, priqed fram $9.95
to $75.00
$1.00 Deposit delivers a set at once.
Balance arranged.
CHESTERFIELD TABLES TO CLEAR
As a special attraction in this Sale we are plac-
ing for sacrifice our entire line of Chesterfield
Tables at prices showing clearance discounts
of 40 prct. and 30 prct. and some cases showing
HALF PRICE
GIVE HER A VANITY DRESSER
What a timely suggesl^ion and what an ideal
gift. Beautiful full size Vanity Dressers, with
full size mirrors and three drawer case, Walnut
finish and attractive design.-
Xmas Special ................
48.95
HUNDREDS OF EXCLUSIVE GIFTS
that will assist you in choosing real values, of
serviceability, which will be doubly appreci-
ated because of their quality.
Take advantage of our Exchange Dept. Triade
in your old style furniture for new at Sale
Prtices.
ilABanfield
limited
The Reli&ble Home Fumisher"
492 MAIN STREET - PHÖNE N6667
Buy a Dining Foom Suite, Bed-Room Suite or
Chesterfield Suite at Saving Prices on our
♦ ^ AA Special Terms.
^D.UU , Deposit.
Balance at your convenience.
4
4
x
T
f
*f
f
:;f
T
f
f
f
T
‘f
,f
sf
f
Lf
f
*f
T
ff
rf
f
Jk
ff
ff
f
f
&f
*f
I'
i
f
ff
f
*f
f
f
sf
*>♦♦♦
'a 4^4 A A A A A A .4. A
“