Lögberg - 16.12.1926, Page 4

Lögberg - 16.12.1926, Page 4
Bls. 4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. DESEMBER 1926 ................","“„».».n"miiiiin"»f"m,lll"lllllllll Jogberg Gefið út hvern Fimtudag af Tle Col- umbia Press Ltd., Cor. Sargent Ave. & Toronto Str., Winnipeg, Man. Talaimari N-6.127 «t N-6328 JON J. BILDFELL, Editor Otan&skrift til blaSsins: THE COlUHBIf Pf)E8S, Ltd., Box 3171. Wlnnlpeg, Utanáskrift ritstjórans: íDiTOR LOCBERC, Box 3171 Wtnnlpsg, R|an. Tha “Lögbsr*” U prlntad and publlshsd by Ths Columbtk Prsaa, Llmlted, in ths Colunvbla ■uiMlnc, (tt Sarirsnt Ave., WinnipsK. Manitobu. Friður og gleði. Það er sagt um sum orð, að þau séu vængj- uð, — það er, að þau leiftri frá einu manns- hjarta tii annars, frá einni mannssál til annar- ar. Lífsaflið, sem í slíkum orðnm býr, er svo voldngt, að það þrýstir sér að sálum mann- anna, eins og vængsvif fuglsins þrýstir honum í gegn um loftið. Áhrif slíkra orða á hugsanir, breytni og líf manna eru misjöfn og undir því komið, hve líf- ræn þau eru. Þau geta verið lífgefandi í orðs- ins beztu og fylstu merkingu, og þau geta verið orð eyðileggingarinnar og dauðans. Af öllum slíkum orðum er eitt, sem fiytur meira ljós, meiri frið, meiri kærleika og meira lífsafl inn í sálir mannanna, en nokkurt annað orð, — hefir gjört það í alda raðir, og á eftir að gjöra það, eins lengi og mennirnir þrá frið, líkn og lífsins yl. Það er orðið Jól. Svo er máttur þess mikill, að það þrýstir sér, í skammdegi ársins og kuldum vetrarins, inn í hvert einasta hús, og hvert einasta manns- hjarta, þar sem það er þekt. Hvað hefir það, eða það, sem það hefir að tákna, að færa þér, maður? Það boðar mönnunum alt, er hrein og óspilt mannssál þráir heitast. f fyrsta lagi boða jólin frið. Frið í guði, frið við alla menn, og frið hverri einstakri mannssál í meðlæti og mótlæti lífsins. 1 öðru lagi yl. Y1 kærleikans, er jólagestur- inn veitti öllum mönnum, sem vildu verma sig við hann, og veitir enn. 1 þriðja lagi gleði, — gleði yfir jólagjöfinni mestu, — jólagjöfinni einu, frelsara mannanna. Þetta og meira er boðskapurinn, sem þetta vængjaða orð Jól flytur öllum mönnum og öll- um mannanna börnum um víða veröld, þar sem lífsafl þess er þekt og hinn frelsandi kærleik- ur hefir vermt nokkra sál. i * * | * ÆSKAN OG JÓLIN. Jólin eru umfram alt tíð æskunnar, vorsins og lífsins — hátíð æskulýðsins. Því þar mæt- ast vonir æskunnar og sá, er uppfylling von- anna hefir í hendi sér. Lífsgleðin og lífgjafinn. Fegurðin og frelsið. Yorhugurinn og vinur- •inn, sem aldrei bregst. Jólin eru réttílega kölluð hátíð barnanna, því barnssálin ein, hrein dg óspilt, er það, sem réttilega getur veitt þeim viðtöku, og engum er þeim eins áríðandi að mæta, eða kynnast eins og jólagestinum, og eftir að þau hafa kyrist honum og lært að þekkja hann og þýðing komu hans—þýðing jólanna—, er naumast hætt við, að þau slíti félagsskap við hann. Það er því auðsætt, að það hefir ekki litla þýðingu fyrir börnin, hvernig að jólagesturinn er kyntur þeim, hvemig að þau læra að þekl^a hann og veita honum viðtöku, því undir því era komin áhrif jólaboðskaparins og þýðing hans fyrir hvern og einn. Naumast mun nokkur sá, á meðal hinna eldri Islendinga, sem ekki minnist jólanna úti á fs- landi, þegar að hann eða hún voru þar börn, og í sambandi við þá endurminningu undirhún- ingsins undir jólin. Bæirnir voru hreinsaðir og lýstir. Fólkið alt varð bljúgara í huga við umhugsunina um jólin, og klæddist skrautklæð- um sínum, til að taka sem veglegast á móti jóla- gestinum. Mamma eða amma sat með litla drenginn, eða litlu stúlkuna, og sagði þeim, að guð hefði sent son sinn í heiminn til þess að líða og deyja fyrir mennina, að jólin væru hala- in í minningu um fæðing hans, og á jólunum krypu allir í auðmýkt og með þakklátu hjarta frammi fyrir skaparanum fyrir hans óumræði- lega ‘kærleika til vor mannanna. Matthías Jochumsson lýsir þessum tíma- mótum í lífi hinna eldri fslendinga vel, þar sem hann í jólakvæði sínu læturi mömmu segja: “Þessa hátíð gefur okkur guð, guð, sem skapar allan lífsfögnuð, án hans gæzku aldrei sprytti rós, án hans náðar dæi sérhvert ljós. Þessi ljós, sem gleðja ykkar geð, guð hefir kveikt, svo dýrð hans getið séð. Jólagleðin ljúfa lausnarans leiði okkur nú að jötu hans. Þannig tóku menn á móti jólagestinum úti á íslandi í gamla daga, (fg þannig taka víst marg- ir á móti honum enn. Jólakoman var þeim koma Krists, og þeir bjuggust sínn bezta skarti til að mæta honum. — Kristur og Santa Claus. Hér í landi er þetta með nokkuð öðrum hætti Hér tala menn minna um komu Krists, en meira um Santa Claus, og Santa Claus held- ur innreið sína í stórborgir þessa lands með glingri og gáska á undan jólahátíðinni. Vér erum ekki að fordæma þennan þjóðar- vana með öllu. En því er ekki að leyna, að oss finst hann nú að mun háværari og áburðarmeiri hjá ungum jafnt sem gömlum, en lotningin fyr- ir lávarði lífsins. Fyrir nokkru síðan lásum vér ritgerð eftir merka konu hér í Ameríku, þar sem hún er að skýra frá, að hún hefði týnt jólunum. Hún lærði að þekkja þau í húsi foreldra sinna, við kné góðrar og guðhræddrar móður. Svo liðu árin. Móðir og faðir lutu lögmáli lífsins og söfnuðust til feðranna. Stúlkan fór út í lífið, og tók sinn þátt í hraða þess og margvíslega kapphlaupi, og þar týndi hún jólunum í glaumi stórborgalífsins. í þrjátíu ár leitaði hún að þeim, því enn þá var ylur þeirra ekki útkulnað- ur í sálu hennar, og hún fann þau að síðustu í sjóþorpi einu á austurströnd Ameríku, í húsi fólks, sem meira átti af kærleiksríku veglyndi, en a.f veraldarauði. * * * Erum vér að týna jólunum? Þessi spurn- ing hefir þrengt sér fram í huga vorum hvað eftir annað síðustu árin, þegar vér höfum séð Santa Claus dýrkun mannanna og hvemig að Mammon hefir tekið jólaboðskapinn í þjónustu sína til að auðga sjálfan sig á því, sem helgast er í heimi. Islendingar! Látum oss verada jólahelg- ina og taka undir með Jónasi: “ Jólum mínu muni eg enn— eins þótt stolið hafi hæstum guði heimskir menn: hefi eg til þess rökin tvenn, að á sælum sanni er enginn vafi.” Vígslurœða séra Matthíasar Jochumssonar, flutt 12. maí 1867. Himneski huggari, líknari og lausnari, send þinn Xifandi anda niOur i hjörtu vor á þessari heilögu stund. Vér velkj- umst hér í sgndum og sorgum þessarar veraldar, jafn óstöð- ugir, veikir og vdntrúa/Hr i gleðinni sem i sorglnni. Að sönnu kennir oss þitt blessaða Evangelium, að sönnu þykj- umst vér einatt finna, að vér séum hér i útlegð og á hrakn- ingi, að vér séum hér ofurseldir synd, sorg og tárum, en annar dýrðlegri heimur sé yflr oss eða jafnvel i kringum oss og inst i anda vorum, þar sem huggunin og sælan búi, og lífslns eiginlega fylling sé það lif, sem þessi sýnilega veröld á ekki til, og getur ekki gefið oss. En nú biðjum vér, að þú sannfœrir oss um þetta. Já, himneski almáttugur guð, taktu skýluna frá vorri trúar sjón, og sannfœrðu oss— ekki einasta um það, að sœlunnar bústaður, frekara vort blessaða riki, sé yfir oss og i himnanna himnum hjá þér, heldur d meðal vor, í hjarta og hugskoti voru. Sannfasrðu oss um þetta, en einnig um það, að vér séum i sorglegu dstandi, og að vér sitjum hér í dauðans skugga, nerna þvi aðeins að vér finn- um með hjartanlegri iðrun off harmi, að vér séum fyrir þér volaðir, berir og naktir, og flýjum á vœngjum ttfandi trúar i faðm honum, sem þú sendlr oss tU endurlausnar, honum sem kom til vor sakfallinna og Ktilmótlegra aumingja, kallaði til vor og sagði: Komið til mín, allir þér, sem erviðið og þunga eruð þjáðir, eg vil endurnœra yður. Bœnheyr oss, lifandi guð, sannfær oss. svala oss og blessa oss með anda þinnar eilífu ndðar i .fesú nafni. Amen. Guðspjallið (Jóh. 16, 16<—23). Inngangur. Meðan Drottinn vor gekk í kring og kendi, talaði hann gjarnan um sorg lífsins og harmkvæli, og sýn- ir með því jafnt sneki sína og kærleika og sína líknar- fullu hluttekningarsemi við oss mennina. Allar tár- anna uppsprettur stóðu ávalt opnar fyrir hans himneska miskunnarauga, og þaðan lét hann sífelt streyma líknandi og huggandi geisla, til að sefa s.organna öldur og berra hörmunganna höf. (f hinu upplesna guðspjalli heyrðum vér kafla af hinni löngu, hjartnæmu huggunarræðu. sem drottinn að skilnaði hélt fyrir sínum nánustu vinum á jörðinni). Hann fann fyrir fram alla sorg lærisveiná sinna, í sínu kærleiksríka hjarta; hann fann sér sjálfum svíða þeirra beiska söknuð, sem þá mundi kvelja, þegar þeirra dýrðlegi lávarður yrði frá þeim skilinn, og af gpðlausum mönnum dreginn til dóms sem ill- virki, og kvalinn opinberlega með hinum smánarleg- ustu pyndingum, og í augsýn allrar Jerúsalemsborg- ar krosfestur úti á hinu hrvllilega Golgata. Þetta voðalega sorgarefni sér nú herrann fyrfr hönd læri- sveina sinna, og hann heldur því ekki leyndu fyrir þeim, heldur segir þeim alt hvað fyrir liggi. — En, sjá! hann huggar þá líka, ekki einasta með því að gjöra þá vara við það sem óumflýjanlegt sé, heldur og með voninni um, að þeir níuni sjá hann aftur lif- andi, upprisinn með siigri og vegsemd, og að jrúðs heilagi andi muni koma yfir þá, og fylla þá lifandi anda heilagrar djörfungar og gleði. Þó hættir hann enn ekki að boða þeim sorgina, því hann sér alt hið ókomna og hans kærleiki leynir því ekki: Hann boð- ar þeim enn vonda daga, þegar vantrúin og ilskan taki að afsækja og hrella þessa saklausu menn, og vonskan og Djöfullinn fer að hlakka yfir benjum þeirra og blóði. En, heyrið! Þá bætir hinn guð- dómlegi kærleiki þessum orðum vtið: Fagnið þá og verið glaðir, því yðar verðkaup er mikið á himni. — ó! látum oss ekki efa, að þessi orð, sem eru fyrir- heiti huggunarinnar, rætist eins fyllilega, og sorgar- spásaga guðs sonar rættist, svo þar ekki vantaði upp á neinn hinn minsta depil. Hér átti frelsarinn tal við sína nánustu ástvini, hetjurnar, sem hin guðdóm- lega opinberun var nú að brynja út móti helvítis sterku hli.ðum, sem með sinni einföldu prédikun um Krist og hann krossfestan átti að sigra hinn vold- uga, kalda og eigingjarna Rómverja, sannfæra hinn stjórnlausa Grikkja, sem grobboði af speki sinni, og menta, upplýsa og helga ótal aðrar heiðnar þjóðir. Fyrir þessum mönnum prédikaði Jesús sér í lagi þetta sinn, og þótt vér að mörgu leyti getum stílað til vor huggunarorð guðspjallins, þá hefi eg á þess- ari hátíðlegu stund valið mér önnur orð Jesú, sam- kynja orð og þau, sem standa í guðspjalli þessa dags, en sem beinlínis eru stýluð til allra manna, og því einnig til allra voy, þessi orð Jesú: Komið til mín, allir þér, sem erfiðið og þunga eruð þjáðir; eg vil endurnæra yður. Guð minn! láttu mín veiku orð gefa þér dýrðina, og vitna um þína ríku náð og miskunn. Útleggingin. Eins og kuldinn skiftis t á við hitann, eins og myrkrið eltir ljósið, eins skiftist sorgin á við gleð- ina, eins eltir mæða munað í mannlegu hjarta. Já, vér getum bætt við og sagt, að þótt gleðin og mun- aðurinn gleymi að gjöra til muna vart við sig, þá bregst þó sorgin ekki, þessi þrautgóða og árvakra fylgikona mannkynsins, sem sjaldan að staðaldri fæst til að skilja við oss, þangað til augu vor eru brostin. Jafnsnemma og lífsengillinn kveikir ljós þessa heims, kemur líka hinn dapri engill sorgar- innar, og helgar oss hrygðinni, og barnið í höndum Ijósmóðurinnar grætur og veinar, eins og það taki við öllum harmkvælum móður sinnar, álíka og kvist- urinn á þornandi grein tekur strax við sjúkdómseðli viðarins. Síðan koma bernskuarin, sem menn kalla hinn fagra, glaða og létta kafla af æfinni, og í sann- leika hefir Drottins réttláta niðurröðun séð um, að sakleysis aldur mannsins skuli og vera sætasti aldur hans. Þó eru eigi hin fríðustu blóm, og því ekki heldur æskunnar gleðirósir, ávalt án þyrna, og aldr- ei var það ungmenni til, sem ekki grét, aldrei náði nokkurt mannsbarn þroska í veröldinni, nema hinar ungu kinnar þess yrðu jafnaðarlega vökvaðar tár- anna dögg. Að eg ekki tali um alla þá smælingja, sem eymd og örbirgð, eður ónáttúra og varmenska hinna eldri hafa umsnúið bernskuárunum fyrir í sífelt vol- æði og grát, sem máske ekki hefir lint alla æfina. Guð gæfi að slíkt — að því leyti sem mönnum er sjálfrátt, hvergi þurfi að hrópa hefnd í himininn, því sannarlega segi eg yður, þar mun hin eilífa rétt- lætishönd koma þungt niíiur. — Þegar nú æskan er liðin, þá koma hin eftirþreyðu fullorðinsár, og nú langar mann til að reyna, hvað lífið er, og hvað það hafi að geyma. Lífið er enn þá sem ókunnugt land! Æskumaðurinn er eins staddur á hafi úti, og sér á- lengdar hin sólroðnu fjöll hins eftirþreyða landsins, og tekur nú skorpuna að sínu ímyndaða ljósi. En stiltu þig, ungd vin! Vittu, að ekki er alt gull, sem glóir, þín töfrandi ímyndun gyllir þér alt of mikið þessi1 fjöll, auk þess sem slíkir staðir eru fæstum byggilegir. Ef þér hlotnast að ná landi þínu, mun útsýnið breytast; þá taka sólfjöll þín að lækka, og holt og hrjóstur að byrgja þér mesta útsýnið. 1 sannleika skaltu vita, að þetta land mun bera þér þyrna og þistla, og dagar þínir þar munu verða þér mæða og erfiði. Því gleymir þú að horfa til him- insins? Veiztu ekki, að lífið er alt af regin-haf, himinljósin þurfa ávalt að lýsa og rétta veg þinn, og leíðarsteinninn að sýna þér stefnuna. Og himinljósin tákna guð og hans orð, og leiðarsteinn- inn er sonur guðs, sem kom í heiminn til að leiða þig úr villumyrkrum til guðs. Já, öll æfi mannsins er margföld sorg, tár og erfiði. En máske þú, sem nú stendur í broddi lífsins, gefir lítið fyrir slíka kenn- ingu, af því þú hefir ekki af sorgum að segja. Vel má svo vera, en þó skaltu vita, að sorgin stendur ekki fjarri þér, og hún getur heimsótt þig enn þá í dag. Þó skaltu vita, að þeir dagar bíða þín, þegar þú munt fá orsök til að sýta og gráta. Engum er sorg og hrygð vísari en þeim, sem ungur sökkur sér niður í glaum og gjálífi, sem lán og munaður hefir leikið við, svo hann hvorki hefir haft vilja né tíma til, að venja sig við lífsins skuggahlið. Vei þeim manni, þegar hinir vondu dagar koma — þegar árin taka að fjölga, bakið að bogna, heilsa og þrek að þverra^ þegar tímans sviplegu umbreytingar fara að kenna honum fyrir alvöru, hvað þessa heims líf í raun og veru sé, þegar reynslan loksins er búin að kenna honum, hvernig gæði þessa heims eru frá honum tekin, ástvinirnir, heilsan, auðurinn, hrósið, ánægjan, lífsgleðin. Og hvað hefir veröldin loksins fram að bjóða þeim manni, sem búinn er með lífs- bikarinn? Hvað annað, en nokkur tár, þegar bezt lætur, og svo hjúpinn, náfjalirnar og gröfina? Þú, himinsins bjarta dagsljós, hversu margar tárperlur hefir þú ekki gegnum skinið, síðan þú fyrst sendir geisla þína niður á táruga hvarma mótlættra manna; Og þú, dimma nótt! Hve margar þegjandi 3tunur geymir þú ekki í þínu djúpa skauti. Hversu margt harmanna dauðastríg hefir eigi verið háð bak við þin svörtu skuggatjöld? Hver vill varðveita hjarta vort fyrir hrelling og sorg? Hver vill heyra stunur vorar í glaumi dagsins, eða hlusta á andvörp vor í næturkyrðinni? Hver vill staðnæmast hjá eymda- beð vorum, þegar mennirnir ganga frá, og vér stynj- um einir eftir á hinni vondu tíð? Það vitum vér, og eg skal vitna það; en fyr en vér svörum oss, skulum vér spyrjum: Hvar er uppspretta allrar sorgar, og hver er hún, og hvar er endi hennar, og hvar er huggunin og endurnæringin? Guð gæfi, að oss aldr- ei gleymdist í sorginni, að spyrja fyrst þessarar spurningar: Hvar og hver er uppspretta sorgarinn- ar? Svo heyrið þá: uppspretta sorgarinnar er í mannsins breyska hjarta, og uppsprettan sjálf er syndin. Og þótt aðrir svari þessu, ef til vill, öðru- vísi, þótt heimskinginn komi og. segi, að sorgin spretti af vitinu; og vitringurinn segi, að hún spretti af heimskunni, þá svörum vér óhræddár hinu sama, því vér trúum vitnisburði guðs orðs, vér trúum reynslunni og vér trúum samvizku vorri, og önnur vitni þurfum vér ekki — önnur vitni köllum vér fals- vitni í þessu máli. Laun syndarinnar eru dauðinn, segir guðs orð, og dauðinn merkir í guðs orði hér og víðar, alt sem af spillingu getur leitt þessa heims og annars. Er þá ekki auðsætt, að alt böl, beinlínis eður óbeinlínis, er af þessari rót runnið? Er ekki sjálft hið náttúrlega útvortis og ósjálfvalda böl upphaf- lega sjH-ottið þar af, að vér vegna syndarinnar erum háðir dauðlegleikans lögum og hlutskift'i? Eða ját- um vér ekki og finnum vér ekki, að vegna breysk- leika vors og syndsamlegra girnda, sé mæðan og sorgin oss annað hvort nauðsynleg eða óumflýjan- leg. Nauðsynleg er sorgin oss, þegar gleðin ætlar að villa oss og tæla frá uppsprettu hinnar sönnu gleði, vorum góða guði og föður. Já, sorgin er ein- mitt náðargjöf guðs og typtunarmeistari til að vekja hinn andvaralausa, stilla hinn gjálífa, styrkja og sannfæra hinn hverflynda og ístöðulausa. Og þann- ig snýr dásemd Drottins bölvun í blessun, og breytir eiturdreggjum syndarinnar í heilnæman lyfjadrykk. En alt fyrir það—syndin er allra eymda uppspretta. og hefir sína hegningu í sér sjálf. Eða hvað er ber- sýnilegra af daglegri reynslu? Verða ekki glæpirnir glæpamönnunum til bolvunar, ef ekki með þessu, þá með hinu mótinu? Verða ekki svikin og lýgin á ein- hvern hátt að snöru þeim„ sem bruggaði þau? Verð- ur ekki hinn ágjarni að lokum aumari og auðvirði- legri en nokkur þræll, af því hann er auðsins þræll og sjálfs síns níðingur? Sýnist ekki sællífi og mun- aður upp í þau lífsleiðindi, sem eru verri en hungur og þorsti? Eða þá ofdrykkjan! Hversu margar sorgir hafa eigi hlotist af ofdrykkju? Hver getur, hver þolir að telja slíkt og reikna? Ofdrykkjusjmd- in má öllum vera bersýnilegt dæmi upp á syndarinn- ar ótæmandi eymda-uppsprettu. Já— sýndin er uppspretta sorgarinnar, —syndin hefir sín sorglegu laun með sér, — syndin er lands og lýða töpun. Hún hertekur guðsmyndina 1 manninum, skynsemina og frjálsræðið, því hver sem syndina drýgir, hann er þræll syndarinnar, og hún leiðir oss frá guði út á lastanna veg. Hún ollir oss þúsundfaldri sorg í lífi og dauða. sig og sagt: Faðir, eg hefi syndg- að í himininn og fyrir þér. Þetta ástand mannsins er miklu þyngra, en það taki tárum. Alt annað böl er létt, heilsusamlegt og bærilegt — þetta er óbærileg, djöfulleg eymd. — Ó, þú góði, líknsamí fað- ir himins og jarðar! yfirgef eng- an, því oss er það alveg óbærilegt. Send þú oss heldur eitt mótlætið þyngra en annað, sem vér þá meg- um vakna og sjá og gráta vora þyngstu eymd, vort óbærilega sorgarefni—syndina, er slítur oss eilíflega frá allri von, allri hug- svölun, allri líkn, allri sælu. Ó, kenn oss að varðveita sífeldlega lifandi þá sannfæringu í vorum hjörtum, að vér séum sekir fyrir þer, villuráfandi, berir og naktir, en að syndajátningin og iðrunin sé hið eina lifsmeðal í vorri dauð- ans sorg, hið eina meðal til að fá raunaléttir, huggun og sælu. Nú höfum vér þá nokkuð athug- að, I hvaða ástandi vér eigum að vera, þegar vér komum saman til að hlýða á fagnaðarerindi guðs sonar. Erum vér þá þegar meðtæki- legir? erum vér andlega volaðir? Erum vér þjáðir af syndinni? Getum vér ekki lengur sjálfir bor- ið byrðina? Ó! kom þú, iriinn Jesú, kom til mín, | kom þú með ásján hýrri, því að eins kann eg að koma til þín, að komir þú til mín fyrri. Kom þú, og svala mæddum mér, margskyns synda ég okið ber, endurnær mig náð nýrri! Ó, ætlið ekki, kristnir menn, að prédikun um afturhvarfið sé oss ekki öllum jafn viðkomandi. Sann- arlega er hún oss öllum jafnt við- komandi, og hún hlýtur að berg- mál* í hjartarótum hverrar lif- andi sálar. “Guð. gjörir ékki að gamni sér glæpamönnum að hóta, kalsmælgi honum og engin er, að þú megir miskunn hljóta.” Guðs reiði yfir syndinni, segir ritning- in, brennur alt til neðsta helvítis. Syndin leiðir nagandi orm inn í hjartað, sem að að eilífu mun æ saman skríða aftur til að pína oss, nema guðs sonar kraftur komi til r.ð sundurmola hans höfuð. Þessi ormur er syndarinnar fóstur; hið guðdómlega réttlæti dregur sig þá ekki lengur í hlé, heldur opinber- ar samvizku mannsins, gegn um hið skelfilega tákn, sem guðs orð kallar eld, sem eigi verði slöktur. (Ó, skyldi oss nú enn eigi skilj- ast, hver að sé uppspretta vorrar þyngstu sorgar? Skyldi eigi sál- ir vorar þegar vera farið að þyrsta eftir svölunarlindinni, skyldi oss nú eigi finnast dýr- mætt að mega koma til Jesú og heyra þessi hans lífsælu orð: Komið hingað allir,, sem erfiðið og þunga eru þjáðir, eg vil endur- næra yður?) Oss mönnunum þykir það starf, að eiga að hugga sorgbitna bræð- ur, næsta erfitt, og oft óþægilegt, og ýmsir viðhafa ýmsar aðferð- irnar. Tvær eru helztar: annað- hvort að taka sjálft sorgarefnið fyrir, útlista hið sameiginlega og óumflýjanlega í slíkum atburðum og kjörum, ef ske mætti, að hinn syrgjandi sansaðist, við sameig- inlegt böl; eða þá menn fara sem lengst frá sorgarefninu og tala um alt annað, ef ske mætti, að sorgin þar með deyfðist, og, ef ekki gleymdist, þá samt truflaðist við þetta eða hitt, sem sá er huggar finnur hinum til rauna- léttis. Báðar þessar huggunar- aðferðir geta að vísu verið góðar, ef tilgangurinn er góður, og hjartað fult af hluttekningu; en slík huggun er þó jafnan veik og ónóg. Því það er auðvitað, að þar sem djúpir harmar eru fyrir, þar g'eta mennirnir lítið að gjört, úr því flest veraldarinnar yndi verð- ur þá svo sem einskis virði, eða er það ekki oftast svo í mannlegu lífi, að þegar sorgin kemur, þá vilja andvörpin komast upp og tárin fá sinn frjálsa gang. Og þegar drottinn vor talar um eymd og sorg vor mannanna til þess hann geti huggað oss, þá víkur hann ekki langt frá efninu, talar 1 og ekki um óviðkomandi hluti,- svo sertT til þess að láta oss gleyma^ sjálfum oss. Nei, hann hittir strax hjartað, sýnir oss strax upp- sprettuna, svo að vér þar í getum séð vora réttu mynd, hann affærir oss öllum dularbúningi, og sýnir ossrfig segir oss, að guð hvorki þekki oss né taki móti oss, nema vér sjálfir höfum séð vort eigið eðli, vora grátlegu nekt; hann sýn- ir oss sorgina beinlínis. Gjörið iðrun og yfirbót, segir hann; öx- in er þegar reidd að rótum trés- íns, og hvert það tré, sem ekki ber góðan ávöxt, etc. Heyr þú, kristinn maður, hér skipar guð sjálfur þér að hryggj- ast, heyrirðu orð hans? skilurðu þau? Ó, lítum í kringum oss, sjá- um oss til skelfingar,, hvað mann- eskjurnar heyra illa og skilja illa. Skygnumst inn í vort eigið hjarta, og hlustum þar vel eftir, svo vér með ugg og ótta heyrum og skilj- um þessa hrópandans þrumurödd, hvar hún ómar með dauðans þunga í sálum vorum. Þegar skruggan dunar, verða menn. felmtraðir, og flúa í fclur, ef þess er kostur; en þegar réttlæti drott- ins allsherjar dunar af himni, þ4 daufheyrast margir. Af hverju kemur sú fyrirmunun inn í hjört- un? af því djöfullinn blindar þá svo þeir ímynda sér, að annað- hvort sé hér ekkert að óttast, ell- egar að náðin sé þeim svo nærri, að alt af sé manni innan handar að ná í hana. En þá væri réttlæti ekki réttlæti, synd ekki synd, og sorgin ekki sorg. ó, hversu oft- lega erum vér ekki langt frá því að þekkja sjálfa oss, hversu langt er- um vér ©kki oft frá því, að þekkja hin svörtu undirdjúp syndarinn- ar og dauðans. Hversu oft erum vér langt frá því að geta skilið og meðtekið þetta Jesú evangelíum: Komið hingað þér, sem erfiðið og þur.ga- eru þjáðir, eg skal endur- næra yður. — Æ, það er svo oft, að vér annað hvort ekki skiljum eða misskiljum þessi orð, er Krist- ur kallar erfiði og þungi. Vér heimfærum þessi orð svo oft upp á annað böl, en það eina retta; en í sannleika er ekki annað böl til en syndin; því ef þessu böli er af oss létt, og vér fáum guðs náð og kærleika, hvað getur oss þá brost- ið, ef guð er með oss, segir postul- inn, hver getur þá verið á móti oss, hver mun skilja oss við kærleika Krists, þjáning eða þrenging, eða ofsókn eða hungur eða nekt eða háski, eða sverð? Fyrst að eg er fullviss um, að hvorki dauði né líf„ hvorki englar né höfðingja- dæmi, hvorki hið nærverandi né hið ókpmna, hvorki hæð né dýpt, né nokkur önnur skepna mun geta skilið oss við guðs kærleika, sem er í Kristi Jesú, drotni vorum. Komið því allir, sem erfiðið og þunga eru þjáðir, og látið endur- næra yður; þorsta yðar og þrá eftir friði við guð getur enginn bætt nema hin eilífa svölunarlind sjálf, Komið, fneðan frelsarinn kallar, komið fyr en sorganna straumar vfixa yður yfir höfuð og skola yður burtu. Ó, þeir eru fljótir að vaxa, áður en yður var- ir hafið þér ekkert viðnám. Kom- ið með öll yðar tár, söknuð og sorg og breiskleika, og biðjið guðs góða son um endurnærlng og hvíld. Hann vill meðtaka yður alla, því að fyrra bragði kom hann og bauð oss endurnæringuna; hjá honum er huggunin,, hjá honum endar öll sorg, því hjá honum er uppspretta lífsins. Æ, komum, og tökum gefins lífsins vatn. Ó, minn guð, sýndu oss vora sönnu sorg, syndina, svo að öll önnur sorg hverfi, en þessi eina sorg þrýsti oss til að flýja meðan tími er til í þinn blessaða föðurfaðm. Kom lífgun lýða lífs þá endar mál vitnisburð blíðan her í vorri sál, æðsta gleði að eigi erfa sá hér grét, það á dauða degi deyfir sorgarhret. Hjálparbrunnur helgastl, heyr því munriinn biðjandi; arfleiðslunnar innsigli á mitt hjarta set. — Amen. Aths.—Dálítinn pakka af gömT- um ræðum gef eg hér með vini mínum, Aðalsteini Kristjánssyni frá Winnipeg. Eru því ræðurnar hans lögleg eign. Ræðurnar eru sundurlausar, ó- valdar og frá ýmsum árum. En hér skal þess getið, að megníð af stólræðm, sem þóttu að einhvrju leyti taka öðrum fram, hefi eg gefið fólki, sem óskaði eftir að eignast þær, enda teljast ræður presta sjaldan með “literatúr”. Akureyri, 11. okt. ’15. Matth. Jochumsson. Hver er nú hin þyngsta sorg mannsins og hin ó- bærilegasta í lífinu? Það er, að bera uppsprettu allrar sorgar í hjartanu og vita það ekki eða skeyta því ekki, að vera þræll syndarinnar og þó blindaður á báðum augum, að vera ber og nakinn, lemstraður og yfirgefinn, en þykjast þó heill og hraustur, að standa sem bersyndugur tollheimtumaður frammi fyrir hinum altsjáanda dómara, með faríseans dramb, og geta ekki upplyft augunum til uppsprettu allrar líknar, náðar og miskunnar og sagt: Guð, vertu mér syndugum líknsamur! Hin grátlegasta sorg er það, að vera kominri langt frá föðurhúsun- um með hinum fortapaða syni, lifa þar á dreggjum Iífsin® eður drafi svínanna, og geta þó ekki gengið í jg5HSH£SSHSHSHSZS2SS5H5E5H5H5E5Z5Z55SBSHS2SZ5SS25H5HSS52SH5ÍL5HSHSa5H5e Takið eftir! Bændur og verzlunarmenn, sem hafa við til sölu. er hæfileg- ur er til “Boxa”-gerÖar geta fengiÖ hæsta markaösverð fyrir sann- gjarnt mál og sérstaklega hátt verð borgað fyrir við, sem er 5 4et 2 þuml. á lengd hvort heldur hann er þur eða grænn, með þvi að snúa sér til Thorkelson’s Manufacturing Co. 1331 Spruce Street, Winnipeg. 525HSHSHSHSH5HSHSHSH5H5H5HSHSH5HSHSH5HSHSH5HSH5HSHSH5HSHSHSH5HSHSH5HSHÍ'

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.