Lögberg - 16.12.1926, Page 5

Lögberg - 16.12.1926, Page 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. DESEMBER 1926 BIs. 5 A History of Iceland iby Knut Gjerset. The MacMillan Co. New York, '24. Hér er ekki um nýja ’bók a‘ð ræða. eins og titillinn ber með sér, er hún gefin út 1924. Mun hún hafa kom- iö út snemma á því ári og er því nú nálega þriggja ára gömul. Höfundurinn Dr. phil. Knut Gjerset, er norskur Bandaríkja- maður. SagnfræSingur er hann tal- inn góður og hefir áður skrifað sögu Norðmanna, einnig *á ensku og þykir hún vönduð bók og merki- leg. Þessi íslandssaga er stór bók 471 bls. í stóru broti auk efnisyfirlits og er ytri frágangur allur hinn besti, góður pappír, skýrt og fallegt let- ur, gott iband og er bókin a'ð öllu hin álitlegasta. í formálanum þakkar höfundur- inn prófessor Halldóri Hermanns- syni fyrir mikilsverða aðstoð og einnig séra Runólfi Marteinssyni og séra Hans B. Thorgrímsen. Hér er mikið verk unnið og þarft, og ætti bók þessi að vera mjög kærkomin íslendingum vestan hafs, sérstaklega hinum yngri, því ,þó hinir eldri íslendingar hafi átt þess kost, og eigi þess enn kost að kynna sér sögu ættjarðar sinnar á íslenzku, þá mun nú flestum hinna yngri vera orðin enskan tamari og auðveldari heldur en íslenzkan og er ekki um það aS fást, því þaö er í alla staði réttmætt og eðlilegt. En þrátt fyir það, bera einnig afkom- endur landnámsmannanna íslenzku milda trygð til hins gamla ættlands og það er vafalaust mörgum þeirra mikið ánægjuefni að eiga nú þess kost, að kynna-sér sögu þess lands sem feSur þeirra og mæSur, eða þá aS minsta kosti afar og ömmur komu frá og sem forfeSur þeirra hafa bygt í þúsund ár. Sagnfræðin er vísindagrein út af fyrir sig og það er litlu eða engu léttara, að dæma um bækur, sem ritaðar eru um þau efni, heldur en ibækut, sem ritaðar eru um aðrar fræSigreinar. Sá, sem þaS gerir þarf helst aS vera sjálfur sagn- fræSingur, ef dómurinn á að geta veriS á fullum rökum bygður. frá sjónarmiði sagnfæðinnar. Út í þau efni verður hér ekki farið, þvi sá sem þessar línur ritar finnur sig ekki til þess færann. Hitt er óhætt aS segja, aS þessi bók gefur glögt yfirlit yfir sögu þjóSarinnar, alt frá þeim tímum að bygð hófst á íslandi og fram á vora daga, og eg get ekki betur séð, en að höíundurinn skilji þjóðina og lífskjör hennar vel og það leynir sér ekki að hann er vand'virkur og samvizkusamur og gerir sér mikið far um aS fara rétt meS og sleppa sem fæstu af því sem verulegu máli skiftir, og er sagan all-ítaleg og yfirgripsmikil. Höfundurinn er NormaSur og hefir lagt sérstaka stund á sögu þjóSar sinnar, og eins og áður er sagt, ritað sögu Norðmanna. Hefir það ekki verið honum lítill styrkur við þaS mikla verk, að semja þessa íslandssögu, því eins og kunnugt er, bygSist ísland aSallega frá Noregi og um langt skeið áttu þær þjóSir margt og mikið saman að sælda. Ekki verður með nokkru móti sagt að höfundurinn sé hlutdrægur, eSa dragi taum landa sinna um of, er hann segir frá hinum margvíslegu tilraunum Noregs konunga að ná íslandi undir sig, þar sem þeir nutu I Þessi kafli er nokkurskonar við- öflugrar aðstoðar kirkunnar 1 Noregi og kirkjuhöfSingjanna þar. Höfundurinn virðist skilja og skýra ágætlega aðstöðu þjóðhöfð- ingjanna norsku gagnvart íslandi yfirleitt og sérstaklega höfSingjum Sturlunganna. Trúi eg ekki öðru en að flestum íslendingum, þótt sæmilega séu kunnir sögu þjóSar sinnar, sé þaS mikil hjálp, aS lesa vel bók þessa, ef þeir vilja kynna sér þann hlutann af sögu Islands, sem vanalega er nefndur Sturlunga- öldin og sem endaði með því, að landið gekk undir Noregskonung. Bendi eg á þetta sérstaklega vegna þess, að mér hefir sjálfum jafnan fundist vandrataS um þetta völund- arhús, en Dr. Gjerset skýrir það á- gætlega. Bókin er yfirleitt rituð af mikilli vandvirkni og hún er svo yfirgrips- mikil og nákvæm, að þeir sem hana lesa geta vel fengiS glögt yfiríit og góSan skilning á lífi þjóðarinnar alt frá upphafi og fram á vora daga, þó þeir hafi litið eða ekkert annað lesiS viðvíkjandi sögu Islands. Síð- asti kafli bókarinnar er um Islend- inga hér í landi. Er hann stuttur, sem einu gildir, því eg hygg aS hann sé hiS lakasta af bókinni. Það er heldur litiS á honum að græða. Höfundurinn hefir sjáanlega þar ekki verið eins kunnugur efninu, eins og hann hefði þurft að vera. En út í þaS skal hér ekki fariS. auki, sem höfundurinn hefSi ef til vill betur slept. Bók sú, sem hér hefir í örstuttu máli aðeins verið drepiS á, er að því er eg fæ best séð góð bók og merk, sem vér íslendingar höfum fylstu ástæSu til aS vera frænda vorum Norðmanninum þakklátir fyrir. Bókin er nú seld fyrir alveg sérstaklega lágt verS, aðeins tvo dali f$2.ooj og fæst há bókaverSi Þjóðræknisfélagsins P. S. Pálssyni, 715 Banning Str. Winnipeg. F. J. Leikurinn á Goodtemplar Hall. Tveir smáleikir “Baráttan og “Matur.” voru leiknir í Goodtempl-, arahúsinu á Sargent Ave. 13. þ. m. Fyrri leikurinn “Baráttan.” er þýddur af Dr. Sig. J. Jóhannessyni eftirtektaverður leikur og lærdóms- ríkur. Efni hans er aS nokkru leyti hið sama og i Bóndanum á Hrauni. eftir Jóhann Sigurjónsson — bar- átta á milli æskunnar. sem vill lifa sínu lífi og foreldranna, sem eru háð venjúm og hugsunarhætti hins liSna tíma. Persónurnar, sem þátt tóku 1 þeim leik eru Elín Johnson. sem lék aðal-persónuna, 23 ára gamla stúlku er út þráin knýr til aS yfir- gefa heimili sitt í forboði moður sinnar. Elín er efni í leikkonu. Hún leysti hlutverk sitt víðast mjög vel af hendi. Var eSlileg á leiksviðinu. MáliS lék á vörum hennar mjúkt og Gjafir handa þeim er reykja Hver hlutur adeins $1.00 Hjá Birks fæst núna fyrir jólin afarmikið af hentug- um jólagjöfum fyrir aSeirts dollar. Hugsið ykkur kjörkaup sem iþessi fyrir þá, sem reykja:— No. 40—Fallegur elephant lósgjafi, gullin áferð, með sjálfkveyki. VerS $1.00. No. 28—Vindlingamunn- stykki í kassa. Fyrir- myndar kjörkaup. Verð $1.00. No. 27—Captain Black reykjapípa, með fallegu Prince lagi. VerS $1.00. No. 25—Vindlinga-askja— sterkt suede leður. Held- ur tuttugu vindlingum. VerS $1.00. No. 26 — Tóbakspungur— suede leður. Verð $1.00. þýtt. þó hún sé hér fædd og uppal- in. Enda á hún ekki langt að sækja þá listhneigSina, því hún er hálf- systir leikkonunnar nafnkunnu Ste- faníu heit. Guðmundsdóttur, dótt- ir GuSmundar heit. Jónssonar og Sigríðar Bjamadóttur systur séra Jóhanns Bjarnasonar og þeirra syst- kyna. Móður hennar, sem nýlega var orðin ekkja. lék Miss ASalbjörg Johnson. Hún hefir áSur leikið hér í Winnipeg, við góSan orðslýr og hélt hún honum óskertum í þessum leik. ASalbjörg er skýr og skilur hlutverk sín vel og nær víða ágæt- um tökum á þeim. Talar ávalt skýrt og ber sig vel á leiksviði, sem ann- arstaðar. Yngri systur Elínar lék Ásta Sæ- pn v,i \f , i f ra1 ii 'ikkAÍj .'Jl- kJ Henry Birks & Sons Ltd. Diamonds Merchants • - Birks Building f f f f f ♦♦♦ TILKYNNING. Eg undirritaður hefi keypt og starfrœki framvegis Slim’s Service Station, öor. Maryland 0g Sargent, er upp frá þessu gengur undir nafninu Roseland Serviee Station. Verða seldar þar hinar ágætu 0g viðurkendu gasolíu tegundir Imperial Oil félagsins, svo sem hin nýja 0g óviðjafnanlega gasolía, er ETHYL nefnist Allar tegundir aðgerða á .bifreiðum afgreiddar fljótt. ÞeUa er nú hin eina islenzka Service Station, í Vesturhænum. The Roseland Service Station Cor. Maryland og Sargent. P. N. Johnson, eigandi Regina, Sask. 24. nóv. 1926. Til ritstjóra Lögbergs. Heiðraði herra! Akuryrkjumáladeild og upplýsingaskrifstofa stjórnarinnar í Saskatchewan leyfir sér að grípa þetta tækifæri til að óska blaði yðar. sjálfum yður og samverkamönnum gleðilegra jóla og farsæls nýárs og þakka yður þá greiðu samvinnu, sem þér hafið ávalt látið oss í té í því aS útbreiSa meðal lesenda yðar sérhverjar þær upplýsingar, sem bændastétt fylkisins sérstaklega varðar. Eg leyfi mér aS votta yður kærar þakkir frá sjálfum mér og einnig frá Mr. F. H. Auld aðstoðar akuryrkjumálaráðherra, fyrir það hvað þér hafiS veriS greiSugur á rúm í blaðinu til að gera lesend- um ySar kunnar framkvæmdir akuryrkjumáladeildarinnar og ann- ara deilda fylkisstjórnarinnar í Saskatchewan. Virðingarfylst yðar W. A. MACLEOD, Commissioner mundsson sæmilega vel þó all-mik- iS bæri á að mál hennar væri utan- aðlært þá voru hreyfingar hennar oft góSar. Hún talaði skýrt, en hin- um lifandi hreim málsins gekk henni ver aS ná. Áherslur oft óeðli- legar og harSar. Dreng 14 ára. Bobba, lék bróðir hennar Sigurhans og lék ekki ólag- lega með köflum sagði sumt vel. en helst til var leikur hans daufur og hann slepti orðunum oft. áSur en hann var búinn að tala þau út. sem gerir mál hvers manns óáheyrilegt. »*HSHSKIEMK84SMaHSMSMEKSMæMSHEMSKaMEMSKSMSKaKSKEMSHEMSM I “ Ef þér gœtuð sparað peninga- Það gæti verið nokkur ástæða til að nota ekki “Crescent” Mjólk- ina, ef hún væri seld, dýrara verði en aðrar tegundir. En “Crescent” nijólk er seld með nákvæm- lega sama verði og aðrar tegundir góðrar mjólkur, sem seldar eru í Winnipeg. Hið aukna næringargildi, hreinleiki, og hfð fersl^a bragð, sem einkennir “Crescent” mjólkina, er hreinn og beinn kaupbætir — því mjólkin kostar samt ekki vitund meira. Reynið “Crescent” mjólk á morgun. Stend- ur alveg á sama hvaða tegund þér hafið notað — að ejns REYNIÐ HANA. Og þér munuð sannfærast fljótt um mismuninn. Phone 37 101 Hin nýja EbPHONICj *98 .00 Með öllu tilheyrardi og 12 völdum hljómplötum. Hljómvélar, sem notaðar vora fyrir nol, km, «vrn rú ekki í gildi. Hér er ein af þeirn allra nýjustu. pér hoyrið strax mismuninn ú hljóð- inu. pegar gömlu hljóinplötumar em látnar í l>es a NÝJU Euphonlc vél, þá heyrið þér tóna, fegurri og sterkari helclur en þær pliitur liafa nokkumtíma áður framleitt. Sterkt verk með tveimur fjöðrum. iNýtt einkaleyfd, heavy patent ‘S’ Tone Arm og sfðasrta Reproducer with metal diaphrag-m. Sérstöik hyilas sem færa má til fyrir plöturnar, ir.efan vélin er að apila. GerSar úr valnut ma- hogany og eik. Prýðsvei bygS. SAMIf) IM pÆGIHEGA HORGI NAUSKIIAIAIA. m tokinbl kVL H s s ■ 3 ■ H X M X H X H X H X H X H H X H X H X H H X H H X H X H X H X H X I H X H X ■ X H X H X H X H X H X H f^xhshshshshshxhshxhshxhshshxhshxhxhshshxhshsmxhshshs" f f ♦:♦ MSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSM S Connaught Hotel 219 Market Street i Eina gistihúsið í bænum er Islendingur stjórnar Sími: 25 675 Th. Bjarnason, eigandi eh . MSMSMSMSMSMSMSMSHSM3M3MSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSMSM M M M Ymas brQ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^ W A Real “Old Country” Ale—A Special Mellow Brew DREWRY’S REFINED ALE—DREWRY’S EXTRA STOUT DREWRY’S AMERICAN STYLE BEER Be Sure to Give Your Permit Number and Order Early From PHONE LIMITED J-722U

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.