Lögberg - 06.01.1927, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 6. JANÚAR 1927.
Bls. 5
Holli nsworths
1 smni
Allar tegundir Kvennfatnaðar með niðursettu verði
Allar tegundir af Kvenna Yfirhöfnum með niðursettu verði
Allar tegundir Loðyfirhafnir Kvenna með niðursettu verði
LADIES AND CHILDRENS READY-TO-WEAR AND EURS
Dodas nýrnapillur eru best*
nýrnameðalið. Lækna og gigt bak-
verk, ihjartabilun, þvagteppu og
önnur veikindi, sem stafa frá nýr-
umitn. — Dodd’s Kidney Pilla
kosta 50c askjan eða sex öskjur
fyrir $2.50, og fást hjá öllu'm lyf-
sölum eða frá The Dodd’s Medi-
cine Company, Toronto, Canada.
uppkastiÖ, sem hann getur um
í formálanum, var líklega
skrifað á áratuginum næsta á
undan. Áður hafði Sæmundur
fróði líklega tínt saman ein-
hvern ofurlítinn sögureiting á
latínu, nálægt aldamótunum,
eða síðar; en sú tilraun kemur
varla til greina hér, því að ís-
lenzk söguritun óx vitanlega
upp af annari rót,. Það er því
áreiðanlegt, að íslenzku sög-
urnar tóku fyrst að komast í
letur, þegar liðið var nokkuð
fram á tólftu öld.
Þá segir Wells, að fyrir hug-
skotssjónum víkinganna hafi
hilt undir mikla borg í suðri,
nokkurs konar samrugling iir
Róm og Konstantinopel, og
hafi þeir kallað hana: Mikla-
garð. — “In their imagination
a great city of the south, a sort
of confustion of Rome and By-
zantium, loomed large. They
called it Miklagard.”
Hvenær forfeður vorir eigi
að hafa gengið með þennan
borga-rugling í höfðinu, það
verður ekki með fullri vissu
ráðið af orðum höfundarins.
Hann er óákveðinn þar eins og
víðar. En eftir sainhenginu
liggur .beinast við að skilja
klausuna svo, að villan gjö^i
vart við sig í fornsögunum ís-
lenzku, eða að minsta kosti hjá
mönnum þeim, sem sögurnar
leiða fram á sjónarsviðið. Og
vitanlega eru bókmentirnar
forn-íslenzku aðal-heimildirn-
ar fyrir öllurn dómum um hug-
myndalíf Norðrurlandabúa á
víkingaöldinni. En svo langt
sem eg veit, þá hryddir hvergi
í fræðum þeim á þessum mis-
skilningi um borgirnar. Og
jafnvel þótt þar gæti fundist
einhver málsgrein eða eitthvert
orðatiltæki, sem skilja mætti á
þennan veg, þá fer heildin með
greinilegan og samhljóða vitn-
Lsburð um hið gagnstæða. Báð-
ar borgirnar eru þar nafn-
greindar hvað eftir annað,
Róm og Mikligarður, og þeim
síðarnefnda jafnan lýst svo,
að þar getur ekki verið átt við
Róm. Og sögumar skýra frá
ferðalögum fornmanna til
beggja staðanna.
Mér finst það vera í sjálfu
sér harla ósennilegt, að þessi
misskilningur hafi getað verið
almennur hjá Norðurlandabú-
um á söguöldinni eða litlu fyr.
Rómaveldi féll fyrir árásum
germanskra herflokka, sem
sumir voru komnir frá löndum
við Eystrasalt, segja fróðir
menn. Og ólíklegt þykir mér,
að ekki hafi borist sagnir af
leiðangrum þeim til haka norð-
ureftir, og þar með upplýsing
um höfuðborgir veldisins. Og
suðurferðirnar lögðust ekki
niður að öllu, þó tímar breytt-
ist og skift væri um leiðir. Ein-
um tíu árum áður en Islands-
bygð liófst, geta fornar sagnir
ur Væringjaflota, sem kominn
var allar leiðir til Konstantin-
opel. Væringjar voru norræn-
ir ví'kingar, eins og kunnugt er.
Varla hafa þeir menn komið
heim aftur með þá hugmynd í
höfðinu, að Róm og Konstatin-
opel væru sama borgin. Og
hitt er jafn óhugsandi, að þeir
hafi þagað yfir þekking sinni,
þegar heim kom.
Játa skal eg það, að eg er
ekki margfróður á þessu sviði.
Eg veit ekki hvaða heimild
Wells getur borið fyrir þeirri
fullyrðing sem hér ræðir um.
En það grunar mig, að hann
hafi látið hugmyndaflugið ráða
þar fyrir sér, fremur en jarð-
föst sannanagögn; og að þessi
samruna- borgar- hilling, sem
hann talar um, hafi verið í
lians eigin heila. Svo mikið er
víst, að klausan, eins og henni
er komið fyrir, er líkleg til að
gefa lesandanum ranga hug-
mynd um þekkingarforða þann,
sem íslenzkar fornsögur hafa
til hrunns að bera.
Einhver maður segir ef til
vill, að ekki séu þetta skaðleg-
ar missagnir hjá Wells. Það
gjöri minst til, hvort sögurnar
íslenzku hafi verið ritaðar öld-
inni fyr eða seinna, eða livort
sögualdar-menn liafi haft
glöggar hugmyndir um stað-
hætti suður í löndum. Eg veit,
að það gjörir lítið til, ef hókin
W' __________________________
cVíV
UNDRAVERT SMYRSL
Líkt og hin drmætu smyrsl Róm-
verja fornu, sem' nú eru töputS, er
Zam-Buk búið til úr jurtum. Það
hefir undraverð áhrif á hörund
mannlegs líkama.
Zam-Buk er hvorttveggja í senn,
græðslumeðal og vörn gegn eitur-
gerlurrj.
Zam-Buk hefir þann mikla kost,
aö þaðikemst gegnumi ytri húðina
og dregur óholl efni úr innri húð
inni. Það er ágætt við exzema, salt-
rheum, hringormum, leg ulces,
bólgu, eitruðum sárum og gylliniæð.
Styrkleiki Zam-Buk meðalsins
liggur aðallega í því, hve gott það
er til þess að eyða allskonar eitur-
efnum og þar með að láta heilbrigt
og sterkt skinn gróa þar sem það
var áður veikt og sært.
Til að fá snishom ókeypia: Sendið lc~frfmerki
(með næsta pósti) til Zain-Buk Co. Toronto, og
getið um þetta ibllað
50c
ítskjan
3 fyrir
$1.25.
er lesin eins og skáldsaga, til
dægrastjdtingar. En lesi mað-
ur slíka bók í uppfræðingar-
skyni, eða til að glöggva sig á
menningarstraumum og réttu
smnhengi söguviðburða, þá
gjöra aðrar eins villur stórt
strvk í i;eikninginn. Til dæm-
is: ef bvrjað hefði verið að
rita sþgurnar á tíundu og ell-
eftu öld, eins og Wells segir,
þó hefði ritöldin gengið í garð
samhliða kristnitökunni, eða
heldur á undan; — þar sem
sannleikurinn cr sá, að landið
hafði verið kristnað fyrir heilíi
öld og vel það, áður en tslend-
ingar náðu tökum á pennan-
um. Þessi sami misskilningur,
að íslendingar hafi verið bóka-
menn í heiðni, skýtur upp liöfði
hjá skóldinu Longfellow, sem
síðar mun að vikið.
% Læt eg svo Welis eiga sig.
Mér þótti mikið fyrir því, þeg-
ar eg rak mig á klausur jiessar
hjá honum. Maðurinn ritar svo
sniðugt og skemtilega. En
þegar eg hugsa um þetta rang-
hermi. svo mjúkt og ísmeygi-
legt, í hinum örstuttu umgetn-
ingum hans um íslenzk fræði,
þá hrýs mér hugur við þeim
aragrúa af glæsilegum villu-
setningum, sem mig grunar að
leynast muni um alla bókina.
Hér kemur Valentino fram sem
rússneskur hermaður og leikur
hann aðal hlutverkiS. Margir aSrir
ágætir leikarar og leikkonur taka
þátt í leiknum, þar á meðal Vilma
Bankey og Louise Dresser. Mynd-
in etygerö eftir fyrirsögn Clarence
Brown og er haft eftir Valentino,
að hann sé allra manna best til þess
fallinn, þeirra manna, sem hann
hefir þekt.
Gunnlaugur N. (Haugaar) Larson.
frá Bakka á Langanesströndum í
Norður-Múlasýslu. — Dáinn næst-
liðinn janúar (ig<26).
Fyrir stuttu síöan barst mér sú
fregn aö látinn væri rinur rninn
Gunnlaugur N. Haugaar. Hann
var fæddur og uppalinn í Vopna-
firði ýVmdfelli?,}. Foreldrar hans
voru þau hjónin, Nikulás Haugaard
—danskur i föðurætt—og Elsa Þor-
steinsdóttir, af hinni ágætu og vel-
þektu Krossavíkur-ætt i Vopna-
firði.
Faðir hans keypti hálfa jörðina
Bakka, og þar kyntist eg honum
og fólki hans, og árið 1887 komum
við báðir samjan til Ameriku, en
skildum! í Winnipeg, hann fór til
Dakota, þvi þar átti hann tvo bræð-
ur Þorstein og Stefán. Árið 1890
fór eg til Seattle, Washington og
mættumst við þar aftur. Hann og
bróðir hans Stefán höfðu flutt
þangað árið áður eða því sem næst.
En eitthvað 3 árum síðar fluttist eg
| til Victoria B.C. og nokkrum árum
seinna til Nome, Alaska, og sá þá
bræöur því ekki í mörg ár, en fyr-
ir rúmum tveinfur árum frétti eg
um Gunnlaug og fór því aö heim-
sækja hann i Mount Vernon, Wash-
ington. Þar hafði hann heimili sitt
og leið yfirleitt vel, en við veik-
indi sagðist hann hafa haft að
striða altaf annaö siagiö.
Efnaleg afkonla hans var ágæt
skyldist mér, hann sagði mér að
hann ætti 5,000 dali i stjórnarláni,
en um aðrar upphæðir gat hann
ekki en gaf mér að skilja að efni
sin væru góö, hann sýndi mér stóra
Fágœtt kostaboð.
Fleiri og fleiri mönnum og kon-
um á öllum aldri, meðal alþýðu, er
nú farið að þykja tilkomumikið, á-
nægjulegt og skemtilegt, að hafa
skrifpappir til eigin brúks með
nafni sínu og heimilisfangi prer.t-
uöu á hverja örk og hvert umslag.
Undirritaöur hefir tekið tekið sér
fyrir hendur aö fylla þessa almennu
þörf, og býöst nú til að senda hverj-,
um sem hafa vill 200 arkir, 6x7, og
100 umslög af iðilgóöum drifhvit-
um pappir (water-marked bond)
með áprentuðu nafni manns og
heimilisfangi, fyrir aöeins $1.50,
póstfrítt innan Bandaríkjanna og
Canada. Allir, sem brúk hafa fyrir
skrifpappir, ættu aö hagnýta sér
þetta fágæta kostaboð og senda
eftir einuni kassa, fyrir sjálfa sig,
ellegar einhvern vin.
F. R. Johnson.
3048 W. Ó3th St. Seattle, Wash.
WONDERLAND.
“The Eagle’’ heitir myndin, sem
sýnd verður fyrstu þrjá dagana af
vikunni sem leiö og er Rudolph
Valentino sá er þar leikur aðal
hlutverkiö og segja margir að hann
hafi aldrei gert betur. Þetta er
hvorttveggja í senn, gamanleikur og
fallegt æfintýri og mjög spennandi.
Fjögur hundruð
menn að vinna
fyrir yður!
ÞaÖ er dálítil hersveit sem stöðugt
vinnur aÖ yðar heill og barnanna
yðar.
Allir, sem vinna fyrir félagið, altfrá
mjólkurbóndanum til keyrslumanns
ins, gera sitt til þess að Crescent
mjólkin verði hin hollasta og bezta
mjólk sem fæst í Winnipeg.
Er þessi hersveit, sem gætir alls
hreinlætis, hefir langa reynslu og
mörg þúsund dollara virði af á'höld-
um, nú að þjóna yður eins og vera
ber? Ef ekki, viljið þér ekki síma
þeim? Þeir bíða eftir símtali við
yður.
Nýjasta og bezta
BRAUÐTEGUNDIN
\
Búin til með ágœtasta rjómabús
smjöri
U t’að er smjörið í Bamby brauði, sem gerir það öllu
W öðru brauði betra. Hvert einasta brauð í umbúðum. ■
! Kaupið þessa brauðtegund strax í dag! Fæst hjá mat-
jgg vörukaupmanninum. Canada Bread umferðasölum eða W
með því að hringja upp B2017-2018.
Canada Bread Co.
Limited
A. A. RYLEY, Manager í Winnipeg
ag njikla fiski-útgjörö, því við það
vann hann síÖustu árin.
Bróðir sinn Stefán sagöi 'hann
mér að dáinn væri fyrir 6 árum þá.
Þeir bræöur Gunnlaugur og Ste-
fán giftust aldrei, voru lítið þektir
á meöal tslendinga, bá8ir mestu
myndarm|enn eins og þeir áttu ætt
til, afbragös smiSir á hvaö sem
þeir lögSu hönd aÖ; og afbragös
krafta og hreysti menn.
Bróðir þeirra Þorsteinn var gift-
ur og bjó i North Dakota seinast
þegar eg vissi svo kor* annar bróð-
ir þeirra líka til Dakota, ÞórSur aö
nafni, giftur meS mörg börn. Heyrt
hefi eg að þeir væru báöir dánir. En
yngsti bróSir þeirra er enn á ís-
landi, giftur og býr á Bakka; Jón
er nafn hans.
Hvenær Gunnlaugur tók upp
nafniS Larson eöa hvort Stefán
brúkaSi þaö líka veit eg ekki, og
ekki 'heldur hvort þeir brúkuSu full
skírnarnöfn sín eSa bara fyrstu
stafi þeirra.
Svcinkt..
WALKER
The Dumbells in “Joy Bombs.”
Þessi sérlega skemtilegi leikur
verSur sýndur á Whlker leikhúsinu
á mánudagskveldiS hinn 10 þ. m.
og svo á hverju kveldi, því allir vita
aS captain Plunkett hefir hér reglu-
lega tekist upp. Þótt bér sé aöal-
lega um gamanleik aö ræSa, þá
skyldi fólk ekki gleyma því, aö hér
eru prýSis vel sungin nokkur ágæt
lög. Hér verSa Red Newman, Pat
Rafforty, Ross Hamilton, AI.
Plunkett, Glen Allan, Jack Holland,
Stan Bennett, Norley Plunkett,
Howard Fagg og ntirgir fleiri
verSa þarna til aö hella gleöinni
yfir fólkið.
D’Oyly Carts hlómsveitin aS koma.
Þessi fræga hljómsveit kemur
frá London og ætlar aö ferÖast um
Canada.>JCemur til Walker snemma
á árinu.
The Green Hat.....
Þessari skemtilegu sögu “The
Green Hat” eftir Michael Arlen
hefir veriS snúiS í leik, sem sýndur
verður á Walker snemma á þessu
ári.
Alveg óviðjaínanlegur
drykkur
Sökum þess kve efri og útbúnaður er
fuilkominn.
Kievel Brewing Co. Limited
St. Bonlface
PhonrH: IN1178
N1179
\