Lögberg - 12.01.1928, Síða 1

Lögberg - 12.01.1928, Síða 1
iilef jl 41. ARGANGUR | WINNIPEG, MAN., FIMTUOAGINN 12. JANÚAR 1928 Heiztu heims-fréttir Canada. Hinn 1. júní 1926, hefir fólkstal- an í Manitoba verið 639,056, sam- kvæmt ný-útkominni manntals- skýrslu frá viðskiftamála ráð- herranum, Hon. James Malcolm í C'ttawa. Samkvæmt því hefir fólkinu i Manitoba fjölgað um ná- lega 30,000 á þeim fimm árum, sem liðin voru frá því reglulegt manntal var tekið um land alt, ár- ið 1921. Fólkstalan í Winnipeg er 203,784, en var 1921, 188,370. Karlmenn eru töluvert fleiri í Manitoba en kvenfólk, eða 331,456, <n kvenfólkið ekki nema 307,100. Þegar þetta manntal var tekið, átti 56.36 prct. af fólkinu heima í borgum og bæjum, en 43.64 prct. í sveitunum. Árið 1871 var fólks- talan í Manitoba, að eins 25,228. Af öllu fólki, sem heima á í þessu fylki 1. júní 1926, eru 422,396 fæddir í Canada, 105,620 á Bret- landi, og 111,000 í öðrum löndum. Af þeim, sem fæddir eru á Bret- landi og írlandi, eru Englending- ar 'lang fjölmennastir, þá Skotar, þá írar og Walesmen fæstir. Rúss- ar eru lang fjölmennastir af íbú- um fylkisins, þeirra, sem ekki eru fæddir 4 Bretlandseyjum eða í Canada, og hefir þeim fjölgað mjög síðan 1921. Þá eru Banda- ríkjamenn og þar næstir Galicíu- menn. í fylkinu eru rúmlega tólf þús. Kínverjar, en að eins tutt- ugu og fimm Japanar. * * * Sextíu og átta bændur frá Can- sda og aðrir, sem áhuga hafa á akuryrkjumálum og sölu akur- yrkjuafurða, sigldu á sunnudag- inn var frá Halifax með gufuskip- inu Lapland, áleiðis til Evrópu, til að kynna sér þar sölu hveitis og annara akuryrkju afurða frá Canada. Er þetta í fyrsta sinn, sem margir menn frá Canada hafa tekið sig saman um að fara slíka ferð, eða bændurnir sjálfir hafa að minsta kosti ekki gert það fyr en nú, og bendir þessi ferð á, að þeir láta nú sölu sinna eigin af- urða sig meiru skifta heldur en þeir hafa gert til skamms tíma. * * * Þingnefndin, sem kosin var til að athuga áfengislaga frumvarp fylkisstjórnarinnar í Manitoba, heldur áfram sínu verki, þótt þinghlé hafi verið síðan um jól og verði þangað til 16. þ.m. Það hefir áður verið skýrt frá frum- varpinu hér í blaðinu, eins og það var lagt fyrir þingið. Bæði sum- ir af nefndarmönnum og margir aðrir, sem þessi lög snerta sér- staklega, -hafa farið fram á ýms- ar breytingar á frumvarpinu, og hefir stjórnin gengið inn á nokkr- sr þeirra, sumar töluvert þýðing- armiklar. Ein af breytingunum er sú, að ölgerðarhúsum er leyft að selja bjórinn beint til kaup- enda, þó með því móti, að vínsölu- nefndin hafi þar sína menn til að líta eftir að lögin séu ekki brotin Upphaflega var ekki ætlast tll, að önnur gistihús fengju bjórs’ölu- leyfi, en þau er hefðu að minsta kosti 40 herbergi. Nú hefir sú ta!la verið færð niður í 24 her- bergi, og verða þá ein 50 gistihús í Winnipeg, sem leyfi geta fengið til að selja bjór. Þá þurfa ný gistihús nú ekki að hafa nema 40 herbergi í stað 70, sem fyrst var ætlast til. Þá er og bjórsöluleyf- ið lækkað ofan í $400 á ári í Win- nipeg og $200 annars staðar. Auk þess borgar leyfishafi 5 per cent. af því sem (hann selur fram yfir 10,000 gallon í Winnipeg og 5,000 gall. annars staðar. Enn fremur er sú breyting gerð á frumvarp- inu, að þau gistihús, sem eril eign, eða að einhverju leyti háð, öl- gerðarhúsum, geta fengið bjór- söluleyfi, eins og hin, sem ekki eru það. Þetta eru helztu breyt- ingarnar, sem enn hafa gerðar ver- ið við frumvarpið, en ekki er ó- líklegt, að þær verði fleiri, áður en lýkur. * * .* Talið er 'líklegt, að innan skamms verði ^íon. Phillippe Roy, -'scm nú er umöoðsmaður Canada á Frakklandi, skipaður sendiherra (minister) Canada á Frakklandi, og sömuleiðis, að Frakkar skipi Baron Regis D’Arnauld de Vit- rolles sendiherra sinn í Canada. Hann er nú aðal konsúll Frakka í Montreal. Það hefir verið um það talað nú að undanförnu, að Can- ada sendi sendiherra til Frakk- lands og að Frakkar gerðu Can- ada sömu skil, og er nú tálið víst, p.ð af því verði, kannske innan fárra daga. Enn sem komið er, hefir Canada að eins einn sendi- herra, þann sem er í Washington, en þess verður sjálfsagt ekki langt r.ð bíða, að þeir verði fleiri. * * * Hinn 5. þ.m. fórst Captain F. J. Stephenson í flugslysi í bænum The Pas, Man. Það hafði eitt- hvað verið gert við flugvélina og hann var að reyna hana áður en hann legði af stað með’ menn, sem hánn ætlaði að flytja til Cold lake. Hvað komið hefir fyrir, er ekki kunnugt, en flugvélin féll beint niður, þegar hún var svo sem fimm hundruð fet frá jörðu, og kom niður fram undan húsi Dr. S. Stephansonar. íslenzka ‘læknis- ins, sem 'á heima þar í bænum. Vélin brotnaði öll og maðurinn dó strax. Capt. Stephenson gat sér góðan orðstir á stríðsárunum í flugliði sambandshersins og þótti einn með beztu flugmönnum í Canada. Capt. Stephenson var Canadamaður, og mörgu að góðu kunnur í Winnipeg. * * * Lengi hefir bæjarstjórnin i Win- nipeg verið að loka skemtistofum (Amusement Parlors) þremur á i Main street, sem þar hafa verið I l mörg ár og ekki haft sem bezt orð j á sér og ekki þótt nein borgar- j prýði. En þetta hefir ekki gengið i á góðu og hafa þessar skemtistof- I ur jafnan haldið áfram iðju sinni, hvort sem borgarbúum -hefir líkað betur eða ver, þangað til nú um áramótin, að þær lokuðu allar dyr- um sínum, svo ekki þarf nú að hafa meiri áhyggjur af þeim. * * * Nýlenduráðherra Breta, Hon. L. S. Amery, er staddur í Canada um þessar mundir. Kom til Van- couver á föstudaginn í vikunni sem leið, og er nú á austurleið. Hann verður í Winnipeg hinn 17. þ.m., verður hér einn dag og held- ur svo austur á bóginn, og hefir nokkra viðdvöl í Ottawa áður en hann fer tii Englands. Hann heldur ræður, þar sem hann kem- ur og hefir tækifæri til þess, og í Winnipeg talar hann fyrir Can- adian Club. Hon. L. S. Amery hefir að undanförnu verið að ferð- ast um hið víðlenda brezka ríki og er nú á heimleið. * * * J. P. Curran dómari andaðist á almenna spítalanum í Winnipeg á mánudaginn var, eftir uppskurð, sem á honum var gerður þá um morguninn. Hann var sjðtugur að aldri, fæddur 13. des. 1857, kom til Winnipeg 1881 frá Ont- ario, þar sem hann var uppalinn, óg var alt af síðan í Manitoba. Hann var skipaður dómari 1912 í Court of Kings Bench. * * * Á fyrstu níu mánuðum fjár- hagsársins, sem yfir stendur, hafa skuldih Canada minkað um sextíu og sex miljónir dala. Á sama tíma bili á næsta fjárhagsári á undan, minkuðu þær um 46 milj. dala. Tekjurnar hafa verið meiri þetta ar af öllum tekjugreinum heldur en þær voru í fyrra á sama tíma. Allar skuldir Canada voru 31. des. (927, taldar 62,281,479,535.27, en 31- des. 1926 voru þær $2,343,364,- i90.55. Allar tekjur stjórnarinn- ar (• aPríl til 31. des. 1927, voru $325,551,698.88, en á sama tíma 1926: $302,021,468.28. Bandarikin. Lagafrumvarp hefiftlomið fram a þinginu í Washington þess efn- is, að banna al'lan innflutning fólks til Bandaríkjanna í sjö ár, eða til 1935, að undanteknum verkamönnum frá Canada og Mexico á vissum tímum! árs, þeg- ar þörf er á þeim. Frumvarpið fer einnig fram á, að gerð sé gangskör að því, að allir séu reknir burtu úr landinu, sem ó- löglega hafa fluzt inn í það, en það er sagt, að þeir séu um 250 þús. á ári, sem þannig koma til Bandaríkjanna. Enn fremur á að vísa þeim burtu, sem ekki hafa hirt um að gerast borgarar með fullum réttindum og skyldum, eftir að þeir hafa lögum sam- kvæmt komið til Bandaríkjanna. E:nnig herðir frumvarpið á sjó- mannalögunum, sem kend eru við La Follette, og sem leyfa sjómönn- um landgöngu, þeim er til lands- ins koma með útlendum skipum. Sá, sem þetta frumvarp flytur, heitir ÍBlanton, demokrat frá Tex- as. Þetta er bara lagafrumvarp enn þá og alveg óvíst hvað úr þvi verður. * * * Thomas P. Magruder, sjóliðs- foringi og yfirmaður yfir her- skipastöðvunum í Philadelphia, skrifaði og birti grein, þar sem hann ákærir hermálastjórnina um sóun á almanna fé, og að í sjóhernum séu óhæfilega margir hátt launaðir embættismenn, og eitthvað fleira af þessu tagi. — Þingnefnd hefir verið að rann- saka þetta og spurði hún þennan fyrverandi; sjóliðsforingja — því honum hefir verið vikið frá em- bætti — hvað mikla borgun hann hefði fengið fyrir þessa grein, en hann svaraði nefndinni því, að það kæmi henni ekkert við. Sum- ir nefndarmennirnir, að minsta kosti, eru á öðru máli, og segjast skuli komasþ eftir því, hve mikla borgun hann hafi fengið fyrir greinina, og hvaðan hún hafi komið. * * * Dr. S. Adelphus. Knoff, fyrrum prófessor í Hæknisfræði í New York, segir, að í Bandaríkjunum deyi nú fleiri stúlkur á aldrinum 15>—30 ára af tæringu, héldur en verið hafi, þar sem dauðsföllum af öðrum sjúkdómum hafi fækk- að. Segir prófessorinn, að þetta komi til af því, að stúlkurnar svelti sig um of til að verjast því að fitna of mikið, og í öðru lagi komi þetta af því, að stúlkurnar reyki meira heldur en heilsan þoli. * * * Mr. Frank B. Kellogg, utanríkis- ráðherra Bandarikjanna, ætlar að koma til Ottawa 5. janúar og vera þar í þrjá daga. Meðan hann er þar, heldur hann til hjá Mr. Wil- liam Phillips, sendiherra Banda- ríkjanna í Ottawa, en heimsæk- ir landstjórann og frú hans og Mr. King og aðra stórhöfðingja. ir, að vatnið væri mikið til hlaup- ið fram og var þá haldið að ekki mundi meira tjón hljótast af þess- um vatnavöxtum. En þetta fór á aðra leið, því um helgina síðustu fór aftur að rigna og óx þá Tamesj fljótið að nýju og jafnframt var stórstreymisflóð og vindstaðan þannig að sjórinn hélt upp í áaa og flæddi hún þá yfir allmikið svæði af borginni og er sagí, að 25 manns hafi mist lífið að þess- um völdum, og eignatjónið er tal- :ð að vera að minsta kosti $7,500,- 000. Annars hefir verið mjögj vond tíð á Bretlandi í síðast liðna I tvo mánuði, svo ekki hefir önnur slík verið þar í mörg ár. Hafa þar á þessu tímabili farist um hundr- að manna af völdum óveðurs. Bretland. Skýrslur verkamanna félaganna á Englandi sýna, að hið mikla al- nienna verkfall, sem þar átti sér stað fyrir tveimur árum, hefir orðið verkamannafélögunum dýrt og orðið þeim fti'l tjóns á ýmsan hátt. Út af því hafa verkamanna- félögin tapað 300,000 meðlimum, sjóður þeirra minkað úr 12,750,000 sterl.pundum ofan í fjórar milj. punda. Af öllum verkamönnum hafa kolanámamennirnir orðið hai'ðast' úti. * * * Mr. Ba'ldwin, og hinir brezku ráð- herrar flestir, ferðast nú um landið þvert og endilangt og halda ræður og skýra fyrir kjósendun- um hvað þeir hafi gert og hvað þeir hafi ógert látið og svara þeim aðfinslum, sem stjórnin hefir orðið fyrir af andstæðingum sín- um, sem eru margar, sérstaklega af hálfu verkamanna. Er sagt, að íhaldsmenn vinni nú þegar mikið að undirbúningi undir næstu kosningar og muni lleggja mikið kapp á að vinna þær. A. F. Deane, biskup frá Aber- deen á Skotlandi, var staddur í Chicago upi helgina sem leið. Hann sagði, að það væri naumast viðeigandi, að hann færi að segja Bandaríkjamönnum mikið um þeirra vínsölubann, en sér væri ó- hætt að segja, að ef það kæmist á á Bretlandi, þá mundi verða þar uppreisn og kannske stjórnar- bylting. Hins vegar þætti sér vænt um, ef þar yrðu samþykt samskonar vínsölulög, eins og þau, sem nú gilda í Ontario. Hann sagði, að í sínu landi væri ekki litið alvarlega á það, sem Thomp- son borgarstjóri í Chicago segði um Breta) eða George konung og væri fjarri sanni, að þeir þar handan við hafið létu það nokkuð á sig fá. * * * Rétt eftir jólin snjóaði mikið á Englandi, eins og áður hefir ver- ið getið um hér í blaðinu. Um ný- ársleytið fór að rigna og hljóp þá mikill vöxtur í árnar og gerðu þær allmikinn usla á ýmsum stöð- um, ekki sízt I London. Um miðja vikuna sem leið komu þær frétt- Hvaðanœfa. Lengi hefir það sagt verið urn Rússa, að ]>eir væru drykkjumenn miklir og að þeim væri tarnt aö halda þannig upp á jólin að drekka sig fulla, og þó margt' hafi breyst þar á seinni árum, þó sýnist þessi siður haldast þar við. Nú um þessi jól hefir brennivinið (vodkaj riðið 30 mönnum að fullu i Moscow og 24 í Leningrad. Þar að auki hefir fjöldi manna verið fluttur á spitalana, veikur af of miklu “vodka” og enn miklu fleiri verið teknir fastir fyrir drykkjuslark. * " * * ítalski flugmaðurinn, Renato Donati, hefir komist allra ' flug- manna lengst upp í loftið enn sem komið er, eða 11,827 metra, sem er sama sem 38,792 fet. * * * Alstaðar verða hestarnir að lúta í lægra haldi og bílarnir ryðja sér til rúms í þeirra stað. Svo er jafnvel í páfagarði, og þykja þó þeir, sem þar ráða fyrir, ekki fljótir til breytinga. Nú um ný- árið hafa allir hestar og hesta- vagnar verið lagðir þar fyrir óð- al og bílar hafa verið teknir í staðinn, bæði til mannflutninga og vöruflutninga, og hesthúsun- um breytt í geymsluhús til að geyma þar bílana. IHinar gömlu og skrautlegu kerrur, sem páfarn- ir hafa ferðast í, verða hér eftir nokkurs konar forngripir, því nú ferðast páfinn í bíl, eins og ann- að fólk. * * * Milli tvö og þrjú þösund manna tnistu lífið í Canton í Kína á sið- ustu tveim vikum ársins sem leið, þegar verið var að bæla þar nið- ur kommúnista uppreisn. Af þeim, sem lífið létu, voru 11 Rússar. * * * Þýzkaland hefir sent nýjan sendiherra til Bandaríkjanna, Bar- on von Rittwitz. 'Hann kemur til Washington frá Rómi. * * * Tvær stúlkur í Pilisooeroesvar í Ungverjalandi, voru báðar góð- ar vinstúlkur sama piltsins, og sú sem fyrri var þóttist hafa meiri rétt till hans heldur en hin, og ■þegar hún mætti keppinaut sinum á strætinu, þá tók hún tvo smá- hnífa úr handtösku sinni, fékk hinni stúlkunni annan hnífinn, en hafði hinn sjálf og svo sóttu þær hvor að annari með hnífun- um af mestu grimd, þangað til þær voru skildar. Voru þær þá særðar mjög og illa útleiknar og voru báðar fluttar á spítala, því hvorug vann þó á annar! til fulls. Það er ekki; ofsögum af því sagt, að ástin* sé blind. Norðurförin og Drang- eyjarsund. Erlings Pálssonar form. Sundfélags Reykjavíkur. Eftir Bennó. Sé hægt að kalla nokkra eina íþrótt, íþrótt iþrótt- anna, þá er það sund- listin. I. Við lögðum af istað héðan úr Reyk-javík, á strandvamarskjipinu “Óðinn,” föstudaginn 28. júli, skömmu eftir hádegi í hezta veðri Þegar “Óðinn” fór út af höfninni, sáum við hvar Valdimar Svein- björnsson, sundskálavörður, var að æfa róðrarmennina fyrir kappróð- urinn, sem heyja átti við “Fyll- unga” daginn eftir hjá Sundskál- anum í Hólminum (=örfirisey,); um úrslit róðursins er getið á 'öðr- um stað hér í blaðinu. Þegar menn heyra að Erlingur Pálsson, sundkappi, Ólafur sund- kennari bróðir hans, Sigurjón Pét- ursson, glímukappi og undirritað- ur voru i þessari för, þá er skilj- anlegt að mikið hefir verið rætt um iþróttir og íþróttamál. Var það þó eigi svo mjög í fyrstu, en því meir sem leið á ferðina. Veðrið var yndislegt allan dag- inn, og útsýnið dýrðlegt um hinn fagra fjallahring Eaxaflóa. Hvergi var skýhnoðra að sjá. Hinn svip- mikli Snæfellsjökull naut sin afar- vel. Við mældum sjávarhita í miðj- um Faxaflóa og revndist hann 12,5 stig. Lofthiti var 14 stig. Á með- al farþega á “Óðni” var forstjóri veöurstofunnar, og spáði hann góðu veðri. Eerðin gekk mjög vel norður; skipið kom að eins við á Patreks- firði, Arnarfirði, Skutulseyri og Hornvík; þar lá enskur botnvörp- ungur i víkinni, og brá “Óðinn” sér því þangað, að hafa tal af skip- verjum, en þeir revndust “sak- lausir.” Gott var að ferðast með “ÓSni.” Skipverjar allir hinir ágætustu; og skipið fór nú langtum betur í sjó en áður, síðan það var lengt um þessi 13 fet. Eg fékk að vera í klefa hjá fyrsta ^týrirrfanni, EKnar Einars- syni. Hann var mjög fróður um strandvarnarmálin og alt er laut að sjómensku; énda sjógarpur mikill, er nokkrum sinnum hefir lent i sýpðilförum, t. d. þesrar varð- skioið “Þór” rak af Revkjavíkur- höfn að Laugarnesi, með Einar einan innan iborðs. Eftir 30 klukkustunda ferð komum við til Sauðárkróks. Gist- um við þar á “Tindastóli” og tók- um þegar að undirbúa Drangevjar- förina. Sigurjón var fararstjóri og '•ókst bráðlega að útvega vélbát og róðrarbát. Var svo haldið daginn eftir út í Drangev. Að sjálfsöeðu voru miklar ráðagerðir um daginn. en dult farið með þær. Vissi eng- inn hvað til stóð fyrr en kom út í Drangey. Áður en farið var út i Drangey, fórum við í land, að Reykjum og athuguðum alla að- stöðu þar. Éóndinn á Reykjum var ekki heima, en húsfreyian, Stefania Guðmundsdóttir, veitti okkur beztu viðtökur beina. Eftir snæðing athuguðum við Reykjarlaug og lendinguna þar : vikinni . Reykjarlaug er 55 stiga heit, en Grettislaug, sem þar var skamt frá, er nú sandi og grjóti orpin. Þyrfti endilega að grafa hana upp að nýju og endurbæta, því þar mun Grettir hafa laugað sig eftir sundið: er það Veglegt verkefni fyrir íþrótta- og ung- mermafélög. II. Eins og allir fslendingar vita, liggur Drangey nær í miðjum Skagafirði, á 65°, 56'—57' norð- lægrar breiddar. Þar sem skemst er til lands úr eyjunni að Reykja- disk, er um 3,7 sjómílu eða 6650 stikur. Frá Sauðárkróki eru sagð- ar 12 sjómilur út í Drangey; það er um 2 kl.st. ferð á góðum vél- ibáti. En frá Reykjum út í eyju vorum við tæpa klukkustund. Drangey ris snarbrött og hrika- leg úr hafi; eyjan er 140 stikur á hæð, þegar nær kemur er hún klof- in að sjá, og heitir Lambhöfði nyrðri hluti eyjarinnar, en Lund- höfði sá syðri. Beit er i eynni á sumrum, enda er hún mjög grösug uppi. Tveir drangar hafa lengi staðið við Drangey sem nefndir voru karl og kerling. Karlinn er fyrir löngu fallinn i sjó en kerling stendur enn; en búist er við að hún fari sömu leið og karlinn. — Þá eru menn og að geta sér til að Drangey muni líka “hrynja í hafið,” ef dæma skal eftir því, hve eyjan hefir klofnað síðasta mannsaldur, og mikið fallið úr henni. Um upptök Drangeyjar segir svo í Þjóðsögunum, að í fornöld hafi tvö nátttröll átt heima í Hegra- nesi; karl og kerling. Einu sinni fóru þau með kú sína, sem var yxna, áleiðis yfir fjörðinn úr Hegranesi út á Skagafjörð. Karl- inn teymdi, en kerlingin rak. Þeg- ar þau eru komin töluvert út á fjörðin, ljómaði dagur og urðu þatt bæði að steini, og eru þau drang- arnir, sem hjá Drangey hafa stað- ið; en Drangey á að vera kýrin sjálf. — Þó þessi þjóðsaga, sé að mörgu leyti merkileg, þá er það ekki hún, sem haldið hefir mest og bezt sögu Drangeyjar á lofti, held- ur dvölin Grettis gamla og Uluga i eyjunni. (Framh. á 5. bls.) Vincente Blasco-Ibánez. (fæddur 29. jan. 1867) er fræg- astur og víðlesnastur alllra núlif- andi Spánverja. Líf hans hefir verið margbreytilegt og æfintýra- ríkt; hann var blaðamaður á unga aldri, þingmaður lengi og póli- tiskur farandræðumaður — heit- ur lýðveldismaður og ákafur fjandmaður kvenréttinda. Honum var hvað eftir annað varpað í fangelsi fyrir æsingaræður gegn konungsvaldinu og oftar en einu sinni var hann gerður landrækur, ferðaðist mikið í Evrópu, Suður- og Norður-Ameríku, í fyrstu af litlum efnum og vann fyrir sér með hinu og öðru, en síðar sem ríkur maður. Þekking hans á líf- inu er því margháttuð og yfir- gripsmikil. Hann héfir skrifað kynstur af skáldsögum. Hann er rómana- höfundur í gamalli og góðri merk- in^u orðsins, sögur hans fjörlega og alþýðlega ritaðar, mannmarg- ar og voðburðaríkar, litauðugar og skemtilegar, — blóðmiklar og hcilsusamlega stórvaxnar lífslýs- ingar. Hann hefir lært af Dick- ens og Zola, en viðurkennir sjálf- ur að eins einn meistara og kenn- ara: Victor Hugo. í fyrstu sögum sínum lýsir hann lífinu í fæðingarbæ sínum Valencia (sem kaus hann 8 sinn- um á þing) og grend hans, síðar komu alllmargar sögur, sem gerð- ust víðsvegar á Spáni og lýstu þjóðlifsmeinum og deildu á vald- hafa. La Catedral (þýdd á ensku: The Shadow of tne Cathedral) lýs- ir klerkavaldinu í Toledo; La Hor- tía öreigalífi í Madrid; La Bodega lífinu í vínhéruðum Andalúsínu; E1 Intruso (þýdd á dönsku: Den ubundne) Jesúítunum í námahér- uðum Norður-Spánar, í Sangre y Arena (þýdd á dönsku: Tyrefæg- teren, á norsku: Blod og Sand, og á ensku: B’.ood and Sand) og er frægur nautabani höfuðpersónan. Bækur hans frá síðustu árum gerast víðsvegar um heim. Fræg- astar þeirra eru tvær skáldsögur frá ófriðarárunum, Los cuatro jinetes del Apocalipiss, 2 bindi og góðan I þýdd á dönsku: De fire Ryttere, á - ^ensku: The Four Horsemen of the Apocalypse) og Mare nostrum (þýdd á ens’ku: Our Sea.) — Blasco-Ibanes hataðist mjög við Þjóðverja á stríðsárunum og lýsir þeim í sögum þessum af mikilli rangsleitni og grimd. Báðar sög- urnar lýsa hörmungum og and- stygð stríðsins, eru máttugar prédikanir gegn villimensku styrj- alda. Auk þeirra dönsku þýðinga á verkum Blasco-Ibanes, sem þegar eru nefndar, er vert að minna á “Ðen sort flod”, sem tvisvar hef- ir verið þýdd á dönsku og er talin í fremstu röð skáldsagna hans. Blasco-Ibanes er svarinn óvin- ur Spánarkonungs og Primo de Rivera, og dvelur nú í útlegð á Frakklandi. Hann er maður vell- auðugur, hefir keypt sér herra- setur ekki langt frá landamærum Spánar en er með annan fótinn i París, þar sem landflótta upp- reisnarmenn spánskir leggja ráð sín. Fyrir nokkrum árum ritaði Blasco-Ibanes napurt og stóryr^ ádeilurit um Spánarkonung, sem var þýtt á margar tungur (á ensku hét það: Alfonso unmasked — giímunni svift af Alfonso). Rit þetta mátti ekki prenta á Spáni. En höfundurinn ílét prenta það á spænsku í Frakklandi í stóru úpplagi. Síðan gerði hann út flugvélar og lét þær kasta ritinu, tugum þúsunda eintaka, niður yfir stórborgir Spánar.—Vörður. Jólin á Betel 1927. Oft er talað upi jólin sem há- tíð barnanna. Börnin bíða eftir jólunum og hlakka til þeirra, og þegar þau eru hjá liðin, geyma þau endurminningarnar um þau, sem eitt af fjársjóðum hjarta síns. Jólin eru lfka gleðihátíð þéirra eldri, og með sanni má segja, að jólagileðin nær í ríkum mæli til ckkar hérna á Betel. Það er hugs- anlegt, að einhverjir af öllum þeim, sem gera sitt-ítrasta til að gleðja gamla fólkið á Betel um jólin, langi til að heyra lýsingu á jþví, hvernig við eyðum jólun- um hér. Jólin byrja hér snemma, því æ- tíð vikuna fyrir jólin eru sendar NÚMER 2 hingað jólagjafir úr öHlum áttum. Margt af þeim er frá vinum og vandamönnum heimilisfóilksins og einnig frá félögum og öðrum v;num stofnunarinnar. Á aðfangadagsmorgun var les- inn jólalestur og sungnir jóla- sálmar að því loknu óskuðu heim- ilismenn hver öðrum gleðilegra jóla. önnur forstöðukonan, Miss Julius, les húslestra hér, ætíð þeg- ar ekki er messað. Hin forstöðu- konan, Mrs. Hinriksson, er for- songvari og sér um sönginn. Á aðfangadagskvöld komum við s\o saman til að syngja. Það sem okkur vantaði helzt, voru meiri söngkraftar. Fyrir rúmum tveim ur árum dó hér á Gimli maður, sem við hér á Betel söknum að svo mörgu leyti, en sérstaklega, þegar við komum saman til að syngja, því hann var ætíð reiðu- búinn til að koma; og gleðja okk- ur með nærveru sinni og söng — maður sá var Sveinn sál. Björns- son. En þó við værum svona fá og smá, þá samt hópuðum við okkur saman og sungum hvert með sínu nefi, og hér voru sungnir jóla- sálmar og aðrir íslenzkir söngv- ar á öllum gólfum á jólanóttina. Fólkinu hér þykir svo vænt um um söng. Allir voru í anda glað- ir; þó sumir væru veikir, þá streymdi kærleiksylur frá svo mörgum út í frá til þeirra, og sá sem tekur með þakklátu hjarta á móti gjöfum guðs og manna, finn- ur frið og blessun gagntaka sálu sír.a. Á jóladags morguninn, kl. hálf-# tíu, var haldin hér jólaguðsþjón- usta, af okkar kæra sóknarpresti, séra Sigurði Ólafssyni. Var guðs- þjónustan hátíðleg og að henni afstaðinni var á ný óskað gleði- llegra jóla, og presturinn heim- sótti alla þá, sem sökum lasleika ekki gátu farið úr herbergjum sínum. (Það gerir hann einnig á hverjum sunnudegi, að aflokinni messu hér.) Enn er eftir að þakka opinber- lega fyrir gjafir hingað, þó a3 • áður hafi verið þakkað fyrir hin- ar miklu matargjafir, sem heim'l- inu voru gefnar: Fyrst hin fögru jólakort, sérstaklega prentuð fyr- ir Betel, sem Andrés Helgason í Kandahar, Sask., hefir árlega gef- ið heimilinu. Upplagið hefir ver- íð svo mikið, að hver heimilismað- ur hefir getað sent nokkur kort til vina sinna. Um ein jól sendi hann okkur hin undurfögru heil- ræði Hallgr. Péturssonar skraut- prentuð. Voru þau send út héðan af heimilisfólkinu til fjölda vina, bæði á íslapdi og í Ameríku. Nú er hann svo Iamaður á heilsu, að hann getur þess í bréfi, að þessi jól verði þau síðustu, er hann sendi okkur jólakortin, því starfs- kraftar sínir séu að þrotum komn- ir. Af hjarta biðjum við guð að launa honum fyrir okkur, og senda honum endurskin af öllum þeim gleðigeislum, sem jólakortin hans hafa fært okkur og öðrum. Næst vildi eg nefna hljómplöt- ur, sem Ásmundur P. Jóhannsson gaf heimilinu eftir Pétur Jónsson og Eggert Stefánsson. íslenzkar hljómplötur eru sérlega mikils virði til okkar á Betel. Og getur fólk varla gert sér grein fyrir, hvað það getur aukið á heimilis- gleðina hér, að hlusta á fögur lög á okkar “grammophone”. Sérstak- lega dáum við íslenzku lögin; þó eru enskar h'ljómplötur einnig rujög kærkomnar, og þökkum við gefendum af hjarta. Og svo síðast vildi eg minnast á eitt af því, sem gladdi okkur sérstaklega. Það var fagurt jóla- tré, sem okkur var gefið, úr garði prestshjónanna, Mr. og Mrs. ól- afsson. Hjó presturinn það sjálf- ur og færði okkur hingað heim; sendu þau hjónin svo dætur sínar þrjár með allslags skraut til að prýða það og setustofu okkar með. Jók það meira en við getum sagt frá á jólagleðina, því hver grein og hvert blóm andaði til okkar hlýleik og kærleika. Á kertunum kveiktum við svo síðast gamlárs- kvöld, þegar við komum hér sam- an og sungum. Þannig enduðu þessi þrettándu jól okkar hér á Betel, sem voru j okkur öllum inndæl jól, ein af | þeim ánægjulegustu, er við höf- um átt. Hér eru nú þrír vistmenn- sem verið hafa hér öll þessi þrettán jól. Af hjarta biðjum við guð að launa öllum þeim, sem á einn eða annan hátt hjálpuðu til að auka jólagleði okkar. Einn af vistmönnum.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.