Lögberg - 12.01.1928, Blaðsíða 3
X.
LöGBERG, FIMTUDAGINN 12. JANÚAR 1928.
Bls. 3.
Hún brúkaði þær til
að hreinsa blóðið.
Þetta Segir Kona Ein í Manitoba
um Dodd’s Kidney Pills.
Miss EHa Scott Þjáðist af Kýlum
og Bólum á Handleggnum.
'Carman, Man., 9. jan. (einka-
skeyti):—
“Eg get ekki nógsamlega lofað
Dodd’s Kidney Pills,” segir Miss
E. Scott, sem er góðkunn kona^ í
Carman. “Þær hafa hjálpað mér
svo vel. Einu sinni hafði eg 13
kýli og handleggirnir á mér voru
baktir af bólum, af því eg var j?á
svo veikluð. Eg hefi notað all-
mikið af Dodd’s Kidney Pills^ og
'þær hafa bygt upp heilsu mína.
Og nú líður mér vél. Eg mæli a-
valt með Dodd’s Kidney Pills við
aðra.”
Dodd’s Kidnev Pills styrkja og
græða nýrun. Þeirra hlutverk er
að hreinsa óholl efni úr blóðinu.
Ef nýrun eru ekki heilbrigð, þá
geta þau ekki unnnið sitt verk og
þessi ó-hollu efni verða kyr í blóð-
inu og valda miklum veikindum.
Séu nýrun heilbrigð, þá er blóð-
ið það líka og heilsan í góðu lagi.
Tjallablóln.,
Kvæði eftir J. K. Jónatansson.
Prentuð hjá “The Maple Leáf
Press”. Winnipeg. 1927.
Þetta er ekki stór bók, að eins
183 blaðsíður, og höfundurinn
fiemur Jítið þektur; en bókin er
þess virði, að henni sé gaumur
gefinn, bæði vegna þess að efni
hennar er nokkurs virði — hún
hefir boðskap að flytja — og ekki
síður sökum hins, að búningur og
framsetning hugsanna er miklu
betri en alment gerist hér vestra.
Höfundur segir frá því í einu
kvæðinu, að, hann sé ekki skóla-
genginn maður; tækifærin hafi
ekki borist né boðist til mikillar
mentunar. Hann segir: t
‘‘Eg lærði að vera klakaklár,
og kann því lítið annað.”
En þessi höfundur kann annað.
Hann kapn mörgum hagyrðingum
betur, að klæða göfugar hugsan-
ir í allgott rím og sumstaðar á-
gætt, þótt því miður finnist á því
margir galiar, sem eðlilegt er.
Hann kann að taka klæði ís-
lenzkrar tungu og sníða úr því
og sauma lagleg föt við hæfi hugs-
ana sinna.
íslendingar hér vestra — og
jafnvel heima ilíka —■ eiga fjölda
af ljóðabókum og kvæðakverum,
sem lítið er varið í yfir höfuð að
tala. En væri þar ekki um eins
tilfinnanlegan skort á formi og
búningi að ræða, þá hefðu marg-
ar þessar bækur talsvert erindi til
lesendanna, því margar flytja þær
fagrar og göfugar hugsanir. En
þær (hugsanirnar) tapa sér oft
eða týnast með öllu vegna þess,
hve afkáralegur er búningur
þeirra.
Skáldskapur er tvenskonar. í
fyrsta lagi nokikurs konar andlegt]
málverk; þar sér ská'ldið mynd, j
sem það verður hrifið af og reyn-l
ir að sýna þjóð sinni sömui
myndina. Þess konar skáldskap-;
ur krefst listar, — gildi hans erj
svo að segja einvörðungu fólgið í|
listinni sjálfri.
í öðru lagi verður skáldiði
gagntekið af eimhverri stefnu; |
einhverri hugsjón; einhverju, sem
það vill leggja lið og berjast fyr-
ir, eða það fyllist gremju og reiði
á móti einhverju, sem það sér eða
veit af, og kallar ljóðagyðjuna sér
til liðs í baráttunni. Þegar þann-
ig er ástatt, eru venjulega ekki
gerðar eins harðar kröfur til list-
arinnar. Þessa tegund skáldskap-
ar virða sumir litilS; en fyrir mitt
leyti hefi eg þá skoðun, að sá svíki
þjóð sína, svíikist um skyldur sín-
ar, sem þegið hefir gáfu listar og
Ijóða, en nota hana ekki eða beita
henni góðum málum til varnar
og til sem mestra áhrifa.
Sumir telja búninginn lítils
virði; en það er misskilningur;
flestir fyrirverða sig fyrir það, að
senda börn sin frá sér í tuskum
og tötrum; þeir viilja búa þau
bærilega, ef föng eru á. Hví
skyldu menn ekki leggja eins
mikla rækt við búning sinna and-
legu barna — ljóðanna?
Höfundur “Fjallablóma” notar
ljóðadis sína til starfs og styrktar
fyrir þau málefni, sem hann ann.
Það kemur glögt í ljós, að hann er
jc.fnaðarmaður, friðarmaður og
trúmaður. Fyrir öllu þessu berst
hann í Ijóðum sínum.
Þótt búningur Ijóða hans sé
nukiu fullkomnari en í meðallagi,
er því samt ekki að neita, að
num er þar talsvert ábótavant.
rí^'i8íe«,|1SrUS1tU gallar á bú«inKÍ eða
nmi íslenzkra ijóðp eru >esgir.
1. Fleiri stuðlar fen tveir í stöku
linunni, t. d.
“Hvar fagnað verður fæðin? frels.
arans,
á fundi vina, í dýrðarríki hans ”
2. Fleiri en einn höfuðstafur í
jofnu lmunni, t. d.:
“Eg veit það eitt, eg verða að
stikla fossa,
Ef vil eg eitthvað komast upn
á við’.’ P
3. Áherzlulaust atkvæði í byrj-
un ljóðlínu, ýmist vantar eða því
er ofaukið, t. d.:
a) —
“Ef eg finn á auðnu brest,
og ami’ er mér í geði,
þá í sannleik syng eg mest,
sjálfum mér til gleði.”
Hér er áherzlulausu atkvæði (og)
ofaukið í annari ljóðlínu og hefði
það ekkert raskað neinu, þótt því
væri slept.
b) ^-
“Mitt engilhreina, blíða barn
eg ber í örmum mér;
lífsins máttur líknargjarn,
alt líf þess fel eg þér.”
Hér vantar áherzlulaust atkvæði
fyrir framan þriðju ljóðlínu, og
hefði verið auðvelt að laga það,
þar sem þetta er ávarp til forsjón-
arinnar og segja: “Ó, lífsins
rnáttur”, eða “Þú, lífsins máttur”
o.s.frv.
Þessir gallar eru afar algengir
í íslenzkri ljóðagerð, og þótt þeir
komi fyrir hjá höfundi “Fjalla-
blóma”, þá er það langtum sjaldn-
ar en hjá flestum öðrum.
í einu kvæðinu er þetta:
“Sem örfa um taugarnar íslend-
ings blóð,
svo yljar það hjartað og sál.”
Kér er ruglað saman taugum og
æðum; blóðið rennur eftir æðum,
en ekki taugum.
Til þess að læra að forðast galla
svipað þeim, sem hér hefir verið
bent á í ljóðagjörð, var hér í Win-
nipeg stofnað Hagyrðinga“félag-
ið“ svokallaða fyrir réttum 25 ár-
um, og er það sannfæring mín, að
það ihafi orðið að talsverðu liði;
að minsta kosti veit eg að það var
mér talsverður gróði í þessu til-
liti.
Hér skal ekki ritað lengra mál
að sinni, að eins tekin nokkur sýn-
ishorn af góðum visum í bókinni,
sem hljóta að lærast og lifa.
Vorvísa í Winnipegosis:
Fanna breiðan firrist grund,
flestar leiðir þána;
eyg'ló seiðir líf í lund,
loft i heiði blána.
Úr kvæðinu
“Áramóta ferhendur.”
Oft á lífið litið til,
að lána sumum guðs í heim;
öðrum gengur alt í vil—
ójafnt skift er gáfum þeim.
Sólsetur í Winnipeg.
Að húsabaki sólin sest,
siðustu geislar dvína;
þeir hafa’ altaf allra bezt
yljað sálu mína.
Frelsi er fé betra.
Sízt eg vildi’ að iðu áls
og undirdjúpum sveima;
betra’ er eins og fuglinn frjáls
að fljúga’ um loftsins geima.
Andi minn sé alt af frjáls,
enga beri hlekki;
gimsteina og gull um háls
girnist eg því ekki.”
Úr kvæðinu “Hugsjónadísin.”
“Um mannsandans víðlenda veldi
því víðar sem hugurinn fer,
v?ð bjarmann frá íslenzkum eldi
eilífðin brosir við mér.”
‘ Þótt heimurinn haldi oss freðin,
samt heilaga eigum vér glóð.
Eg hvergi í heiminum kveðin
veit hjartkærri ættjarðarljóð.
Til E. P. Jónssonar, við lestur
“öræfaljóða.”
“Æskuvonin, við mér skín,
vermist af því kinnin;
þökk fyrir lipru Ijóðin þín;
ljúfu íslands minnin.”
“óhó'pp.”
“Óláns disir elta mig,
að mér hrís þær draga;
um mannheimsís á armóðs stig
enn í prísund flengja mig.”
“Við vatnsburð.”
“Hretið stranga hýlur skjól,
ihölda svanga þreytir ról,
kaldan vanga vatnar sól,
vont er að ganga’ upp þenna
hól.”
Hér sér skáldið auðsjáanlega
n,ynd, eða réttara sagt finnur
hana, sem hann vill skýra og tekst
það vel. Það er ekki einungis hinn
líkamlegi kuldi, sem nístir kinnar
hans, eða hóllinn einungis í venju-
legum skilningi, sem vatnsberinn
kvartar yfir. Það er kuldinn og
sólahleysið, hungrið og erviðleik-
arnir á leiðum hins starfandi
manns, undir því fyrirkomulagi,
sem nann á við að búa. Myndin
er vel skýrt dregin í fáum
dráttum.
“Þögn og mælgi.”
“Annað hvort er almenn þögn,
eða allir tala
í einu, svo að enginn heyrir,
ysið fram úr hófi keyrir.”
Úr “Ferhendum.”
“Oft við lítið Ijóðablað
lettist hugar raunin;
ef þau gleddu annan, það___
yrðu tvöföld launin.”
“Samkeppnin”.
“Samkeppninni lof hann Ijóðar
langt í fornöld sækir rðk,
þo ofurkapp og ágirnd þjóðar
efli lífsins þrælatðk.”
“Sléttubönd.”
“Daga góða, ljóma lönd
lítur mærin smáa;
haga gróða, blóma bönd
bítur ærin gráa.”
Hér hafa verið tekin fáein dæmi
einungis til þess að sýna þeim, er
ekki hafa séð, hvernig bókin er.
Höfundur er ungur enn og hefir
nógan tíma til þess, ef honum end-
ist aldur, að fullkomna sig og
forðast helztu og algengustu ljóða-
lýtin, sem hér hefir verið bent á.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Ríkisskuldir Isla ds.
Það mun vera nokkuð almenn
skoðun ennn þann dag í dag með-
al alþýðu manna hér á landi, að
ríkisskuldir íslands séu tiltölulega
niiklu minni en flestra eða allra
annara rikja. í sjálfu sér er þessi
skoðun eðlileg, og ber þar einkum
tvent til. í fyrsta lagi var ísland
skuldlaust land langt fram yfir
aldamótin síðustu og ekki um nein-
ar landssjóðsskuldir að ræða við
útlönd. Það eru ekki nema nítján
ár siðan landið tók i fvrsta sinn lán
erlendis. En eftir að lagt var út á
skuldabrautina hefur hvert lánið
rekið annað svo ört, að almenning-
ur hefur tæpast fylgst með. Lands-
reikningana sjá fáir, en aftur á
móti skortir ekki allskonar meira og
minna óljósar frásagnir um fjár-
haginn um það leyti sem þingkosn-
ingar fara fram. Sumt þessara
frásagna setur almenningur þá
stundum í samband við kosninga-
æsingar, sennilega ekki altaf að ó-
sekju, og tekur ekki meira en svo
mark á þeim. í öðru lagi höfum
vér íslendingar. aldrei haft neitt af
þeim miklu útgjöldum að segja,
sem hjá öðrum þjóðum fara til her-
mála. Víða eru þau útgjöld hæsti
gj'aldaliðurinn á rekstureikningi
þjóðabúanna. Allir hafa heyrt get-
ið um hinar gífurlegu hernaðar-
skuldir eftir ófriðinn mikla. En
einnig þau ríkin, sem að vísu hafa
ekki átt í ófriði undanfarið, en
halda uppi varnaskvldu, verja ár-
lega háuni upphæðum til hermál-
anna. Þannig fór alt að því % af
tekjum danska ríkisins árjð tq?6
til hermálanna. Sama ár voru út-
gjöld Norðmanna til hermála sam-
kvæmt fjárhagsáætluninni nál. i-o
hluti af öllum tekjum ríkisins það
ár. Búlgara Tékkóslóvaka 1-5.
Einna 1-6, Frakka 1-6. Svía 1-5.
Spánver ja 1-4, Svisslendinga 1-4 og
Englendinga 1-7 hluti af árstekjun-
um. Þó-að hlutföll jiessi séu ekki
algerlega nákvæm. vegna þess hve
mismunandi aðferðum er beitt við
uppgerð á tekjum og gjöldum hinna
ýmsu ríkja, ættu þau að vera nægi-
lega trygg til þess, að vér gætutn
fengið nokkra hugmvnd utn hern-
aðarkvaðirnar. Hvernig mundi nú
ástatt um íslenzka ríkið, ef það
hefði orðið að greiða svo sem fimta
hluta af árstekjum sínum til þess
að halda úti her og flota? Það er
ekki ólíklegt að ríkisskuldirnar
væru þá ærið mikið hærri en þær
eru. Vissulega megum vér hrósa
happi yfir því„ að vér höfum aldrei
lagt út á þá hálu braut að koma hér
upp her og flota, heldur lýst yfir
ævarandi hlutleysi í ófriði. En
meðal attnars af þeirri ástæðu ætti
oss að vera það vorkunnarminna
en öðrum þjóðum að reka þjóðar-
búskapinn skuldlítið eða skuldlaust.
Eins og nú er ástatt eru þó ríkis-
skuldir fslands við útlönd hlut-
fallslega meiri en sumra þeirra
ríkja. sem veria verða árlega mörg-
um tugum miljóna til hermála.
Samkvæmt skýrslu þeirri, sem
birtist í j úlíhefti Hagtíðindanna
1927, nárnu fastar og lausar skuld-
ir íslenzka ríkisins, bæjarfélaga i og
einstakra manna og fyrirtækja í
landinu, við útlönd 31. desember
1026 fjörutíu og fjórum miljónum,
níu hundruð sjötíu og fiórum þús-
undum íslenzkra króna. Ekki er
þessi upphæð nákvæm, og telur
hagstofan. að hún muni vera og
lág. Með því að skifta unnhæð-
inni jafnt niður á alla landsmenn
koma um kr. 450.00 á hvert manns-
barn í landinu. En auðvitað er
ekki nema nokkur hluti af þessu fé
ríkisskuldir. í því eru einnig fald-
ar skuldir banka, kaupmanna,
kaupfélaga, útgerðarmanna og bæj-
arfélaga við útlönd. Ríkið eða
þegnarnir bera ekki ábyrgð á öðru
en opinberu skuldunum — ekki
beinlínis. En að vísu koma afleið-
ingarnar niður á þjóðinni t heild,
geti einstaklingarnir ekki staðið í
skilum við hina erlendu lánar-
drottna. Þær koma fram í því, að
traustið á landinu og þjóðinni
rýrnar. Hún fær orð á sig erlend-
is fyrir óreiðu i fjármálum, og
lánstraustið hverfur. Vér skulum
hér ekki gera ráð fyrir neinu sltlcu,
enda er það vonandi ástæðulaust.
En hverjar eru þá sjálfar ríkis-
skuldirnar? Með ríkisskuldum
eigum vér þá aðeins við lán ríkis-
sjóðs, en sleppum öllum lánum
ibæjarfélaga, einstakra manna og
fyrirtækja, jafnvel þótt ríkið sé í
ábyrgð fyrir sumum slíkum lánum
bæjarfélaga og fyrirtækja við út-
lönd, og beri því skylda til að greiða
])au, ef illa fer. Það er því öðru
nær en öll þessi síðarnefndu lán
séu ríkinu óviðkomandi, þótt þeirra
sé ekki nánar getið hér.
Til þess að komast að raun um,
hverjar ríkisskuldirnar sjálfar séu,
leitum vér í þá heimildina, sem
vafalaust er áreiðanlegust, en það
r Landsreikningurinn 1925. Hann
’æfur verið endurskoðaður af hin-
um þingkosnu endurskoðendum og
samþyktur af alþingi 1927 sem
réttur. Samkvæmt honum eru
ríkisskuldir íslands 31. des. 1925,
kr. 11,832,141,37. Eftir því sem
bezt verður séð af reikningnum
eru kr. 3,768,257.46 af skuld þess-
ari fólgnar í innlendum lánum rík-
isins en kr. 8,063,883 91 eru skuld-
ir við útlönd (England kr. 2,676,-
896.00 og við Dani kr. 5.386,987.-
91). Sama ár greiðir rikið í vexti
af lánum yfir eina miljón króna
eða um sextánda hlutann af öllum
tekjum rikisins það ár. Ef skuld-
um íslenzka rikisins við útlönd 31.
des. 1925 er deilt- jafnt niður á
landsmenn, koma rúmar 80. kr. á
hvert mannsbarn i llandinu. Til
áamanburðar er fróðlegt að athuga
ríkisskuldir Sviþióðar við útlönd.
31. des. 1925 námu þær kr. 330.-
100.000.00 Sviþióð er land með
meir en ^ex miljónir íbúa. Þar
koma þvi ekki nema nál. 57 kr. á
hvert mannsbarn, ef þessum 339
mi.ljónum og too þúsundum króna
er deilt niður á landsmenn. Sum
riki skulda útlöndum alls ekki
neitt. Svo er um Bandarikin * i
Norður-Ameriku og Svissland
Svissneska rikið skuldaði allmikið
fé i Ameriku, en í árslok 1925
hafði það innlevst bessa skuld með
bví að taka ný innlend lán. og
brevtti þanttig öllum ríkisskuldun-
um i innanlandsskuldir. Likt hafa
Hollendingar farið að. Árið 1922
tóku þeir 150 miljónir flórinur að
láni erlendis, og árið 1924 tóku
þeir aftur lán erlendis. sent nam
40 miljónum dollara. En báðttm
jtessutn stórlánum hafa ]>eir nú að
mestu brevtt í innlend lán, svo að
skuldir hollenska ríkisins við út-
lönd eru nú þvi sem næst engar.
Yfirleitt virðist stefna sú. .að rik-
isskuldirnar séu sem mest innlénd-
ar, en ekki við útlönd. í flestunt
ríkjum Evrópu eru itmlendu skttld-
I irnar mun meiri en skuldirnar við
útlönd. Undantekning er Finn-
land. Ríkisskuldir Einnlands voru
31. des. 1925: 2,475,3000.000 finsk
mörk, sem skiftust þannig niður:
Skuldir við útlönd: 1.714,000,000
mörk; innlendar skuldir: 761.300,-
000 ntörk. önnur undantekning er
ísland og þar er munurinn mjög
líkur og hjá Finnum. Skuldir
Finnlands við útlönd eru rúmlega
2l/rj sinnum meiri en innanlands-
skuldirnar, en islenzka ríkið skuld-
ar útlendingum rúmlega 2,1 sinn-
um meira en innlendum lánar-
drottnum.
Samkvæmt því, setn að framan
er sagt. eru skuldir fslands erlend-
is hlutfallslega meiri en sumra
annara ríkja. sem margfalt eldri
eru og hafa öldum sarnan haft
byrðir að bera, sem vér höfutn
aldrei haft neitt af að segja. En
ef vér tökum bæði hinar útlendu og
ittnlendu ríkisskuldir fslands og
berurn þær saman við ríkisskuldir
annara ríkja í heild, verður útkom-
an nokkur önnur og hagstæðari
fyrir oss. Þá verður ísland með
lægstar ríkisskttldir allra Norður-
landaríkjanna fimm. Næst er
Finnland, þá Svíþjóð, þar næst
Danmörk og skuldugastur er Nor-
egur. Þrátt fyrir allar hinar
ntörgu lántökur eru ríkissrkuldir ís-
lands ekki ennþá orðnar hlutfalls-
lega eins háar og hinna ríkjanna á
Norð'urlöndum, og veírða vonandi
aldrei. En aftur á móti er það at-
hyglisvert, hve skuldir íslands við
útlönd eru mikið hærri en hinar
innlendu skuldir þess.
Eins og að líkindum lætur verða
skiftar skoðanir um það, hve ráð-
legt sé fyrir fátæka og fámenna
þjóð eins og íslendinga að taka
mikil lán erlendis. Mest er undir
því komið, til hvers lánin eru not-
uð, hvort þau ganga til þarflegra
fyrirtækja eða eru aðeins eyðslu-
lán, sem ríkið hefur tekið undan-
farið, verður vonandi hægt að
segja með sanni, að þau hafi geng-
ið til nauðsynlegra og þarflegra
fyrirtækja, og ef til vill hefðu
framfarirnar hér á landi iSÍðustu
árin ekki verið eins miklar, ef þessi
lán hefðu aldrei verið tekin. En
þaðvirðist liggja í augum uppi, að
meiri gætni þurfi að viðhafa um
erlendis lántökur smáríkja en hinna
fjölmennu ag auðugu. Möguleik-
arnir eru fleiri hjá stórþjóðinni til
bess að hamla eegn áhrifum skulda-
bvrðanna en hiá kotþjóð með fjör-
litlu viðskiftalifi og fábreyttum at-
vinnuvegum. Eitt misstigið spor í
fjármálum getur komið smáþjóð-
inni á kaldan klaka, þótt samskon-
ar spor hjá stórþjóðinni verði
henni aðeins stundarhnekkir. Væri
ekki ráð fyrir oss að athuga að-
ferðir Svisslendinga og Hollend-
inga, reyna að losa oss sem mest
viö erlendu lánin, breyta þeim í
innlend lán? Sparsjóðsfé í ís-
lenzkum bönkum nemur nú meir
en 30 miljónum króna. Næsta ó-
líklegt er, að landsmönnum þætti
verra að eiga fé sitt inni hjá ríkinu
í bönkunum, einkum ef rikið
greiddi eitthvað hærri vexti en
bankarnir. Og leiðin þessi virðist
hep])ilegri fyrir hag almennings og
velferð ríkisins, ef hægt er að koma
henni við, en hin leiðin, að greiða
úrlega út úr landinu svro hundruð-
um þúsunda skiftir í væxti af út-
lendum lánum ríkisins. Að vísu er
það kunnugt, að trúin á skuldirnar
er orðin rik hjá sumum meðlimum
þjóðfélagsins, og að þeir eru til,
sem ekki eru ýkjahræddir við að
taka ný og ný lán erlendis á ábyrgð
þessara fáu sálna, sem mynda kon-
ungsríkið ísland. En þeir menn
eru fáir, sem betur fer. Flestir
keppa að því að reyna að standa í
skilum og skulda sem minst, helst
ekkert. Svo er það um einstakl-
ingana, og vilji flestra landsmanna
mun vera sá, að svo sé það einnig
um hið unga íslenzka ríki. En það
er ekki tilgangurinn hér að rök-
ræða, hvernig slíkt megi verða Til-
gangurinn var aðeins sá að greina
frá í sem styztu máli. hve miklu
ríkisskuldirnar nemi. Þjóðin þarf
að Vita hvað hún skuldar. því henn-
ar er að greiða. Hún þarf að
muna, að það er sambandsþjóðin,
Danir, sem nú eiga stærsta hönk-
ina upp á bakið á íslendingum.
Nz-. 5.
—'Eimreiðin.
er hann hefði ekki herbergi ti'l að
bjóða þeim inn í? Sama á við
Dýraverndunarfélagið. Það varð
strax í vandræðum, af því það
vantaði hús. Það er í vandræð-
um enn og út úr vandræðum lagði
það í að ta'ka stórt peningalán til
að geta slegið eign sinni á Tung-
una, sem kostaði 40 þús. krónur,
því að ekki átti félagið einn eyri
til. '— Nú var ekki nóg, þótt búið
væri að ná í þessa eign, það
þurfti að breyta og endurbæta
fenaðarhúsið, því það var í megn-
asta ólagi,, laga t. d. alla bása,
steypa gólf, þilja alstaðar á milli
og enn fremur setja í lúkur og
stalla.
Eg vil ekki lengja tímann með
þvi að tína alt upp er gera þurfti,
en fljótt yfir að fara, þá eru það
nm 20 þús. kr., sem búið er að
kosta til viðgerðarinnar á fénað-
arhúsinu, fyrir utan vatn og raf-
magn, sem búið er að leiða þar
inn. Það er þó fjarri því, að alt
sé fullkomið, þó þetta, sem eg nú
hefi talið upp, sé um garð gengið,
því að nú eru t. d. þökin á hús-
unum, auk margs annars, er nauð-
synlega þyrftu viðgerðar við.
Svona gengur það kol'l af kolli,
þegar farið er að klastra við gam-
alt og ónýtt. Allur þessi mikli
kostnaður og fyrirhöfn á rót sína \
ULUST
® ^ TT«* n
að rekja til hinnar sorglegu stað-
Hallgrímur Pétursson.
Þú ríki andans reistir fagra borg,
þá raunatárin brendu þína
hvanna.
öldur Hvalfjörðs yrkja kvæði
um sorg,
á ægisandinn skrifa þína harma.
Þú gafst ei upp, þó gatan væri
þröúg,
þú gjörvalt lífið skýrum dráttum
málár.
Hinn aldni fjörður vmur dánar
söng
og endui'kallar stunur þinnar
sálar.
R. J. Davíðsson.
reyndar, að samtök hefir vantað j
meðal landsmanna til að styrkia I
Dýraverndunarfélagið. Hvernig
getur staðið á því tómlæti, sem j
almenningur hefir sýnt dýravernd-l
Get-
Fyriirlestur.
haldinn á íþróttamóti við Þjórsár-
tún þann 1. júlí 1927.
Fyrst eg er nú hingað komin íj
dag og hefi fengið leyfi til að
tala í nokkrar mínútur, og með
því líka eg býst við því, að þetta
verði í síðasta sinn, að eg verði* 1 * * * * * *
á skemtisamkomu hér við Þjórsár-!
tún, langar mig að nota tækifær- j
ið og tala nokkur orð fyrir áhuga-
máli minu, dýraverndunarmálefn-1
inu.
Eg hefi verið hér þrisvar sinn-
um áður og reynt, meira af vilja
en mætti, að tala máli Dýravernd-
unarfélagsins okkar, en þó eink-
um byggingarsjóðs þess, sem mér
befir verið sérstaklega falið að
gangast fyrir samskotum í. í
fyrsta sinn, er eg talaði hér,
lýsti eg aðallega starfsviði og til-
gangi félagsins, en mæltist einn-
ig til, að Ungmennafélögin tæki
dýraverndunarmálefnið á dag-
skrá sína. Má vel vera, að þau
hafi lagt því eitthvert lið, þótt
ekki hafi eg orðið þess vör enn þá.
Annað sinn, er eg var hér, tal-
aði eg máli byggingarsjóðsins. Þá
var í ráði, að við héldum hluta-
veltu honum til eflingar og mælt-
ist eg þess vegna til við tilheyr-
endur mina að þeir sendu okkur
muni á hlutaveltuna. Beindi eg
þá máli mínu sérstaklega til kven-
fólksins, en árangurinn varð sá’
sami og í fyrra sinnið, enginn
bafði lepp í skó eða vetling á
hönd, ullarlagð, eða yfir höfuð
neitt, er missast mætti til að
senda okkur.
í þriðja sinni talaði ‘ég ennþá
máli sjóðsins og fór bónarvæg að
áheyrendum mínum um að styrkja
hann með líilsháttar fjárframlagi,
og er mér ljúft að geta þess, að
nokkrir úr hópnum urðu við bón
minni. Persónulega þekti eg gef-
endurna ekki, en guð þkkir þá.
Eg er nú búin að starfa í 13 ár
f.yrir málefni þetta og hjartanleg-
asta áhugamál mitt er það, að
bygging Dýraverndunarfélagsins
komist í framkvæmd, því að ó-
inögulegt er að félagið geti starf-
að svo að komi að fullum notum,
á meðan það ekki hefir húsnæði
nógu stórt og með meiri þægind-
um en nú er. Hvernig ætti lækn-
irinn að taka á móti sjúklingum,
ef hann hefði ekki viðunandi
húsakynni til að taka á móti þeim
í, og hvernig ætti veitingamaður-
inn að taka á móti gestum sínum,
unarmálefninu hér á landi?
ur máske nokkrum dottið í hug,
að við, sem tekið höfum okkur
fram um að standa fyrir þessu
rauðsynjamálefni, getum af eig-
in ramleik komið upp slíkri bygg-
ingu sem þeirri, er Dýraverndun-
arfélagið verður að koma upp til
ag geta framfylgt sinni góðu köll-
un og starfað ósleitulega í þarfir
dýranna? Nei, það getur varla
verið að nokkrum detti slíkt í hug.
Mér verður á að hugsa, að al-
ir enningur geri sér ekki grein fyr-
ir hve mikilsvert það er, að þetta
komist í framkvæmd. Það er ekki
ætlast til, að miðlað sé miklu af
litlum efnum. Það voru ekki
nenta tveir smápeningar, sem fá-
tæka ekkjan lagði í fjárhirzlu
musterisins, en frelsarinn sjálfur,
sem stóð í musterinu þegar það
skeði, hefði* vissulega ekki fært
það í dæmisögu, hefði hann ekki
ætlað okkur að breyta eftir þvi.
Það er líka eftirbreytnisverð
dæmisagan um ríka manninn, sem
Jesús talar um í Lúkasarguðspj.
16. kap. Hann varð of seinn til
að gera gott af þeim auðæfum,
sem drottinn hafði lánað honum.
Hann slepti síðasta tækifærinu,
er Lazarus skreið heim að húsdyr-
um hans, aðfram kominn af lang-
varandi svengd. Mátturinn var
alveg að þverra, svo að hann gat
ekki nemft skriðið og þess vegna
allur í sárum. Hann lá við dyra-
tröppur ríka mannsins þegar hann
kom heim, en hann leit með fyrir-
litningaraugum á aumingjann þar
sem hann lá og rendi upp á hann
biðjandi vonaraugum.— Það veit
enginn, hvenær síðasta tækifærið
býðst.
Nú vil eg gefa ykkur öllum tæki-
færi, sem eg veit fyrir víst, aði
guði er þóknanlegt að þið sinnið. j
Gefið fáeina aura í byggingarsjóð.
Dýraverndunarfélags fslands; með‘
því eflið þið stórkostlegt velferð-j
Hafið þér heyrt
um Peps? Pepstöfl-
urnar eru búnar til sam-
kvæ’mt strangvísindalegum
reglum og skulu notaðar við
hósta, kvefi, hálssárindum og
brjóstþyngslum.
Peps innihalda viss lækning-
arefni, sem leysast upp á tung-
unni og verða að gufu, er þrýst-
ir sér út í lungnapípurnar.
Gufa þessi mýkir og græðir hina
sjúku parta svo að segja á svip-
stundu.
Þegar engin önnur efni eiga
aðgang að lungnapípunum} þá
þrýstir gufa þessi sér\ viðstöðu-
laust út í ’hvern einasta af-
kirna og læknar tafarlaust. —
Ókeypis reynsla. Klippið
þessa auglýsingu úr blaðinu
sendið hana með pósti, ásamt
1 c. frímerki, til Peps Co., Tor-
onto. Munum vér þá senda yð-
ur ókeypis reynsluskerf. Fæst
hjá öllum lyfsölum og í búðum
50 cent askjan.
?€|>S
armál. Sleppið nú ekki tækifær-
ir.u, mbnið að verða ekki of sein,
eins og ríki maðurinn. Eg hefi
oft tekið við litlu og það með
þakklátum hug.
Af því eg veit, að hér er saman
komið fólk úr mörgum sóknum
eða prestaköllum, kemur mér til
hugar, að fara þess á leit, að söfn-
uðirnir vildu halda með sér fundi
við kirkjurnar og eins þegar menn
hittast annars staðar, að þeir
vildu ræða um lítilsháttar sam-
skot í umræddan sjóð. Eg vona,
að ekki þyrfti að sjá mikið á eign-
um fólks, þótt kæmi t. d. 50 aur. til
1. kr. frá hverju heimili, en það
mundi aftur á móti muna sjóð-
inn miklu. Margt smátt gerir eitt
stórt. Okkur, sem barist höfum
fyrir þessu, hefir enn ekki tekist
að safna nema 14,000 kr., en þar
eð áætlað er, að 100— 150 þús. kr.
þurfi til byggingarinnar, veitir
ekki af, að eitthvað bætist við.
Það er innileg von mín, að þessu,
sem eg þer fram í dag, verði sint.
Áreiðanllegt er það, að sá er sæll,
sem er brautryðjandi til bless-
unar..
Formaður og ritari byggingar-
sjóðs Dýraverndunarfélags Is-
lands.,
Ingunn Einarsdóttir,
Bjarmalandi, v. Reykjavík.
Naut ei nætur-hvíldar
Mr.. August Mitchell, McMillan,
Mich., segir: “Eg naut ekki hvild-
ar, þegar eg fór í rúmið. Eftir að
hafa unnið allan daginn, gat eg
naumast gengið heim. Eg varð
máttlaus í fótunum og hafði bein-
verki og eg var ósköp magur. —
Nuga-Tone herír gert mig að nýj-
um manni og nú finst mér eg vera
ungur aftur og nú gengur ekkert
að mér.”
Reyndu þetta alþjóðar heilsulyf
ef þú ert veiklaður og magur og
máttfarinn eða hefir nýrna- eða
blöðrusjúkdóma Nuga-To,ne veit-
ir einnig endurnærandi svefn,
bætir matarlystina og meltinguna
og styrkir allan líkamann. Það
fæst hjá lyfsalanum og það verð-
ur að gera þér gagn, eða það kost-
ar þig ekkert að öðrum kosti. Les-
ið tyrgginguna, sem prentuð er á
pakkana.
HUGSIÐ
NO
UM
tHKHKHKKKHKHKHKHKHKHKHKHKH>l>lKH>IKH>lKH>iKHKHK«i
0 T S Œ Ð I
Gerið yt5ur nö greTn fyrir, hvaC þér þurfiC fyrir áriC. Pantið nú
meðan ekki er of mikið að gera til að afgreiða yður strax. Hugsið um
gæði útsæðisins og munið að McKenzie útsæði er gott. Ef þér þurfið
hafra til útsæðis, þá höfum vér besta hafra, sem til eru í landinu á öllu
verði.
X McKENZIE
CATALOGUE
Pallegri og betri en nokkru sinni fyr. Hinn nýi fallegl McKenzie
verðlisti er tilbúinn . Nýjar tegundir nýjar leiðbeiningar viðvikjandl
gárðrækt. ómissandi fyrir bændur og garðyrkjumenn. Verðið með
heim fyrstu að fá einn þeirra—skrifið og biðjið um hann strax T dag.
Færið yður I nyt> 32 á.ra reynslu vora í Vestur-Canada viðvtkjandi út-
sæði. Verðlisti vor fæst fyrir ekkert.
Stœrsta útsœöishús i Vestur-Canada.
A. E. McKENZIE CO., LTD.
BRANDON, MOOSE JAW, SASKATOON, EDMONTON, CALGARY.
{h>iKh>i>iKKh>iKh«h>i>iKh>i>í>i>i>iKhKKh>i>i>i>i>j>iKHKh>^^
BEZTU
TEGUNDIR
SENT TIL ÞÍN I DAG
KOLA
AF ÖLLUM
SORTUM
Ef þér þarfnist, getum vér sent pöntun yðar sama klukkutím-
ann og vér fáum hana.
DRUMHELLER — SAUNDERS CREEK
— SOURIS — FOOTHILLS — McLEOD RIVER —
KOPPERS COKE — POCAHONTAS
Kaupið Kolin Ykkar frá Gömlum, Áreiðanlegum Viðskifta-
mönnum. — Tuttugu og Fimm Ára Þekking Um ÞaÖ,
Hvernig Eigi að Senda Ykkur Hina Réttu
Sort af Kolum
D.D.W00D & S0NS
Tals.: 87 308 ROSS and ARLINGTON STREETS