Lögberg - 24.05.1928, Síða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 24. MAí 1928.
Bls. 3.
Hefir losnað við þennan
óþolandi bakverk.
Ástæðan Til Þess að James Reid
Hrósar Dodd’s Kidney Pills.
Maður í Alberta Bilaði í Nýrunum
Við að Lyfta Þungum Staur,
En Læknaðist Af Dodd’s
Kidney Pills.
Styal, Aita., 21. maí (Einka-
skeyti) —
Einn af mörgum þar um slóðir,
sem aldrei þreytast á að hrósa
Dodd’s Kidney Pills, er Mr. James
Reid, sem þar er góðkunnur mað-
ur. Hann segir: “Eg bilaðist í
nýrunum við að lyfta staur, um
vetrartíma, fyrir eitthvað 15 ár-
Um. Eg reyndi Dodd’s Kidney
Pills og þær reyndust mér vel.
Eg brúkaði úr eitthvað sex öskj-
um í það sinn og bakið varð smátt
og smátt jafngott. Eg get mælt
með þeim við alla, sem er ilt í
bakinu.”
Það þarf alt af líta eftir nýrun-
um, ef góð heilsa á að haldast við
ov hættulegum sjúkdómum að vera
afstýrt. Nýrun eru mest áríð-
andi liffæri líkamans. Þau hreinsa
Öll óholl efni úr blóðinu, sem
valda sjúkdómum. Þegar þau eru
veik, þá stíflast blóðrásin og mað-
Urinn veikist.
Dodd’s Kidney Pills fást alstað-
a rhjá lyfsölum og hjá The Dodds
Medicine Co., Ltd., Toronto 2,
•Ont.
ANNAR ÚTBREIÐSLUFUNDUR
Goodtemlara, 8. apríl 1928.
Þessi fundur tókst mjög vel að
öllu leyti. Hafði verið kosin sex
manna nefnd til að' sjá um fund-
inn, og var hún vel valin. For-
maður nefndarinnar var B. M.
Long, sem hefir starfað að bind-
indismálum í 40 ár, og hefir ætíð
feynst einhvar hinn einlægasti
og þrekmesti bindindisfrömuður,
sem bindindismenn hafa haft á að
skipa. Ritari nefndarinnar var
Einar Haralds, og gerðu þeir tveir
formaður og ritari nefndarinnar,
mest það, sem þurfti að gera í
sambandi við nefndar starfið.
Fundurinn var betur sóttur, en
nokkur annar útbreiðslufundur,
sem eg hefi verið á, og leið okkur
sem unnum bindindismálinu, mjög
vel að sjá svo marga, sem virtist
líða vel undir ræðum þeim, sem
fluttar voru og öðru því, er til
skemtana var á fundinum.
Formaður nefndarinnar, B. M.
Long, stýrði fundinum og bauð
menn velkomna. Hann gat þes ,
að hann ætlaði ekki að halda neina
inngagsræðu', en byrja strax á
skemtiskránni.
Fyrstur var kallaður fram
Thor Johnson, sem ætíð er reiðu-
búinn að syngja fyrir okkur bind-
indismenri, og syngur svo ágæt-
lega, ókeypis.
Þar næst talaði séra Rúnólfur
Mlarteinsson—annar þeirra ræðu-
manna, sem valdir höfðu verið
fyrir fundinn. Hann kvað rétt og
nauðsynlegt, að gera sér grein
fyrir, hvar við stöndum í bindind-
ismálunum, á hvaða sviði sem
væri. Ræðumaður benti á, að
þrátt fyrir drykkjuskap, sem átt
hefði sér stað síðan á dögum Nóa,
hefðu þó ýmsir, svo sem Grikkir
og Gyðingar, bent á siðspillandi
°g eyðileggjandi áhrif vínnautn-
arinnar.
f sambandi við vínbann, kvað
hann á ýmsu hafa gengið á liðna
tímanum; til dæmis hefði vínbann
um eitt tímabil náð yfir svo sem
«inn af hundraði íbúa ríkisins;
þar næst yfir fjörutíu og fimm
af hundraði, og nú sem stæði
næði það yfir svo sem sjö af
hundraði. Hann kvað því helzt
líta svo út, sem margir álitu holl-
ast að drekka sem mest og væri
sjálfsagt að athuga slíkt og eðli-
legt væri fyrir hvern og einn að
fylgja því, sem honum þætti rétt-
ast.
Ræðumaður kvaðst ekki ætla að
dæma um áhrif áfengis og vín-
banns sjálfur, heldur tilfæra það
sem sér mikið merkari maður
segði um víndrykkju og bann.
Þennan mann kvað hann vera Sir
Wilfrid Grenfell, hinn fræga líkn-
arstarfsfrömuð frá Labrador, sem
hefði á liðinni tíð ferðast um öll
ríki Bandaríkjanna fyrir sunnan
línuna, og kynt sér málið. Kvað
han mjög mikið tillit tekið til
þessa manns, og myndi óhætt að
treysta hans dómi.
Sir Wilfrid Grenfell segist svo
frá, að engin þjóðfélagshreyfing
í Bandaríkjunum, sem átt hafi sér
stað á liðinni tíð og miðað til góðs,
kæmist 4 hálfkvisti áhrifalega við
hin blessunarríku áhrif vínbanns-
ins á meðal allra stétta yfirleitt.
Að hann hafi helzt ekki mætt
drukknum manni í Bandaríkjunum
síðan bannið komst á. Að hann
hafi séð ógurlegar myndir áhrifa
ölæðist, svo \ sem: sex menn
drepa konur sínar í ölæðinu, með
meiru.
iSéra Rúnólfur Marteinsson end-
aði ræðu sína með því, að benda
mönnum á, að hér í umhverfi
voru, hefðum vér komið á stjórn-
ar vínsölu samkvæmt vilja meiri
hluta manna, og yrðum vér því
að hlýða ákveðnum lögum í því
efni skilmálalaust, meðan þar
að lútandi lög væru í gildi.
Séra Rúnólfur er einlægur bind-
indismaður og djarfur bindindis-
frömuður. Hefir hann um fleiri
| tugi ára starfað óselitilega að
Good Templara málum, skipað
hæstu stöður í því félagi, látið
mikið til sín taka löngum, þar sem
greiða þurfti götu, og mun hann
ekki skilja við málið, hvað sem á
móti blæs.
Þá voru kallaðar fram tvær
l-'tlar stúlkur, mjög ungar, sem
spiluðu “duette”.. Okkur var það
nýtt að sjá svona litlar stúlkur
skemta í slíku fjölmenni, og þótti
okkur gaman að. — Forsetinn
hiafði orð á því, hvað stúlkurnar
væru ungar og kvað myndi sann-
ast á þeim í framtíðinni málshátt-
urinn: “Það sem ungur nemur,
gamall temur.”
Þar næst talaði séra Guðmund-
ur Árnason, annar þeirra manna,
sem valinn hafði verið sem ræðu-
maður á fundinum. Byrjaði hann
ræðu sína með því að geta þess,
að fyrir svo sem 20 til 30 árum
hefði það verið móðins að ganga í
“bindindi”. Hefði sumum þótt
nóg um og kveðið svo að orði:
að “nú vildu allir strákar og stelp-
ur ganga í bindindi.” Ræðumað-
ur kvað þetta algerlega breytt,
því nú væri móðurinn í hinum
svo kölluðu “parties” og víðar, að
drekka áfengi, og þætti “fínt”.
Þess vegna kvað hann þá skoðun
ríkjandi, að það væri fremur nið-
urlæging en nokkuð annað, að
ganga í Good Templara félögin.
Hann kvað bindindismenn í lið-
inni tíð hafa lagt áherzlu á: ('l)
Að koma mönnum í bindindisfé-
Það er tvent að muna
Viðkomandi
THE DOMINION BUSINESS COLLEGE
-----------1------------------
Dominlon Businesa College
hefir öll skilyröi til þess aB
veita fullkomna uppfrœBslu í
verzlunarsökum, og þar nýtur
hver nemandi persönulegrar
tilsagnar.
2Verzlunarmenn I Winnipeg
kjósa fremur nemendur frá
Winnipeg Business College en
aSra, sökum þess aB þeir vita
aB "Dominlon-stúdentar" eru
ábyggilegir og vel aB sér.
lagsskap; (2) að útmála, hvað
væri ljótt að drekka; (3) að sýna
fram á eyðilegginguna í ýmsum
myndum; (4) að fræða menn vís-
indalega um það, hvað áfengi í
raun og veru væri; (5) um það,
hvernig ætti með lögum að út-
rýma áfengi.
Hann kvað bindindismálunum
miða fremur seint áfram, og þætti
sér líklegt, að gott væri að breyta
dálítið til með fræðsluaðferðina,
til dæmis leggja áherzlu á að
fræða menn vísindalega um mál-
ið, hafa áhrif á meðvitundina og
sannfæra menn um (1) að áfengi
byggi hvorki upp líkama manns
eða sál á nokkurn hátt; (2) að það
sé þess vegna heimskulegt að
neyta áfengis; (3) að það sé fjár-
hagslega og siðferðislega hróplega
rangt, gagnvart sér og sínum, að
neyta mikils áfengis.
Ræðumaður kvað vínbann hafa
reynst mjög misjafnlega; en ekki
væri enn hægt að draga alger-
lega ábyggilegar ályktanir, þar
sem bindindismálið væri í raun
og veru að eins 40 til 50 ára gam-
alt. Hann benti á, að í Banda-
ríkjunum væri bann lögboðið,
þannig, að slík lög væru í raun og
veru partur af stjórnarskrá Ban-
damanna, og væri því ekki líklegt
að bannið yrð' úr lögum numið
fyrir sunnan línuna og myndi
mönnum því gefast kostur á að
sjá 1 framtíðinni, hin raunveru-
legu áhrif algerðra bannlaga.
Séra Guðmundur vék þá aftur
að því, að fræðslan í bindindis-
málum yrði að öllum líkindum
haldbezt og affarasælust og myndi
fræðslan, ef hún væri af réttri
tegund, ef til vill bjarga málinu
með tímanum. Hann kvaðst ekki
viss um, að bann — lagabann ■—
myndi nokkurn tíma útrýma á-
fengi; en tækifærið gæfist að
fylgja nákvæmlega því, sem væri
að gerast í bannlöndum öllum.
Séra Guðmundur er einlægur
bindindismaður og áhrifamaður í
>eim efnum. Hefir hann starfað
að bindindismálum í 30 til 40 ár,
og látið til sín taka í ræðu og riti.
Hann er fjölhæfur maður og fróð-
ur, og eru ræður hans löngum
skýrar og áhrifadrjúgar.
Þá sungu þau Miss Bjarnason,
Miss Sigurjónsson, Mr. Melsted
og Mr. Sigurjónsson, “quartette”,
og var okkur nýtt að fá slíkt ó-
keypis, og þótti gott að hlusta á
hinar samstiltu raddir.
Þá las Stefán Einarsson upp
sýnishorn af blaði stúkunnar
Heklu. Las hann fyrst ritgerð
nokkra, sem fjállaði um áhrif á-
fengis á þrjár deildir “cella” í
mannsheilanum. Var ritgerðin
vísindalegs efnis og fróðleg mjög
og góð í alla staði. Hún sýndi
ljóslega að áfengið ræðst fyrst á
þær frumur í heila mannsins,
sem fíngerðastar eru, þroskast
síðast og hafa á hendi stjórn allra
hreyfinga líkama mansins og sál-
ar. — Þá las Mr. Einarson upp
skrítlur nokkrar og voru þær svo
vel valdar og hlægilegar, að sum-
ir sem á hlýddu tárfeldu af
hlátri.
Þökk sé öllum þeim, sem skemtu
og gestum líka.
Jóhannes Eiríksson.
Páll Jóhannsson
frá Merkigili í Skagafirði.
ÆFIMINNING.
þá er altaf tækifæri að fá egg til út- son á Bergstöðum og Þorsteinn
ungunar send að, frá vel þektum ! Gíslason í Steinnesi. Þá flutti og
mönnum og félögum, sem stunda
haensnarækt, og hafa aðeins það
'bezta að* ibjóða. Egg ungast út
sæmilega vel, þótt þau séu send
nokkur hundruð mílur. Unga ný-
komna úr eggjunum, má einnig
flytja langar leiðir, og reynist vel.
Þá söng Miss Margrét Back-
man “solo”. Hún syngur mjög
vel og er á meðal þeirra, sem ætíð
eru reiðubúnir að skemta ókeypis
með yfirburðum sínum.
Að endingu talaði forsetinn, Mr,
B. M. Long. Kvaðst hann hafa
verið Good Templari í 40 ár, og
hefði það aldrei borið sig upp á
sker, jafnvel ekki á meðal kunn-
ingja sinna, sem væru sjálfir
drykkjumenn eða tækju sér glas
einstaka sinnum að minsta kosti.
Hann kvað reynslu fyrir því, að
bezt væri að taka aldrei fyrsta
glasið, einmitt til þess að forðast
ofnautn; því, ef maður tæki fyrsta
glasið, væri svo hætt við að mað-
ur tæki annað, þriðja, fjórða og
fimta glas, og svo meira. Hann
sagði, að við bindindismenn, ósk-
uðum að fá fleiri menn og konur
til þess að vera með okkur, ganga
í stúkurnar. Hann kvað það mjög
skemtilegt fyrir foreldra að
ganga svo til hinztu hvíldar, að
þau væru sér þess meðvitandi, að
hafa stuðlað að þv,í að börnin,
hin komandi kynslóð, hefði ekki
leiðst út á braut áfengisnautnar.
Porsetinn hvatti því ungt fólk til
þess að “taka aldrei fyrsta staup-
ið,” heldur koma í bindindisfé-
lögin, og hann hvatti foreldra til
þess að sjá um, að börn þeirra
eldust upp við bindindi og bezt
væri að allir skipuðu sér undir
merki Good Templara.
Fundur þessi var mjðg ánægju-
leguri fyrir bindindismenn og
gesti.
Föstudaginn 22. júlí síðastlið-
inn, árla morguns, andaðist Páll
Jóhannssoi^, bóndi að Edfield,
Sask., á almenna sítalanum í Win-
nieg. Nýrnaveiki varð honum að
bana, (en eigi krabbamein,
og ranglega er skýrt frá í Heims-
kringlu 11. jan. þ. á,, vegna mis-
minnis undirritaðs).
Hann fæddist 27. október árið
1859, að Merkigili í Austurdal í
Skagafjarðarsýslu. Faðir hans
hét Jóhann Jónsson, bóndi að
Merkigili, en móðir hans Guðrún,
sunnlenzk að ætt. Er þeim, er
þetta ritar, ókunnugt um föður-
nafn hennar.
iNíu ára gamall fluttist Páll með
móður sinni suður á land, og vann
síðan fyrir sér á ýmsum stöðum
þar syðra. Árið 1887 fluttist hann
til Vesturheims og settist að ná-
lægt Hallson, N. D. Ári síðár
kvæntist hann Guðbjörgu Jóhanns-
dóttur, frá Breið í Tungusveit.
Dvijldu þau í Hallson 7 ár, og eft-
ir það 5 ár í Swan River bygð.
Fyrir nálægt 20 árum settust þau
að í Foam Lake bygð þar sem nú
er kallað Edfield, og bjuggu þar
alla æfi síðan.
Húsfreyja Guðbjörg lézt siðast-
liðinn 19. febrúar. Hafði samlíf
þeirra hjóna löngum verið fyrir-
myndar ástúðlegt. Páll var aldrei
mjög heilsuhraustur maður. En
eftir missi konu sinnar var eins
og honum hjrrfi alt þrek og löng-
un til að lifa, og beið hann burt-
fararinnar að eins fáa mánuði.
Tíu börn þeirra hjóna eru öll á
\ífk nema hið fyrsta, sonur, Jó-
hann að nafni, er dó á 3. ári. Hin
eru: Páll, járnsmiður að Mozart,
kvæntur Björgu Bergþórsdóttur
Björnssonar, er vestur fluttist frá
Borgarfirði austur; þá Jóhann
Vilhjálmur, heima; þá Kristinn
ólafur, búsettur að Mozart, og
kvæntur önnu Jónsdóttur Jó-
hannssonar, er vestur fluttist frá
Þórshöfn í Norður-Þingeyjars.;
þá Árni Thieodór, bóndi að Kuroki,
kvæntur Eupjhemiu W?atson; þá
Guðrún, gift A. Gravelle, búsett
að Debden; þá Guðbjörg Sigur-
laug, gift A. Klebeck, búsett að
Edfield; þá Oddný Ingibjörg, gift
Óskari Guðmundssyni í Debden;
þá Helga, gift O. Klebeck, búsett
að Foam Lake; þá Pálína Marfa,
heima.
Páll heitinn var maður fremur
lágur vexti, en samsvaraði sér
vel og hafði verið fríður sýnum.
Hann mun verið hafa í alla staði
einlægur og góður maður, og vel
greindur. — Hann hafði yndi af
lestri, og var frjálslyndur í skoð-
unum. Þótt kynningin yrði ekki
mikil, varð sá er þetta ritar, þess
var, að Páll átti fagra útsýn ör-
yggis og trausts út yfir gröf og
dauða.
Jarðsetningin fór fram mánu-
daginn 25. júlí, og aðstoðaði und-
irritaður. Á eftir húskveðjunni
flutti hérlendur öldungur, Mr.
Miller að nafni, nágranni þeirra
hjónanna til margra ára, mjög
innilegt ávarþ þakkar og virðing-
ar í minningu þeirra.
Fóður fyrir ný-útkomna unga.
Varast skal að gefa ný-útkomn-
um ungum nokkurt fóður, fyr en
eftir 36 til 48 kl. stundir frá því
að þeir koma úr eggjunum. í ung-
unum er eggjarauða, sem þeir
€ins þurfa að melta, og verða að fá
tækifæri til þess. Þetta er mjög á-
ríðandi. Eftir 24 kl. stundir skal
fyrst gefa þeim sand, og hreint
vatn að drekka í grunnum ílátum.
Best er að byrja meö að gefa þeim
hart gerbrauð, íbleytt upp í súrri
mjólk eða áfum. Lítið í einu en
oft á dag, þriðja hvem kl. tíma.
Súra mjólk má gefa þeim, en aldrei
til skiftis súra og ósúra mjólk. Það
gæti orðið þeim til tjóns. Fyrstu
dagana skal gefa þeim hart brauð
bleytt í súrri mjólk, svo má fara
að gefa þeim malað hveitikorn eft-
ir 3 til 4 daga og hætta við brauðið
Harðsoðin egg má líka brúka með
brauðinu, en aðeins lítið. Hveiti-
korn er bezta fóðrið fyrir unga—
fyrst malað, svo heilt þegar að þeir
stækka. Hafrar eru lítils virði
sem ungafóður. Bygg og hafra-
mél má brúka þegar þeir stækka.
Nóga súra mjólk ættu þeir altaf að
hafa, og vatn að drekka.
Að velja egg til útungunar.
Egg, sem Ibrúkuð eru til útung-
unar ættu að vera hrein. Egg með
hmfóttum skumi eða egg, sem em
ljót í laginu. Of stór egg eða of
smá ættu ekki að notast. Hrein
egg á meðal stærð ungast bezt út.
Sumir velja úr öll hnöttótt egg en
týna úr þau aflöngu í þeirri von að
fá fleiri hænu-unga, en hana, en
það er ekkert nema hjátrú. En ef
að hænurnar þínar eru nýfarnar að
verpa, þegar þú ferð að láta þær
unga út, þá máttu eiga von á fleiri
hönum en hænum. Séu hænurnar
aftur á móti búnar að verpa í lengri
tíma, koma vanalegast fleiri hænu-
ungar en hana-ungar úr eggjunum.
J-
erindi Eggert Levy, hreppstjóri á
Ásum.
Allmargir af munum þeim, sem
grafnir voru upp á Bergþórshvoli
í sumar, hafa nú verið settir á
Þjóðminjasafnlð, og eru þar til
sýnis. Á meðal þeirra er eftir-
mynd af stóra leirkerinu, sem
fanst dýpst í gröfinni. Kerið
var úr brendum íslenzkum leir, og
var ekki unt að ná því upp og
flytja það. En eftirmyndin er úr
gipsi.
Bæjarstjórn Akureyrar hefir
nýlega samþykt 1000 kr. framlog
á ári í 5 árin næstu til stúdefrita-
garðsins.
Í
JamesRichar dson s Sons
367
Bankameiui, sem ávaxta peninga.
Main Sltreet
WINNIPEG
STOCKS
AND
BONPS
Meðlimir
Montreal
Stock
Exchange
Víðtæk þekking og auðfengnar
upplýsingar gera oss mögulegt að
láta í té nákvæmar upplýsingar
viðvíkjandi sölu verðbréfa á
hvaða peningamarkaði sem er.
Vér erum viljugir að gefa yður
allar upplýsingar viðvíkj andi
þeim verðbréfum, sem þér hafia,
eða hafið í hyggju að kaupa. —
Ágætlega vel trygð verðbréf er
hægt að kaupa með manaðar nið-
urborgunum, samkvæmt samnmg-
um við oss.
Sími 24 831.
(Private Branch Exchange)
Frá Islandi.
Reykjavík, 14. apríl.
Trúmálafundur var haldinn á
Blönduósi 6., 7. og 8. f.m. Mættu
á honum menn úr öllum sveitum
Austur-Húnavatnssýslu og fáein-
ir úr vestursýslu Fyrirlestra
fluttu þar nrestarnir Björn Stef-
ánsson á Auðkúlu, Gunnar Árna-
MALDEN ELEVATOR
COMPANT, LIMITKD
SUðrnarioyfi og 4byrg8. ABalakrtfotofa: Orain Exchange, Wlnnlpeg
Stocks - Bonds - Mines - Grains
V6r höfum skrifstofur f öllum helztu borgum f Veetur-Canada, og
einka ilmasamband viB alla hveltl- og stockmaflcaBi og bjóOum pvf viD-
skiftavinum vorum hina beztu afgreiBslu. Hveitikaup fyrlr aBra eru
höndluB meB sömu varfærni og hyggindum, eins og stocks og bonds.
LeitiB uppiýsinga hjfi. hvaBa banka sem er.
KOMIST 1 SAMBAND VIÐ RÁÐSMANN VORN A pEIRRI
SKRIFSTOFU, SEM NÆST TÐUR B3R.
Prince Albert
Tofield
Edmonton
Kerrobert
Til aB vera viss. skrlflB fi. yöar Bills oí lading: "Advise Malden
Elevator Company, Limited. Grain Exchange, Winnipeg.
Winnipeg
Regina
Moose Jaw
Swlft Current
Saskatoon
Calgary
Brandon
Rosetown
Oull Lake
Assiniboia
Herbert
Weybum
Biggar
Indian Head
CANADIAN MINES
HIN vfBtæka og fullkomna þekking vor fi. þessum félagsskap
stendur þeim til boSa, sem kynna vilja sér canadískan n&ma-
iSnaB. Holl og skynsamleg ráB, eru þeim meS ánægju gefin,
sem kynnu aB vilja Jeggja fé 1 þessi fyrirtæki. ViStal eBa bréfa-
viBskifti framboBin.
Stobie Forlong Matthews
SérfræBingar I n&ma-hlutabréfum. LIMITED
MININO EXCHANGE BLDG. 356 MAIN ST SOUTH. PHONE: 89 326
Einka simaaambönd. ___
Friðrik A. Friðriksson.
Hænsnarækt.
Árlega eykst hænsnarækt í þessu
landi, en við Islendingar gefum því
lítinn gaum, flestir búendur hafa
nokkur hænsni til heimilisnota, og
hjá flestum fara ekki hænurnar að
verpa fyr en komið er fram á vor.
Eru aðgjörðarlausar allan veturinn
át. Þetta er mjög algengt og oft
sjálfum manni að kenna. Slæmt
húspláss, lélegt fóður, ill hirðing o.
s. frv. Við þurfum að hafa hænsni
sem verpa að vetrinum, þegar gott
verð er á eggjum. Þá er fyrst upp
úr þeim að hafa og það geta allir,
sem vilja.
Útungun.
Það tekur hænu-ungann 5 til 6
mánuði, frá því að hann kemur úr
egginu, og þar til hann er orðinn
að hænu, sem byrjar að verpa.
Þessvegna þarf að unga út eins
snemma að vorinu og hægt er.
Áður en menn fara að safna eggj-
um til útungunar, ætu menn að velja
úr bestu hænurnar, og hafa þær
sér með óskyldum hana.
Að taka egg úr hópnum (upp og
ofan) ætti enginn að gjöra. Eða
nota hana, sem er skyldur hænunum.
Þetta er þó mjög algengt. Ef þú
álítur ekki hænurnar þínar nógu
góðar til að ala upp unga frá þeim,
MARTIN & CO.
Vér bjéðum yður mjög lágt verð og ágœtis úrval af
Kvenkápum, Alklœðnaði og Kjólum
MEÐ
VORUM ÞŒGILEGU BORGUNARSKILMÁLUM
Aðeins lítil niðurborgun; afgangurinn vikulega eða mánaðarlega, meðan fötin eru notuð.
Kápur
Efni: Charmeens, Poiret, Twills, Tri-
cotines, Failles, Tweeds og Kashas
»15.95 til »49.50
Hið sífelt góða og gilda
“PRINCE OF WALES” SNIÐ
$19.75 til $39.50
Alfatnaðir
Charmeens, Poiret, Twills og Kashas
$29.50 til $49.50
0
Kjólar
Double Fujis, Craysheen og Printed
Silks, e reinmitt það rétta fyrir hinn 24.
FOX CHOKERS »3.95 til $19.75 LEATHERETTE SLICKERS
með Prince of Wales Wool Georgettes, Flat Gráar, Grænar, Rauðar,
kápu. Crepes og Kashas Bláar, Svartar.
$25.00 til $45.00 »12.95 til 29.50 $9.75 til $12.95
MIKIÐ ÚRVAL AF KARLMA NNAFATNAÐI OG KAPUM $19.75 TIL $45.00.
Á öðru gólfi
Wpg Piano
Bldg.
MARTIN
Easy Payments Limited
OPIÐ A LAUGARDÖGUM TIL KL 10 E.H.
Portage
og
Hargrave
L. HARLAND, Manager.