Lögberg


Lögberg - 14.06.1928, Qupperneq 1

Lögberg - 14.06.1928, Qupperneq 1
Helztu heims-fréttir 41. ARGANGUR | Canada. Eins og getið var um hér í blað- inu fyrir ekki all-löngu, varð kona nokkur, Mrs. Alice du Guay að nafni, manni að bana á heimili sínu að Chestnut St., hér í borg- inni. Maðurinn hét Ross New- man og leigði herberki þar í hús- inu. Konan var sökuð um mor&„ en nú hefir lögregluréttur fríkent hana af þeirri ákæru, og úrskurð- að, að hér hafi að eins verið um sjálfsvörn að ræða. * * * í síðastliðnum aprílmánuði komu alls 26,983 innflytjendur til Can- ada. í sama mánuði í fyrra vorn þeir 35,441. Samt hefir komið fleira fólk frá Bandaríkjunum, heldur en í fyrra, en miklu færri frá Bretlandi og öðrum Evrópu- löndum. Af þessum nálega tutt- ugu og sjö þúsund innflytjendum, sem komu í aprílmánuði, voru 450 Norðmenn og 690 Svíar. » * * Það var komið eitthvað mjög nærri því, að þeir, sem vinna á strætavögnunum í Toronto gerðu verkfall í vikunni sem leið. Það var einhver ágreiningur milli þeirra og félagsins út af kaup- gjaldi og vinnutíma. Eftir lang- ar og heitar umræður, sem þeir héldu á laugardaginn, komust þeir að þeirri niðurstöðu, að gera ekki verkfall, heldur leggja á- greiningsmál sín í gerð og hlíta þe'm úrskurði, sem gerðardómur kynni að kveða upp, og það hefir félagið gert líka. Þessu verka- mannafélagi hefir verið illa við það að hafa blaðamenn á fundum sínum og rekið þá út, ef þeir hafa þar komið, en í þetta sinn höfðu tveir af þeim falið sig bak við stórt hljóðfæri, sem þar var. EÍ þegar fundarmenn urðu þeirra varir, réðust þeir þegar á þá og léku hart og sluppu blaðamenn- irnir nauðlega úr höndum þeirra, bláir og blóðugir, og urðu þeir að fara á spítala til að láta binda sár sín. Að því loknu gátu þeir þó farið heim, en reyna þetta lík- lega ekki j annað sinn. * * * Blaðið Free Press flutti á laug- ardaginn var aðra almenna skýrslu um uppskeruhorfur í þremur Sléttufylkjunum, á þessu sumri. Horfurnar eru enn sem komið er, mjög góðar. Rigningar nægilegar langvíðast, og þótt tíð- in hafi verið frekar köld, þá hefir hún samt verið mjög hentug fyr- ir gróðurinn. Hveiti er nú al- ment sprottið 4—6 þumlunga og rótin er sterk. í einstaka stað hefir orðið að sá í annað sinn vegna þess, að of þurt hefir verið og moldin hefir fokið og hveitið með, sem sáð hafði verið. Má heita, að lokið sé nú sáning á öll- um öðrum korntegundum, og er töluvert meira sáð af byggi og höfrum heldur en í fyrra, og hveiti sömuleiðis. Skýrslan seg- ir, að yfirleitt séu uppskeruhorf- ur með bezta móti% * * * Á laugardaginn í vikunni sem leið, bar Hon. R. B. Bennett, leiðtogi íhaldsmanna, fram yfir- lýsingu þess efnis, að þingið lýsti óánægju sinni yfir stjórnmálun- um, eða meðferð stjórnarinnar á landsins fé. Þótti stjórnin alt of eyðslusöm. Fyrverandi flokks- leiðtogi, Hon. Hugh Guthrie, studdi þessa yfirlýsingu, en hún fékk heldur lítinn byr á þinginu, og þegar til atkvæða kom, var hún feld með 79 atkvæðum gegn 38 atkvæðum. íhaldsmennirnir fylgdu leiðtoga sínum , en aðrir ekki. Litið var á þessa yfirlýsingu eins og nokkurs konar van- trausts yfirlýsingu, og sýnir því þessi atkvæðagreiðsla, að stjórn- in hefir fult traust þingsins. * * * Hinn 7. þ.m. andaðist að heim- ili sínu, 280 Roslyn Road, Winni- Peg, John Stanley Haugh, K. C. Hann var fæddur 29. september 1856 í Ontario, en kom til Mani- toba 1882, og hefir síðan stundað lögmensku og þótt einn með merk- ustu lögmönnum í Winnipeg. Hann var um langt skeið meðlimur í stjórnarnefnd Almenna spítalans í Winnipeg og formaður þeirrar nefndar frá því 1921 og þangað til árið sem leið, að hann varð að segja af sér vegna heilsubilunar. Bretland. Þeir verða að vera varasamir með það sem þeir segja, prestarn- ir á Englandi, og þeir verða að gæta sín að tala ekki ljótt, því annars mega þeir búast við að verða settir af embætti, um stund- arsakir að minsta kosti. Einum af prestum Ensku kirkjunnar, sem Oswald Hayden heitir, varð það á, að blóta heldur mikið, og bisk- upinn, sem yfir hann er settur, hefir’vikið honum frá embætti um tveggja ára tíma, og á hann sjálf- sagt að nota þann tíma til að venja sig af þeim slæma sið, að tala ljótt. Hvaðanœf a. í vikunni sem leið flugu tveir Bandaríkjamenn og tveir Ástral- íumenn alla leið frá vesturströnd Ameríku, Californíu, til Ástralíu. Tíminn, sem þeir voru á flugi, var 83 klukkustundir, og þeir félagar flugu alls 7,351 mílu. — Loftskipið, sem þeir flugu í, heit- ir “Southern Cross”. Viðkomu- staði höfðu þeir félagar tvo á þessari löngu leið. Fyrst flugu þeir til Hawaii eyjanna, og hafa menn áður flogið þá leið. Þaðan flugu þeir í einni lotu 3,138 míl- ur til Suva eyjar, sem er lengsta flug yfir haf, sem enn hefir flog- ið verið. Þaðan flugu þeir til Brisbane á Ástralíu, en þá eiga þeir eftir 500 mílur til Sydney. — Með viðstöðum voru þeir átta daga á leiðiimi. Á síðasta áfanganum lentu þeir í miklum stormi, en yfirleitt gekk ferðin vel alla leið- ina. Frá Islandi. Borgarnesi, 22. maí. Samband ungmennaféalga í (Bargarfirði, hafa leigt, eins og kunnugt er, svæði til íþróttaiðk- ana og leikmóta, nálægt Ferju- koti, á hörðum bökkum, sem á- gætlega eru fallnir til slíkra iðk- ana. Veitingaskála, um 20 álna langan, hefir sambandið reist á svæðinu. — íþrótta námsskeið verður haldið þarna að líkindum í næsta mánuði, en ráðgert er að halda íþrótta námsskeið áður en mótið verður haldið, til þess að æfa væntanlega keppendur. Um- getið íþróttasvæði hjá Ferjukoti hefir samband ungmennafélaganna leigt til 50 ára. — Samband ung- mennafélaganna á, eins og kunn- ugt er sjóð, sem verja á til endur- reisnar alþýðuskólanum.' Sjóður- inn hefir aukist um 6,000 kr. í vet- ur og er nú um 7,000 kr. Alment vona Borgfirðingar, að skólinn verði endurreistur í Reykholti, sögustaðnum fræga. Netum var lagt í Laxveiðiárn- ar aðfaranótt s.l. mánudags. — Veður heldur svalara undanfarið. Sæmilegur gróður kominn víðast hvar. Á stöku stað er farið að hleypa út kúm. — Efni er stöðugt verið að flytja upp að Ferjukoti, til brúargerðarinnar. — Heilsufar gdtt í héraðinu. — Tvö íveruhús úr steinstyepu er verið að reisa í Borgarnesi. Hvorttveggja húsið lítið. — Kolaskip er væntanlegt hingað bráðlega með 300 tortn af kolum. Enn fremur er von á timburskipi til Kaupfélagsins. Stykkishólmi, 22. maí Afli góður á þilskipin, er þau fyrst komu jnn fyrir tæpum hálf- um mánuði, frá 40 og upp í 67 skpd. Þ. 29. apríl lézt Guðmundur Jón WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 14. JÚNÍ 1928 NÚMER 24 Skúlason bóndi í Flatey, merkis- maður, sægarpur og aflamaður. Hann var 55 ára. — í nótt andað- ist hér í Stykkishólmi Þorvaldur Jóhannsson, fyrverandi skipstjóri. Hann arfleiddi Framfarasjóð Stykkishólms að 5,000 kr.—Mbl. Reykjavík 17. maí. Símskeyti frá Helsingfors herma að svö finsk herskip hafi komið á móti konungsflotanum út við landhelgislínu, er Kristján 10., konung Dana og íslendinga, bar þar að landi í heimsókn til Finn- lands. Svaborgar-vígið sendi drynjandi stórskotakveðju. Re- lander forseti gekk um borð í kon- Ungsskipið “Niels Juel” úti í skerjagarðinum. Höfuðborgin var skrýdd dönskum, íslenzkum og finskum fánum og á landgöngu- brú voru greniþaktar súlur og á þeim skjaldarmerki íslands, Dan- merkur-og Finnlands. Þegar kon- ungur gekk á land, var leikið “Kong Christian” og “Ó, guð vors lands,” en vígin og herskipin sendu falbyssukveðjur. Formað- ur borgarstjórnarinnar, Tulen- heimo prófessor, flutti fagra ræðu til að fagna gestunum. Mintist hann þar hinnar íslenzku þjóðar, “sem tekist hefir að vernda dýr- mætar minningar og skapa sjálf- stæða andlega og efnalega menn- ingu, er vekur aðdáu vora.” Konugur þakkaði og síðan var gengið til hallarinnar, en sjóliðar skipuðu heiðursfylgingu báðum meginn vegarins alla leið.—Mbl. ísafirði, 21. maí. Ágætis afli í veiðistöðvunum við Djúp; sömuleiðis á fjörðunuA’— Hafís talsverður hér úti fyrir. Togarar segja í dag isinn 10 sjó- mílur út af Djúpi oð þrjár mílur frá Straumnesi, Esja sá nokkra jaka hjá Horni í gær. Góðviðri undanfarið. Jörð álíka gróin hér og eftir miðjan júní. — Galdra-loftur leikinn hér undan- farin þrjú kvöld og þótti vel tak- ast. — Mbl. Keflavík, 14. maí. Vertíðin hér má heita hin á- kjósanlegasta. Hafa gengið 19 bátar héðan, sem eru eign kaup- túnsbúa hér og munu hafa aflað, minst rúmlega 400 skippund og það upp eftir, nokkuð margir, sem hafa rúmjega 500 skpd. — Er fisk- urinn því nær allur verkaður hér og því nóg atvinna hér, þótt nokkr- ar aðkomandi stúlkur hafi verið teknar hingað til fiskiverkunar. Slys hafa engin orðið, og verð- ur ekki fullþökkuð sú vernd, er yfir þessu kauptúni hefir verið gagnvart 'þeirii, um lengri tíma. —Einn aðkomubátur sökk hér á höfninni um miðjan apríl, af ó- þektum ástæðum og hefir ekki verið tekinn upp ennþá; telja menn að vélin sé eyðilögð fyrir að hafa legið svo lengi í sjó, enda þótt báturinn komi einhvern tíma upp á yfirborðið aftur. Útgerðarmenn allir í Keflavík nota bryggjur Elínmundar ólafs, og hafa frá honum aðgerðapláss og að mestu hús til fiskigeymslu og beitingar, en verst við það er, að staðurinn er í miðju kauptún- inu og.veldur því miklum óþverra á götunum, en nú er Elínmundur að útbúa uppsátur — Dock — fyr- ir vélbáta, sem er eitt hið mesta framtíðar og nauðsynjamál fyrir Keflavík, og liklegt að útgerðin færist líka nær þeim stað, enda verið að hugsa upp fleiri aðferð- ir til þess að færa útgerðina til hliðar. Húsnæði og aðhlynning sjó- manna er öll í íbúðarhúsum hér og hjá útgerðarmönnum sjálfum og munu þeir því hafa hann talsvert betri, en þeir sem verða að liggja í útihúsum. Komið hefir til tals að byggja stórskipabryggju á inanverðu Vatnsnesi og er það eitt hið mesta nauðsynjamál fyrir öll 'Suðurnes. —íshús eru tvö hér í kauptúninu og hið þriðja í Njarðvík, en það var ekki starfrækt á síðasta ári; voru hin tvö með fullar 1600 tu. af frosinni síld, en þó vantaði mikið til og varð að talsverðum baga, enda þótt mikil beita væri fengin annars staðar frá. Hrogn hafa verið seld hér ný fyrir kr. 0.12 líter, og var aðal- kaupandi Edvald Jacobsen í Nor- egi. En Keflvíkingar hafa sjálfir reist sér nýtízku lifrarbræðslu- stöð og láta bræða þar alla lifur; hefir lýsi selst við háu verði og munu bátar nú hafa undir 6,000 kr. fyrir það, þeir sem vel hafa fiskað. Vegir eru nú komnir í öll héruð I sýslunnar, sem eiga að teljast færir bifreiðum; eru þeir upphaf- lega bygðir af sýslu- og ríkisstjóðs fé til samans, en nú hefir ríkis- sjóður tekið að sér eingöngu veg- inn frá Keflavík til Hafnatfjarð- ar. En sá galli er á því, að hann má teljast lítt fær bifreiðum meiri hluta ársins, enda er hann mjög mikið notaður, þar sem flestar vörur og alt fólk er flutt eftir h’onum, og það er ekki ofmikið sagt, að um hann fari 15 til 50 bifreiðar á dag alt árið, og mun það sá eini vegur út um land, sem notaður er allan veturinn. — Má það teljast frámunalegt athuga- ! leysi, að ekki skuli betur að hon- J um hugað. — Talið er, að bezt og ódýrast yrði viðhald á honum með því, að að horum væri keyrður á sumrum ofi.aíburður, á ýmsum stöðum og vissir menn fengnir til þess að gæta hvers kafla að vetr- inum og gera við hann um leið og og eitthvað bilar. Er sú aðferð almenn í öðrum löndum og hefir gefist vel og hefir mikið minni kostnað í för með sér en með því lagi sem nú er. Sama má segja um símasamband- ið hingað að það er í hinu megn- asta ólagi. Að eins ein lína hér til afnota frá Hafnarfirði, fyrir Keflavík, Leiru, Garð og Sand- gerði, og verða menn oft að bíða tímum saman eftir afgreiðslu og margir frá að hverfa. Eru hér nú 27 talsímanotendur, en sagt er að átta bíði cítir a'o fá talsímatæki og sumir þeirra búnir að bíða í hálft ár, en skiftiorðið hefir ekki rúm fyrir fleiri númer; má sjá, að þetta hvorttveggja skapar stór óþægindi, auk þess sem Landsím- inn missir tekjur við það. Eitt vantar okkur tilfinnanlega hér í Keflavík, og það er daglegt lögreglueftirlit. Er það nauð- syn við mörg tækifæri, enda mörg ár síðan samin var reglugerð urn lögreglu og fleira hér, en stjórn- arráðið hefir hingað til dauf- heyrst við þeim kröfum, sem þó hafa verið margítrekaðar. Vænta menn að hin nýja stjórn geri okk- ur ekki svo afskifta í þeim grein- um, og við fáum lögreglu nú inn- an skamms tíma. — Mbl. Borgarnesi, 11. maí. ^hingað-*fyrir nokkrum dbgum, ai allega með efni til Hvítárbrúa innar, ca. 400 tonn. Hefir talsve: af efni verið flutt upp að brúa stæðinu þegar. Til flutninganr er notaður prammi mikill, se mótorbátar hafa dregið upp Hvítá. Hefir verið farið með f tonn á prammanum í ferð. Tuttugu og þrír ménn vinna n að undirbúningi að brúarlagnin; unni Líklega vinna 30—40 men við haná, er á líður, og verði brúarsmíðinni lokið í haust, að þ er talið er. Árni Pálsson verl fræðingur er hér staddur til ef irlits með flutningunum og bri arsmíðihni. Einmunatíð og almenn velmeg- un. Heilsufar gott. Heybirgðir miklar.—Mbl. Seyðisfirði, 15. maí. Garðavinna byrjaði snemma 1 ár. Var byrjað að setja í kartöflu og rófnagarða í maíbyrjun. — Þorskafli góður, síldarvart öðru hvoru, mokfiski sagt á Hvalbak. Barnaskólaprófi lokið, uppsögn skólans fer fram. á morgun. — Kenslu nutu 75 börn í vetur. Sauðburður byrjaður. öndveg- istið,—Mbl. FINNUR PRÓF. JÓNSSON lætur af embætti. Finnur Jónsson prófessor hélt seinasta háskólafyrirlestur sinn á fötudaginn, 11. maí. öll sæti í f salnum voru skipuð stúdentum og auk þess voru þar prófessorarnir Vilhelm Andersen, Hans Brix, Bröndum Nielsen, Arup og Ham- erich. Kennarastóllinn var rós- um skreyttur og er prófessorinn kom inn, var honum tekið með fagnaðarópum, en ungur stúdent, Alf Henriques, hafði orð fyrir félögum sínum, færði honum þakkir þeirra og fagran silfurbik- ar með blómum. v Prófessorinn þakkaði með hjart- næmum orðum og flutti síðan seinasta fyrirlestur sinn. Að hon- um loknum þakkaði Hans Prjx prófessor dr. Finni fyrir hönd hinna eldri kennara, það fordæmi, sem hann hefði gefið í 40 ár, skarpskygni hans, , nákvæmni og ást á mentagrein sinni, dug hans og djörfung þegar á þurfti að halda, t. d. í því að ráðast á hinar hæpnu kennjngar Sophus Bugge. Síðan talaði Vilhelm Andersen, sem er einn af lærisveinum Finns og mælti: “Þér hafið orðið góð- ur Dani, jafnframt því að vera góður íslendingur. Vér þökkum yður líka fyrir það. Þér hafið haldið, við sambandi norrænnar menningar og það samband má aldrei bila.” Finnur prófessor tók í hönd samverkamanns 'síns og þakkaði síðan öllum enn á ný hjartanlega. Og i seinasta 'sinni gekk hann úr kenslustólnum og fylgdu honum innilegar árnaðaróskir gamalla og nýrra lærisveina hans.—Mbl. Villiljós. >Sá maður mundi vinna mikið þarfaverk, sem gæti komið mönn- unum í skilning um það, að þeim væri holt og gott að nota sína eigin skynsemi meira en þeir gera, og vera ánægðir með að fylgja, henni. Segðu fólki, eins og það gerist svona upp og ofan, að það ætti að éta minna, ganga fimm milur á dag og draga andann dýpra en það gerir. Flestir mundu bara glápa á þig með opinn munninn og dytti ekki í hug að fylgja þessum ráð- um. Segðu því þar á móti, að nú sé fundið nýtt undra meðal, sem lækni alla mannlega sjúkdóma, og þá mun þig ekki skorta til- heyrendur, sem trúa þér eins og nýju neti. Reyndu að segja einhverjum, að hann verði sæll bæði þessa heims og annars, ef hann fylgi boðorðunum, eftir því sem hann veit og getu^bezt. Þú getur reitt þig á, að þonum þykir það leiðin- leg kenning, og hann vill ekki á þig hlusta. En ef þú segir hon- um frá einhverri nýrrri leið að hliðum himnaríkis, sem einhver spekingurinn sé nú nýbúinn að finna, þá hikar hann ekki við að hlaupa tuttugu mílur til að fá einhverjar frekari upplýsingar um það. Segðu samverkamanni þínum, að ef hann sé iðjusamur og ráð- vandur og trúr og noti skynsemi sína, þá muni það leiða til þess, að hann með tíð og tíma hefjist til virðinga og velgengni. Honum dettur ekki í hug að hlusta á þetta því síður að leggja trúnað á það. En ef þú segir honum frá ein- hverju glæfralegu gróðafyrirtæki, þá er hann, áður en þig varir, rok- inn til og búinn að selja það sem hann getur við sig losað og verð- mætt er, og jafnvel að veðsetja húsið sitt, til þess að leggja pen- ingana í þetta gróðafyrirtæki. Við ekkert eru menn eins önn- um kafnir, eins og það, að skifta um það, sem gamalt er fryir annað nýtt — eitthvað nýtt. En vér þurfum ekki nærri eins mikið á nýrri þekkingu að halda, eða nýj- um uppfyndingum, eða nýjum gróðafyrirtækjum, efe nýjum vís- dómi, eins og vér þurfum á því að haída að kunna, og hafa stillingu til að færa oss í nyt gamla og þaulreynda þekkingu. En þeir eru svo undarlega fáir, sem það gerar Margir ana áfram, eins og þeir hvorki h> yri né sjái, en ef þeir rekast á einhverja skrum- auglýsingu, þar sem þeom er lof- að gulli og grænum skógum, án svo að segja nokkurrar fyrirhafn- ar, þá hlaupa menn eftir þeim og ;a5E5ESHSH5H5ESZ5ESHS25S5H5H5a5H5E5H5H52SB5Z5ZSZ5ZSE5HS25B5H5H5HSZS2£H5i Starfskrá Kirkjuþingsins. er haldið verður í kirkju Melanktons safnaðar í Upham N. Dak., dagana 20.—24. júní 1928: Miðvikudaginn 20. júní. kl. 11 f.h.—Þingsetningar guðs- þjónusta og altarisganga. Forseti prédikar. Kl. 3—6 e.h.—Starfsfundur. Skýrslur embættisamnna og nefnda. Kl. 8 e. h.—Fyrirlestur: dr. B. B. Jónsson. Fimtudaginn 21. júní, kl. 9—12 f. h. — Starfsfundur. Kl. 2—6 e. h. — Starfsfundur. Kl. 8 e.h. — Fyrirlestur: séra Jóhann Bjarnason. Föstudaginn 22. júní, kl. 9—12 f.h. — Starfsfundur. Kl. 2—6 e. h. -— Starfsfundur. Kl. 8 e.h. — Trúmálafundur. Umræður: “Siðferðis- kenning Krist í Matt. 5, 38-48 í sambandi við Matt. 7, 12. Málshefjandi: séra Sigurður ólafsson. Laugardaginn 23. júní, kl. 9—12 f.h..—Starfsfundur. KL 2—6 e. h. — Starfsfundur. Kl. 8 e. h. — Ungmennamót. Sunnudaginn 24. júní verða tvær íslenzkar guðsþjónustur í kirkju Melanktons safnaðar. Séra Jónas A. Sigurðsson og séra G. Guttormsson, prédika. —í kirkju norska safn. í Upham verða tvær enskar guðsþjónustur. Séra Carl J. Olson og séra ■- H. J. Leó prédika. ' 3 Ungmennamótið á laugardagskvöldið er undir umsjón ung- ^ lingafélags Melanktons safnaðar. V K. K. ÓLAFSON, Cj forseti kirkjufélagsins. K a^SZ5Z5Z5ZSH5Z5H5ZSZ5ZSHSZ5Z5ZSZ5ZSZ5HSH5H5Z5ZSZ5Z5Z5H5Z5H5Z5H5Z5H5ZSZ? halda að þeir hafi himin höndum tekið. Hvað lang-flesta af dtfs snertir, þá fer lífsspeki, reynsla og þekking hinna vitrustu og beztu manna fyrir ofan garð og neðan hjá oss og svo virðist oft, sem vér metum reynslu þeirra og lífsspeki ekki neins og höfum ekk- ert af henni lært.. Og þetta kemur mest til af því, að þær Mfsreglur, sem mest er um vert, eru svo einfaldar og óbrotnar að oss þykir ekkert til þeirra koma. — American Magazine. 0r bœnum. íslendingar á Lundar og í grend eru vinsamlegast beðnir að fjölmenna á fiskimannafundinn, sem haldin verður þar í bænum klukkan 2 e. h. á fimtudaginn þ. 14. þ.m. Gift voru 2. þ.m. í Nelson, B. C., Miss Ágústa Polson, dóttiij Mr. og Mrs. A. G. Polson, 118 Emily St„ Winnipeg, og Dr. John Milne Jack- son, sonur Mr. W. Jackson, Alex- ander, Man. |Framtíð^rheimili þeirra verður að Nakusp, B. C. Á mánudaginn voru staddir í borginni þeir preátarnir séra K. K. Olafson, séra N. S. ThorlaksoR, séra Jónas A. Signurðsson og séra Jóhann Bjarnason. Mr. C. B. Johnson frá Glenboro, kom til borgarinnar mánudaginn og fór heim næsta dag. Vinnukona óskast að 548 Agnes Str., Winnipeg. Mrs. L. J. Hall- grímsson. / Mr. Frank Jóhannsson frá Hall- son, N. Dak., var staddur í borg- inni fyrri part vikunnar. í South Cypress voru, hinn 30. f.m„ greidd atkvæði um bjórsöl- una, sem fór þannig, að óvinir bjórsins urðu í töluverðum meirl hluta. í þessu héarði er Glen- boro bær og nokkur hluti Argyle- bygðar, og þar sem atkvæða- greiðslan fór á sama veg í hinum hluta bygðarinnar, eins og áður er getið hér í blaðinu, þá er ekki ann- að sjáanlegt, en að Argyle bygð verði “þur” fyrst um sinn. Dr. B. J. Brandson lagði af stað suður til Minneapolis, Minn., síð- astliðið þriðjudagskvöld, til þess að sitja læknaþing, sem haldið verður þar í borginni næstu daga. Er hann væntanlegur heim um helgina. Messuboð. — Foam Lake kl. 1 (fast time). Leslie kl. 4 (sl. t.), Elfros kl. 7.30 (;sl t.) á ensku, sd. 17. júní. Allir hjartanlega vel- komnir. C. J. O. Miss Rósa Hermannson og Mr, Sigfús Halldórs frá Höfnum leggja af stað um næstu helgi vestur til Vatnabygða og ætla þau að halda þar nokkra samsöngva, ásamt Mr. Björgvin Guðmundssyni, sem nú er þar vestra. Samsöngvarnir byrja um miðja næstu viku (fyrst í Mozart á miðvikudaginn), en verða nánar auglýstir þar vestra, eins vel og föng eru á, og er fólk beðið að gefa því gætur. Flest lögin, \ sem sungin verða, eru eftir Björgvin Guðmundsson, sem nú er nýkominn frá Englandi, eft- ir söngnám sitt þar, sem hann lauk með ágætis vitnisburði, og munu nú margir hlakka til að heyra ný lög eftir hann. Vega- og brúarlagninga í sumar á tslandi. (Eftir sögn vegaipplastjóra.) Fjárveitingar til vega- og brú- argerðar efu í ár með mesta móti og verður sennilega unnið fyrir um eða yfir 1 milj. krónur. Til brúargerða verður varið um 300 þús. kr. Er áformað að gera um 20 nýjar brýr og er Hvítárbrúin í Borgarfirði þeirra langmest. — Helztu framkvæmdir eru þessar: Unnið verður að Norðurlands- veginum í þessum sveitum: í Norðurárdal 1 Borgarfirði, og er búist við að vegurinn komist fram fyrir Sveinatungu, verður þar jafnframt gerð brú á Sand- dalsá. í Húnavatnssýslu verður haldið áfram nýja veginum fyrir vestan Víðidalsá, og þó hæpið, að lokið verði í ár við allan kaflann vestur á svonefndan Múlaveg, en þaðan er akbra'ut á Hvammstanga. — í Skagafirði er áformað að ljúka við veginn yfir Vallhólm- inn og verður þá komin akbraut að nýju brúnni yfir Héraðsvötn á þjóðveginum skamt fyrir utan Akra. í Vallhólminum verða bygðar tvær brýr, yfir Húseyjar- kvísl og Affalli. | í Eyjafirði verður unnið að ak- veginum inn Þelamörk, sem verð- ur fullgerður inn undir Bægisá. Þá verður og lagt kapp á, að koma Vaðlaheiðarveginum upp undir Steinsskarð. í Axarfirði verður fullgerð brú- in á Brunná. — í Hróarstungu eystra mun akvegurinn komast langleiðis að Jökulsá, hjá Foss- völlum. — í Vopnafirði verður byrjað á akvegi úr kauptúninu inn í Hofsárdalinn. — Á Fljótsdals- héraði verður bygð brú yfir Gríms á á Völlum, 50 metra bogabrú úr járnbentri steypu. Byrjað hefir verið á brú yfir Hvítá í Borgarfirði, hjá Ferjukoti, og verður reynt að fullgera hana í haust. Er það mikið mannvirki og kostar nálægt 200' þús. kr. Vestur í Hnappadalssýslu verða gerðar brýr á Laxá og tvær smá- ár og jafnframt fullgerður ak- vegurinn vestur undir Hjarðar- fell. Áformað er að byrja þegar í þessum mánuði á nýjum akvegi til Þingvalla úr Mosfellsdalnm um Gullbringur, norðan Leirvogs- vatns og þaðan á núverandi Þing- vallaveg nokkuð fyrir austan svo nefndar Þrívörður nyrst á Mos- fellsheiði. Er svo til ætlast, að þessi nýi vegur, sem er um 15 km. verði fullgerður á næsta ári. Biskupstunguvegurinn verður fullgerður norður fyrir Vatns- leysu, en að Geysi kemst hann ekki fyr en 1930 eða 1931. Mbl.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.