Lögberg - 21.06.1928, Page 2
fila. 2
LÖGiílflRG, FIMTUDAGINN 21. JÚNÍ 1928.
JamesRichar dson & Sons
Bankamerui, sem ávaxta peninga.
367 Main Street
WINNIPEG
STOCKS
AND
BONPS
Meðlimir
Montreal
Stock
Exchange
Víðtæk þekking og auðfengnar
upplýsingar gera oss mögulegt að
láta í té oákvæmar upplýsingar
viðvíkjandi sölu verðbréfa á
hvaða peningamarkaði sem er.
Vér erum viljugir að gefa yður
allar upplýsingar viðvíkjandi
þeim verðbréfum, sem þér hafið,
eða hafið í hyggju að kaupa. —
Ágætlega vel trygð verðbref er
hægt að kaupa með mánaðar nið-
urborgunum, samkvæmt samning-
um við oss.
Sími 24 831.
(Private Branch Exchange)
MALDEN ELEVATOR
COMPANY, LIMITED
Stjórnarleyfl og ftbyrgC. ABalskrlfstofa: Oraln Exchange, Wlnnipeg
Stocks - Bonds - Mines - Grains
Vér höfum skrlfstofur f öllum helztu borgum í Vestur-Canada, og
einka simasamband viö alla hveitl- og stockmarkaöi og bjöðum þvf vlB-
skiftavinum vorura hina beztu afgreiSslu. Hveitikaup fyrir aSra, eru
höndluB meS sömu varfærni og hyggindum, eins og stocks og bonds.
Leitiö upplýsinga hjá hvaSa banka sem er.
KOMIST 1 SAMBAND VIÐ RADSMANN VORN A pEIRRl
SKRIFSTOFU, SEM NÆST YÐUR ER.
Winnipeg
Regina
Moose Jaw
Swift Current
Saskatoon
Calgary
Brandon
Rosetown
Gull Lake
Assiniboia
Herbert
Weyburn
Biggar
Indian Head
Prince Albert
Tofield
Edmonton
Kerrobert
Til aö vera viss, skrifíS á ySar Bills of lading: "Advise Malden
Elevator Company, Limited, Grain Exchange, Wlnnipeg.”
CANADIAN MINES
HIN vfStæka og fullkomna þekking vor á þessum félagsskap
stendur þeim til boSa, sem kynna vilja sér canadískan náma-
iSnaS. Holl og skynsamleg ráS, eru þeim meS ánægju gefin,
sem kynnu aS vilja leggja fé I þessi fyrirtæki. ViStal eSa bréfa-
viSskifti framboSin. '
Stobie Forlong Matthews
Sérfræðingar I náma-hlutabréfum. LIMITED
MINING EXCHANGE BLDG. 356 MAIN ST SOUTH. PHONE: 89 326
Elnka símasambönd.
NÝI TÍMINN.
Það er orðinn móður og menn-
ingarspor,
að margvefja ljóðin af torskild-
um orðum.
Helzt má ekki nefna haust eða
vor,
né heimilismálið, sem brúkað var
forðum.
Ef alþýðan girnist að eignast
nýja bók,
innihaldið jfær hún naumast
skilið,
hættir svo lestri og legst í doða-
mók,
eða iærir að iðka margt óþarfa-
spilið.
Menn kalla það skáldlegt, að skýra
efni frá
með skábentum orðum og nýgjörv-
inga hneging;
sumir reyna af monti að tylla.sér
á tá
og taka frá öðrum dulveganda
reging.
Stundum verður þulan svo þyrk-
ingslega ljót,
þrungin af rembing, sem fær ei
að lifa né deyja;
snildin verður snubbótt og gullið
verður grjót,
þá glapið er málið, sem réttast
þarf að segja.
fir.Ttr,.'- - .........
Nú dugar ekki háfleygast Matt-
íasar mál,
mjög lítið fárast um gamla Hall-
gríms sálma;
nú dugar ekki að nefna Hjálmars
djúpu sál,
það dulspeki eykur nýjan farar-
tálma;
né tilfinning Kristjáns inst í
djúpum dal,
draumsætu ljóðin, hjartans meina
vörnin;
nú heyrist ei Steingríms náttúru
fegurst hjal,
nú kveður ei Jónas fjrrir litlu
börnin.
En þetta vinnur lítið, hið gamla’
er gengið frá,
grullkornin vökva ferskan andans
gróður.
Dansinn hann blómgast dintlist-
inni hjá,
dýrðlegt er að lifa, herra minn
góður.
Til lýðsins þeir ihrópa: sérðu ei,
aulinn þinn,
það yfir gengur stórhríðar-
menningar-bylur?
Því nú er verið að leiða nýja tím-
ann inn,
og nú eru þeir beztir, sem enginn
maður skilur.
Jón Stefánsson.
Frá Fargo, N. Dakota.
Herra ritstj. Lögbergs,
Viltu gjöra svo vel að Ijá eftir-
fylgjandi línum rúm í blaðinu?
Fyrir meir en ári síðan höfðum
við þá ánægju, að mæta Vilhjálmi
Stefánssyni ihér í Fargo. Hann
var á ferð til Kyrrahafsstrandar,
til að halda fyrijdestra fyrir eitt-
hvert vísindafélag, sem eg man
ekki nafnið á. Og fyrir beiðni
ísJendinga hór, stanzöði hann í
tvo daga og hélt ræður um ferð-
ir sínar í heimskautaöndunum, og
var því vel tekið af öillum áheyr
endum hans.
Eins og öllum íslendingum er
kunnugt, þá er Stefánsson ágæt-
ur fyrirlesari. Ræður hans eru
ljósar og efnisríkar, vel fram
bornar og fræðandi um efnið, sem
hann talar um. Hann hefir ritað
margar bækur um ferðir sínar í
heimskautalöndum og fleiri efni.
Þær bækur, sem eg hefi lesið, eru
“The Northward Course of Em-
pire” “The Friendly Arctic” og
'My Life with the Eskimoes”,
mjög fræðandi bækur, sem allir
íslendingar ættu að lesa. Þær
gera alt aðra hugmynd um norðr
ið, en alment ihefir verið höfð.
Bækur hans og ræður hafa fengið
alment lof hjá þeim fræðimönn-
um, sem hafa ritað um starf hans
í þarfir vísindanna, lí norðrinu,
fyrir djúpsæi hans og rannsókn-
ir og þá nytsemi, sem af því leið-
ir. Vilhjálmur var sá fyrsti, sem
sannaði það, að ihvítir menn geta
lifað góðu lífi fast upp við heim-
skautið, án þess að reiða sig á
það, sem flutt er þangað inn.
Hann hefir einnig sannað það,
að loftslagið er heilnæmt og ekki
eins kalt, eins og á hálendinu
sunnar, sem þéttbygðara er. —
Hann ferðaðist svo árum skifti
norðar en nokkrir aðrir hvítir
menn hafa dvalið, og leið vel.
Hann hefir sannað það, að dýra-
lífið er auðugt af hreindýrum,
sauðnautum (muskox) og öllum
þoim landdýrum, sem þrífast í
því loftslagi. Hann sá hjarðir af
hreindýrum svo þúsundum skiftí,
alstaðar, þar sem hann fór. Hann
lifði á ísnum svo löngum tímum
skifti, og aflaði sér fæðu fyrir
sig og þá, sem með honum voru,
og það svo ríkulegrar, að hann
varð að skilja stórmikið eftir í
hvert sinn, sem hann færði sig.
Áður var það álit manna, að eng-
inn gæti lifað á þessum slóðum
nema að flytja forða með sér. _
Grasaríkið var eins auðugt að
sumu leyti eins og dýraríkið, og
það er enginn efi á, að innan
skamms tíma rísa upp blómlegar*
hjarðir af hreindýrum og sauð-
nautum fast upp við norðurpól-
inn.
Það tók langan tíma til að sann-
færa menn um, að Norðvestrið
væri byggilegt, sem nú er einn
bezti parturinn af Canada og
Bandaríkjunum. — íslendingar
hefðu hag af, að kynna sér bæk-
ur Vilhjálms Stefánssonar um
Norðrið, og láta ekki sleppa sér
úr hendi að mynda nýtt ísland
og gefa niðjum sínum tækifæri til
að halda annað hvort þúsund-
eða tíu þúsund ára afmæli sitt,
því þá verða þeir óefað búnir að
læra samvinnu betur en nú.
Það er eitt, sem íslendingar
athuga ekki nógu nákvæmlega,
sem er, að færa sér í nyt krafta
þá, sem þjóðin hefir yfir að ráða.
Þar er Vilhj. Stefánsson einn í
fremstu röð vísindamanna. Bæði
Englendingar, Ameríkumenn og
Canadamenn, hafa sæmt hann öll-
um þeim heiðri, sem getur hugs-
ast, en landar hans gefa engan
gaum að afreksverkum hans í
þarfir vísindanna.
Eg hefi séð bækling, sem ritað
ur var af merkum Ameríkumönn-
um, um Vilhjálm Stefánsson og
starf hans. íslenzku blöðin ættu
að þýða þann bækling, þá sjé.
íslendingar hvaða álits V. S. hef-
ir afrekað sér.
íslenzka þjóðin á mikla krafta
fólgna í uppvaxandi kynslóðinni,
sem, eins og St. G. kemst að orði:
liggja á kolabingnum í öskustónni,
en ættu að vera, eins og Stefáns-
son, að leita sér fiár og frama á
nýjum stigum. Forfeður okkar |
álitu, að iheimskt væri heima-alið
barn, og ungir og uppvaxandi
menn þóttu að engu nýtir, ef þeir
höfðu ekki gert eitthvað, sem var
kallað mannraun og sýndi, að
maðurinn hefði einhverju, yfir að
búa. — Og hvi skyldu ekki ungir
menn og konur færa sér í nyt verk
Vilhj. Stefánssonar, ótaldar auðs-
uppsprettur í þeim löndum, sem
hann fór um? Að minsta kosti
ættu þeir að kynna sér skilyrðin
fyrir lífinu þar.
Canadamenn, sem hafa meira
landrými yfir að ráða heldur en
Bandaríkin, mega vera vissir um
það, að aðrar þjóðir, sem eru að
vaxa upp úr sínum heimkynnum,
láta ekki lengi ónotuð tækifærin í
heimskauta|löndunum, þar sem
svo miklir möguleikar til vel-
vegnunar bíða þeirra er þar vilja
búa.
Eg vildi að íslendingar, bæði
sunnan og norðan við “línuna”, (
vildu taka sig til og bjóða Vil-
hjálmi Stefánssyni í fyrirlestra-
ferð um íslenzku bygðirnar. Eg
er sannfærður um, að menn iðr-
uðust ekki eftir því. V. S. hefir
verið heiðraður af hérlendum
mönnum á margan hátt, t. d.,
þegar hann fór um í Chicago fyr-
ir liðugu ári síðan, þá höfðu öll
stórblöðin langar greinar um
hann, og verk hans, og allir borg-
arbúar keptust við að sýna hon-'
um heiður. Henry Ford sendi
sendi honum eina af sínum stærstu
bifreiðum til afnota meðan hann
dvaldi í borginni. Og hví skyld-
um vér ekki sýna honum heiður?
Hann getur, með sínum miklu
hæfileikum, orðið oss íslendingum
að ómetanlegu gagni ef rétt er
að farið. V. S. hefir rutt sér
braut í gegnum allar torfærur,
sem honum hafa msétt. Þjóðirn-
ar eru metnar eftir þeim mönn-
um, sem afreka eitthvað. Hvað
gefur Englendingum meiri heið-
ur en Shakespeare, Dickens, Glad-
stone, Livingstone og fjöldi ann-
ara mætra manna, og hvað mundu
ekki Ameríkumenn missa, ef frá
þeim væru teknir slíkir menn
sem Washington, Lincoln, Roose-
velt og mikill fjöldi annara slíkra
ágætismanna, er skilið hafa eft-
ir fótSpor sín á söndum lífsins, til
upphvatningar fyrir eftirlifandi
kynslóðir?
Látum oss því ryðja steini úr
götu fyrir'þá, sem brjótast fram
úr fjöldanum til sæmdar fyrir
sína þjóð.
Með vinsemd . og virðingu til
allra fslendinga, bíeði hér í Ame-
ríku og heima á íslandi.
Magnús Snowfield.
1314 9th Ave. South
Fargo, N. D., 11. júní 1928.
FRÁ SEATTLE, WASH.
Þriðjudaginn 8. maí var boðað
til almenns fundar meðal íslend-
inga í Seattle. Á þeim fundi var
kosin 9 manna nefnd, til að sjá
um þjóðminningardaginn í ár. —
Nefnd þessi er þegar tekin til
starfa, og hefir hún ákveðið, að
hátíðin skuli haldin sunnudaginn
12. ágúst, á sama stað og í fyrra,
við “Silver Lake”, 25 mílur norð-
ur frá Seattle.
Nefndin gjörir sér alt far um,
að vanda til dagsins, svo að allir
íslendingar, ungir og gamlir, meýi
gleðjast yfir því, að koma saman
þennan dag, til þess að heilsa ætt-
ingjum og vinum og minnast ís-
lenzks þjóðernis, austan hafs og
vestan.
Ræðumenn verða valdir hinir
beztu, og sumir þeirra að líkind-
um langt að komnir. íslenzkur
söngflokkur verður til staðar,
leiddur af ágætis söngstjóra.
íþróttir af mörgum tegundum
verða sýndar, og góð verðlaun
veitt.
Þetta eru íslendingar í Seattle
og nærliggjandi bæjum á strönd-
inni, vinsamlega beðnir að festa í
minni. Síðar mun nefndin enn
greinilegar láta frá sér heyra í
þessu sambandi.
f umboði nefndarinnar,
H. E. M„
VORVÍSUR.
Til að þíða allan ís
upp er sumar runnið.
Þú hefir vors og vona dís 4
veldis-stóilinn unnið.
Þegar heiðan svip þinn sé
sálu minni hlýnar.
Eg í lotning krýp á kné
kyssi hendur þínar.
Æ þín milda máttarhönd
mínum kjörum breytir,
yfir hrjóstrug ihugarlönd
hlýjum straumum veitir.
Ljóss í heima lyftir þrá,
iífsins gildi sýnir.
Öll mín veiku vonarstrá
verma geislar þínir.
Vors og gróður gyðja væn!
— Guðs frá helgidómi. —
Heyrðu þinna barna bæn
beðna einum rómi:
tít um sjónbaugs yztu rönd
yljaðu því sem lifir.
Legðu mjúka móður hönd
mannlífs sárin yfir.
Gleddu harmi lostna lund,
liknaðu efagjörnum,
vaggaðu í væran blund
veikum manna börnum.
Öllu smáðu liðsemd Ijá
léttu þungum önnum.
Vertu stödd í verki hjá
vinnufærum mönnum.
Hryntu hverri hindrun frá,
er holla framsókn tefur.
Kendu þeim að þekkja og sjá
það sem gildi hefur.
Gerðu instu andans þrá
æðstu leiðir kunnar;
láttu gleðja og göfga þá
guðspjöll náttúrunnar.
Steinbjörn Jónsson,
—Lsb. Mbl. frá Háafelli.
, MARTIN & CO.
Vjer Eurm Aftur
að bjóða yður að kaupa hjá oss
SUMAR-KJÓLA
MEÐ
Hægum Borgunarskilmálum
^gjsÉsl^t Fyrsta boreun
Stórkostlega niðursett verð.
Vanal. $15.95 til $49.50
Nú $4.95
til $35.00
fyrir hvaða kjól sem er í búð
vorri, alt að $25.00 virði.
Nú er tíminn að
kaupa
Það er hægðarleikur að velja
tvo eða þrjá kjóla.
Meðal þeirra eru—PRINTED SILKS, CRAYSHEENS,
FUJIS, RAYONS, GEORGETTES AND
CREPES DE CHINE.
Nýjustu Gerðir og Litir
SÉRSTÖK KJÖRKAUP
$3.95 $3.95 $g.75 $0.75
$22 95 $2575 $20.75 $2^.75
MIKIÐ ÚRVAL AF KARLMANNA FATNAÐI OG KÁPUM 19.75 TIL $45.00.
OPIÐ A LAUGARDÖGyM TIL Kl. 10 E H.
Portage
og
Hargrave
MARTIN
Easy Payments Limited
L. HARLAND, Manager.
Á öðru gólfi
Wpg Piano
Bldg.
Professional Cards
DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arta Bld*. Oor. Graham og Kennedy 9ta. PHONE: 21 834 Office tbnar: 2—3 Phone: 27 122 Winnipeg, Manitoba. THOMAS H. JOHNSON H. A. BERGMAN ísL lögfræöLngar. Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Poritage Ave. P.O. Box 1656 Phione^: 26 849 og 26 840
COLCLEUGH & CO. Vér leggjum sérstaka Sherziu á aS eelja meSul eftir forskriftum lækna. Hin beztu lyf, sem hægt er aB fá, eru notuB elngöngu. Pegar þér komiS meS forskriftina til vor, megiB þér vera vlss um, aS f& rétt þaC itm læknirinn tekur tH. Nötre Dame and Sherbrooke Phones: 87 659 — 87 850 Vér seljum Glftingaleyfisbréf LINDAL, BUHR & STEFÁNS0N falenzlrlr lögfræftingar. 356 Moin St. Tals.: 24 983 peir hafa einnig ekrifatiofur aö Lundar, Riverton, Gimli og Piney. og eru þar aö hitta á eftirfylgj- andi tlmum: Lundar: Fyrsta miövikudag, Riverton: Fyrsta flmtudag, Gimli: Fyrata milövikudag, Piney: priöja föstudag I hverjum mánuöi
DR O. BJORNSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Grialiam og Kennedy 8ta. PHONE: 21 834 Office tlmar: 2—3. Helmlii: 764 Vlctor 8t. Phone: 27 686 Winnipeg, Manitoba.
J. Ragnar Jotinson, B.A., LL.B., LL.M. (Harv.) lslenzkur lögmaður. 704 Mining Exchange Bldg. 356 Main St. Winnipeg, Manitoba. Símar: Skrifst. 21 033. Heima 29 014
DR. B. H. OLSON 216 220 Modical Arts lildg Cor. Graham og Kennedy Sta. Phono: 2J 8S4 Office Hours: 8—6 Helmili: 9 21 Sherburne 8t. Wlnnipeg, Manitoba.
JOSEPH T. THORSON ísl. lögfræðingur Scarth, Guild & Thorson, Skrifstofa: 308 Great West Permanent Building Main St. south of Portage. * Phone 22 768
DR. J. STEFANSSON 210-220 Medicul Arts Bldg Cor. Graham og Kennedy Ste. Plioie: 21 834 Stundar augna, eyrna nef og kverka sjúkdóma.—Er aB hiitita kl. 10-12 f.h. og 2-5 eJi. Heimili: 373 River Ave. Tails. 4.2 691
G. S. THORVALDSON, B.A., LL.B. Lögfræðingur 709 Electric Chambers Talsími; 87 371
DR. A. BLONDAL Medical Arts Bldg. Btundar sérstaklega Kvenna og Barna sjúkdóma. Bír aS hltta frá kl. 10-12 f. h. og 3—6 e. h. Oífice Phone: 22 208 Helmili: 806 Vlctor 8t. Slml: 28 180
Residence Office Phone 24 206 Phone 24 107 E. G. BALDWINSON, LL.B. Barrister 905 Confederation Life Bldg. Winnipeg.
Dr. Kr. J. Austmann
Wynyard, Sask. A. C. JOHNSON «07 Confederation Llfe Bld*. WINNIPEG Annast um fasteignir manna. Tek- ur að sér að ávaxta sparlíé fðlks. Selur eldsábyrgð og bífnedöa ábyrgö- ir. Skriflegum fyrirspurnum Bvaraö samstundis. Skrifstofuslmi: 24 263 Heimasimi: 33 328
DR. J. OLSON Tannlæknlr 210-220 Medlcal Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: 21 834 HelmlUs Tais.: 38 826
J. J. SWANSON & CO. LIMITHD R e n t a 1 s Insurance RealEstate Mortgagei 600 PARIS BLDG., WINNPBiO. Phionea: 26 349—28 340
DR. G. J. SNÆDAL TannUeknlr 614 Somerset Block Cor. Portage Avt og Donald 8t. Talsími: 28 889
Emil Johnson SERVIOK ELKOTRIO Ratmagns Contracting — AllsJoyns rdfmagnsáhöld scld og viO þau gort Eg sel Moffat og CcClary elda- vélar og hefi þwr til synis i verh- stœOi minu. 524 SARGENT AVB. (gamla Johnaon’s byggingin vlð Young Street, Winnipeg) Verkat.: 31 507 Heima:27 186
Dr. S. J. Jóhannesson stundar almennar lœkningar 532 Sherburn St. Tals. 30 877
A. S. BARDAL 848 Shorbrooke St. Selur líkkistur og annaat um út- farir. Alíur útbúnaöur sá beetfl- minnisvaröa, og legsteina. Skriflstofu tals. 86 607 Helmllls Tals.: 58 84)9
G. W. MAGNUSSON Nuddlæknir. 609 Maryland Street (jÞriðja hús norðan við Sarg.) Prone: 88 072 Viðtalstími: kl. 10—11 f. h. og kl. 3—5 e. h.
Dr. C. H. VROMAN Tannlæknir 505 Boyd Building Phone 24 171 WINNIPEG. «
Dr. C. MUNSON, L. D. S. Dentist 66 Stobart Bldg. 290 Portage Ave. Winnipeg Phone 25 258 Fer til Gimli og Riverton. — Veitið því eftirtekt í bæjar- fréttunum.
•
SIMPS0N TRANSFER Verzla meö egg-á-dag hænsnafóður. Annast einnig um allar tegundlr flutninga. 647 Sargent Ave. Sími 27 240
Fowler Qphcal S 294 CARLTON ST. NEXT TO FREE PRESS Holmes Bros. Transfer Co. Baggage and Furniture Moving Phone 30 449 668 Alverstone St., Winnipeg ViðskiftiUlendinga óskað.
Giftinga- og Jarðarfara- Blóm með JJtlum fyrlrram BIRCH Blómsali 593 Portage Ave. Tals.: 80 790 8t. John: 2, Ring t
ANDERSON, GREENE & CO., LTD. námaséríræöingar MeÖlimir I Winnipeg Stock Ex- change. öll viðsklftl afgreidd fljótt og vel. Lindsay Bldg. 226 Notre Dame Wpg. Löpgilt af stjóm Manitoba-fylkis. Simi: 22 164. Finniö oss I sam- bandi viö námuviðskifti yðar