Lögberg - 16.08.1928, Qupperneq 8
Bls. S.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. ÁGÚST 1928.
W Jimmy, Mary og Robert eru
að borða brauð búið til úr
Rofeín Hood
FJjOUR
ÁBYGGILEG PENINGA TRYGG ING í HVERJUM POKA
Mr. Siggeir Thordarson frá
Cypress River, Man., kom til borg-
arinnar fyrir fslendingadaginn og
dvaldi hér nokkra daga.
Magnús Pétursson frá Lang-
ruth, Man., var staddur í borginni
í siðast liðinni viku.
Mr. Jón Sigurðsson frá Lundar,
Man., kom til borgarinnar í vik-
unni sem leið.
Gefin saman í hjónaband, af
séra Sigurði ólafssyni á Gimli,
þann 1. ágúst: William Thorlak-
son frá Wynyard, Sask., og Miss
Sarah Viola Forsyth, sömuleiðis
frá Wynyard, Sask., Brúðguminn
er sonur Mr. Thorlaks Schram á
Winnipeg Beach, en brúðurin af
skozkum ættum. ^
Mr, W. H. Paulson, fylkisþing-
maður og frú hans komu til borg-
arinnar um mánaðamótin síðustu,
frá Leslie, Sask., þar sem þau eiga
heima og hafa verið hér eystra
síðan. Mr. Paulson var einn af
ræðumönnunum á íslendingadeg-
inum í Riverton hinn 6. þ.m. í
vikunni sem leið fór Mr. Paulson
suður til N. Dakota til að sækja
fundi, sem heimferðarnefndin
hefir verið að halda þar í íslenzku
bygðunum fyrir og um síðustu
helgi.
Þann 8. ágúst gaf séra Sigurð-
ur ólafsson saman í hjónaband
þau : Mr. Sigurð Stanley Einars-
son og Miss Herdísi Helgason. Er
brúðguminn sonur Mr. og Mrs.
Sigurður Einarsson, er búa í Mín-
erva-bygð, vestanvert við Gimli;
en brúðurin er dóttir Mr. og Mrs.
Þorfinns Helgason í Nes P. 0.,
Man.; er faðir hennar látinn fyr-
ir allmörgum árum, en móðir
hennar býr þar enn með sumum
barna sinna. Heimilisfang ungu
hjónanna verður á Gimli.
í eyðimörkinni.
Þupgt er að þreyja’ í skugga,-
þora’ ekki’ að ganga inn.
BlDcar í Boston glugga
blessaður dalurinn!
x. x.
William Sigurður Johnson, 48
ára gamall, andaðist á spítalanum
í Yorkton, Sask., þ. 29. júlí s.l. Var
fæddur í Nýja íslandi þ. 8. marz
1880, sonur merkishjónanna Sig-
urðar Jónssonar, er nú býr i grend
við Churchbridge, og fyrri konu
hans, Þóru Hannesdóttur, sem
látin er fyrir mörgum árum. Hinn
látni var ihermaður I stríðinu mikla
og náði aldrei' fullri heilsu eftir
þann hildarleik. Þegar heim kom,
stundaði hann búskap í félagi við
bræður sína, Eggert og Pálma, ná-
lægt Chur<?hbridge. Þar
grenninu býr og systir hans,
Rannveig Hansína, gift Júlíusi
Skaalerud, norskum bónda. Þrjú
hálfsystkini Williams Sigurðar eru
á lífi, Marteinn Ingólfur, Valdi-
mar Helgi og Sigrún Helga Jón-
ína, börn Sigurðar Jónssonar og
síðari konu hans, Pálínu Mar-
teinsdóttur. Auk þess lifa tvö upp-
eldissystkini hins látna, börn Pál-
ínu af fyrra hjónabandi, en því
miður er sá, er þessar línur ritar,
óviss um nöfn þeirra. Er því ást-
vinahópurinn er syrgir hinn látna
íslenzka mann æði stór, auk
margra annara góðvina út í frá.
Jarðarförin fór fram frá kirkju
Þingvallanýlendusafnaðar þ. 31.
júlí. Séra Jóhann Bjarnason jarð-
söng. Sömuleiðis talaði þar séra
Jónas A. Sigurðsson, er kom þar
að á ferðalagi frá Winnipegosis.
Margt fólk viðstatt.
“TIL ÞEIRRA, SEM ÞAÐ
SNERTIR.”
Samkvæmt ósk nokkurra landa
minna vestan hafs, hefi eg leitað
mér þessara upplýsinga, þeim til
leiðbeiningar, sem biðja um vott-
orð að heiman:
Þjóðskjalavörður, dr. Hannes
Þorsteinsson í Reykjavík, veitir
gömlu fólki fæðingarvottorð, þar
eð allar gamlar kirkjubækur ís-
lenzkar eru komnar í Þjóðskjala-
safnið í Rvík. Sumstaðar hafa
þær þó brunnið áður en þær voru
fluttar til safnsins, og þá erfitt
um vottorð, en geti hann ekki veitt
þau eða útvegað, geta það ekki
aðrir hérlendis. Gjald fyrir slík
vottorð er 1 kr. og burðargjald
vestur að auk. Þegar hann þarf
að skrifa eftir upplýsingum, sem
ekki eru komnar til safnsins, þarf
gjaldið að vera að minsta kosti
tvöfalt •—
Er því vissast að senda að m. k.
50 cent. með hverri slíkri beiðni,
en eðlilegast er að snúa sér beint
til þjóðskjalasafnsins með þær
beiðnir. — En slík fæðingarvott-
orð eru öil á íslenzku, prentuðum
eyðublöðum, og þurfi þau að vera
á ensku, verður viðkomandi að fá
einhvern til að þýða þau. Öll op-
inber vottorð hér, eru gefin á
tungu þjóðarinnar.
Reykjavík, 20. júlí 1928.
Sigurbjörn Á. Gíslason.
Mr. Jónas Helgason frá Baldur,
Man., og Erlendur sonur hans,
voru staddir í borginni á þriðju-
daginn.
iSunnudaginn 19. ágúst verða
í ná- engar guðsþjónustur fluttar í
prestakalli mínu, vegna þess að
eg býst við að verða fjarverandi
um þá helgi. En guðsþjónustur
sunnudaginn 26. ágúst verða aug-
lýstar nákvæmlega í næsta blaði.
H. Sigmar.
Wooderlaiidl Theatre
Dagleg sýning frá kl. 2 til 11 e. h.
Heldur áfram samkvœmt beiðni
BEN-HUR
Leikurinn byrjar kl. 1.30, 4.25. 6.55 9.20
Dyrnar opnaðar kl. 12.30
!
Mánudag, Þriðjudag og Miðvikudag
GRETA GARBOí
The Divine Woman
Gamanleikur og The Vanishing Rider No. 8
Bráðum kemur leikurinn
The Haunted Island
KENSLU
í IX. — XII. bekkjar námsgrein-
um veita í Jóns Bjarnasonar
skóla:
i Agnar R. Magnússon, s. 71 234
■ og J. G. Jó'hannsson, sím. 22 133
Gjafir til Hallgrímskirkju.
Siggeir Thordarson,
Cypress River,........... $1.00
Mrs. Jónas Helgason, Wpg. $2.00
/ Áður auglýst .......... $439.35
Als nú
E.
$442.35
P. J.
Guðsþjónusta boðast í Foplar
Park sunnudaginn 19. ágúst í húsi
Mrs. T. A. Anderson, kl. 2 e. h.
— S. S. C.
VEITIÐ ATHYGLI.
Stúkan Hekla, I.O.G.T., fer nú
að vinna að hinni árlegu sjúkra-
sjóðs tombólu, sem að öllu for
fallalausu verður haldin um eða
eftir miðjan september. Nefndin
ROSE LEIKHÚSID
Hjálpræðisherinn bjargar annari
stúlku.
Myndin “Salvation Jane”, með
Viola Dana í aðal hlutverkinu,
verður sýnd á Rose leikhúsinu þrjá
næátu daga.. Þetta er stórhrífandi
kvikmynd. ■— Mánudag, þriðjudag
og miðvikudag í næstu viku, sýn-
ir Rose leikinn “Don’t Tell the
Wife”, sem er einn sá skemtileg-
asti leikur, er hugsast getur.
WONDERLAND.
Greta Garbo sýnir framúrskar-
andi mikla leikhæfileika í leiknum
“The Divine Woman” á Wonder
land leikhúsinu, og þeir sem með
henni leika, leysa líka sín hlutverk
prýðisvel af hendi. Leikurinn er
bæði fallegur og skemtilegur.
fé&
Leiðrétting. — í fréttagreininni
“Heimsókn”, sem birtist á fyrstu
síðu siðasta blaðs, um heimsókn
kvenfélags Fyrsta lút. safnaðar
til Betel þann 18. júlí s.l., hefir sú
villa slæðst inn, að kvenfélagið
hefði fyrir tuttugu og átta árum
lagt fram sína fyrstu fimm dali,
til að byrja með gamalmennaheim-
ilissjóð. Það voru ekki fimm dal-
ir, heldur fimtíu, sem félagið við
það tækifæri lagði af mörkum.
Leiðrétting þessa eru allir hlut-
aðeigendur vinsamlega beðnir að
taka til greina.
Harry J. Larson, maður af
danskri ætt og banka starfsmað-
ur í Winnipeg, og ungfrú Louise
Bjarnason, dóttir hinna valin-
kunnu hjóna, Þórðar Bjarnason’ar
og Vigdísar konu hans, í Selkirk,
Man., voru gefin saman í íslenzku
kirkjunni í Selkirk 4. ágúst s. 1. af
séra Jónasi A. Sigurðssyni. Var
vígsl'uathöfnin hátíðleg og fjöl-
menn. Að lokinni hjónavígslu
siátu nánutsu vinir og vandamenn
brúðhjónanna veizlu á heimili
Bjarnason’s hjónanna. Fór þar
alt fram með hinni mestu risnu
og höfðingsskap. Ungu hjónin
eru á ferðalagi suður í Bandaríkj-
um. Framtíðarheimil i þeirra
verður 'í Winnipeg.
Gift voru, 1. þ.m., Olivór B.
Olsen og Rose Johnson. Fór sú
athöfn fram að heimili foreldra
brúðurinnar, Helga Johnson og
Ástu konu íhans, 1023 Ingersoll
St. Séra Björn B. Jónsson fram-
kvæmdi hjónavígsluna. Allmargt
bóðsgesta var viðstatt. Húsið var
skrýtt mjög fagurlega. Veizlu-
kostur var rausnarlegur og veizl-
an glaðvær og ánægjuleg í alla
staði. Ungu hjónin hafa síðan
verið í skemtiför suður um Banda-
ríki.
Fjöldi af Gjöfum.
Sendið strax eftir verðlaunaskrá
vorri. Hún sýnir muni úr silfri og
silki, leikföng, húsmuni, er þér fá-
ið ókeypis, ef þér passið verðmið-
ana af Royal Crown Soaps og
Household Cleansers. Sendið aug-
lýsing þessa með bréfinu. Þá send-
um vér 5 verðmiða með skránni.
The Royal Crown Soaps, Ltd.
Winnipeg og Calgary. 29
NÝJAR BIRGÐIR
Gefin voru saman í hjónaband l
Fyrstu lútersku kirkju, 11. þ.m.,
John Vincent Forrest og Idora
Augustine Sigurðson. Dr. Björn
B. Jónsson framkvæmdi athöfn-
ina. Að Iokinni athöfninni í
kirkjunnl sátu margir vinir og
ættingjar ríkmannlega veizlu að
heimili föður brúðarinnar, Hall-
dórs Sigurðssonar, 894 Banning
St. Um kvöldið lögðu brúðhjónin
af stað í skemtiferð til Montreal
og annara staða austur þar.
Séra Rúnólfur Marteinsson kom
heim á föstudaginn í vikunni sem
leið vestan frá Saskatchewan. Hef-
ir hann ferðast um bygðir íslénd-
inga þar vestra um þriggja vikna
tíma í erindum Jóns Bjarnasonar
skóla.
þ. 15. júní næstliðinn voru þau
Bernhard Dumont Jacobs og Grace
Ethel Frederickson, bæði frá
Kristnes, Sask., gefin saman í
hjónaband af séra Carli J. Olson,
á heimili hans að Wynyard, Sask.
Dr. Tweed verður í Árborg á
miðvikudag 29. og fimtudag 30.
þessa mán.
MARYLAND l SARGENT
SíRIIICE STATiON
[1=1]
Gas, Oils, Tires,
Accessories and Parts
Greasing and Car Washing.
Brake Relining Service
New Cars
GRAHAM — PAIGE and
ESSEX
Firestone Tires
Also Used Cars
Ö==D
Bennie Brynjólfsson, Prop.
Phone: 37 553
KJ0LUM
RÉTT NÝKOMNA
G0TT V£RÐ
$12.95 til $24.75
Með Hægum Borgunar-
Skilmálum
Allir Vorir Marglitu
og einlitar Rayons, Craysheens,
Fujis og Silki Crepes kjólar. —
Ermalausir og með ermum.
MJÖG NIÐURSETTIR A
$3.95 til $9.75
Gefið að Betel í júlí.
Mr. og Mrs. Smith, Minnea-
polis, Minn.............. $5.00
Jónas Thorvardsson, Wpeg 2.00
Kristján Bergsveinsson, Wyn-
yard, Sask ............... 5.00
Hannes Lindal, Wpg ......... 1.00
F. H. Bjerring, Wng..........2.00
Mrs. R. Johnson, Wynyard .... 5.00
Miss Vala Jónasson, Wpg .... 1.00
Mrs. Guðr. Jóhannsson, Wp. 2.00
Mr. og Mrs. H. Hjálmarson,
Betel ................. .... 5.00
Mr. og Mrs. Ág. Arason,
Glenboro................. 10.00
Mr. og Mrs. Joseph Walter,
Gardar, N. Dak........... 50.00
Þórður Bjarnason, Skíðastöðum,
Nes P.O., 4 bush. kartöflum, 12
dúsín egg.
Til féhirðis:
Kvenfél. Herðubreiðar safn..
Langruth ............... $25.00
Sigríður Bjarnason, Wpg..... 5.00
Kærar þakkir,
Jónas Jóhannesson, féh.
675 McDermot Ave.
R
O S
Theatre
E
Sargent and Arlington
Fallegasta Leikthúsið í vest-
urhluta borgarinnar.
Fimtud. Föstud. Laugard.
(Þessa viku)
Stórkostlegt! Hræðilegt!
“Hook and Ladder
No. 9”
The Big Brother of “THE
THIRD ALARM”
Einnig
VIOLA DANA
í leiknum
“Salvation Jane,>
Comedy-------Fables
Mánúd. Þrijud. Miðv.d.
‘DontTell the Wife,
Leikið af
IRENE RICH 1
Áfar hlægileg saga af við-
vaningi í París að vorlagi
. Og að auki:
“A Short Tail”
COMEDY
NEWS
EGILL H. FAFNIS,
(guðfræðanemi)
f samsæti hjá Templurum, er hann
fór til guðfræðaskóla í Chicago.
Þín vegsemd í “Heklu” verður ei
duld,
nú vitna það meðlimir góðir,
þeir dá þig einnig í deildinn
“Skuld”,
sém dugandi reglubróðir.
Oss bagar í svipinn á bak þér
að sjá, *
þó breytist ei samvinnuþráin—
,Okkur þú hverfur nú alls ekki frá
til ónýtis suður í “bláinn”.
Liðsmaður góður um lög og torg,
hjá leikmönnum skartar og
prestum, —
Þú, Egill, ert líkur Agli á Borg
í atgerfisdráttunum flestum.
Hvað sem helzt færðu ritað og
rætt,
og reynir á afl þitt margskonar,
bendir þú jafnan eitthvað í ætt
til, E)gils iSkallagrímssonar.
Fólkið þig kveður með góðhug og
glatt,
gæfu í framtíð þér spáir;
óskar að mæti þér ekkert svo
bratt,
að yfir þaS. stígið ei fáir.
Fáfnis, þér hefir víst fallið í
skaut
flest það, sem ófærur brúar. (
Aukist þér stöðugt um ófaran
bratt
orkan—til guðdóms og trúar.
Guðjón H. Hjaltalín.
ÍSLENZKIR FASTEIGNA-
SALAR
Undirritaðir selja hús og lóðir;
og leigja út ágæt hús og íbúðir,;
hvar sem vera vill í bænum.
Annast enn fremur um allskon-!
ar tryggingar (Insurance) og
veita fljóta og lipra afgreiðslu
ODDSON og AUSTMANN
521 Somerset Bldg. Sími 24 664!
PbbpIbsb JaunárY
vb —naaig—aamiwiMip «■—a—muMntaml'
55-59 Pearl Street Símar 22 818—22 819
Wet Wash, 5c. pundið; minst 35c.
Semi-Finished 8c. pund, minst 64c. Þvottur fullgerður.
Búðin opin á laugard. til kl. 10.
M kið úrval af Karlmanna Fatnaði og Kápum á $24 03 $35.
3: martin »rn. 3.
Easy Payments Limited
L, HARLAND, Manager
FUNDIR
til undirbúnings fiskisamlaginu, verða haldnir á eftir-
fylgjandi stöðum:
SELKIRK: mánudaginn 20. ágúst, kl. 2 e. h.
/
Gimlj: sama dag kl. 8 að kveldi.
ARNES: þriðjudaginn 21. ág., kl. 2 e. h.
RIVERTON: sama dag, kl. 8 að kveldi.
HECLA: miðvikudaginn 22. ág. kl. 2 e. h.
ÍZ5Z5H5H5H525E5H5H5£5E5HS2SE5H5HSZ5H5H5H5H5H5Z5H525ZSa52SZ5a5HSH5H5
S $
a
a
S
a
a
ki
p
S
a
3
a
3
3
f3
P
3
=0
íl
3
A Strong,
Business
Reliable
School
UPWARD OF 2000 ICELANDIC STUDENTS HAVE
ATTENDED THIS COLLEGE SINCE 1909.
The Success College, of Winnipeg, is a strong,
reliable school—its superior service has resulted
in its annual enrollment greatly exceeding the
yéhrly attendance of all other Business Colleges
in the whole Province of Manitoba, Open all
the year. Enroll at any time. Write for free
prospectus.
a
a
a
ffl
a
a
a
a
a
a
a
a
a
jo
a
s
a
£
£
£
a
3
'H5H5H5H5H5E5H5H5H5H5H5H5H5HSH5H5P5H5E5H5H5H5H5H5H5HSH5H5H5H5H5H5H5-
BUSINESS COLLEGE, Limited
385V2 Portage Ave. — Winnipeg, Man.
EINN FYRIR
YÐUR
í vörubirgðum vorum af
af Kæliskápum; allar
tegundir, allar stærðir
* og allir eins og spáný-
jr skápar, en seldir meö
reglulegu gjafverði frá
$10 og yfir. Fáið þér
/ður einn, meðan þeir
eru til.
<RCTIC.'.
ICEsFUELCatTO.
439 PORTAGE AVL |
OetKfSJt* Hud*on+ £
PHOHE
42321
ÞJ0ÐLEGASTA
Kaffi- og Mat-söluhúsið
uem þessi borg heflr nokkurn tlin*
haft lnnan vébanda slnim.
Fyrirtaks máltíöir, skyr, pöniiu-
kökur, ruilupydsa og þjóBrajkniS'
lcaffi. — Utanbæjarmenn fá aé
ávalt fyrst hresslngu á
WEVEIi CAFE, 682 Sargent Avt
Simi: B-3197.
Rooney Stevens, eigandu.
DRS. H. R. & H. W. TWEED
Tannlæknar.
406 Standard Bank Bldg.
Cor. Portage Ave. og Smith St.
Phone 26 545, Winnipeg
‘Geysir”, íslenzka bakaríið, 724
Sargent Ave., talsími 37 476. —
Tvíbökur seldar nú á 20c. pundið
þegar tekin eru 20 pund eða meira.
Kringlur á 16 eent. Pantanir frá
löndum mínum úti á landi fá
fljóta 0g góða afgreiðslu.
G. P Thordarson.
KEENO
Eins og auglýst er í dagblöðun-
um, fæst það í Winnipeg hjá
Tlie Sargent Pharmacy Ltd.
709 Sargent Ave. Winnipeg
Sími 23 455
Verð: ein flaska $1.25, þrjár
flsk. $3. Póstgj. 15c og 35c.
DINfiVIÍIM-.
flMERICfiN
Stór og
Hraðskreið
Gufuskip
frá New York
til ISLANDS:
United States ...
Helig Olav ..
Oscar II ....
Frederik VIII
United States
... 25. ágúst
.. 1. sept.
.. 8. sept.
... 15. sept.
... 29. sept.
“TOURIST” 3. farrými
fæst nú yfir alt árið á “Hellig
Olav”, “United States” og “Os-
car II.” ásamt 1. og 3. fl. farr.
Mikill afsláttur á “Tourist” og
3. fl. farrými, ekki sízt ef far-
bréf eru keypt til og frá 1 senn.
Fyrsta flokks þægindi, skemti-
legar stofur, kurteys umgengni,
Myndasýningar á öllum farrým-
um. — Farbréf seld frá Islandi
til allra bæja í Canada. Snúið
yður til næsta umb.m. eða
Scandinavian-American Line
461 Main St., Wpeg.
1410 Stanley St., Montreal
1321 Fourth Ave, Seattle, Wash,
ALLAR TEGUNDIR FLUTN-
INGA.
Nú fer að líða að vorflutning-
um og er þá tryggast og bezt að
leita til undirritaðs.
JAKOB F. BJARNASON
662 Victor St. Sími 27 292
A. SŒDAL
PAINTER and DECORATOR
Contractor
Painting, Paperhanging and
Calsomining.
572 Toronto St. Phone 71 462
Tals. 80 623. Heimili: 88 026
C. J0HNS0N
675 Sargent Ave.
Umboðsm. fyrir Hecla Furnace
Allar viðgerðir gerðar.
Áætlanir gerðar ýður að
kostnaðarlausu.
CONNAUGHT HOTEL
219 Market St. gegnt City Hall
Herbergi yfir nóttina frá 75c
til $1.50. Alt hótelið nýskrejrtt
og málað, hátt og lágt. — Eina
íslenzka hótelið í borginni.
Th. Bjarnason, eigandi.
1