Lögberg - 13.09.1928, Qupperneq 1
41. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 13. SEPTEMBER 1928
NOMER 37
Canada.
Mikill fjöldi manna vinnur nú
stöðugt við byggingu Hudsonsflóa
járnbrautarinnar og segja síðustu
skýrslur, að verkinu miði vel á-
fram og sé alls ekki á eftir áætl-
un, og eru því allar líkur til, að
byggingu brautarinnar verði lok-
ið seint á næsta ári, eins og til er
ætlast Einnig er fjöldi manna að
vinnu í Churchill, því þó höfnin
sé góð frá náttúrunnar hendi, þá
er þar mikið verk að vinna, áður
en hún er orðin eins og hún á að
verða og eins og hafnir þurfa að
vera. Væntanlega verður þessu
mikla verki lokið einhvern tima á
árinu 1930, og brautin því tekin
til afnota og siglingar hefjist um
Hudsons flóann.
* * *
John Queen, leiðtogi verka-
mannaflokksins í Manitoba þing-
inu, er nýkominn heim úr tíu
vikna ferðalagi um England,
Wales og Skotland. Segist hann
hafa haft imikla ánægju af ferða-
laginu, en vænst af öllu þyki sér
að vera kominn heim til Winnipeg.
Hann segir eins og aðrir, að at-
vinnuleysið á Bretlandi sé afar-
Iskyggilegt um þessar mundir.
Hann heldur, að það hafi verið
heldur fljótráðið að senda svona
marga námumenn hingað vestur
til að vinna hér að uppskeruvinnu,
«ins og gert hefir verið, og hefir
litla trú á að það blessist.
* * *
Þess var getið hér í blaðinu í
júnímánuði, að tveir menn í Win-
nipeg, W. T. Alexander og E. L.
Taylor, K.C., hefðu verið teknir
fastir og sakaðir um fjárdrátt, eða
óráðvendni í meðferð fjármuna,
tilheyrandi félögum, er þeir voru
við riðnir. Dómsmálastjórnin hef-
ir nú komist að þeirri niðurstöðu,
að málsókn gegn E. L. Taylor sé
ástæðulaus, og er hann því laus
við þetta mál, en málsóknin gegn
W. T. Alexander heldur áfram og
sömuleiðis gegn bróður hans,
H. Alexander.
* # *
Brezku kaupamennirnir, sem
lcomu í þúsunda tali til að vinna
við uppskeruna hjá bændum í
Vestur-íCanada, hafa ekki reynst
eins vel og æskilegt hefði verið og
þeim finst að ferðin hafi ekki
reynst sér eins og þeir gerðu sér
vonir um. Um þrjú hundruð og
fimtíu af þeim voru aftur sendir
heim í vikunni sem leið, og marg-
Ir aðrir þeirra hafa komið síðan
til Winnipeg, til og frá að vestan,
og eru alveg frá því að vinna leng-
ur hjá bændunum í Canada. Hafa
þeir sumir hverjir illar sögur að
segja og láta hið hraklegasta af
allri meðferðinni á sér, bæði á
leiðinni, en sérstaklega hjá bænd-
unum. Sumir segjast ekkert hafa
fengið að gera, aðrir að þeir hafi
ekki fengið nærri nógu hátt kaup,
og enn aðrir, að sér hafi ekki fall-
ið vinnan, því hún sé bæði erfið
og vinnutíminn, á hverjum degi,
alt of langur, og margt fleira þyk-
ir þeim að vera. Sumir af þessum
mönnum virðast hafa átt það eitt
erindi hingað vestur, að vekja óá-
nægju hjá félögum sínum, og hóta
því óspart, að þeir skuli gera það
sem þeir geti til að koma í veg
fyrir, að fólk flytji frá Bretlandi
'fcil Canada.
Það er ekki ólíklegt, að bænd-
urnir eigi einhverja sök á þessu.
Það er mjög sennilegt, að ein-
hverjir þeirra hafi reynt að fá
þessa menn til að vinna fyrir sig
fyrir óheyrilega lágt kaup, og
kannske líka haft litla þolinmæði,
þegar mennirnir kunnu illa það
sem þeir áttj^ að gera, og voru
sjálfsagt sumir ekki vél duglegir.
Innflutningadeild sambands-
stjórnarinnar lítur svo á, að þess-
ir menn hverfi ekki aftur að svo
búnu vegna þess, að ekki sé nóga
vinnu að fá, og farast henni orð,
meðal annars, sem hér segir:
“Þeir 328 brezku kaupamenn,
sem á laugardaginn lögðu á stað
heimleiðis frá Winnipeg, gerðu
það ekki vegna þess, að ekki sé
nóga vinnu að fá, heldur vegna
þess, að það voru samantekin ráð
þeirra, að neita vinnu fyrir fjóra
dali á dag, og sumir þeirrá voru
ekki hæfir til uppskeruvinnu.”
En þó þetta hafi nú ekki gengið
að óskum, þá eru samt langflest-
ir af þessum mönnum, sem frá
Bretlandi komu, nú að vinna hjá
bændum víðsvegar í Vestur^Can-
ada og mikill meirihulti þeirra
mun reynast sæmilega vel og
bændurnir ánægðjj með þá. Það
væri því ekki rétt, að líta svo á,
að þetta ráð hafi með öllu mis-
tekist, þó lítið verk liggi eftir
marga þessa brezku kaupamenn,
enda hverfa þeir heim með lítinn
arð.
# » , *
Stjórnarráðsfundur var haldinn
í Ottawa á laugardaginn til að
komast að einhverri niðurstöðu
um Sjö-stystra-fossana. En niður-
staðan varð nú samt engin í það
sinn, enda mættu á fundinum að-
eins fjórir af ráðherrunum. Á
fundinum mætti Mr. J. T. Thor-
son þingmaður frá Wiiínipeg fyr-
ir hönd sambandsþingmannana frá
Manitoba, sem eru því mótfallnir
að Winnipeg Electric félagið fái
leyfi til að virkja fossana. Bar
hann þar enn fram mótmæli gegn
því, að félagið fengi þetta leyfi.
En þar sem ekkert var útgert um
málið á þessum fundi, þá fór Mr.
Thorson heim til Winnipeg, en
skildi eftir skrifuð mótmæli sín,
handa hinum ráðherrunum að at-
huga, sem ekki heyrðu hann í
þetta sinn, þegar næsti fundut
yrði haldinn um þetta mál, sem
búist er við að verði innan fárra
daga.
Bandaríkin.
Frétt frá Washington segir, að
póststjórnin á Þýzkalandi hafi til-
kynt, að þýzkt loftfar, “Count Zep-
pelin”, fari tvær eða þrjár ferðir
í september og október milli Fred-
erischhafen á Þýzkalandi og Lake-
hurst, N. J. Loftfarið flytur póst
til þessa lands og tekur við sendi-
bréfum og bréfspjöldum til Ev-
rópu, engum öðrum pósti. Póst-
gjaldið fyrir hvert bréf á að verða
$1.00, auk venjulega póstgjalds-
ins, og 50c. fyrir hvert póstspjald.
Tveir menn, Arthur Goebel og
Harry Tucker, hafa nýlega flogið
frá Los Angeles til New York á
átján klukkustundum og fimtíu og
átta mínútum, og komu hvergi við
á leiðinni. Er þetta fljótasta ferð
sem enn hefir farin verið milli
Kyrrahafs og Alantshafs.
• * #
%
Skipið City of New York sigldi
hinn 25. f. m. frá New York og
hafði innanborðs mikinn farang-
ur fyrir Byrd heimskauta leiðang-
urinn og þrjátíu og einn af þeim,
sem þátt taka í förinni.
* * *
Robert H. Ingersoll, sem Ing-
ersoll úrin alþektu eru kend við,
er nýlátinn í Denver, Col. Fyrir
34 árum bilaðist hann á heilsu og
var árum( saman rúmfastur og
náði sér alderi aftur. En áður en
hann misti heilsuna, hafði hann
fundið upp þessi ódýru úr, sem
alstaðar í Norður-Ameríku voru
seld, fyrir einn dal, og stofnað fé-
lag til að búa þau til og hefir það
jafnan haldist við síðan, þangað
til í fyrra, að það varð fyrir fjár-
hagslegum óhöppum og gekk þá
inn í annað félag. En á þeim 35
árum, sem það starfaði, bjó það til
og seldi áttatíu miljónir af þess-
um ódýru, en sæmilega góðu úr-
um. Og víst er um það, að marg-
an drenginn hafa þau glatt,"sem
ekki átti kost á betra og dýrara
úri. En flestir þeirra vita líklega
engin skil á mótlætismanninum,
sem fann þau upp og sem nú er
nýdáinn.
# » #
iSíðustu fréttir segja, að hveiti-
uppskeran í Bandaríkjunum muni
jafnvel verða enn meiri heldur en
búist hefir verið við, en verð á
hveiti er miklu lægra en það hefir
lengi verið. Halda margir bænd-
ur hveiti sínu í von um hærra verð
síðar, en mikið af hveiti hefir þó
verið selt á 75c til 85c. mælrinn.
Sama er að segja um fletsar aðr-
ar korntegundir, að verðið er lágt
og kartöflur eru nú í svo lágu
verði, að ýmsir bændur, í North
Dakota að minsta kosti, gera ráð
fyrir að taka þær ekki upp úr
görðunum, nema til heimaþarfa.
Aftur eru nautgripir og svín og
fé í háu verði og sömuleiðis ný-
mjólkur afurðir.
Bretland.
A. J. Cook, skrifari allsherjar-
námamannafélagsins á Bretlandi,
var einn daginn í vikunni sem
leið að halda ræðu í London, og
'kom það þá fyrir, þegar hann var
að tala sem ákafast, að það stein-
leið yfir hann, svo það varð að
bera hann burtu og raknaði hann
þá fljótlega við aftur. Þegar
þetta kom fyrir, var hann með
miklum ákafa að halda því fram,
að námamennirnir, eða verkamenn
yfirleitt, ættu að varast að semja
frið við verkveitendur, eða reyna
að koma á sáttt og samlyndi í
iðnaðarmálum, eins og Lord Mel-
chett og fleiri hafi haldið fram, að
væri helzta úrlausnin til að gera
iðnaðinn arðsaman og kjör verka-
manna aðgengilegri. Cook þessi
virðist ekki geta hugsað sér ann-
að, en sífeldan ófrið og deilur,
þegar um verkamannamál er að
ræða.
Hvaðanœfa.
Auk þeirra fimfán þjóða, sem
upphaflega skrifuðu undir Kel-
logg friðar sáttmálann, er þeim
þjóðum stöðugt að fjölga, sem tjá
sig viljugar til að undirrifa þann
sáttmála og eru þar á meðal Rúss-
ar Kínverjar. Danska stjórnin
hefir tilkynt, að hún aðhyllist
sáttmálann, ef þingið samþykki
það. Flestum þjóðum mun nú hafa
verið boðið að undirskrifa þennan
sáttmála og þar á meðal íslend-
ingum.
Frá íslandi.
Reykjavík, 6. ág.
Halldór Kiljan Laxness, rithöf-
undur, hefir verið vestur í Los
Angéles'að undanförnu og segir
svo í bréfi þaðan að vestan, að
hann hafi samið kvikmyndaleik-
rit, sem félag í Hollywood hafi
keypt af honum fyrir 50 þúsund
dollara, og eigi að taka myndina
hér heima að sumri. Þetta mun
fá vinum hins unga rithöfundar
mikillar gleði ef satt er.—Vísir.
Þjórsá, 6. ágúst.
Heyskapur gengur vel. Hey hirt
eftir hendinni. Túnasláttur langt
kominn, flestir búnir að hirða af
túnum. — Skeiðaáveitan brást í
vor. Áin varð snemma svo vatns-
lítil, að nóg vatn náðist ekki. Um
Flóaáveituna er það að segja, að
þar náðist nægilegt vatn á undir-
búnu svæðin og er þar ágætt gras;
ýmsir úr nærsveitunum munu
hugsa til þess að fá þar slægjur,
þótt fráleitt verði afgangs slægj-
ur handa öllum sem þurfa.—Vísir.
Keflavík, 6. ágúst.
í gær veiddust 20 tn. af síld í
lagnet, í Njarðvíkunum og Kefla-
vík. Ishúsin hérna ætluðu að
taka 1000 tn. og 1200 tn. síldar,
en hafa að eins fengið 200 og 300
tn. — Síldin er svo smá, að hún
veiðist ekki í reknet. Horfir til
vandræða með beitusíld, nema hún
fáist einhvers staðar að, en verður
þá dýr. — Langt komið að hirða
af túnum. í görðum stendur vel.
—Vísir.
Reykjavík, 25. júlí.
Þorbjörg Árnadóttir heitir ung
ísl. hjúkrunarkona, sem undan-
farin ár hefir dvalið erlendis til
að fullkomna sig í hjúkrun. Eft-
ir að hafa stundað hjúkrun hér
fór hún til Kaupmannahafnar og
síðan til Ameríku og hefir nýlega
lokið prófi við stóran spítala í Se-
attle með einhverjum hæsta vitn-
isburði, sem gefinn var við það
próf. Síðan mun hún ætla til
1 hvaða skóla
á eg að senda barnið mitt?
Björgvin Guðmundsson,
A. R. C. M.
Hér birtist mynd af manni, sem
allir Vestur-íslendingar þekkja.
Eitt af því fáa, sem þeim á seinni
árum hefir komið saman um, er að
sýna honum verðugan sóma. Nú
býður hann sig fram sem kennara
í ýmsu því, er snertir söngfræð-
ina, og má búast við því, að Í3-
lendingar noti tækifærið til að
komast í sem nánust kynni við
þessa fögru list.
Af dásamlegum velvildarhug
gagnvart Jóns Bjarnasonar skóla,
býður Mr. Guðmundsson að flytja,
á þessum vetri, í skólanum, einn
fyrirlestur á viku um söngfræði-
leg efni. öllum nemendum Jóns
Bjarnasonar skóla gefst kostur á
að njóta þessa gullvæga tæki
færis.
Þegar, þér foreldrar, eruð að
hugsa um, hvert þér eigið að
senda börnin yðar, í skóla á þess-
um vetri, getið þér annað en gef-
ið gaum að þessu?
Þarf að athuga.
Bezt væri fyrir þá, sem hafa
í hyggju að nota tilboð vort um
fría kenslu á þessum vetri í 9.
bekk, að fresta því ekki mjög
New York til enn frekara náms og
þá heim hingað.
Séra Friðrik Friðriksson hefir
síðastliðinn mánuð ferðast um
Austfirði, samkvæmt boði þangað,
og haldið guðsþjónustur og flutt
erindi á ýmsum stöðum, Sumstað-
ar tvær eða fleiri samkomur, þar
sem aðsókn var mikil, en fólk sótti
þær víðsvegar að
Séra Hálfdán Helgason á Mos-
felli hefir vérið settur til að þjóna
Þingvallaprestakalli.
Blúnaðarsamband Austurlands
hélt aðalfund sinn á Egilsstöðum
22 og 23. f. m. og mintist þá má a.
aldarfjórðungs afmælis síns.
Norænt leikhús á að opna í
haust í Lubeck er sýni eingöngu
norræn leikrit Meðal fyrstu leik-
ritanna, sem sýnd verða, er
Stjarna eyðimerkurinnar eftir
Kamban—Lögr.
Reykjavik, 1. ágúst.
Páll Torfason, fjármálamaður,
er nýkominn hingað frá Kaupm.-
höfn ásamt frú sinni, og átti hann
sjötugsafmæli í gær. Þau hafa
dvalið erlendis mörg undanfarin
ár, en munu nú hafa í hyggju að
setjast hér að, og er Páll nú fram-
kvæmdarstjóri námu- og fossafé-
lagsins vestfirzka og hugsar til
að vekja það til nýs lífs. Hann er
enn ungur 1 anda og ódeigur. Hef-
ir hann fengist við margt um dag-
ana, og fyrir hans forgöngu var
það mest, svo sem kunnugt er, að
Islandsbanki var stofnaður
Síldarafli er fremur tregur um
þetta leyti I bræðslu norðanlands
hafa verið settar 40 þús tn.
Refaveiðar hafa víða verið all-
góður atvinnuvegur undanfarið,
því mórauðir refir eru í allmiklu
verði. 1 Skagafirði og Húnavatns-
sýslu fengu nokkrir menn í vor
10—20 yrðlinga og nýlega náði
maður í Jökulsárshlið 10 hvolpum
og seldi þá fyrir 1300 kr. og anif
ar maður í Yopnafirði 20 hvolp-
um, sem hann seldi fyrir 1700 kr.
Á Akureyri á innan skamms að
fara að reisa nýjan barnaskóla,
fyrir 250 börn. Sennilega verður
sundiaug við skólann, og veitt í
hana heitu vatni úr lítilli laug í
Glerárgili
lengi, að láta mig vita um þá fyr-
irætlan sína. Það verður, að
minsta kosti stærri hópur í þeim
bekk iþetta ár, ef engin slys ber að
höndum, en hefir verið nokkur
undanfarin ár. Þetta er sérstak-
lega gott tækifæri fyrir sveitafólk,
sem ekki á kost á 9. bekk nálægt
heimili sínu, og enn fremur fyrir
bæjarfólk, sem ekki treystir sér
til að borga skólagjald.
Þá, sem hafa heimili að bjóða
námsfólki hvort heldur er til að
vinna fyrir sér eða gegn borgun,
vil eg biðja að tilkynna mér sem
fyrst.
Má vera, að sumir hafi misskil-
ið tilboð vort um fría kenslu fyrir
einn nemanda í hverjum hinna
bekkjanna, þannig, að það sé
bundið við þá, sem áður voru nem-
endur í skóla vorum, en það er
ekki tilfellið. Allir mega sækja,
hvar sem þeir voru í skóla síðast-
liðin vetur. Segjum, að 10 vænt-
anlegir nemendur í 10. bekk sæki
um fría kenslu í þeim bekk. Heið-
urinn verður veittur þeim, sem
hæstu mörkin fékk meðal þeirra
tíu, í mentamáladeildar-prófi 9.
bekkjar í siðastliðnum júnímán-
uði, hvar sem þeir sfcunduðu nám
síðastliðinn vetur. — Umsóknir
liggja fyrir. Sláið ekki á frest að
sækja. Tilboðið stendur til 15. þ.
m.
1 fyrsta sinni á þessu sumri, að
minsta kosti í mörg ár, voru ekki
birt í ensku blöðunum, nöfn þeirra
senj stóðust júnípróf mentamála-
deildarinnar og háskólans. Það
leiddi til þess, að skóli vor hefir
ekki heldur gjört það, enn sem
komið er.. Það má samt segja
almenningi, að nemendurnir í 9.,
10. og 11. bekknum og enn fremur
háskóla (university) nemendur
vorir, stóðust, yfir höfuð, vel próf-
ið, en aftur þeir, sem voru í 12.
bekk (mentamáladeildar) síður.
Verið ekki feimin að skrifa mér
og biðja mig um skýringar. Eg er
fús til að veita námsfólki alt það
lið, sem eg má.
Rúnólfur Marteinsson,
652 Home St., Winnipeg.
Smíði Laugavatnsskólans er nú,
all-langt komin og sömuleiðis nýi
barnaskólinn í Reykjavfk Hinn
nýi ungmennaskóli Rvíkur mun
verða til húsa í Stýrimannaskól-
anum og kváðu þegar hafa borist
margar umsóknir um nám þar. —
Talað er einnig um það, að .annar
unglingaskóli, eiukaskóli, verði
stofnaður hér í haust.
Kappróður fór fram hér við
Örfirisey 29 f. m. og keptu 8 flokk-
ar, um horn, sem Olíuverzlun Is-
lands hefir gefið. Róið var eina
röst og varð hlutskarpastur bátur
Hjalta Jónssonar, stýrt af honum
sjálfum, var 4 mín. 43.2 sek. Næst-
ur varð flokkur úr Höfnunum, 4
mín. 45.2 sek. og fékk heiðurspen-
inga. Róið var tveimur árum á
borð.
Múgavél kallar Árni G. Eylands
ameríska heysnúningsvél, sem
hingað kvað hafa verið fengin fyr-
ir hans tilstilli og var reynd ný-
lega á Vífilsstöðum. Hún getur
nokkurn veginn hreinrakað, einn-
ig snúið heyi og rakað í garða.
Bát hvolfdi 26. f.m. í lendingu
við Eyjafjallasand, og var í hon-
um fólk, sem var að koma í land
úr vélbáti frá Vestmannaeyjum.
Ein kona druknaði, Elsa Skúla-
dóttir frá Fossi í Mýrdal og ung-
ur maður, Andrés Andrésson í
Berjaneskoti, meiddist mikið.
Dr. Guðm. Finnbogason hefir
undanfarið verið í fyrirlestraferð-
um um Austurland, á vegum stú-
dentafræðslunnar, samkv. beiðni
austan að.
Raflýstir hafa verið í sumar 9
bæir í Suður-Þingeyjarsýslu og
kom Bjarni Runólfsson frá Hólmi
í Landbroti upp öllum stöðvunum,
og sagt að fleiri bændur hafi pant-
að stöðvarsmiði. Stöðvarnar eru
6—12 ha. og nægilegar til lýsing-
ar, suðu og hitunar á bæjunum.
Þær hafa kostað 5 þús. kr. til jafn-
aðar (heimavinna verðlögð líka),
4 þús. sú ódýrasta, en 8 þús. þær
dýrustu. Fimm af túrbínunum
smíðaði Bjarni sjálfur, hinar eru
sænskar. Bæirnir, sem rafmagn-
ið fengu, eru þessir: Grýtubakki,
Miðgerði ogHvammur í Höfða-
hverfi, Stóru-Tjarnir í Ljósa-
vatnsskarði, Lundarbrekka, Stóra
Tunga og Sigurðarstaðir í Bárð-
ardal; iMáná á Tjörnesi og
Fremsta-fell í Köldukinn Þetta
er gleéileg og lofsverð framtaks-
semi, og reynast stöðvarnar vænt-
anlega vel og verða þá öðrum til
fyrirmyndar, sem skilyrði hafa til
virkjunar
Sigurður Skagfeldt söngvari hélt
hljómleika í Gamla Bió 27 f. m.
við góða..aðsókn og ágætar viðtök-
ur. Hann hefir prýðilega rödd og
hefir farið mikjð fram í meðferð
hennar, frá þvi hann var hér síð-
ast. Hann er ráðinn við söng-
leikhús í Köln næsta vetur.
Elliheimili nýtt á að fara að
reisa hér í bænum, veglegt hús, er
Sig. Guðmundsson húsameistari
hefir teiknað. Meginálman á að
verða 35 m. löng, og tvær hliðar-
álmur 27 m. langar og 11 m. breið-
ar. 100 gamalmenni eiga að geta
verið á heimilinu og lánar bæjar-
sjóður 100 þús. kr. til byggingar-
innar, annars er heimilið rekið
fyrir frjáls framlög einstaklinga.
Sigurbj. Á. Gíslason hefir undan-
farið verið erlendis til þess að
kynna sér fyrirkomulag elliheim-
ila og sér hann um þetta nýja
heimili hér.
2®00 hestum af töðu hefir Thor
Jensen þegar komið í hús á bú-
um sínum við Reykjavík.—Lögr.
Reykjavík 8. ágúst.
Gísli Johsnon heitir prestur einn
af íslenzkum ættum, sem um mörg
undanfarin ár hefir starfað í
Rúmeníu og Ungverjalandi. Lang-
afi hans var Gísli Jónsson, bróðir
Jóns sýslumanns og sagnritara
Espólín, fæddur á Búðum á Snæ-
fellsnesi, en varð prestur í Nor-
egi og giftist norskri konu og
varð kynsæll mjög. Sonarsonur
hans var einn kunnastur guð-
fræðingur Noregs. Gisle Johnson,
og er sá Gísli, sem hér um ræðir,
bróðursonur hans og giftur prests-
dóttur af slafneskum aðalsættum
og eiga) þau eina dóttur 5 vetra,
og heitir Guðrún Espólín. Séra
Gísli kvað vera fróðleiksmaður,
segir Sigurbj. Ástv. Gíslason, sem
heimsótti hann í Búdapest í sum-
ar, á stórt bókasafn og les um 15
tungumál og talar mörg þeirra.
Hann vinnur* að Gyðingatrúboði í
norskri þjónustu, en telur sig
helzt íslending.
Hús brann 3. þ.m. í Reyðarfirði,
verzlunarhús Kaupfélags Héraðs-
búa.
Meteor heitir þýzkt rannsókna-
skip, sem hér er og með því er rp.
a. dr. Gregori, sem hér hefir áður
verið við ljós- og veðurrannsókn-
ir.
Á Siglufirði hefir slegið í nokk-
urn harðbakka milli lögreglu-
valdsins og síldarbræðslustjórans
dr. Paul, vegna þess að hann hef-
ir þverskallast við stjórnarbanni
um að taka bræðslusíld af norsk-
um skipum. Þetta hefir valdið
mikilli gremju og maðurinn verið
kærður. ,
Grasbrestur er sagður á Aust-
fjörðum og mjög slæmar heyskap-
arhorfur, svo pantað hefir verið
kjarnfóður mjög mikið.
Litla stúlkan, sem þessi mynd er
af, er 12 ára gömul, heitir Lilja og
er dóttir Mr. og Mrs. Jón Pálsson
,að Geysir, í Geysis-bygð; vann hún
silfur medalíu þá, sem Toronto
Conservatory of Music veitir bezta
nemanda í Elementary Pianoforte
prófi. Var hún hæst í Canada
fyrir árið, við bæði miðsvetrar og
sumarpróf, með 92 stig. — Kenn-
ari hennar er Miss Sena Jóhann-
esson að Árborg, Man.
að heiman 6—7 vikur. Hann ætl-
ar að sýna kvikmyndina “Wings”,
sem þykir bezt allra stríðsmynda,
sem gerðar hafa verið. Þegar hann
kemur heim byrjar hann aftur að
kenna, en á meðan lítur systir
hans, Mrs. W. Dalman, eftir störf-
um hans. Heimilisfang hennar er
778 Victor St. og sími 22 168.
Mrs. A. E. ísfeld frá Winnipeg
Beach, var stödd í borginni um
síðustu helgi.
Nýkomin er til borgarinn^r
Mrs. G. E. Bennett, frá Seattle,
Wash. Er hún á leið út í Piney 1
heimsókn til bræðra sinna tveggja
er þar búa, þeirra Jóns og Jó-
hanns Stefánssona.
Hinn 7. þ. m. andaðist að heim-
ili sinu í grend við Churchbridge,
Sask., merkisbóndinn Eyjólfur
Jónsson, eftir langvarandi heilsu-
bilun. Hann var ættaður úr Borg-
arfirði, bróðir Björns Jónssonar,
Churchbridge, og mun hafa verið
78 ára að aldri. Jarðarförin fór
fram á mánudaginn var og voru
flestir bygðarmenn viðstaddir.
Séra H. J. Leó jarðsöng.
Stofnað verður til samkomu í
kirkju Sambandsafnaðar, Sargent
og iBanning, fimtudagskveldið þ.
20. þ.m. kl. 8, til arðs fyrir veika
íslenzka stúlku. Skemtiskrá verð-
ur afar fjölbreytt. Samkomunnar
verður nánar getið í næsta blaði.
Miss Guðrún Melsted kom heim
í vikunni sem leið frá Evrópu, þar
sem hún hefir verið síðas’tliðna
tvo og hálfan mánuð. Hún ferð-
aðist um England og Skotland,
Hrossasýningar hafa undanfar-
ið verið haldnar sjö í Eyjafirði og
þrjár afkvæmasýningar í Skaga-
firði. Af 49 fullorðnum stórhest- og Frakkland og Belgíu.
um og 17 þriggja vetra, sem sýnd-
ir voru, fengu 19 1. verðl. og 18 2.
verðl.
iShell-málunum er nu lokið í
undirrétti og var félagið sýknað,
en málskostnaður dæmdur á
stjórnina. Málinu mun áfrýja,
Rannsókn er hafin út af Menju-
slysinu og hefir fyrsti vélstjóri
verið settur í gæzluvarðhald.. —
Lögr. 8. ág.
Tíðin hefir verið einstaklega góð
að undanförnu, sólskin og hiti á
hverjum degi alla vikuna sem leið
ogeins á sunnudaginn ogmánudag-
inn. Dálítil rigning á þriðjudag-
inn. Þresking gengur ágætlega al-
staðar sem til fréttist.
Or bœnum.
Mr. Sveinbjörn ólafsson kom til
borgarinnar á mánudagsmorgun-
inn, frá Chicago, þar sem hann
stundar nú guðfræðanám. Ætl-
ar hann að dvelja hér um þriggja
vikna tíma hjá móður sinni og
systkinum.
Gift voru í Fyrstu lút. kirkju 1
Winnipeg, hinn 6. þ.m., Miss Theo-
dora Olafsson, fósturdóttir Mx* og
Mrs. S. F. Olafsson, 619 Agnes St.,
og Harry Hewitt Herget. Dr. Björn
B. Jónsson framkvæmdi hjónavígsl-
una.
Séra Jóhann Bjarnason prédik-
aði hjá Islendingum í Piney, Man.
á sunudaginn var. Kom aftur til
borgarinnar á mánudaginn.
Rev.
hafa verið stödd í borginni und
anfarna daga
Gift voru í Toronto hinn 27.
ágúst, Miss Hrefna Bildfell og Mr.
John Edward McRae. Brúðurin er
dóttir Mr. og Mrs. J. J. Bildfel, 142
Lyle St., og brúðguminn sonur
Mr. og Mrs. D. McRae, 596 Jessie
Ave., Winnipeg. Rev. Hahn, prest-
ur First Lutheran Church, Toronto,
gifti. Ungu hjónin fóru samdæg-
urs til Detroit, Mich., þar sem
fiamtiðarheimili iþeirra verður.
Þann 6. sept. voru gefin saman
í hjónabanci í Edmontonborg, þau
Chris. Friðfinnson og Miss Molly
Brown, bæði héðan úr borginni.
og Mrs. N. S. Thorlakson Er brúðguminn sonur þeirra Jóns
tónskálds Friðfinnssonar og frú
önnu, konu hans. Starfar Chris
sem bókhaldari Alberta Pacific
Grain félagsins í Edmontonborg.
Hjónavígsluna framkvæmdi Rev.
W. M. Tait. og verður framtíðar-
heimili þeirra í Edmonton.
Mr. Stefán Sölvason, músík-
kennari, er að fara burt úr borg-
inni um tíma, og býst við að verða