Lögberg - 20.09.1928, Síða 5
LÖCKBERG, FIMTUDAGINN- 20. SEPTEMBER 1928.
Bls. &
^DODDS
|KIDNEY|
&/, PILLS ^
É87 THEPf
1 meir en þriðjung aldar hafa
Dodd’s Kidney Pills verið viður-
kendar rétta meðalið við bak-
verk, gigt, þvagteppu og mörgum
fleiri sjúkdómum. Fást hjá öll-
um Ijrfsölum, fyrir 50c. askjan
eða 6 öskjur fyrir $2.50, eða beiní
frá The Dodds Medicine Co., Ltd.
Toronto, ef borgun fylgir.
og veitt væri alment. Eða er
spurningunum slegið fram til
þess að vekja grunsemd á nefnd-
inni hjá þeim, er ekki þekkja til og
myndi því álíta að nefndin ætti að
geta gjört þetta? OBenda ekki orðin
í niðurlagi athugasemdarinnar
eitthvað í þá átt, þó komast hefði
mátt kænlegar að orði og dylja
betur gremjuna til nefndarinnar
fyrir að reyna að ná þeim kjorum
fyrir almenning, er “sjálfboðunf’
hafði ekki til hugar komið og eru
ekki líklegir að ná? “Það er
Vesturíslendingum til smánar, að
nokkur nefnd, sem í þeirra nafni
þykist starfa, skuli hafa farið
fram á slíka skilmála.’’ Það er
meira en lítil “smán”, að nefndin
skyldi sýna viðleitni til að vernda
hag og réttindi væntanlegra aust-
urfara, skyldi hafa farið fram á
lágmarks fargjald, og tekið því,
að halda eftir umboðslaunum á
farbréfunum, er annars yrði öðr-
um greidd, er engan rétt höfðu til
þeirra; skyldi hafa reynt að á-
skilja þau hlunnindi fyrir ferða-
hópinn, er frekast var unt! Hverj-
um vex sú “smán” í augum?
Tæplega þeim, sem hlunnindanna
eiga að njóta, íslendingum naum-
ast, engum rétthugsandi mönnum,
engum, nema ef vera skyldi “sjálf-
boðunum” og línufélögunum, sem
höf. er að vernda.
Um 7. gr. er höfundu'rinn orð-
fár, þykir óþarfi að flutningsfé-
lag, sem nefndin semur við, setji
umboðsmann, er eigi sé til annars
en að auka félaginu kostnað! Þá
sýni sig ósanngirni nefndarinnar
í því, að heimta að flutingsfélagið
borgi “fyrir allar auglýsingar og
undirbúnings kostnað.” Auðvit-
að er ekkert sagt um það í þessari
grein, en athugasemdin getur eins
komið að haldi fyrir því. Höf. fær
ekki slitið úr huga sínum hinn
væntanlega gróða nefndarinnar.
Það væri afsakalegt, ef nefndin
hefði verið búin að tilkynna, að
hún “áskildi handa sjálfri sér”,
umboðslaunin, ef hún hefði verið
búin að gjöra áætlan með ferða-
kostnað og auglýsa hann, en það
hefir hún ekki gjört og fyrir þá
einföldu ástæðu, að hún hefir alt-
af gjört sér vonir um, að geta
komið ferðakostnaðinum niður.
1 athugasemdunum við 8. gr.
notar höf. falsþýðinguna og
blöskrar sú byrði, sem nefndin
leggur á bak járnbrautarfél. Hún
ætlar sér “að vera á þönum út og
suður um alt land”, “ferðast eftir
vild á kostnað flutningsfélag-
anna.” Það er nokkuð rýfur skiln-
ingur, sem lagður er í orðið “trip
pass”, en það er nú alt, sem grein-
in fer framá. Hjá járnbrautarfé-
lögum eru gefnir út tvenskonar
farbréfa seðlar ókeypis. Ná þeir
til þeirra, er að einhverju leyti
starfa að flutningi eða ferðalögum
með járnbrautum og gufuskipum.
Gildir annar til árs og er nefnd-
ur “annual pass”, en hinn til einn-
ar ferðar, er farin er til ákveðins
staðar, og er nefndur “trip pass”.
Fram á þenna síðari seðil er farið
fyrir hönd nefndarmanna í þess-
ari 8. gr., ef nauðsyn krefur að
þeir gjöri ferðir til einhvers stað-
ar í þágu þessa máls. Hve ósann-
gjarnt það er, hve miklu fé það
kann að sópa úr vösum íslend-
inga, geta lesendur gert sér hug-
mynd um. En þetta eru þær “þan-
ir út og suður um alt land”, er
nefndin ætlar sér að vera á. Ætli
að flutningskostnaður á korni og
allri landvöru hefði hækkað að
stórum mun, þó þessi tilmæli
hefðu verið veitt? En svo má
gleðja höf. með því, að fyrir stak-
an mótróður og rangfærslur hefir
kröfu þessari verið synjað, og létt-
ir það þá einum “tollinum” af hon-
um og skjólstæðingum hans, flutn-
ingafélögunum. Þarf nú ekki að
fárast yfir því, að með þessari í-
vilnan sé létt undir með nefnd-
inni við undirbúningsverkið. Það
er ekki eini þröskuldurinn, sem
lagður hefir verið í götu þessa
málefnis, og verður að líkindum
ekki hinn síðasti.
Þó Heimfararnefndin hafi ekki
gjört sér hið minsta far um að
lýsa gjörðum hinna svonefndu
“sjálfboða”, sem þeir hafa gjört
gagnvart Heimfararnefndinni, en
kosið að> láta flest fáryrði þeirra
og sakargiftir sem vind um eyrun
þjóta, mun þó svo komið, að al-
menningi sé ljóst hvorir meir
starfa í þágu heildarinnar. öllum
er Ijóst, að tilgangur “sjálfboð-
anna” með afskiftum þeirra af
heimfararmálinu, er ekki sprott-
inn af virðingu fyrir sjálfu mál-
inu, ekki af þjóðrækni né löngun
til að draga hugi íslendinga sam-
an, ekki af þeirri tilraun að vilja
hefja þjóðina til frekari virðing-
ar í augum samborgara hennar,
ekki samvinttulöngun við ísland.
Svo mikið er sýnilegt af því, sem
þeir hafa ritað. Tilgangurinn er
pesrónulegur, því miður, og hefir
alderi annar verið. Það er ótíma-
bært að draga -hann fram og lýsa
honum eins og hann er. En þegar
að þeim tíma kemur, “þegar tjöld-
in verða dregin frá,” og almenn-
ingur nær að skilja til hlítar hver
tilgangurinn er, getur svo farið,
að af sumum þeirra kunni að
renna “dramblætis-þrotinn”, sem
skáldið forna nefnir, sem og af
grímumönnunum, er að baki
þeirra standa, og feig hafa viljað
ferðasamtökin um langa hríð.
II.
Helzt er svo að skilja á niður-
lagsorðum .höf., að þessi illræmdu
samningsatriði, sem íslendingum
eru svo mjög til vanvirðu, muni
nú þegar vera viðtekin, milli
nefndarinnar og “einhvers” línu-
félags — hann veit ekki nafnið á
því, fann það ekki “á bak við
tjöldin.” — iSölulaunum slær höf.
saman við fjárveitingu Sask.-
stjórnarinnar, í því skyni að sýna,
að nefndin sé ekki að starfa fyrir
annað en “centin”, “hinn almátt-
ugi dollar virfðist vera hennar
leiðarstjarna.” Endar hann svo
ritgerðina á þessa leið: “Finst
nú nokkrum, sem fylgst .hefir með
gangi þessa máls frá byrjun, að
Heimfararnefnd Þjóðræknisfélags-
ins geti hér eftir vænst þess, að
henni einni sé trúað fyrir fram-
kvæmdum í þessu máli?” Hóg-
vær bending tii almennings, um
að láta sig ekki skorta til liðveizlu
og fylgis við andstæðinga nefnd-
arinnar.
Óþarft er að taka það fram, að
hið ónefnda línufélag, sem nefnd-
■ in hefir enn ekki samið við, hefir
ekki ennþá greitt nein umboðslaun
til hennar. í vösum hennar er ekki
að leita eftir $80 eða $82,000.
Samningsatriðin eru enn ekki und-
irrituð, þó þau flest séu bréflega
samþykt og nefndin bjargað þeim,
! til hagnaðar fyrir væntanlega
heimfarendur. Óþarfa herör er
því skorin upp. !Sem öllum er ljóst,
er lesið hafa uppkastið og
horfa vilja á það, þá er ekki
svo frá því gengið, að ætlast sé
til að það geti skoðast sem samn-
ingur. Það er eigi annað en upp-
talning einstakra atriða, er marg-
oft höfðu verið rædd af hlutað-
eigandi flutningafélögum og
nefndinni, og sum boðin, sem
nefndin ætlaðist til að tekin yrði
inn í væntanlegan samning. Var
þetta með vilja gjört. En svo stóð
á iþví, og er það upphaf þessa
máls, að í byrjun júnímánaðar
beiddist umboðsmaður einnar
gufuskipalínunnar þess, að lögð
yrðu fram, skriflega, þau megin-
atriði, er nefndin færi fram á,
fyrir hinni væntanlegu heimför
1930. Varð forseti nefndarinnar
vel við því og kallaði saman menn
þá, er aðalnefndin hafði útnefnt
-í samninganefnd á fundinum 20.—
21. maí. Fóru þeir yfir þau bréf
og tilboð, er nefndinni höfðu bor-
ist, fram að þeim tíma, og sömdu
svo þetta uppkast, með hliðsjón
til þeirra. öllum kom saman um
að bera uppkastið undir aðal-
nefndina og var það gjört á fundi
er haldinn var 22. júní. Voru lið-
irnir samþyktir með smávægileg-
um breytingum, að undanteknum
þeim 4, er feldur var burtu.
Hafði þá nefndin komist að því í
vikunni áður, að “sjálfboðar”
höfðu afhent Cunard Línunni
skilmálalaust “flutninginn” í um-
boði “mikils hluta íslendinga”.
Óttaðist nefndin, að með því gjör-
ræði yrði ef til vill kipt til baka
þeim afslátta tilboðum, er þegar
voru fengin, er einu hinu öflugra
línuskipafélagi væri fengið slíkt
yfirskins umboð. Hnýtti hún því
viðaukagreininni neðan við upp-
kastið, er krafðist svars innan
hins 26. sama mánaðar (ekki 26.
júlí). Fengist svör, er staðfestu
enn á ný fyrstu atriðin, var þeim
borgið, hvað sem hinum liði, er á
eftir komu, og farbréfaverðinu, er
búist var við að orðið gæti allmik-
ill reipdráttur um, er svo var kom-
ið, og vanséð hvort fengist. Var
þó að minsta kost'i allmiklu borg-
ið.
En þannig stóð á því, að nefnd-
in komst að þessum “Cunard samn-
ingi” sjálfboðanna, að bréf barst
einum nefndarmanna, frá New
York, þar sem þess var getið, og
beðið jafnframt um upplýsingar
á auglýsingaverði í “Hkr.”. Svo
leynt höfðu fjórmenningar sjálf-
boðanna farið með þenna “samn-
ing”, að jafnvel félagar þeirra
þrættu fyrir að þeir vissu nokkuð
um hann, og sjálfir létu þeir þræta
fyrir hann á almennum fundi á
Brú í Argyle-bygð, sama kvöldið
og hann var opinberaður í “Lög-
bergi”!—Blaðið komst ekki þang-
að vestur fyr en daginn eftir.
Áleit nefndin, að því fyr sem
hún geti fengið svarið upp á þessi
samningsatriði, þvi betra, áður en
eimskipalínan með “umboð full-
trúanefndar mikils hluta Islend-
inga á bak við sig”, fengi ráðrúm
til að mótmæla, sem hún var lík-
leg til að gjöra, því ósennilega
myndi hún telja sér hag í því, að
gjöra afföll á farbréfum, er hún
gæti selt fullu verði, er hún áleit
sig vera búna að taka við “flutn-
ingnum.” Þó fresturinn væri
naumur, og sjáanlegt, að Winni-
peg skrifstofur flutningsfélag-
anna gætu ekki gefið fullnaðar-
svar við $260 fargjaldinu á þeim
tíma, ef þær þurftu að vísa því til
yfirumobðsmanna sinna, eða jafn-
vel til Norður Atalntshafs Eim-
skipa Sambandsins, þá voru samt
líkur til, að þær myndi endurtaka
tilboðið um hið fyrra lágmarks-
fargjald, er nefndin var búin að
fá, og fargjaldið ekki fara upp úr
því, hvað sem Cunardlínan reyndi
að gjöra. Var því þessi kosturinn
tekinn og kom, sem nefndina
varði, að haldi; fyrri tilboðin voru
staðfest með bréfum til nefndar-
innar, án þess heúni væri settur
tímafrestur með að ljúka samn-
ingum og endurtekið tilboðið um
hið fyrra lágmarks-fargjald auk
ýmissa annara hlunninda, er síð-
ar verða tilkynt. Þetta lágmarks-
fargjald fram og til baka, milli
Montreal og Reykjavíkur, var
$172.00 og mun að því vikið seinna.
Sem nefndina grunaði, leið
heldur ekki á löngu, að Cunard-
línufélagið léti til sín heyra með
fargajaldaverðið. Eftir yfirlýs-
inguna í “Lögbergi” 28. júní, byrj-
aði það að auglýsa og mælast til
að fyrirspurnir væru sér sendar
um hin miklu vildarkjör, er þeir
byðu væntanlegum hátíðagestum.
Hinn 25. júlí er send fyrirspurn
þess efnis frá manni í Elfros,
Sask., til skrifstofunnar hér í
Winnipeg, og er svar umboðs-
mannsins á þessa leið:
“The Cunard Steam Ship Com-
pany, Limited, Anchor Line and
Anchor-Donaldson Line.
270 Main Street,
Winnipeg, Canada,
July 27, 1928.
File No. 66408.
Mr. S. F.,
Elfros, Sask.
Déar Sir : ■y
Re Icelandic Excursion of 1930.
Referring to your memo of the
25th inst. regarding rates, etc.,
applicable to the Icelandic excur-
sion that will be operated by the
Cunard Line in conjunction with
Dr. Brandson’s Committee. At
this early date we shall be unable
to give you full particulars of
rail fares, etc., that will be put
into force and effect for the Ice-
landic Excursionists, train ar-
rangements, etc., but we can de-
finitely state at this time that we
will have a steamer sailing from
Montreal direct to Reykjavik on
or about the first week in June,
1930. This steamer will carry
Cabin, Tourist 3rd Cabin, and
Third Class passengers. Retum-
ing, we will have a steamer call-
ing at Iceland some six weeks later
for the purpose of picking up
Icelandic excursionists desirous
of returning to Canada.
The Third Class Round Trip
fare fram Monteral to Reykjavik
will be $196.00; Tourist Third
Class Cabin, around $218.50; and
Cabin, around $310.00. To these
fares must be added an additional
$5.00 to cover the Government War
Tax, also Excursion Fare on the
railwayl from Elfros to Montreal
and return. We shall be glad to
send you our advertising matter
that is now being prepared for
distribution as soon as it is re-
ceived from the printers, and if
there is any further information
that you would like to have with
regard to the excursion arrange-
ments, etc., please let us hear from
you and we shall be only too
pleased to write you more fully
on the subject.
meiri áhuga fyrir málinu, eða
hagsmunum væntanlegra hátíða-
gesta en svó, að hann hafi leitað
upplýsinga, eða vitað um, að lægra
fargjaldið var þegar úrskurðað.
Það er ekki fyr en félagið er neytt
til þess, fyrir gjörðir Heimfarar-
nefndarinnar, að það lejrfir er-
indsreka sínum að geta þess, að
farbréf muni verða fáanlegt á
lægra verðinu. Ekki hefir þó um-
baðsmaður enn sem komið er lát-
ið auglýsa það í umboði sínu
eða félagsins. Ekki hefir um-
boðsmaður eða félagið heldur
gjört neinar ráðstafanir um far-
gjaldslækkun á járnbrautunum í
sambandi við ferðina. Járnbraut-
arfargjöld eru auglýst frá Winni-
peg til Montreal, fram og til baka,
á $82.80, auk 80c.skatts til stjórn-
arinnar, sem er hámarksverð.
Munu sjálfboðar ánægðir með
það, er fæstir að sögn hafa hinn
minsta ásetning með að fara. Hafa
þeir látið þess getið, í fyrstu rit-
gjörðunum, að engu skifti, hvort
fargjaldið yrði hærra eða lægra,
hvort færi margir eða fáir. Þeim
sem þá ræktarsemi bera til þjóðar
sinnar og söguminninga og hafa á-
kveðið að fara, er ekki of gott að
borga stóreignafélögunum ofur
lítinn toll fyrir þá heimsku sína.
Til skilningsauka mætti geta
þess, að verð gufuskipa farbréfa
á þriðja og ferðamanna farrými,
er skift í 4 flokka. Lægst er það
til Bretlands $155.00 á þriðja far-
rými, til Frakklands $172.00, til
Norðurlanda $186.00 og til hafna-
staða á meginlandi Evrópu $196,
fram og til baka, og er ísland
flokkað þar með. Ræður eftir-
spurnin þessari flokkun og inn-
flutningsleyfi hinna ýmsu þjóða
til Canada og Bandaríkjanna.
Ekki var það fyrirhafnarlaust, að
fá þessa sérstöku ferð til íslands
1930 undanþegna, og færða ofan í
næst lægsta flokkinn. Var nefnd-
in við það, meðan dylgjurnar
gengu mestar um að hún væri
ekkert að gjöra, og greina fá.
Hefði hún byrjað með því að aug-
lýsa fyrirætlanir sínar, eru líkur
til, að hún hefði engu orkað.
Hefði hún rokið til og gjört samn-
ing við “eitthvert flutningafélag-
ið”, áður en frá fargjaldinu var
gengið, er vissa fengin fyrir því,
að fargjöldunum hefði aldrei orð-
ið þokað niður um einn eyri.
Hvort sem almenningur vill nú á-
líta það gjörræði eða einþykni að
haga þannig verkum, fór bezt
sem fór. Eru hverjum austurfara
sparaðir með því $24.00 á sjóleið-
inni. Má geta þess líka, að líkur
eru til að nefndin fái hlutfalls-
lega sömu ívilnan á járnbrautun-
um.
Til þess að lengja þetta mál
ekki um of, með því að birta bréf-
in, er nefndinni höfðu borist á-
samt tilboðum flutningafélag-
anna, sem hún hafði til hliðsjón-
ar, er hún tók saman uppkastið,
verður að láta nægja, að vísa til
ritara nefndarinnar, hra. J. F.
Kristjánssonar, 788 Ingersoll^ St.,
er veita mun öllum, er þess óska,
leyfi til að skoða þau og yfirfara
þau sem þá lystir. Sýna þau, að
heiður íslendinga er ómeiddur fyr-
ir betli því, er nefndin hefir farið
fram á við félögin. Liggja þau
til grundvallar fyrir 1., 2., 3. og
5., 6. og 7. gr., þó orðamunur sé
nokkur á stökum stöðum og á-
kveðnara tiltekið i samningsatrið-
unum, sem hlaut að vera.
Samnings atriðin eru þá þessi,
og óskar nefndin eftir að fólk
vildi athuga þau, í ljósi þeirra
skýringa, sem að framan eru
gerðar, segja til, að hverju leyti
•lefndin hefir misgoðið særtid og
virðingu þjóðflokksins með þeim
og hvar þess er getið, að nefndin
ætli að draga sér umboðslaunin.
—(Samnings uppkastið er áður
We are hopeful that this excur- birt j Lögbergi, og því ekki prent
sion will have the full support of
the Icelandic citizens throughout
Western Canada, so that the excur-
sion will be a huge success and
fully representative of the Ice-
landic residents in Canada, and
asure you the Cunard line will
put forth every effort to cooperate
with Dr. Brandson and the Iceland-
ic Committee with this end in view.
Yours truly,
The Cunard Steam Ship Line
Company Limited,
Per J. F. Pratt (Signed)
JFP-NH.
Það er ónauðsynlegt, og eigi
nema til málalengingar, að þýða
þetta bréf. Munu flestir skilja
innihald þess. Kjörin eru þessi:
farbréf á 3. flokks farrými frá
Montreal til R.víkur eiga að kosta
$196.00, eða $24.00 meira en Gufu-
skipasambandið var búið að
ganga inn á og nefndin var búin
að útvega. Er þetta hæsta fargjald
er gildir til fjarlægustu hafnar-
staða í Evrópu, og látið var gilda
til Islands, áður en nefndin tók
til starfa. Var á þessu auðséð,
hvað félagið ætlaði sér. Þrátt fyr-
ir það að Norður Atlantshafs Sam-
bandið, er félagið stendur í, sem j Lafi meira en tillögurétt um hvað
hin önnur skipafélög, var búið að j gjöra skuli við peningana. Ligg-
leyfa lægra flutningsgjald, byrj- j ur þvj ekkert beinna við, en að það
ar það “reisuna” með því, að fara j Verði undir þá borið, er fara, hvað
fram á hæsta fargjaldið. Var nú ! vig þá skuli gjört. Heppilegast-
að koma í ljós frumgróði þess j ur tími myndi vera að gjöra það,
fljótræðis, er sjálfboðaliðið hafði j eftir að allir væru komnir um
drýgt með því að afhenda málið, borð. Þá væri það orðið víst, hver
skilyrðislaust, línufélaginu. Þó! Upphæðin væri, og þægilegt að
má ef til. vill segja félaginu það j koma á fundi í samkomusal
til málsbóta, að umboðsmaður skipsins. Nógir munu staðirnir
þess hefir að líkindum ekki haftfyrir þá. Ýmiskonar kostnaður í
að hér. ’Sbr. Lögb. 8, sept.)
Um hinar sérstöku greinar þýð-
ir ekki að ræða meir en búið er.
Þess skal að eins getið, að 1., 2.
og 3. gr. eru viðteknar, — hina 4.
dró nefndin sjálf til baka, og til-
kjrnti umboðsmönnum það, er hún
afhenti þeim afritið. iSömuleiðis
er hin 5., 6. og 7. samþykt með
þeim breytmgum, að fargjaldið er
nú ákveðið, hvað sem seinna verð-
ur, á $172.00 úr höfn og í höfn, en
ekki er vonlaust um, að lækkun
fáist áður en ferðin verður hafin.
8. lið er synjað eins og áður er tek-
ið fram, en 9. veittur, um að
skipið biði á Rvíkur höfn nokkra
daga, með þeim skilyrðum, að
farþegar verði ekki færri en 500.
Með 6. gr. er nefndinni heimil-
að að veita móttöku sölulaunum.
Fé það verður ekki greitt fyr en
fargjöldin eru keypt, eða fyr en
ferðahópurinn er lagður af stað.
Hverri upphæð þau kunna að
nema, verður ekki sagt að svo-
komnu, fer það eftir tölu farbréf-
anna. Þó þess verði ekki synjað,
að sú npphæð, hver sem hún
kann að verða, sé íslendingum
trygð fyrir aðgjörðir nefndarinn-
ar, þá álítur nefndin ekki að hún
sambandi við ferðina, dvölin á
Þingvöllum, meðan á hátíðahald-
inu stendur, flutningur til Þing-
valla o. fl. Ekki er heldur óhugs-
ndi, að eitthvað yrði nauðsýnlegt
að kaupa hér til fararinnar, áður
en lagt væri af stað..
Víkja mætti, að endingu, nokkr-
um orðum að hinni miklu laun-
ung, er nefndin á að hafa varpað
yfir þetta verk sitt. Hún á að
hafa farið með það eins og manns-
morð. Hin mikla launung er þá
í þessu fólgin: Strax og frum-
varpið var samþykt, lét nefndin
gjöra sex afrit af því, og fékk þau
umboðsmönnum skipafélaganna.
hér í bænum, eins og óskað var
eftir. Létu þeir, svo gera afrit og
sendu aðal skrifstofunum í Mont-
real og New York, er enn létu
gjöra afrit og sendu höfuð skrif-
stofum Gufuskipa sambandsins í
Liverpool og Brussels.
Afrit frumvarpsin hefir því
legið frammi á gufuskipa skrif-
stofunum hér í bænum hátt á
þriðja mánuð, á yfirskrifstofun-
um í Montreal og New York, og á
höfuð skrifstofunum, í Liverpool
á Englandi og í Brussels í Belgíu.
Það hefir því tekið töluverða
kunnáttu að komast að þessum
leyndardómi. Bak við nokkur
tjöld hefir höf. orðið að Iaumast
til að ná í afritið, og ekki mót von,
að það tæki tíma.
Þá má og enn fremur geta þess,
að á þeim fundum, er nefndin hef-
ir haldið í sumar, í Sask., Argyle
og N. Dak., hefir hún getið um
þetta samnings uppkast. 1 Wyn-
yard var bygðar ntefndinni lesið
það, og á fundinum, er þar var
haldinn, farið all ítarlega út í at-
riði þau, er snertu kostnaðinn.
Hið sama var gjört í Leslie, á
Lundar, á Garðar, á Mountain, á
Akra, og í Upham, N. Dak. Laun-
ung nefndarinnar var ekki meiri
en þetta. Hún fann ekki til þees,
að hún þyrfti neitt að fela. Frá
upphafi skoðaði nefndin það sem
eitt af aðalverkefnum sínum, að ná
sem hagfeldustum samningum fyr-
ir þá, er ,heim ætla að fara. Hún
fann ekki til þess, að það gæti
tadisþ vsvik við IþjóíV'irsæmdina,
eða þá, er fólu henni umboðið, ef
henni auðnaðist að framkvæma
það verk. iEf inn á öll samnings-
atriðin yrði gengið, fanst henni
hún vera þúin að því.
En á því stigi, sem málið hefir
verið, fanst henni ástæðulaust að
slengja frumvarpi þessu fram, á
prenti, fyr en búið væri að ganga
frá því í undirrituðum samningi.
Það er þá eina tjaldið, sem hún
hefir dregið fyrir þessar gjörðir
sínar. Hún hefir ekki látið birta
það í íslenzku blöðunum. Ekki
þarf að taka það fram, að það er
nokkum veginn víst, að höf. hefði
ekki hvatt til þess, ef hann hefði
verið samnings aðili, látið sér ant
um að fá niðurfærsiluna, og vitað
hvílíkum andróðri og rangfærsl-
um nefndarstarfið er látið sæta.
Þyki honum nefndin of sagnafá,
gæti hann máske ráðið í, að nokkru
geti það ollað um framkomu henn-
ar, að hún er óframari að birta
fyrirætlanir sínar en vera þyrfti,
ef alt væri sem það ætti að vera,
að um hvert hennar verk er setið,
til að ónýta það, ef unt er, en í
öllu falli að ófrægja það og af-
vegafæra!
Með því að sjálfboðar hafa ver-
ið ósparir á að geta dugnaðar síns
og afreksverka og í því efni að
bera sig saman við Heimfarar-
nefndina, er á að hafa verið að-
gerðalaus, fer ekki illa á að gjöra
þenna stutta samanburð:
Sjálfboðar hafa:
1. Unnið að því, að koma þeim
skilningi inn í almenning, að ekk-
ert gerði til hvað greitt yrði fyrir
fargjöld og ekkert gerði til. hvort
margir eða fáir skifti sér af Al-
þigishátíðinni.
2. Unnið að því, að kljúfa Vest-
ur-íslendinga í heimfararmálinu,
og með því unnið tjón, sem að
öllum líkindum er óbætanlegt.
3. Fengið því framgerigt við
Cunard-félagið, að það hefir boð-
ist til þess áð flytja íslendinga
fyri rþað hæsta verð, sem þvj var
lejrfilegt að heimta.
Heimfararnefndin hefir hins
vegar: ^
1. Unnið að því, að vekja skiln-
ing almennings, í ræðu og riti, á
þýðing hátíðarinnar. Enn frem-
ur unnið að þvi, að vekja athygli
hérlendra manna á þýðingu há-
tíðarinnar.
2. Unnið að því um langan
tíma, að koma fargjaldinu á skip-
unum niður um það, sem sam-
svaraði að minsta kosti $56.00.
Er ekki vonlaus um. að það takist
enn, en væri þegar búin að fá þv{
framgengt, ef hún hefði fengið
að vinna óhindruð.
3. Starfsemi nefndarinnar hef-
ir þrýst Cunard-félaginu — sýni-
lega gegn vilja þess — til þess að
færa fargjöldin niður í “Kaup-
mannahafnarfar”.
4. Hefir gert sér far um að
tryggja það, að allmikið fé, sem
annars hefði farið til skipafélags
eða umboðsmanna, gengi ekki úr
höndum íslendinga.
1 umboði Heimfararnefnd-
Kairo-för.
Eftir Björgúlf ólafsson,
í “Eimreiðinni”
Framh.
Sá hluti borgarinnar, sem hvit-
ir menn búa i, er miklu fallegri
og þokkalegri en aðrir borgarhlut-
ar, eins og við er að búast. Göt-
urnar eru settar trjám, torgin víð
og mikið um stórhýsi og trjá-
garða ' glæsilegar sölubúðir og
stórvaxin veitnngahús. Mér leizt
þessi hluti borgarinnar svipaður
Parísarborg að byggingarlagi. Þar
er fult af sölubúðum, þar sem
seldir eru egypzkir “forngripir“
dýrum dómumalt mörg þúsund ára
gamalt. Einstöku menn glæpast
líklega á þessu dóti, sem auðvitað
er “made in Germany”. — Þessi
borgarhluti nær frá miðju borgar-
innar út að Níl, og er listigarður
á árbökkunum.
Norðanvert við garðinn er hið
fagra listasafn borgarinnar. Safn-
húsið er stórhýsi, bygt í grísk-
rómverskum stíl. Þar er saman
komið hið langmesta safn af forn-
egypzkri list, sem til er, og er það
eitt hið langmesta listasafn í
í heimi. Mest ber þar á högg-
myndalist og byggingarlist; þó
má fljótt sjá þess vott, að Egypt-
ar hinir fornu hafa látið mikið til
sín taka á ýmsum öðrum sviðum
þeirra lista, sem nú eru tíðkaðar.
Eins og gerist um alla forna list,
standa flest listaverkin að ein-
hverju leyti í sambandi við trúar-
brögð og helgisiði þjóðarinnar.
Menn kannast við hinar stórvöxnu
og afbrigðilegu guðamyndir
Egypta, súlurnar úr hofum þeirra
og ýms önnur listaverk, sem geymd
eru í söfnum um víða veröld. Og
einnig þekkja menn hina mikilfeng
legu greftrunarsiði þeirra. Með-
ferð líkamans eftir dauðann hefir
verið þeim hið innilegasta alvöru-
mál, endaer það ekki sízt einmitt
á sviði þeirra lista, sem nota þarf
í sambandi við greftrunarsiðina,
að hugvit og snilli hinnar háment-
uðu stórþjóðar hafa tekið höndum
saman við takmarkalaus auðæfi
til þess að skapa svo dásamlegar
gersemar, að það má heita furða,
að þær séu með mannahöndum
gerðar. Þess konar listaverk hafa,
eins og kunnugt er, fundist víða
um Egyptaland, í grafhýsum kon-
unga og annara stórmenna. Má
þar til telja allskonar innanstokks
muni og búaáhöldum, sem hinum
framliðnu voru fengin, auk ýmis-
konar skrautgripa og skartklæða,
sem iþeir voru færðir í. íburðar-
mestar voru líkkisturnar, sem ým-
ist voru úr steini, tré eða málmi
og oft margar utan um hvern lík-
ama. Steinkisturnar voru yztar,
stórar sem hús og skreyttar höggn-
um myndum eða mjmdaletri, þar
sem skýrt var frá viðburðum úr
lífi hins framliðna. Inst voru óft
gullkistur, stundum fleiri en ein,
eins og utan um Tut-Anch-Amen,
sem mikið hefir verið rætt og rit-
að um á síðari árum. Eins og
kunnugt er, var það bæði miklu
meira að vöxtunum, sem fanst í
BÖKUNIN
bregst ekki ef
þér notið
MAGIC
BAKING
POWDER
Það inniheldur
ekki alúm og er
ekki beizkt á
bragðið.
gröf hans, en fundist hafði í nokk-
urri annari gröf áður, og auk þess
voru þar á meðal margir munir,
sem alls ekki eiga sinn líka að
fegurð og listfengi. Þessi kon-
unglega búslóð fyllir tvo stóreflis
salf í safninu. Þegar eg kom
þangað —seint, í maí 1926—, voru
allir gripirnir komnir á safriið;
hinir síðustu viku áður. Aðeins
sjálf múmían af 'hinum unga kon-
ungi var þá enn ókomin. Þar
rhátti sjá marga girnilega gripi,
frá því stærsta til hins smæsta.
En líklega hefir hirðfólkið við
egypzku konungshirðina um 1350
f. Kr. ekki grunað, að nokkurn
tíma mundi verð brosað að gler-
vörunum, sem konungi voru
fengnár í gröfina. Nú á tímum
verða iþær að feljast ókonungleg-
ar; ílátin öll dældótt og brengluð
og liturinn vatnsblandslegur. En
þá hafa þetta iþótt fáséðir gripir
o g merkilegir — og betra ekki
fengist, enda munu munir þessir
vera með allra elztu glervörum,
sem til eru í heimi. Þá er öðru
máli að gegna um tvær gullkistur,
sem kóngur lá í, og tvær gullgrím-
ur, sem lágu næst andliti hans.
Mér þykir mjög efasamt, hvort
unt væri að gera þá gripi á vorum
dögum. Þetta kann nú að þykja
mikið sagt, en hvar ætti að taka
gull í tvær heilar líkkistur utan
um einn líkama á vorum dögum?
Heimurinn virðist nú hafa eitt
hvað annað að gera við gullið, en
að smíða úr því líkkistur. Og í
öðru lagi: Hver ætti að smíða
þær? Það má að vísu ætla, að
gullsmiðir nútímans standi ekkl
að baki gullsmiðunum í Egypta-
landi á dögum Tut-Anch-Amens.
Framh. á bls. 8.
arinnar,
Rögnvaldur Pétursson.
IIIHHllllHIIIIIHIini
l’IIH HIKll
'■1
Óviðjafnanlegt öl — minnir á gamla tíma —
framleiðsla brezkra ölgerðar sérfræðinga.
• Míicp^söiijg
01ð SquirpXlp
Fæst í öllum löggiltum ölsölustofum, og
stjómar vínsölubúðum.
Ef þér viljið fá ölið sent heim, þá kallið upp
24 841
Brewery Hours, 7 a.m. to 6 p.m.
Macpherson Brewing Limited
WINNIPEG.
I ■■■