Lögberg - 27.09.1928, Side 4
Bls. 4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 27. SEPTEMBER 1928.
Jögberg
Gefið út hvern Fimtudag af The Col-
umbia Press Ltd., Cor. Sargent Ave. &
Toronto Str., Winnipeg, Man.
Tftldiman N-6S2? o« N-0328
Einar P. Jónsson, Editor
Litan&skrift til btaðaina:
THE SOLUMBIA PIJESS, Ltd., Box 3172, Wlrmlpeg, Mai-
_ Utanáakrift ritatjórana:
EDtTOR LOCBERC, Box 3172 Wlnnípeg, H|an.
^erð $3.00 um árið. Borgist fyrirfram
Tha “LðKberg” la prlnted and publlahed by
The OolumbU- Preae, Umltel, Ln the ColumbLa
Bulldinc, 686 Sargent Ave., Wlnnlpeg, Manitoba.
Friðarmálin
Þótt skiftar séu vafalaust skoÖanir manna
á liinum ýmsu sviðum, þá mun þó flestum bera
saman um það, að sjaldan, ef þá nokkru sinni
fyr í sc'igu mannkynsins, hafi gerðar verið jafn
víðtækar og einlæglegar tilraunir til að trvggja
framtíðarfrið þjóða á meðal, en einmitt um þess-
ar mundir. Hlýtur slíkt að vera dýrlegt fagn-
aðarefni, hverri alvarlega hugsandi sál.
Áhrifamestu tilraunina í áttina til varanlegs
friðar, má vafalaust telja þjóðhandalags-stofn-
unina, er Wilson forseti átti frumkvæði að. Og
þótt enn megi svo heita, að hún sé tæpast af
sjálfu tilrauna stiginu komin, þá hefir samt nú
þegar margt og mikið gott af henni leitt, mörg
deilumál verið útkljáð á friðsamlegan hátt, er að
öðrum kosti hefðu auðveldlega getað endað með
skelfingu. Þessvegna er það, að til þjóðbanda-
lagsins mæna nú miljónir manna björtum von-
araugum, sem dýrmætustu stofnuninnar, til
verndunar bræðralaginu á v'orri jörð.
Flestum þeim. er á annað borð fylgjast eitt-
'hvað með gangj heimsmálanna, stendur það
sjálfsagt enn í fersku minni hverri útreið að
þjóðbandalags-sáttmálinn sætti í öldungaráði
Bandaríkjanna. Var hann gerður þar að póli-
tískum fótbolta, og friðarhugsjón höfundarins,
Mr. Wilsons, þar með að vettugi virt. Samt
hefir nú, sem betur fer, hinn pólitíski stundar-
hagnaður orðið að lúta í lægra haldinu fyrir
almennings álitirtu, sem ráða má af staðfesting
Kelloggs sáttmálans í Geneva. Þó er því spáð,
að sáttmáli þessi hinn nýi, er það megin mark-
mið hefir, að ólöghelga stríð, muni eiga von á
all-snarpri andspymu í öldungadeild hins ame-
ríska þjóðþings, er því næst verður stefnt til
funda. Sennilega nær hann þó samþykki þeirr-
ar stofnunar, hvort sem ýmsum líkar betur eða
ver. Sagt skal það Mr. Kellogg til verðugs lofs,
að hann hefir gert til þess^alt, er í lians valdi
stóð, að halda sáttmála þessum utan við flokka-
pólitík, og bent á það réttilega hvað ofan í ann-
að, að málið væri víðtækara eðlis en svo, að
verjanlegt yrði, að blanda því inn í meira og
minna beizkar, pólitískar flokksdeilur.
Ekki getur um það orðið deilt, að tími hafi
verið kominn fil að leiðandi menningarþjóðir
heimsins, bindust um það samtökum, að gera
stríð útlæg að alþjóðalögum. Til þess hafa
slysin fram að þessu, verið næ^ilega mörg og
mikilvæg. Ekkert gat því talist sjálfsagðara
en það, að sú kynslóðin, er vitni var að hörm-
ungum styrjaldarinnar miklu, hefði forgöngu í
þessu óendanlega þýðingarmikla ináli málanna,
að ólöghelga stríð í framtíð allri, en knýja á
hinn bóginn allar þjóðir til þess að gera út um
ágreiningsatriði sín með viturlegum tilraunum
til samkomulags, bygðum á gagnkvæmum skiln-
ingi allra aðilja. Það er núlifandi kynslóðin,
sem á að græða sárin frá hörmungum síðustu
styrjaldar eftir föngum, og fá hinni komandi
kvnslóð í hendur friðað þjóðlíf um alla jörð.—
Fram að þeim tíma, er styrjöldin mikla hófst/
virtist sá skilningur jafnan efstur á baugi hjá
forystumönnum hinna ýmsu þjóða, að fullnægj-
andi þjóðaröryggi gæti hvergi verið að finna,
nema í sem allra mestum vopnastyrk. Vopnaði
friðurinn virtist vera þeirra eina leiðarstjarna.
Skelfingarnar aliar, er af þeirri skaðsemdar
kenningu leiddu, höfðu í för með sér þær ægi-
legustu blóðsúthellingar, er mannkynið hefir
nokkru sinni augum litið. Með öðrum orðum,
kenningin um nytsemi vopnaðs friðar, hafði
reynst gersamlega röng. Þessvegna. er það, að
nú er mannkynið tekið að byggja framtíðar-
vonir sínar á óvopnuðum friði, skynsamlegri
hugarafstööu til viðfangsefna þeirra, er glímt
skal við, hversu erfið, sem þau annars kunna
að sýnast, eða friði jafnvægis og heilbrigðs
hjartalags. Einungis með slíka hugarafstöðu
fyrir augum, getur algert afnám vopnaburðar,
nokkru sinni komist í framkvæmd.
Dag þann, er Kellogg sáttmálinn var undir-
skrifaíjur í Geneva, flutti stjórnarformaður
canadisku þjóÖarinnar, Rt. Hon. W. L. Mac- „
kenzie King, ræðu við það tækifæri, er vakið
hefir djúpa athygli út um allan hinn mentaða
heim. Var hún þrungin af slíkum eldmóði fyrir
hugsjónum heimsfriðarins, að sjaldan hefir
rösklegar verið gengið til verks. Lýsti hann
þar beinu vantrausti á hinum svokallaða vopn-
aða friði, en tók sem dæmi, óvopnaða friðnum
til stuðnings, canadísku þjóðina, eða öllu held-
ur afstöðu hennar til Bandaríkjanna. 1 því
sambandi fórust Mr. King orð á þessa leið:
“Sambúð vor við nágranna þjóðina voldugu
sunnan *landamæranna, er grundvölluð á gagn-
kvæmum skiiningi friðsams athafnalífs. Á
meira en þrjú þúsund mílna löngu svæði, skilur
Canada og Bandaríkin, aðeins stærðfræðileg
lína. Enginn virkjagarður af mannahöndum
ger, liggur á milli þessara tveggja þjóða. Slík
virki væru líka öldungis óþörf, með því að báð-
um þjóðum skilst, að þau hin andlegu vígi, sem
rót sína ejga að rekja til ævarandi vináttu og.
gagnkvæms skilnings á hjartalagi hvorray þjóð-
arinnar um sig, séu haldbetri en allir þeir múr-
ar til samans, er reistir kunna að vera úr steypu
og stáli. Slíkan anda viljum vér láta hafa yfir-
höndina við staðfesting sáttmála þess, er hér
um ræðir, og ólöghelga skal stríð um allar ó-
komnar aldir.
Sá dagur virðist nú, góðu heilli, yera runn-
inn upp, er þjóÖirnar eru farnar að látá sér
skiljast hve illar afleiðingar að hnefarétturinn
jafnan hefir í för með sér, og hve óviðeigandi
það er, að grípa til slíks örþrifaráðs, ér gert
skal út um ágreiningsefni þjóða á milli. 1 stað
þess eru þjóðirnar nú famar að áfrýja vanda-
málum sínum til siðferðismeðvitundar almenn-
ings, og láta heilbrigða dómgreind taka við af
liéiftrækni og befnigimi.
Tíðrætt virðist Evrópu-húum um vel-
megun þá, er nú alment viðgengst í Canada og
Bandaríkjunum. Ekki skal úr því dregið, hve
afar þýðingarmikil hin efnalega afkoma er. Þó
finst mér tæpast rétt, að henni sé skipað í önd-
vegi. Tel eg það meira um vert, að hiÖ and-
lega andrúmsloft sé slíkt, að hver og einn ein-
staklingur, hver og ein þjoð, finni sig tengd
órjúfandi bræðraböndum, þannig að óttinn við
yfirgangsmuni, komist hVergi að. Slík er af-
staða canadísku þjóðarinnar til nágranna vorra
sunnan landamæranna, og slík er ósk mín að
hún megi einnig verða um aldur og æfi, gagn-
vart öllum öðram þjóðum.”
Bágborin skýring
Eg hefi orðið fyrir þeim óvænta heiðri, að grein
sú, er eg ritaði í Lögberg 6. sept., hefir verið álitin
þess verð, að henni hefir verið tvöfaldlega svarað af
heimfararnefnd Þjóðræknisfélagsins, fyrst af for-
seta nefndarinnar, Jóni J. Bildfell, í hans embættis-
nafni, í fjögra dálka langri grein, og síðan hefir of-
an á þetta bæzt tíu dálka löng ritsmíð frá nefndinni
sem heild, sem er rituð fyrir hennar hönd af séra
Rögnvaldi (Péturssyni og birtist í báðum íslenzku
blöðunum vikuna sem leið. Grein sú, er séra Rögn-
valdur ritar, er honum lík og að öllu leyti samboðin,
en það er orðið fremur bágborið ástandið í nefnd-
inni sjálfri, þegar hún getur ekki risið hærra en
það, að leggja fram fyrir almenning, sem sína em-
bættislegu skýringu á atriði því, sem um er verið
að ræða, annan eins skæting og annað eins orða-
glamur og aðrar eins óþverralegar dýlgjur, og aðra
eins ónærgætni við sannleikann, og þar kemur fram.
Það sannast sem fyr: Það dregur hver dám af sín-
um sessunaut.^
Um skætinginn og skammirnar til mín persóhu-
lega, læt eg mér standa alveg á sama, og, ef nefndin
heldur, að hún og starf hennar verði með því gert
veglegra, vil eg ekki taka þá ánægju frá henni. En
mér er ant um, að nefndinni takist ekki með öllu
þessu orðaglamri sínu og öllu moldviðrinu, sem hún
þyrlar upp, að koma fólki til þess að missa sjónar á
aðal atriðinu. Við það ætla eg að reyna að halda
mér.
Heimfararnefndin, fyrir munn séra Rögnvaldar,
er að gera gys að þeirri staðhæfing minni, “að með-
limir nefndarinnar séu sannnefndir spenamenn, því
þeir halda ekki að eins dauðahaldi í spena þá, sem
þeir þegar hafa komist á, en eru í stöðugri leit eftir
nýjum spenum”. Hún segir, að annað eins geti ekki
átt sér stað.
Þegar heil nefnd fer að verða' fyndin 1 sínu em-
bættislega nafni, mætti búast við, að um enga fljót-
færni væri að ræða af hennar hálfu. En mér finst
nú einmitt, að þetta sé vanhugsað hjá nefndinni, en
ekki hjá mér. Mér er að vísu ekki kunnugt um það,
hvað ma^rgir spenarnir á Saskatchewan stjórnarkúnni
eru, en eg gekk út frá því, að hún væri ekki vansköp-
uð. Meðlimir nefndarinnar eru fleiri en svo, að þeir
komist þar allir að í senn, og þess vegna er þörf á
að leita að nýjum spenum, ekki sizt þegar kýrin er
að verða geld. Það hefir nefndin líka gert með
meiri dugnaði en nokkuð annað af hennar störfum,
9em enn er orðið opinbert. Eg get því ekki betur
séð, en að þessi fyndni nefndarinnar sé algerlega á
hennar eigin kostnað.
Einum óþverra í grein séra Rögnvaldar ætla eg
ekki að ganga fram hjá þegjandi, vegna þess að eg
vil, að allir skilji, að það er séra Rögnvaldur og
meðnefndarmenn hans, sem einir eiga heiðurinn af
þeirri tuddalegu aðdróttun, sem þar kemtir fram, að
Ásmundur Jóhannsson hafi verið að kaupa lof um
sig í Lögbergi. Séra Rögnvaldur telur það ekkert
vinarbragð, sem orð,sé hafandi a, þó eg hafi “leyft
Lögbergi að flytja átölulausan greinarstúf um hinn
þriðja (Ásmund Jóhannsson) í launaskyni fyrir að
hann hafði stutt blaðið í auglýsingasöfnun sömu
vikuna.” Þetta eru orð séra Rögnvaldar en ekki
míp, og þau verða ekki skilin nema á einn veg. Eg
get vel skilið, að maður með haná innræti eigi bágt
með að skilja, að nokkur geri nokkuð nema fyrir
borgun, og eigi einnig erfitt með að átta sig á því,
að til séu þeir menn, sem deilt geta um málefni af
kappi og samt látið hvern annan njóta sannmælis.
Það veit eg, að honum er. ofvaxið. En eg get full-
vissað hann um, að Ásmundur Jóhannsson hvorki
keypti né þarf að kaupa lof á sig í Lögbergi. Og
við það skal eg fúslega kannast, að framkoma hans
í þessu heimfararmáli sýnir, að hann ber höfuð og
herðar yfir séra Rögnvald, bæði að því er vit og
manngildi snertir. Ásmundur Jóhannsson varaði
við aðferðinni, sem notuð var, þegar málinu var
fyrst hrundið á stað, og hann barðist eins og maður
á fundum nefndarinnar 21. og 22. maí fyrir því, að
fallið væri frá stjórnarstyrkshugmyndinni, til þess
að sameina alla. krafta og forða málefninu frá því
að lenda í algert strand. Ef hans ráðum í stað séra
Rögnvaldar, hefði verið íylgt, þá hefði öllum þeim
deilum og öllum þeim leiðindum, sem séra Rögn-
valdur hefir leitt yfir Vestur-íslendinga í sambandi
við þetta málefni, orðið með öllu afstýrt.
Heimfararnefndin staðhæfir, í grein séra Rögn-
valdar, að þýðing sú, sem eg birti í grein minni, á
skilmálurA þeim, er nefndin setti gufuskipafélögun-
um, sé “fölsuð, líklega óviljandi”. Fyrst séra Rögn-
valdur í grein sinni, er að sýna sína yfirburða mál-
fræðilegu og vísindalegu þekkingu, væri fróðlegt að
fá að vita, hvað átt er við með “óviljandr fölsun”.
Það virðist fela í sér mótsögn, eins og ef talað væri
um óviljandi þjófnað. Þegar um það er að ræða,
hvort þýðing sé rétt eða röng, dettur engum hugs-
andi manni í hug, að tala um “fölsun.’, nema hallað
sé réttu máli af ásettu ráði. Eða hvað segir prest-
urinn um það?
Það er merkilegt, að nefndin leggur ekki út í
það, að birta rétta þýðing og um leið að benda á, í
hverju fölsunin hjá mér sé fólgin. Sannleikurinn er
sá, að hún getur það ekki, því þýðingin er laukrétt.
Það má æfinlega deila um orðaval, þegar um þýð-
ingu er að ræða, en nefndinni tekst ekki að sannfæra
nokkurn um það, að meiningunni sé að nokkru leyti
hallað. Það er því illgirnisleg aðdróttun, sem jafn-
vel séra Rögnvaldur trúir ekki sjálfur, að hér sé urti
nokkra blekkingartilraun að ræða. Eg birti skilmál-
ana ekki að eins á íslenzku, heldur einnig á ensku.
í grein sinni birtir nefndin bréf á ensku, og álítur
það ekki ómaksins vert, að þýða það, þvf allir muni
skilja það án þess. Ef allir lesendur íslenzku blað-
anna eru færir um að lesa það bréf á ensku, þá gild-
ir það sama um skilmálana og kemst ekkert gabb að.
Einnig má benda á, að í grein Mr. Bildfells er birtur
í íslenzkri þýðingu kafli úr bréfi án dagsetningar og
án undirskriftar og án þess að birta á frummálinu
jafnvel kaflann, sem þar er um að ræða. Lesendum
gefst því ekkrt tækifæri til þsss að dæma um það,
hvort bréfið sé ekta, og’þýðingin rétt. Ef nefndin
sér ekkert athugavert við það, ætti hún að við-
urkenna, að eg hafi gengið hreinlega til verks með
því að birta slilmálana á báðum málunum.
Það er tvent, sem hefir skýrst við svar Mr. Bild-
fells og svar nefndarinnar fyrir munn séra Rögn-
valdar, og það er þetta: (1) að nefndin hefir gert
það að skilyrði við gufuksipafélögin, sem hún er að
reyna að “semja” við, að nefndinni sé borguð ákveð-
in þóknun fyrir hvern farseðil, sem seldur er, og (2)
að nefndin ætlar ekki að nota þessa þóknun til þsss
að lækka fargjöld. Það fyrra er svo greinilega tek-
ið fram í skilmálunum sjálfum, að ekki verður um
vilzt, og nefndin hefir gengist við skilmálunum í
heild og einnig við þessu skilyrði. Það seinna við-
urkennir Mr. Bildfell alveg ótvíræðlega í þessúm
orðum: “Uppástunga hans (hér er átt við mig), um
að lækka fargjaldið sem umboðsþóknunin nemur,
getur ekki komið til nokkurra mála, fyrir þá einföldu
ástæðu, að það er brot gegn ákvæðum Norður At-
lantshafs ráðsins. Það er eWíi hægt að verja einu
einasta centi af þessari umboðsþóknun til þess.”
Við sama tón kveður í grein nefndarinnar. iSvo mik-
ið er þá grætt á þessum svörum, að um þetta tvent
verður ekki 'lengur unt að deila.
Mér finst það næstum móðgandi, að vinur minn,
Mr. Bildfell, og neijndin í heild sinni, skuli geta lát-
ið sér detta í hug að eg, eða nokkur annar Vestur-
íslendingur, sem kominn er til vits og ára, muni
vera það barn að gleypa við þessari skýringu.
Mr. Bildfell segir, að það sé brot gegn ákvæðum
Norður Atlantshafs ráðsins, að lækka fargjaldið
sem umboðsþóknuninni nemur. En Mr. Bildfell og
nefndin gleymir því alveg, að það er einnig “brot gegn
ákvæðum Norður Atlantshafs ráðsins” að veita
$200 fargjöld fyrir hvern fullorðinn einstakling”
fram og aftur frá Winnipeg til Reykjavíkur. Það
er svo langt frá því, að beðið sé um þessa umboðs-
þóknun í þeim tilgangi, “að þetta umboðsfé sé far-
þegum ekkLmeð öllu tapað”, að það er hreint gabb
að vera að halda þessu að fólki. Ástæðan, sem færð
er fyrir þessu, sýnir það bezt sjálf. í skilmálum
þeim, sem hér er um að ræða, er nefndin alls ekki
að segja við gufuskipafélögin: Hvað er það ódýr-
asta fargjald, sem þið getið veitt þeim, sem heim
kunna að fara? Nei, nefndin segir þvert á móti:
íSetjið þið upp við farþegana verð það, sem við tök-
um til, og látið þá borga það að fullu, en látið svo
ganga til okkar ákveðinn hluta af því verði, sem úr
vösum farþeganna kemur.
Sjá ekki allir heilvita menn, að ef nokkurt gufu-
skipafélag á annað borð fór að brjóta “gegn ákvæð-
um Norður Atlantshafs ráðsins” með því að færa
fargjöldin niður fyrir vanalegt verð, þá gat það,
hvað Norður Atlantshafs ráðið snertir, alveg eins
vel fært það ofan í $187.20, eins og ofan í $200.00?
Sjá þeir ekki einnig, að með því að heimta umboðs-
þólpiun undir kringumstæðunum, var nefndin að
spilla fyrir því, að nokkur lækkun fengist? Sjá þeir
ekki, að hvert það félag, sem á annað borð gerði sig
brotlegt við Norður Atlantshafs ráðið með því að
semja um lægra verð en ráðið heimtaði, mundi eins
fúst til þess að selja farbréf fyrir $187.20, ef það
slyppi við að borga umboðsþóknun, eins og að selja
farbréfin fyrir $200.00 og borga þar af $12.80 sem
umboðsþóknun? Þeir af meðlimum nefndarinnar,
sem fengist hafa að einhverju leyti við fasteigna-
sölu, munu kannast við, að slíkur afsláttur á verði
til kaupenda r algengur, þegar um engan milli-
göngumann er að ræða, sem umboðsþóknun þarf að
borga.
Það er þýðingarlaust, að tala í þessu sambandi
um, hvað venjulegt sé, því nefndin var hér að fara
fram á það, sem óvenjulegt er, hvað farbréfaverðið
snertir Hún var að fara fram á verð, sem ekkert
eitt félag gat veitt, nema að gera sig brotlegt gagn-
vart Norður Atlanshafs ráðinu, og þá var þessi
ferð ekki lengur neinum þeirra reglum háð. Það
liggur því í augum uppi, að slikt félag hefði að sjálf-
sögðu fært fargjaldið meira niður, ef það losaðist
við að borga umboðsþóknun, en ef það þurfti að
borga slíka þóknun. Nefndin var þar beint að spilla
fyrir því, að slík lækkun fengist, með því að heimta
slíka þóknun. Og það sjá allir, að það, sem nefndin
fór fram á, var ákveðið verð til farþeganna og á-
kveðin þóknun til nefndarinnar sjálfrar, sem “ekki
gat komið til nokkurra mála” að notuð yrði til að
lækka fargjöld eftir því sem nefndin segir sjálf.
Þegar nefndin fór fram á þetta
$200.00 fargjald, skilst mér, að
hún hafi miðað við $125.00 far-
gjald yfir hafið. Það sýnir sig í
verkinu, að nefndin hefir barist
hinni góðu baráttu fyrir sjálfa
sig, því nú er hún búin að slaka
til um $47.00 með þann hlutann,
sem farþegunum bar að borga, og
“semja um” $172.00 fargjald með
því skilyrði, að hún haldi sinni
þóknun — og ofurlítið hærri þó —
sem “getur ekki komið til nokkurra
mála” að notuð verði til þess að
lækka fargjöld. Stjórnarstyrk og
þóknun verður nefndin undir öll-
um kringumstæðum að fá. Af
þeirri kröfu verður ekki slegið,
hvoriii til þess að sameina Vestur-
íslendinga um heimfararmálið né
heldur til þess að lækka fargjó'ld.
Það er ekki einu sinni hægt að
fóðra þetta, þó í þessum skilmál-
um hefði verið um fult, vanalegt
farseðlaverð að ræða. Það sann-
ar grein séra Rögnvaldar bezt
sjálf. Nefndin fer fram á vana-
lega umboðsþóknun, sem á að
ganga til nefndarinnar. í hennar
sjóð fer þessi þóknun. Um það er
engum blöðum að fletta. Mr. Bild-
fell segir, að það “geti ekki komið
til nokkurra mála”, að þessi um-
boðsþóknun verði notuð til að
lækka fargjöld. Eg segi, að
nefndin hafi engan lagalegan eða
siðferðislegan rétf til þess að nota
þessa þóknun til nokkurs annars,
og grein séra Rögnvaldar játar
þetta óbeinlínis. Um peninga þá,
sem nefndin kemst jrfir sem um-
boðsþóknun, segir hann: “Ligg-
ur því ekkert beinna við, en að
það verði undir þá borið, er fara,
hvað við þá skuli gjört. Heppi-
legaastur tími myndi vera að
gjöra það, eftir að allir væru
komnir um borð.”
Er ekki með þessu viðurkent, að
þeir, sem farbréfin kaupa, eigi
þessa peninga? Til hvers þarf þá
þessa krókaleið og þessa atkvæða-
greiðslu? Er þessi tillaga ekki
gerð í þeim eina tilgangi að fá
frest, eins og tillagan fræga úr
sömu átt, um að vísa stjórnar-
styrksmálinu til íslands? Ef at-
kvæðagreiðslan fellur þannig, að
farþegarnir heimta að fá. þessa
peninga sjálfir, sem öll sanngirni
mælir með, þá getur nefndin sam-
kvæmt sinni eigin tillögu ekki
neitað að afhenda þeim þá. Ef
það er hægt þá, því er það ekki
hægt í byrjun? Sannleikurinn er
sá, að nefndin hefir aldrei ætlast
til þess, að þessir peningar yrðu
notaðir til þess að lækka fargjöld.
Það játar Mr. Bildfell hreinskiln-
islega og séra Rögnvaldur upp á
sína vísu. Þeir áttu að ganga í
sjóð nefndarinnar, því, eins og
séra Rögnvaldur kemst að orði, er
“ekki óhugsandi, að eitthvað yrði
nauðsynlegt að kaupa hér til far-
arinnar, áður en Iagt væri af
stað.” Ef því nefndin nú notar
þess umboðsþóknun til þess að
lækka fargjöldin með, þá verður
það ekki af neinni umhyggju fyr-
ir landanum, heldur að eins vegna
þess, að hún verður til þess neydd
af almenningsálitinu.
Það er dálítið einkennilegt, að
þó fullum fjórtán dálkum sé var-
ið af Mr. Bildfell og séra Rögn-
veldi til skýringar á skilmálun-
um, þá minnist hvorugur þeirra
einu einasta orði á það, hvað
nefndin hugsi sér að gera með
eitt “ókeypis farbréf af hverjum
25, sem seld verða” og nefndin á-
skilur sjálfri sér. Ætla nefndar-
mennirnir sjálfir að ferðast á
þeim, til þess að geta verið við,
þegar atkvæðagreiðslan fer fram
um, hvað gert skuli verða við um-
boðsþóknun nefndarinnar, eða
hvað annars hugsar nefndin sér
með þau? Það tók nefndina fjór-
tán dálka að skýra það, að um-
boðsþóknunin verði ekki notuð til
þess að lækka fargjöld, nema
nefndin verði þvinguð til þess.
Hvað þarf hún marga dálka til
þess að skýra frá því, hvað hún
hugsar sér að gera með þessi ó-
keypis farbréf? Eða vill hún ekk-
ert um það segja?
Annað, sem nefndin mætti gjarn-
an skýra frá, er þetta: Ætlar
nefndin sjálf að annast um sölu á
farbréfum, eða á gufuskipafélag
hennar sjálft að annast um söl-
una? Fær hún umboðsþóknun á
öllum farbréfum, sem seld verða,
með skipi því, sem hún “mælir
með,” hvort sem hún selur nokk-
urt farbréf eða ekki og hvort sem
farþeginn er íslendingur eða ann-
arar þjóðar maður? Séra Rögn-
valdur segir, að nefndin sé nú
þegar búin að semja um sína um-
boðsþóknun, og því ætti að vera
auðvelt að svara þessu.
Eg vil benda þessum herrum á,
að það, sem þeir fara fram á, er
“customary agents’ commission”,
með öðrum orðum, þá umboðsþókn-
un, sem slík félög borga sínum
eigin agentum eða umboðsmönn-
um. Það væri fróðlegt að vita,
á hvern hátt og að hvaða leyti þei'r
skoða sig sem agenta fyrir gufu-
skipafélag það, er nefndin semur
við.
Það er orðinn skortur á ærleg-
um vopnum hjá nefndinni, þegar
hún í grein sinni birtir bréf Mr.
Pratt’s, dagsett 27. júlí, því til
sönunar, að sjálfboðanefndin hafi
samið við Cunard-félagið um “að
flytja íslendinga fyrir það hæsta
verð, sem því var leyfilegt að
heimta.” — Þetta er sjálfsagt “ó-
viljandi fö'lsun” hjá séra Rögn-
valdi, því honum ■virðist það al-
veg ósjálfrátt að misbjóða sann-
leikanum.
Löngu áður en grein séra Rögn-
valdar var rituð, var Cunard-fé-
lagið, í Lögbergi 16. ágúst, búið að
auglýsa, að lægsta fargjaldið yrði
$172.00, en ekki $196.00, eins og
stendur í bréfi Mr. Pratt’s. Þetta
er nákvæmlega sama verð, og
heimfararnefnd Þjóðræknisfé-
lagsins segist nú loksins vera bú-
in að semja um; svo henni hefir
ekki tekist neitt betur, þó hún sé
nú búin að gutla við þetta hátt á
þriðja ár. Sjálfboðanefndin hef-
ir aldrei beinlínis eða óbeinlínis
gengið inn á það við Cunard-
félagið, að fargjaldið yrði einu
centi hærra en þetta, og það vita
meðlimir heimfararnefndar Þjóð-
ræknisfélagsins mæta vel. Þeir
vita einnig, að bréf Mr. Pratt’s er
á misskilningi af hans hálfu
bygt, sem sjálfboðanefndin ber
enga ábyrgð á. Þessu til sönn-
unar vitna eg til bréfs frá Mr.
Pratt til mín, dagsett 21. septem-
ber, 1928, sem er á þessa leið:
The Cunard Steam Ship Com-
pany, Ltd., Anchor Line and
Anchor-Donaldson Line,
270 Main Street,
Winnipeg, Canada,
September 21, 1928.
File No. 51390
Mr. H A. Bergman,
Barrister, Etc.,
811 McArthur Bldg.,
Winnipeg, Man.
Dear Mr. Bergman:
Our attention has been di-
rected to the September 20th issue
of the “Logberg” page 5, column
3, to a copy of our letter to Mr. S.
F. (Finnbogason) of Elfros, Sask.,
wherein we quoted certain rates
to Iceland as pertaining to the
proposed Icelandic Excursion in
1930. We understand that much
comment has been centered around
our quotation of $196.00, quoted
as Third Class round trip Rate
from Montreal to Reykjavik, and
while this rate is effective in so
far as an individual booking is
concerned, is was an oversight
that this rate was quoted in this
communication, as the correct
Third Class rate authorized for
the Icelandic Excursion in 1930
was based on the Copenhagen
Rate, namely $172.00 for direct
service. We regret sincerely our
quotation of th higher rate as this
was purely an oversight and
would have been duly corrected
when the file was returned by our
filing department for purposes of
follow-up.
We understand that Mr. Peturs-
son is taking credit for the appli-
cation of the Copenhagen Rate,
but in this he is entirely out of
order as the rate was authorized
by our Campany in their wire of
February 25th last, copy of which
we append hereto for your ob-
servation.
We can assure you that the
Cunard Line is just as interested
in obtaining for the Icelandic Com-
mitee as favorable rates, condi-
tions and arrangements as any
committee of the Icelanders them-
selves and with our large organiz-
ation both in Amrica and in Eu-
rope we are in a particularly
happy position to render eveiy
help and assistance to the Ice-
landic Committee in perfecting
such arrangements as will make
the Icelandic Excursion in 1930
an unqualified success.
Yours very truly,
The Cunard Steam Ship Company,
Limited.
Per ”J. F. Pratt”
JFP :NH
Lauslega þýtt á íslenzku hljóð-
ar þetta bréf þannig:
íslenzkan
Kæri herra Bergman:
“Oss hefir verið bent á það, að í
Lögbergi 20. september, á fimtu
bls. þriðja dálki, er birt afrit af
bréfi voru til herra S. F. (Finn-
bogasonar) frá Elfros, Sask., þar
sem vér gáfum upplýsingar um á-
kveðið fargjald til íslands í sam-
bandi við hina fyrijhuguðu ís-
landsför 1930. Oss skilst, að tasl-
verðar umræður hafi spunnist um
það, að vér nefndum $196.00 sem
fargjald á þriðja farrými fram og
/