Lögberg - 01.11.1928, Síða 6

Lögberg - 01.11.1928, Síða 6
BLs. 6 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1. NÓVEMBER 1928 RAUÐKOLLUR EFTIR GENE STRATTON-PORTER. “Jæja, þá,” sagði Engilráð og leit brosandi til Jacks. “Eg skal þá fara þessa leið, til að þíSknast þér. Verið þið nú allir blessaðir og ælir, piltar.” Að svo mæltu hvarf hún út í skóginn. ‘‘ Mikill þöngulhaus geturðu verið,” hróp- aði Wessner, “stöðvaðu hana, haltu henni þang- að til við erum búnir og getum komist burtu að minsta kosti. Það er ekkert vit í þessu. Sérðu það ekki, að með þessu lagi er nokkurn vegmn úti um okkur alla. Ef þú lætur hana fara, þa verðum við allir að flýja, áður en þetta kemst upp, og þeir ná áreiðanlega einhverjum okk- ar.” . Jack stökk upp. Rauðkoll fanst hann ekki ætla að ná andanum. Engilráð var ekki komin lengra en svo, að þeir gátu enn séð til hennar gegn um limið. Hún var að raula lag fvrir munni sér og alls ekkert að flýta sér. Svo sneri hún aftur í áttina til þeirra og kallaði: — “Heyrðu, Rauðkollur! Fuglamærin vill fá _aft- ur náttúrufræðisritið. I því er nokkur liluti af lengri ritgerð, sem hun vill ekki tapa. Það var meðal annars þess vegna, sem við létum það í kassann. Gleymdu nú ekki að taka þessar bæk- ur, þegar þú ferð heim í kveld, því ef það skyldi rigna, þá skemmast þær.” ' “Eg skal gera það,” sagði Rauðkollur,_en röddin var þannig, að liann kannaðist ekki einu sinni sjálfur við hana. Svo leit hún framan í Jack og sagði einstak- lega glaðlega: “Þú lætur það pkki bregðast að koma bráðum og mundu að hálsbindið á að vera rautt. Jack tapaði sér alveg. Rauðkollur var hans fangi, en hann var áreiðanlega fangi Engilráð- ar með sál og lí'kama. Hann gat ekkert hugsað eða gert, annað en endurtaka það, sem Rauð- kollur hafði sagt “Eg skal gera það.” Eng- ilráð bar höfuðið hátit, og fór sína leið, en Jack sixeri sér að félögum sínum og sagði heldur hranalega “Hættið þið öllum slæpingsskap og haldið þið áfram að vinna. Þið hafið ekkert vit á því, hvernig á að taka á móti heldri konum. ” Mennirnir nöldruðu töluvert sín á milli, en fóru samt að vinna og keptust við. Sumir þeirra vildu, að maður væri sendur á eftir Eng- ilráð og að hann hefði gfetur á henni og Fugla- mærinni þangað til þær væru farnar burtu. — Rauðkoll fanst að hjartað í brjósti sínu ætlaði að hætta að slá, þegar hann heyrði þessa uppá- stungu, en Jack var eins og drukkinn maður og það var eins og öll dómgreind væri frá honum tekin og hann skeytti þessu engu. “Þið kannske ætlist til, að við hættum allir við að fella tréð og hlaupum eftir stúlkunni,” sagði Jack. “Það verður nú ekkert af því, skal eg segja ykkur. Eg held það sé ekki mikill efi á því, að henni leizt bezt á mig. Eg sé ekki nein blóm á ykkur. Ef nokkur fylgdi henni, þá ætti eg að gera það. En það veitir ekki af að eg sé liér, til að líta eftir öðrum eins asnakjálkum eins og þið eruð. En það er engin hætta. Þessi litla, góða stúlka kemur ekki upp um mig. Það er bezt fyrir ykkur að halda áfram að saga og láta hendur standa ftam úr ermum. Við Wt^ss- ner tökum axirnar og höggvum það hinu meg- in. ” “Gerið þið ekki of mikinn hávaða,” sagði Wessner. “Það gerir ekkert til með hávaðann,” sagði Jack. “Stúlkan hélt áreiðanlega, að við vær- um McLeans menn. Þeir tóku allir til starfs og héldu vel áfram. Rauðkollur settist niður og beið. Þeir virt- ustt hugsa um það eitt, að fella tréð sem allra fyrst og koma því burtu, svo þeir gætu byrjað að fella það næsta, og það var eins og þeir hefðu algerlega gleymt Rauðkoll. Engilráð hafði farið þá leiðina, sem hann bað hana, og hún hlaut nú að vera komin góðan spöl. En það lá ekki nærri, að það væri hættu- laust að fara þá leið heldur, og hann kófsvitnaði þegar hann hugsaði til þess, hvaða hættu hún var stödd í. Hún mundi verða töluvert lengur að fara þessa leiðina, og hans eina hugsun hafði verið sú, að hún færi þá leið, sem hættuminni væri. Hann reyndi að gera sér grein fyrir því, hve lengi hún mundi verða að komast þangað, sem hesturinn var. Skyldi Fuglamærin hafa tekið hestinn frá kerrunni? Hann fylgdi í hug- anum hverju fótmáli hennar alla leið. Hann var að hugsa um, hvað hún mundi ®e8’ja rið I uglamærina. Hvað lengi þær mundu verða að taka saman dót sitt og komast á stað. Hann var nú orðinn sannfærður um, að þær mundu skilja hvernig ástatt var og að Engilráð mundi koma orðum til McLeans eins fljótt eins fljótt og mögulegt væri, svo hann tapaði ekki veðmálinu. En það mundi ómögulega hepnast, því sögin var nú komin meira en hálfa leið gegn um treð og þeir Jack og Wessner voru að höggva djúpá skoru í það hinu megin. Það leit ekki út fvrir annað, en að þeir mundu að minsta kosti ná þessu tré, áður en McLean kæmi o«- þá tapaði McLean veðmálinu. Þegar þeir væru búnir að ná þessu tré, mundu þeir þá binda hann aftur og láta Wess- ner gera við hann hvað sem honum sýndist, eða mundu þeir fgra með hann að næsta tré og gera svro út af við hann, þegar þeir væru búnir að stela eins mörgum trjám eins og þeim sýndist? Jack hafði sagt, að hann yrði að minsta kosti ekki drepinn, fvr en hann væri farinn. Auðvit- að var hann ekki að leggja sig íalla þessa hættu fyrir eitt einasta tré, þar sem hann væri búinn að marka mörg önnur, sem væru miklu meira virði. Honum fanst að hann mœtti gera sér ofurlitla von um að sleppa lifandi út úr þessu, og hann óskaði þess af öllu hjarta, að Engilráð flýtti sér nú sem mest hún gæti. Einu sinni kom Jack til hans og spurði hann lavort hann hefði þarna nokkurt vatn að drekka. Rauðkollur stóð á fætur og benti honum hvar það væri. Jack drakk mikið, og þegar hann setti ílátið frá sér sagði hann: “Þegar maður- hefir tækifæri til að vinna stúlku, eins og þessa, sem hérna var, þá ætti maður ekki að vera flækt- ur við neitt ]>essu líkt. Eg vildi, að hamingjan gæfi, að eg kæmist út úr þessu!” “Það vildi eg nú líka, hvað mig snertir, ” sagði Rauðkollur. Jack starði á hann dálitla stund og skelli- hló. “ Ja, mig furðar það ekki,” sagði hann. “En. við gerðum þér heiðarlegt tilboð, og þú hafnað- ir því, og svaraðir Wessner eins og við vitum. Eg hefi ekkert við það að gera, hvaBWATessner gerir við þig, þegar eg er farinn.” “Þið eruð sex á móti einum,” sagði Rauð- kollur, “svo það er hægðarleikur fyrir ykkur að ráða mig af dögum. En sál mína og mann- orð getið þið ekki dregið niður til ykkar.” “ Jæja þá, en mikið vildi eg til gefa, að vera eins ráðvaíidur og einlægur, eins og þú ert,” sagði Jack. Hið mi'kla tré féll til jarðar og þeir, sem það feklu, voru glaðir yfir óliæfuverkinu, sem þeir höfðu unnið. Rauðkollur vildi helzt að hann hefði orðið undir því og vissi ekkert meira í þennan heim. Ef þeir nú bara kæmu trénu fljótlega burtu, þá vissu þeir sjálfsagt vel hvað þeir gætu gert við það, svo ekki bæri mikið á því. Aður en dagurinn væri á enda, gætu þeir verið búnir að ná þremur öðnim trjám, sem hvert um sig væri miklu meira virði en þetta. Svo léti þeir Wessner sjá um Rauðkoll og færu allir sinn í hverja áttina, en þeir mundu hafa miklu meiri peninga í fórum sínum, heldur en nokkurn tíma áður á æfinni. XIII. KAPITULI. Þegar Engilráð var komin út á brautina, leit hún við og sá að mennirnir voru farnir að vinna aftur. Þá tók hún til fótanna og hljóp eins og hún mest mátti. Hún var ekki komin nema nokkra faðma, þegar hún kom auga á hjólhest Rauðkolls. Datt henni nú alt í einu í hug hvers vegna Rauðkollur var svona ákafur að fá hana til að fara þessa leið. Hún greip hjólhestinn og henni gekk býsna vel að komast áfram á honum, þó sætið væri að vísu alt of hátt, enda var hún alvön við að nota hjólhest. Hún kom við hjá Mrs. Duncan og lægði þar sætið á hjólinu og sagði henni að hún ætlaði að finna McLen eins fljótt og hún mögulega gæti. en Mrs. Duncan yrði að fara og finna Fugla- mærina og segja henni hvernjg komið væri. Hún mundi áreiðanlega finna hana, ef hún færi austan megin við girðinguna. Ef hún fyndi hana ekki, þá mundi Fuglamærin fara til man- anna, sem voru að stela trénu. Og það mætti ekki koma fyrir. Mrs Duncan vildi fegin alt gera, sem í henn ar valdi stóð til að hjálpa Rauðkoll, en hana óaði legt, því ef þeir ná mér, þá er enginn til að fara út í Limberlost skóginn. Engilráð sá hvað henni leið og sagði einbeittlega: “Þú verður að fara, hvað hrædd sem þú ert. Það er ekkert um það að gera. Ef þú ferð ekki, þá fer Fuglamærin inn í s'kógarrjóðrið, því þar á hún helzt von á mér, og það verða áreiðanlega einhver vandræði úr því. Ef þeir komast að því hvert eg fór, þá er svo hætt við, að þeir geri eitthvað hræðilegt við Rauðkoll. Eg get ekki farið til að aðvara Fuglamærina, það er greini- legt, því ef þer ná mér, þá ee enginn ti lað fara að aðvara McLean. Þú lætur þér ekki detta í hug að þeir taki trén að Rauðkoll ásjáandi, og láti hann svo fara og segja frá öllu saman.^Þeir ætla sér áreiðanlega að myrða piltinn, það er enginn efi á því. Þú ferð nú og flýtir þér eins og þú mögulega getur. Líf Rauðkolls liggur við. Þú getur komið aftur í kerrunni með Fuglamærinni. ’ ’ Engilráð staldraði við, þangað til Mrs. Duncan var komin á stað; eftir það beið hún ekki iboðanna. Þetta var ljóti vegurinn. Skyldi þessi leið aldrei ætla að taka enda? Hún þorði ekki ann- að, en fara eins varlega með hjólhestinn eins og hún gat, því ef hann brotnaði, þá var engin von að hún kæmist í tæ'ka tíð til McLeans og hans manna. Vegurinn var svo slæmur, að hún varð stundum að fara af hjólhestinum og leiða hann við hlið sér, eða jafnvel bera hann; en þá hljóp hún alt sem hún gat. Það var ákaflega heitt, og veittist henni því mjög erfitt að kom- ast áfram. Hatturinn hennar varð eftir á einni skógargreininni og hún hirti ekki um að taka hann, en lét hann eiga sig. Engilráð notaði hjólhestinn allsstaðar þar sem hægt var að koma honum við. Hún tók svo nærri sér, að heimi fanst hún varla ætla að ná andanum. Hún hafði enga hugmynd um, hvað lengi hún var búin að vera, þegar hún loks komst út úr vegleysunni og á betri veg, en-hún vissi að hún var bara komin tvær mílur. Hún hallaði sér áfram á hjólinu og fór eins hart og kraftar hennar leyfðu. Hún hugsaði um það eitt, að komast áfram, og skeytti því engu, hvernig henni sjálfri léið. Henni fanst hún sjálf vera kyr, en húsin og trén á fleygiferð. Einu sinni kom hundur út á brautina og gelti og þvældist fyrir henni, svo hún nærri datt af hjólhestinum. Af því varð þó ekki og hún flýtti sér enn meir en áður, ef það var mögulegt. Það gat ekki verið mjög langt, þangað til hún kæm- ist alla leið. , Henni fundust kraftar sínir svo að segja að þrotum komnir, en hún tók á öllu, sem hún hafði til. Hitinn var óttalegur og rykið gerði henni mikil óþægindi. Alt í einu bilaði annað hjólið og hjólhesturinn valt um koll og Engilráð datt af honum ofan í moldina á brautinni og lá þar hreyfingarlaus. Duncan var á leið til borgarinnar með við- aræki. Fram undan sér sá hann rykmökk og réði af því, að þar væri einhver á hraðri ferð. Hann lét hestana stíga eins hratt eins og hann gat og þegar hann kom nær, sá hann kvenmann á brautinni og brotinn hjólhest. Hann flýtti sér til hennar, tók hana upp og bar hana út í grasið utan við brautina, þar sem skugga bar á, og reyndi að þurka rykið og svitann af and- liti liennar, sérstaklega frá munninum og nefinu. Hjólhestar voru algengir á þeim tímum. Margar bændadætur þar í nágrenninu áttu þá, en Duncan þekti þær allar og þessi stúlka var engin þeirra; hann þekti hana ekki. Hann gaf henni nánar gætur og hann sannfærðist um, að þessi st.ulka hlyti að vera þarna ókunnug og lík- lega væri hún frá bænum. Hann fór að skoða hjólhestinn og þekti þegar að það var lijólhest- ur Rauðkolls og gat hann eér þá til, að þetta væri Engilráð. Það var áreiðanlega eittlivað að í Limberlost og Engilráð var komin til að láta McLean vita úm það. Hann tók annan hest- inn frá ækinu, batt hinn og reið svo til næsta býlis og fann þar konu, sem hann bað að fara og líta eftir Engilráð. Hún brást vel við, greip kamfóruglas og vatnsfötu og þurku og hljóp á stað. Duncan reið alt sem af tók í áttina til sinna félaga, en þegar hann var nýfarinn, raknaði Engilráð við og leit í kring um sig. Hún sá, að hún var komin út á grasið utan við veginn og hún isá brotinn hjólhestinn standa þar skamt frá sér. Henni skildist strax, að einhver hefði borið hana þangað sem hún var og að hann mundi hafa farið til að sækja hjálp. Hún sá vagninn og einn hest og vissi hún þá, að hann hafði farið ríðandi. “Aumingja Rauðkollur!” var það fyrsta, sem hún sagði. “Nú eru þeir kannske að gera út af við hann! Hvað ætli eg hafi annars verið hér lengi?” Hún flýtti sér þangað, sem hesturinn var, leysti hann og tók af honum aktýgin, greip svipu, sem þar var í vagninum, fór svo á bak og reið eins hart og hún gat mögulega komið klárn- um, en hann var þessu óvanur og vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Hún mætti konu, sem kallaði til hennar og reyndi að stöðva ferð henn- ar, en hún skeytti því engu. Skömmu síðar reið hún fram hjá manni, sem sjáanlega var líkal á hraðri ferð. Hann kallaði til hennar, en hún skeytti því heldur e'kki og það leið ekki á löngu, þangað til hún komst töluvert á undan honum. Þegar hún kom þangað, sem McLean og menn hans voru að vinna, hrópaði hún eins hátt og skýrt eins og hún gat: “Farið þið allir undir eins til Rauðkolls. Það eru þjófar að stela trjám í skóginum og þeir hafa bundið piltinn og ætla að myrða hann. ” Hún beið ekki eftir neinu svari, heldur sneri við hestinum og hélt í áttina til Limberlost. Það sem hún sagði, barst þegar frá manni til manns. Þeir voru alls ekki með öllu óviðbúnir. McLean settist þegar á bak Nellie sinni og reið eftir Engilráð. Þegar þau mættu Duncan, sneri hann við og fylgdi þeim, og þar á eftir kom heill hópur af ríðandi mönnum og allir riðu þeir berbakt. Þau riðu svo að segja samhliða, McLean og Engilráð. Hann sagði henni hvað eftir annað, að hún skyldi hætta þessu og taka sér hvíld. Hann hætti þó fljótt við að varna henni að verða sér samferða, þvf hann sá að hann þurfti á henni að halda til til að vísa sér á hvar Rauð- kollur væri. Það tafði hann heldur ekkert, þó hún yrði honum samferða, því hennar hestur hélt furðanlega í við Nellie. Enda sá hann líka og heyrði, að henni var alvara með að taka ekk- ert tillit til þess, sem hann sagði. Hann leit aftur og sá, að Duncan var skamt á eftir. Það leyndi sér ekki, að honum var meira en lítið þungt í skapi. Sá, sem reiði lians kæmi niður á, mundi ekki eiga sjö dagana sæla. Fjórir aðrir menn voru rétt skamt á eftir, og margir þar á eftir. McLean varð dálítið hughægra við að sjá hve liðmargur hann var, og reið nú sam- síða Engilráð um stund. Hann spurði hana nokkrum sinnum hvar þessir þjófar væru, en fékk ekkert svar. Hún bara hallaði sér áfram og lét hestinn fara eins hart og liann gat með nokkru móti komist. Hesturinn tók vafalaust á öllu, sem hann átti til. Þegar þau fóru fram hjá húsi Duncans, þá var kerra Fuglamærinnar þar og Mrs. Duncan stóð í dyrunum, en Fuglamærin sást livergi. Engilráð fór vestari skóagrbrautina og menn- irnir fylgdu henni og þegar hún kom að skógarr rjóðrinu, voru fjórir menn með henni og tveir rétt á eftir. Þegar þar var komið stökk hún af baki, greip skammbyssu úr barmi sér og hélt inn í rjóðrið. McLean gerði hið sama og gekk rétt við hlið hennar. En þegar þau komu inn í rjóðrið, urðu þau bæði meira en lítið liissa. Þarna stóð Fuglamærin og hélt á skamm- byssu í hendinni og miðaði henni á þá Jack og Wessner, sem stóðu þar skamt frá henni með uppréttar hendur. Þarna stóð Rauðkollur bundinn við tré og það var bundið fyrir munninn á honum. Blóðið rann niður andlit hans úr sári, sem hann hafði á enninu. Hinir mennimir sáust hvergi. Jack var sjáanlega bálvondur og lét út úr sér hin óskaplegustu fáryrði, og þegar þau gættu betur að, sáu þau að hann hélt að eins vinstri hendinni á lofti. Hægri höndin hékk særð og máttlaus KAUPIÐ ÁVALT LUMBER Hjá THE EMPiRE SASH St DOOR CO. LTD. Yard: HENRY AVE. EAST. - - WINNIPEG, MAN. OfTice: 6th Floor, Bank of Hamilton Chambcrs Hve mikill yrði skaðinn ef eldsvoði < bœri að höndum? Eldsábyrgðkostar aðeins lítið en hún er trygging gegn miklu tjóni Látið oss annast eldsábyrgð yðar. Peningar til láns gegn fasteignaveði í borginni eða útjaöra borgum með lægstu fáanlegum rentum. HOME SECURITIES LIMITED 468 MAIN STREET :: WINNIPEG. Phone: 23 377 LEO. JOHNSON, Secretary. Nýjasta og bezta BRAUÐTEGUNDIN Búin til með ágcetasta rjómabús smjöri Það er smjörið í Bamby brauði, sem gerir það öllu öðru brauði betra. Hvert einasta brauð í umbúðum. Kaupið þessa brauðtegund strax í dag! Fæst bjá mat- vörukaupmanninum. Canada Bread umferðasölum eða með því að hringja upp 32 017-32018. Canada Bread Co. Limited A. A. RYLEY, Manager Winnipeg ....■"1111 niður með hlið hans og skammbyssa lá rétt við fætur Rauðkolls. Skammltyssa Wessners var kyr í belti hans og rétt hjá honum var kylfa Rauðkolls. Rauðkollur var eins fölur eins og mest mátti vera, en angu hans báru þess þó ljósan vott, að hann var enn ekki húinn að missa kjarkinn. — McLean gekk fram fyrir Fuglamærina og kall- aði: “Haldið þér þeim enn í eina mínútu.” Hann greip skammbyssuna úr belti Wessn- ers og beygði sig eftir skammbyssn Jacks. Engilráð fór umsvifalaust þangað sem Rauð- kollur var bundinn og leysti frá munninnm á honum og svo kaðalinn, sem hann var bundinn með. Henni gekk það dálítið erfitt, en það liepnaðist samt, og hún fleygði kaðlinum þang- að sem McLean var. Nú komu mennirnir hver » af öðrum og Duncan gekkj beint að Wessner og tók hann höndum. Þegar Rauðkollur var orðinn laus, rétti Engilráð honum báðar hend- ifrnar og dró hann að sér. Jack sá það, og blótaði afskaplega. Rauðkollur gat ómögulega stilt sig um að gefa honum auga og það leyndi sér ekki, að það var dálítill sigurglampi í angna- ráðinu. Fuglamærin hljóp til þeirra, og kallaði jafnframt til piltanna að sækja vatn og brjóta upp skápinn og ná þar sára umbúðunum. — » McLean var nú húinn að binda Wessner, en þá kallaði einhver að Jack væri horfinn og hann var frár1 á fæti og allir vissu, að hann mundi fljótt bera undan. Fóru því flestir mennirnir að elta hann. Fleiri menn komn nú að, og þeir vorn send- ir til að svipast eftir þeim, sam farið hafði með tréð. Hann hafði haft nægan tíma til að kom- ast lit úr skóginum og inn á alfaraveginn, og þaðan gat hann aftur farið í eina áttina eða aðra. Þarna var mikil umferð og margir á ferð með viðaræki, og þeir gátu ekki þekt þennan mann frá öðrum, sem þarna vorn á ferðinni. Þeir hættu því þessari leit og gengu í lið með hinum, sem voru að reyna að hafa upp á Jaek, enda þótti þeim meiri veigur í því.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.