Lögberg - 24.01.1929, Side 1
PHONE: 86 311
iðb
PHONE: 86 311
Seven Lines
42. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 24. JAMJAR 1929
NUMER 4
Canada i
i
Theodore Arthur Burrows, fylk-;
isstjóri í Manitoba, andaðist á Al-!
menna spítalanum í (Winnipeg-, á!
föstudaginn, hinn 18. þ. m., kl.:
11.16 að kveldinu. Viku áður var j
gerður á honum holskurður við
botnlangaveiki. Hepnaðist upp-
skurðurinn vel og fylkisstjórinn
var á góðum batavegi alt þangað
til á fostudagskveldið, og bar
dauða hans því mjög óvænt að og
snögglega, og var hans eigin fjöl-
skylda ekki einu sinni viðstödd,
þegar hann lézt.
Mr. Burrows var á sjötugasta
og öðru árinu, þegar hánn lézt,
fæddur 15. ágúst 1857 í Ottawa.—
Til Winnipeg kom hann 18 ára
gamall, lauk hér mentaskólanámi
og lagði stund á lögfræði um tíma,
en hvarf frá því og gaf sig ávalt
síðan að iðnaðar og viðskiftamál-
um. Hepnaðst honum það mjög
vel og var hann talnn maður auð-
ugur.
Mr. Burrows var jafnan áhuga-
samur um stjórnmál; um tólf ára
skeið var hann fylkisþingmaður í
Manitoba og í fjögur ár átti hann
sæti á sambandsþinginu í Ottawa.
Ýmsum fleirum opinberum stöð-
um gegndi hann fyr og síðar og 8.
öktóber 1926 var hann skipaður
fylkisstjóri í Manitoba og var
hann sá tólfti í röðinni. Fyrsti
fylkisstjóri í Manitobafylki var
skipaður 20. maí 1870. Er þetta í
fyrsta sinn, sem fylksstjóri Mani-
toba deyr, meðan hann gegnir því
embætti.
Mr. Burrows naut jafnan mikils
trausts og álits og þótti í hví-
vetna hinn merkasti maður.
Jarðarförin fór fram á þriðju-
daginn undir umsjón hins opin-
bera og með mikilli viðhöfn.
* * *
Fylkisstjórnin í Manitoba hefir
keypt 506 ekrur af landi rétt vest-
an við 'Headingly, til að byggja
þar nýtt fangahús. Fyrir land-
spildu þessa, sem liggur milli
Portage Avenue og Assiniboine
árinnar, borgar stjórnin $25,000,
eða $50 fyrir ekruna. Byrjað
verður að byggja þarna nýtt
fangahús strax í vor og er búist
við, að það verði fullgert að
hausti, svo flytja megi þá fang-
ana úr gamla fangelsinu á Kenne-
dy stræti, sem bygt var 1882 og
endurbætt 1912. Það tekur aðeins
126 fanga og hefir verið alveg fult
síðustu tvö árin. Seinasta þing
veitti $300,000 til að kaupa land
og byggja nýtt fangahús, og held-
ur dómsmáalráðherrann, að það
fé muni verða nóg. Þessi stóra
landspilda er öll vel fallip til
ræktunar og er ætlast til að fang-
arnir vinni þar að jaðrrækt og
öðru, sem að búskap Iýtur. Hef-
ir stjórnin að vísu fanga búgarð
nú, en landið þykir illafallið til
ræktunar og verður hann nú vænt-
anlega lagður niður.
* * *
Sakamál eitt meiriháttar hefir
staðið yfir í Winnipeg nú í meir
en tvo mánuði og réttarhald fram
fara svo að segja daglega síðan
13. nóvember, Er málið þannig
vaxið, að bræður tveir, W. T. og
F. H. Alexander, voru sakaðir um
fjársvik, falsaðar skýrslur og
falsaða bókfærslu, í sambandi við
félögin: Great West Permanent
Loan Co., Imperial Trust Co., og
Canadian National Fire Insuarnce
Co., sem þessir bræður voru ráðs-
menn fyrir í allmörg ár. Rétt-
vísin sótti málið á hendur þeim, en
sjálfir fengu þeir mikilhæfa lög-
menn til að verja sig. Eitt af því
sem borið var á menn þessa, var
það, að síðan 1912 hefði farið að
forgörðum hjá þeim $4,800,000 af
peningum fyrnefndra félaga, þó
ekki þar með sagt, að það hafi alt
tapast fyrir óráðvendni rááðs-
mannana.
Réttarhaldinu var lokið seint á
miðvikudaginn í vikunni sem leið
og höfðu fjórir síðustu dagarnir
gengið í ræðuhöld, því lögmenn-
irnir frá báðum hliðum og dóm-
arinn, tóku allan þann tíma til að
skýra málið fyrir kviðdómendun-
um. Kl. 5.45 á miðvikudaginn
settust kviðdómendurnir á rök-
stólana og sátu yfir málinu alla
nóttina og þangað til kl. 11.15 á
fimtudagsmorguninn. Höfðu þeir
þá allir komist að þeirri niður-
stöðu, að hinir ákærðu menn væru
sekir um alt það, sem þeir væru
kærðir fyrir.
Verjendur málsins kölluðu að-
eins 8 vitni, en sækjendur 174
vitni, sem komu að heita mátti frá
öllum hlutum Canada.
Á föstudagsmorguninn kvað
Kilgour dómari, dóm upp í málinu,
og er hann þannig, að W. T. Alex-
ander er dæmdur í þriggja ára
fangelsi og F. H. Alexander í
tveggja ára fangelsi í Stony
Mountain.
Ef til vill verður málinu áfrýj-
að til hærri réttar.
* * *
í fimtíu og tvö ár segir Mathe-
son erkibiskup að um það hafi ver-
ið “rætt og rifist”, hvar háskóli
Manitobafylkis ætt-i að standa,
þegar hann yrði bygður, sem er ó-
gert enn, því eins og kunnugt er,
á háskólinn engar varanlegar og
sæmilegar háskólabyggingar. Það
er enn verið að bollaleggja um það
hvar háskólabyggingarnar eigi að
vera. Það kemur víst öllum sam-
an um, að þær eigi að vera í Win-
nipeg, eða grendinni, en hvar í
Winnipeg, eða hvar í grendinni,
er enn óráðið. Lengi hefir verið
talað um Tuxedo, vestan við borg-
ina sunnanverða. Þá um St. Vital
í grend við búnaðarskólann, og nú
upp á síðkastið er mikið um það
talað, að byggja háskólann inni í
miðjum bænum, einmitt þar sem
þær byggingar eru, sem nú er not-
ast við, en sem öllum virðist koma
saman um að séu óhæfilegar og
óamboðnar þriðja stærsta háskól-
anum í Canada. Talið er víst, að
nú geti ekki liðið á löngu, þar til
ákveðið verði hvar skólinn á að
vera og hafist verði handa að
koma upp varanlegum og sæmi-
legum byggingum.
* * *
Hinn 17. þ.m. vildi það hræði-
lega slys til í grend við Arden,
Man., að íbúðarhús brann til
kaldra kola og inni brunnu tvö
stúlkubörn, May sex ára og Lucy
tveggja ára. Voru þær dætur
hjónanna, sem í húsinu bjuggu,
Mr. og Mrs. Alex. Wersuk. Þetta
var um miðjan dag, og var mað-
urinn úti við vinnu, og konan fór
út að sækja vatn, en börnin voru
bæði sofandi. Þegar konan kom
aftur, stóð húsið í björtu báli og
varð við ekkert ráðið og engu
bjargað.
* * *
í vikunni sem leið vildi það slys
til, að strætisvagn, sem kom norð-
an Aðalstrætið í Winnipeg, bilaði
eitthvað þegar hann var að fara
ofan í göngin vestan við C. P. R.
járnbrautarstöðina, og fór vagn-
inn út af sporinu og rakst á eina
stoðina, sem heldur uppi þakinu
yfir ganginum og brotnaði vagn-
inn almikið. Það var ekki margt
fólk í vagninum, þegar þetta kom
fyrir, en níu af þeim, sem þar
voru, meiddust meira og minna,
en þó enginn hættulega, og þótti
það merkilegt, sérstaklega með
manninn, sem vagninum stýrði,
{iví hann kastaðist út úr honum
anga leið. Mun nú flest, eða alt,
þetta fólk nokkurn veginn jafn-
gott eftir þau meiðsl, sem það
varð fyrir.
á ferðum., Fór hann því á fætur
þó veikur væri, tók ljós í hönd og
fór út til að gá að hvað um væri
að vetra. Var þá eins og hann
grunaði, að skriða mikil hafði
fallið yfir brautina og gert hana
með öllu ófæra. Veifaði hann nú
ljósinu í kring um sig, og þegar
lestin færðist nær, sá lestarstjór-
inn ljósið og grunaði að hér væri
hætta á ferðum og stöðvaði lest-
ina eins fljótt og hann gat, og
hepnaðist það áður en kom þang-
að, sem skriðan hafði fallið yfir
brautina. Varð þetta snarræði
piltsins til þess að afstýra miklu
slysi og frelsa mörg mannslíf.
* * *
Lögreglan í Chicago lét heldur
en ekki til sín taka núna um helg-
ina sem leið. Fór hún um vissa
hluta borgarinnar og handtók sæg
af fólki, sem hún vissi til að eitt-
hvað var brotlegt við lögin. Vann
lögregluliðið að þessu í tvær næt-
ur og mestallan sunnudaginn, og
Þegar þessari herferð var lokið,
hafði lögregluliðið fylt 40 lög-
reglustöðvar og fangarnir urðu
um hálft fjórða þúsund. Segja
fréttirnar, að þetta hafi verið
heldur sundurleitt lið, konur og
karlar, ungir og gamlir, sumir í
skrautklæðum og vel til hafðir í
alla staði; aðrir í verstu ræflum
og herfilega útlitandíí En eitt
átti fólk þetta sameiginlegt, að
nöfn þess voru skráð hjá lögregl-
unni og ýmsar uplýsingar um at-
hæfi þess að undanförnu, og mynd-
ir af fingraförum þess hafði lög-
reglan einnig. Tilefnið til þess,
að lögreglan lét svona mikið til
sín taka, var það, að á einni viku
höfðu verið framin fjögur morð
og 102 rán í Chicago.
* * *
Konur eru alt af láta meira og
meira til sín taka í stjórnmálum
Bandaríkjanna. Er fullyrt, að það |
hafi verið fyrir þeirra áhrif, að j
Kellogg friðarsáttmálinn var sam-
þyktur í þjóðþinginu mótstöðulít-
ið og skilyrðislaust. Eiga þó þar
ekki sæti nema örfáir kvenfulltrú-
ar. Hins vegar eiga alls 145 kon-
ur sæti á 38 ríkisþingunum. Fim-
tán af þeim eiga sæti í efri mál-
stofum ríkisþinganna. Á ríkis-
þinginu í Connecticut eru 20 kon-
ur, og eru þær hvergi annars-
staðar eins margar. Við síðustu
kosningar unnu konurnar nokkuð
á í miklu fleiri ríkjum, heldur en
þar sem þær töpuðu.
* * *
í Cascade Mountains, einar 100
mílur austur frá Seattle, hefir
Great Northern járnbrautarfélag-
ið nýlokið við jarðgöng, sem eru
áitta mílur á lengd og hafa kostað
fjórtán miljónir dala. Þetta mikla
mannvirki hefir verið unnið á
þremur árum.
Bandaríkin.
Unglings piltur í Dyesville,
Ohio, Glen Clives að nafni, lá í
rúmi sínu veikur af inflúenzu,
þegar hannn alt í einu heyrði há-
vaða mikinn, dunur og dynki, og
datt honum í hug að skriða mundi
hafa fallið úr hlíðinni, skamt frá
heimili hans, og þá væntanlega
farið yfir járnbrautina, sem var
nærri. Hann vissi, áð von var á
járnbrautarlest og skildist hon-
um, að hér væri mikil mannhætta
Hlœgir þú og getir verið glaður
Hlægir þú og getir verið glaður
gegn um bræðra þinna sorg og stríð,
þá er víst að þú ert ekki maður—
þú ert einhver bölvuð hrákasmíð.
Fullan þátt í sorgarleikjum lífsins
leikur þú, ef áttu heila sál,
þar til fyrir eggjum heljar hnífsins
hníginn ert, og drekkur banaskél.
Sig. Júl. Jóhcmnesson.
VILHJÁLMUR STEFÁNSSON.
Hvaðanœfa.
Ofviðri mikil hafa að undan-
förnu gengið á norðvestur strönd
Evrópu og víða gert mikinn skaða
á skipum og sumstaðar orðið
nokkurt manntjón. Snjór allmik-
ill hefir líka fallið víða í Evróvu
og tept samgöngur um tíma,
jafnvel suður á ítalíu.
* * *
Frétt frá Hong Kong í Kína
hinn 16. þ. m. segir, að kínverskt
fólksflutningaskip hafi rekist á
sker í grend við Waglan og sokk-
ið, og þar hafi farist yfir þrjú
hundruð manns, en aðeins um
tuttugu verið bjargað.
* * *
Clemenceau, fyrverandi forsæt-
isráðherra Frakklands, er veikur
um þessar mundir, er þó ekki mjög
þungt haldinn, að sagt er. Hann
er nú 87 ára að aldri og kraftarn-
ir því að sjálifsögðu orðnir held-
ur litlir.
* * *
Bærinn Cumana í Venezuela í
Suður-Ameríku, hefir svo að segja
gerhrunið í jarðskjálfta, nú vik-
unni sem leið, eftir því sem frétt-
ir þar að sunnan segja. íbúarnir
í bæ þessum voru um 15,000, sem
nú eru flestir eða allir húsviltir,
þeir sem eftir lifa, en allmargt
fólk segja fréttirnar að farist
hafi og fjöldi fólks meiðst meira
og minna. Fyrir 60 árum eyði-
lagðist bær þessi svo að segja af
jarðskjálftum og hafa þeir oft
síðan gert þar töluverðan usla.
“Vafalaust ein allra merkasta
uppgötvunin frá landfræðilegu
sjónarmiði í seinni tíð, mun mega
teljast fundur sundsins milli |
Graham Land eyjanna og megin-
lands íshafssvæðanna.
“Þetta sund hefi eg með mikilli
ánægju látið heita í höfuðið á
Vilhjálmi Stefánssyni, mínum
fyrsta kennara í landkönnun og
mesta landkönnuði nútímans.”
Ofangreind hraðfrétt frá flug-
kappanum og r: nnsóknafrömuð-
inum víðfræga, Sir Hubert Wilk-
ins, birtist í “New York Americ-
an” þann 30. des. s. 1. Hefir sá
maður, eins og kunnugt er, getið
sér á skömmum tíma heimSfrægð,
fyrir hetjuflug yfir heimskauts-
svæðin.
Það leiðir af sjálfu sér, að fregn
þessi hljóti að verða íslendingum
sérlega kærkomin, þar sem hún
leggur nýjan lárviðarsveig að \
höfði þess víðfrægasta íslendings,
sem nú er uppi, og kemur auk
þess sem verðskulduð viðurkenn-
ing frá manni, sem getið hefir sér
ódauðlegan orðstír út um allan
hinn mentaða heim. Og þegar tek-
ið er tillit til þess, hve Sir Hub-
ert Wilkins er gjörhugull maður
og gætinn, fær viðurkenning sú,
er hann nú hefir veitt Vilhjálmi
Stefánssyni, tvöfalt gildi. Því
hver er sá af þjóðflokki vorum, er
eigi myndi telja Vilhjálm “dráp-
unnar verðan”?
Vilhjálmur Stefánsson hefir
aldrei verið neinn sjálfsskrumari.
Enda hefir hann alla jafna lagt
leið sína um þær brautir, er frem-
ur var hljótt um, en ærslasamt af
auglýsinga kepni. Og jafnvel í
sambandi við hans allra mikil-
fengilegustu afrek, komust auglýs-
inga fellibyljirnir ekki í hálfkvisti
við það, sem nú á sér stað, fyrir
margfalt óverulegri afreksverk
annara manna. Slíkt hefir aldrei
truflað sálarjafnvægi Vilhjálms.
Ekkert er honum fjær skapi en
það, að sækjast eftir hégómlegu
auglýsingaskrumi. Starfið sjálft
og afreksverkin hafa verið hans
einu laun.
Ekki ber því að leyna, að jafn-
vel meðal íslendinga sjálfra, hafi
stundum kent misskilnings á Vil-
hjálmi og starfi hans. Menn hafa
jiafnvel spurt sem svo: “Hvar
ætli hann reyni nú að leita fyrir
sér næst, á sviði rannsóknanna?”
Þeim hinum sömu hefir einhvern
veginn hlaupist yfir þá staðreynd,
að Vilhjálmur Stefánsson á ekki
nema í vissum skilningi samleið
með öðrum landkönnuðum, svo
sem Amundsen og þeim hinum, er
skipuðu æfintýrunum í öndvegi.
Vilhjálmur er vísindamaður fyrst,
og landkönnuður á eftir. Sann-
gildi rannsóknarferðanna, mat
hann eftir því, hve mikið gildi
þær gáfu grundvallaratriðum
þeim, er hann hafði sérstaklega
fest auga á.
Vilhjálmur Stefánsson fór sína
fyrstu för norður í íshaf, sem þjóð-
fræðingur, eða þjóðeinkenna fræð-
ingur, og hann kom óbreyttur til
baka, hvað skoðanir snerti. Hon-
um tókst að sanna, að heimskauta-
svæðin væri hvergi nærri eins ó-
vistleg og alment hafði verið hald-
ið fram, héldur væru þau jafnvel
aðlaðandi og vingjarnleg. Gerði
hann á ferðalögum sínum marg-
falt fullkomnari og merkilegri upp-
drætti, en nokkru sinni höfðu áð-
ur þekst. Á meðal almennings,
vöktu uppgötvanir hans bæði
undrun og aðdáun. Sjálfum fanst
honum lítt til um alt slíkt. í hans
augum var sigurinn eingöngu í
því fólginn, a?5 hann staðfesti
skoðanir hans á því, að í norður-
höfum væri að finna vingjarnleg
og aðlaðandi landflæmi. Sjálfur
kunni hann að sníða sér stakk
eftir vexti, og lifði lífi sínu að
öilu leyti í samræmi við umhverfi
það, er hann var staddur í, í það
út, fór einn af prófessorunum við
Harvard háskólann um hana eink-
ar lofsamlegum orðum, en tjáðist
jafnframt þeirrar skoðunar, að
hún væri svo langt á undan tím-
anum, að er til þess kæmi, að sann-
leikur sá, er hún hefði inni að
halda, yrði lýðum ljós, myndi nafn
hennar gleymt.
Engan veginn getur staðhæfing
sem þessi, skoðast gild í öllum
atriðum, því nú hefir Sir Hubert
Wilkins, leitt það ótvírætt í ljós,
að skoðun Vilhjálms á hentugleik-
unum til verzlunarlegra flugsam-
banda yfir íshafsflæmin, var rétt,
sökum þess, að þar væri um að
ræða skemsta leíð og öruggasta.
Er hér um að ræða landfræðilega
staðreynd, skiljanlega hverjum
þeim, er grandskoðar landabréf,
eins og það, er í “The Northward
Course of Empire” birtist.
Þegar að því kemur, að almenn-
ingur líti landabréfið sömu aug-
um og Vilhjálmur, mun hann
sannfærast, og feta í fótspor
hans.
Ýmar aðrar staðhæfingar í
ósk sína, að mega heiðra Vilhjálm
að makleikum fyrir afreksverk
hans.
Af því, sem sagt hefir verið hér
að framan, er það sýnt, að um-
mæli Sir Hubert Wilkins um Vil-
hjálm Stefánsson, voru ekki um
skör fram. H. J. S.
Þýtt af ritstjóra Lögbergs.
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
sextugur.
Að kvöldi þess 9. janúar síðastl.,
var alt með óvanalega miklum
gleðiblæ hjá Goodtemplarastúk-
unni Skuld, í tilefni af því, að
þann dag var afmæli Dr. Sig. Júl.
Jóhannessonar, hver eð hefir ver-
ið félagsins ötulasti meðlimur frá
því hann kom hingað til lands
fyrir rúmum 30 árum.
Embættismenn stúkunnar höfðu
undirbúið gott prógram og veit-
ingar, og áður en langt leið á
kvöldið, var kominn veizlubragur
á alt í G. T. húsinu, og að endaðri
mjög ánægjulegri kaffidrykkju,
|tók umboðsmaður stúkunnar við
“The Northward Course of Em- stjórn samkvæmisins og lýsti fyr-
pire,” eiga við snarpari andspyrnu I ir áheyerndum hversu það væri
afli að etja, svo sem erfðavenjur, | viðeigandi að stúkan Skuld tæki
gamaldags kreddur, og lifnaðar-1 nú fagnandi í hönd doktorsins og
háttu, helgaða af vananum. En j mintist þess, að hann hefði ávalt
þótt þar sé oft og einatt um ó-, Verið bindindisst^rfinu ótrauðasti
þægilegan götuþránd að ræða,! Hfgjafi. Og sem þakklætisvott
hlýtur þó svo að fara, að slakað frú félagssystkinum hans, sagðist
verði smátt og smátt til á höml- umboðsmaður vilja afhenda hon-
unum, eftir því sem skilningurinn um ofurlitla gjöf.
á staðhæfingum Vilhjálms skýr- i Næst talaði Stórtemplar, Mr. A.
ist fyrir alþýðu manna. Að skil- s. Bardal. Fór hann mörgum fögr-
greina allar slíkar staðhæfingar,
margbrotnar eins og þær eru,
verður ekki gert í stuttri blaða- j indismálsins
grein. Þó eru þær allar óendan-
lega þýðingarmiklar, og grípa
og það skiftið. Var hann orðinn inn 1 samtið’ framtíðar
svo leikinn í þeirri list, að úr því
uðru hinar hrikalegustu svaðil-
farir að barnaglingri. tJthverfan
á rannsóknunum, ef svo mætti að
orði kveða, varð honum að sjálf-
sögðu næsta hversdagsleg. Kjarn-
inn var honum alt. Hann hafði
riðið á vaðið, og úr því var eftir-
leikurinn hægri fyrir þá, er “þorðu
að koma og reyna.”
Þetta var Sir Wilkins ljóst, og
þess vegna er það, að hans stærstu
sigra má rekja, beint til Vilhjálms
Stefánssonar. Hann þekti Vil-
hjálm líka manna bezt, þar sem
hann hafði dvalið með honum um
lengri tíma í norðurhöfum.
Það verður aldrei of oft tekið
fram, að stærstu sigrar Vilhjálms
eru hugsjónalegs eðlis, því af
hugsjóna takmarkinu hefir hann
aldrei mist sjónar.
Sem dæmi, mætti ef til vill
benda á það, að afstaða Vilhjálms
til venjulegra landkönnunar-
manna, væri ekki ósvipuð afstöðu
hins stranga vísindamanns, til
þjónsins í efnarannsóknarstofu
möguleika þess fólks, er Vestur-
Canada byggir. Og það væri
sennilega ekki úr vegi að segja, að
með þeim vísi Vilhjáimur á veg-
inn, sem það fólk eigi að fylgja á
leið til þess þroska, er náttúran
virðist hafa kjörið það til.
Vilhjálmur Stefánsson, er í
raun réttri vísindalegur heimspek-
ingur, er sneiðir fram hjá öllum
óvísindalegum getgátum. Hann
brýtur til mergjar viðfangsefni
sín, svo rækilega, að ekki verður
um kjarnann vilst, því hann er
hvorttveggja í senn, strangvís-
indalegur og praktiskur.
Vilhjálmur Stefánsson hefir í
raun og veru umturnað skoðunum
mannkynsins á íshafssvæðunum;
rannsóknir hans hafa verið sjálf-
stæðar, og engu háðar, öðru en
hans eigin dómgreind. Og hon-
um hefir af sömu ástæðu tekist
manna bezt að draga upp lifandi
myndir af norðvestrinu canad-
iska.
Þótt undarlegt megi þykja, eru
menn enn að spyrja öðru hvoru,
um orðum um ötulleik og trú-
mensku doktorsins í þarfir bind-
Enn fremur las
hann upp úr “Eimreiðinni” rit-
gerð eina, nýlega í letur færða af
dr. Richard Beck, einkar sann-
gjarna og velviðeigandi lýsing á
starfi og atorku Dr. Jóhannesson-
ar.
Einn af þeim, sem töluðu, var
Mr. Helgi Johnson; lýsti hann all-
nákvæmlega æskuárum heiðurs-
gestsins og fyrstu þátttöku hans í
bindindismálinu heima á ættjörð-
inni.
Á milli ræðanna var sungið og
leikið á hljóðfæri.
Síðast tók “afmælisbarnið” til
máls; þakkaði hann stúkunni hlý-
hug þann, er hún hefði sýnt sér
og konunni sinni með þessum
fagnaði. Vék síðan nokkrum orð-
um að því skyldustarfi, sem hverj-
um rétthugsandi manni og konu
ber að inna af hendi, og verða yf-
irsterkari þeim mikla og arga ó-
vini mannkynsins, Bakkusi. G. J.
voldugs iðnfélags, er breytir hin-1 nær Vilhjálmur muni leggja út í
um vísindalegu uppgötvunum hans I rannsóknir á ný. Sannleikurinn
i hagkvæma framleiðslu. Þó væri
slíkur samanburður engan veginn
nákvæmur, er tekið yrði tillit til
þess, að Vilhjálmur hefir ávalt
orðið sjálfur, að sanna gildi kenn-
inga sinna. Fjöldinn var efa-
gjarn, og vildi eigi þýðast kenn-
ingarnar, fyr en gildi þeirra hafði
verið til fullnustu sannað. Ef
til vill mætti ganga feti framar
og segja, að einungis tíminn hafi
er sá, að hann hefir aldrei látið
af þeim. Uppgötvanir hans eru
margfalt verðmætari nú, en þegar
hann fann Borden eyna. Álit
hans vex með hverjum líðandi
degi. Nú í vetur, hefir hann ver-
ið kjörinn til að halda Lowell
fyrirlestrana við Harvard háskól-
ann, og með vorinu flytur hann
fyrirlestra við Cambridge, um
sögu landkönnunarinnar. Auk
sannað ýmsar af staðhæfingum [ þess hafa vísindafélög í Kaup-
•hans. Má þetta að nokkru leyti' mannahöfn, Berlín og Oslo, feng-
heimfæra upp á hans merkustu ið hann til að flytja fyrirlestra.
Síðast, en ekki sízt,
bók, “The Northward Course of
Empire.”
Um þær mundir, er bók sú kom
má geta
þess, að konungur íslands og
Danmerkur, hefir látið í ljós þá
WONDERLAND.
Kvikmyndin “Hard-Boiled Hag-
gerty”, sem sýnd verður á Wond-
erland leikhúsinu þrjá síðustu
dagan af þessari viku, tekur fram
flestum ððrum kvikmyndum að
því leyti, að þar er ekki aðeins
tórt og tilkomumikið hlutverk af
hendi að inna fyrir þann, sem aðal
hlutverkið leikur, heldur líka
marga aðra, og þeim ferst það
öllum sérlega vel, þó Milton Sills
skari fram úr og sömuleiðis Molly
O’Day, sem leikur afbragðs vel.
Fyrstu þrjá dagana af næstu
viku, sýnir leikhúsið kvikmynd-
ina “The Latest from Paris”, þar
sem Norma Shearer leikur aðal-
hlutverkið. Þetta er fyrst og
fremst gamanleikur, en gamninu
fylgir líka nokkur alvara, og
myndin sýnir, að ástin er jafnan
söm við sig, þó siðir og hættir og
hugsunarháttur fólsins breytist á
ýmsa vegu.