Lögberg - 24.01.1929, Side 8

Lögberg - 24.01.1929, Side 8
Bls. 8. LÖGBERG FIMTUDAGINN 24. JANÚAR 1929. RoblnHood FIjOUR Trygt með ábyggilegri endur-greiðslu tryggingu og þar að auki 1 0 prc. — G etið að tryggingaskjal- inu í hverjum poka.-------- „ int Sunnudagsmorg'uninn, þann 23. des. s. 1., andaðist í 'Winnipeg Gunnar Gíslason Sigmundsson, frá Grund í Geysis-bygð í Nýja íslandi. Hann var yngsti sonur hjónanna Sigmundar Gunnarssonar og konu hans, Jónínu Guðrúnar Jónsdóttur. Gunnar heitinn var fæddur 27. júní 1892, á Seyðisfirði, en kom ungur til Iþessa lands ásamt foreldrum sínum. Banamein hans var inn- vortis sjúkdómur, er hann hafði þjáðst í þrjú ár. Sýndi hann frábært þrek og þolinmæði í sjúk- dómsbaráttunni. Ávalt hafði hann verið með foreldrum sínum og lílt að heiman farið. Einkar vel kyntur og hvers manns hugljúfi talinn af þeim, er bezt þektu til. Hann var jarðsunginn þann 27. des. Fjölmenti cfólk mjög bæði við kveðjuathöfnina í heimahús- um og við kirkju Geysis-safnaðar. —Hans er sárt saknað af öldruð- um foreldrum, tveimur bræðrum og tveimur systrum, og tveimur fóstursystrum, og hópi vina og kunningja. S. Ó. Veitið athygli auglýsingu um sjónleik þann, sem leikinn verður af hálfu Goodtemplarastúknanna, Heklu og Skuldar. Leikurinn mun mörgum kunnur, er hann þýddur úr ensku og mun fólki veitast á- ánægjuleg kvöldstund auk tæki- færis til að stykja gott málefni.— Gelymið hvorki stund né stað. Hinn 19. þ. m. andaðist á Al- menna spítalanum hér í borginni, Mrs. Anna Hördal, kona Svein- bjarnar Hördal að Riverton, Man. Var líkið sent frá útfararstofu A. S. Bardals til Winnipeg Beach, og fór jarðarförin þar fram. Séra Sigurður ólafsson jarðsöng. Messuboð. — Næsta sunnudag: Kandahar kl. 2 e. h., Elfros kl. 7.30 — báðar messurnar á ensku. Það var upphaflega ætlast til, að sú fyrri yrði á íslenzku og yrði nýársguðsþjónusta, en sú breyt- ing hefir orðið, að enskt mál verð- ur notað og guðs'þjónustan algeng. Fjölmennið á báðar, íslendingar, og látið aðra vita. Vinsamleg- ast. C. J. Olson. Winnipeg var kaldasti staður- inn í Vestur-Canada á föstudags- kveldið og laugardagsmorguninn í síðustu viku, þeirra er regluleg- ar veðurathuganir hafa. Ekki var frostið samt nema rúm tuttugu stig neðan við zero, en jafnvel norður í The Pas, var ekki nærri svo kalt. Á fundi, sem stúkan Vínland, Nr. 1146, C. O. F., hélt þann 15. þ. m., voru eftirfylgjandi embætt- ismenn kosnir fyrir þetta ár: C. R.: J. J. Vopni. V.C.R.: Gunnl. Jóhannsson. R. S.: P. S. Dalman. F. S.: S. Pálmason. Treas.: B. M. Long. Chapl.: G. H. Hjaltalín. S. W.: M. Johnon. J. W.: J. Josephson. S. B.: S. Johnson. J. B.: Mafnússon. Phys.: B. J. Brandson. Aud.: A. G. Poulson, B. Magn- ússon. Stefán A. Johnson, prentari, til heimilis að 860 Home St., hér i borginni, andaðist á fimtudaginn í vikunni sem leið, hinn 17. þ. m., eftir langvarandi veikindi. Hann var 46 ára að aldri.xKom á barns- aldri frá íslandi og átti heima í Winnipeg næstum alt af eftir það. Hann lætur eftir sig ekkju og þrjú börn. Jarðarförin fór fram á mánudaginn frá Fyrstu lútersku kirkju. Dr. Björn B. Jónsson jarðsöng. Til sölu nýjar ‘raritets’ rjóma- skilvindur — Frekari upplýsingar fást hjá G. S. Guðmundssyni, að Arborg, Man. Til sölu húsið 724 Beverley St., Winnipeg, 10 herbergi, (5 stór svefnherbergi og eitt minna), alt í góðu lagi, harðviðargólf niðri, rafeldavél og Hot Air Furnace, lóðirí 75 fet. Verðið vægt og góð- ir skilmálar. — S. Sigurjónsson, 724 Beverley St.. Ph. 87524. Séra Jóhann Bjarnason flytur guðsþjónustu í Keewatin, Ont., sunnudaginn þann 27. þ. m. Er þess vænst, að íslendingar á þeim stöðvum fjölmenni. Vantar bæjareign, íveruhús til kaups eða rentu, ná- lægt vesturenda, með fjögur stór svefnherbergi, eldstæði og önnur gögn í góðu lagi. Skrifið til P. 0. Box nr. 48, Árborg, Man. GJAFIR til Jóns Bjarnasonar skóla. John Gislason, Bredenbury $10.00 T. J. Gislason, Brown .... 20.00 J. M. Gíslason, Brown ..... 3.00 Rose Josephson, Cyp. River 5.00 J. A. Johnson, Minneota .... 5.00 Court Isafold No. 1048, I.O.F. per S. Sig............... 4.00 Proceeds of Silver Tea, held by Teachers and Students of the Academy, jan. 18, ’29 46.00 Með vinsamlegu þakklæti, S. W. Melsted, gjaldk. Séra Jóhann Bjarnason biður þá, er hafa keypt blaðið “Bjarma” fyrir hans milligöngu, á undan- förnum árum, að snúa sér nú og framvegis í því efni til hr. Sigur- björns Sigurjónsonar, 724 Bever- ley St., Winnipeg, er nú hefir að- al umboðsölu blaðsins í Vestur- heimi. Allir þeir, sem skulda “Bjarma” að fornu eða nýju, eru beðnir að greiða skuldir sínar hið fyrsta að auðið er. Nokkurir eru í gamalli og margra ára skuld við blaðið og þyrftu þeir hinir sömu að semja um greiðslu á þeim skuldum, ef þeír eru ekki reiðu- búnir að greiða þær þegar í stað. Vantar mann til að keyra út mjólk og ýmislegt fleira að gera. Hann verður að vera almennileg- heitamaður. Oak Dairy, Sidney Ave., East Kildonan. Jónas Jónasson. VEITIÐ ATHYGLI! Tvö Scholarships við einn elzta og fullkomnasta verzlunarskóla hér í borginni, fást keypt nú þeg- ar á skrifstofu Lögbergs. Leitið upplýsinga sem allra fyrst, það sparar yður peninga. ALMANAK 1929. Innihald: Almanaksmánuðir og um tfmatalið; Mynd frá pingvöllum; John Bunyan, með mynd, priggja alda minning, eft- ir Richard Beck; Henri Dunant, stofn- andi Rauðakro«sfélag3Íns; Aldarminn- i ing, með mynd; Samuel Plimsoll, "sjó- j mannavinur”; Safn til landnáms- | sögu Islendinga í Vesturheimi, íslend- J ingar á Kyrrahafsströndinni, með myndum, samið hefir Margrét J. Bene- i dictsson; íslenzkar sagnir: Otúel l Vagnsson, eftir Jön Kristjánsson; Brot I úr ferðasögum, eftir Eirík Rafnkelsson, ' ritað eftir sjálfs hans fyrirsögn af G. ; Amasyni; Lög um friðun pingvalla: i Hversu marglr menn geta lifað á jörð- j inni; 1930, eftir Sig. Júl. Jöhannesson; j Safn af fiðrildum;; Helztu viðburðir og ! mannalát. Verð 50 cents. Ólafur 8. Thoraeirxson, 674 Sargent Ave., Winnipeg. Mr. Sveinn Thompson frá Sel- kirk, var staddur í borginni á föstudaginn í vikunni sem leið. ‘Geysir”, íslenzka bakaríið, 724 Sargent Ave., talsími 37 476. — Tvíbökur seldar nú á 20c. pundið þegar tekin eru 20 pund eða meira Kringlur á 16 cent. Pantanir frá löndum mínum úti á landi fá fljóta og góða afgreiðslu. G. P Thordarson. Messuboð. — Séra Sigurður Ól- aifsson, flytur guðsþjónustu í Riv- erton, klukkan 2 e. h., sunnudag- inn þann 27. jan. 1929. Miss Dósía Halldórsson, fór á laugardaginn suður ti'l Banda- ríkja, í kynnisför til systkina sinna, er þar eiga heima, önnu í Spanish Fork, Utah, og Mr. Hall- dórs Halldórssonar, fasteignasala í Los Angeles. Mestan tímann ráðgerði hún að dvelja hjá bróð- ur sínum, og bjóst við að verða að heiman um þriggja mánaða tíma. í síðasta blaði misprentaðist tala, þar sem sagt var að Agnar Magnússon, hefði gefið fátæku, norsku konunni $1. Átti að vera $5.00. 1 síðustu viku voru staddir í borginni, í erindum fyrir Bifröst- sveit, oddvitinn, Mr. S. Thorvald- son, og sveitarnefndarmennirnir Jón Sigurðsson, B. J. Lifman og Marteinn Jónasson. í æfiminningu þeirri, er í síð- asta Lögbergi birtist um önnu sál. Sigurðsson, hafa kommur á röngum stað, truflað réttnefni barn%hennar. Þannig skulu nöfn- Anna, 3. Guðrún Mildred, 4. Jón in 'lesast: 1. Sigurður, 2. Sigrún Elmer, og 5. Lois Margrét. Mr. Thordur Thordarson, kaup- maður að Gimli, var staddur í borginni í vikunni sem leið. Mr. Brynjólfur Thorláksson söng- kennari, er staddur í borginni um þessar mundir. Gjafir til Betel. Áheit frá ónefndum í Winnipeg $2. — 1 síðasta blaði var J. K. Sigurðsson kvittaður fyrir $2.00, en átti að vera $5.00. Fyrir gjafirnar er þakkað, J. Jóhannesson, féh. 675 McDermot Ave. Mr. Jón Freysteinsson frá Churchbridge, Sask., er staddur í birginni þessa dagana. Hr. Pétur Anderson, forstjóri orth West kornverzlunarinnar hér í borginni, lagði af stað áleið- is til Pýzkalands sér til heilsubótar, síoastliðinn miðvikudag. PRINCESS FLOWER SHOP Laus blóm—Blóm í pottum Blómskraut fyrir öll tækifæri Sérstakl. fyrir jarðarfarir. 412 Portage at Kenned. 87 876 BJÖRG FREDERICKSON Teacher of Piano Ste 8, Acadia Apts. Victor St. Telephone: 30 154 Hænu ungar, sem verða beztu varphænur í Canada; ábyrgst að ungarnir komi allir lifandi. Skýrsla um kyn unganna látin fylgja Þeim. Ýmsar tegundir, svo sem Leghorns, Barred Rocks, Reds, Anconas, Min- orcas, Wyandottes, Orpingtons 12 mánaða tilsögn kostnaðarlaust. Út- ungunarvélar og áhöld til að ala upp ungana. ókeypis verðlisti. Alex. Taylor’s Hatchery, 362 Furby St., Winnipeg, Man. Jarðhiti-aflgjaíi Víða um heim eru menn nú farnir að taka jarðhitann í þjón- ustu sína. Þýzkur blaðamaður, hr. Gustav Buchheim hefir sent Mgbl. eftir- farandi grein til birtingar. , Dr. Immanuel Friedlander hef- ir nú um nokkurra ára skeið starfrækt rannsóknarstöð i Neapel, er rannsakar alt, er að eldfjöllum lýttur. Rannsóknir hans eru ekki að- eins vísindalegar, heldur vinnur hann að því, að menn geti haft þeirra praktisk not í atvinnulíf- inu. Einn af aðtsoðarmönnum hans, A. Pittmann, hefir nýlega skrif- að grein í náttúrufræðilegt tíma- rit um rannsóknir þessar. Fyrir nokkru síðan byrjuðu menn að nota sér jarðhitann. — Friedlander sá t. d. í Hokkaldo i Japan, að þorp eitt var hitað með jarðhitaveitu. Það er og kunnugt, að íslending- ar eru byrjaðir að hita hús með jarðhita. Jarðhiti var fyrst notaður í stór- um stíl í ítalíu. í Töskana er um 30 ferkílómetra stórt hverasvæði. í hverum þessum öllum er mikið af bórsýru. Ginori Conti fursti gekst fyrir því, að byrjað yrði þarna á bór- sýruvinslu. Afurðirnar þaðan náðu hylli á heimsmarkaðinum, þrátt fyrir samkepnina frá Ame- ríku. Fyrir nál. 25 árum síðan byrj- aði Ginori Conti á því að nota hveragufuna til þess að reka litla gufuvél. Var síðan haldið áfram á sömu braut. Árið 1914 rak hveragufan þarna vélar, er fram- leiddu 2200 kílówött, en nú fá menn þarna 12,000 kílówött úr gufuknúðum rafmagnsvélum. Fyr- ir forgöngu Contis hefir tekist þarna fullkomlega að beizla hveragufuna. Víða um ’heim eru hverir, sem hægt er að nota sem aflgjafa, m. a. í Sonora-héraði í Califomíu, i Chile, í hollenzku nýlendum Nýja Sjálands, og þó einkum í Japan. í Sonora eru menn byrjaðir á borunum með sama hætti og gerð- ar voru í Toskana. Menn hafa þar hitt allmargar gufuæðar í jörðinni. — Úr einni slikri gufu- æð streymir 8,300 kg. af gufu á klst. með 2.5 kg. þrýsting á m. — Gufa þessi gæti framleitt um 900 kílówött. Menn gera sér einnig vonir um, að ‘hægt verði að beizla hveraorkuna í hollenzku héruðum Indlands. Virðast staðhættir þar vera góðir. iPittmann lýkur máli sinu með því, að segja, að hann vonist eft- ir því að þeir tímar komi, að menn taki sig til í Þýzkalandi og bori þar eftir jarðhita, því eigi sé vonlaust um, að hin fólgna orka jarðar geti þar 'hrint af stað nýj- um iðngreinum. — Mgbl. Guttormur Vigfússon Dáinn 27. desember 1928. Fregnin um andlát hans kom ekki á óvart þeim mönnum, er til þektu. Guttormur var maður mjög við alclur og var þrotinn að heilsu hið síðasta misseri. Hann var fæddur í Geitagerði 8. ágúst iC$o og voru foreldrar hans alþm. Vigfússonar prests Árnason- Vigfús bóndi þar Guttormsson, ar að Valþjófsstað og Margrét Þorkelsdóttir prests að Staðarfelli. Guttormur var með fyrstu mönn- um hér á landi, sem búnaðarnám stunduðu erlendis. Var hann á búnaðarskóla í Noregi hálft þriðja ár og siSan 1 ár á Landbúnaðarhá- skólanum í Höfn. Eftir að hann kom úr utanför sinni varð hann kennari við Möðru- vallarskóla, sem þá var nýstofnað- ur, veturinn 1880—1881. Hann var skólastjóri við bún- aðarskólann á Eiðum frá árinu 1883 —88, en fór þá að búa á Strönd á Völlum og bjó þar til ársins 1894, en síðan í Geitagerði í Fjótsdal. Guttormur kvæntist árið 1883 Sigriði Sigmundsdóttur, bórída F’álssonar á Ljótsstöðum í Skaga- firði. Varð þeim átta barna auð- ið og eru þau öll uppkomin og hin mannvænlegustu. Hafa þau tekið sér ættarnafnið Þormar, og eru þau, sem hér segir: Páll kaupmað- úr á Norðfirði, Vigfús bóndi í Geitagerði, Stefán til heimilis í Geitagerði, Sigmar bóndi á Klaustri, Arnheiður, Þorvarður, prestur í Laufási, Geir tréskurðarmaður á Akureyri og Andrés, gjaldkeri Landssimans í Reykjavík. Auk þess ólu þau hjónin upp tvö fóstur- börn. Guttormur varð snemma við opinber mál riðinn, fyrst heima í ROSE THEATRE Sargent and Arlington Fallegasta leikhúsið í vest- urhluta borgarinnar. Fimtud. Föstud. Laugard. Þessa viku Mikil tvígild sýning “SHARP SHOOTERS” Leikið af Gergoe O’Brien og Lois Moran og einnig “PAJAMAS” leikið af Olive Borden “Yellow Cameo No. 7” Mánud. Þriðjud. Miðvikud. næstu viku. Corinne Griffith í “THE GARDEN OF EDEN” Þvílík líka mynd, sem þú munt undrast Gaman Fréttir héraði í hreppsnefnd og sýslunefnd og síðar sem þingmaður. Var hann þingmaður Sunnmýlinga i 15 ár, frá 1893 til 1908. Bauð hann sig þá fram í Norður-Múlasýslu, en við þær kosningar biðu heimastjórn- armenn ósigur mi'kinn og féll Gutt- ormur. Guttormur þótti mjög nýtur þingmaður, starfhæfur og áhuga- samur og hverjum manni vinsælli Var svo um Gottorm fram til hins síðasta að stjórnmálaáhugi hans var með afbrigðum. Hann hafði nokkur siðustu árin ekki getað les- ið á bók vegna sjóndepru, sem stöðugt ágerðist svo að við fullri blindu lá seinustu árin, en þó mun leitun á manni, sem fylgdist betur með í öllu sem gerðist á stjórn- málasviðinu. Lét hann lesa sér blöð og þingtíðindi og sótti mann- fundi og tók fullan þátt í umræð- um alt fram á síðasta aldursár sitt. Guttormur var mjög einarður í skoðunum, enda var hann hrein- lyndur maður, vinfastur og trygg- ur við menn og málefni. Hann mun hafa átt lengst við þröngan efnahag að búa, en héít þó jafnan fullri rausn. Með Guttormi í Géitagerði er hniginn til moldar mjög merkur maður, hann var góðum hæfileik- um búinn, mannkostamaður mesti og brennandi áhugamaður. Hon- um varð alt til vina og um flesta hluti var hann gæfumaður. Hann varð riddari af fálkaorð- unni fyrir skemstu. Skák “Skák og mát!” sogðu þeir sum- ir, sem komu saman í Jóns Jóns Bjarnasonar skóla fimtudag- 17. júní, að kveldi dags. Nú er verið að endurreisa tafl- félagið “ísland”, sem legið hefir í dái rúm þrjú ár. íslendingar hafa ávalt unnað tafllistinni og fæstir munu hafa gleymt því, að sam- landi okkar, Magnús Smith, var um eitt skeið taflkappi Canada. Sömuleiðis vann taflgarpurinn Guðjón Kristjánsson meistaratign Canada í bréflegum töflum. Taflfélagið “ísland” starfaði ekki nema um eins árs tímabil, en þó urðu félagar þess þá strax öll- um klúbbum Winniþegborgar yf- irsterkari. Fimtudaginn 24. janúar, kl. 8 t. h., verður aftur taflfundur í Jóns Bjarnasonar skóla. Nauð- synlegar ráðstafanir verða þá gjörðar fyrir starfrækslu félags- ins, en síðan tekið til óspiltra mál- anna og teflt svo lengi, sem tími leyfir. Fyrir hönd þeirra, sem sóttu fundinn föstudaginn 17. jan. M. Rose Leikhúsið. George O’Bren og Lois Moran leika framúrsakarandi ve'l saman í leiknum “Sharp Shooters”, sem sýndur verður í Rose leikhúsinu þrjá síðustu dagana af þesari viku. Eirínig verður kvikmjmdin “Pajamas” sýnd þar sem þau Lawrence Grey 0g Olive Borden leika hvert með öðru ágæta vel. Charles Ray, sem er alþektur leikari, leikur aðal hlutverkið í leiknum “The Garden of Eden”, fyrstu þrjá dagana af næstu viku. Lowell Sherman og Edward Mar- tindel taka einnig þátt í þessum leik. RAMONA BEAUTY PARLOR íslenzkar stúlkur og konur. Þeg- ar þið þurfið að klipa, þvo eða laga hárið, eða skera eða fága neglur, þá komið til okkar. Alt verk ábyrgst. Sanngjarnt verð. 261 Notre Dame Ave. Simi: 29 409 Inga Stevenson. Adelaide Jörundson. Continuous Daily 2-1 1 p.m. Telephone 87 025 Wonderland Saturday Show starts 1 p.m FIMTUD. FÖSTUD. LAUG ARD. þessa vilku MILTON SILLS in “Hard-Boiled Haggerty” Comedy and Tarzan MÁNUD., ÞRIDJUD. MIDVIKUD. 28. 29. 30. jan. NORMA SHEARER in “The Latest from Paris” Collegians No. 2 and Screen Snapshots Telephone 87 02S a Lifiilhiftlhiouse Nam Sjónleikur í þrem þáttum, verður sýndur í Good Templars Hall, Cor. Sargent og McGee, St. 28. og 29. jan. Byrjar stundvíslega kl. 8 e. h. bæði kveldin. Inngangur 50 c. fyrir fullorðna og 25c fyrir börn innan 12 ára. Fjölmennið. 99 ástavísur Eftir Kristjón Jónsson, Reykjavík, 1928. Allra laglegustu vísur yfirleitt, sumar ágætar, aðrar lakari, engin kostalaus með öllu. Efnið er hugðnæmt en ekki fjölbreytt í venjulegum skilningi, en ástin hefir margar hliðar og gefur skáldum mjög færi á sér, 0g eng- inn má án hennar vera, því að: Ást er dropi lífs af lind, leikur, þrá og styrkur. Ástleysi er sorg og synd, svívirðing og myrkur. Og ástin á sér ætíð eitthvert tak- mark, ef ekki í sjálfri sér, þá eitthvert ytra mark, sem hún stefnir að: Munar værsta minning stært, mögnuð kærstum vonum, — leitar 'hæst og flýgur fjærst í faðm á glæstum konum. —En sparlega verður þó að fara með ástina, því ekki er víst að hún sé óþrjótandi, og ilt að hafa ekkert upp á að hlaupa, ef hana þrýtur með öllu: Mannlífs yfir ólgusjó ástina þarf að spara. Altaf er gott að eiga þó eitthvað ‘■ér til vara. Djúpum söknuði lýsir þessi vísa og ekki að ástæðulausu: Öls við könnu oft hjá lýð ungur svanni veitti koss; nú er önnur orðin tíð, alt er bannað lífsins hnoss. Stundum finst skáldinu nóg um allar giftingarnar og trúlofanirn- ar og beygurinn við þjóðnýtingu kemur upp í huga hans: Ýmsir lofast ait um kring, aðrir brúðkaup halda; það er að verða þjóðnýting þessi kæríeiksalda. Loks huggar hann sig við þetta: Þá eg hér úr heimi fer, heljar píndur máti, vona eg einhver yfir mér yngismeyjan gráti. Og það má segja, að yngismeyj- arnar vilji litlu launa skáldi sínu, ef þær vilja ekki unna honum þessarar sæmdar. Hvað myndi þá, ef til meira væri mælst? Stökur þessar sóma sér yfirleitt vel, þær eru yfirlætislausar en raungóðar. íslenzkur alþýðu- kveðskapur á hagan liðsmann, þar sem Kristjón er. Kverið er að vöxtunum ti'l helm- ingur auglýsingar. Af því mér er ókunnugt um efnahag útgefand- ans, get eg ekki verið að amast við því. G. J. —Mgbl. Þjóðareinkenni Blaðamaður einn í London spurði nýlega veitingaþjón á einu gisti- húsi borgarinnar, hvaða efnkenni hann sæi á gestum hótelsins eft- ir því hverrar þjóðar þeir væri. Kvaðst þjónninn alt af geta séð það á mönnum, hvort * þeir væri Þjóðverjar, Frakkar eða Norður- landamenn. Þjóðverjar eru þung- lamalegir, með þýkt 'hár; Norður- landamenn hvassir á svip og ein- beittir, Frakkar litlir vexti og snotrir, og baða út höndum þegar þeir tala. Það er líka hægt að þekkja þá á því, hvað þeir drekka, Englendingar drekka “cocktail” fyrst, síðan ekki annað en kampa- vin. Frakkar þurfa að fá sér- stakt vín með hverjum rétti mat- ar. Þjóðverjar drekka öl, en Norð- uralndabúar hvolfa í sig ósköpum öllum af spiritus, fig láta sér á sama standa, ’hvaða tegundir það eru. — Mgbl. Frá Islandi. Reykjavík, 21. des. ’28. Þýzkur botnvörpungur rakst á grunn nálægt Yigur á þriðjudag- inn og er talinn strandaður. Kvað hafa vilst, en ætlað til ísaf jarðar. Kl. um 4 í fyrrnótt varð vart við eld í bifreiðaskúr B. M. Sæþergs i Hafnarfirði. Voru 5 bifreiðar í skúrnum og brunnu þær allar með skúrnum. Átti Sæberg 4 bifreið- arnar, 2 fólksflutniniga og 2 vöru- flutninga, og voru þær allar vá- trygðar. Eina bifreiðina (vörufl.) átti Guðmundur Guðmundsson bif- rstj. í Hafnarfirði; var hún óvá- trygð og hlaðin fiski (upsa). — Engu varð bjargað úr skúrnum, svo að tjón hefir orðið mikið. Var hafin réttarrannsókn í gær út af bruna þessum, en ekkert upplýst- ist um upptök eldsins.—Mgbl. A Strong, Reliable Business School UPWARD OF 2000 ICELANDIC STUDENTS HAVE ATTENDED THIS COLLEGE SINCE 1909. The Success College, of Winnipeg, is a strong, reliable school—its superior service has resulted in its annual enrollment greatly exceeding the yearly attendance of all other Business Colleges in the whole Province of Manitoba. Open all the year. Enroll at any time. Write for free prospectus. BUSINESS COLLEGE, Limited 385x/2 Portage Ave. — Áinnipeg, Man.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.