Lögberg


Lögberg - 21.03.1929, Qupperneq 8

Lögberg - 21.03.1929, Qupperneq 8
Bls. 8. LÖGBERG FIMTUDAGINN 21. MARZ 1928. Glóðheitar bollur búnar til úr RobinHood FLOUR Séra Jóhann Bjarnason mossar væntanlega á <Oak Point næsta sunnudag (Pálmasunnudag ) kl. 2 e. h. — Allir boðnir og velkomnir. Jóhannes Nordal, Geysir, Man., andaðist á Almenna spítalanum hér í borginni, hinn 15. þ.m., 42 ára að aldri. Mr. C. Benediktson frá Baldur, Man., var staddur í borginni um helgina. Mr. Einar Westman frá Gimli, var í borginni á mánudaginn. Séra Carl J. Olson kom snöggva ferð til borgarinnar á mánudag- inn. Hann var að sækja skóla- nefndarfund, sem haldinn var á mánudagskveldið. Fyrirspurn—Þeir, sem kynnu að vita um heimilisfang dóttur minn- ar, Mrs. T. B. Hawkings, áður Winnie Reykjalín, eru vinsamleg- ast beðnir að gera mér aðvart við fyrstu hentugleika. Síðast ])egar eg vissi til, var hún búsett í Oak- land, Calif. — Jón Reykjalín, c-o General Hospital, Selkirk, Man. Jarðarför Erlendar sál. Er- lendssonar, er andaðist hér í bænum, að heimili Erlendar son- ar síns, þ. 8. þ.m., fór fram í Langruth þ. 14. þ.m. Var fyrst kveðjuathöfn í kirkjunni í Lang- ruth og svo venjuleg útfararat- höfn í fundarsal Big Point bygð- ar, austur af Langruth — bæ, þar sem hinn látni hafði lengi búið og notið mikilla vinsælda. Séra Jóh. Bjarnason jarðsöng. Margt fólk, viðstatt á báðum stöðum. — Erlendur var 68 ára gamall, ætt- aður úr Reykjavík. Voru foreldr- ar hans Erlendur Hannesson og Halldóra Jóhannsdóttir, er lengi bjuggu á Melnum, er svo var kallað, í Reykjavík. Kona Er- lendar sál. var Margrét Finnboga dóttir frá Reykjum í Mosfells- sveit, mikil myndarkona, er lézt í Langruth, 31. des. s.l. Börn þeirra eru sjö á lífi: Finnbogi, Erlendur, Valdimar, Leifur, Helga, Victoria og Lilja, fjögur gift, en þrjú ó- K'ft. — Erlendur dó úr Lungna- bólgu, eftir aðeins fjögra daga legu. Hann hafði verið frábær dugnaðarmaður, var ágætur drengur, all-skynsamur og hinn vandaðasti maður í öllu. Messuboð—iSunnud. 24. marz: Kandahar kl. 2, Elfros ( á ensku) kl. 7.30. . — Skírdag 28. marz: að Wynyard kl. 2, Foam Lake kl. 7. —Föstud. langa, 29. marz: Elfros kl. 2, Leslie kl. 7. C. J. 0. Spilakvöld verður í neðri sal Good Templara hússins næstkomandi laugardags- kvöld, þann 23. þ.m., kl. 8.30. — Sex verðlaun veitt. — Aðgangur 35 cents. Stefán Sigurðsson. Mr. Guttormur Finnbogason, bankastjóri frá Lundar, Man., var í borginni um helgina. Prestaöldungurinn vinsæli og velmetni, séra Hans B. Thorgrím- sen, sem dvalið hefir í Grand Forks, N. Dak., er nú fluttur til borgarinnar Decorah í Iowaríki, ásamt fjölskyldu sinni, þar sem framtíðaírheimili þeirra verður. Fylgja hinum mæta öldungi og fjölskyldu hans til hins nýja heimilis, hugheilar árnaðaróskir þeirra mörgu vina. Eftirfarandi nemendur Mr. 0. Thorsteinssonar á Gimli, tóku próf við Toronto Conservatory of Mus- ic — Elementary Theory Examin- ation: Mr. Jóhannes Pálsson, 90 stig, First Class Honors; Miss Josephine Olafson, 87 tig, F. C. H. Mr. Stefán Guttormsson, 86 stig, F.C.H. Miss Marion Lang, 81 stig F.C.H. í Séra K. K. Olafson, forseti kirkjufélagsins, kom til borgar- innar á þriðjudaginn. Young Men’s Glub Fyrstu lút- rsku kirkju í Winnipeg heldur fund í samkomusal kirkjunnar á sunnudaginn kemur kl. 4.15 e. h. Þar flytur Dr. Mathers ræðu til ungra manna og er ungum mönn- um boðið að sækja fundinn, hvort em þeir tilheyra klúbbnum eða ekki. Frú Sigríður Þorsteinsson, kona séra Bjarna Þorsteinssonar í Siglufirði, andaðist 25. febrúar s. 1. kl. 7. Hún hafði verið heilsu- veil í vetur, en þó bar dauða hennar bráðar að, en menn hugðu. — Hún var dóttir Lárus- ar Blöndals, sýslumanns í Húna- þingi. — Mgbl. Stórstúkuþing Good-Templara Stórstúka Manitoba og Norðvest- urlandsins, I.O.G.T., hélt sitt 45. ársþing 18. og 19. febrúar s. 1., í Good-Templara húsinu, Sargent og McGee St., Winnipeg. Auk embættismanna og annara stór- stúkumeðlima, mættu erindsrekar frá 6 stúkum. Sjö umsækjendum var veitt stórstúkustig. Embættismenn, kosnir og settir i embætti, eru þessir: Stór-Templar—G. P. Magnússon. S.Varatemplar—Miss G. Eydal. S.-Kanslari—Gunnl. Jóhann^son S.-ritari—B. A. Bjarnason. S.-Gjaldk.—Hjálmar Gíslason. S.-Gæzllmaður Unglingastarfs— Guðsþjónustur í prestakalli séra H. Sigmars um páskaleytið: — Á Pálmasunnud. (24. marz), Eyford kl. 3 e. h. Skírdag (28. marz) : j ^ K. Jónatansson. Stutt guðsþjónusta og safnaðar-| S--Gæzlum. Löggjafarstarfs fundur hjá Péturssöfnuði, I sam- Halldórsson. komuhúsinu að Svold. Fösutdag-1 'S-Fræðslustjóri—Ólafur G. Guð- inn langa (29. marz), Fjallakirkju munÓ9son. kl. 3 e. h. Páskalag (31. marz) :1 «.-Kapelán—Mrs. L. Sveinson. í Vídalínskirkju kl. 11 f.h., Gard- ar kl. 3 e.h., íiountain kl. 8 e. h.— Reynt verður að vanda til söngs eftir föngum. Óskað eftir fjöl- menni á öllum stöðunum. Gjafir til Jóns Bjarnasonar skóla. Kvenfél. Baldursbrá, Baldur, Man.............. $25.00 Arður af fyrirlestri, er Mr. J. J. Bildfell flutti í skólanum laugard. þ. 9. þ.m........ 24.00 Vinur skólans “íslendingur” 5.00 Magnús Magnússon, Churchbridge, Sask.............. 5.00 Mr. og Mrs. Th. Josephson, Wynyard, Sask.............. 5.00 Með alúðarþakklæti, S. W. Melsted, gjaldk. S.-Dróttseti—G. H. Hjaltalín. S.-Aðstoðarritari—Stefán Ein- arsson. S.-Aðstoðardrótts,—S. Matthews. S.-Sendiboði—Mrs. G. P. Magn- ússon. S.-Vörður—Sigurjón Björnsson. S.-tJtv.—Sigf. Benedictsson. Fyrverandi Stórtemplar — A. S. Bardal. Stórstúkan mælti með H. Skaft- feld sem umboðsmanni hátempl- ars. Afgreidd voru ýms m£l Þar á meðal samþykt, samkvæmt boðs- bréfi frá umdæmisstúkunni í Reykjavík, á íslandi, að taka þátt með Good-Templurum á Islandi í hátíðarlialdinu 1930. Fram- kvæmdarnefnd stórstúkunnar var falið, að tilkynna bréfritara sam- þykt þessa, og að velja erinds- reka til að mæta fyrir hönd Good- Templara í Manitoba á Þing- völlum 1930. A. S. Bardal hefir síðan verið kjörinn, og hefir hann lofast til að taka þetta starf að sér. Útbreiðslumál voru ofarlega á dagskrá. Umræður báru vott um áhuga fyrir því, að útbreiða regl- una sem mest. Til að mynda skor- aði þingið á undirstúkur, að styðja útbreiðslu reglunnar með fjárframlögum, og með því að hafa opna fundi af og til. Á síð asta ári hafa stúkurnar Hekla og Skuld1, í Winnipeg, haft þess kon- ar útbreiðslufundi ársfjórðungs- lega, og tókst vel. Prógram bæði skemtilegt og fræðandi, og allir vel ánægðir, er sóttu fundina. Ákveðið var að halda sambandi óslitnu við Manitoba League Against Alcoholism, sem saman- stendur af öllum bindindisfélög- um í fylkinu, og sem áður hét Manitoba Prohibition Alliance. Á sviði löggjafarstarfs voru ýmsar ákvarðanir teknar; meðal annars, að skora á bindindisfólk í Manitoba, að taka sig til og heimta atkvæðagreiðslu sem fyrst um algert vínbann, eins og bind- indisfólk í British Columbia og Alberta er nú að fara fram á. Mikil áherzla var lögð á það, að ef allsherjar fylkiskosningar færu fram á árinu, skyldu bindindis- menn láta öll þingmannsefni láta í ljós afstöðu sína gagnvart bindindi, og styðja að kosningu aðeins þeirra, sem skuldbinda sig til að vinna að algerðu vínbanni, og í öllum tilfellum að leggja bindindismönnum sitt lið. Næsta þing verður haldið á sama stað í febrúar 1930, og væri það æskilegt, að templarar hefðu það hugfast, og geri sér far um að sækja þingið, og fylgjast þann- ig með málum sínum. Öllum Good-Templurum er það heimilt, að koma og hlusta á það, sem fram fer. B. A. Bjarnason, ritari. lengur en í meðalári. Síldargöng- ur hafa öðru hvoru komið, sein- ast um miðjan janúar í októberlok bárust mislingar hingað til fjarðarins. Hafa þeir farið herskildi um sveitirnar hér síðan, fengu margir þá um jóla- leytið, en þeir eru nú bráðum búnir að renna yfir. Fáir eða engir hafa orðið þeim að bráð, þótt ýmsum hafi þeir orðið all- þungir í skauti. Sömuleiðis hef- ir inflúenzan verið að stinga sér nlður. Þrátt fyrir farsóttir, hefir fátt fólk látist hér í haust og vetur. Þ. 29. des. andaðist í Hólmavík Oddur Oddsson, maður á níræðis- aldri. Kona hans hét Kristbjörg Flóventsdóttir, og er hún dáin fyrir allmörgum árum. Bjuggu þau hjón áður fyr í Húnavatns- sýslu, og áttu eina dóttur barna, Guðnýju, konu JónS Finnssonar, verzlunarstjóra í HJólmavík. Riisverzlun í Hólmavík, sem var dönsk selstöðuverzlun, hefir nýlega verið seld. Hefir hún starfað hér um all-langt skeið, og var á sínum tíma stærsta verzl- unin við fjörðinn. Kaupandi er Jóhann kaupmaður Þorsteinsson frá ísafirði. Unglingaskóli var starfræktur um 3ja mánaða skeið í Hólmavík í vetur. Nemendur 12-14 og kenn- ari Jónas Þorvarðsson.—“Privat” unglingakensla er þar einnig, og eru nemendur þar 10. — Hefir slík fræðslustarfsemi sem þessi legið niðri um all-langt skeið, en fyrrum var hér fjölsóttur skóli að Heydalsá. — Vísir. ROSE Fallegasta leikhúsið í vest- urhluta borgarinnar. Sargent and Arlington Fimtud. Föstud. Laugard. Þessa viku Mikil tvígild sýning THE WRONG MR.WRIGHT’ Allir leikarar afbragð einnig HOOT GIBSON í leiknum “THE FLYIN’ C0WB0Y ’ Terrible People og Æfintýr Mánud. Þriðjud. Miðvikud. næstu viku. Sérstaklega góður leikur með málrómi LON CHANEY í leiknum ‘WHILE THE CITY SLEEPS’ Gaman Fréttir Þann 30. janúar síðastliðinn, lézt að heimili sínu í Reykjavík, frú Sigrún Gestsdóttir, ekkja Stefáns heit.. Eiríkssonar, tré- skurðarmeistara. Var hún fædd á Fossi í Vopnafirði, 17. ágúst, árið 1874. Lifa hana 9 börn þeirra hjóna. Frú Sigrún var fríð kona sýn- um, höfðinglunduð og vinsæl. Frá Islandi. Steingrímsfirði, 18. jan. Það er gömul venja, í frétta- bréfum, að minnast fyrst á tíðar- farið. Stepdur það án efa í sam- bandi við þá miklu þýðingu, sem veðráttan hefir fyrir oss íslend- inga og ekki sízt okkur, sem í sveitunum búum. Þar eru at- vinnuhættir og afkoma manna í vo traustum tengslum við tíðar- farið, að rétt þykir að láta það skipa öndvegið, og verður svo gert i þetta sinn. Ekki verður annað sagt, en að fyrri hluti þessa vetrar hafi reynst mjög góður að veðráttu, og stundum afburða- góður. Haustið var fremur þur- viðrasamt, en nekkuð vindasamt um tíma, er á leið, og gæftir við sjó urðu stopular. Alment var byrjað að hýsa'hér fé í lok nóvembermán. Um inni- stöður hefir varla verið að ræða, nema dag og dag, og þá helzt um hátíðarnar. Um áramótin gerði þíðu og þá einmuna tíð, að menn muna vart slíka, og hefir hún haldist síðan. Hiti hefir verið flesta daga og klaki að hverfa úr jörðu. Er það nýtt hjá okkur Strandamönnum, að geta herfað flög um miðjan janúar, eins og nú var hægt. Samhliða góðu tíðinni, hefir þorskurinn sömuleiðis verið venju fremur tryggur við fjörðinn. Hef- ir afli alloftsast verið góður, og hefir hann haldist fram að þess- um tíma, að vísu þverrandi nú að síðustu, en það er fullum mánuði Frá Alþingi Reykjavk, 19. febr. f gær gengu þingmenn á fund .til forsetakosninga og þvíuml. _ |Aldursforseti Sþ„ Björn Kristj- ánsson, tók við fundarstjórn sam- kv. þingsköpum. Áður en gengið var til kosn- inga, ávarpaði hann þingheim með því að minnast þeirra manna, er ilátist hafa síðastl. ár, og átt höfðu sæti á þingi, en það voru þeir Guttormur Vigfússon í Geitagerði, Magnús Kristjánsson fjármála- íráðherra, séra Páll ólafsson í i Vatnsfirði, Tryggvi Bjarnason í |Kothvammi og próf. Valtýr Guð- mundsson. Þá fór fram kosning á forseta Sameinaðs þings og var kosið ítvisvar. Við fyrri kosninguna hlaut Magnús Torfason 19 atkv., | Jóh. Jóhannes"on 15, J. Baldvins- |Son 5 og 1 seðill auður. Tveir |þm„ Bernharð Stefánsson og Jón ■ á Reynistað fjarstaddir vegna 'lasleika. Við «íðari kosninguna ! hlaut Magnús Torfason 18 atkv., Jóh. Jóhannesson 15, Ásgeir'Ás- geirsson 1 og 6 seðlar auðir. Varaforseti Sameinaðs þings var kosinn Ásgeir Ásgeirsson með 17 atkv. M. Guðmundsson hlaut 14 atkv., Þorl. Jónsson 1, en átta seðal voru auðir. Skrifarar Sameinaðs þings voru kosnir með listakosningu þeir Jón Auðunn Jónsson og Ingólfur Bjarnason. Næst var kosin kjörbrófanefnd og hlutbundin kosning við höfð. Hlutu þessir þingm. kosningu: M. Guðmundsson, Sv. ólafsson, Sig. Eggerz, G. Sigurðsson og H. Valdimarsson. Þá var verkefni 1. fundar í Sþ. lokið, en áður fundi var slitið ávarpaði forseti OM.T.) þingheim með nokkrum orðum. Þá hófust deildarfundir: í efri deild var kosinn forseti Guðm. ólafsson með 8 atkvæðum. (Halldór Steinss. hlaut 6). Fyrri varaforseti J. Bald. með 8 atkv. (I.H.B. 5 atkv. og 1 seðill auður). —Annar varforseti Ingvar Pálma- son með 8 atkv. en 6 seðlar auðir. — Skrifarar deildarinnar voru kosnir með hlutbundnum kosning- um þeir Einar Árnason og Jónas Kristjánsson. Aldursforseti neðri deildar Sv. ólafssn, stýrði kosningu forseta og nefndi þá Halldór Stefánsson og 'Pétur Ottesen skrifara á með- an. Forseti var endurkosinn Bene- dikt Sveinsson með 13 atkv.. — Fyrir varafors. var kosinn Þor- leifur Jónsson með 13 atkv. en 13 seðlar auðir. Annar varaforseti kosinn Jör. Brynjólfsson með 14 atkv., en 12 seðlar voru auðir. Skrifarar deildarinnar voru þeir kosnir Halldór Stefánsson og M. Jónsson. Þá lýsti forseti yfir að samkv. þingsköpum ætti þm. að hluta um sæti. Mæltust nokkrir til að halda sínum, sætum, en forseti kvað það ekki hægt nema með afbrigðum, og var þá leitað atkvæða um þau. En atkvæðagreiðslan reyndist ó- greinileg, svo hún var endurtek- in með nafnakall;. Voru þá 18 með því, að leyfa afbrigðin, en 7 á móti. Kvað forseti afbrigðin feld þar tvo-þriðju atkvæða þyrfti til að sþ. þau og yrðu því að hluta um sæti. Var dálítið karp á eftir, sem þagnaði þó skjótt, er forseti úr- skurðaði að hjá því yrði ekki kom- ist að hluta um sætin. En þess lét hann jafnframt getið, að rit- að yrði'niður jafnóðum tala hvers þm. til þess að fyrirbyggja alla hrossaverzlun um sætaskipun á meðan. Var þá gengið fyrir hvern þingmann og hann látinn draga tölusetta kúlu úr þar til gerðum kassa. Hófust þá flutn- ingar um alla deild og mátti á ýmsum sjá, að þeir voru ekki á- nægðir með nýju sætin. En þá kom á daginn, að í kassanum voru fleiri kúlur, en sem svöruðu til sætanna í deildinni, svo að for- seti úrskurðaði að hluta skyldi um sætin að nýju og gaf 5 mín- útna fundarhlé á meðan verið var að finna þær kúlur, sem í kassanum áttu að vera. Kallaði svo forseti þm. í röð, 1 og 1, upp að forsetastól, til þess að draga kúlurnar, og gætti þess vandlega, að tala hvers einstaks þm. væri rituð niður. Endaði þessi merkilega athöfn skaplega, en eitthvað varð þó vart við “sætaverzlun” á eftir, en mjög var það í smáum stíl. —Mgbl. PRINCESS FLOWER SHOP Laus blóm—Blóm í pottum Blðmskraut fyrir öll tækifæri Sérstaklega fyrir jarðarfarir. COR. SARGENT and VICTOR Phone 36 102 FIOLIN og PIANOFORTE HLJÓLMEIKA halda nemendur O. Thorsteinssonar Parish Hal), Gimli, Man., 5. Apríl, 1929 Klukkan 8.30 síðdegis Aðgangur fyrir fullorðna 50c Börn innan 12 ára 25c Fishermen’s Supplies Limited Umboðsmenn fyrir— Tanglefin Fiskinet, tilbúin af National Net and Twine Co. Brownie kaðla og tvinna. Vér höfum í Winnipeg birðir af Tanglefin Fiskinetjum, með lögákveðinni möskvastærð. Maitre kaðla og tvinna. Kork og blý. Togleður fatnað. Komið og sjáið oss, þegar þér komið til Winnipeg, eða skrif- is oss og vér skulum snda yður verðlista og sýnishorn. FISHERMEN’S SUPPLIES, LTD. 401 Confederation Life Bldg. Winnipeg. Sími 28 071 Continuous Daily 2-1 1 p.m. Telephone 87 OZ5 Wonderland Saturday Show starts 1 p.m. THU—FRI—SAT. — THIS WEEK KEN MAYNARD in “THE PHANTOM CITY” COMEDY and THE MYSTERY RIDER, Chapter 7 Two Features, Mon.-Tues.-Wed., March 25-26-27 RAMON NOVARRO in ,‘FORBIDDEN HOURS’ with Reene Adoree DRIFTWOOD with DON ALVARADO and MARCELINE DAY Alan Roscoe and Fritzi Brunette AND ALSO COMEDY Electrically Hatched BABV CHICKS “Fyrir afurðir, sem eg hefi selt og það, sem eg á ðselt hefi eg feng- ið $125.00 ágðða af þeim $18.00, sem eg í aprll I fyrra borgaði yður fyr- ir 100 Barred Rock unga,” skrifar oss Mrs. C. B. Denny, Milden, Sask. pessi vitnisburður, eins og margir aðrir, sem oss berast án þess við biðjum um þá, er oss sönnun þess. að það borgar sig vel fyrir bændur að fá eitthvað af vorum kynbættu varphænum. Bðk, sem er 32 bls. og með litmyndum fáið þér gefins. Hún gefur yður allskonar upplýs- ingar um hænsni og hvernig með þau á að fara. 10% afsláttur á öll- um pöntunum fyrir 1. marz. Hambley Windsor Hatcheries, Ltd. 601 Logan Ave., Winnipeg, Man. Borgið Lögberg Hænu ungar, sem verða beztu varphænur í Canada; ábyrgst að ungarnir komi allir lifandi. Skýrsla um kyn unganna látin fylgja þeim. Ýmsar tegundir, svo sem Leghorns, Barred Rocks, Reds, Anconas, Min- orcas, Wyandottes, Orpingtons 12 mánaða tilsögn kostnaðarlaust. Út- ungunarvélar og áhöld til að ala upp ungana. ókeypis verðlisti. Alex. Taylor’s Hatchery, 362 Furby St., Winnipeg, Man. The Cake Shop 70* SARGENT AVE. Við Toronto St. Fólkið í Winnipeg er fólk gleðinnar, J>að er öllum kunnugt. Hér er tilboS! Fimm þúsund karlar og konur, gift fðlk eða ðgift viljum vér að heimsæki oss, skilji eftir 25c, gefi oss nöfn sín og heimilisfang og eigi það svo undir lukkunni hvort það tapar eða vinnur. Allir slíkir gest- ir fá sýnishorn af þeim vörum, sem vér höfum að bjðða og sem taka fram öllum samskonar vörum. Heimagerðar brauðtegundir fyrir minna verð, en það kostar að búa þær til heima—frá The Cake Shop Rúsínu Pies 18c Epla Pies 23c RAMONA BEAUTY PARLOR íslenzkar stúlkur og konur. Þeg- ar þið þurfið að klippa, þvo, eða laga hárið, eða skera eða fága neglur, þá komið til okkar. Alt verk ábyrgst. Sanngjarnt verð. 251 Notre Dame Ave. Sími: 29 409 Inga Stevenson. Adelaide Jörundson. BJÖRG FREDERICKSON Teacher of Piano Ste 8, Acadia Apts. Victor St. Telephone: 30 154 r What will you be doing one year from today? A course at the Dominion Business College will equip you for a well paid position and prepare you for rapid promotion. ENROLL MONDAY DAY AND EVENING CLASSES The “Dominion” and its branches are equipped to render a com- plete service in business educa- tion. Branches: ELMWOOD 210 Hespeler Ave. ST. JAMES 1751 Portage Ave. P Domimon Business Oollege Qhe Mall. WlNNIPEG. * A Strong, Reliable Business School UPWARD OF 2000 ICELANDIC STUDENTS HAVE ATTENDED THIS COLLEGE SINCE 1909. The Success College, of Winnipeg, is a strong, reliable school—its superior service has resulted in its annual enrollment greatly exceeding the yearly attendance of all other Business Colleges in the whole Province of Manitoba. Open all the year. Enroll at any time. Write for free prospectus. BUSINESS COLLEGE, Limited 385V2 Portage Ave. — tVinnipeg, Man.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.