Lögberg


Lögberg - 11.04.1929, Qupperneq 5

Lögberg - 11.04.1929, Qupperneq 5
LÖGBERG FíMTUDAGINN 11. APRÍL 1929. BIb. 6. 1 melr en pnOjung aldar hafa Dodd’s Kidney Pills verið viður kendar rétta meðalið við bak- verk, gigt, þvagteppu og mörgum fleiri sjúkdómum. Fást hjá 811- um lyfsölum, fyrir 50c. askjan eða 6 öskjur fyrir $2.50, eða beint frá The Dodds Medicine Co., Ltd Toronto, ef borgun fylgir. Heimkoma Vestur-Islendinga Hér á dögunum skýrði frú Thor- stína Jackson Walters Mgbl. frá starfi sínu í þágu “sjálfboðanefnd • arinnar” meðal Vestur-ísendinga, er starfar að undirbúningi heim- komunnar 1930. Et hún hingað komin til þess aö sjá fyrir gististað handa ferðafólkinu o. þessh. Hún fer héðan aftur þ. 21. marz áleiðis vestur. “Sjálfboðanefnd” Vestur-fslend- inga starfar í samb. við “Cunard linuna.” í henni eru 19 menn, og er Dr. B. J. Brandson forseti nefnd- arinnar. Auk þess eiga þar sæti m. a.: Hjálmar Bergman lögmaður, Alb. Johnson ræðismaður, dr. Sig. Júl. Jóhannesson, dr. Baldur Olson og Einar P. Jónsson ritstjóri Lög- bergs. Ferðamannahópurinn k e m u r hingað með einhverju af nýjustu og beztu skipum Cunard línunnar. Er búist við, að farþegar verði um 400 alt í alt, Vestur-íslendingar og ame- riskir íslandsvinir. Sennilega verða ferðamennirnir 6 — 8 vikur hér á landi, uns skip kemur aftur að sækja þá. — Er nokkuð ráðið um gististaði hér ? — Nei, það er í óvissu ennþá. Geir H. Zoega. stendur fyrir viðtök- unum hér. Hefir hann tekið það að sér samkvæmt beiðni frá ferða- félagi Cooks. En Cook-félagið og Cunard- línan vinna að jafnaði saman. Meðal þeirra gesta, sem koma í hóp þessum má nefna fyrst og fremst Vilhjálm Stefánsson, Leif Magnússon, form. i “International Bureau of Labor,” Sveinbjörn Jónsson prófessor í lögum við há- skólann í Illinois. Hánn hefir ný- lega skrifað tvær bækur úm fsland, um hið forna Alþingi, og löggjöf íslendinga á lýðveldistimanum. Ennfremur meðal íslandsvina pró- fessor Craigie, próf. Benzon frá YaJe-háskóla, sem mikið hefir skrif- að um ísland, dr. Leach, stofnandi “Scandinavian Foundation” o. m. fl. Sérstakar ráðstafanir verða gerð- ar til þess, að íslenzkar skemtanir verði haldnar á ferðamannaskipi Cunard linunnar, sem hingað kem - ur, og íslenzkur matur verður þar á borðum. Að endingu lofaði frá Thorstína mög hinar alúölegu viðtökur, sem hún hefir hér fengið hjá Alþingis- hátíðamefndinni. —Morgunbl. 12. marz. Frá Islandi. Wér þarna westra— Eitthvað hefir um þáð kvisast í bænum að hálfgerð wandræði wæri með wini wora að westan. Fyrst kom Bildfell og sagði að allir kæmu á sínum vegum, Thorstína væri bara agent fyrir Cunardlínuna og engir þjóðræknir menn kæmu á hennar vegum. Jónas hélt Bíldfell veislu og bauð honum landsspítal- ana handa sinum mönnum. En svo kom Thorstína ('Mrs. Emile Wal- ters). Og hún sagði þveröfugt. Þau hefðu bæði “rekrúterað,” Mr. Bildfell og hún og þar sem Mr. Bíldfell hefði fengið 8 gesti, þar hefði hún fengið 30. Mr. Bíldfell væri agent fyrir C.P.R. (Canadian Pacific Railway) og það væri ó- viðeigandi að ætla sínum gestum lakari accommodation en hinum En þá varð Jónas öskuvondur og heimtaði að Mrs. Walters þThor- stína) talaði hreina íslenzku. Og hún heimtaði þá kort og gott hálf- an landspitalann handa sínum gest- um. Dómsdagur. Ó-já, 1930. Dómsdagur, sagði Guðmundur Finnbogason, útlend- ingatlekur og orðudingl, þrir rign- ingardágar á Þingvöllum, Magnús Torfason forseti sameinaðs þings, Jónas með sultardropa á nefinu: Mussolini og aðrir tignir gestir skjálfandi ein? og hundar, hafís fyrir Norðurlandi, fiskileysi, eldgos og drepsóttir, enginn til að vinna nokkurt verk, Westur-Í^lendingar skirpandi tyggigúmmi hvorif á aðra, bílaslys og hverskyns bágindi. Jú, það er huggulegt. En Tryggvi seg- ir það kosti ekkert og það er þó bót í máli. En meðal annara orða, hefir nokkurn tima verið ákveðið að halda þessa hátíð? Hvar stendur það skrifað? Þetta var nú æðilangur útúrdúr. En þó þarf að minnast á þetta mál, og má furða heita, hve alþýða manna er tómlát i þessu efni. —Vörður, 16. marz. Opið bréf til S. H. frá Höfnum. Herra ritstjóri Heimskringlu. Af þeim ástæðum fyrst og fremst, hvað austrið er langt frá vestrinu og fundum okkar ber því svo sjaldan saman, þá tek eg nú það ráð, að senda þér fáeinar lín- ur, sem aðallega verða fréttir, er eg bið þig að birta í þínu heiðr- aða blaði. Því, þó Hkr. sé nú að mestu kirkjublað, en þessar fréttir engin guðfræði, þá hefi eg tekið eftir því, að margt kempr í Hkr., sem lítið guðfræðisbragð er að — og eigi sízt frá þér, hvað sem segja skal um Laxness okkar — eina kaþólíkann, sem eg man eftir að mér þyki nokkuð vænt um. Yér, nágrannarnir þarna aust- ur á strætunum, lítum helzt hýr- um augum til þín, þegar um óld- ungis veraldleg mál er að ræða. Vér elskum heiminn og alt sem í honum er, og peningana líka, ef vér næðum í þá — og unnum lífi voru á þessari jörð í hlutföll- um við það hvað frjálst það er. Svo er nú mál með vexti, nafni minn, að Málfundafélagið,— sem þú veizt að er til — og heldur fundi hvern drottins dag, til þess að vera sem minst 1 vegi fyrir öðrum, aðra daga vikunnar. Og sd. þann 24. síðastl. mán. komum vér saman, eins og að vanda, til að ræða um mannréttindamál. Og í þetta sinn var B. Magnússon framsögumaður í málefni því, er auglýst var í blaði þínu: “Hvers vegna bauð ísland ekki Rússlandi á þúsund ára þingsaf- mælishátíð íslands 1930?” — Björn Magnússon flutti erindi sitt mjög skörulega og rökstuddi vel athugsemdir sínar. Var mál- ið rætt af kappi, og af mörgum. Var aðeins einn maður verulega gagnstækðrar skoðunar. En vér urðum fyrir þeim heiðri, að fá góðan gest á fund- inn. Var það hr. Jón Bíldfell, formaður Heimfararnefndarinn- ar, og eimskipafélags þjónn. Buðum vér honum að tala og þáði hann það með gleði. Talaði hann all-langt og snjalt erindi., Þú veizt hvað tölugur hann er, hann Jón. Þótti honum vér fær- ast stórt í fang, að “krítisera” gjörðir heillar konungsstjórnar, og þótti sumir af oss tala fremur gapalega. Hann sagði, að það hrygði sig, að heyra menn tala svona blátt áfram. Það þyrfti að fara varlega nÚ á þessum siðustu og verstu dögum, og eins og Pét- ur skáld Sigurðsson myndi segja, þar sem dómsdagur væri í nánd. Fann hann núverandi stjórn ís- lands margt til foráttu — og lá þá við sjálft, að hann gleymdi sjálfur varkárninni; — hann setti hörmungardrætti á andlit- ið, þegar hann nefndi Jónas frá Hjriflu. Svo sló ögn út í fyrir honum; hann fór að tala.um verk- fallið og fiskibátana, sem hefðu legið bundnir við bryggjuna eins og galeiðuþrælar. Sá hann ekki, hvar slík ósköp myndu lenda. Gaf hann oss fyllilega í skyn, að þá myndi vera næst skapi þessa alræmda Jónasar, sem hann sagði að einn sjórnaði íslandi, — að taka dallana af þeim ríku, sem væru í svo afar-erfiðum kringum- stæðum og ættu svo ósköp bágt. Hann v i s s i, að þeir gætu ekki borgað hærra kaup, hvað hjart- ans fegnir sem þeir vildu, því ekki vantaði hjartagæzkuna — og þarna stæði hnífurinn í kúnni. En — ef nú Jónas þessi tæki dallana af þeim aumu, ríku, hvað ætlaði hann þá að gera með þá? Hvernig í ósköpunum gæti landið haldið þeim út? Bláfátækt land- ið, kafið í skuldum 0g sköttum og alt á leið í “grænan sjó”. Hann sá ekkert nema gjör-eyðileggingu þjóðarinnar, ef þessi voða-stjórn ihéldi lengi völdum. Og svo þess- Jir bo—bo—bols—ar í Reykjavík,—- Hrottinn dýr. Harðsvíraðir, sam- vizkulausir harðlstjórar; m,isk- unnaralusir við þá aumu, ríku. TENDERS FOR COAL SEALED tenders addressed to the Pur- chasing Agent, Department of Pub- lic works, Ottawa, will be received at his office until 12 o’clock noon (day- light saving),Wednesday, May 1, 1929, for the supply of coal for the Dominion Buildings and Experimental Farms and Stations, throughout the Province of Manitoba, Saskatchewan, Alberta and British Columbia Forms of tender with specifications and conditions attached can be obtained from G. W. Dawson, Chief Purchasing Agent, Department of Publlc Works, Ottawa; H. E. Matthews, District Res- ident Architect, Winnipeg, Man.; G. J. Stephenson, District Resident Archi- tect, Regina Sask.; Chas. Sellens, Dis- trict Resident Architect, Calgary, Alta.; and J. G. Brown, District Resident Architect, Victoria, B.C. Tenders will not be considered unless made on the above mentioned forms. The right to demand from the suc- cessful tenderer a deposit, not exceed- ing 10 per cent. of the amount of the tender, to secure the proper fulfilment of the contract, is reserved. By order, S. E. O'BRIEN, Secretary. Department of Public Works, Ottawa, April 5, 1929. Þeir skildu náttúrlega ekkert í vísindalegri hagfræði. Og þess- ara manna vinur myndi Jónas vera, — það væri svo sem auð- séð. Að endingu benti hann á, að utanríkisráði Dana myndi um að kenna, að Rússlandi var ekki boð- ið. Því í raun og veru var hann að blaka af stjórn íslands í þessu máli og með sinni alkunnu rðk-- fimi kom því óviljandi upp, að verkamanna hatur lægi til grund- vallar fyrir þessu hneyksli. En reyndi að breiða ofanyfir það, með því að kenna utanríkisráðu- neyti Dana um þetta hneyksli. Svo, eftir alt, þá áttu þó íslenzk stjórnarvöld einn talsmann í Vesturheimi. Og því ekki það? — þjóðrækinn starfsmann voldugs járnbrautarfélags I Vér, fundarmenn, sem ekkert erum nema auðmýktin og undir- gefnin, urðum nærri að blávatni af tómri viðkvæmni. Fluttum vér margar ræður og hjartnæmar og lofuðum því, að verða komnir á Þingvöll kl. 6 að morgni þess 24. júní, án nokkurs stjórnarstyrks, hvort sem það rignir, eða rignir ekki. Að endingu samþyktum vér svo- látandi tillögu: “Fundurinn lýsir óánægju sinni yfir því, að hlutaðeigandi stjórn- arvöld tslands skyldu ekki bjóða Rússlandi að senda fulltrúa á þús- und ára þingsafmæli tslands 1930.” Jæja, nafni minn sæll. Þetta er nú víst orðið nógu langt bréf í bráðina. Eg máske sendi þér línu síðar, ef eitthvað ber til tíðinda. En hvernig líkuðu þér “Þjóð- ræknisrímurnar” er eg sendi þér fyrir nokkru ? Vertu svo í eilífri náðinni, og dreymi þig vel þarna sunnan undir kirkjuveggnum í Blöndu- hlíð. Þinn, S. B. Benedictson. SIGURGEIRI SIGVALDASYNI svarað í sama tón. Aumingi, sem ekki kann orð í rökum sönnum, flaggar nú með flórspaðann fyrir spenamönnum. Ekki er nýtt þó einn og tveir eldiskálfar bauli, samt er þessi Sigurgeir sýnu mestur auli. Eintómri á illgirni ekki þrifist getur, —\ þennan mann á þjóðrækni þyrfti að fóðra betur. Norðri. BARNAGIFTINGAR. lEfri deild brezka þingsins (lá- varðadeildin) hefir nýlega sam- þykt frumvarp til laga, sem bann- ar fólki innan 16 ára aldurs að gifta sig. Var það Buchmaster lávarður, sem frumvarpið flutti. — Sagði hann í framsöguræðu, að eins og löggjöf Breta hefði verið háttað, þá hefði ekkert verið því til fyrirstöðu, að 12 ára stúlka og 14 ára piltur giftu sig. Þetta kvað hann ekki ná nokkurri átt að láta viðgangast. 'Salisbury lá- varður, er talaði í málinu fyrir hönd stjórnaripnar, sagði, að seinustu 12 árin hefðu farið fram 318 brúðkaup, þar sem brúðhjón- in hefðu verið yngri en 15 ára; 28 brúðkaup, þar sem brúðhjónin voru 14 ára, og 8 brúðkaup, þar sem brúðhjón voru 13 ára. Kvað hann nauðsyn til bera, að banna giftingar barna.—Lesb. Mgbl. SOLVEIG EYSTEINSDÓTTIR HANNESSON. Sólveig fæddist 25. febr. 1868 að Arnbjarnarlæk í Þverárhlíð. Þar bjuggu foreldrar hennar, Ey- steinn Halldórsson og Hallgerður Jónsdóttir, rausnarbúi. Af sex dœtrum þeirra dóu þrjár í æsku, en ein, Helga að nafni, býr í Eski- holti í Borgarfirði. önnur, Þor- gerður, gift Jóni Magnússyni, er ný flutt frá Winnipeg til Los Angeles, Calif. Er S. var sex ára fluttust for- eldri hennar vestur í Miðdal í Dalasýslu. ólst hún þar upp. En tvítug ferhún, 1888, og Þorgerð- ur systir hennar, vestur um haf. Árlangt dvöldu þær í New Jersey, en fluttust þá til Winnipeg. Þar giftist S. 24. júní 1893, Jóni M. Hannessyni. Jón var ekkjumað- ur. Tók S. að sér börn hans tvð í æsku og reyndist þeim jafnan hin beztá móðir. Eru þau Jór- unn, gift Steinbach í Vancouver, B. C., og ólafur Guðmundur Hannesson í Selkirk, Man. Börn þeirra Jóns og Solveigar eru 7, öll sérlega mannvænleg: 1. Guðlina, gift R. Coffron, bú- sett suður í Miohigan. 2. Eygerður, kenslukona vest- ur í Saskatchewan. 3. Kristín Ólöf, gift J. N. Ly- erly, kongregational presti suður í Iowa. 4. Hannes, spítalalæknir í Lund- únum á Englandi. 5. Eysteinn Haraldur. 6. Þór- ey Ingiríður. 7. Kristján Mikael, öll í föðurgarði. Jón og Solveig bjuggu nálægt 16 ára tíma í Winnipeg, en ávalt sían í Selkirk, nær 26 árum. Eg kyntist Solveigu síðasta æfi- árið. Var hún þá orðin sjúk. Verður mér sú viðkynning og vin- átta minnistæð. Eg hefi þekt margar íslenzkar konur og mæð- ur, er átt hafa hið bezta í eðli kristinna manna. í þeim hóp var S. framarlega. Að ytri ásýndum var hún orðin öldruð og mjög sjúk. Þó fylgdi henni kvenleg tign og óvenjulega gáfnalegt augnaráð. Rósemi andans, víð- sýni hugarfarsins og trúarlíf, sem grimmur dauðinn, er hún vissi vel að sat um líf sitt, gat ekki ógnað, — átti hún í ríkum mæli. Hún var hugrakkari hetjunum, er sögurnar lofsyngja. Og eftir því var þýðleiki hennar. Sálarlíf Sol- veigar minti mig á íslenzkan vor- blæ. Og þessi fágæta gjöf entist henni alla árstíð æfinnar inn í vetrarríki dauðans. Ung lærði S. að yrkja ljóð, en yngri lærði hún að trúa og biðja. En ljóðagerðin var sál hennar svalalind. Og nátengd henni er ættjarðarástin. 'Dásamlegt tel eg það, og einkennilegt við íslend- inga, að útlend og efnafá kona, er annast uppeldi 9 barna sem fyrstu skyldur, yrkir jafnframt ljóð um ýms fjarskyld viðfangsefni manns- andans. Og hún heldur áfram að yrkja fram í andlátið. Undir hið síðasta kveður hún um “Brot- hljóð” í æfifarinu, þar sem það er að verjast í skerjagarði dauð- ans rétt við lendinguna. Fagn- andi kveður hún um heimkomuna, sem útlendingur er heim snýr úr útlegð til föðurhúsanna. Hér var því um óvenjulegt hugrekki, hjartakosti og andríki að ræða. Þó leið hún — lengi og þung- lega. Hún bar einn hinn þyngsta þjáninga-kross, sem lagður er á mannlegt hold: “Vor jarðlífsins kjör eru köld bæði’ og hörð, vor kjör eru að sakna og þreyja; en eitt er þó sárast af öllu á jörð, hve érfitt er stundum að deyja.” Óskaði eg þess, er eg horfði á hugrekki þessarar koou, að allir trúveikir menn hefðu átt þess kost, að sjá hjá henni hvers virði kristin trú er í dauðanum. Þá held eg að allir menn myndu trúa, — allir. Af eigin þekking get eg fátt sagt um S. sem húsfreyju, konu og móður. En eg get ekki hugsað um hana nema sem frábærlega ástúðlega, ræktarfulla og góða á öllum sviðum lífsins. Hún ráðstafaði för sinni úr heiminum, kvaddi mann sinn og börn, þennan frábæra ástvinahóp, með sömu ró sem hún væri að ráðstafa einhverju starfi dagsins. Solveig andaðist 21. des. 1928, og skorti þá rúman mánuð í 61 ár. Útförin fór fram í Selkirk, frá heimilinu og kirkjunni, annan dag jóla. En hún var jarðsett í Winnipeg. Ekkjumaðurinn og börnin þakka hér með alla vináttu og hluttekn- ingu auðsönda í sjúknaði og and- láti Solveigar sál., en sérstaklega er hér þökkuð hjástoð þeirra hús- frunna Guðrúnar Jónson, Elínar Evans og Ingiríðar ólafsson, er um háa tíð voru tryggar vinkonur hinnar látnu. J. A. S. Canada framtíðarlandið Fyrir meir en hundrað árum ræktuðu þjónar Northwest félags- ins bygg, jarðepli og margvís- legar tegundir garðávaxta, með hinum bezta árangri, skamt frá Dunvegan. Nú eru allar hinar algengu tegundir korns ræktaðar á stöðum þessum. Dunvegan er í raun og veru gömul verzlunar bækistöð Hud- ons Bay félagsins. Bærinn ligg- ur norðan megin Peace árinnar, um sextíu mílur frá Peace River bænum, en vegalengd þaðan til Spirit River með járnbraut, nem- ur rúmum átján mílum. Dalurinn er þar all-þröngur og um 800 feta djúpur. Ferja er á ánni, rétt við þjóðveginn, sem notuð er jafnt og þétt þar til ána leggur að haust- inu til. Sunnnan verðu árinnar er skóg- lendi allmikið, en svo má heita, að bakkarnir að norðan verðu séu eggsléttir, Þegar Edmonton, Dun- vegan og British Columbia brautin var fyrst mæld út, var gert ráð fyrir því, að Dunvegan yrði ein meginstöðin og var ekkert til sparað, að auglýsa afstöðu bæj- arstæðisins, sem allra bezt og að benda á hin mörgu og góðu skil- yrði, sem þar væru fyrir hendi. En þegar til framkvæmdanna kom, varð niðurstaðan sú, að iðn- aðarstöðvarnar voru flestar stofn- settar hér og þar um slétturnar, en dalurinn var að nokkru leyti settur hjá. í norður frá Dunvegan, má svo að orði kveða, að hvert landflfmi sé öðru betra. Enda er þar að finna sum allra fegurstu og blóm- legustu býlin í fylkinu. Sam- göngutæki eru þar hin ákjósan- legustu og símalínur tengja borg við borg og sveit við sveit. — Merkustu staðir í grend við Dun- vegan eru: Waterhole, Vanrea, Friedenstall og Blusky. Fegurri býli finnast ekki í öllu fylkinu, j en í kring um þessi þorp. Spirit River héraðið er ekki í stórt um sig, en landkostir eru þar góðir. Fyr á tímum ferðuð- ust menn frá Edmonton til Spirit River, um Peace River, Crossing og Dunvegan akveginn, eða rétt- ara sagt eftir brautinni, sem lá frá Dunvegan til Saskatoon- vatnsins. Selstöðukaupmennirnir höfðu þar margar stöðvar fyr á árum og keyptu ósköpin öll af grávöru. Árið 1907 voru svæði þessi öll nákvæmlega mæld og tveim árum síðar höfðu bygðirn- ar fengið fjölda nýbyggjara. — Allar tegundir korns þroskast á svæðum þessum, svo og garðá- vextir. Landið er nokkurs konar háslétta, sem liggur 2,406 fet fyr- ir ofan sjávarmál. Hinir hlýju “Chinook” vindar, hafa mikil á- hrif á veðráttufarið, sem og á jarðargróða allan. Bærinn Spirit River er nokk- urs konar miðstöð Edmonton, Dunvegan og British Columbia járnbrautarinnar. Þar er að finna stórar nýtizku kornhlöður, er gera bændum hægt með að koma korni sínu fyrir. Vöruflutninga- bílar ganga jafnt og þétt milli Peace River, Dunvegan og Spirit River, svo og milli Spirit River og Grande Pirairie. Allstaðar á þessum svæðum eru landkostir hinir beztu. Grande River héraðið er ungt, tók í raun og veru ekki að byggj- ast til muna fyr en fyrir eitthvað 10 árum eða svo. En nú getur þar að líta fögur og frjósöm bygð- arlög. í bæ þessum hefir Dom- inion Land og Crown Timber skrifstofan bækistöð sína fyrir Grande Prairie umdæmið. T CUNARD LINE Elzta eimskipafélagið, sem siglir frá Canada. Cunard línan veitir ágætar sam- göngur milli Canada og Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur, bæði til og frá Montreal og Quebec. Eitt, sem mælir með því að ferð- ast með þessari línu, er það, hve þægilegt er að koma við í Lon- don, stæretu borg heimsins. Cunard línan hefir sérstaka inn- flutningaskrifstofu í Winnipeg, fyrir Norðurlönd. Skrifstofu- stjórinn er Mr. Carl Jacobsen> sem útvegar bændum íslenzkt vinnufólk vinnumenn *g vinnu- konur, eða heilar fjölskyldur. — Það fer vel um frændur yðar og vini, ef þeir koma til Canada með Cunard línunni. Skrifið á yðar eigin máli, eftir upplýsingum og sendið bréfin á þann stað, sem gefinn er hér að neðan. Öllum fyrirspurnum svarað fljótt cg yður að kostnaðarlausu. 10053 Jasper Are. EDMONTON 100 Plnder Block SASKATOON 401 LaucaAter Bldg:., CALGARY 270 Maln St. VVINNIPEG, Man. Cor. Bay & Welllnftton Sts. TORONTO, Ont. 230 Hospltal St. MONTREAL, Que. Um 14 mílur vestur af Grande, Prairie, liggur þorpið Lake Sas- katoon, samnefnt vatninu, er það stendur við. Þar er orðið mikið um verzlun, enda er landið um- hverfis hið frjósamasta. Póst- hús er í þorpinu, svo og símastöð, skólar og kirkjur. Um 19 milur vestur frá Grande rairie, liggur Bear Lake. Korn- ræktin er komin þar á hátt stig, svo og garðrækt. Dalirnir, sem Smoky og Wapiti árnar falla eftir, eru mjög auð- ugir að skógi; eru beitilönd þar hin allra beztu, er hugsast geta. Clairmont og Sexmith eru og snotur smáþorp, er liggja við megin járnbrautina. Af öðrum stöðum má nefna Kleskan Hill og Glen Leslie, er liggur á milli Grande Prairie stöðvarinnar og Beezanson; enn fremur Splitfire Lake, Niobe, Hermit Lake, Val- salla, Hythe, Beaverlodge og Hol- court, er liggja í vesturjaðri hér- aðsins. Við Beaverlodge hefir landbún- aðardeild sambandsstjórnarinn- ar tilraunabú, sem orðið hefir bændum að miklu liði. Hveiti- rækt er þar mikil, og garðrækt í fullum blóma. PAFARÍKIÐ NÝJA. Landamæri páfaríkisins, “Citta Vaticano”, hafa nú verið mæld og merkt og er alt ríki páfa 41 hekt- ar eða tæplega ferkílómeter að flatarmáli. Verður það minsta ríkið í Evrópu. Monaco er 21.6 ferkílóm. og eru þar 23 þús. íbúar, San Marino er 59 ferkílóm. og í- búar alls 11 þús. Andorra er 452 ferkílóm. og íbúar 6660. ‘‘Citta Vaticano” verður þýí minsta ríki álfunnar, en jafnframt auðugasta ríkið.—Lesb. Mgbl. - MARTIN 0 CO. ■■ V0RFATNAÐAR SALA Enn á ný gefum vér yður tækifæri til að kaupa yðar vorfatnað á vorum HÆGU BORGUNARSKILMÁLUM 20 VIKUR til að borga afganginn jafnframt og þérnotið fötin YFIRHAFNIR Síðasta gerð og bezta efni $15.75 til $55.00 ALFATNADIR Sérlega laglegir og vel geiðir $19.75 til $35.00 KJÓLAR Mörg hundruð r að velja $12.75 til $29*50 ALFATNADIR af beztu gerð $24.75 til $49.50 V ORYFIRH AFNIR Tweeds, Barrymores, Gabardines $19.75 til $35.00 Búðin opin á laugardagskveldum til kL 10 MARTIN & CO. Easy Payment Plan Á öðru gólfi í Winnipeg Piano Bldg. Portage og Hargrave L. Harland, ráðsmaður.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.