Lögberg - 13.06.1929, Side 1

Lögberg - 13.06.1929, Side 1
42 ARGANGUR I WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN I3.JÚNÍI929 NUMER 24 r? oc u Helztu heims-fréttir <i=>0 0 J Canada Síðustu fréttir segja, að Gard- iner forsætisráðherra í Saskatche- wan, muni leggja niður völdin nú bráðlega, líklega í þessari viku. Verður Dr. J.T.M. Anderson, leið- toga íhaldsflokksins, þá vafalaust falið að mynda nýja stjórn. Eins og skýrt er frá á öðrum stað í blaðinu, hefir íhaldsflokkurinn þó engan veginn meiri hluta í þinginu, en sagt er að smáflokk- arnir, framsóknarflokkurinn og hinir svo nefndu óháðu, hafi heit- ið Dr. Anderson fylgi sínu gegn því, að hann útnefni einn ráð- herra úr flokki framsóknarmanna ■og einn af hinum óháðu. Það lít- ur því út fyrir, að hin nýja stjóm í Saskatchewan verði dálítið mis- lit og ekki vel auðvelt að sjá, hvernig flokkarnir, sem hana mynda, geta unnið saman. * * * Á sunnudaginn og mánudaginn í þessari viku, var heitt veður hér í Winnipeg og grendinni. Eigin- lega einu heitu dagarnir, sem enn hafa komið á þessu sumri. Um helgina rigndi víða í Manitoba- fylki og er nú kominn mikill gróð- ur. Uppskeruhorfur eru sagðar góðar víðast hvar í !Sléttufylkjun- um, en þó hefir regnfall verið heldur lítið stumstaðar. * * * Hon. Arthur Mighen, fyrver- .andi forsætisfáðherra í Canada, kom til Winnipeg á mánudaginn var, á leið til Vancouver. * * * Stjórnin í Kína hefir farið fram á það við stjórn Canada, að hún sendi þangað sérstakan sendi- he.Ta. Bandaríkin Alfred Michaelson, neðri mál- stofumaður frá Illinois, sá er kæifður var um það fyrir noklcru, að hafa flutt inn til Bandaríkj- anna á óleyfilegan ihátt, áfenga drykki frá Cuba, hefir verið fund- inn sýkn saka. * * * George W. Wickerham, forseti lögfræðingafélags Bandaríkjanna, flutti nýlega ræðu á þingi þess félagsskapar í Washington, þar sem hann skoraði á stéttarbræður sína, að ganga á undan öðrum stéttum, hvað viðkæmi virðingu fyrir lögum þjóðarinnar. * * * Meðan á heimsstyrjöldinni miklu stóð, lánaði Bandaríkja- stjórn Grikkjum fimtíu miljónir dala. Nú hafa samningar tekist að fullu um gi-eiðslu skuldarinn- ar, þannig að hún skuli greidd verða $ jöfnum afborgunum á næstu sextíu árum. * * * Col. Theodore Roosevelt, hefir verið skipaður landstjóri í Porto Rico. * * * Dr. Cleland B. McAfee, pro- fessor við Theological Seminary í Chicago, hefir verið kjörinn for- seti Presbytera kirkjufélagsins. * * * Joseph Potter Cotton frá New York, hefir verið skipaður að- stoðar utanríkisráðgjafi Banda- ríkjastórnarinnar, í stað James Heuben Clark, er nýlega sagði því embætti lausu. Bretland Kosningaúrslitanna á Bretlandi, var að no'kkru getið í síðasta blaði. Nú hefir verkamannaflokk- urinn tekið við völdum á ný, og er ráðuneytið þannig skipað: F’orsætisráðgjafi i— J. Ramsay MatíDonald. Fjárm.ráðgj.'—Philip Snowden. Úftanr.ráðgj.■— Arthur Hender- son. Nýlenduráðgj.—Sydneý Webb. Indlandsrágj.— Wedgewood Benn. Lord Privy Seal—J. H. Thomas, er jafnframt gegnir atvinnumála- ráðgjafaembætti. Lord Chancellor—Sir John San- key. Lord President of Counsil — Lord Parmoor. Ráðgjafi fyrir Skotland — W. Adams. Innanríkisráðgjafi — John R. Clynes. Loftílota ráðgjafi — Lávarður Thomson. Hermála ráðgjafi — Tom Shaw. Ráðgjafi opinberra verka — George Lansbury. Heilbrigðis ráðgja. — A. Green- wood. Verkamála ráðgj. .•— Miss Mar- garet Bondfield. Landbúnaðar ráðgjafi — Noel Buxton. 1 Mentamála ráðgjafi — Sir C. Trevelyn. Verzlunar ráðgjafi — William Graham. Tollmála ráðgjafi — Albert W. Alexander. Samgöngumála ráðgjafi — Her- bert Morrison. Dómsmálaráðgjafi — W. Jowitt. Pósmála ráðgjafi •— H. B. Lees- Smith. * * * Rt. Hon. Winston Churchill, fyrrum fjármálaráðgjafi Breta, er væntanlegur hingað til lands um miðsumarleytið. Ætlar ihann að ferðast víða um heim, þar á meðal til Suður Ameríku og Japan. * * * Hans hátign, konungurinn, hef- ri legið rúmfastur í Windsor höll, undanfarna viku, en nú sagður að vera á góðum batavegi. Frá Islandi Vestmannaeyjum, 2. maí. Snemma í morgun var bruna- liðið kvatt til þess að slökkva eld, sem komið hafði upp í vélbátnum Braga. Var vélbáturinn í sjó- róðri og var staddur vestur und- ir Smáeyjum, þegar kviknaði út frá primuslampanum, sem sprakk í vélarrúminu. Síðan sprakk hinn lampinn og varð af allmikill eld- ur. Bátverjar gerðu tilraun til þess að slökkva eldinn, en tókst það ekki. Formaður, Sigurjón Hansson, ætlaði þá að hleypa bátnum í ]and, en þá stöðvaðist vélin. Stóð þá mikill reyjarmökk- ur upp úr bátnum, og var vélar- rúmið alelda. Annan bát bar þá að, og tók hann skipshöfn Braga, þar eð hætta var á, að olíugeymar vélarinnar myndu springa, og dró vélbátinn inn á höfnin. Tókst að slökkva eldinn þar, en báturinn var þá brunninn til stórskemda, alt fram undir miðju. Eigendur bátsins eru iþeir Þórður Stefáns- son og Valdimar Jónsson. Bátur- inn er tæpar tíu smálestir og var vátrygður. Mikil síldveiði 1 llagnet hér síð- ustu daga. Bátar, sem stunda línuveiðar, fiska ágætlega með hýju beitunni. Netjaafli virðist þrotinn. Eru margir búnir að taka upp net sín og byrjaðir á línuveiðum. Reykjavík,' 3. maí. Bílfærir vegir eru nú komnir um flest þéttbýl héruð landsins og nokkra fjallvegi, sem kunnugt er. Ennþá hefir eigi verið gerð- ur aðgengilegur uppdráttur fyrir vegi þessa, svo menn sjái fljót- legaa 1 hendi sér, hvar bílfært er orðið. — Flestir gera sér ekki fulla grein fyrir því, hve miklar samgöngubætur hafa komist á á síðustu árum. Til þess að vekja glögga athygli almennings í þessu efni, væri 'hentugt að efnt væri til kepni nokkurrar nú í sumar, þar sem menn reyndu á hve skömmum tíma þeir kæmust landleiðina um sveitir kring um land.—Lögr. Höfðingleg gjöf til nýju kirkj- unnar. — Fyrir miliigöngu bróð- ur síns, Ludv. Storr, kaupmanns, hefir Edvard Storr, stórkaupmað- ur í Kaupmannahöfn, boðist til þess að gefa nýju krikjunni þrjá myndaglugga, og er 'hinn stærsti þeirra 3.10?Ö.32 metrar. Glugg- Goller, sem er talinn fremsti lista- maður Þýzkalands í þeirri grein, og hefir verið lokið miklu lofsorði á þá í þýzkum tímaritum. •— Á stærsta glugganum er mynd af Jesú á leiðinni ti'l Golgata, en á hinum tveim, sem eru nokkuð minni, eru myndir af Jesú og ber- syndugu konunni, og Maríu með barnið. Á gefandinn miklar þakk- ir skilið fyrir þetta höfðinglvndi sitt, og er það mikið tilhlökkunar- efni fyrir söfnuðinn, að eiga von á að sjá þessi fögru listaverk prýða nýju kirkjuna sína. — Þeir sem kynnu að vera að gera upp- drætti að kirkjunni, geta fengið upplýsingar um stærð og lögun glugganna hjá undirrituðum. — F. Hallrímsson. Mgbl. Borgarnesi, 5. maí. Veðrið var allslæmt hér, en ekki hefir frézt um skaða af völdum þess enn; ætla menn, að veður hafi ekki -verið svo slæmt, að fé hafi Ifarist. Eyrarbakka, 5. maí. Engan bát vantar. Allhvast í gær og hlóð niður talsverðum snjó, en hann hefir tekið upp að mestu aftur. Gott veður í dag. Þjórsá, 5. maí. Þreifandi norðanbylur skall á hér um miðnætti í fyrrinótt og hélzt í þrjú dægur. Nú sæmilegt veður og hríðarlaust, en allhvast. Veður var svo slæmt fyrsta dag- inn, að ógerningur var að Ifinna fé, varla farandi milili bæja. Muna menn ekki slíkt veður á þessum tíma árs og varla svo slæmt vetr- arveður um langt skeið. Veðrið var vægara austur í Hvolhreppi og Fljótshlíð. Hér eru þriggja mannhæða skaflar sumstaðar, þar sem brúnir eru, og eru menn nú að ná fé úr fönn. Snjóinn leysir fljótt upp og menn moka upp skalfla sem óðast, en menn óttast mjög, að talsvert af fé hafi farist, en þó verður akki með vissu um þetta sagt enn. Veður mun hafa verið heildur vægara uppi í Hreppum, en sennilega hefir fé ifent þar líka. Keflavík, 5. maí. Allir bátar komnir fram. í morgun voru níu komnir til Sand- gerðis, tveir til Hafnarfjarðar í morgun, einn náði landi í Njarð- víkunum í gær og tveir hér; einn bátur lá undir Hafnarbjargi í nótt og mun nú kominn til Sandgerðis. Átta bátar héðan voru ekki í róðri, þar af tveir í Reykjavík. í Sand- gerði mun engan bát vanta. — Töluverðum snjó hlóð hér niður, en er sem óðast að taka upp. Ekki frézt að fé hafi fent. — Afli á- gætur, altaf komið með fulla bát- ana. Flestir bátanna hér hafa fengið upp undir sex hundruð skippund og sumir talsvert á sjö- unda hundrað Hefir aldrei ver- ið annar eins afli hér og á-þessari vertíð. Akureyri, 5. maí. Stórhríð á tímabili í gær. Bjart yifir og hláka í dag. Þó alsnjóa enn, nema rétt hér í kring. Ekki frézt hingað enn um nokkurn skaða af völudm ofviðrisins. — Ágætis afli alveg inn á poll. — Góð atvinna og vellíðan. — Vísir. ísafirði, 3. maí. “Togarafélag ísfirðinga” helfir keypt fyrverandi eignir Edinborg- ar fyrir eitt hundrað og fjörutíu þúsund krónur. Tregur afli í Djúpinu og hér nærlendis að undanförnu. — En stærri bátarnir hafa fengið ágæt- isafla í Jökuldjúpinu. Ólafur Stefánsson skósmiður var jarðsunginn í dag að viðstöddu fjölmenni. Hann andaðist í Rvík í apríl. ólafur var nýtur borgari og harmdauði bæjarbúum. 1 apríl lézt og í Rvík annar góð- ur borgari héðan, Þorbjörn Tóm- asson skósmiður. Reykjavík, 5. maí. Lengi hefir verið um það talað, að gefa þyrlfti út ritsafn Jónasar Hallgrímssonar. Voru það þeir dr. Helgi Jónsson og Matthías Þórðarson, sem tóku það mál upp fyrir onkkrum árum. Kom fyrst til orða, að Bókmentafélagið ann- aðist útgáfuna. En er til kom, W. H. Paulson, M.L.A. þingmaður Wynyard kjördæmis, endurkosinn þann 6. þ. m., með stórkostlegum meiri hluta. arnir eru malaðir af prófesorvarð Jónas Hallgrímsson að víkja fyrir forn-bókmentum og sögu- grúski. Heifir ísafoldar prent- smiðja tekið útgáfuna að sér. Er í ráði, að 1. hefti 1. bindis komi út í ár, með skáldskapnum í bundnu og óbundnu máli. í næsta bindi verða ýmsar ritgerðir, bréf o. fl., sem ekki fjallar um náttúruvís- indi. 1 Jarðræktarstórhugur er í Akur- nesingum nú sem kunnugt er. — Hafa þeir keypt Garða af ríkis- sjóði og nokkurn hluta af landi jarðarinnar Ós, og girt alt. Mun ræktanlegt land innan girðinga vera 500 ihektarar. Eru þar sér- girtir kúahagar og hestahagar. — Hefir nú verið úthlutað 70 hekt- urum lands til ræktunar handa 35 mönnum. — Greiðir ihreppur- inn kostnað við vegi og affalls- pkurði, en ræktunarkostnað greiða þeir, sem löndin fá. Vonandi að eigi líði mörg ár unz alt landið, '500 hektara*-; teknir til rækt- unar. Haustkvöld við hafið, eftir J. Magnús Bjarnason, II. hefti, kom út í gær. Beinamjöls verksmiðju er verið að erisa á Siglufirði, en á að taka til starfa í sumar. Vinnur hún úr fiskbeinum hráblautum. Getur hún tekið við 2Í»—30 tonnum á dag. Hlutafélag með 140 þús. kr. hlutafé á verksmiðjuna. Formað- ur félagsins er Anton Jónsson út- gerðarmaður á Akureyri. — Mik- ill kostur er það við vélar verk- Smiðju þessarar, að eigi skuli þurfa að hafa fyrir því að þurka beinin áður en unnið er úr þeim. Eggert Stefánsson söng í Lon- don í gær. Skeyti frá London hermir, að Eggert hafi unnið listrænan sigur, verið tekið með miklum fögnuði og hlotið blóm- vendi að sigurlaunum. Aðsókn var ágæt og ætlar Eggert a syngja bráðlega aftur í London. ■ Óvíst er enn, hvort fé verður fyrir hendi til þess að halda áfram rannsóknum á Bergþórshvoli í sumar. Liggur nú næst fyrir að grafa upp kálgarðinn sunnan við, gröfina, sem gerð hefir verið. — Væri óviðeigandi, að hætt væri við rannsóknir þessar í miðju kafi; ætti það að örfa okkur ís- lendinga til að hraða slíkum rann- sóknumi sem mest, og vanda sem bezt til þeirra, að kenning sú hef- ir nú fengið inngöngu við Hafn- arháskóla, að íslendingasögur séu skáldskapur einn, sem eigi hafi við nein eða sama og engin sögu- leg rök að styðjast. 15 bílar voru veðurteptir að ölfusárbrú í gær. og um 50—60 manns næturgestir í Tryggva- skála í nótt. í bylnum í gær spilt- ist færðin mjög á vegunum fyrir austan fjall; var veðrið svo vont seinni partinn, að vegurinn sást ekki og óku margir út af hjá Ing- ólfsfjalli. Eins og nærri má geta, leið farþegum illa í hrakn- ingum þessum, en slys varð ekk- ert. Unglingstelpa hatfði verið í einum bílnum, sem festist, og varð henni svo kalt af að standa úti í hríðinni, að hún féll í yifirlið og var borin austur að Tryggva- kála. Hrestist hún strax er þar kom og hafði náð sér a, fullu í gærkveldi. — Morgbl. Stórmannlegt samsæti Síðastliðið mánudagskveld, buðu þau hjónin, Mr. og Mrs. Ásmund- ur P. Jóhannsson, mannfjölda miklum, til veglegs samsætís, í skrautlegasta borðsal Royal Alex- andra hótelsins hér í borginni. Var salurinn fagurlega skreyttur, og skrýddi stafnþil hans bæði, meðal annars, ríkisfáni íslands. Samsæti þetta hið rikmannlega, er minti á höfðingjaveizlurnar fornu, kom vafal. ýmsum á óvart. Ekki fyrir þá sök, að Winnipeg- íslendingum væri, ókunnugt um gestrisni þeirra Jóhannson’s hjóna, heldur miklu fremur af hinu, hvert tilefnið væri til mann- fagnaðarins. Voru veizlugestir þó brátt leiddir út úr eyðimörk- inni, hvað þetta áhrærði, því Mr. Jóhannsson, skýrði frá því, um leið og hann bauð gesti velkomna, að til samsætis þessa væri í raun og veru stofnað, í þakklætisskyni við þá hina mörgu vini þeirra hjóna, sem heiðrað hefðu þau með gjöfum og veizluhaldi fyrir fimm árum, í tilefni af fjórðung-saldar hjónabandsafmæli þeirra. Hljóðfærasveit vel æfð, undir stjórn hr. Stefáns Sölvasonar, lék nokkur lög á meðan fólk var að raða sér við borðin. Að því loknu, flutti séra Björn B. Jónsson, D.D., bæn, en því næst var sezt að snæðingi. Var þar fleira dýrind- isrétta á boðstólum, en nöfnum tjáir að nefna. Eftir að veizlugestir höfðu mat- ast, voru fluttar allmargar tölur, að sjálfsögðu flestar stuttar, en á milli voru sungnir íslenzkir söngvar, auk þess sem hljóðfæra- sveitin lék til skiftis. Þau afar ströngu skilyrði setti veizlustjóri, Mr. Jóhannsson, ræðu- mönnum, að á tvennu mættu þeir ekki með nokkru móti flaska, sem sé því, að minnast á heim- ferðarmálið, eða bera lof á veizlu- stjóra. Hvorttveggju skiljTðin voru vitanlega æði beizk aðgöngu. Þó var því fyrna skilyrðislaust hlýtt, en hvað hið síðara áhrærði, var nokkuð öðru máli að gegna. Enda var það hvað ofan í annað brotið. Eftirfylgjandi menn tóku til máls, og að því er vér bezt mun- um, í þessari röð: W. H. Paulson, B. L. Baldwin- son, G. B. Björnsson, séra Jóh. Bjarnason, H. A. Bergman, K. C., séra Rögnv. Pétursson, Dr. Jón Stefánsson, Einar IP. Jónsson, Dr. B. J. Brandson, Jónas Jónas- son o«r Árni Eggertsson. Má með sanni segja, að ræðurnar, hver einasta og ein, bæru vott um sanna virðingu og hlýhug í garð þeirra Jóhannsson’s hjóna. Þá ber þess og eigi hvað sízt að geta, að veizlugestum til yndis og ánægju, skemtu með söng, þau ungfrú Rósa Hermannsson, hr. Paul Bardal, og hr. Sigfús Hall- dórs frá Höfnum, er öll urðu að syngja aukanúmer. Þau hjón, hr. Ásmundur P. Jó- hannsson og frú hans, hafa í hyggju, að leggja af stað til Ev- rópu í náinni framtíð. Hefir frú in átt við heilsuleysi að stríða um allmörg undanfarin ár. Er til ferðarinnar stofnað í því sér- staka augnamiði, að leita frú Jó- hannsson heilsubótar, sem hinir mörgu vinir þeirra hjóna, óska og vona, að megi takast. Samsæti þetta hið eftirminni- Iega, stóð fram yfir miðnætti, og var í alla staði eitt hið ánægju- legasta og rausnarlegasta, er hugsast getur. Hér fylgja á eftir nöfn þeirra, er i samsætinu tóku þátt: Mr. og Mrs. P. Anderson, Mr. H. Árnason, Mr. B. L. Baldwinson, Mr og Mrs. H. S. Bardal, Mr. og Mrs. P. Bardal, Mr. og Mrs. A. S. Bardal, Mrs. P. S. Bardal, Dr. og Mrs. A. Blöndal, Dr. og Mrs. B. J. Brandson, Mr. H. A. Berg- man, K.C., Dr. og Mrs. O. Bjorn- son, Mr. og Mrs. J. Bergman, Mr. J. J. Bildfell, Mr. A. Eggertsson, Mr. B. Finnson, Mr. og Mrs. L. J, Hallgrimson, Mr. S. Halldórs frá Höfnum, Miss Rósa Hermannsson, Mr. og Mrs. J. Jóhannesson, Mr. og Mrs. G. Jóhannssqp og Harold Jóhannsson, Mr. og Mr,s. W. Jó- Nú rísa vonir garnlar upp úr gröfum og gullið eykst í tæmdum drauma-sjóði; nú verður lxugsun hver að ljúfu ljóði um lífsins fegurð, bæði á strönd og höfum. Sem mærin ung í b'rúðar björtum tröfum nú brosir jörð, og roðnar hlíðar-vangi við kossa geisla’, er fela hana í fangi; hver fagnar eigi vorsins náðargjöfum? Skóglundir verða ldjómrík harpa á ný; um hæðir glitra perlur tærra dagga. Glókollar blóma gægja.st upp úr mold. Draumskipum líkust sigla sólgjdt ský; á sænum bláum öldur létt sér vagga, Borin að nýju’ er bernska manns og fold. —Lesb. Mgbl. hannson, Guðrún og Adolph Jó-'eiga allir, sem vilja, kost á að hannsson, Mr. G. Jóhannsson, Mr. | kynnast störfum þingsins og hag K. W. Jóhannsson, Mr. og Mrs. A. kirkjufélagsins yfirleitt. Hins- C. Johnson, Mr. G. Johnson, Mr. vegar eru kirkjuþingin svo mikill og Mrs. P.Johnston, Mr. og Mrs. A. Johnson, Mr. og Mrs. F. John- viðburður í kirkjulífi og félagslífi Vestur-íslendinga, að eðlilegt er son, Mr. Jónas Jónasson, Mr. og og sjálfsagt, að minnast þeirra í Mrs. J. Jónasson, Mr. og Mrs. j Lögbergi, sem ávalt vill láta sér David Jónasson, Rev. og Mrs. Dr. j sérstaklega ant um að flytja frétt- B. B. Jónsson, Mr. E. P. Jónsson, j ir af íslendingum vestan hafs. Mr. og Mrs. S. W. Melsted, Mr. og i Það var Bræðrasöfnuður í Riv- Mrs. Rev. R. Marteinsson, Mr H. erton, sem í þetta sinn tók á móti Metusalemsson, Mr. og Mrs. K. • kirkjuþinginu. Nafnið bendir til, Olafsson, Mr. og Mrs. S. Pálma-Jað þeir sem hann stofnuðu, hafi son, Mr. og Mrs. J. J. Swanson,' hugsað sér og ætlast til, að í þeim Mr. og Mrs. Dr. J. Stefánsson, Mr.1 söfnuði ríkti jafnan eining og og Mrs. J. J. Thorvardson, Mrs. i þræðralag og hygg eg, að svo Helga Thorbergsson, Mr og Mrs. hafi löngum verið, en játa þó T, E. Thorsteinson, Mr. og Mrs.! jafnframt, að mér er saga safn- Dr. R. Pétursson, Mr. og Mrs. Rev. R. Kvaran, Mr. og Mrs. J. Krist- jánsson, Rev. J. A. Sigurðsson, Mr. og Mrs. G. Johnson, Mr. og aðarins lítt kunn. Það má eg þó fullyrða, að safnaðarfólkið var eins prýðilega og bezt gat verið, samtaka í því að taka vel á móti Mrs. P. S. Palson, Mr. og Mrs Dr. j kirkjuþingsmönnum og öðrum Baldur Olson, Mr. og Mrs. S. J. gestum, er að garði bar, með Jóhannesson^ Mr. og Mrs. O. S. Thorgeirson, Mr. og Mrs. Dr. M. Halldórsson, Mr. og Mrs. Walter Lindal, Mr. G. W. Magnusson, Miss Helga Stevens, Mr. og Mrs. B. Guðmundsson, Mr. og Mrs. H. Bjarnason, Mr. og Mrs. C. Thor- lakson, Mr. o.g Mrs. E. Feldsted, Mr. og Mrs. Fred. Stephenson, Mr. G. Hjaltalín, Mr. og Mrs. S. Jac- obson, Mr. S. Thorkelson, Mr. og Mrs. Rev. J. Bjarnason, Mr. C. Thorson, Mr. og Mrs. L. Kristjáns- son, Mr. og Mrs. S. K Hall, Mr. og Mrs. F. Fredhrickson, Mr. og Mrs. N. Ottenson, Mr. H. Gíslason, Dr. og Mrs. G. J. Spidal, Mr. og Mrs. I. Ingaldson, M.L.A., Mrs. R. Blöndal, Mrs. D. Elding, Mr G. tiiormon, Mr. H. Johnson, Mrs. S. Gunnlaugson, Mr. W. H. Paulson, Mr. ocr Mns. J. Olafsson, Mr. og Mrs. H. Thorolfsson. Kirkjuþingið i. Ársþing kirkjufélagsins lút- erska er ný-afstaðið. Það var haldið í Riverton, Man, og hófst á miðvikudaginn, hinn 5. þ m. Vanalega er kirkjuþingið ekki haldið fyr en seinni hluta júní- mánaðar, en svo stóð á í þetta sínn, að forseti kirkjufélag^ins, séra K. K. Olafson, ætlaði að fara tjl Evrópu og þurfti að leggja aí stað hinn 9. júní. Sækir hann fyrst og fremst alheims þing lút- erskra manna, sem haldið verður í þessum mánuði í Kaupmanna- Aöfn, og mætir hann þar sem full- trúi kirkjufélagsins. Hafði séra N. S. Thorlaksson áður verið val- inn til þeirrar ferðar, en gat ekki komið því við, að fara þessa ferð. Ætla þau, séra Kristinn og frú hinni mestu rausn og alúð og góð- vild, sem íslenzk gestrisni á til í eigu sinni. Nafn safnaðarins, Bræðrasöfn- uður, minnir mig á nokkuð, sem kirkjuþigsmönnum mun auðvelt að muna og öðrum ljúft að heyra, og það er, að bræðralag innan kirkju- félagsins hefir mér aldrei fundist öruggara og tryggara, heldur en einmitt á þessu þingi. Ekki segi eg þetta þó vegna þess, að eg vilji gefa í skyn, að bræðralag hafi ekki ríkt á undanförnum þingum. Eg held ekki, að nokkur slík ummæli væru réttmæt. En það er gleði- efni, að sjá bræðralagið eflast innan kirkjufél.; og eg er sann- færður um, að þar er betur og bet- ur að læra, að beita sameinuðum kröftum að sameiginlegum áhuga- málum og velferðarmálum. Eg hefi, því miður, ekki tíma til að segja lesendum Lögbergs meira frá kirkjuþinginu í þetta sinn, en í næsta blaði verður því haldið áfram. F. J. íslendingadagnrinn 1929 verður haldinn hátíðlegur þann 2. ágúst í sumar, í River Park, erns og að undanförnu. Nefnd sú, er kosin var á al- mennnum fundi, sam haldinn var í Goodtemplarahúsinu hér í borg- inni, til þess að vinna að undir- búningi dagsins, tók strax til starfa, og hefir unnið uppihalds- laust síðan. Þó hún sé nú þegar búin að búa vel 1 haginn, þá er hún enn þá að verki, svo að alt. er að skemtunum lýtur þann dag, verði sem bezt og ful'lkomnast. Nýbrigði verður það fyrir gesti, er sækja daginn, að sjá þar Leif hepna í fuMum skrúða, og ihinn fyrsta þingforseta íslands, ef hans, að ferðast til ýmsra staða i hann getur komið því við að vera í Evrópu í sumar og þar á meðal I hér staddur; annars hefir Egill til íslands, og hefir þess áður ver- ið getið hér í blaðinu. Hefir séra Kristinn nú verið þjónandi prest- gamli Skallagrímsson góðfúslega lofað nefndinni að verða hér 2. ágúst og tala nokkur orð til fólks- ur í 25 ár og mintist þingið þess, j ins. Það þarf naumast að taka um leið og það árnaði honum, ogjþað fram, að Fjallkonan verður frú hans, fararheilla. ! hér eins og að undanförnu. Hún Eins og að undanförnu, verður|mun nú þegar hafa lagt af stað gjörðabók þingsins gefin út og;frá Islandi áleiðis. hingað til okk- verður þar nákvæmlega skýrt frá' ar, til þess að vera viss .um, að störfum þingsins og úrslitum allra' verða hér í tæka tíð. mála, sem þar komu fyrir. Þar Meira síðar .

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.