Lögberg - 13.06.1929, Page 5

Lögberg - 13.06.1929, Page 5
LÖGBERG FÍMTUDAGINN 13. JÚNÍ 1929. Bl». b. 1 melr en priöjung aldar hafö Dodd’s Kidney Pills verið viður- kendar rétta meðalið við bak- verk, gigt, þvagteppu og mörguns fleiri sjúkdómum. Fást hjá öll- um lyfsölum, fyrir 50c. askjan eða 6 öskjur fyrir $2.50, eða beint frá The Dodds Medicine Co., Ltd Toronto, ef borgun fylgir. Frá Islandi Reykjavík, 8. maí. Þann 12. apríl andaðist Sig- ríður ólafsdóittir í Vatnsdal við Patrksfjörð. Hún var fædd á Sviðnum á Breiðafirði og ólst þar upp, unz hún fluttist vestur og giftist Einari J. Thoroddsen. og bjuggu þau i Vatnsdal myndarbúi. Eftir lát manns síns dvaldi hún hj'á ólafi syni sínum, sem tók við búinu. Hún var þrekmikil dugn- aðarkona. Heilsugóð alla æfi og fótavist hafði hún síðasta daginn, sem, hún lifði. Sigríðar sál. mun lengi minst sem merkrar sæmdar- konu af öllum þeim er kyntust henni. — Hinn 30. f. m. andaðist að 'heim- ili sínu„ Hellisfjörubökkum við l Krossavík í Vopnafirði, merkis- konan Ólöf Guðmundsdóttir. Hún var fædd í Arnkelsgerði á Völlum, 25. febrúar 1864 og voru foreldr- ar hennar Guðmundur Jónssonj bóndi þar og Jóhanna Sigurðar- dóttir. — Árið 1896 giftist hún eftirlifandi manni sínum, Magn- úsi Jóhannessyn frá Gunnhildar- gerði í Hróarstungu. Voru þau fyrstu hjúskaparár sín í Fljóts- dal og fluttu þaðan í Vopnafjörð, fyrst að Krossavík og þaðan að Hellisfjörubökkum, og hafa búið Þar 25 ár, við farsælan og góðan hag. — Mgbl. Fjörutíu ær hafa farist úr lungnadrepi að undanförnu á Síðumúla. Kring um tíu hafa farið úr þessari veiki á Gilsbakka og nokkrar í Deildartungu. — Hannes dýralæknir Jónsson fór með Suðurlandi í gær, til þess að Pannsaka veikina. >— Mgbl. Úr Borgarfirði, 8. maí. í fyrravetur komst allmikill skriður á alþýðuskólamál Borg- firðinga og Mýramanna. Ung- Oiennasambandið hafði forystuna °g safnaði talsverðu fé til endur- reisnar alþýðuskóla héraðsins. vegna ónógs undirbúnings Vildu sýslufélögin ekki þá taka endan- ^ga ákvörðun um þátttöku sína. 6 mælti sýslufundur Borgar- fjarðarsýslu eindregið með því, sð skólinn yrði endurreistur í Eeykholti, ef til flutnings kæmi rá Hvítárbakka. Kusu sýslurnar °g ungmennasamandið 5 manna ‘údirbúningsnefnd. Sú nefnd hef- lr fyrir nokkru lagt álit sitt og tillögur fyrir héraðsþing ung- ^ennasambandsins og sýslufund ý^sýslu. Leggur nefndin til, nýr alþýðuskóli verði reistur 1 Reykholti, en starfsemi á Hvít- árbakka lögð niður. Samþykti ungme*nnasambandið að leggja ftýja skólanum 20 þús. kr. Á það "ú j sjóði og ákveðnum loforðum aHniikið af þeirri upphæð. Af- gangurinn greiðist á umsömdu ára I- Sýslufundur Mýrasýslu sam- bykti nýlega að leggja til Reyk- °Itsskóla alt að 30 þús. kr., gegn Jafnháu framiagi frá Borgarfjarð- arsýslu. Má víst telja, að hann samþykkj tillögur Mýrasýslu. Þá °nia 80 þús. kr. úr héraðinu og oggur ríkið jafnt á móti samkv ógum. Er búist við, að byrjað Verði á verkinu bráðlega..—Vísir. Reykjavík, 9. maí. Ejárskaðar minni en menn bjuggust við. ^íða um land munu hafa orðið! m€iri eða minni fjárskaðar í of- Vjðrinu mikla um helgina. Vita ^enn þó ekki glögt um það enn, Ve mikil brögð ihafa orðið að ®ssu því að fé var víðast komið á afrétt. t Rorgarfirði hefir frézt um J*1 sverða fjárskaða í framsveit- ^oum. Mgbl. átti tal við sýslu- anninn í Borgarnesi í gær, og var hann þá nýlega kominn úr ferðalagi ofan úr Norðurárdal. — Kvaðst hann ekki hafa spurt til fjárskaða neinsstaðar, en á ýmsum bæjum væri enn margar kindur ófundnar, og væri von um að þær mundu koma í léitirnar. Um fjárskaða í neðanverðum Borgar- fjarðarhéraði og á Mýrum, væri ekki að tala, því að þar 'hefði alt af verið auð jörð, og veðrið varla það hart, að það hefði hrakið fé í vötn eða ár. Mgbl. átti tal við Jón Finnsson á Hólmavík í gær. Sagði hann, að engir fjárskaðar mundu hafa orð- ið í Strandasýslu. Var veðrið þar ekki nándarnærri eins hart og víða annars staðar, snjóburður sama sem enginn, gránaði aðeins í rót og veðurhæð miklu minni heldur en þegar sunnar dró. Til dæmis um mismuninn á veðrinu þar og hér syðra sagði hann það, að á einum bæ í Strandasýslu hefðu legið úti 40 lambær í veðr- inu og ekkert lambið saka,. í Holtum í Rangárvallaýslu og eins í Flóa eru menn enn að leita að fé sínu og draga það úr fönn, að því er Mgbl. var sagt frá Þjórs- ártúni í gær. Á sumum bæjum vantar enn alt að þriðjung fjár- ins. Á tveim bæjum á Skefðum, Útverkum og Blesastöðum, dráp- ust hross, hrakti út i skurði. — Maður ferst í snjóflóði í Fnjóskadal. Á laugardagsmorguninn var fór bóndinn á Belgsá í Fnjóskadal, Karl Kristjánsson, að smala fé sínu. Norðanhríðin þá skollin yf- ir með mikilli fannkomu. Kom hann heim aftur um nónbilið. Vantaði hann þá talsvert af fénu. Fór hann því brátt aftur að leita. Bærinn Belgsá stendur að aust- an verðu i dalnum. Er fjallshlíðin þar snarbrött með köflum. Þegar þannig viðrar, eru snjóflóð þar nokkuð tíð. Er mælt, að fyrir ein- um 100 árum hafi bóndinn á Belgsá farist í snjóflóði. Er Karl fór út í bríðina að af- liðnu nóni á laugardaginn, hafði fóstri hans, aldraður maður, Ind- riði að nafni, orð á því við hann, að hann skyldi vara sig á snjó- flóða hættunni. Segir nú ekki af freðum Karls. Undir kvöldið fer heimilisfólki að lengja eftir 'honum. Veður fór heldur versnandi. Er komið var langt fram á kveld, réð húsfreyja það við sig, að leggja út í hríðina til þess að leita að manni sínum. í fylgd með henni var piltur um fermingu, sem var gestkomandi á bænum þann dag. Ákváðu að reyna að komast á beitarhús jarðarinnar, því þau vonuðust eft- 1 ir, að bóndinn ihefði komist þang-1 að. Beitarhúsin eru á eyðijörð fram í dalnum og er löng bæjar- leið á milli. Húsfreyjan er Jónasína Sigurð- ardóttir frá Veturliðastöðum. — Tókst henni og piltinum; að ná beitarhúsunum; þar grípa þau í tómt. Halda þaðan heimleiðis á móti hríðinni. Var það þrekraun, að komast þá ,leið í blindbyl. Er fram á nóttina kemur, legg- ur Jónasína enn á stað og fer nú út að Hóroddsstöðum. Vekur hún þar upp og biður liðsinnis. Er hafin leit strax á sunnudags- morguninn, og hefir henni verið haldið sleitulaust áfram síðan. Er stórhríðinni létti af, urðu menn varir við snjóflóð mikið, er fallið /hafði skamt frá Belgsá. — Fanst stafur Karls þar á sunnu- daf. Alt að tuttugu menn hafa starfað að því a|5 grafa 1 snjó- hrönnunum. Húfa Karls fanst á mánudag. En annan árangur hefir leitin ekki borið, er síðast fréttist. Karl var maður á fertugsaldri, giftur fyrir rúmlega ári. — Áttu þau hjón einn son.—Mgbl, Reykjavík, 11. maí. Af Langanesströnd er skrifað 17. apríl.: Útlit er fyrir, að útgerðinni hér um slóðir verði mikill hnekkir á komandi sumri, hversu lítil ís- taka hefir verið hér í vetur. Flest- öll íshús standa tóm, að eins í einstöku hús hefir verið flutt á hestum langar leiðir. Við Langanesið hefir verið tals- verður fskur að undanförnu, en er nú að mestu tekinn undan á Nýlega er látin hér í svet ekkj- arnir, er sífelt sjást úr landi, benda á, að enn sé þar fiskur, er dýpra kemur. — Einn blátur á Læknesstöðum er búinn að fá 25 til 30 skippund í vetur. — Mgbl. Reykjavík, 14. maí. iSéra Einar Friðgeirsson á Borg léz í fyrramorgun. Hans verður nánar minst hér í blaðinu innan skamms. — Mgbl. Reykjavík, 15. maí. Anna Karenin, hin fræga skáld- saga Leo Tolstojs, hefir verið tek- in á kvikmynd. Greta Garbo og John Gilbert leika aðalhlutverkin af snild mikilli. Eftir því, sem síðustu fregnir herma, eru nú loks komin hlýindi í. Danmörku, var 18 stiga hiti á sunnudaginn var. í gær kom Þór til Vestmanna- eyja með þýzkan togara, “August Bröhan” frá Altona, er hann hafði tekið í landhelgi. Skipstjóri hef- ir játað brotið og verður málið dæmt í dag. Nýlega fór Óðinn frá Vest- mannaeyjum með vermenn til Austurlands; á leiðinni tók hann þýzkan togara með ólöglegan um- búnað veiðarfæra, og fór með skipið til Eskifjarðar. Togarinn heitir “Hamburg” og er á honum sami skipstjðrinn, er nýverið var s ktaður í Vestmannaeyjum fyrir landhelgisbrot. Danska stjórnin sendir iherslcip- ið Niel Juel til Barcelona með ýmsa heldri menn, sem eiga að koma þar fram á sýningarhátíð- um fyrir hönd Dana. Þrjár flug- vélar lögðu á stað frá Höfn á laugardaginn var á leið til Barce- lona í tilefni af heimssýning- unni. Þær voru ekki komnar lengra en til Hollands er síðast fréttista. Sveinn Árnason, yfirfiskimats- maður frá Seyðisfirði er nýkom- nn hngað úr för til Spánar. Fór hann þangað, til þess að kynna sér ýmislegt, sem að gagni gæti komið fyrir fiskimatið. Sitja nú fiskimatsmenn hér á ráðstefnu þessa daga. Þjóðvinafélags bækurnar voru borna rum bæinn í gær, Andvari, Almanak og 1. bindi af æfisögu Jóns Sigurðssonar, eftir Pál E. Ólason; 480 bls. í Andvarabroti. Það vakti nokkurt umtal í fyrra, að íslenzki fáninn var ekki með fánum hinna iNorðurlandaþjóð- anna við hátíðahöld á samkomu- •taðnum Skamlingsbanken á Jót- landi. — Samkvæmt frétt hefir sendiherra vor i Höfn nú gefið fána ti'l afnota þarna, svo og ís- ! lenzka reyniviðarhríslu, sem á að gróðursetja við fánastöngina. —Morgbl. Af Langanesi, 17. apríl Nýlega er látin hér í tveit ekkj- an Sigríður Eiríksdóttir frá Saur- bæ, eftir langa og erfiða legu. Sigríður sál. var 84 ára að aldri, merk kona og vel látin af öllum, er hana þektu. Heilsufar manna er hér yfir- leitt gott. Engar farsóttir. Eitt lungnabólgu tilfelli. í Þórshöfn hafa verið leikin þrjú leikrt í vetur og á að verja ágóðanum til þess að koma upp samkomu- og barnaskólahúsi á Þórshöfn. Hér er sama einmuna tíðin og verið hefir í allan vetur, svo góð, að elztu menn muna engan annan eins vetur og þenna, að stöðugum veðurblíðum. Á annan í páskum snjóaði dálítið, en þann snjó tók að mestu leyti upp faginn eftir. Annar snjór hefir ekki komið hér síðan nokkru eftir hátíðar.— Jörð er nú farin að gróa að miklum mun og einstöku sóleyjar farnar að springa út í túnum. Þ. 11. þ. m. var hér 15 stiga hiti í forsælu. Menn eru farnir að þekja flög þau, er þeir ristu ofan af í yetur. Nokkrir bændur eru farnir að taka upp mó. Farið er að láta út kýr á stöku stað. Hrognkelsaveiði hefir verið fremur lítil, en er nú heldur að aukast. — Vísir. SIGFÚS PÉTURSSON fæddur 7. marz 1840 dáinn 26. apríl 1929 Sigfús í Skógargerði, eins og hann var venjulega nefndur af fornum samferðamönnum, var fæddur í Meðalnesi í Fellum í Norður-Múlasýslu, 7. marz 1840. Foreldrar hans voru Pétur bóndi Einarsson í Blöndugerði, sonur Einars bónda og hreppstjóra á Setbergi í Fellum, og móðir hans Guðrún Jónsdóttir, bónda á Galta- stöðum. Sigfús gilftist 1865, Guðrúnu Þóru Sveinsdóttur frá Gvendar- stöðum í Vopnafirði.. Þau fluttust vestur um haf árið 1878, og sett- ust að fyrstu árin á Víkingsstöð- um og síðar á Þykkvabæ við ís- lendingafljót. Árið 1881 námu þau land austanvert við íslend- ingafljót og nefndu Skógargerði. Bjó Sigfús þat, unz hann misti konu sína 1901. Árið 1903 flutt- ist hann vestur í Árdalsbygð, en tveim árum síðar til Víðirbygðar til Franklins sonar síns og Aldís- ar konu hans. Var hann hjá þeim til dauðadags, og naut ágætrar umönnunar tengdadóttur sinnar, sem annaðist um hann sem væri hún dóttir hans. Hjónin í Skogargerði eignuðust 13 börn. Dóu fimm þeirra í æsku og árið 1916 dó fullorðin dóttir þeirra, Guðrún Salín, gi'ft hér- lendum manni, Andrew Cox að nafni. Börn Sigfúsar heitins, sem á lífi eru, skulu hér talin: Sigurborg, gift Kristjáni Reyk- dal, búa iþau í grend við Baldur, Man* Jóhanna, búsett í Reykjavik, ekkja eftir Stefán B. Jónsson. Hildur, gilft Sigurði Finnssyni, búa þau í Víðir-bygð. Halldóra hjúkrunarkona. Sigfús Franklin, kvæntur Al- dísi Magnúsdóttur, búa í Víðir- bygð. Bergrós, gift Ásbirni Pálssyni, búa þau í Elfros, Sask. Sigríður, gift Dr. Jóhannesi Pálssyni, Elfros, Sask. Fóstursonur Slg'fúsar heitins, er Snorri Sigvaldasan, ólst hann upp hjá þeim Siglfúsi og Guðrúnu Þóru konu ihans, frá því að hann var þriggja vikna gamall og ber nafn fóstra síns. Barnabörn Sigfúsar heitins, sem á lífi eru, eru 35 að tölu, en barna-barna-börn 5. Á árunum 1880—1900 þekti eg vel þau hjónin, Sgfús Pétursson og konu hans Guðrúnu Þóru Sveinsdóttur, þá búandi á Skógar- gerði við íslendingafljót; var sú þekking í tfylsta máta góð. Voru þau hvarvetna boðin og búin að veita nágrönnum sínum hjálp og aðstoð, en efnalega höfðu þau af fremur litlu að má, framan af bú- 'skaparárunum, en fyrir dugnað bóndans og tfyrirhyggju konunn- ar, urðu þau brátt svo efnum bú- in, að þau voru fremur veitandi en þurfandi, og þá gætti bezt hve þau voru hjálpfús, enda munu þau hafa verið virt af öllum, sem þektu þau. Bæði voru þau hjón- in vel greind og bókhneigð, en það var nú annað hentara, ef vel átti að tfa.ra efnalega, á frumbýlings- árunum í Nýja íslandi, en að sitja við lestur, nema helgidaga-lestr- ana, enda var það ekki látið far- ast fyrir af Skógargerðis-hjónun- um, því að þau voru á sviði krist- indómsins jafn-samhuga og á öðrum sviðum, sem til góðs lutu. Þau hjón lögðu kapp á að útvega börnum sínum þá mentun, sem kostur var á, á þeim tíma, sem börnin voru að vaxa upp; urðu tvær dætur þeirra alþýðuskóla- kennarar, þær Guðrún Salín og Hildur; var hin fyrnefnda fyrsti alþýðuskólakennari í skóla þeim, sem nú er kendur við Riverton, þá neifndur Lundi skóli. Er þvi margt af fullorðnu fólki, sem á henni sem kennara margt gott upp að unna, ásamt aðstandend- um þess, heiðrar það fólk alt, er naut tilsagnar hennar, minningar þær, sem við hinn fyrsta kennara bygðarinnar eru tengdar. Börn þeirra Skógargerðis-hjóna munu öll vera vel gefin og líkjast for- eldrum sínum i mörgu, og sann- ast á þeim gamla, réttkveðna orðtækið, að ekki tfalli eplið langt frá eikinni. ' Blessuð sé minning þeirra hjóna, Sigfúsar og Þóru, ásamt hinnar látnu dóttur þeirra, Sal- inu. Sigfús heitinn var lagður til hinztu hvíldar mánudaginn þann 29. apríl. Var fyrst kveðjuathöfn á heimili sonar hans, og fjölmenti fólk þar. Síðan var líkið flutt til Riverton og fór þar fram kveðju- athöfn. Voru fornir samferða- menn og vinir margmennir að kveðja látinn vin. Fór kveðju afhöfnin fram frá lútersku kirkj- unni. Var Sigfús lagður til hvíld- ar í grafreit Riverton-bæjar, og moldum ausinn af séra Sigurði Ólafssyni. Gamall samferðamaður. Góðar sögur Um það efni skrifar G. H. í Lög- réttu nýlega eftirfylgjandi grein- arkorn: Á Hafnarárum okkar Þorsteins Gíslasonar ritstjóra, ræddum við| oftar en eitt sinn um það, hversu auðga mætti bókmentir vorar á einfaldan og ódýran hátt með því| að gera ’blöðum þeim, sem sögur fljúja, að skyldu að birta aðeins góð skáldrit og vandlega þýdd.j Blöðin hafa aukist síðan og feikn- in öll flytja þau af allskonar rusli, flestöll. Hins vegar hefir Þorst. Gíslason komið þessari hugsjón i framkvæmd fyrir sitt leyti, og sögur þær, sem hann hefir birt í Lögréttu, skera sig úr. Um “Vesalingana” munu allir sam- mála, að þeir eru bæði mikið rit og merkilegt, og verðið er engu hærra en oftast gerist hjá stór- þjóðunum. Um “Glæp og refsing” kann eg þessa sögu: Einu sinni mintist eg á hana við Ólaf heitinn Da- víðsson þjóðsagnafræðíng. Sagð- OEALED TENDERS addressed to the ^ undersigned and endorsed “Tenders for Hospital, Deer Lodge, Winnipeg, Man.,” will be received until 12 o’clock noon (daylight saving), Friday, June 21, 1929, for the construction of an exten- sion to Deer Lodge Hospital, Winnipeg, Man, Plans and specification can be seen and forms of tender obtained at the of- fices of the Chief Architect, Depart- ment of Public Works, Ottawa, and the Resident Architect, Customs Building, Winnipeg, Man. Blue prints can b.e obtained at the office of the Chief Architect, Depart- ment of Public Works, by depositing an accepted bank cheque for the sum of $25.00 payable to the order of the Min- ister of Public Works, which will be returned if the intendir.g bidder submit a regular bid. Tenders wil not be considered unless made on the forms supplied by the De- partment and in accordance with the conditions set forth therein. Each tender must be accompanied by an accepted cheque on a chartered bank payable to the order of the Min- ister of Public Works, equal to 10 p.c. of the amount of the tender. Bonds of the Dominion of Canada or bonds of the Canadian National Railway Com- pany will also be accepted as security, or bonds and a cheque if required to make up an odd amount. By order, S. E. O’BRIEN, Secretary. Department of Public Works, Ottawa, May 30, 1929. MACDONALD'S Fitte öú Bezta tóbak í heimi fyrir þá, sem búa til sína eigin vindlinga. Gefinn með ZIG-2AC pakki af vindlingapappír. HALDIÐ SAMAN MYNDASEÐLUNUM 13« þau,! 10*53 Jasper At*. kbmonton 1*0 Plnder Blook SASKATOON 401 LanrMter Hldff., CALUARY 270 Maln St. WINNIPEG, Mao. Cor. Bny & Welllnfltoa I TORONTO, Ont. 230 Honpltal St. MONTRKAL, Qtu. Cunard línan veitir ágætar sam- göngur milli Canada og Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur, bæði til og frá Montreal og Quebec. Eitt, sem mælir með því að ferð- ast með þessari línu, er það, hve þægilegt er að koma við í Lon- don, stærstu borg heimsins. Cunard línan hefir sérstaka inn- flutningaskrifstofu í Winnipeg, fyrir Norðurlönd. Skrifstofu- stjórinn er Mr. Carl Jacobsen, sem útvegar bændum íslenakt vinnufólk vinnumenn og vinna- konur, eða heilar fjölskyldur. — Það fer vel um frændur yðar og vini, ef þeir koma til Canada með Cunard llnunni. Skrifið á yðar eigin máli, eftir upplýsingum og sendið bréfin á þann stað, sem gefinn er hér að neðan. öllum fyrirspurnum svarað fljótt og yður að kostnaðarlausu. Ctt»l rd NE ist hann aldrei hafa lesið hana og kvaðst vera hættur að lesa skáld- sögur, því flestar væru ómerkilegt rugl, sem ekki j/æri vert að eyða tíma slnum til að lesa. Eg sagði honum, að margt væri gott í bók- inni og fór svo, að eg lánaði hon- um hana. Þegar eg hitti Ólaf næst, þakkaði hann mér fyrir bókarlánið, og sagðist aldrei hafa lesig betri ók. “Eg las hana tvisv- lesið betri bók. “Eg las hana tvisv- ar sinnum spjaldanna á milli,” minni ánægju af því að lesa hana í annað sinn.” Síðar fékk eg að vita, að ólafur hefði ekki látið við þetta sitja, heldur las hann síðan alla söguna fyrir húsmóður sína, frú Steinunni á Möðruvöll- um. Hafði hann þá lesið hana þrisvar. Má af þessu nokkuð marka, að bók þessi er ekkert meðalfé. DÁNARFREGN. Þann 16. þ. m. andaðist úr lungnabólgu, að Iheimili sínu i Hliðarhúsum á Mikley (Hecla P. 0.)i, Jóhannes Kalldórsson, 59 ára. Hinn látni lætur eftir sig konu og þrjá nær uppkomna syni. Jóhannesar sál. mun nánar getið síðar. ii MARTIN & CO. ——n V0R-ÚTSALA Mjög hœgir borgunarskilmálar Og verð mikið niðursett NIDUR 20 vikur til að borga afgang- inn, jafnframt og þér notið föt- in. Þér getið fengið hvaða Yfirhöfn, Alfatnað eða Kjól í búð vorri með þessum kjörum, méðan salan stendur yfir. Mikil þægindi og hagnaður fyrir yður YFIRHAFNIR ALLAR NÝJUSTU TEGUNDIR, GERÐIR og LITIR ’19.75 ’24.75 Vanaverð 29.50 Vanaverð $35.00 “■■ ‘29.50 “■■ ‘35.00 Vanaveíð $39.50 Vanaverð $55.00 MUNIÐ — AÐEINIS S5 NIÐUR kjólar >4.95 tíl ‘19.75 ALFATNADIR ‘15.75 Til að selja þá alla Slickers $J2 .75 Og ’15,s BORGUNARSKILMÁLAR V0R1R ERU HAGKVŒMIR Búðin opin á laugardagskveldum til kl. 10 MARTIN & CO. -A-▼ -R- Easy Payment Plan r 2nd Floor Winnipeg Piano Building PORTAGE AND HARGRAVE

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.