Lögberg - 27.06.1929, Blaðsíða 8
Bis. 8.
LÖGBERG FIMTUDAGINN 27. JÚNÍ 1929.
Brauð gert úr Robin
Hood mjöli heldur sér
milli þess sem bakað er
RobinHood
FI/OUR
ABYGGILEG PENINGA TRYGG
ING í HVERJUM POKA.
DOUBLE f
PROGRAM.'
WINNIPEG’S
COZIEST
FAMIIiY
THEATRE!
Doors Open
Daily 6.30 to
Sats. 1 to II.
This Week:
THURSDAY, FRIDAY & SATURDAY,
Ilin Tln Tin in
“THE MILLION DOLLAR COLLAR’’
And
“OPENING NIGHT.”
Next Week: ‘DON’T J&CISS ITI
MONDAY, TUESDAY & WEDNESDAY,
Ken Maynard in
“LAWLESS LEGION”
and Kalph Forbes In
“RESTLESS YOUTH.”
Úr bœnum
+-------------- - . . - ■■.
Mr. Jón Jónsson frá Mýri var
staddur í brginni í síðustu viku.
Mr. ólafur Thorlacius frá Dolly
Bay, Man., hefir verið staddur í
borginni að undanförnu.
Mr. Guðmundur Jónsson frá
Vogar, Man., hefir verið staddur
í borginni um tíma. *
Mr. G. J. Jónasson, frá Moun-
tain, N. Dak., kom til borgarinnar
í síðustu viku. Hann kom með
systur sína, Mrs. Ásgrímsson, til
lækninga.
Mr. Lárus Gíslason kom frá
Chicagö í vikunni sem leið. Hann
var á leið til Hayland, þar sem
foreldrar 'hans búa, og ætlar að
dvelja hjá þeim um tíma og fara
svo suður aftur.
Séra Sigurður Ólafsson, sem nú
er nýfluttur til Árbrog, Man., var
staddur í borginni á sunnudaginn.
Á mánudaginn lagði hann á stað
til Ontario og ætlar að dvelja þar
eystra um tíma, sér til hvíldar og
skemtunar.
Messur 30. júní—Elfros kl. 11
f. h., á íslenzku; Hola kl. 3, á ís-
lenzku; Elfros kl. 7.30, á ensku.
AHir boðnir og velkomnir. Vin-
samlegast. c. J. 0.
Sunnudagsskóla picnic Fyrsta
lúterska safnaðar, sem haldið var
í City Park á laugardaginn, hepn-
aðist ágætlega. Var þar mikill
mannifjöldi saman kominn og voru
ágætar veitingar fram bornar
fyrir alla, yngri og eldri, og allir
skemtu sér ágætlega. Veðrið var
ljómandi gott.
þakkarorð.
Hjartans þakklæti okkar eiga
þessar línur að færa safnaðar-
fólki því, sem við höfum þjónað,
og öðru samferðafólki og kunn-
mgjum, er hafa á margan hátt
gdatt okkur fyr og síðar, og nú við
burtförina, útleyst okkur með
vinahóti og gjöfum.
Ingibjó'rg J. Olafsson.
Sig. Olafsson.
Til “Utangarðs Jóns.
Neyðin “skeyni”* notar sér,
—“nætur-gagna” vörður!
Ef þú “leggur oft frá þér”
angar Kringlusvörður.
Hreykinn ertu að leggja lið
lægstu rudda kenning.
Utangarða ertu við
alla betri menning.
Vestur-“heimskri” menning má
meiri hlutinn þjóna,
ef hún treystir óhrædd á
Ármanna og Jóna.
S.
* Ármann Björnsson notaði þetta
orð í hinni einstöku grein sinni,
þess vegna er það sett hér á
kostnað þeirra félaga Ármanns og
‘utangarðs Jóns” Sannast hér
sem oftar, að “óvandaðri er eftir-
leikurinn. — (Ritstjóri Lögbergs
og lesendur vinsaml. beðnir að at-
huga ástæður og afsaka endur-
tekninguna.þ —.Höf.
Næstliðinn sunnudag (23. júní)
voru þau Haraldur Baldvin Narfa-
son og Halldóra Þórunn Helga-
son, bæði frá Foam Lake, Sask.,
gefin saman í hjónaband af séra
Carli J. Olson á heimili hans að
Wynyard, Sask. Lögðu ungu
hjónin af stað samdægurs áleiðis
til Yellow Stone National Park
í Wyoming á bifreið og þar dvelja
þau um hríð, og koma svo aftur
til Foam Lake, þar sem heimili
þeirra verður. Mr. og Mrs. Narfa-
son eru hin myndarlegustu og
beztu manneskjur, svo sem þau
eiga bæði ætt til.
Þriðjudaginn 18. .m. voru þau
Clarence Lloyd Haney frá Winni-
peg og Guðlaug Wilhelmina
Bjarnason frá Langruth, gefin
saman í hjónaband af séra Rún-
ólfi Marteinssyni. Hjónavígslan
var framkvæmd á heimili Mr. og
Mrs. B. Hjörleifssn, 25 Fredrick
Ave., St. Vital. Mrs. Hjörleifs-
son er systir brúðarinnar. Nán-
ustu ættingjar og vinir brúðhjón-
anna voru viðstaddir og nutu
veizlufagna'ðar. Heimili þeirra
verður í St. Vital.
Ungur, íslenzkur piltur frá
Minneapolis, “Babe” Oddson, son-
ur Sveins Oddsonar prentara og
konu hans, hefir fyrir skömmu
unnið verðlaun í hjólskauta sam-
kepni í New Yorjt, og hefir nú
farið til Cleveland, til að taka þar
þátt í samskonar samkepni. 1
samkepni þessari tóku þátt mikill
fjöldi æfðra skautamanna víðsveg-
ar að úr Banadríkjunum og Ev-
rópu, og er því ekki um að villast,
að þessi ungi maður, sem er að-
eins 17 ára gamall, skarar fram
úr öðrum í sinni íþrótt. Þessi ungi
skautamaður hefir iðkað íþrótt
sína í Minneapolis og tekið þar
töluverðan þátt í “'hockey” leik.
Laugardaginn 22. júní hélt söfn-
uðurinn og kvenfélagið að Moun-
tain, fjölment kveðjusamsæti í
hinum fagra skemtigarð' á Moun-
tain, til heiðurs séra Steingrími
Throlaksson og frú hans, sem eru
að leggja af stað þaðan í ferð til
Japan. Fór samsætið prýðilega
fram, undir stjórn Joseph Myers,
Mountain. Voru allmargar ræð-
ur fluttar og sálmar og aðrir
söngvar sungnir, og svo fram-
bornar frábærlega myndarlegar
og góðar veitingar af kvenfélag-
inu að Mountain. Hjá forseta og
ræðufólki öllu, kom fram mikill
kærleikur til heiðursgestanna og
virðing fyrir þeirra mikla og vel-
unna starfi. Mátti réttilega kalla
þetta kærleikssamkomu, eins og
gjört var af sumum ræðumanna.
Mátti segja, að ekki bara ræðurn-
ar, heldur líka alt samkvæmið,
bæri vott um mikla virðingu og
mikinn kærleika allra til heiðurs-
gesta. Vinargjöf í peningum var
heiðursgestum afhent af forseta,
fyrir hönd allra. Auk Mountain-
fólksins tóku nokkrir kunningjar
frá Gardar þátt í þessu samsæti.
Séra Steingrímur þakkaði fyrir
hðnd þeirra hjóna beggja fyrir
hinn mikla kærleika, er þeim hefði
verið sýndur, með skörulegri og
fagurri ræðu.
—Viðstaddur.
Sunnudagsskóli verður ekki
haldinn í Fyrstu lútersku kirkju í
Winnipeg fyr en 8. september,
næsta sunnudag eftir Labor Day.
Hefir sunnudagsskólinn tveggja
mánaða frí, eins og almennu skól-
arnir.
Gefin voru saman í hjónaband í
kirkjunni í Árborg , þ. 22. þ.m.’,
þau Mr. Gordon Dean Carscadden,
héðan úr bænum, og Miss Guð-
finna Thorbjörg Krisjánsson, dótt-
ir Þorsteins bónda Kristjánsson-
ar í Víðir, og fyrri konu hans,
Guðfinnu Finnbogadóttur frá Úti-
bleiksstöðum í Húnavatnssýslu, en
fósturdóttir þeirra Mr. og Mrs.
M. M. Jónassonar í Árborg og
systurdóttir Mrs. Jónasson. Séra
Jóhann Bjarnason gifti. Heima-
prestur, séra Sigurður Ólafsson,
fjarverandi um það leyti. Á eft-
ir hjónavígslunni fór fram veg-
legt og margment samsæti í fund-
arsal Templara í Árborg. Stýrði
því séra Jóhann Bjarnason, en ræð-
ur fluttu þar: Ingimar Ingald-
son, þingmaður; C. Bradley, Mrs.
McGregor, Sveinn oddviti Thof-
valdsson, Marteinn M. Jónasson,
og brúðguminn sjálfur. Á milli
ræðanna skemti söngflokkur Ár-
borgar með ágætum söng. Ein-
söngva sungu þær Mrs. D. H.
Gourd og- Miss Rósa Magnússon.
Alt fór samsætið fram hið bezta.
— Heimili ungu hjónanna verður
hér í bænum.
TJALDBÚÐARSAMKOMA.
Hin árlega tjaldbúarsamkoma sjö-
unda dags Adventista verður haldin í
West Kildonan frá 28. júní til 7. júlí.
Maður tekur stnetisvagninn “North
Main” nr. 26 og stígur af á Perth
Ave., og sér maður þá tjöldin spotta-
korn fyrir vestan aðalstræti borgar-
innar. Margir góðir ræðumenn úr
ýmsum löndum munu hakla fyrir-
lestra á þessari sam’komu. íslenzkar
samkomur verða haldnar tvisvar á
hverjum degi. Máltíðir eru seldar á
staðnum og þeir, sem vilja leigja tjöld
til að dvelja í, eru vinsamlegast beðn-
ir um að skrifa undirrituðum. Þar
er gott pláss fyrir allar bifreiðar, sem
koma.—AHir eru boðnir og velkomnir.
Virðingafylst,
Davíð Guðbandsson,
306 Sherbrooke St.,
Winnipeg, Man.
Þakkarávarp.
Mitt innilegasta þakklæti eiga
línur þessar að færa öllum þeim,
sem á einn eða annan hátt hafa
auðsýnt mér hjálpsemi við hið
langa sjúkdómsstríð og fráfall
míns elskaða sonar, Gunnars
Björne, sem lézt þann 29. maí
1929. 'Og vil eg sérílagi nefna
kvenfélag Eyfordbygðar, sem gaf
honum 30 dollaar í haust sem
leið, og frændfólk hans (Olaf-
sons), sem borgaði alla læknis-
hjálp 0g meðul fyrir hann í fyrra-
sumar, sem nam stórri upphæð,
fyrir utan alt annað, sem það
gerði fyrir hann og borgaði. Eg
þakka isömúleiðis A.O:U.W. á
Gardar, fyrir það sem það gerði,
0g einnig vil eg þakka öllum mín-
um nágrönnum og öðrum, sem
hjálpuðu jarðarfarardaginn og
þau inndælu blóm, sem gefin voru
á litlu kistuna. öllu þessu fólki
þakka eg af hrærðu hjarta 0g bið
góðan guð að launa því fyrir
elsku litla drenginn minn.
Mrs. G. G. Johnson,
Edinburg, N. Dak.
í grein í síðasta blaði Lögbergs,
með fyrirsögninni, “Fjörutíu ára
afmæli Frelsis safnaðar”, er sagt,
að Frelsissöfnuður sé elszti söfn-
ururinn í Argyle-ygð. Þetta er
ekki rétt, því Fríkirkjusöfnuður
var stotfnaður nokkru fyr. En
kirkju Frelsissafnaðar, sem nú er,
áttu báðir söfnuðirnir og notuðu
sameiginlega í mörg ár, og eru nú
fjörutíu ár síðan hún var bygð, og
er hún elzta kirkja Islendinga í
Argyle. í minningu þess mun há-
tíð sú, er frá segir í fyrnefndri
grein, hafa aðallega haldin verið.
Séra Rúnólfi Mrteinssyni hefir
fyrir skömmu borist köllun frá
Gimli prestakalli, sem nú er prest-
laust, síðan séra Sigurður Olafs-
son flutti til Árorgar. Kölluninni
hefir séra Rúnólfur svarað neit-
andi.
Rose Leikhúsið.
Kvikmyndin, “The Flying Fleet”,
sem Rose leikhúsið sýnir á föstu-
daginn og laugardaginn í þessari
viku, er með afbrigðum falleg og
skemtileg.
Á mánudaginn, þriðjudaginn og
miðvikudaginn, í næstu viku, sýn-
ir leikhúsið kvikmyndina “Moth-
er Machree”, sem er saga írlands
í fáum dráttum, og bæði falleg og
tilkomumikil.
Wonderland Leikhúsið.
Kvikmyndin,, “The Million Doll-
ar Collar”, sem Wonderland leik-
húsið hefir nú að sýna,.sýnir með-
al annars, hve langt hinn sterki
armur laganna nær í Bandaríkj-
unum. Allir hafa æfinlega mikla
skemtun af að sjá Rin-Tin-Tin.
1 þessum leik taka iþátt ýmsir
þektir leikendur, svo sem Matty
Kemp, Evelyn Pierce, Philo Mc-
Cullopgh, Tom Dugan, Grover
Liggon og Allan Cavin.
Fyrstu þrjá dagana af næstu
viku gefst fólki kostur á að sjá
leikkonuna miklu, Clara Bow, ef
það sækir Wonderland leikhúsið.
Segja ýmsir, að hún standi flest-
um leikkonum framar í sinni list.
Eins og um hetfir verið getið
áður, fara G. T. stúkurnar Hekla
og Skuld skemtiför til Selkirk þ.
7. júlí. Goodtemplarar og bind-
indisvinir, fjölmennið. Nánar aug-
lýst í næstu blöðum.
Frá íslandi kom í vikunni sem
leið, Aðalsteinn Björnsson, ættað-
ur af Fáskrúðsfrði í Suður-Múla-
sýslu á Islandi. Er hann bróður-
sonur Thorarins Johnsons út-
vegsmanns hér í borginni.
Listmálarinn víðfrægi, Mr. Em-
ile Walters, sem dvalið hefir á ís-
landi síðan í byrjun marzmánað-
ar, kom til New York fyrir síð-
ustu helgi.
Staddur er í borginni um þess-
ar mundir, Mr. Guðmundur ís-
berg frá Vogar, Man. Lét hann
fremur vel af grassprettu og upp-
skeruhorrfum þar nyrðra.
Mr. J. T. Thorson, sambands-
þingmaður fyrir Mið-Winnipeg
kjördæmið hið syðra, er nýkominn
til borgarinnar ásamt tfjölskyldu
sinni, að loknu þingi. Var þeim
hjónum haldið veglegt samsæti
á Marlborough hótelinu síðast-
liðið þriðjudagskvöld. Flutti Mr.
Thorson þar fróðlega og snjalla
ræðu, sem hans var von og
vísa.
EF ÞÉR hafið í hyggja að byggja, þá tryggið yður hjá oss
TIMBUR
The Mc.Arthur Lumber & Fuel Co., Ltd.
Cor., Prince»9 & Higgins Ave., Winnipcg. 8lmi 86 619
Gert í Winnipeg
Allar tegundir af rafáhöldum fyrir heimilið. Einnig
allskonar aðgerðir. Hlutir silfraðir og nickel litaðir.
SÍMI: 24 267
GARRY ELECTRIC FIXTURE C0„ LIMITED
120 LOMBARD ST. - WINNIPEG
Móðurminningar
(Mrs. Anna Gestsson.),
Samkvæmt símskeyti til Árna
fasteignasala Eggertssonar, voru
eftirgreindir menn kosnir á aðal-
fundi í framkvæmdarstjórn Eim-
skipafélags íslands: Árni Egg-
ertsson, Hallgr. Benediktsson,
Halldór Þorsteinsson og Jón Ás-
björnsson. Fundurinn ákvað að
greiða hluthöfum 4 af hundraði
gróðahlutdeild fyrir árið 1928.
Einnig var framkvæmdarnefnd-
inni heimilað, að kaupa, eða
byggja, eitt eða tvö skip. — Hlut-
hafar vestan hafs, eru beðnir að
senda arðmiða sína til Árna Egg-
ertsonar, 1101 McArthur Bldg.,
Winnipeg’.
INNKÖLLUNAR-MENN LÖGBERGS
Amaranth, Man..............................B. G. Kjartanson.
Akra, N. Dakota...........................B. S. Thorvardson.
Arborg, Man..............................Tryggvi Ingjaldson.
Arnes, Man..................................F. Finnbogason.
Baldur,-Man.....................................O. Anderson.
Bantry, N.Dakota............................Sigurður Jónsson.
Beckville, Man.............................B. G. Kjartanson.
Bellingham, Wash.......................Thorgeir Símonarson.
Belmont, Man...................................O. Anderson
Bifröst, Man.............................Tryggvi Ingjaldson.
Blaine, Wash.............................Thorgeir Símonarson.
Bredenbury, Sask...................................S. Loptson
Brown, Man.......................................J. S. Gillis.
Cavalier, N. Dakota.......................B. S. Thorvardson.
Churchbridge, Sask.................................S. Loptson.
Cypress River, Man........................F. S. Frederickson.
Dolly Bay, Man..............................Ólafur Thorlacius.
Edinburg, N. Dakota.........................Jónas S. Bergmann.
Elfros, Sask..........................Goodmundson, Mrs. J. H.
Foam Lake, Sask............................Guðmundur Johnson.
Framnes, Man..............................Tryggvi Ingjaldson.
Garðar, N. Dakota.........................Jónas S- Bergmann.
Gardena, N. Dakota........................ Sigurður Jónsson.
Gerald, Sask.......................................C. Paulson.
Geysir, Man.......................... .. Tryggvi Ingjaldsson.
Gimli, Man.......................................F. O. Lyngdal
Glenboro, Man..............................F. S. Fredrickson.
Glenora, Man...................................O. Anderson,
Hallson, N. Dakota.......................Col. Paul Johnson.
Hayland, Man...................................Kr. Pjetursson.
Hecla, Man..................................Gunnar Tómasson.
Hensel, N. Dakota...........................Joseph Einarson.
Hnausa, Man.................................F. Finnbogason.
Hove, Man......................................A. J. Skagfeld.
Howardville, Man..........................................Th. Thorarinsson.
Húsavík, Man.....................................G. Sölvason.
Ivanhoe, Minn......................................B. Jones.
Kristnes, Sask...............................Gunnar Laxdal.
Langruth, Man.............................John Valdimarson.
Leslie, Sask....................................Jón Ólafson.
Lundar, Man.................................. .. S. Einarson.
Lögberg, Sask.....................................S. Loptson.
Marshall, Minn.....................................B. Jones.
Markerville, AHa............................................O. Sigurdson.
Maryhill, Man................■..................S. Einarson.
Minneota, Minn.....................................B. Jones.
Mountain, N. Dakota........................Col. Paul Johnson.
Mozart, Sask...................................H. B. Grímson.
Narrows, Man....................................Kr Pjetursson.
Nes. Man...................................................F. Finnbogason.
Oak Point, Man................................A. J. Skagfeld.
Oakview, Man................................ólafur Thorlacius.
Otto, Man........................................S. Einarson.
Pembina, N. Dakota..............................G. V. Leifur.
Point Roberts, Wash............................S. J. Myrdal.
Red Deer, Alta......................•..........O. Sigurdson.
Reykjavik, Man..................................Árni Paulson.
Riverton, Man............................... Th. Thorarinsson.
Seattle Wash...................................J. J. Middal.
Selkirk, Man....................................G. Sölvason.
Siglunes, Man................................Kr. Pjetursson.
Silver Bay, Man.............................Ólafur Thorlacius.
Svold, N. Dakota..........................B. S. Thorvardson.
Swan River, Man.................................J. A. Vopni.
Tantallon, Sask.................................. C. Páulson.
Upham, N. Dakota.............................Sigurður Jónsson
Vancouver, B. C..............................A. Frederickson.
Viðir, Man................................Tryggvi Ingjaldsson.
Vogar, Man.....................................Guðm. Jónsson.
Westbourne, Man...........................................Jón Valdimarsson
Winnipeg Beach. Man.............................G. Sölvason.
Winnipegosis, Man................... .. Finnbogi Hjálmarsson
Wynyard, Sask..............................Gunnar Tohannsson.
Ó, móðir! Þú elskunnar lifandi
ljós,
sem lýstir oss, börnunum þínum.
jl sál þinni angaði útsprungin rós
með ilminn af blöðunum þínum. í
Þú vermdir og ,styrktir og og
léttir oss leið,
0g leiddir, vor ástríka móðir.
Við hönd þína sérhver oss gata
var greið:
að gæfuveg illfærar slóðir.
Þótt ástríka hjartað þitt mæddi
oft mein
þú máttir ei starfinn linna.
Og blessandi Ijósið þitt bágstödd-
um skein:
að bæta og gleðja og blynna.
Þú mettaðir svangan—þitt síð-
asta brauð
; til saðningar gjötful þú veittir.
Þú vanst eins og hetja—með elsk-
unnar auð
við auma sem jafningja breyttir.
Þá sofnað er holdið og svífur
'burt önd,
það saknaðar harmtárin vekur.
1 guðsfriði, móðir! Á græðarans
strönd,
nú guð þig á arma sér tekur.
jí brjóstinu gleym-roér-ei blómið
þitt grær,
sem brosir við sorgunum mínum.
Það himneskum bjarma á blöðin
þess slær
frá blessuðum minningum þínum.
G. J. Jónasson.
ROSE
THEATRE
Sargcnt at Arlington
cUhe fYest £nds Finest ‘Uheatre
Thurs. Fri. Sat. (this week)
RAMON NAVARRO
“The Flying Fleet”
ivith SOUND and MUSIO
EXTRA ADDED—
“Mis-Information”
—an exceptionally entertaining
100% Talking Oomedy
and
“The Lash” —A short all-talking
drama with a real moral.
' Mon. Tues. Wed. (next week)
A Picture that will stir the
Hearts of Audiences
“Mother Machree”
with the beautiful theme song
in SOUND
Starring—Belle Bennett—Neil
Hamilton—Victor McLaglen
ALSO—
A 100% Talking featurette
“Retribution”
and other talking short subjects.
DON’T MISS THE8E TWO
GREAT PICTURES
Land til sölu
S. E. J4, Sec. 18, Tp. 19, R. 1,
E. of lst Mer., nálægt Inwood,
Man. Verð út í hönd $200.00
Upplýsingar hjá
J. T. CASE CO.,
81 Water Street, Winnipeg
PRINCESS FLOWER SHOP
Laus blóm—Blóm í pottum
Blðmskraut fyrir öll tækifæri
Sérstaklega fyrir jarSarfarir.
COR. SARGENT and VICTOR
Phone 36 102
100 herbergi,
með eða án baðs.
Sanngjarnt
verð.
SEYMOUR HOTEL
Sími: 28 411
Björt og rúmgóð setustofa.
Market og King Street,
C. G. Hutchison, eigandi.
Winnipeg - Manitoba
SAFETY TAXICAB C0. LTD.
Beztu bílar í v*röldinni
Til taks dag og nótt. Sann-
gjarnt verð. Sími, 23 309.
Afgreiðsla: Léland Hotel.
N. CHARACK, forstjóri.
Eina hótelið er leigir herbergi
fyrir $1.00 á dag. — Húsið eld-
trygt sem bezt má verða. —
Alt með Norðurálfusniði
CJLUB HOTEL
(Gustatfson og Wood)
652 MainSt. Winnipeg
Ph. 25 738. Skamt norðan við
C.P.R. stöðina. Rejmið oss.
Aðeins $5.00 niður
Auðveldar afborganir
HIN NÝJA
AutoMatic
Eina þvottavélin með
Invertible Agitator
Konur viðurkenna hlunn-
indin, sem þessari þvotta-
aðferð fylgja.
Innan í hinum stóra kopar-
bala, má nota Duo Disc nið-
ur á botni við lítinn þvott,
eða þá að snúa má honum
við og þvo í honum upp við
barminn, ef um þungan
þvott er að ræða.
Ot í hönd $135
Wmnípe^Hifdro,
55-59
PRINCESSSI
Ferðist með
Stœrstu
Canada Skipum
Canadian Pacific skipin eru hin
stærstu, hraðskreiðustu og nýjustu
skip, sem sigla milli Canada og
annara landa. Valjið þau, ef þér
farið til Isiands, eða annara landa 1
Evrðpu, eða ef þér hjáipið frænd-
um og vinum til að koma frá ætt-
landinu.
Ágætur viðurgerningur og allur að-
búnaður veldur þvl, að þúsundlr
manna kjðsa þau öðrum fremur.
Tíðar og reglulegar siglingar
THIRD CLASS
$122.50
TOURIST THIRD CABIN
$132.50
Milli Canada og Reykjavíkur
Séð um vegabréf og annað, sem
' þér þurfið við.
Allar sérstakar upplj'Bingar veitir
W. C. CASEY, aðalumboðsmaður.
C. P. R. Bldg., Main & Portage,
Winnipeg.
eða
H. S. BARDAL,
894 Sherbrook St., Winnipeg.
Canadian
PaciCic
Steamships