Lögberg - 08.08.1929, Page 4

Lögberg - 08.08.1929, Page 4
M»a. 4. LÖGBERG FIMTUDAGINN 8. ÁGÚST 1929. Högberg Gefið út hvern fimtudag af The CoT umhia. Press, Ltd., Cor. Sargent Ave. og Toronto St., Winnipeg, Man. Talsímar: 86 327 og 86 328 » --------------------- Einar P. Jónsson, Editor Utanáskrift blaðsins: The Columbia Press, Ltd., Box 3172 Winnipeg, Man. Utanáskrift ritstjórans: Editor Lögberg, Box 8172, Winnipeg, Man. Verð $3.00 um árið. Borgist fyrirfram. The "Lögberg” is printed and published by ° The Columbia Press, Limlted, ln the Columbia g Building, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba. H to0C3»OI)C=0C=10a0C30C=>0O0C=30C=10C=0C=>0<í Takmarkanir hervarna á sjó Eitt þeirra mála, er öðru fremur hefir dreg- ið að sér athygli almennings um þessar mundir, er málið um takmarkanir hervarna á sjó. Virð- ist nú vera kominn á það sá skriður, að um fátt sé tíðræddara í blöðum hinna ýmsu þjóða. Hlýt- ur slíkt að verða þeim öllum eftirminnanlegt 1‘agnaðarefni, er ant láta sér um friðarmál mannkynsins. Núverandi stjómarformaður Breta, Rt. 'Hon. Ramsay MacDonald, hafði eigi fyr tekið við völdum, að afstöðnum síðustu kosningum á Bretlandi, en 'hann lýsti yfir afstöðu sinni til þessa stór-þýðingarmikla máls, og kvaðst hafa íáðið af, að leita samvinnu um framkvæmd málsins, við hinn nýja forseta Bandaríkjanna, Mr. Herbert Hoover. Þykir líklegt, að kvatt verði til stefnu í Washington, einhverntíma á komanda hausti, til þessi að ræða málið frá sem flestum hliðum, og búa það undir væntanlegt al- þjóða vopnatakmörkunar þing, er haldið skuli eins fljótt og því framast verði viðkomið.. Eins og nú standa sakir, þykjast stórþjóðirn- ar, flestar hverjar, eigi geta trygt þjóðernislegt öryggi sitt, nema því aðeins, að þær eigi yfir svo og svo miklum herskipastól að ráða. Þó virðast þær samt sem áður nokkum veginn á éitt sáttar um það, að draga megi að einhverju leyti úr hervörnum á sjó, án þess að þjóðarör- ygginu sé telft í voða. í vikunni, sem leið, lýsti Mr. MacDonald yfir því, að flotamálafræðingar Breta, hefðu tekið að sér að afla sem allra gleggstra upplýs- inga um það, hvar og með hverjum hætti, að draga mætti helzt úr kostnaðinum við sjóvam- irnar og takmarka tölu og stærð herskipa. Mun mega ganga út frá því sem gefnu, að hliðstæð- ar ákvarðanir verði teknar í Washington, tak- mörkun flotans ákrærandi. Að því er byggingu herskipa snertir, verða stjórnirnar að fara eftir áliti sérfræðinga sinna, eða þeirra, er sérstaklega um sjóvarnir fjalla. En á hermálastefnu sérhverrar þjóðar, bera stjórnirnar að sjálfsögðu fulla ábyrgð gagnvart kjósendum. Hiutskifti sérfræðingamia er það, að veita stjórnunum nákvæmar upplýsingar um það, hvar koma megi við sparnaði, eða á hvaða sviði aukinna útgjalda sé þörf, í samlbandi við flotamálin. Að því er Bandaríkin áhrærir, er það engan veginn ólíklegt, að stjórn þeirra þykist þurfa á að halda allstórum beitiskipum, til dæmis til verndunar Filippseyjunum. Virðast amerískir flotafræðingar þeirrar skoðunar, að til slíkra afnota nægi eigi að fullu smærri skip, en tíu þúsund smálestir. En hvort slíkt kami að valda nokkrum árekstri, þegar til þess kemur að ræða um takmörkun sjóvarna, er vitanlega enn á liuldu. Er þess að vænta, að svo megi liðka til, að málið sjálft, vopnatakmörkunarmálið, bíði eigi við það halla, eða strandi um ófyrirsjáan- legan tíma. Að því er Bretland snertir, stendur talsvert óðru vísi á. Er það engan veginn óhugsandi, að brezka þjóðin gæti vel komist af með nokkru minni beitiskip en þau, er nú hafa nefnd verið. Virðist Bretum ríða mezt á því, að hafa til taks nægilega mörg smá beitiskip til öryggis vöru- f lutningaflota sínum um heimshöfin. Þessvegna er það, að ýmsir flotafræðingar brezkir, telja líklegt, að til slíkrar gæzlustarfsemi myndu nægja fjögra þúsunda smálesta skip. Myndu við það sparast eigi alllítil útgjöld frá því, sem nú gengst við. Aftu^ á móti er það sýnt, að ef til reglulegrar sjóorustu kæmi, myndu hin minni skipin hvergi nærri reynast jafn ábyggi- leg, og hlyti þá Bretland að standa ver að vígi, en Bandaríkin. Að öllu athuguðu kemur það skjótt í ljós, að jafn-styrkur brezika flotans og þess ameríska er ekki falinn í smálestatölunni einni. Báðar þjóðirnar gætu til dæmis komið sér saman um það, að smálestatala beitiskipa hvorrar þjóð- arinnar um sig, skyldi eigi fara fram úr fimm hundruð þúsundum. En í því falli, að Banda- ríkjaþjóðin yrði til þess ófáanleg, að takmarka stærð beitiskipa sinna niður úr tíu þúsundum, og Bretar á 'hinn bóginn teldu sér borgið með nokkru smærri skip, yrði þar um það ósamræmi að ræða, er hefnt gæti sín grimmilega síðar meir. Því er eins farið með vopnatakmörkunar málið, sem önnur mál, að það verður að skoð- ast frá öllum hliðum. Það verður að grund- vallast á gagnkvæmri friðarþrá þjóða þeirra allra, er að takmörkunar tilraunum standa, eigi það að verða leitt til heppilegra lvkta. Bráða- birgða hrófatildur kemur þar að litlu eða engu haldi. Sé málið ekki grundvallað á hreinskilni og sönnum bróðurhug, er tjaldað til einnar næt- ur. ( Eins og málið um takmörkun sjóvama nú horfir við, mun vera til þess gild ástæða, að líta björtum augnm til framtíðarinnar. Þeir, er eitthvað hafa fvlgst með stjórnmálaferli Ram- say MacDonalÆ og kynst lífsskoðunum hans, geta ekki undir nokkrum kringumstæðum efast um einlægni hans. Friðarmálið 'hefir jafnan verið honum hjartfólgið tilfinningamál, og þess- vegna má þess fyllilega vænta, að hann beiti sér fyrir framkvæmdum í vopnatakmörkunarmál- inu, með ráði og dáð. Hins sama mun og mega með fullum rétti vænta af Mr. Hoover. Hann er líka einlægur mannvinur, með hugann tengd- ann við friðarmálefni mannkynsins.— Samningur milli Bretlands og Bandaríkj- anna um takmörkun sjóvama, hlytí að sjálf- sögðu að hafa víðtækari afleiðingar en svo, að emskorðaðar yrðu. við velfarnan þessara tveggja þjóða. Myndu afleiðingarnar, að minsta kosti obeinlínis, ná til allra þeirra þjóða, er annaðhvort eiga, eða þykjast eiga, öryggi sitt undir bryndrekum og beitiskipum. Myndi þess meðal annars eigi lengi bíða, að japanska þjóðin áttaði sig, og kæmist til fullrar vitneskju um það, hve ömurlegur misskilningur það var, að vera að hlaupa í kapp við Bandaríkin og Bretland, hvað herskipastól áhrærði. Af vopnatakmörkunar samningi milli Bret- lands og Bandaríkjanna, hlyti aðeins að leiða gott eitt, jafnvel þó hinar stórþjóðirnar sætu fyrst um sinn þegjandi hjá og hefðust eigi að. Slíkur samningur hlyti að fela í sér fagurt for- dæmi, er knýja myndi á sínum tíma fram í með- vitund annara þjóða, gleggri skilning á gildi málsins, en áður hafði viðgengist. Aðstreymi góðvildar og bræðralagshug- sjóna, hlýtur að fylgja tilraunum. þeirra Ram- say MacDonalds og Hoovers forseta, í sambandi við takmörkun hervarna á sjó. Þeir hafa riðið a vaðið, og er þess að vænta, að fleiri megi á eftir koma í sömu erindum. Hver veit nema það verði þeir, er hornsteininn leggja að fram- tíðarmusteri varanlegs friðar á vorri jörð? Canada Ræða flutt á íslendingadag í Winnipeg 3. ág. 1929. Eftir séra H. J. Leó. Lárviðarskáld Vestur-lslendinga orti eitt sinn íslandsminni. Tvær hendingar í því gullfagra kvæði álíta víst flestir kjarna þess: "Rétt að nefna nafnið þitt, nóg er kvæði öllum”, segir hann; og þá er aðal- efni kvæðisins í letur fært. Alt annað í kvæðinu er útskýring þessara orða, viðbót. Eg ann landinu, þess vegna er nafn þess svanasöngur í eyrum mín- um. Sannara íslandsminni hefir aldrei verið ort. Grasafræðingurinn tekur jurt einhverja og hlut- ar hana í sundur eftir reglum listar sinnar, gefur pörtum hennar nöfn, raðar þeim í flokka, gerir sér grein fyrir lífsskilyrðum plöntunnar o. s. frv. En, er hann hefir lokið því verki, er plantan eyðilögð, líf hennar horfið, ilmur hennar á förum. Hún hefir nú ekki lengur neina fegurð að bjóða. — Fyrir vís- indin hefir þetta mikla þýðingu. Þekkingarforði mannkynsins hefir aukist að mun. En jurtin er horf- in. Enginn safnar saman pörtunum og veitir þeim líf á ný. Enginn nýtur nú lengur fegurðar blóms- ins. Enginn lætur plöntuna í jurtapott og vökvar hana. Ástvinir sitja hlið við hlið. Þau njóta ótæmandi sælu við að vera návistum, horfast í augu, dást hvort að öðru. Þau eru sæi, þó ekkert orð sé mælt. En ef þau fara að leitast við að brjóta hugsanalíf sitt til mergjar, gera sér grein fyrir hvers vegna þau unn- ast, fær samvist þeirra alt annan blæ, — gæti jafn- vel farið svo, að verðmæti féllu í verði. Þau gerðu sér þá grein Tyrir því, að þau væru bara ófullkomn- ar, mannlegar verur, —og Paradís þeirra væri bara Utopía tilfinningálifsins. Þið munið ef til vill eftir sögunni um lækninn, sem hepnaðist að búa til vökva, er hann rauð á ann- að auga sitt, og sá svo í gegn um alla hluti, miklu betur en með hjálp Röntgen geislanna. Hann mætti ástmey sinni á götu, þar sem þau höfðu mælt sér mót. Svo leit hann á hana með þessu undra-auga. Hann sá beinagrind. — Og hann hljóp heim sem vitskertur væri, og tók augað úr sér. Ef til vill bergjum vér sætastar veigar úr bikd?- tilfinningalífsins, er rannsóknargáfan kemur hvergi nærri. Vér njótum sem í sætum draumi. — Og þess vegna hefi eg, ef satt skal segja, hálfgerða óbeit á öllum vorum minnum, hvort heldur þau nefnast Minni íslands eða Minni Canada, eða einhverju öðru nafni. Skáldið, sem eg nefndi áðan, benti oss á það, að “heitust bæn er vinna”. Hvert minni er því bezt kveðið, er það kemur fram í verki. Annars er svo hætt við, að öll okkar minni verði “hljómandi málm- ur og hvellandi, bjalla.” — Og mér finst, að sann- asta og bezta minni landsins, sem vér höfum gjört að kjörlandi voru, landsins okkar, sé að nefna nafn þess og beygja svo höfuðin í lotningarfullri þögn. Og þó gæti jafnvel það orðið að siðvenju, nema það ætti sér stað ósjálfrátt. — En nú er svo til ætlast, að vér fylgjum venjunni og gerum oss grein fyrir því, hvers vegna vér unnum þessu landi, — voru eigin landi. Ef til vill hneykala eg nú suma menn. Það er oft gert að málvenju hér vestra að segja “heima á íslandi.” Það er síður en svo, að eg amist við þeim sið. Sá maður, sem getur klætt sig úr þjóðerni sínu eins auðveldlega og hann fer úr fötunum, hefir aldrei átt neitt land. öll hans “minni” í ræðu og riti er leikur ein,n, — og það ljótur leikur. — En mér er spurn: hvers vegna unni Stefán Islandi jafn- heitt og fölskvalaust og raun gaf vitni? Hvers vegna gat hann orkt jafn-óviðjafnanlega fagurt kvæði og “Þótt þú langförull legðir”? Vegna þess, að hann ólst upp á íslandi til fullorðinsára. Vegna þess, að menning íslands að fornu og nýju var runnin hon- um í blóð og merg. Vegna þess vakir honum eylend- an hans fjarst í útsæ eilífðarinnar, og hver erlend laáidslagsmynd, hver útlend hugsjón fær gildi sitt, af því hún vekur minninguna um ísland. — Hann unni íslandi'af því hann varð fyrir áhrifum þess ungur. — Og það var honum heiður og gerði hann að íslenzku skáldi. En er ekki sanngjamt, —. og sjálfsagt, — að beita sömu reglunni, — sömu ástæðunni, — er vér hugsum .um hinn ýngra lýð vorn? Fyrsta landið, sem það fólk leit augum, var Canada. Svipur þessa lands og einkenni voru fyrstu áhrifin, sem sálir þeirra urðu fyrir. Tunga þessa lands varð þeirra tunga, hættir þess þeirra hættir, hugsanablær hér- lends þjóðlífs þeirra eigin eign. Mentun þeirra veittu hérlendar mentastofnanir. Ljóð þessa lands urðu aflvaki sálarlífs þeirra. Er þá nokkurt vit í að krefjast þess, að þetta fólk skoði ísland sem heimaland sitt? — Það væri að krefjast hins ó- mögulega. Hitt er sjálfsagt rétt, að búast við því, að það unni íslandi næst Canada, eins og það er eðlilegt, að kvæntur maður, sem á sitt eigið heimili, unni föður og móður, þó hann hafi kvænst. En fyrsta skyldan verður við nýja heimilið, tilfinninga- lífið á þar dýpstar rætur. Er ekki auðsætt, að þannig sé skifting tilfinninga vorra milli heimil- anna, þar sem vöggur feðra vorra stóðu, og vorra eigin óðala? Vér, sem komum hingað börn, eða eru hér fædd, « unnum þessu landi meira en nokkru öðru. Vér unn- um Canada, virðum íslapd. Hér er starfsvið vort, hér er þroskaáruim vorum eytt. Hér búumst vér við að afkomendur vorir ali aldur sinn, verði hluti af þessari þjóð, sem enn er í myndun. Og vér gerum oss grein fyrir því, að framtíðar- þjóðin canadiska öðlast sín sérstöku einkenni, sitt sérstaka hugarfar, sínar landsvenjur, sínar bókment- ir, sína sögu. Hún verður ekki brezk, í þeim skiln- ingi, að brezkar þjóðerniseinkunnir verði arfgengar hér, þó þaðan verði auðvitað fyrirvafið í þjóðerni voru. Þjóðin verður ekki ensk eða skozk, ekki þýzk eða frönsk. Hún verður canadisk þjóð, ein systur- þjóðin í keisaradæminu brezka, sem dregur nafn sitt af stofnþjóðinni, þó öll löndin verði jafn-rétthá. Þetta verður framtíðin, hvort sem einum eða öðrum er Ijúft eða leitt. Að þessu takmarki, sámborgarar, er skylda vor allra að vinna. Eftir örfá ár geyma afkomendur vorir í sál sinni sömu tilfinningarnar gagnvart Canada, sem skáldið lætur í Ijós gagnvart íslandi, í ættjarðarminni sínu hinu fagra.. Hugur þeirra býr yfir canadisku óskalandi, hvar sem þeir dvelja. Hvað er það þá, sem heilla mun hugi þeirra, og vorn eigin, nú þegar, að miklu leyfi, vor, sem höfum mest af þessu landi að segja? 1. Vér eigum fagurt land. Canada er eins fag- urt land, og nokkurt land í heimi, þó fegurð þess eigi vitanlega sinn sérstaka blæ. Fjöll vor eru hærri og hrikalegri, en flest fjöll í Evrópu. Þau bera sinn tignarsvip, benda oss til hæða, vekja djarfar, fagr- ar og hreinar hugsanir, eins hér eins og annars stað- ar á hveli jarðar. Og ekki missa þau fegurð sína 'við það, að vera skógi vaxin upp í miðjar hlíðar. Sú fegurð, er þau hafa að bjóða, er margbreytileg, heillandi, laðandi. Eg minnist ekki þess, að eg hafi litið meiri feg- urð, en birtist þeim, sem siglir með ströndu fram vestur við Kyrrahaf og lítur til austurs. Þeim, sem íslenzk ljóð kann, dettur ósjálfrátt í hug: “Og fjallhnjúka raðirnar rísa í kring, sem risar á verði við sjóndeildarhring.” Mér hafði aldrei skilist til fulls, hve frábærlega vel Þorsteinn kom orðum að þessu, fyr en eg sá fjöllin þau úr vesturátt. En næsta kynslóð verður með þeirri sömu sýn mint á brezk eða canadisk náttúru- ljóð. Eða þá slétturnar Canadisku hér um miðja álf- una. Hvar getur að líta margbreytilegri fegurð? Hafið þið ferðast í bíl, um mitt sumar, frá þessari borg vestur um vesturfylkin þrjú, litið á báðar hlið- ar kornakra, er virðast jafn-ómælandi og hafið sjálft og vindblærinn kyssir öxin, þau hreyfast, brosa á móti vindi og sólu, og öldur myndast á korn- stangahafinu, grænar eða bleikar, eftir því hve langt er liðið af sumri, ótakmarkaðar og frjálsar eins og haföldumar. Og inn í ríki myrkviðarskóga heggur framgjörn mannshöndin strandhögg, þar er hún að verki að breyta eldri fegurð í nýja, viltri feg- urð frumskóganna í nytsamari fegurð, er unninn akur (leitir. Og bæir og borgir, bygðir frjálsra manna, myndast árlega. En eg verð að fara fljótt yfir sögu. 2. Vort land er framtíðarlandið. Þúsundir manna frá öllum löndum heims strey.ma hingað ár- lega. Er það ekki það, sem ber mestan og beztan vott þess, hverjum augum aðrar þjóðir líta á Can- ada? Innflutningur í svo stórum stíl og um svo mörg ár, ber ljósastan vottinn um það, að heimurinn er sér þess meðvitandi, að hér sé meiri tækifæri, en í öðrum löndum, til að komast áfram, að lífsbarátt- an sé ekki eins hörð hér eins.og víðast hvar annars staðar. Eða hvernig stóð á innflutningunum miklu hingað frá íslandi? Er eg hér ekki að lasta þá né lofa, heldur aðeins að benda á sögulegt atriði. Eg er viss um, að agenta- skrum og málæði átti þar tiltölulega lítinn hlut að máli. Hitt dylst mér ekki, að ástæðan var blátt á- fram sú, að þeir er fluttu hingað vestur, gerðu það með því augnamiði, að sér og sínum, yrði með því betur borgið. Og þessi fríði hópur, sem er staddur hér í dag, bendir sannaHega ekki á vonsvik í því efni. — Og hvernig stóð svo á því, að vesturferðir hættu frá íslandi? Vitanlega er sú ástæðan, að Austur-íslendingar hafa, með dæmafáum dugnaði, gert land sitt byggilegt fyrir íbúa þess. Nú mundu fáir eða engir flytja frá íslandi hing- að, nema þá um stundarsakir, til að kynnast og sjá frændur sína. Nú er ísland, ef til vill, mesta fram- faraland Norðurálfunnar. Yfir því gleðjumst vér hjartanlega með frændum vorum þar. — En með því að unna íslandi sannmælis, er ekki Canada lastað. Og komi sú tíð, — guð gefi að hún komi aldrei, — að neyðin kreppi að á íslandi, eins og áður fyr, þá fyrst hefjast vesturferðir þaðan að nýju.—Þá eiga menn að hvetja til vesturferða, — til að bjarga úr neyð, — en annars alls ekki. Framh. í næsta bl. Canada framtíðarlandið Hænsnarækt. Hænsnarækt borgar sig vel, ef hún er rétt stunduð. Aftur á móti gæti hún orðið tap fyrir vankunnáttu. Þess vegna heyrir maður svo margan bóndann segja, að ekkert sé upp úr hænsnunum að hafa. Að velja beztu varphænurnar. Áður en útungun byrjar á vor- in, ættu allir að velja úr beztu varphænurnar og hafa þær sér með óskyldum hana. Beztu varp- hænurnar fara vanalegast fyrst niður á morgnana og seinast upp á kveldin. Annað merki er þetta: Farðu yfir hænsnahópinn að kveldi til, þegar þau eru sezt upp. Skoða þú hverja hænu fyrir sig. Beggja megin við eggholið eru tvö bein, sem kölluð eru: pelvic bein. Séu beinin þunn og komir þú þremur fingrum á milli þeirra, þá er hænan gðð varphæna; séu beinin þykk, og komir þú að eins einum fingri á milli beinanna, þá er hænan mjög léleg sem varp- hæna. Það tekur frá viku til tíu daga fyrir eggin að verða frjósöm. Eftir að útungun er um garð gengin, ættu allir hanar að vera teknir og hafðir sér, en ekki leyft að ganga með hænunum um sum- artímann. *— Margir standa í þeirri meiningu, að hanar þurfi að vera með hænunum til þess að þær geti verpt; en það er mikil fjarstæða. Nú eru egg keypt eftir flökkun. Egg með útungunarefni, byrja að ungast út í sumarhitanum, og skemmast fljótt; ófrjósöm egg aftur á móti, geymast yfir lengri tíma án skemdar. Hænsnafóður. Um þeta leyti árs þurfa hænsn- in ekki eins kröftugt fóður eins og að vetrarlagi; en grænmeti er þeim nauðsynlegt; ef þau ekki hatfa aðgang að grasi, þá þyrfti að rækta fyrir þau.kálmeti. Einn hnefi af korni þrisvar á dag fyr- ir hverja hænu, er mátulegt eða 20 pund af korni á dag fyrír hverjar 100 hænur. Helzt ætti kornið að vera af fleiri en einni tegund, t. d. einn þriðji af hverju: höfrum, byggi og hveitikorni. — Hænsni fá leiða á sömu kornteg- und til lengdar. —vÞeir sem hafa nóg af skilvindumjólk og hleypa henni í ost með sýru, geta sparað sér korn, því í mjólkinni er mik- ið eggjahvítuefni. — Annað, sem hænsni ættu alt af að hafa að- gang að, er grófur sandur (grav- 1 el), <og nógar skeljar (muldai*). Sandurinn hjálpar meltingunni og og er nauðsynlegur. úr skeljunum ’ myndast egg^askurn. Hænsnalús og maur. Hænsni, sem eru lúsug, verpa ekki til lengdar. Til þess að eyði- leggja lús, er lúsasmyrsl ((blue ointment) einna bezt. Taka skal hænurnar að kvöldinu, og maka smyrslin undir 'báða vængina, undir stélin og ofan á hausinn (við hauslús)i, að eins lítið á hvern stað. Þetta eyðileggur lús. En það er meiri vandi að losast við hænsnamaur (mites). Þessi maur skríður á hæsnin á nótt- unni og sýgur úr þeim blóð, ,en heldur til í rifum og smugum á daginn. Maurinn magnast ákaf- lega fljótt í hitanum á sumrin, og getur valdið því, að hænur hætti alveg að verpa. Til þess að lostast við maur, verður að sprauta hænsnahúsið með steinolíu eða sterku kreolin- vatni. Taka skal alt út úr hús- inu, sem lauslegt er, svo sem hreiður, hænsnaprik o.s.frv. Svo skal sprauta í allar rifur og smug- ur, sem sjáalnlegar eru. Þetta verður svo að endurtakast eftir vikutíma, þegar mauraeggin ung- ast út. Bezt er að sprauta hænsnahúsin áður en maurinn magnast. Yeiki í hænsnum. Þeir, sem hafa léleg hænsnahús, missa oft hænsnin úr veiki, eink- um á vorin. Ekki er til neins að reyna að lækna hænu, sem verð- ur veik; betra að eyðileggja hana sem fyrst, því oft smitar hún heil- brigðar hænur. Tæring er mjög almenn í hænsnum, sem hafa slæmt húspláss, saggasamt og kalt. Þetta er merkið: Hænan hættir að. verpav smá-tærist upp þar til hún drepst. Ef þú kryfur hana, þá munt þú sjá ljósleita depla á lifrinni og innýflunum. Missir þú margar hænur úr þessu, er þér bezt að losa þig við allan hópinn, því þessi veiki er mjög smitandi, ef hún kemst í hænsna- hópinn. Stundum vill til að hænsni, sem fóðruð eru ,á höfrum og byggi, hætta að éta fyrir það, að þau hafa úttroðinn sarp, einkanlega ef þeim er gefið mikið bygg. — Þetta má kalla uppþembu, og má lækna hana með því að skera-upp sarpinn og hreinsa alt úr honum, sauma svo fyrir aftur með nál og tvinna. Verður þá hænan jafn- góð. Þetta orskast af því, að neðra opið á sarpinum hefir stíflast. Hænsnahús. Allir ættu að hafa sérstakt hús fyrir hænsnin, en ekki að hafa þau innan um gripi eða hross, sem víða tíðkast. Húsið mætti byggjast eftir fjölda hænsnahna, sem þú hefir. Það þarf ekki að vera fallegt eða dýrt, en verður að vera bjart og loftgott; nægi- legir gluggar þurfa að vera á því, og ættu að snúa í suður. 1 ptaðinn fyrir gler, má brúka lér- eft í suma þessa glugga; það mundi gera húsið loftbetra. Það, sem mest er um vert, er að húsin séu björt og loftgóð, trekklaus og laus við raka. Kuldinn að vetr- inum gerir hænsnunum ekkert til, ef þau hafa nó^ af strái að rusla í, þá vinna þau sér til hita. Góðar varphænur. Það eru ekki góðar varphænur, sem verpa að eins að sumrinu. Það gerir hvaða hæna sem er. Það er hennar eðli. En hænur, sem verpa í vetrarkuldanum í (Manitoba eins vel og á sumrin, þær mætti kalla góðar varphæn- ur. Þessum góðu varphænum er nú sem óðast að fjölga, en hinar lélegu að fækka, sem betur fer. Sá sem byrjar á hænsnarækt, verður að hafa góðan stofn, ann- ars gæti það orðið honum stór- iskaði. Bezt er að byrja með lít- ið, en auka ef vel gengur. Hænsnategundir. Til varps eru Leghorn hænsni í fremstu röð. Það má segja, að þau séu reglulegar hænsnavélar. En ókostúr er einn við Leghorn- hænsnin, að þau eru mjög óstöð- ug að vilja liggja á. Þau eru held- ur smá, vigta frá 4 til 6 pund hver hæna, en verpa furðustórum eggjum. Þeir sem hafa Leghorn- hænsni, þurfa að hafa aðrar hæn- ur til að liggja á að vorinu, eða þá útungunarvélar, sem er ómiss- anlegt fyrir alla, sem stunda hænsnarækt að nokkrum mun. J. A. I minningu um Mrs. G. Anthony (Guðfinna Finnsdóttir), er dó 24. júlí 1928: Ástin þin,-—hún mér enn í hjarta skín. Ljósið bezt í lífi mínu, Líknin flest í auga þínu Brosti ætíð, móðir mín. —iPrentað samkvæmt ósk barna hinnar látnu.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.