Lögberg - 24.10.1929, Blaðsíða 8
BIs. 8.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 24. OKTÓBER 1929.
Til bökunarinnar þarf minni
tíma, minni vinnu ogminna
mjöl, ef þér notið
obmHood
FLOUR
WONDERLAND
“TIIE ‘MET’ OF THE WEST EXI)”
Doorg ojien Mon. to I'ri. C.I5. Sat. 1 ancl 5.45 p.m.
Thur.
- Fri. - Sat. (This Week)
JUNIOR COGHLAN in
U
M
ARKED
ONEY"
ANTONIO MORBNO in
“The Midnight Taxi’’
RICHARD
BARTHELMESS
in
“SCARLET SEAS”
and
IRENE RICH
in
“CRAIG’S WIFE”
GIVEN AWAV IN GIFTS
$50.00 - Free Every Wednesday Night - $50.00
Abyggileg ENDURBORG-
UNAR-TRYGGING í
hverjum poka
Ur bænum
Veitið athygli!
Séra Kristinn K. Ólafsson flyt-
ur fyrirlestur um íslandsferð sína
á þessum stöðum í Norður-Dakota,
sem fylgir:
Að Akra, þriðjudagnn 29. okt.
Að Svold, miðvikudaginn 30. okt.
Að Mountain, fimtud. 31. okt.
Að Gardar, föstudaginn 1. nóv.
Allar samkomurnar byrja kl. 8 að
kvöldinu. Að Akra og Mountain
eru samkomurnar undir umsjón
safnaðanna á þeim stöðvum. Á
Gardar undir umsjón kvenfélags
ins. Inngangseyrir auglýstur af
hlutaðeigendum á hverjum stað.
Þann 17. okt. andaðist á Betel,
Gimli,, Man., Magnús Halldórs-
son, eftir stutta legu. Magnús var
merkur maður. Hafði lengi bú-
ið á Gimli og stundað fiskiveiðar.
Mun ætt hans vera úr Gullbringu-
sýslu. óefað verður hans getið
nánar síðar.
ROSE
Sargent and Arlington
Wcit Ends Flnest Theatre
8tarting Next Monday unth
NORTHERN
ELECTRIC
TALKING MACHINES
AT THE COST OF 20,000 DOLLARS
Næstkomandi sunnudag, þann
27. okt., messar séra Sig. Ólafs
son í Árborg kl. 2 e. h.
Séra Jóhann Bjarnason messar
í Goodtemplara húsinu á Sargent
Ave., neðri salnum, kl. 3 e. h. á
sunnudaginn kemur.
Dr. B. J. Brandson kom heim
píðastliðið sunnudagskvöld sunn-
an frá Chicago, III., af læknaþingi,
er haldið var þar í borginni og
stóð yfir um vikutíma.
Mr. Árni Helgason, frá Chicago.
111., kom til borgarinnar um síð-
ustu helgi.
Messur í Vatnabygðum sunnud
27. okt.: Mozart kl. 11 árd., Wyn-
yard kl. 3 síðd. og að Kandahar
kl. 7.30 síðd. — Samskot verða tek
in fyrir Heimatrúboð kirkjufé
lagsins, samkvæmt venju. Gjör-
ið svo vel og lesið aftur áskorun
séra Kristinn K. Ólafssonar, for-
seta kirkjufélagsins, og látið þessi
samskot verða eins rífleg og kring-
umstæður leyfa. Það er fagurt,
að verða öðrum að liði. “Þess
vegna skulum vér gera öllum gott
og einkum trúbræðrum vorum, eft
ir því sem vér höfum færi á.’
(Gal. 6, 10),
Með kærustu kveðju og innileg-
asta bróðurhug.
Yðar einlægur. Carl J. Olson.
Mr. N. J. Oliver, lögmaður fyr-
ir Soldier Settlement Board í
Saskatchewan fylki, kom tfl borg-
arinnar snöggva ferð á - þriðju-
dagsmorguninn. Er hann sonur
þeirra Mr. og Mrs. E. J. Oliver,
að 636 Sargent Ave. hér i borg-
inni. ',r,‘
öldruð kona í smábæ nálægt
Winnipeg, er býr ein og sér í húsi,
óskar eftir rosknum hjónum, eða
roskinrii konu, til dvalar með sér
yfir veturinn að minsta kosti.
Upplýsingar á skrifstofu Lög-
bergs.
Séra Haraldur Sigmar messar,
sunnudaginn hinn 27. þ.m.: í Vída-
línskirkju kl. 11 f. h., Mountain
kl. 3 e. h. og Gardar kl. 8 að
kveldinu.
Mr. S. S. Björnson, frá Mozart,
Sask., kom til borgarinnar í vik-
unni,sem leið, með konu sína, sem
er að leita sér lækninga.
Trúboðsfélag kvenna í Fyrsta
lút. söifnuði, heldur næsta fund
sinn á þriðjudagskveldið kemur
kl. 8, í húsi Mrs. R. Marteinsson,
493 Lipton St.
Mr. Guttormur J. Guttormsson
skáld, frá Riverton, hefir verið
staddur í borginni undanfarna
daga.
Prófessor Watson Kirconnell
talar í West End Labor Hall, Agn-
es Str., á mánudagskveldið hinn
4. nóvember kl. 8. Umræðuefni
hans verður: “The Poetry of Ice-
land’’, og er hann eins og kunnugt
er, afar fróður maður í þeim efn-
um. Aðgangur er ekki seldur og
engin samskot tekin.
Thur. Fri. Sat. This Week
See! Hear!
“ON TRIAL
JJ
100% All Taíking Vitaphone
Picture
with
LOIS WILSON — BERT LYTELL
Mon. Tue. Wed., Next Week
100% All Talking
“LIGHT FINGERS”
Featuring
1AN KEITH—DOROTHY REVIER
Added attraction—
Saturday Matinee Only:
WESTERN PICTURE
20 Passes Given to the Lucky
Children
SERIAL - - FABLES
Eins og lesendur Lögbergs rek-
ur minni til, gaf hr. Emile Walt-
ers listmálari, fyrir nokkru síðan,
Jóns Bjarnasonar skóla mynd, er
hann hafði málað, og lagði í vald
skólaráðsins hvað það gerði við
hana, eða hvernig það færi að gera
sér sem mest úr henni. Tók skóla-
ráðið það ráð, að efna til sam-
kepni, þannig að geta skyldi um
hve uppskeran í Sléttufylkjunum
þremur hér í Canada yrði mikil
árið 1928. Sá, sem næst komst
því rétta, var Mr. A. S. Bardal, og
var honum afhent þetta listaverk
á fimtudagskveldið í vikunni sem
leið. Var iþað gert í Fyrstu lút-
ersku kirkju eftir að séra K. K.
Ólafsson hafði flutt fyrirlestur
þann um ísland, sem getið er um
á öðrum stað hér í blaðinu.
Yfirlýsing
“Frá
Að gefnu tilefni (shr.
Halldóri Kiljan Laxness’
kringlu 16. þ. m.) lýsi eg undir-
ritaður því yfir, að eg hefi engan
þátt átt í því, að klaga H. K. Lax-
ness fyrir amerískum stjórnar-
völdum, eða í “fölsun þýðinga” á
greinum hans; eg hefi heldur
eigi veitt neinum manni “siðferði-
legan stuðning” til slíkra verka.
Sú ákæra í minn garð, er fram
kemur í ofannefndri grein, er því
eigi annað en rakalausar dylgjur,
að ekki sé sterkara að orði
kveðið.
Hinsvegar, sem flesta. mun reka
minni til, svaraði eg opinberlega
árásum Laxness á Bandaríkin.
Er eg enn sannfærðari en áður
um réttmæti afstöðu minnar til
deilumáls okkar.
The University of North Dakota,
Grand Forks, N. D.,
19. okt, 1929.
Richard Beck.
Winnipeg Electric Co.
Það er skoðun margra sérfræð-
inga, að notkun raforku, muni að
minsta kosti þrefaldast á næstu
tíu til fimtán árum.
Saga raforkunnar síðasta aldar-
fjórðunginn, gefur ástæðu til að
æ-tla, að þessi áætlan muni rétt
vera. En þrátt fyrir þetta, má svo
segja, að margt af því, sem ef til
vill má nota raforkuna til, sé enn
ósnert. Það er langt frá, að hún
sé enn notuð á heimilum og verk-
smiðjum eins og vera mætti, og
daglega koma í ljós ný og ný tæki-
færi til að færa sér í nyt þessa
miklu orku.
Smá raforkust.ðvar eru að
hverfa úr sögunni, en raforkan er
nú að mestu leyti fram leidd í stór-
um stíl og verður þar með bæði ó-
dýrari og ábyggilegri.
Enn er ekki hægt að gera sér í
hugarlund, hve miklu raforkan
muni síðar fá til vegar komið, en
sjálfsagt verður það margt og
mikið, og margt sem jafnvel hug-
sjónamennirnir geta enn ekki lát-
ið sig dreyma um.
Spilakvöld — Whist Drive —
verðun haldið í Goodtemplarahús-
inu næstkomandi laugardags-
kveld, þann 26. þ.m. Fyrirtaks-
verðlaun veitt, sex í alt. Fjöl-
mennið!
Wonderland Leikhúsið.
Kvikmyndin “Scarlet Seas” sem
sýnd verður á Wonderland þrjá
fyrstu dagana af næstu viku, er
ein af þeim myndum, sem mikið
þykir til koma, enda er hún bæði
falleg og skemtileg. Þar leikur
hin fagra mær, Miss Compson, sem
bæði er flestum konum fegurri og
þar að auki ágæt leikkona.
Mr. Jónas K. Jónasson, frá Vog-
ar, Man., er staddur í borginni.
Mr. A. M. Freeman, frá Siglu-
nes, Man., var í borginni á þriðju-
daginn.
Mr. S. W. Steinson, skólastjóri,
hefir verið kosinn forseti kenn-
arafélagsins í Wynyard skólaum-
dæminu.
16. þ. m. voru gefin saman
hjónaband af Rev. F. Hughes,
St. Albans kirkjunni hér í borg-
inni, þau Jóna Sæmundsson og
William Henry Wattis. Eftir
hjónavígsluna fór fram myndar-
leg veizla að heimili foreldra
brúðgumans, Mr. og Mrs.
Walker Leikhúsið.
Sir Martin-Harvey leikur næstu
viku á Walker leikhúsinu, aðal-
hlutverkið í leiknum “The Low-
land Wolf”, sem þá verður sýnd-
ur í fyrsta sinni í Winnipeg. Verð-
ur leikur þessi fyrst leikinn á'
mánudagskveldið hinn 28. þ. m. og'
svo á hverju kveldi alla vikuna og
einnig seinni part dags á mið-
vikudag og laugardag. Sir John
J Martin-Harvey, hefir sérstaklega
í j mikið tækifæri til að sýna sína
í | afar miklu hæfileika í þessum
leik og Lady Harvey sömuleiðis.
Mánudaginn, þann 4. nóvember,
og alla þá viku, leikur leikfélagið
Stratford-upon-Avon leiki eftir
Shakespeare, sinn leikinn hvert
Wm.: kveldið, og enn aðra tvo seinni-
Wattis, að 422 Glasgow ave. , þart dags á miðvikudag og laug-
j ardag. Þetta er alveg sérstaklega
'Stórt og bjart herbergi til leigu , gott tækifæri til að kynnast þess-
að 785 Home St. Hentugt fyrir j um stórmerkilegu leikjum, sem
tvo. Sími 27 551. grægir eru um heim allan.
Jóhannes Jóhannsson, aldraður
maður úr landnemahópi, andað-
ist á heimili tengdasonar sins,
Sigfúsar Björnssonar, bónda í
Fagranesi, í grend við Riverton,
15. okt, eftir langvarandi veikindi.
Jóhannes var fæddur á Vindheim-
um í Skagafjarðarsýslu, 26. nóv.
1838. Foreldrar hans voru Jó-
hann og Þóra kona hans, búendur
á Vindheimum. Jóhannes heit-
inn fluttist vestur um haf árið
1876. Hafði hann gifst stuttu áð-
ur en hann fór frá íslandi, Mar-
gréti Elinborgu, ættaðri úr skaga-
firði. Mun hann lengst af hafa
dvalið við íslendingafljót. —
Börn þeirra hjóna voru: Jóhann,
dáinn hér vestra 1895; Margrét
Sveinborg, giftist Sigfúsi Björns-
syni, þegar nefndum, dáin 1912;
Elínborg, giftist hérlendum manni,
dáin í maí 1923. — Jóhannes heit-
inn bjó lengi á Árhakka í grend
ið Riverton. Síðustu tvö ár æfi
sinnar, dvaldi hann hjá tengda-
syni sínum og hörnum hans, og
þar dó hann. Hann var jarðsung-
inn af séra Sigurði ólafssyni þann
17. október. Fór fyrst fram kveðju-
athöfn frá heimilinu og síðar frá
lútersku kirkjunni í Riverton.
Jóhannes var talinn, af þeim er
þektu hann vel, stiltur og rólegur
maður, er engan óvin átti. Háan
aldur sinn bar hann vel til síð-
ustu ára. Auk dótturbarna sinna,
er hann syrgður af aldraðri syst-
ur, Steinunni, konu Þorgríms á
Akri við íslendingafljót.
LÖGREGLA FLJÚGANDI.
Á komanda hausti verður hald-
inn alþjóðafundur lögreglumanna
í París. Þar koma fram tilögur
frá amerískri og enski lögreglu
um það, að leitt skuli samvinnu
meiri en verið hefir milli lögreglu
manna allra landa, er hafi mið-
stððvar þrjár, eina í Evrópu, aðra
í Norður-Ameríku, þriðju Suður-
Ameríku. Flokkur færustu lög-
reglumanna sé í þjónustu þessa
sambandsj- og hafi þeir flugvélar)
til taks til þess að bera sig yfir.
Fyrverandi lögreglustjóri í New
York, Richard Enright, heldur því
fram, að nauðsyn sé á samvinnu
þessari. Glæpamenn vaði alt af
meira og meira uppi, og verði því
stórtækari og hattulegri, sem þeir
fá fullkomnari tæki í hendur. Nú
geti þeir notað flugvélar, bíla, raf-
tæki allskonar, loftskeyti og ýms
stórvirk efni, sem áður voru ó-
kunn. En einkum og sérílagi eru
það bílarnir, sem gefi glæpamönn-
unum oft tækifæri til að komast
undan.
Mest kveður, sem kunugt er, að
glæpamönnum og spellvirkjum
þeirra í Ameríku. Þar eru bíla-
þjófar á hverju strái.
Við því nær alla glæpi eru bíl-
ar að einhverju leyti notaðir.
Verzlun með stolna bíla er og rek-
in í stórum stíl, og er áætlað, að
um ein og hálf miljón stolinna híla
sé nú í notkun í heiminum.—Lesb.
3000 stríðsfangar í Síberíu.
Þann 5. sept. birti austurríska
blaðið Neue freie Presse þá fregn,
að austur í Síberíu væru enn þanr.
dag i dag 3,000 ungverskir stríðs-
fangar, er enn hefðu ekki verið
látnir vita, að ófriðnum væri lok-
ið. Hefir Rauði Kross Ungverja-
lands og aðrir málsmetandi menn
þar í landi reynt að fá rússnesku
stjórnina til þess að senda menn
þessa heim, en ráðstjórnin hefir
ekki fengist til þess enn. Er gisk-
að á, að Rússar ætli að halda þess-
um mönnum í gisling, til þess
frekar að geta fengið Ungverja til
þess að ganga í stjórnarsamband
við sig. — Mgbl.
REGNBOGINN.
Komistu’ undir endann,
er óskastundin þín,
þú eignast alla heima,
og alt það gull, er skín.
En veiztu, að þeim enda
er ekki gott að ná,
hann flýr þér ávalt undan
yfir lönd og sjá.
Þú eltir alt til grafar
og aldrei honum nærð,
en ef til vill í öðru lífi
óskir þínar færð.
Böðvar frá Hnífsdal.
—Les.
Pálmi Pálmason
Violinist and Teacher
654 Banning Str.
Phone 37 843
Mrs. B. H. OLSON
Teacher of Singing
5. St. James Place
Phone: 35 076
Ragnar H. Ragnar
Píanókennari
Nemendur, er njóta vilja píanó-
kenslu hjá Ragnari H. Ragnar,
geta byrjað nú þegar. — Nem-
endur búnir undir öll próf, bæði
byrjendapróf og A. T. C. M.
Allar upplýsingar gefnar að
kenslustofu 693 Banning St.
Phone: 34 785.
Mrs. M. W. DALMAN
Teacher of Pianoforte
778 Victor St.
Phone; 22 168
PRINCESS FLOWER SHOP
Laus hlóm—Blóm í pottum
BlÖmskraut fyrir öll tækifæri
Sérstaklega fyrir jarCarfarir.
COR. SARGENT and VICTOR
Bhone 36 102
Björg Frederickson
Teacher of Piano
Suite 7, Acadia Apts.
Telephone: 72 025.
Guðrún S. Helgason, A.T.C.M
kennari í
Píanóspili og hljómfræði
(Theory>
Kenslustofa:
540 Agnes St/ Fónn: 31 411
100 herbergi,
með eða án baðs.
Sanngjarnt
verð.
SEYMOUR HOTEL
Sírni: 28 411
Björt og rúmgóð setustofa.
Market og King Street,
C. G. Hutchison, eigandi.
Winnipeg - Manitoba
r s
SAFETY TAXICAB C0. LTD.
Beztu bílar í ▼•röldinni
Til taks dag og nótt. Sann-
gjamt verð. Sími, 23 309.
Afgreiðsla: Leland Hotel.
N. CHARACK, forstjóri.
Eina hótelið er leigir herbergi
fyrir $1.00 á dag. — Húsið eld-
trygt sem hezt má verða. —
Alt með Norðurálfusniði
CLUB HOTEL
(Gustafson og Wood)
6 52 MainSt. Winnipeg
Ph. 25 738. Skamt norðan vi.’.
C.P.R. stöðina. Reynið oss.
FUNDARBOÐ
Nefndin, sem kosin var til þess að leita samkomulags við
bygðir Vestur-íslendinga um hið fyrirhugaða hátíðahald hér
vestra næsta ár, boðar hér með til almenns fundar í Good-
Templarahúsinu á Sargent Ave., mánudagskveldið þann 28.
yfirstandandi mánaðar, kl. 8.
Á fundinum verður skýrt frá, hvaða undirtektir nefndin
hefir fengið í bygðum Vestur-íslendinga.
Áríðandi er, að sem flestir sæki þenna fund, því ef efna á
til hátíðahalds hér að sumri, verður að kjósa aðal-nefnd á
þessum fundi, sem getur undir eins byrjað að starfa.
W. J. Lindal.
J. J. Samson.
H. M. Hannesson.
Sig, Bjömsson.
G. B. Magnússon.
Fáið Kolin, Áður En
Kuidinn Kemur.
Kaupið eldiviðinn til
vetrarins nú strax, áð-
ur en of mikið er að
gera, og komið í veg
fyrir öll óþægindi, sem
annríkinu fylgja, þegar
frost og snjóar koma.
Og auðvitað er Arctic
afgreiðslan bezt, eins
og ávalt. Símið til
r^ARCTIC..
ICEsFUEL CCLUDl
439 POftTACE AVt.
OwoiP?g Hudson* Ap-GM
PHONE
Fegurð, Fullkomnun, Hagnaður,
eru einkenni á hinni nýju
GAS ELDAVÉL
Miklum framförum hefir tilbúningur gas eldavéla tekið.
Oss er ávalt ánægja, að þér komið og skoðið þær í
vorri nýju áhaldabúð í
POWER BUILDING, I’ortage og Vaughan
Hægir borgunarskilmálar.
Tvær aðrar búðir: 1841 Portage Ave., St. James;
Marion ó Tache, St. Boniface.
WIHKIPEGELECTRÍC
COHPANY
Your Guarantee of Good Service.”
VANTAR 50 MENN
um, er
samsuðu,
Vér greiðum 50c á klukkustund
fyrlr yfirvinnu þeim næstu 50 mönn-
nema hjá oss meðferð dráttarvéia, raffræði, vulcanizing,
rakaraiðn, lagning múrsteins og plastringu. petta er sér-
stakt tilboð til að hjálpa ungum áhugamönnum til að fá velborgaða
vinnu. ökeypis leiðbeininga bæklingar. Skrifið, eða komið inn.
DOMINION TlíADE SCHOOLS
A Demand £or Secretaries and
Stenographers
There is a keen demand for young women qualified to assume
stenographic and secretárial duties. Our instruction develops the
extra skill required for the higher positions, and assures your rapid
advancement. It gives you the prestige of real college training, and
the advantage of facilities no ®ther institution can duplicate.
Shorthand for Young Men
For young men who can write shorthand and do typewriting
accurately and rapidly, there is a greater demand than we can supply.
Male stenographers come cjirectly in touch with managers and,
through this personal contact, they soon acquire a knowledge of
busmess details, which lay the foupdation of their rapid advancement
to higher positions. We strongly urge boys of High School education
toi study Shorthand and Typewriting. Male Stenographers are scarce.
There ís also a splendid demand for Bookkeepers and Accountants.
ENROLL AT ANY TIME
Day and Night Classes
Corner Portage Ave. and Edmonton St.
WINNIPEG Plione: 25 843
MANITOBA