Lögberg - 28.11.1929, Blaðsíða 4

Lögberg - 28.11.1929, Blaðsíða 4
Blt». 4. LÖGBERG, FIMTUDiAGINN 28 NóVEMBER 1929. Xögtjers Ghefið út hvem fimtudag af The CoU umbia Press, Ltd., Cor. Sargent Ave. og Toronto St., Winnipeg, Man. Talsímar: 86 327 og 86 328 Einar P. Jónsson, Editor Utanáakrift blaðsins: The Columbia Press, Ltd., Box 3172 Winnipeg, Man. Utanáskrift ritstjórans: Editor Lögberg, Box 8172, Winnipeg, Man. Ver5 $3.00 um árið. Borgist fyrirfrajn. The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press, Limited, in the Columbia X Building, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba. || ><x=xxD Bœjarstjórnarkosningarnar Eins og þegar er kunnugt, fóru fram bæjar- stjórnarkosningar í Winnipeg, síðastliðinn föstudag. Voru þær sóttar af langtum meira kappi, en alment gerist, og bar slíkt óneitanlega vott um aukinn áhuga á meðferð bæjarmálefna. Þannig átti það líka að vera, og ætti ávalt að vera, því of seint er að byrgja brunninn, þegar barnið er dottið ofan í hann. Afstaða vor til nýafstaðinna kosninga, er þegar kunn. Oss skildist þá, og skilst vitanlega enn, að eins og málefnum bæjarins var skip- að, eða öllu heldur meðferð þeirra, hlyti það að verða borgarbúum fyrir beztu, að fylkja liði um Ool. Webb, og menn þá hina aðra, er buðu sig fram og hölluðust á sömu sveif og hann, með tilliti til athafnalífs borgarinnar. tírslit kosn- inganna leiddu það ótvírætt í ljós, að þannig leit stórkostlegur meiri hluti kjósenda á málið. “Það er svo bágt að standa í stað og mönnunum munar annað hvort aftur á bak, ellegar nokkuð á leið.” Kyrstaðan í athafnalífi Winnipeg-borgar, var orðin slík, að alvarlega hugsandi mönnum kom saman um það, að við svobúið mætti ekki lengur standa. Og með það fyrir augum, að veita, ef auðið yrði, nýju, ólgandi blóði, inn í setinrunnar æðar sofandi bæjarráðs, var myndaður félagsskapur sá hinn nýi, er “The Civie Progress Association,, nefnist, með Col. Webb í broddi fylkingar. Óx félagsskap þeim á fáum dögum svo fiskur um hrygg, að hann eigi aðeins fékk Col. Webb kosinn til borgar- stjóra með miklu afli atkvæða umfram þá tvo keppinauta, Mr. Hyman og Mr. McLean, er gegn honum sóttu, heldur einnig þá menn alla aðra, er buðu sig fram upp á sömu stefnuskrá og kosningar leituðu til bæjar og skólaráðs. Liggja þeir-nú flestir óvígir í valnum, er alt vildu láta hjakka í sama* farinu, úrræðalausir og áræðislausir, rígbundnir á erfikláfa aftur- halds og kyrstöðu. tírslit síðustu bæjarstjórnar kosninga, hefðu ekki átt að koma einum einasta, heilskygnum manni á óvart. Fyrirbrigði þau, er í bæjar- stjóminni höfðu gerst á ári því, sem nú er senn á enda runnið, voru slík, að ekki gat komið til nokkurra mála, að kjósendur léti þau eins og vind um eyru þjóta. Nægir í því efni, að benda á afskifti bæjarstjórnar af sýningarmálinu. 1 marzmánuði síðastliðnum, var það borið undir úrskurð kjósenda 'hér í borginni við al- menna atkvæðagreiðslu, hvort veitt skyldi $850,000 lánsheimild í þeim tilgangi, að koma á fót iðnsýningu og afla henni nauðsvnlegra bygginga. Var gjaldendum enn fremur falið að skera úr því, hvort tekin skyldi á leigu til afnota fyrir sýninguna, landspilda í West Kil- donan, er fyrir flesra hluta sakir þótti einn allra hentugasti staðurinn af þeim, er úr var að velja. Við atkvæðagreiðsluna fóru leikar þannig, að lánsheimildin var samþykt, sem og staður sá, er sýningin skyldi haldin á, með miklu afli atkvæða. Eftir að málinu var nú þannig skipað, munu víst flestir hafa litið svo á, að sýningunni væri að fullu borgið, og að verk yrði hafið á bygg ingunum á öndverðu því sumri, sem nýlega er um garð gengið. Mun fáum hafa til hugar kom- ið þá, að skýlaus réttindi kjósenda, yrðu skömmu síðar svo herfilega undir fótum troðin, sem raun varð á. Það lætur dálítið undarlega í eyra, að sömu mennirnir, er hæzt hafa galað um athafnaleysi, hug^anafrelsi og lýðfrelsi yfirleitt, skyldu verða fyrstir til að gefa slíkum hugsjónum svona átakanlegt glóðarauga. Lýð-atkvæði (referendum), hefir nú um all- langt skeið, verið skoðað sem fjöregg frjáls- mannlegs stjórnskipulags. Tilgangur þess, er hærra og göfugra eðlis, en svo, að verjanlegt sé, að hafa þá hugsjón að pólitiskum fótbolta. En það er einmitt það, sem bæjarstjórnin gerði, og þess vegna var ekki nema eðlilegt, að kveð- inn yrði upp yfir henni þungur áfellisdómur. Enda sýndu verkin merkin, síðastliðinn föstu- dag. Forustu bæjarmálanna hefir með höndum næsta ár, Col. Ralph Webb. Hann hefir áður gegnt Jjorgarstjóraembætti í þrjú kjörtímabil. Og þótt vafalaust megi sitthvað að ráðsmensku hans finna, þá verður því samt ekki neitað, að hann sé áhugasamur athafnamaður, er fyrir brjósti ber eðlilegan vöxt og viðgang borgar- innar. Ekkert getur honum verið fjarri skapi, en kyrstaðan og athafnaleysið. Þess vegna líka vann hann þann glæsilega kosningasigur, er raun varð á. í fyrstu kjördeild féllu í val tveir fulltrúar, er um nokurt ára-skeið hafa átt sæti í bæjar- ráðinu, eða þeir Mr. P’’armer, fyrrum borgar- stjóri, og Mr. Leonard. 1 þeirra stað náðu kosningu, Mr. L. F. Borrowman, verkfræðingur, og Mr. C. E. Simonite, fasteignakaupmaður. Auk þess sendi sú kjördeild í bæjarstjóm, Mr. Herbert Andrews, lögmann. í annari kjördeild biðu ósigur tveir fulltrú- ar hins gamla skóla, þeir Mr. F. H. Davidson og Mr. John O’Hare. 1 þeirra stað vora kosnir þeir Ralph Maybank lögmaður og J. A. Ro- berts lyfsali. Þriðji fulltrúi þeirrar kjördeild- ar, verður Mr. Flye, einn af frambjóðendum hins óháða verkamannaflokks, er með naum- indum náði endurkosningu. Til skólaráðs í þeirri kjördeild voru kosnir sömu fulltrúar, W. R. Milton, Dr. Warriner og Mrs. McLennan. Þriðja kjördeild endurkaus alla sína fyrri bæjarfulltrúa, eða þá Barry, Blumberg og Dur- ward. 1 skólaráð kaus sú kjördeild: Dr. Mc- P,arlen, Mrs. Mary Lowe og Ed. McGrath. — í fyrstu kjördeild var kosinn einn nýr skóla- ráðsmaður, Mr. Manahan. Af úrslitum síðustu kosninga, er það sýnt, að kjósendur Winnipegborgar vilja eigi láta það viðgangast, að ráðhúsið verði gert að nokkurs konar elliheimili, eða að þangað verði sendir menn af gömlum vana. Þeir krefjast manntaks og framkvæmda, í stað kyrstöðu og úræðaleysis. Hinn nýkosni borgarstjóri, tekur við völdum með nýárinu, sem og pieiri hluti sá í bæjarráð- inu, er honum fylgir að málum. Allir hafa þeir menn, er þann meirí hluta skipa,* öflugt umboð frá kjósendum bæjarfélagsins. Er von- andi, að þeir beiti því þannig, að bæjarfélaginu verði til sæmdar og varanlegra heilla. Að elska land sitt Eftirfarandi greinarkorrt, birtist nýverið I tímaritinu Westera Home Monthly. Virtist oss innihald þess slíkt, að vel væri, að athygli yrði á því vakin, meðal íslenzkra lesenda: “Jafnvel þótt á málin sé litið frá sviði heimsborgarans, þá elska menn þó föðurlandið á sinn sérkennilega hátt. “Canadamönnum svipar að sjálfsögðu til annara þjóða manna í þessu tilfelli, þótt ást þeirra til landsins sé, af góðum og gildum á- stæðum, jafnvel enn ákafar, en venja er til. “ Svo má heita, að Canada sé um þessar mund- ir hið útvaldasta land allra landa; þangað piæna nú öll augu, sökum þess hve frjálst það er að stjórnarfari, og auðugt frá náttúrunnar hendi, Og síðast, en ekki sízt, er það vistarvera hinna mörgu mismunandi þjóðflokka, er hver um sig leggur fram sinn mikla skerf til myndunar vold- ugri stórþjóð. “Stjórnarfar landsins, er í eðli# sínu frjáls- mannlegt. Alræðisdrotnun kemst þar hvergi að. Rödd fólksins, er rödd guðs. “Miðstjóm landsins, það er að segja sam- bandsstjórain, þröngvar engri löggjöf upp á fylkin, heldur hafa þau sjálf óhindrað áforms- og athafnafrelsi viðvíkjandi öllum sínum sér- malum. Dómstólar þjóðarinnar eru öldungis óháðir allri íhlutun pólitisku flokkanna. Skól- arnir viðurkenna eigi þjóðflokkamun né stétta- mun, þó í einstaka stað sé trúarbragðaleg skift- ing tekin til greina, samkvæmt fyrirmælum gam- allar löggjáfar. “Það er ekki að ástæðulausu, að vér finnum til metnaðar yfir því, að Canada er vort eigið land, og þeim metnaði hlýtur að sjálfsögðu að vaxa fiskur um hrygg. eftir því, sem lengra líður fram í t.ímaun.,> Eplaframleiðslan í Canada Ein meðal þeirra mörgu framleiðslutegunda hér í landi, sem jafnt og þétt er að færa út kví- amar, er eplaframleiðslan. Njóta canadisk epli nú orðið svo góðs álits á heimsmarkaðinum, að þau eru ávalt talin til fyrsta flokks. Aðallega eru það þrjú fylki, er þessa vöru- tegund framleiða, það er að segja Ontario, Nova Scotia og British Columbia. Til þess að útvíkka markaðinn fyrir canadisk epli, og þá ekki hvað sízt á brezku eyjunum, hefir nefnd sú, er Empire Marketing Board nefnist, beitt sér mjög fyrir að auglýsa þau. Er gizkað á, að les- endafjöldi þeirra blaða, er auglýsingar flytja um canadisk epli, nálgist nítján miljónir. Aug- lýsingar þessar láta þess getið,, að fyrstu epla- farmar héðan, komi venjulegast til Englands í septembermánuði, en mest sé þó um útflutning þeirra í nóvember. Vert er, að þess sé getið, að til viðbótar við auglýsingarnar frá Empire Marketing nefnd- inni, auglýsir félagsskapur eplaframleiðend- anna sjálfra einnig allmikið þessa framleiðslu- tegund, sem og landbúnaðardeild sambands- stjórnarinnar. Xlm þessar mundir, er verið að útbýta á Bretlandi, nokkurskonar forskriftabækling í sambandi.við notkun canadiskra epla í nýja rétti. Er þess vænst, að slíkt beri drjúgan á- rangur, og auki allmjög innflutning epla héðan úr landi til brezku eyjanna. P'llokkun canadiskra epla, er nú orðin slík, að einungis úrvalstegundir koma á heims- markaðinn. Svo á það líka að vera. Markaður fyrir úrvals framleiðslutegund- ir, lokast aldrei, og þess vegna þurfa canadiskir eplaframleiðendur ekkert að óttast, ef þeir vanda eins vöru sína í framtíðinni og þeir hafa gert í liðinni tíð. Kosningar í Bifröát * ■ ■■■ Næstkomandi föstudag, fara fram kosningar í Bifröst sveit. Til oddvita býður sig fram að nýju, hr. Sveinn Thorvaldson, kaupmaður í Riverton, atorkumaður hinn mesti, og þaulvan- ur meðferð sveitarmála. Lesendum þessa blaðs, stendur^ það vafa- laust enn í fersku minni, hve heitar urðu kosn- ingarnar í Bifröst, árið sem leið, er um það var barist, hvort sveitin ætti að selja af hendi sjálfsíorræði sitt, eða ekki. Vér vorum þeirrar skoðunar þá, og erum sömu skoðunar enn, að slíkt afsal hefði orðið hið mesta glapræði, ósam- boðið heilbrigðum metnaði dugandi Islendinga, og óverjandi frá sjónarmiði þess sögulega ljóma, er hvílt hefir yfir þessari fögru frum- bygð Islendinga í Vesturvegi. Við kosningarnar í fyrra, bar manndóms- stefnan hærra hlut, en afmönnunarstefnan var kveðin niður. Hr. Sveinn Thorvaldson var kjör- inn til oddvita, og með atbeina samverkamanna sinna í sveitarráðinu, lánaðist honum að fá sveitinni skift þannig, eða réttara sagt sniðið utan af henni, að nú stendur hún að öllu leyti betur að vígi. Ætla mætti, eftir þrekvirki það, er unnið var í ár, hvað skifting Bifrastarsveitar áhrær- ir, að hr. Sveinn Thorvaldson myndi að þessu sinni, verða kosinn gagnsóknarlaust. En því er samt ekki að heilsa. Á elleftu stundu, var send- ur út tili höfuðs honum, lítt þektur maður í sveitinni. Hverjir sendu hann út? Uppgjaf- armenn, eða hvað? Að þessu sinni, eins og reyndar endranær, er vissara að vaka á verði. Oss er sagt, að snjór mikill sé í Bifröst sveit um þessar mundir, og þar af leiðandi ilt um- ferðar. Samt treystum vér því, að íslenzkir kjósendur þar í bygðinni, láti það ekki aftra sér frá því að sækja kjörstað, og greiða atkvæði með hr. Sveini Thorvaldsyni. Johannes Erhardt Böggild Þann 23. nóvember síðastliðinn, andaðist í Montreal, Canada, hinn danski alræðismaður, Johannes Erhardt Böggild, af hjartasjúkdómi. Hafði hann verið lasinn um mánaðartíma, en sá lasleiki var alls ekki talinn hættulegur. Dauði herra Bögilds, var því mér, og líklega mörgum öðrum, sem hann þektu, mjög óvænt- ur, eins og oft vill verða. Fráfall hans er því sviplegt og sorglegt. Eg sakna hans mjög mik- ið. Hann var mér í allri viðkynning, sem alda-. vinur, en ekki sem yfirboðari. Þótt kynning okkar væri bygð eingöngu á bréfaviðskiftum, þar sem við höfðum að eins mætt hvor öðrum tvisvar, var hún einlæg og sönn. Maðurinn var í alla staði prúðmenni. Hann var sannur vin- ur Islands og alls þess, sem íslenzkt er. Taldi sig vera af íslenzku kyni, og mun svo hafa ver- ið, þótt það væri sótt langt aftur í tímann. Eg get, því miður, ekki ættfært hann. Það munu þeir gera, er til hans þektu frekar en eg. Eg get aðeins sagt, hvernig hann reyndist mér; en af því má draga, að svo hefir hann reynst öðrum. Embættisverk sín framkvæmdi hr. Böggild með trúmensku og lipurð, en aldrei með vald- boði. Væri hann ekki viss í sinni sök, gat hann um það, og leitaði ráða. Hann var lítillátur, drenglyndur og sanngjam. Var mjög ásælinn { velvild allra manna, sem hann hafði mök við, enda mun hann hafa verið vinsæll, hvar sem hann var þektur. í “Iceland Yearbook”, 1927, standa eftir- greind ummæli um hr. Böggild: “Þótt danskir embættismenn, er það hlut- verk hafar jafnframt haft með höndum, að gæta hagsmuna íslendinga erlendis, hafi yfirleitt reynst vel, þá hafa þó ýmsir skarað fram úr í þessu tilliti. Meðál þeirra má telja Mr. Böggild, er nýtör þéirra óvanalegu forréttinda, að vera gagnkunnugur íslenzkum staðháttum, og njóta sín ágætlega á íslenzka tungu. Ahugi hans á Islandsmálum, og ást til íslenzku þjóðarinnar, hefir fylt hjörtu Islendinga djúpu þakklæti.” Herra Bögild var ræðismaður á Islandi í fjögur ár. Það tímabil sagði hann vera hið farsælasta og unaðsríkasta á æfi sinni og ósk- aði einskis fremur, en að það ætti fyrir sér að liggja, að eiga þar heima í annað sinn. A. C. Johnson. Canada framtíðarlandið Svo má heita, að sama regla gildi í Alberta og hinum fylkjum sambandsins, að því er útmæling áhrærir. Var byrjað að mæla frá landamerkjalínu Bandaríkjanna. Hin stærri útmældu svæði, er seciion, eða fermílur af landi, er taka yfir 640 ekrur. Sérhvert township, þannig mælt út, inni- heldur 36 sections, eða 23,000 ekr- ur. Spildum þeim, er sections kallast, er svo aiftur skift í fjórð- unga, eða 160 ekra býli. Héraðsvegir í fylkinu mega á- gætir kallast, enda hefir verið til þeirra varið miklu fé, bæði frá sveita, sambands og fylkisstjórn- um. Fylkið saman stendur af borg- um, bæjum, þorpum og sveitar- félögum, er hafa sína eigin fram- kvæmdarstjórn, að því er heima- málefni áhrærir. Alls eru sex borgir í fylkinu. Er þeim stjórn- að af borgarstjóra og bæjarráðs- mönnum, kjðrnum í almennum kosningum. Þó er stjórnarfyr- irkomulag borganna sumstaðar talsvert mismunandi. Sérhverri borg er stjórnað samkvæmt lög- giltri reglugjörð eða grundvallar- lögum. — Bæjum er stjórnað af bæjarstjórn og sex fulltrúum, en þorpunum stýra oddvitar ásamt þrem kosnum ráðsmönnum. — Lög þau, eða reglugerðir, sem bæjum og þorpum ber að hegða sér eftir, nefnast The Town Act og The Village Act. Sveitarfélög eru löggilt af fylkisstjórn, eða stjórnardeild þeirri, er með höndum hefir eft- irlit með héraðsmálefnum — Municipal Affairs — samkvæmt bænarskrá frá kjósendum, er í bygðarlaginu eiga dvöl. Sveitar- félagi er stjórnað af sex þar til kjörnum ráðsmönnum, og er for- maður þeirra nefndur sveitarodd- viti. Sveitarfélög, sem eru að byggj- ast en haifa eigi hlotið löggild- ingu, standa undir beinu eftirliti fylkisstj ómarinnar. Eins og í hinum Sléttufylkjun- um, er að finna í Alberta allar nútíðar-menningarstofnanir, svo sem bókasöfn, sjúkrahús, skóla og kirkjur. Eru barna og unglinga- skólar í hverju löggiltu bæjar- eða sveitarfélagi, svo og gagnfræða- skólar, kennaraskólar, iðnskólar; enn fremur lándbúnaðar og verzl- unarskólar, er njóta góðs styrks frá stjórninni. Skólahéruð má stofna, þar sem eigi búa færri en fjórir fast-búsettir gjaldendur, og eigi tfærri en átta börn frá fimm til átta heimilum. Skylt er öllum foreldrum að láta böra sín sækja skóla, þar til þau hafa náð fimtán ára aldri. Heimilað er og sam- kvæmt lögum að láta reisa íbúð- arhús handa kennurum á kostnað hins opinbera, þar sem svo býður við að horfa, og nauðsynlegt þyk- ir vera. Sikólahéiruðum fer fjölgandi jafnt og þétt, og er ekkert til sparað, að koma mentastofnunum fylkisins í sem allra bezt horf. Á landbúnaðarskólunum nema bændaefnin vísindalegar og verk- legar aðferðir í búnaði, en stúlk- um er kend hússtjórn og heimilis- vísincíi. Réttur minnihlutans er trygð- ur með sérskólum, sem standa undir eftirliti fylkisstjórnarinn- ar, enda verður auk hinna sér- stöku greina, að kenna þar allar hinar sömu námsgreinir, sem eru kendar í skólum þeim, sem eru fylkiseign. í borgum og bæjum eru gagn- fræða og kennaraskólar og í sum- um þorpum einnig. — Mentamála- deild fylkisstjórnarinnar hefir að- al umsjón með skólakerfinu, ann- ast um að fyrirmælum skólalag- anna sé stranglega framfylgt. — Þnír kennaraskólar eru í fylkinu: í Edmonton, í Calgary og í Cam- rose. Verða öll kennaraefni, lög- um samkvæmt, að ganga á náms- skeið, þar sem kend eru undir- stöðúatriði í akuryrkju. Háskóli í Alberta er í Spður- Edmonton. Eru þar kendar allar algengar vísindagreinar, er kraf- ist er að þeir nemi, er embætti vilja fá í þjónustu hins opin- bera. í fylkinu eru sex skólar, er það sérstaka verkefni hafa með hönd- um, að veita sveitapiltum og stúlkum tilsögn í grundvallarat- riðum landbúnaðarins, svo sem akurjrrkju, húsdýrarækt, mjólkur- meðferð og ostagerð, enn fremur bókfærslu, er við kemur heimilis- haldi. Skólar þessir eru í Ver- million, Olds, Claresholm, Ray- mond, Gliechen og Youngstown. Námsskeið fyrir bændur eru haldin á ári hverju við landbún- aðarskólana, og fer aðsókn að þeim mjög vaxandi. Um skóg- og trjárækt á Islandi Eg hefi heyrt, og nokkuð lesið um, að í vestur-íslenzkum blöð- um sé mikið rætt um skógrækt á íslandi, og að Vestur-íslendingar ættu að stuðla að því, að hafist yrði handa á því merkisári 1930 til að klæða landið á ný. Sérstaka eftirtekt mína vakti grem B. Magnússonar í Lögbergi 11. júlí í ár, og það er hún, sem hvetur mig til að segja nokkur orð um þetta málefni, og það af þeirri á- stæðu, að eg um nær 30 ára skeið hefi haft tækifæri til að faia um. allar sveitir landsins fram og aft- ur, séð skógarleifarnar, og alt, sem gert hefir verið að ræktunar- umbótum hér á landi. Um alda- mótin og fyrsta áratug aldarinn- ar, vann eg nokkuð að skógrækt. Síðan hafa önnur störf tekið mest af mínum starfskröftum, og það þótt hugsjónin um að klæða fóst- urjörðina sé mér kærust.. En þá talað er um að klæða landið að nýju, kemur fleira til greina en skógurinn. Sandauðnunum og, blásnu svæðunum, þarf fyrst að breyta í gróið land, , áður en trén koma. Mýrar, móa, holt og mela á alt að gera að ræktuðu landi, túnum og áveituengjum. Á öllu þessu er byrjað, en snúum oss að skógræktinni. Það, sem þar kemur til athug- unar, eru möguleikarnir til skóg- eða trjáræktar á íslandi og hverj- ar leiðir á að fara til að klæða landið á ný. Þessi atriði skulu stuttlega athuguð. Möguleikar til skógræktar á ís- landi: Alkunna eru þau orð, er standa í íslendingabók: “1 þann tíþ var ísland viþi þakið milli fjalls og fjöru.” Vér álítum, að í þessari sögn séu mikil sannindi, og miklar lík- ur til að alt harðvelli hafi verið viði vaxið, hátt upp eftir fjalls- hlíðum. Jarðvegurinn ber þess ó- rækan vott. Hinir stærri, mýrar- flóar hafa að sjálfsögðu eigi verið skógi vaxnir. Þessi skoðun styðst og við þá staðreynd síðari ára, að þar sem friðaðar hafa verið skóg- arleifar, þá vex skógurinn fljótt og breiðist út. En sá munur á útliti landsins, ef mikill hluti þess væri viði vax- inn. Horfum í anda á hlíðina skógivaxna upp á fjallabrúnir, eða bera og blásna með grófum og skriðum. Sjáum yfir hæðirnar skrúðgrænar, þar sem lim trjánna hreyfist fyrir hinum minsta vind- blæ, og þar sem ár, lækir og foss- ar glitra í sólskini óg kveða sína fögru söngva. Eða þar sem vatn spegilfagurt er kringt skógivöxn- um hæðum, og þar sem firðir, vogar og víkur mæta viðiklædd- um hæðum. Raunalegt er aftur að sjá alt bert og blásið. Litklæðin foru eru horfin. Leif- ar af tötralegum búningi komnar í staðinn. Nú er útlit landsins orðið breytt. Þúsund ára ráðyrkja hef- ir breytt hinum fögru og heilu klæðum fósturjarðarinnar í slitna garma. Á stöku stað eru enn fagr- ir blettir, en víðast er -éróðurinn þroskaminni eða gjöreyddur. Alt á þetta rót sína að rekja til hvarfs skóganha. Vér ætlum oss eigi að rekja raunasögu skóganna, sem að minstu á rót sína að rekja til ó- blíðrar veðráttu, heldur hefir hvarf þeirra hlotist af völdum feðra vorra. Skógarnir hafa ó- spart verið höggnir, bæði til kola- gerðar og efniviðar 1 hús og verk- færi. Sauðfé hefir gengið í þeim og valdið þar mikilli eyðilegg- ingu, einkum í hörðum árum, þá eigi varð náð til annars en hinna efstu greina. Á 17. og 18. öld voru skógarnir á íslandi mjög gengnir til þuröar. Þá voru og búsifjar þjóðarinnar hinar erfiðustu. Á 18. öldinni eru gerðar ýmsar tilraunir til umbóta á íslandi. Þá koma fram hug- myndir um að fara að klæða land- ið að nýju, fara að rækta skóg. Nokkrar tilraunir eru gerðar, meðal annars af hinum kunna garðyrkjufrömuði, iBirni Hall-

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.