Lögberg - 09.01.1930, Blaðsíða 8
Bls. 8.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN
9. JANÚARÚ 1930.
Veitið athygli! Konur, sem bakið
ROBIN HOOD VINNUR MIKINN SIGUR
GIILL MEDALIA
SILFUR MEDALIA
75 FYRSTU VERDLAUN
164 VERDLAUN í ALT
Þessi verðlaun voru ufínin fyrir sýnishorn af brauð-
um, er bökuð voru úr Robin Hood mjöli, og sýnd á
sýningunum í Calgary, Edmonton, Regina, Saskatoon,
Prince Albert, North Battleford og Brandon. Verð-
laun þessi voru fyrir 35 tegundir af brauði og krydd-
kökum, í strangri samkepni við margar aðrar mjöl-
tegundir. Á hverjum degi berast oss fregniy um að
Robin Hood hafi unnið verðlaun á ýmsmum smærri
sýningum.
RobínHood
FI/OUR
1 BEZTU BRAUÐIN KÖKUR OG KRYDDBRAUÐ
Ur bænum
Mr. Egill H. Fáfnis, guðfræða-
nemi, var stadur í borginni fyrri
part vikunnar.
Sunnudaginn 22. des., voru þau,
Ólafur Brandson, frá Winnipeg,
og Eirikka Guðmundson, frá
Lundar, gefin saman í hjónaband
af séra^Rúnólfi Marteinssyni, að
493 Lipton St. Heimili þeirra
verður í Winnipeg.
Ráðskona óskast á gott íslenzkt
bændahejimili í ISaskatchewan.
Upplýsingar veitir Miss Goodman,
316 Avenue Block. Sími 86 045.
Bjart og rúmgott herbergi með
.húsgögnum, fæst til leigu nú þeg-
ar, að 457 Sherbrooke St. Sími:
36 763.
Mrs. Ingvar Gíslason, frá Reykja-
vík, Man., var stödd í borginni í
vikunni sem leið, og dóttir henn-
ar.
Ráðskona óskast.
Ekkjumaður, búsettur 3 mílur
frá bæ, óskar eftir ráðskonu nú
þegar. Upplýsingar á skrifstofu
Lögbergs.
Hörgdal — Núpdal.
31. des. vou þau Árni Sigurðs-
son Hörgdal og Elísabet Guðrún
Núpdal, gefin saman í hjónaband
af séra Carli J. Olson á heimili
hans að Wynyard, Sask. Foreldr-
ar brúðurinnar eru búsett nálægt
Mozart, Sask., og heita: Stefán
B. Núpdal og Stefanía Grímsson
Núpdal. Foreldrar brúðgumans
eiga heima í grend við Elfros,
Sask., og heita: Jón Hörgdal og
Kristrún Hólm Hörgdal.
Brúðhjónin eru myndarlegar
manneskjur og eiga marga vini
hér í bygð, sem óska þeim til
heilla og hamingju alla ókomna
æfidaga og hvert samleiðarspor.
Carl J. Olson.
Hinn 30. des. síðastl. andaðist
í Selkirk, Man., Árni Jónsson, 77
ára að aldri. Hafði átt heima þar
í bnum í 43 ár. Börn hans á lífi
eru: J. Anderson, Th. Anderson
(um langt skeið forseti Selkirk-
safnaðar), Mrs. Borgfjörð og Mrs.
Stefánsson, öll í Selkirk; einnig
Mrs. I. Johnson, Birch Lake, B.C.
Hann var jarðaður í grafreit Sel-
kirk safnaðar, hinn 2. þ.m.
A THOUSAND THRILLS
IN COLOR.
FRÁ ÍSLANDI
Fyrir nokkru kom upp eldur í
skólahúsinum á Fáskrúðsfirði. Var
það um hádaginn og stóð kensla
yfir. Magnaðist eldurinn á svo
skömmum tíma, að húsið var brunn-
ið í rúst eftir klukkutíma. Er ætlun
manna, að reykháfurinn hafi
sprungið og eldurinn því orðið svo
magnaður á svo stúttum tíma. En
Húsið var gamalt timburhús.
Einhverju varð bjargað af hús-
gögnum, bekkjum og borðum, en þó
lenti sumt i eldinum. En skóla-
stjóri, Eiður Albertsson, sem bjó
uppi á lofti, misti mest alt sitt. Hús-
ið var vátrygt en ófrétt er um, hvort
búshlutir skólastjóra voru vátrygðir.
Kensla hefir fallið niður síðan
bruninn varð, vegna húsnæðisleys-
is. En ráðgert er að hefja hana að
nýju í spítalanum, sem tendur auð-
ur.
Norðlingur, 14. nóv.
Reykjavík, 10. des.
Fyrir skömmu andaðist í Kaup-
mannahöfn, ekkjufrú Ragnheiður
Jónsdótyr, Brynjúlfsson. Sam-
kvæmt ósk hinnar látnu, var lík
hennar flutt hingað heim með
M.s. Dronning Alexandrine og
verður það jarðsungið frá dóm-
kirkjunni kl. 2 e. h. á morgun
(miðvikudag). — Frú Ragnheið-
ur var mjög þjóðleg kona og mörg-
um íslendrngum, sem dvöldu í
Khöfn., að góðu kunn. — Vísir.
GJAFIR TIL BETEL.
G. S., Winnipeg ...........- 5.00
Mr. og Mrs. W. Benson, Wpg 15.00
Kvenfél. Gleym-mér-ei,
Svold, N. D.............. 10.00
Gefið að Betel—
Run. Sigurðsson, Mozart.... 5.00
Guðl. ólafsson, Wpg......... 5.00
Guðbj. Goodman, Glenboro, 20 pd.
hunang. J. T. Goodman, Wpg. 50
pd. hangikjöt; G. Christie, Gimli,
40 pd. hangikjöt; Th. Thordarson,
Gimli, 5 sekki nr. 1 hveiti. Sigur-
björn Sigurjónsson, Wpg., bækur.
Mrs. Guðbj. Suðfjörð Lög-
berg P.0.................. 5.00
Mrs. Kr. Chiswell, Gimli .... 12.00
Egill Egilsson, Gimli ..... 10.00
Svb. Holm, Husavick......... 2.00
Guðm.' Jónsson, Vogar...... 10.00
Mr. og Mrs. H. Hjálmarsson
Betel .................... 5.00
Mrs. J. P. Guðmundsson,
Ivanhoe, Minn............ 10.00
Mr. Lárusson, Betel ........ 5.00
Mrs. Soffía Thorsteinsson,
Blaine, Wash.... ........ 5.00
Mrs. D. S.Curry, San Diego 25.00
Mrs. G. Elíasson ........... 2.00
Miss Guðr. Gíslad., Betel... 5.00
Áheit frá konu í Vancouver 2.00
Miss Jakobína Gillis, Wpg 10.00
Kona á Betel ...............20.00
Guðl. ólafsson, Dafoe, Sask.,
skákborð, $125 virði, eða meira, í
minningu um móður sína.'
Ónefndur ................ $100.00
Kvenfél. Fyrsta lút. safn. í Win-
peg gaf $1.00 hverjum vistmanni j
og heimilisfólki , alls....... $68.00
Jóns Sigurðssonar félagið gaf
vistmönnum sælgætiskassa.
Innilegt þakklæti,
J. Jóhannesson, féh.
675 McDermot Ave., Wpg.
GJAFIR
til Jóns Bjamasonar skóla.
Jón Hannesson, Akra, N.D. $5.00
Rev. G. Guttormsson,
Minneota ............. 5.00
C. S. Johnson, Minneota .... 5.00
J. A. Johnson, Minneota .... 5.00
St. Pauls Church.......... 86.45
Safnað af Helga Ásbjörnssyni,
Mikley, Man.:
Helgi Ásbjörnsson......... $5.00
Ónefndur................... 1.00
Mr. og Mrs. C. Tómasson .... 5.00
Mr Gustaf Sigurgeirsson .... 3.00
Ónefnd .... ............... 1.00
Sigríður Brandson ......... 1.00
B. Halldórsson ...............50
Dóri Halldórsson .... ........50
Mundi Halldórsson.............50
Sigurbjörn E. Thordarson .50
Mrs. ‘Grímólfsson..... \... .25
G. Austfjörð ............... ,25
Mrs. J. J. Stefánsson.........50
Jón Guðjónsson................25
Rannveig K. G. Sigbjörnsson,
Leslie, Sask............. 1.00
Vinur skólans, Gimli, Man. 200.00
Kvenfél. Framsókn, Gimli 25.00
Safnað af J. G. ísfeld, Vestur-
heimssöfn., Minn.:
S. S. Hoteig............. $5.00
J. L. Johnson ............ 2.50
Halldór og Margrét Hofteig 2.00
J. G. fsfeld ............. 3.00
Ing. Arnason ............. 3.00
J. A. Jósefson ........... 3.50
A. O. Björnson ........... 1.00
H. B. Hofteig ............ 2.00
Mrs. Aug. Josephson ...... 1.00
Jóhannes Johnson ......... 1.00
Cecilia og Lucille Gíslason 1.40
Wm. Gunlogson ............ 1.00
Steve Gunlogson .......... 1.00
Pete Gudmundson and family 5.00
Safnað af John ólafsson,
Winnipeg:
H. Jónasson............. $10.00
Jónas Jónasson .... ...... 2.00
Jóhannes Sigurðsson ...... 1.00
J. Josephson.............. 2.00
M. F. Christie ........... 5.00
R. A. Bonner ............ 10.00
Scanlan McComb ........... 5.00
Thompson Bros............ 20.00
Ónefndur ................. 5.00
Halliday Bros............. 5.00
Mrs. J. K. Johnson........ 1.00
Miss Stefanía Johnsbn..... 10.00
The Mitchell Grain Co..,.. 5.00
K. B. McLean.............. 5.00
Ernest S. Barker......... 25.00
E. J. Bawlf ..............25.00
G. Jóhannsson............. 5.00
Með innilegu þakklæti fyrir
gjafirnar og með beztu nýárs-
óskum.
S. W. Melsted.
gjaldkeri skólans.
I
som haldast mjúkar og
bragðgóðar [ marga daga,
ÍijKB oru þannig tilbúnar að not-
r&fmgn að er einni teskeið minna
[ hvern bolla af Purity held-
ur en forskriftin segir að
nkta beri af linu hveiti.
GÓÐAR KÖKUR
Óviðjafnanleg-t fyrir brauð.
30c virði af frímerkjum
færir yður matreiðslu bók
með 700 forskriftum.
Westem Canada Flour Mills Qo.
Limited, Winnipeg . Calgary 14
IROSE
Sargent and Arlington
Wcst End’s Finest Theatre
PERFECTION IN SOUND.
THURS., FRI., SAT. — This Week
All-Talking, Singing, Dancing
% , ALICE WHITE in
“THE GIRL FROM
W00LW0RTHS”
Added—
ALL-TALKING COMEDY
SERIAL FABLE
MON., TUES., WED. — Next Week.
100% All-Talking
NORMA SHEARER in
“THE LAST OF
MRS. CHENEY”
Added—
LLOYD HÁMILTON in
“HIS Bip MINUTE”
Fox Movietone Neios.
________________
Jólin á Betel og í lútersku
kirkjunni á Gicnli.
Eg kom til Gimli frá yVinnipeg,
á mánudagskvöld, 23. des., Þorláks-
messu. Til taks var bíll að flytja
mig að Betel. Þar var mér, aÖ
vanda, tekið opnum örmum, ekki
einungis af forstöðufólkinu, Mrs.
Á. Plinriksson, Miss E. Júlíus og
Mr. O. W. Olafsson, heldur líka
af mörgu öðru fólki þar á heimil-
inu.
Á aðgangadagsmorgun, kl. 9.30
var komið saman í aðalsamkomu-
stofunni. Hafði hún tekið á sig
jólasnið, sem að vísu var látlaust,
en viðeigandi samt. Sungnir voru
tveir jólasálmar. Eg las jólapistil
og jólaguðspjall. Út af pistlinum
talaði eg mjög stutt mál, sérstak-
lega út af þeim orðum sem visað er
til, úr spádóminum um frelsarann í
110 Davíðs sálmi. í lok þessarar
guðræknisstundar buðu allir við-
staddir hver öðrum “góðar stund-
ir.” Er það gamall og fagur siður,
og ef til vill, hvergi ræktur hér
vestra nema á Betel.
Um kl. að lcvöldinu, einmitt á
þeim tíma er jólahelgin var talin
að byrja á Islandþ settust menn að
kvöldverði, borðuðu jólagraut og
annað hátiðargóðgæti. Þegar klukk-
an var sjö var aftur komið saman
í samkomusalnum og sungnir jóla-
sálmar. Eg las jólakvæði eftir
Guðmund Guðmundsson. Mrs. Hin-
riksson útbýtti þá jólagjöfum frá
kvenfélagi Fyrsta lúterska safnað-
ar í Winnipeg. Var hverjum með-
lim heimilisins sent jólaspjald ásamt
einum dollar. í samkomulok ósk-
uðu menn hver öðrum gleðilegra
jóla.
THE STORY OF: Lelf Erickson,
Helga, Alwin, Eric the Red, Sig-
urd, Egil, Kark, King Olaf, Odd,
Latiy Editha and Thorhild.
DIHECTED BY OSCAH BORO
WONDERLAND
MON. TUE. WED.
JAN. 13,14,15.
QMící
ROSE THIS WEEK
Thur. Fri. Sat_
GARRICK
OPEN
12 p.m.
Last Showing Wednesday and Thursday of the
Famous Alusical Comedy
“SO LONG, LETTY”
STARTING FRTDAY JAN. loth.
ALL-TALKINO with Songs and Dancea
EXTRAS—100% Talking, Singing and Dancing Comedies
Matinees 25C
NOTE OUR PRICES
Evenings 40C
Pósturinn að Betel, það kvöld,
sem að vísu kom nokkru seinna en
þessi litla samkoma, var afarmikill
og þó enn meiri kvöldið áður. Flest
allir fengu í póstinum einhverjar
jólasendingar, enda er það mikil
gleði fyrir gamla fólkið þar, að
munað sé eftir þeim á jólunum.
Það er farið að nálgast aftur barns-
skeiðið, þegar “litið gleður og litið
hryggir.” Undur fer vel á því, að
Vestur-íslendingar hafi þetta hug-
fast, og að allir þeir sem eiga þar
einhverja kunnuga hlynni að því,
eftir ástæðum, að þeir fái jólasend-
ingar. Umsjónarfólk heimilisins
gjörir, eins og kunnugt er, alt sem
þeim er unt til að gleðja þá sem
það annast. Ef einhver er svo ó-
heppinn, að pósturinn færir honum
enga jólasending, er leitast við að
ú^búa böggul handa honum, sem
líkastan því að pósturinn hefði kom-
ið með hann. Ef unt er að koma
í veg fyrir það, má enginn vera
settur hjá um jólin.
Margir kannast við hr. Andrés
Helgason, prentara. Hann hefir um
all-mörg ár átt heima í Kandahar í
Saskatchewan-fylki. Hann hefir
haft þann sig í mörg ár, að búa til
sérstök jólaspjöld. fyrir. Betel. Hann
gefur heimilinu svo mörg jólaspjöld,
að ekki einungis fær hver heim-
ilismaður eitt, heldur fær hver nóg
til að senda vinum. Þessi spjöld
eru ætíð smekklega prentuð og að
öllu leyti vel úr garði gjörð. Mr.
Helgason á mikið þakklæti skilið
fyrir þessa hugulsemi og velgjörð.
Ekki var eg alt aðfangadagskvöld-
ið á Betel. Samkvæmt beiðni þeirra,
sem hafa leiðsögn í sunnudagaskól-
ar.um lúterska þar, tók eg dálítinn
þátt í jólatrés-samkomunni í kirkj-
unni þetta kvöld. Einu sinni var
eg kunnugur í þeirri kirkju, því
hún var bygð meðan eg var þar
prestur. Eg minnist margra dá-
samlegra stunda með yngri og eldri
á Gimli í sambandi við kristindóms-
starf mitt þar. Og nú var eg aftur
kominn upp á pallinn í kirkjunni og
farinn að stýra jólatréssamkomu.
Kirkjan var fagurlega skreytt.
Smekkur og ósérhlífni höfðu auð-
sýnilega verið að verki við undir-
búninginn. Jólatréð var stórt og
tignarlegt, svo að jafnvel Gimli-
bær, sem hefir svo mikið af fögr-
um “spruce”-trjám mátti vera vel
ár.ægður. Sunnudagaskólahópurinn
var stór og fallegur eins og góð
börn eru ætíð. Kirkjan var alsetin
fólki. Samkoman hófst með sálma-
söng og hélt áfram með vanalegum
byrjunarsiðum sunnudagaskólanna,
biblíulestri, bænargjörð og svo
margvíslegum upplestrum, samsöng,
sýningum, ræðu og síðast útbýting
gjafa. Börnin voru yfir höfuð vel
æfð, komu í ágætri reglu á pallinn
og gáfu til kynna, með framferði
sínu, að þeim var vel stjórnað. Sum-
um tókst ágætlega með hlustverk
sin, ekki sízt lítilli stúlku, sem var
að hugga brúðuna sína í einhverjum
raunum, sem henni báru að hönd-
um. Það var fallegt að horfa á
drengina, sem léku vitringana,
krjúpa niður og biðja. Margt
annað mætti til nefna, en í heild
var verkið vel af hendi leyst.
Tvær ungar konur skipa leiðsögn
í þessu starfi, þær (Mrs. J. Terge-
sen og Mrs. Aðalheiður Bjarnason.
Hin síðari stýrir sunnudagaskólan-
um, en hin fyrri kennir Biblíuhópn-
um. Báðar vinna þær frábærlega
vel að þessu málefni.
Vonandi verður þess ekki langt
að bíða að lúterski hópurinn á Gimli
fái fasta-prest. Söfnuðurinn var
furðu svipaður vængbrotinni rjúpu,
þegar hann síðastliðið sumar misti
sinn ágæta sálusoTgara, séra Sigurð
Ólafsson. En þegar nýi leiðtoginn
kemur, verður hann ekki aleinn í
starfinu.
Á jóladaginn stýrði eg hátíðar-
guðsþjónustu á Betel og prédikaði
um ljós heimsins, Krist, út af Jóh.
1 :i-i8. Guðsþjónustan hófst kl.
9.30 f. h. Nokkrir Gimli-manna,
auk heimilisfólksins að Betel, voru
þar viðstaddir.
Klukkan sjö um kvöldið var enn
komið saman. Þá voru enn sungnir
jólasálmar og sagði eg þá jólasögu.
Fyrverandi heimilis-prestur, séra
Sigurður Ólafsson og frú hans
Ingibjörg, sem riú eiga heima í Ár-
borg, sendu Betel að jólagjöf tvær
hljómplötur, með fjórum íslenzk-
um lögum, sem sungin voru af Sig-
urði Skagfeld.
Eg hygg að jólin þessi hafi verið
góð við Betel. Að minsta kosti
skorti ekkert á tilraunir þeirra sem
stjórna þar og vinna, til að veita
heimilisfólkinu þægindi og unað.
Allmargir voru lasnir og gátu
ekki notið gleðinnar eins og þegar
þeir voru heilir heilsu, en í einlægni
var leitast við að gjöra þeim lífið
eins íbærilegt og'unt var, og flest
gamla fólkið mun hafa tekið á móti
jólunum með saklausri gleði.
“Turkey” var að vanda aðalrétt-
urinn við hátíðar-miðdaginn kl. 12
á jóladaginn. Dr. Brandson mun
hafa í nokkur ár gefið heimilinu,
það sem þarf af “turkey” fyrir
jólamiðdaginn. Það er ekki nema
Eina hótelið er leigir herbergi
fyrir $1.00 á dag. - Húaið eld-
trygt sem bezt má verða. —
Alt með Norðurálfusniði
CLUB HOTEL
(Gustafson og Wood)
632 MainSt. Wlnntpeg
Ph. 25 738. Skamt norðan viZ
C.P.R. stöðina. Reynið oss.
Painting and
corating
Látið prýða húsin fyrir jólin.
ódýrast 0g bezt gjört af
L. MATHEWS og A. SŒDAL
Phone 24 065.
100 herbergi, Sanngjarnt
með eða án baðs. verð.
SEYMOUR HOTEL
Sími: 28 411
Björt og rúmgóð setustofa.
Market og King Street,
C. G. Hutchison, eigandi.
Winnipeg - Manítoba
CUNARD LINE
1840—1929
Elzta eimrkipafálagið, sem siglir frá Canada
10053 Jasper Are.
EDMONTON
100 Plnder Block
SASKATOON
Cunard línan veitir ágætar samgöng-
ur milli Canada og1 Noregs, Svíþjóðar
og Danmerkur, bæði til og frá Mon-
treal og Quebec.
401 Lancaster Bldg.
CALGARY
270 Maln St.
WINNIPEG, Man.
Eitt, sem mælir með því að ferðast
með þessari línu, er það, hve þæ&ilegt
er að koma við í London, stærstu borg
heimsins.
36 Welllngton St. W.
TORONTO. Ont.
227 St. Sacrament St.
Cunard línan hefir sérstaka inn-
flutningaskrifstofu í Winnipeg, fyrir
Norðurlönd. Skrifstofustjórinn er Mr.
Carl Jacobsen, sem útvegar bændum ís-
lenzkt vinnufólk vinnumenn og vinnu-
konur, eða heilar fjölskyldur. — pað
fer vel um frændur yðar og vini, ef
þeir- koma til Canada með Cunard lín-
unni.
Skrifið á yðar eigin máli, eftir upp-
lýsingum og sendið bréfin á þann stað,
sem gefinn er hér að neðan.
Öllum fyrirspurnum svarað fljótt og
yður að kostnaðarlausu.
eitt af því, sem hann gjörir fyrir þá
stofnun, því hann er eins og kunn-
ugt er ákaflega mikill styrktarmað-
ur hennar.
Heimilisandinn á Betel er góður.
Mér finst að það atriði muni snerta
alla, sem þangað koma. Þessi andi
fer eins og rafmagnsstraumur um
alt heimilið. Andrúmsloftið þar er
þrungið af hlýleik og vinsemd.
Einn þátturinn í heimilislífi þessu
eru stúlkurnar, sem þar vinna. Má
vera, að engar nema valdar stúlk-
ur fái að vinna þar; en annað hvort
er það tilfellið, eöa þá hitt að þær
mótast af heimilis áhrifunum og að
það fegrar og betrar hugarfar þeirra
og framkomu að hlúa að vellíðan
gamla fólksins. Hver sem orsökin
kann að vera, er það víst, eftir því
sem eg hefi veitt hlutunum eftir-
tekt, að stúlkurnar á Betel vinna
verk sitt með samvizkusemi og1 sér-
stakri nærgætni gagnvart gamla
fólkinu. í allri framkomu virðast
þær vera samhljóma heimilisand-
anum. Ein kornung stúlka í þess-
um hópi les ávalt borðbæn í borð-
salnum.
Margoft hefi eg komið að Betel
og ávalt notið þar inndælla stunda,
og tæpast þarf eg að segja að mér
hafi verið vel tekið, en eg hefi lítið
ritað um Betel. Unun er mér það
að nota þetta tækifæri til að láta í
BIBLlUR
bæði á ensku og fslenzku
Veggspjöld, Jólakort, hefir til
sölu
Amij Sveinbjömsson,
618 Agnes St. Sími: 88 737
Hafið þér sára fætur?
ef svo, finnið
DR. B. A. LENNOX
Chiropodist
Stofnsett 1910.
334 Somerset Block
Phone 23 137 Winnipeg
ljós hlýleik minn til þessarar dá-
samlegu stofnunar. Um leið vil eg
geta ‘þess, að þetta er alls ekki ný
tilfinning hjá mér. Mér hefir þótt
vænt um stofnunina frá þvi hún
varð til. Get eg þá ekki heldur
þeirra orða bundist, að eg dáist að
fólkinu, sem heimilinu stjórnar.
Þau þrjú, Mrs. Hinriksson, Miss
Július og Mr. Ólafsson vinna svo
aðdáanlega, hvert fyrir sig, starf
sitt, að erfitt væri, að finna meðal
Vestur-lslendnga eins hæft fólk til
að skipa þeirra sæti.
Betel unnum vér allir!
Rúnólfur Martcinsson.
SAFETY TAXICAB C0. LTD.
Beztu bílar í veröldinni
Til taks dag og nótt. Sann-
gjamt verð. Sími, 23 309.
Afgreiðsla: Léland Eiotel.
N. CHARACK, forstjóri.
EF
þú hefir aldrei
neina verki og
rr blóðið er hreint
L** ogíbezta lagiþá
Lestu þetta ekki!
Yér gelum endurgjaldslaust eina
flösTcu af hinum frœga Pain Killer.
Blackhawk’s (Rattlesnake Oil) In-
dian Liniment
Til aö lœkna gigt, taugaveiklun,
hakverk, bólgna og sára fœtur
og allskonar t'erki.
Einnig- gefum vér í eina viku
með Blackhawk’s Blood and Body
Tonic. Ágætis meíSal, sem kemur I
veg fyrir 90% af orsökum allra
mannlegra sjúkdóma. pað hreinsar
blððið og kemur líffærunum I eðli-
legt ástand.
Blackhawk’s Indian Liniment kost-
ar $1.00 flaskan. Meðan þetta boð
stendur, sendið oss þessa auglýs-
ingu og $1.00 og vér sendum yður
pðstfrltt tvær flöskur og vikuforða
af Blood and Body Tonic, alt fyrir
$1.00. Hjúkrunarkonur mæla með
Þvi. Ábyrgst að vel reynist.
BLACKHAWK INDIAN REMEDY CO.
DEPT. 6.
296 Gladstone Ave.,
TORONTO 3, ONT.
Business Education Pays
ESPECIALLY
“SUCCESS TRAINING”
Scientifically directed individual instruction and a high
standard of thoroughness have resulted in our Placement
Department annually receiving more than 2,700 calls—a
record unequalled in Canada. Write for free prospectus
of courses. Train in Winnipeg, Westem Canada’s largest
employment centre.
SUCCESS BUSINESS COLLEGE
PORTAGE AVE. at Edmonton St.
Winnipeg, Manitoba.
(Owners of Reliance School of Commerce, Regina)
Kjörkaup enn!
Það eru enn nokkur kjörkaup að hafa í vorum
þremur gas- og rafáhalda-búðum.
Sumt er fært niður um 50%.
Hægir borgunar skilmálar.
Þrjár búðir: Appliance Department, Power
Bldg., Portage and Vaughan; 1841 Portage
Ave., St. James; Marion and Tache, St. Boniface
WINMIPEG ELECTRIC
COMPANY
Your Guarantee of Good Scrvice.’