Lögberg - 06.08.1931, Side 4

Lögberg - 06.08.1931, Side 4
Bls. 4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 6. ÁGÚST 19S1. löBÍJttg Gefið út hvem fimtudag af THE COLUMBIA PRESS, LTD., Cor. Sargent Ave. og Toronto St. Winnipeg, Manitoba, Talsímar: 86 327 og 86 328 Einar P. Jónsson, Editor Utanáskrift blaðsins: The Columbia Press, Ltd., Box i1?-2 Winnipeg, Man. ’ Utanáskrift ritstjórans: • Editor Lögberg, Box 3172, Winnipeg, Man. • Verð $3.00 um árið. Borgist fyrirfram. ' The "Xjögberg” is printed and published by ' The Columbia Press, Limited, 695 Sargent Ave, Winnipeg, Manitoba. .. Harðæri og hamingja Ekki er það eins dæmi, að harðæri hafi blessun í för með sér; án baráttu er engánn sigur til; slíkt er lögmál lífsins; kvartað er mjög yfir því, hve hart sé í ári um þessar mundir, og ber því sízt að neita. En hver veit nema harðærið feli í skauti sínu sanna fram- tíðarhamingju eða blessun? Að minsta kosti er það víst, að slíkt vekur oss til alvarlegrar umhugsunar, og gerir oss ef til vill að nýjum og betri mönnum. Þar sem svo hagar til, að hveitiræktin legst niður, sökum ónógra markaðsskilyrða, verður bóndinn v'tanlega að reyna fyrir sér á öðrum sviðum; vera má, að slíkt reynist alt annað en auðvelt; þó kemur það ekki til nokkurra mála, að leggja árar í bát. Gera má ráð fyrir, að þjóðir, sem ekki vilja kaupa hveiti Vort, reyn- ist tregar til að kaupa aðrar tegundir fram- leiðslunnar; samt sem áður getur ekki hjá því farið, að skilnings- og athugunar-gáfa fyrir hyggjumannsins, finni veg út úr ógöngunum- Nýjar markaðsleiðir fyrir framleiðslu Vestur- landsins, hljóta að opnast fyr en síðar; þær hljóta að skapast af hinni knýjandi þörf. Fari svo, að verksmi&jumar sjái sér ekki fært að starfa sökum ónógrar eftirspurnar, hlýtur að því að draga, að þörfin knýi fram lægri reksturskostnað, eða nýja markaði; eymd og volæði bíður þeirra allra, er af ásettu ráði * sitja auðum höndum, og hafast eigi að. Fram úr atvinnuleysinu ræðst aldrei svo vel sé, fyr en allir leggjast á eitt með að ráða fram úr því; ekki að eins þeir, sem atvinnu- lausir eru, heldur hinir líka! Atvinnuleysið kostar þá, er atvinnu hafa, ærið fé. Nú í ár, hefir atvinnuleysið kostað Winnipeg-borg, eða öllu heldur gjaldendur hennar, freklega miljón dala; rangt væri að leggja þann skilning í þetta, sem hér væri um ölmusu að ræða; þetta er aðeins óhjákvæmilegt tillag, sem lagt er fram með það fyrir augum, að vernda samfélagið, þar til yfir örðugasta hjallann er komið. Vafalaust eru þeir hreint ekki svo fáir í samfélagi voru, sem orðið hafa óeðlilegra for- réttinda aðnjótandi; komist yfir auð fjár fyr- irhafnarlítið, eða fyrirhafnarlaust; á slíkum meinsemdum verður að stinga, hvort sem mönnum líkar betur eða ver. Lögmálið um framboð og eftirspurn, stend- ur enn óhaggað; en standi þessar tvær stað- reyndir í öfugu hlutfalli hvor við aðra, eða að þeim sé þannig beitt, að önnur hagnist um of á kostnað hinnar, verður ríkið að taka í taumana og jafna úr misfellunum. Eitthvað sýnist óneitanlega bogið við það, að húsmóðirin í Winnipeg, skuli þurfa að greiða frá tuttugu og fimm upp í þrjátíu cents fyrir eggjatylftina, um leið og bóndinn fær aðeins sex cent fyrir hana; það lætur enn frem- ur undarlega í eyra, að plómukarfan skuli ekki seljast nema á fáein cents í Okonagan-dalnum, en tylftin af plómum vera seld á tuttugu cents í Winnipeg. Leiðin til stjarnanna er löng; leiðin til sig- urhæðanna er líka löng; umbótaleiðin á sviði mannfélagsmálanna á engan endir. Enginn má kippa sér upp við það, þó það taki tíma, að kippa því í lið, sem aflaga fer í samfélaginu; allur haldgóður þroski er hæg- fara; aðalatriðið er það, að haldið sé í horfinu og ekki slakað á klónni að ófyrirsynju. Með sérhverju því, er ávinst, eykst ham- ingja mannkynsin8 að sama skapi; við sér- hvert þroskaspor, vex hinu andlega og siðferð- islega manngildi fiskur um hrygg. Þeir, sem fylgst hafa með framsókn og lífs- venjum þess fólks, er land þetta byggir, efast ekki um, að það muni enn af eigin ramleik yf- irstíga þá örðugleika, er það um þessar mund- ir horfist í augu við; þetta fólk hefir komist í hann krappan áður, og ekki örvænt um hag sinn- Ekki er það ólíklegt, að næsta gagnger breyting á sviði mannfélagsmálanna, kunni að fara fram, áður en jafnað hefir verið úr átak- anlegustu misfellunum, er almenningur býr við um þetta leyti; breyting í samfélagslega og pólitíska átt. Slík brevting, í hvaða formi sem er, grundvallast að sjálfsögðu á skilningi þjóð- arinnar sjáifrar; skilningi hennar á innbyrðis eining og afstöðu til annara þjóða. Canadiska þjóðin lætur ekki auðveldlega segja sér fyrir verkum; hún er stórhuga þjóð, með bjargfasta trú á sigurmátt eigin eðlis; henni vex ásmegin við eldraun hverja, og þess vegna verður henni harðærið til hamingju. Inntak greinar þessarar, er að nokkru leyti úr tímaritinu The Western Home Monthly. Kynleg niðurátaða Skömmu fyrir þingslit, lauk þingnefnd sú, er skipuð var til þess að rannsaka hið svo- nefnda Beauharnois hneyksli, störfum sínum; eftir alt, sem á undan var gengið, hefði vel mátt ætla, að meir.i alvara hefði fram komið í mál- inu, en raun varð á. Afrek rannsóknamefndarinnar má flokka niður í eftirfylgjandi atriði: Þrír senatorar era dæmdir, og það með réttu, eins og málið horfði við, óalandi, óferjandi og óráðandi öllum bjargráðum; framkvæmdarstjórar fyrirtækis- ins eru fordæmdir, skugga varpað á tvo em- bættismenn stjómarinnar, fram á það sýnt, hve örlítil innstæða hefði á skömmum tíma vax- ið upp í stórfé, og þess jafnframt krafist, að framlögum ýmsum í kosningasjóð frjálslynda flokksins yrði skilað aftur. 0g svo var, eins og nærri mátti nú geta, skuldinni allri skelt á Mr. King og flokksbræður hans. Svo alvarlegt er mál þetta í eðli sínu, að þjóðin á heimting á því, að fá spilin lögð á 'borðið. Mr. King gérði þá kröfu, að konungleg rannsóknarnefnd yrði sett í málið, og henni falið að rannsaka fjárframlög í kosningasjóði síðan 1925, ogt hvemig þau væri tilkomin; Mr, Woodsworth tók í sama streng, og hið sama gerði Ian Mackenzie þingmaður frá Vancouver. Krafa þessi virtist eigi aðeins réttmæt, heldur og beinlínis sjálfsögð, eins og ástatt var. En hvað verður svo efst á baugi? Málið er svæft rétt í þinglokin, engin konungleg rannsóknar- nefnd skipuð, alt hulið óvissu og tortryggi- legum skugga. Þykir ýmsum, sem vegur Mr. Bennetts muni lítt hafa vaxið fyrir afskifti hans af málinu. Mr. Ian Mackenzie lýsti yfir því, áður en rannsókn þingnefndarinnar lauk, að hann vissi af mönnum, er veitt gætu mikil- vægar upplýsingar máli þessu viðvíkjandi, er hann vildi að yrði kallaðir sem vitni; einhvern veginn hummaði nefndin það samt fram af sér. Ekki getur hjá því farið, að almenningur finni til sársauka yfir meðferð þessa alvöru- máls; fólkið á heimting á að fá leiddan í ljós allan sannleikann í máli þessu, og heldur áfram að krefjast þess, hvort sem Mr. Bennett og flokksbræðmm hans fellur betur eða ver. En meðan það er ekki gert, svífur óhreinn andi yfir hinum pólitísku vötnum þjóðarinnar. Mœtur maður látinn Eins og vikið er að á öðrum stað hér í blað- inu, er nýlega látinn að heimili sínu í Mont- real, Hon. C. J. Doherty, fyrrum dómsmálaráð- gjafi sambandsstjórnarinnar í Ottawa, frek- lega hálf-áttræður að aldri; er með honum í val hniginn einn af merkustu lögfræðingum þjóð- arinnar, maður, er jafnt utanþings sem inn- an, naut trausts og álits allra flokka jafnt. Mr. Doherty var af lögfræðingakyni kominn fram í ættir; hafði faðir hans gegnt dómaraem- bæti við góðan orðstír; sjálfur lauk Mr. Doherty lagaprófi á ungum aldri, og stundaði málfærslu- störf um hríð; dómaraembætti hafði hann á hendi í hæztarétti Quebec-fylkis, og átti í mörg ár sæti á sambandsþingi- ( Mr. Doherty Var afkastamaður hinn mesti við störf sín, og hlífði sér lítt; hann var trúr og sannur sonur hinnar canadisku þjóðar, og vildi veg hennar í öllu. Það er á orði haft, hve Mr. Doherty lifði óbrotnu lífi, þrátt fyrir þau háu og virðulegu embætti, er hann skipaði. 1 ræðu, sem hann einhverju sinni flutti í félagi ungra lögfræðinema í Montreal, komst hann meðal annars þannig að orði: “Öll æska þráir þroska og fullkomnun; allir vilja verða menn með mönnum, komast sem bezt áfram í lífinu og láta sem mest bera á sér; í flestum tilfellum er þetta eðlilegt og réttmætt; en hinu má samt sem áður ekki gleyma, að öllum metorðum æðra er það, að vera hjartahreinn og bljúglundaður, kristinn maður.” Ölíkar skoðanir Foringi afturhaldsflokksins brezka, Mr- Stanley Baldwin, flutti nýverið ræðu í kjör- dæmi sínu, þar sem honum fórust meðal annars þannig orð: “Eg trúi því og treysti, að þegar næsta þing kemur saman, verði það þannig skipað, að helzt ekki einn einasti af draumóramönnum Ramsay MacDonalds fyrirfinnist þar; þjóðin þarf á hagsýnum iðjuhöldum að halda, en ekki þeim, sem í hugsjónalegu tilliti ala aldur sinn á öðrum hnöttum. ” “Að afstöðnum næstu kosningum,” segir Ramsay MacDonald, “staðhæfi eg, að fáni hug- sæis stefnunnar muni blakta yfir Bretlandi hinu mikla í skýrari og hreinni litum, en nokkra sinni fyr; það er hlutverk hugsjónamannanna, að hefja þjóðina til öndvegis að nýju.” Minni Canada í tilefni af landnámshátíð Argyle-bygðar, þann 6. júlí síðastliðinn. Eftir DR. JÓN STEFÁNSSON. Þelgar forstöðunefnd hátíðarinnar mæltist til þess, að eg mintist Canada á þessum heiðursdegi bygðarinnar, var mér ljúft að verða við þeim til- mælum. Oss er kært að minnast Canada við slíkt tækifæri sem þetta, landsins, sem hefir fætt og klætt sum af oss um hálfrar aldar skeið; landsins, sem hefir reynst mörgum af oss svo fádæma vel; landins, sem nú hlúir beinum feðra vorra o'g mæðra; “landsins, sem mín vígð er vinna, vöggustöðin barna minna.” Já, vér elskum Canada, þetta víðáttumikla land, sem laugar fætur sína í þrem úthöfum heimsins. Vér elskum það, með þess margbreyttu og töfrandi náttúrufegurð, fljótunum stóru og fossunum fögru, með vötnunum lygnu og fiskisælu, með fjöllunum fríðu og dölunum djúpu, og tindunum tignarlegu, er höfðum björtum “svala í himinblámans fagur- tærri lind.” Vér elskum það með aldingörðunum inndælu í austri og vestri, með sléttunum breiðu og frjósömu, er fætt hefir miljónir manna á liðnum árum. Einhver hefir sagt, að sléttan okkar sé sviplaus og leiðinleg. Oss finst það vera hin mesta fjar- stæða, því frá því á vorin, að hún kastar af sér hinum hvíta kufli vetrarins og þar til hún klæðir sig í hann aftur að haustinu, skiftir hún oft um búning, og er hver öðrum fegri. Vér þekkjum fátt í víðri veröld, sem er fegurra og tilkomumeira til að sjá, en fallega, bleika akra síðla sumars, er korn- stengurnar ganga í hægum bylgjum fyrir kvöldgol- unni, og kvöldsólin í allri sinni dýrð steypir mildum geislum sínum yfir bygð og ból, og akrarnir verða á að ‘líta sem ein glóandi bylgjuhreyfing. Þá get- um vér tekið undir með skáldinu er segir: “Almáttka fegurð, hrein og há, Eg hneigi mig, ann þér með brennandi þrá.” Fyrir fjórum árum héldum við upp á sextíu ára afmæli Canada. í dag höldum við upp á fimtíu ára afmæli þessarar bygðar. Vér gætum það naumast, án þess að minnast Canada, svo ná-knýtt er saga bygðarinnar sögu þessa lands, að því leyti, að þar er í báðum tilfellum að ræða um brautryðjenda- starf. Það var Canada til hins mesta láns, að marg- ir, er hingað fluttu, höfðu tekið í arf eðliskosti svo mikla og ágæta, að þeir reyndust sem hreinasta gull í eldraunum fyrstu landnámsáranna. Það má að vísu Segja, að landnámstímabil Canada standi enn- þá yfir, því enn eru menn að nema nýja landsparta í þessu stóra og víðáttumikla landi. En þrautarík- ustu árin eru liðin, vonum vér. Þrátt fyrir það, er afar-mikið verk að vinna, þótt ósegjanlega miklu hafi verið afkastað á þessu stutta tímabili, síðan fylkjasambandið myndaðist. Á öllum sviðum þjóð- lífsins hefir verið unnið af kappi. í raun og veru er það svo furðulegt afkastaverk, að vér getum alls ekki gert oss ljósa grein fyrir því í fljótu bragði. Sextíu og fjögur ár er stuttur kafli af æfi einnar þjóðar. Og það vekur undrun hvers einasta manns, sem ferðast um land þetta í fyrsta sinn, þær miklu framfarir og breytingar, sem mæta auganu hvar sem litið er. Þegar vér minnumst þess, að fyrir sextíu og fjórum árum var alt þetta mikla Vesturland að heita mátti ein eyðimörk, þá verður oss fyrst ljóst, hve feykilega miklu mannshöndin hefir á þessu tímabili komið í verk. Nú blasa við augum bæir og borgir, og “bændabýlin þekku” í þúsunda tali. Járnbraut- ir og akbrautir liggja sem einn vefur um þvert og endilangt landið. Talsímar eru nú komnir inn á flest heimili bænda. Stórfljótin hafa verið stífluð og virkjuð til raforku, til að lýsa upp bæi og borgir, auka þægindi manna í ótal myndum o!g iðnað í landinu. Mörgum miljónum ekra af sléttlendi hef- ir verið breytt í blómlega akra. Þar sem villidýrin ráfuðu fyrri um eyðimörkina, gengur nú kvikfé bænda. Frumskógarnir hafa verið feldir á stór- um svæðum, til timburtekju; námagröftur hefir verið rekinn af kappi; og útvegurinn hefir marg- faldast. Já, jafnvel hunangsflugurnar hafa verið tamdar til að safna mörgum miljónum punda af hunangi á ári hverju. Það má segja, að Can- ada “fljóti” í mjólk og hunangi. Svo mikið, sem kveðið hefir að hinum verklegu framförum í landinu, þá hafa andlegu málin ekki verið 'látin sitja á hakanum. Það fer oft saman, að þeir menn, sem láta mikið til sín taka í verkleg- um efnum, eru manndómsmenn bæði til sálar og líkama. Svo hefir það reynst í landi þessu. Can- ada hefir átt marga ágætismenn. Þeir menn, sem mest og bezt börðust fyrir sameining fylkjanna og lýðfrelsi Canada, voru andleg stórmenni. Þeir voru menn með háar og feöfugar hugsjónir, er báru fram- tíð þessa lands og hagsæld fó'ksins fyrir brjóstinu. Stjórnarskrá Canada ber það Ijóst með sér, að þeir, sem sömdu hana, vildu og reyndu að búa svo um hnútana, að engar lagahömlur stæðu þjóðinni fyrir þrifum, og að þjóðlífið fengi að blómgast þvingun- arlaust. En hjá öllum agnúum verður ekki komist, og allra sízt hjá 'lafealegu agnúunum. Tíðarandinn breytist og mennirnir með. Þjóðlífið þroskast og breytist á ófyrirsjáanlegan hátt. Þess vegna ber oft brýn nauðsyn ti'l að breyta grundvallarlögum ríkjanna. 0g Canada er þar auðvitað engin und- antekning. En það, sem eg vildi sérstaklega draga athygli yðar að í þfessu sambandi, er það, að í allri þessari lagakeðju, er vér eigum við að búa, frá hinni æðstu stjórn til hinnar lægstu, eða frá hinu æðsta dómsvaldi landsins til þess lægsta, er fjöri og frelsi og eignarrétti einstaklingsins borfeið. Það er þungamiðjan í allri okkar löggjöf og stjórn. Það eru hornsteinarnir, sem þjóðfélag vort hvílir á. Og eg efast um, að þeim einkaréttindum einstaklings- ins sé nokkurs staðar í víðri veröld betur borgið, en í Canada, eða brezka ríkinu. Dómstólar þessa lands hafa orð á sér fyrir óhlutdrægni ofe réttvisi. Réttarfarið í Canada er á háu stigi, og meðan dóm- stólar landsins njóta trausts og tiltrúar þjóðarinn- ar, og það að maklegleikum, er þjóðinni óhætt. — Með lögum skal land byggja, en ólögum eyða”, er gamall og sannur norrænn málsháttur. Ver verðum því að fyrirgefa þeim mönnum, sem sí og æ vilja 'brjóta í rústir það stjórnarfyrirkomulag og þá þjóð- félagsskipun, sem vér nú búum við, því þeir vita ekki hvað þeir tala. Um mentamál þjóðarinnar mætti margt segja. Við þau hefir verið lögð mikil rækt. ógrynni fjár hefir verið og er varið á ári hverju til mentamála í þessu landi. Canada á fallega og myndarlega há- skóla, búnaðarskóla, miðskóla, verzlunarskóla, barna- skóla o. s. frv. Merkin sýna verkin. En að öllu því mikla fé sé vel og viturlefea var- ið, skal alls ekki neitt sagt um. Vor skoðun er, að mentamálunum sé stór átoótavant í flestum lönd- um heimsins, og Canada einnig. í þessu sambandi vil eg leyfa mér að hafa yfir málsgrein úr “Dag- renning”, eftir sagnfræðinginn mæta Jón Jónsson. Hann segir: “Það er eigi og á eifei að vera aðal-kjarni uppeldisins, að troða í menn svo og svo miklu af fr«ð- leik og lærdómi, eða keppast eftir auðlegð, ítitlum og embættisveg- semd, heldur hitt, að kappkosta að verða að manni í þess orðs beztu og fylstu merkingu, að glæða hjá sér og þroska göfugustu ofe beztu hliðar mannseðlisins, og það geta menn vel án lærdóms, auðæfa eða embættisframa. Með öðrum orðum: Aðal grundvöllur uppeldisins er siðferðislífið, en eigi mannvitið, þótt mikils sé um vert. Þetta hygg eg að líf Egg- érts ólafssonar toeri með sér, eins og líf allra toeztu og göfugustu manna, er lifað hafa með þjóð- unum.” Þetta finst oss heilbrigð skoð- un, er ætti að vera meiri feaum- ui' gefinn, en alment er. Á vorri tíð er aðal-áherzlan lögð á að komast einhvern veginn í gegn um prófin. Hitt er lítið og oft alls ekkert hugsað um, að þroska göfugustu og toeztu hliðar mann- eðlisins. 1 mentamálum, hefir Canada að voru áliti, apað alt of mikið eftir ððrum þjóðum. Vér höfum ekki minst neitt á kirkjuna og áhrif hennar á þjóð- lífið. Oss hefir lengi fundist, að kirkjan ætti að vera og feæti verið aflmesta vogarstöngin í þjóðlífi voru. Það er áreiðan- legt, að kirkjan er ein af þýðing- armestu \;tofnunum þjóðfélags- ins. Og því betri og ein'lægari og stærri andans menn, sem hún á í þjónustu sinni, því dýpri og víðtækari áhrif hennar á þjóðlíf- ið. Eigi tel eg mife vera verki þvi vaxinn, að gera fulla grein fyrir öllum þeim straumum, sem kirkjan hefir veitt inn á hinn canadiska þjóðvöll. En þó get eg ekki stilt mig um að minnast með örfáum orðum á þá hlið málsins. Strax með byrjun landnámsins var kirkjan í fararbroddi. Hún átti þá marga ágætis menn, hug- umstóra og andríka menn, er skildu kö'llun kirkjunnar, og var það fyllilega ljóst, að nema því- aðeins að kirkjan sækti fram ofe fylgdist með vexti og þroskun þjóðarinnar, yrði hún torátt þverr- andi afl í þjóðlífinu og vanrækt af mannfélaginu. Þessir kirkj- unnar leiðtogar gengust ekki að- eins fyrir því, að kirkjur voru víða reistar, heldur og líka kirkju- skólar, er þeir ætluðust til að yxu með kirkjunni og yrðu vermi- reitir kristilegra hugsjóna og varnarvirki kirkjunnar. 1 fyrir- lestri, sem nýlega er kominn á prent, stendur þetta: “Það tillafe kirkjunnar til menningar þjóð- anna á þessu meginlandi, verður aldrei of metið. Nöfn margra kirkjulegra leiðtoga frá land- námstíð, geymast í sögu þjóðanna um aldur og æfi fyrir áhuga þeirra og athafnir við mentamálin. Enda eru sumar mentastofnanir, sem nú njóta mestrar virðingar í álf- unni, af þeim rótum runnar.” Þetta er vel sagt og laukrétt að voru áliti. En svo lætur hinn virðulefei höfundur í ljós þá skoðun, að kirkjuskólarnir séu nú óþarfir og ættu að leggjast niður, vegna þess, að ríkið geti annast mentamálin betur en kirkjan jafnvel að “College”-skólar kirkj- unnar, ekki heldur þeir, hafi til- verurétt nema svo, að þeir séu svo efnum búnir, að þeir geti vaxið til sama þroska og beztu háskólar ríkisins.” Við þessu er oss með öllu ó- mögulegt að segja já og amen. Við það skal að sönnu kannast, að ríkið er ef til vill duglefera að troða í pokann, duglegra að troða í menn ýmsum fróðleik. En það er ekki aðal markmið skólanáms- ins, heldur hitt, að glæða hjá sér og þroska göfugustu og toeztu hlið manneðlisins, og kappkosta að verða að manni í þess orðs beztu og fylstu merkingu, en það ættu kirkjuskólarnir að. geta gjört toetur en ríkið. Ef ekki, þá er kirkjan líka andlaus ofe í mestu afturför. Ef það er vilji kirkj- unnar, að eilífðarmálin viki með öllu af mentabrautinni fyrir heimsþekkingunni, þá fær hún ekki staðist til lengdar. Hún hættir þá að vera stríðandi kirkja, áhrif hennar á þjóðlífið þverra og hún hrynur að lokum til grunna. Vér vonum, að það liggi ekki fyrir kirkjunni í Canada. Vér viljum miklu fremur, að hún taki sér til fyrirmyndar leiðtoga sína frá landnámstíð, er með hjálp hennar “lögðu svo stóran skerf til menningar þjóðanna í þessu meginlandi, að nöfn þeirra geym- ast í sögu þjóðanna\um aldur og æfi.” Eins ofe flestum er fljóst, hefir fleira og færra af fólki fluzt til Canada frá öllum siðuðum lönd- um heimsins. Canada þjóðin í dag saman stendur því af mörgum þjóðflokkum. Þetta hefir valdið sumum miklum áhyggjum, eða þeir hafa í það minsta látið svo í veðri vaka. Einstöku menn hafa skrækt upp úr af hræðslu við þessa þjóðflokka, og óttast • að Canada verði þeim að bráð. Stjórnmálabusarnir hafa spheytt sig á þessu máli og reynt að færa mönnum heim sanninn um það, að Canada stafaði mesta hætta af þessum þjóðflokkum, vegna þess að þeir sameinuðust ekki nógu fljótt heildinni. /Jafnvel isumar mefðarfrúrnar hafa lagt út á rit- völlinn til að úthella hræðslu sinni og áhyfegjum, út af hætt- unni, sem vofi yfir llandi og lýð 1 sambandi við þessa útlendinga. Alt þetta moldviðri stafar af tómri heimsku, athugunarleysi og þekkingarleylsi á mannjlegu eðli. Þessir herrar og frúr heimta, að Rússinn og Pó*lverjinn kasti strax af sér þjóðernis flíkunum þegar hingað er komið, feleymi þjóðerni sínu, og hverfi strax méð húð og hári inn í heildina. En hvað um Englendinginn? Hann er aldrei annað en Engflendingur, hvar í heimi sem þú hittir hann. Hið sama má segja um írann og Skot- ann. Þeir slíta ekki öll tengsli við ættjörðina, strax og þeir eru komnir úr landsýn. Þeir myndu álíta það feanga vitfirring næst, að fara fram á slíkt. Sannleik- urinn er, að það getur enginn ær- legur maður, hverrar þjóðar sem hann er, gleymt þjóð sinni. — “Þótt þú langförull ilegðir sérhvert land undir fót, toera hugur og hjarta, samt þíns heimalands mót.” Skáldið skilur toetur mann- legt eðli og sálarlíf manna, en pólitisku vindbeflgirnir. Því meir sem í manninn er spunnið, þess betur kann hann að meta þjóðararfinn, ofe því örðugra á hann með að losa sig við þjóðerni sitt. Hann blátt áfram getur það ekki. Það getur enginn, nema andlegur ræfill, og það er eng- inn fengur í honum fyrir neitt þjóðfélag. En yngri kynslóðin, sem fæð- ist hér, vex hér upp og mentast, hún tekur tryfeð við þetta land og þetta þjóðfélag, sem hún er part- ur af. Canada er föðurland hennar; hún þekkir ekki annað föðurland. Hinar helgustu og sæ'luríkustu endurminningar verða tengdar við þetta land.. Úrlausnin á þessu vandræða spursmáli með útlendingana, verð- ur því undur einföld, þegar að er gáð. Það er ekkert vandræða- spursmál, ef vit og umburðar- lyndi fái að koma til greina. Það, sem mest á ríður, er, að yngri kynslóðin fái feóða og heiltorigða alþýðumentun. Að Aennararnir veki hjá börnunum ást og virðing til 'lands og þjóðar, og vér viljum toæta við, ást og virðing til Guðs og góðra manna, og lotning fyr- ir lögum ofe yfirvöldum landsins. Ef það fæst, þarf enginn að vera kvíðandi út af framtíð þjóðar- innar. — Það er stór-þýðingar- mikið verk, sem bamaskóla kenn- arar þjóðarinnar eru að vinna. Og það er ekki sama, hvernig kennarinn er, þótt hann eða hún sé prófgenginn. Það ríður lang- mest á því, að áhrif kennarans á börnin, séu holl og heilbrigð, og að óskemd fræ fal'li þar í feljúpan jarðveg. Það ungur nemur, gam- all temur. Og það eru börnin, sem á sínu mtíma taka við af hinum eldri. Hinir mörgu þjóðflokkar, er hér hafa tekið sér bólfestu, hafa allir komið með eitthvað 1 fórum sínum, sem er meira og minna verðmætt og vert er að leggja rækt við. Margir geta ekki kom- ið aufea á slíkt. Þeir halda, að alt sé ónýtt og einskis virði, nema það, sem þeir þekkja sjálfir og eru gagngunnugir. Stafar þetta af þekkingarleysi og mentaskorti og sjálfbyrgingsskap. En, sem toet- ur fer, eru að opnast aufeun á sumum fyrir því, að margir þess- ir þjóðflokkar eiga ýmislegt, sem vert er að veita eftirtekt og auðg- að getur og prýtt canadiskt þjóð- líf. Þeir, sem hugsa ofurlítið þjóðlega, hafa sannfærst um, að hér er um gull að ræða, sem ma alls ekki glatast. Ofe það er heil- ög skylda þessara þjóðflokka, hvers útaf fyrir sig, að sjá um, að menningarerfðir þeirra glat- ist hér ekki, heldur flytjist með þeim inú i þjóðlíf þessa lands, þeim til ábærilegrar sæmdar. Því þessir þjóðf'lokkar, hvaðan sem þeir hafa komið af hveli jarðar, munu með tíð og tíma renna saman í eitt og mynda hina can- adisku þjóð. Því er mest um vert, að þjóðstofninn sé heill; að eðliskostir þjóðflokkanna fái að koma í Ijós og njóta sín, og menn, læri að meta að verðugu mann- feildi og sannan manndóm til sál- ar og líkama. Já, metum sannan drengskap, trygð og trúmensku yfir litlu sem stóru. Tignum hreystina og kappið; tignum greindina og fróð- leiksástina; tignum orðheldnina og ráðvendnina, sem aldrei geng- ur á feefin loforð, og ekki þolir minstu óskil við nokkurn mann. Kostum kapps um að láta þessa eðliskosti og aðra fleiri ná djúp- um rótum í canadisku þjóðlífk Ef oss tekst það, þurfum vér ekki að örvænta um framtíð Canada. Og þegar vér gerum oss grein fyrir náttúruauðlegð landsins, víðfeðmi landsins, hnattlegu landsins, og þjóðstofninum, eins og hann kemur oss nú fyrir

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.