Lögberg - 15.10.1931, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. OKTÓBER 1931.
Bls. 6.
f
Peningar sendir heim
ÞÉR getið sent peninga heim, þægilega og
áhættulaust, frá öllum deildum þessa
hanka, með; pósti, radio eða síma. Peningarn-
ir verða borgaðir í Bandaríkjapeningum, eða
peningum þess lands þar sem móttakandi er,
ef óskað er, til viðtakanda, gegn um áreiðan-
legan hanka.
The Royal Bank
of Canada
Hugurinn reikar víða
Eftár Guðm. Elíasson.
Klukkan 10 á þriðjudagiskvöld-
io, 7. apríl, Iagði eg á stað frá
Winnipeg með C.N.R. járnbrautar-
Iestinni áleiðis til Edmonton, og
byrjaði ferðina með því, að fá mér
rúm og fara að sofa, líkamanum
til hvíldar, en um hvíld hugans
eða sálarinnar, var ekki að ræða,
því eg var óðara kominn inn á
draumalöndin og farinn að stríða
við ýmislega erfiðleika, sem voru
þess eðlis, að ekki virðist þörf að
skýra. frá þeim í stuttri blaða-
grein. Eitt íslenzka skáldið okk-
ar hefir sagt um draumana á þessa
leiðÞeir eru innra líf ókyrrs
hugar, vafið í villublæ.” Það
getur vel verið, að þetta sé rétt,
en igáðu að, lesari góður, skyldum
við ekki mega segja og skrifa með
vissu um 'sannleiksgildi þessara
orða:
“En þó víða veitist fríðir draumar,
að skilja þýðing þeirra rétt,
það er tíðum ekki létt”.
Um morjjuninn, þegar eg vakn-
aði, var fólksflutningslestin kom-
in vestarlega í Manitoba. Það var
vestanvindur og sandfok, isem á-
gerðist svo, að um daginn klukkan
að ganga ellefu, er við fórum að
nállgast Regina, var kominn reglu-
legur ameríkanskur sandbylur.
Eg hélt að eg hefði tséð og verið
útii í sandstormum í Norður Dak-
ota um og eftir síðastliðin alda-
mót, en eg minnist ekki að hafa
séð svartari byl af því tagi, held-
ur en þennan áminsta dag, sér-
staklega á- milli stórbæjanna Re-
gina og Saskatoon. Englending-
urinn, sem e!g sat hjá, stór og
sterkur bóndi frá Grande Prairie
í Alberta, sagði við mig: “There
is too much real estate in the
air in this part of the country,
that íb what makes the farmers
so poor as they are.”
Eg læt hann ráða sinni mein-
ingu og bæti þar engu við, það
geta mér færari menn gert.
Þegar leið að kvöldi, fór veðrið
að lægja, og þegar e!g fór aftiur að
sofa, var komið nokkurn veginn
gott veður. Hver smábær, sem
lestin fór fram hjá, var upplýstur
af ljósum, svo það Ieit út fyrir,
að blessað fólkið þyrfti þó- ekki
að vera í myrkrinu að öllu leyti,
enda býst eg við að margur hafi
þurft að þvo rykið úr augum sínum
eftir þennan áminsta dag, og
sennilega orðið feginn nætur-
hvíldinni, nætur-friðnum, þessari
inndælu náðargjöf drottins, sem
skáldunum tiekst svo dásamlega
að útmála og sem er eins o'g hróp-
andi rödd í eyðimörk þessa mann-
lega lífs til allra, sem vilja hlusta
og heyra, eða sjá og njóta, og út-
þýða af fremsta megni fyrir sjálf-
um sér hvað mikla blessun nætur-
hvíldin, næturfriðurinn hefir í för
með sér fyrir þá, isem geta eða
vilja njóta hans.
Góðskáldið okkar Guðm. Guð-
mundsson, segir;
“Þagnarmálum þrungin nótt,
þínum lýt eg Veldissjrota,
móðir tóna og töfra brota,
til þín hefi eg friðinn sótt” ....
Og skáldið mitt góða og ógleym-
anlega kveður:
“Svalar hverjum særðum barmi,
sveiptu hann þínum friðar-armi,
blundsæl, blíða nótt” o. s- frv.
“Það verður ró um víðan mó,
vötn og skógar þegja”, hjá Þor-
steini mínum Erlyingssyni, og
svona mætiti halda áfram, en hér
á þessari jörð verður að takmarka
alla hluti, og eg má ekki þreyta
lesandann á öllu, sem mér datt í
hug á C. N. R. járnbrautarlestinni
miðvikudagskveldið 8. apríl 1931.
Þeigar eg vaknaði um morgun-
inn, var það fyrsta sem eg heyrði:
“last call for breakfast”. Eg
hlýddi, og gekk eins fljótt og eg
var tilbúinn, til máltúðar Þegar
eg stóð upp frá borðinu, duttu
mér i hug orð ritningarinnar og
óskaði að þau væru haldin allstað-
ar eins vel og út leit fyrir að þarna
væri siður, þá færu menn ekki illa
fyrir þá sök; já, postulinn Páll
telur ofdrykkju og ofát meðal
þeirra lasta, en hann segir að
þeir, sem slíkt gjöri, muni ekki
erfa Iguðsríki.
Þa® var komið reglulegt Al-
berta sólskin,; útsýnið þenna
morgun var reglulega yndislegt,
en lítið var um fuglasönginn ís-
lcnzka. Eg var 'svo heppinn, að
mæta þarna um morguninn ágæt-
um manni, sem, þó eg hefði aldrei
séð hann fyrri, reyndist mér sann-
ur maður; nafn hans var Jack
Lorencé. Eg hafði lesið grein eft-
ir móður hans í blaðinu “Country
Guide”, með fyrirsögninni:
“Three times a pioneer, by Mar-
garet Lorence.” Og eg ætla að
A Thorough School!
The “Success” is Canada’s Largest
Private Commercial College, and the
finest and best equipped business train-
ing institution in Western Canada. It
conducts Day and Evening Classes
throughout the year, employs a large
staff of expert teachers, and provides
sufficient individual instruction to per-
mit every student to progress according
to his capacity for study.
In twenty-one yenrs, slnce the fonnding of the “Success”
Business Colleg-e of Winnlpeg in 1909, approximately 2500
Icclandic students have enrolled in this College. The decided
preference for “Success” training is significant, because
Icclanders have n kccn sense of educational values, n.nd each
year the nuinber of our Icelamlic students sliows an increase.
Day and Evening Classes
• Open all the Year
The SUCCESS BUSINESS COLLEGE, Ltd.
PORTAGE AVENUE AT EDMONTON STREET.
PHONE 25 843
láta hugann staðnæmast fáein
augnablik, við ofurlítið ativik úr
þeirri fögru grein, sem eg býst við
að flestum lesendum íslenzku
blaðanna, sem ensku lesa, sé þó
kunnug.
Við .skulum þá, lesari góður
láta hugann fljúga 40 ár aftur í
tímann, og alla leið norður til
Fort Vermilion, 500 mílur norður
af Edmonton. Það er fagur júní-
morgun, og þarna sjáum við þrjá
litla drengi; þeir eru að reka
kýrnar í hagann; sá elzti er átta
ára, og heitir Artihur; annar er
sex ára og heitir Jack, og sá þriðji
er fjögra ára og heitir Isaac; all-
ir hafa þeir sama aukanafnið:
Lorence. Á heimleiðinni verður
þeim sundurorða, og verða ósátt-
ir, tveir þeir yngri við þann elzta,
út úr því, hver sé beztl og styzti
vegurinn heim; sá elzti fer svo frá
hinum sína leið, sem hann segir
vera bezta og styzta, og skilur
hina tvo eftiir, aumingja litlu
dren!gina, fjögra og 'sex ára, sem
óðara villast út í skóginn. Litli
maginn verður' svangur, það koma
tár fram í augun, það vantar
mömmu til að þurka þau og
strjúka tárin af litla, rjóða, sorg-
bitna vanganum; fæturnir verða
fjarska þreyttir, þeir eru ber-
fættir.
Sárar iljar svíða og blæða,
saklaus falla Mr;
komdu, mamma, komdu að
græða
kvíða og angurs tár.
Nóttin fer í hönd; þeir hafa
heyrt talað um einhver dýr í skóg-
inum, sem væru svöng eins og
þeir; hvað skyldu þau heita?
skyldu þau hafa stóran munn? og
þau eru víst fljót að hlaupa; þau
eru ekkert þreytt; skó!gurinn er
víst rúmið þeirra; en hvar fá þau
að drekka?
“Eg er svo þyrstur,” kallar yngri
drengurinn; “við skulum leggjast
niður. Mamma segir, að það sé
til einhver guð, sem hjálpi litilum
drengýum, ef þeir eru góðir
drengir; við höfum verið góðir
dreigir, við höfum ekkert blótað;
við 'skulum fara að biðja þennan
guð að taka okkur til mömmu, við
skulum lofa að blóta aldrei og
vera góðir við kýrnar og kálfana
þeirra og hænsnin líka og við
mömmu; við deyjum, ef við finn-
um ekki mömmu; hvernig ætli það
sé að deyja?”
Eldri drengurinn segir: “Það er
víst sama og að sofna.” — “Skyldi
maður vakna aftur?” spyr isá
yngri. — “Ekki ef dýrin taka okk-
ur,” segir hinn. — “Þá ætla eg
strax að fara að biðja guð,” segir
sá yngri; “isjáðu stóra tréð, sem
hefir dottiið, hver ætli hafi sett
það niður?” —
“Mamma segir, að guð sé hátt
uppi, kannske hann sé hérna uppi
á stóra trénu, og þá heyrir hann
til okkar”, og drengurinn litli
fjögra ára, legst á grúfu og fer
að biðja guð, sem hann er viss um
að sé uppi í stóra trénu og heyri
nú til sín. Og hafi npkkurn tíma
stigið upp frá jörðinni heit og
'saklaus bæn, þá er það víst, að
það var þarna í eyðiskóginum, frá
brjósti litda dren!gsins; hann seg-
ir: “Góði Guð! láttu okkur kom-
ast heim til mömmu, við erum
uppgefnir, við erum þyrstir og
'syangir, við getum ekkert nema
beðið þig; þú verður að hjálpa
okkur.”
Blessaður litli hnokkinn stend-
ur upp, hann segir við bróður
sinn: “Eg er ekki eins þreyttur
og áðan; hvaða hljóð er þetta?
komdu hérna dálítið lengra, við
skulum hlusta; þetta er líkt og í
ánni, sem er hjá húsinu hennar
mömmu, komdu, komdu!” Og þeir
ganga dálítinn spöl og sjá vatnið—
Já, og maðurinn, sem núna sit-
ur í sætinu hjá mér, sem er eng-
inn annar en isex-ára drengurinn,
sém þarna var að villast, segir
við mig: “Eg hefi aldrei verið
trúmaður, en bróðir minn, fjögra
ára gamli drengurinn, sem baðst
fyrir í skóginum norður hjá Fort
Vermillion fyrir fjörutíu árum
síðan og sem dó í stríðinu 1916,
hann var fæddur trúmaður; hann
Isaac Lorence var fæddur til að
trúa á guð og alt sem guðlegt er
á þessari jörðu; það hefir æfin
sannfært mig um, og það var guðs
handleiðsla, sem leiddi okkur í
rétta átt niður með ánni, og heim
að húsinu, eftir tveggja sólar-
hringa villu og þreytu og hungur
í skóginum, því sjálfir hefðum við
aldrei getað hitt réttu leiðina;
áin var lygn eins og stöðuvatn, og
við gátum ekki greint í hvaða átt
hún rann, þó fullorðnir hefðu get-
að það, og dauðinn var okkur vís,
ef við hefðum farið í öfuga átt. Ef
þetta er ekki guðs handleiðsla, þá
grípur ekki minn skilningur hvar
hana er að finna; eg hefi aldrei
síðan efast um að hún væri til.”
Eg býst við að lesarinn skilji,
að þar var sex-ára gamli drengur-
inn, sem viltist með bróður sín-
um, sem sat í sætinu hjá mér, það
var Jack Lorence. Fjörutíu árir|
sem liðin eru síðan þetta ofan-
skráða atvik kom fyrir, hafa
breytt honum í stóran og fallegan
hann og vel efnaðan.
Það er fimtudagsmorgun, klukk-
an tuttugu mínútur eftir >sjö, 9.
í meir en þriðjung aldar hafa
Dodd’s Kidney Pills verið viður-
kendar rétta meðalið við bakverk,
gigt, þvagteppu og mörgum, fleiri
sjúkdómum. Fást hjá öllum lyf-
sölum, fyrir 50c. askjan, eða sex
öskjur fyrir $2.50, eða beint frá
The Dodds Medicine Co., Ltd.,
Toronto, ef borgun fylgir.
april 1931, og lestin er að renna
inn á járnbrautarstöðina í Ed-
monton. Eg þekti engan í Ed-
monton, en hafði þó húsnúmer
eins íslendings, sem var 10255 á
98. strætá, og maðurinn, sem með
mér var sagði að það mundi vera
skamt frá járnbrautarstöðinni, og
reyndist það rétt, þegar til kom;
þekti eg manninn, við höfðum
kynst í Dakota; það var Sveinn,
sonur Guðmundar heitins Jóhann-
essonar, eem allir Mountain-búar
kannast við. Sveinn tók mér eins
og eg væri bróðir hans, og höfð-1
um við margt að skrafa saman.
Þar næsti fór eg að fá mér far-
seðil til Dawson Creek, B.C., sem
nú er endastöð N. A. C. járnbraut-
arlnnar; eg spurði hvað sú leið
væri löng, og svarið var: 497 míl-
ur og fargjaldið $17.15.
Við Jack Lorence fórum næst
yfir að gripamarkaðs girðingun-
um, Alberta Co-Ops. Edmonton
Stock Yards. Við hittum yfir-
manninn, Mr. Young, sem tók
okkur glaðlega; hafði þingmaður-
inn fyrir Gimli gefið mér góð með-
mæli til þessa manns; sýndi hann
okkur mikið af fallegum gripum.
Var Mr. Lorence að hugsa um
að setja á stofn griparækt átta
hundruð mílur norðvesbur af Ed-
monton og verja til þess fjórtán
þúsund dollurum. Honum þótti
fátt um gripi á markaðnum í Ed-
monton, enda sagði Mr. Young, að
það sem inn kæmi seldist jafn-
harðan. Þarna voru fallegir
þriggja ára gripir, sem voru seld-
ir út úr kvíunum fyrir $27.50 hver,
og okkur Mr. Lorence kom saman
um, að gripamarkaðsréttirnar í
Edmonton væru sama sem tómar,
og orsökin væri sú, að það væru
bændur, sem bæði seldu og
keyptd meiri partinn af því, sem
í boði væri; fóður væri ódýrt og
auðvelt að fóðra gripina eftir
þennan tíma, sumarið væri að
fara í hönd. Hvernig færi svo,
þegar þessir gripir kæmu í þús-
unda tali inn á markaðinn aftur
í haust? Það var okkur hulið, eins
og alt annað, sem fram undan var.
Þessi dagur, 9. apríl, hafði lið-
ið ótrúlega fljótt. Það var komið
undir kvöld og mér fanst eg vera
lúinn, þó eg hefði ekkert unnið, og
þegar eg gekk þangað, sem eg hélt
til, duttu mér í hug orðin úr kvæð-
inu Locksley höll, sem skáldið Guð-
mundur Guðmundsson þýddi:
“Alt er fult af umsækjendum,
ösin þekur sölutorg.”
Er hægt að útmála daglega stríð-
ið betur en þetta? En væri ekki
gott að mega lesa áfram og sjá
orð skáld'sins verða að virkileika:
“Unz eg heyrði hergný þagna,
hverfa leit eg fána sveim,
alheims þingið setiti sátt, og
sambandsríki allan heim.”
Og þá mundi okkar kæri Þorsteinn
Erlings'son sjá orc!I sín rætast,
þennan gullfallega draum, sem
hann lætur sig dreyma mannkyn-
inu til hugsvölunar:
“Þá verða’ ekki smælingjum
veðrin svo hörð,
eða vistin svo nöpur á fjöllum,
því skjól hefir fundið hin hú'S-
lausa hjörð,
og hún er þá blíð, vor móðir
jörð,
og blessuð af börnunum öllum.”
isins væri ekki sparað. Strætin
eru breið og rúmgóð, og víða eru
akurblettir og auð svæði hér og
hvar í bænum. Bærinn er um
fimtán mílur á lengd með fram
fljótinu, og mikið af húsum, að
manni sýnist niðri í árgilinu eða
í brekkunum að ánni. Það eru
víst einar fimtíu tröppur upp að
sumum húsunum. Ef maður
gerði nú ráð fyrir, að bærinn teldi
níubíu þúsund íbúa, og aðeins tíu
þúsundir af því fólki hefði at-
vinnu við hin svokölluðu fram-
leiðslu verkstæði, þá mundi manni
verða á að spyrja, á hverju hitt
fólkið lifði. Eg veit ekki hvað
svarið yrði, nema þá að það lifði
hvort af öðru. — Eg skoðaði sýn-
ingarbyggingarnar, Stock Exhibi-
tion. Þær eru margar og ein
þeirra bygð úr rauðu múrgrjóti.
Maður myndi halda, að þær yrðu
minna notaðar í framtíðinni, ef
tímar ekki batna því fyr. Þar
skamt frá eru sláturhús Swift
Canadian félagsins. Það volduga
félag hefir þarna sbórt og mikið
matartilbúningshús.
Þaðan ætlaði eg að fara að skoða
þinghúsið, og var þá með mér
norskur maður, allra bezti karl.
Þégar við áttum spölkorn eftir
mættum við bónda frá Saskatoon,
sem ætlaði með sömu fólkslest-
ir.ni og eg til Hitih og þaðan til
Walhalla, sem er smáþorp úti í
sveit. Bóndi þessi hafði keypt
þar í nágrenninu þrjá fermílu-
fjórðunga lands fyrir rúmu ári
síðan, og hreinsað og brotið á
þeim þrjú hundruð ekrur síðast-
liðið sumar, 1930. Fyrir þessi
lönd hafði hann borgað 9,000 doll
ara og um tvö þúsund doll. hafði
hreinsunin á þessum þrjú hundr-
uð ekrum kostað, að plægingunni
meðtalinni. Þó sagðist hanna hafa
haft sinn eigin vinnukraft og ekki
reiknað sjálfum sér mikið kaup,
en reiknað oliu og það, sem þurfti
til að halda dráttarvélinni í góðu
lagi. Nft var hann á leiðinni til
að fara að sá í ‘ þessar áður-
nefndu þrjú hundruð ekrur, og
hafði viljað það óhapp til að tapa
bezta félaga 'sínum, sem hann
hafði að þessu sinni; autivitað var
maðurinn giftur, en fyrir sama
kom, þessi dýrgripur, sem hann
áleit að vera, hafði líka verið
lengi í fylgd með honum og átti
aí vera aðal-förunautur hans, að
minsta kosti meðan hann væri að
undirbúa og sá í þessar þrjú
hundruð ekrur, og félaginn var
bara langur og mjór Newfound-
land hundur. Það var samt eins
og maðurinn hefði mi«b aleigu
sína, svo mikið áhugamál var hon-
um að fina hundinn.
Þér finst þetta máske blátt á-
fram hlægilegt, lesari góður. En
lofaðu mér að athuga þetta dá-
lítið betur, og þá lagast alt sam-
an. Manstu eftir vísunni gömlu:
“Stundu þá eg blundi brá,
bundið sá hvar sprundið lá
grundu á, óg hundur hjá,
hrund var blá, en und ósmá”?
Karinske og kannske ekki, en þú
manst isjálfsagt eftir vísunum
hans séra Matthíasar Jochums-
sonar um hann gamla Jarp; þær
gleymast mér aldrei, allra sízt
þessi:
‘‘Og að baki Edenlunds
oss þú berð, sem áður
milli manns og hests og hunds
hangir leyniþráður.”
Hvað þessi leyniþráður er sterk-
ur, veit hvorugur okkar, en við
höfum fulla ástæðu til að halda
að hann sé til, bæði vegna þess
að bæði hundar og hestar hafa
sýnt þá trygð og það viti við mann-
félaga sína, að við, sem viljum
halda okkur hafa einhvern guðs-
myndarneista í okkur fólginn,
megum i mörgum tilfellum blátt
áfram bera kinnroða við þann
samanburð.
Það varð úr þinghússkoðun
minni, að við fórum allir, sinn í
hverja áttina að leita að hundin
um, og svo illa gekk að finna
hann, að það mátti varla tæpara
standa; klukkan var að verða
hálf-fjögur. Norðmaðurinn hafði
Að því er snertir
hreinleik og gæði
Mj ólk, Smj ör og Rj ómi
sent heim til yðar frá
Modern Dairies
LIMITED
a
engan sinn
líka
PHONE 201 101
Þér getið þeytt rjóma vorn, en aldrei fengið betri mjólk.
BETRI MELTING OG
MEIRA ÞREK.
Veikburða og kjarklítnð fólk nýt-
ur mikillar blessunar af hinu á-
gæta lyfi, Nuga-Tone. Meðal þetta
Ihreinsar eiturgerla úr líkaman-
húsgirðinguna hjá einni hefðar-
frúnni í Edmonton og skemt fyr-
ir henni blómabeðsistæði, og var
hundurinn fyrir þá sök bundinn
isem fangi, því allir vita að hér í
Iandi er lögð sérstök alúð við að'um, sem ræna styrkleik og heil
hegna fyrir hvert smáræði; það er brifði tauganna og vöðvanna og
«VO .0»™» l«a .»«<■‘|“"íg
smæhngiunum. Fruin vildi hafa|magann 0g heilsuna yfirleitt mik-
fimm dollara skaðabætur fyrir , illega. Láttu ekki bregðast að fá
v;* fiAttnm nlclrur svn bað sem Tér flösku af Nuga-Tone — meðal-
Við flyttum okkur svo þaö .em fæst hjá lyfsölum. Hafi lyfsal-
við gátum a jarnbrautarstoðina, | inn það gj^j við hendma, þá láttu
til að ná í sæti í fólksflutnings-j hann útvega þér það frá heildsölu-
vegna þess að á þeirri húsinu.
vagninum
braut er vanalega hvert sæti upp-
tekið, sérstaklega um þennan tiíma
árs, því “margir vilja fuglar
fljúga, og fá sér betra iskjól.” —
Fyrstu fimtíu mílurnar út frá Ed-
monton var svo þröngt í vögnun-
um, að fjöldi varð að standa. Þeg-
ar komið er út úr biðstöðinni í
Edmonton, ferðamaður góður, og
þú ætlar að taka þér far með
Norður Alberta járnbrautinni,
eem kölluð er, til Peace River
héraðsins, þá stendur maður í
einkennisbúningi við innganginn
að svo að segja hverjum vagni, og
spyr þig hvort þú ætlir til Mac-
blómabeð'S-stæðið sitti, og það fékk
hún orðalaust.
Lennan eða Dawson Creek. Ástæð-
ari fyrir þessu er sú, að klukkan
Eg sofnaði um kvöldið út frá' , , .
mínu hugar-rugli og sólin blessuð .°rðlð hepnastur hann fann hund-
ínn, sem til auðkennis hafði nisti
fest á ó] um hálsinn, með fanga
marki húbónda sins í fullum stöf-
um þar innan í.
Hundurinn hafði lent inn fyrir
vakti mig morguninn eftir af
værum blund; klukkan var að
verða sjö, 10. apríl var kominn,
lestin til Dawson Creek átti að
leggja á stað klukkan fjögur og
mig langaði til að litnst svolítið
um með fram Norður Saskatche-
wan ánni, yfir bæinn Edmonton.
Fallegt og mikið mar.nvirki er
brúin yfir Norður Saskatrhewan
ána, er kölluð Highlevel brú. Er
hún tvísett; strætisvagna spor og
keyrsluvegur á neðri hæðinni, en
járnbrautarsporið á þeirri efri.
Ægilegt fanst mér að horfa nið-
ur af þessari hæð út um gluggann
á vagninum, og fann eg þá til þess
hve fáfróður eg var og hafði >séð
lítið af stórverkum mannanna.
Duttu mér þá í hug, þegar eg
horfði þarna niður á hyldýpis ána,
orð skáldsins;
“Áfram, áfram,. utan tafar,
ógnar fljót, um hulda slóð,
þú til ægis, eg til grafar,
yrkjum saman vegaljóð.”
Edmonton er fallegur bær, og
sannarlega hafa þeir menn, eem
fyrst mældu hann út, ekki verið að
spara land til bæjarstæðis; hafa
víst álitið, að Norðvesturlandið
væri nógu stórt, þó til bæjarstæð-
Konan vildi ekki eiga skegg-
lausan mann.
í litlu þorpi nálægt París, fór
einn af bændunum heim til sín í
sérstnklega góðu skapi. Hann
hafði fundið upp á því snjallræði
að láta raka af sér ekeggið, og
þóttist yngjast við það um helm-
ing. Var hann svo ánægður út af
þessu, að hann söng og trallaði
alla leiðina heim.
En þegar konan sá hann, Kom
annað hljóð í strokkinn. Hún ætl-
aði alveg af göflum að ganga og
lumbraði svo rækilega á honum
fyrir tiltækið, að hann sá sinn
kost vænstan að flýj aaftur að
heiman. Fór hann nú inn í þorp-
ið aftur og reyndi að hugga sig
að ganga sex eða þar um bil næsta { við það að drekka. Sat hann þar
morgun, kemur lestin til Mac- þangað til lokað var, en varð þá
Lennan. Þar er henni skift í tvo nokkrum kunningjum sínum sam-
hluta, og fer sumt af vögnunum,
sem fólkið er í, norður til Peace
River Crossing eða Dunvegan, en
hinn parturinn heldur áfram til
Dawson Creek. Hefðir þú því,
laxmaður, ekki verið á réttum
stað í lestinni, hefðir þú annað-
hvort orðið fyrir því ónæði, máske
hálf-sofandi, að vera rekinn upp
og yfir í réttan vagn, eða þú hefð-
ir farið í þveröfuga átt við það,
sem þú ætlaðir þér.
í þesisari lest, sem nú var ferð-
búin, voru sex fólksflutningsvagn-
ar tveir matstofuvagnar, þrír
“express” vagnar og fyrir víst einn
svefnvagn.
Klukkan er á mínútiunni fjögur
10. apríl 1931, og lestin rennur á
stað út frá stöð Þjóðeignabraut-
anna í Edmonton. Frh.
ferða. Honum var ekki gott í
skapi. Á leiðinni komu þeir að á.
Segir bóndi þá grátandi, að hann
geti ekki afborið þetta lengur og
fleygir sér í ána. Eftir mikla
mæðu tókst hinum að bjarga hon-
um, nær dauða en lífi, og óku hon-
um heim í hjólbörum. Þegar kon-
ar. sá hvernig komið var, gekst
henni hugur við og tók ágætlega
á móti honum, og síðan eru þau
bæði jafnánægð og þau væri ný-
trúlofuð. — Lesb.
FRA ISLANDI.
Reykjavík, 17. Sept.
Séra Jón Pálsson, prófastur á
Höskuldsstöðum andaðist í gær,
18. 'sept., á sjúkrahúsinu á Blöndu-
ósi, eftir langa og þunga legu.—
Vísir.
n
S
n
n
i
Veitið athygli!
Urvals Suffolk Down lirútar, af innfluttu kyni,
frá $12.50 og hækkandi, eftir gœÖum. Skrifið
eftir upplýsingum á íslenzku eða ensku.
GLENEYANS FARM,
Clarkleigh, Man.
0
\
0
\
0
\
Lipur afgreiðsla og vörugœði einkenna verksmiðju
vora. Stæráta brauðgerðahús í Canada. Vér sendum
vöruna heim til yðar hvernig sem viðrar.
1 00 umboðssalar í þjónuátu vorri.
Canada Bread
Company, Limited
Portage Ave. and Burnell St. Phone 39 017"33 004
\' * ' i ■ > * 'j|
FRANK HANNIBAL, framkvæmdarstjóri