Lögberg - 07.07.1932, Page 8
Bls. 8.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 7. JÚLÍ 1932.
RobinfHood
FLOUR
Þetta mjöl eykur starfsþróttinn
og byggir upp líkamann
Úr bœnum og grendinni
■+
Skuldarfundur í kvðld, fimtudag.
Séra Jóhann Friðriksson var
staddur í borginni á mánudalginn.
Séra E. H. íFáfnis var staddur
í borginni á þriðjudaginn og mið-
vikudaginn.
Mr. Ágúst Magnússon frá
Lundar, Man., var staddur í borg-
inni á miðvikudaginn.
Messur 1 Argyle prestakalli þ.
10. júlí 1932: Að Brú kl. 11 f. h.,
Grund kl. 2.30 e.h. og Baldur kl.
7 að kveldi.
John J. Arklie, R. O., sérfræð-
ingur í að reyna sjón manna og
velja þeim gleraugu, verður að
hitta í Eriksdale Hotel fimtudag-
inn 14. júní og í Lundar Hotel
föstudgainn 15. júlí.
Fyrir drenginn, sem slasaðist,
hefir The Columbia Press, Ltd.,
meðtekið $5.00 frá Dorkasfélagi
Árdalssafnaðar, Árborg. Kærar
þakkir.
Mrs. George Freeman ,frá Up-
ham, N. Dak., kom til borgarinn-
ar á þriðjudaginri og með henni
dætur hennar tvær, Miss M. Emily
Freeman og Miss Easther B. Free-
man.
Skemtiferð ’Goodtemplara til
Selkirk næsta sunnudag (10.
júlí), með strætisvögnum frá
North End Car Barns; fargjöld
50c. og 25c. fyrir börn. Góð
skemtun; allir velkomnir. Gunnl
Jóhannsson útbítir farseðlum og
upplýsingum.
Dr. Tweed verður í Árborg mið-
vikudaginn og fimtudalginn, 13. og
14. júlí.
Ungmenni fermd í
uði sunnud. 12. júní:
Baldvin Sigurðsson.
Helgi Steinþór Hólm
Víðirsöfn-
Á sunnudaginn kemur, 10. júlí,
prédikar séra S. O. Thorlakson í
kirkju Víðinessafnaðar, að Husa-
vick, Man., kl. 2 e. h. Guðsþjón-
ustan fer fram á íslenzku. í næstu
viku fer hann til Minneota, Minn.
Messur í prestakalli séra H.
Sigmar, sunnudaginn 10. júlí:
Gardar kl. 11, Eyford kl. 2 og
Hallson kl. 8 að kveidi. — Fólk
taki eftir að messan á Eyford er
kl. 2 en ekki kl. 3 e. h. Allir vel-
komæir.
Prófessor Richard Beck er nú
sem stendur í Ithaca, N.Y., við
bókmenta rannsóknir á Fiske
safni íslenzka bóka við Cornell
háskólann. Mun hann verða þar
til ágúst loka. Prófessor Beck
unir sér álgætlega hjá íslenzku
bókunum.
Mr. Ásmundur Björnson, frá
Minneapolis, hefir verið hér
borginni nokkra undanfarna daga,
eða síðan á laugardaginn, en er
nú á förum heimleiðis. Mr
Bjarnason er trésmiður og er vel
þektur þar syðra fyrir sinn mikla
ha'gleik. Mr. Bjarnason var áður
hér i borginni og á hér marga
góðkunningja.
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annaat grelölega um aJt, aem að
flutningum lýtur, smáum eða etðr-
um. Hvergi sanngjarnara verB.
Heimili: 762 VICTOR STREET
Slml: 24 500
MOORE'S TAXI LTD.
28 333
Leigið bíla og keyrið sjálfir.
Flytjum pianos, húsgögn, farang-
ur og böggla.
Drögum bíía og geymum. AUar
aðgerðir og ökeypis hemilprófun.
Á fimtudaginn í vikunni sem
leið andaðist á Almenna spítalan
um hér í borginni, Magnús I. Sig-
mundsson, fjórtán ára gamall
piltur, sonur Mr. og Mrs. T. Sig
mundsson, Hnausa, Man. Jarðar
förin fór fram að Hnausa,
þriðjudaginn. Séra Si'gurður Ól-
afsson jarðsöng.
Samband íslenzku og lútersku
safnaðakvenfélaganna hélt árs-
þing sitt í Fyrstu lútersku kirkju
á þriðjudaginn og miðvikudaginn
í þessari viku. Voru þar mættir
fulltrúar frá flestöllum kvenfé-
lögunum, sem sambandinu til-
heyra. Voru fundirnir vel sótt-
ir og þóttu skemtilegir og upp
byggilegir, en annars er ekki
tækifæri til að geta þessara fund
arhalda frekar í þetta sinn.
Beauty Parlor
643 Portage Ave.
Corner Sherbrooke Str.
Mundy’s Barber Shop
Sími: 37 468 Heimlli: 38 005
Mrs. S. C. Thorsteinson
Um siðustu mánaðamót voru
liðin 35 ár síðan Dr. Sig. Júl. Jó-
hannesson útskrifaðist úr latínu-
skólanum í Reykjavík. Barst hon-
um þá eftirfarandi símskeyti:
Reykjavík, 30. júní 1932.
Dr. Jóhannesson, Columbia
Press, Winnipeg.
Bekkjarbræður og kennarar
senda þér 35-faldar kveðjur og
beztu framtíðaróskir.
Árni, Ástvaldur, Eiríkur, Egg
ert, Gisli, ólafur, Proppé, Bjarni
Sæmundsson, Jón Helgason, Þor-
leifur Bjarnasn.
Hefir tvo um sextugt
Fo^sætisráðherra Canada, Hon.
R. B. Bennett, varð sextíu og
tveggja ára á sunnudaginn var,
Fæddur 3. júní 1870. Mörg
heillaóska skeyti bárust honum
þennan dag.
gordssoim-Tr Hiorvaldlsoini
Compamy Limited
GENERAL MERCHANTS
Útsölumenn fyrir Imperial Oil Limited
Royalite Coal Oil, Premier Gasoline
Tractor and Lubricating Oils
ARBORG RIVERTON HNAUSA
Phone i Phone i Phone 51, Ring 14
Manitoba, Canada.
]
Ungmennafélagið á Mountain
hefir skemtistund i garðinum við
samkomuhúsið á Mountain, sunnu-
daginn 10. júlí kl. 2 e. h. Pro-
gram fer fram og veitingar verða
framreiddar. Aðgangur ókeypis,
en samskota leitað til stuðnings
starfi ungmennafélagsins. 'Veit-
ingar seldar mjög vægu verði.
Messur áætlaðar 1 nyrðra
prestakalli Nýja íslands í júlí:
10. júlí: Árborg kl. 11 árd.
Geysir kl. 2 síðd.
17. júlí: Framnes kl. 2 síðd.;
Víðir kl. 8.30 eíðd.
24. júlí: Riverton kl. 2 síðd.;
Geysir kl. 8.30 síðd.
31. júlí: Árborg kl. 11. árd.;
Hnausa, kl. 2 síðd. og Riverton
kl. 8 síðd.
Forseti kirkjufélagsins, séra
K. K. Ólafson, fór að afloknu
kirkjuþinginu, snöggva ferð til
Argyle, þar sem hann var prestur
áður en hann flutti til Seattle.
Guðsþjónustu flutti hann að
Baldur á föstudagskveldið 24.
júní. Þaðan fór hann til N. Dak-
ota og prédikaði í kirkju Gardar-
safnaðar, sunnudaginn 28. júní. I
Voru þann dag liðin rétt 28 ár
frá því hann var vígður. í Gard-
arbygð er séra Kristinn fæddur
og uppalinn og í íslendingabygð-
inni í N. Dak. var hann prestur
um langt skeið. Kom hann svo
aftur til Winnipeg, en lagði af
stað heimleiðis á fimtudagsmorg-
uninn í vikunni sem leið.
íslendingadagurinn
Nú hefir nefndin lokið samn
ingum við flutningsfélagið um
fragjöld frá Winnipeg til Gimli
á íslendingadaginn þann 1. ágúst
í sumar, og verður það 75 cents
fyrir fullorðna fram og til baka,
en 25c fyrir börn yngri en 12 ára.
Inn í garðinn kostar að eins 25c.
fyrir fullorðna og lOc. fyrir börn
yngri en 12 ára.
Samið hefir verið um, að “bus”-
in fari vestur Ellice ave. og stanzi
við Sherbrooke, Toronto og Dom-
inion stræti. Fari vestur á
Valour Road og þar norður að
Sargent; ofan 'Sargent og stanzi
við Dominion, Banning, Arling-
ton, Toronto stræti, og einnig við
Goodtemplarahúsið á horni Mc-
Gee og Sargent. Eitt “bus” fer
vestur William Ave., stanzar við
Isabel og Sherbrooke stræti, fer
suður Sherbrooke og stanzar við
Notre Damle Ave., heldur suður
að Goodtemplarahúsi, en þaðan
verður lagt af stað kl. 8 að morgn-
inum. Að kveldinu verður fólki
skilað aftur á þessa staði, eftir
því sem hver óskar.
Fyrsta “bus” getur la!gt af
stað frá Gimli þegar fólk æskir,
en það síðasta fer af stað kring-
um kl. 12 á miðnætti.
Farseðlar eru til sölu nú þegar
á eftirfylgjandi stöðum:
í verzlunarbúð hr. Gunnl. Jó-
hannssonar, Sargent Ave.; B. E.
Johnsons, 888 Sargent Ave.; Stein-
dórs Jakobssonar, Sargent Ave.;
O. S. Thorgeirssonar bókaverzlun
á Sargent Ave. og ritara nefndar
innar, 596 Sargent Ave.
Farseðlar verða einungis seld-
ir þeim, er kaupa inngang í garð-
inn um leið.
óskandi er, að fólk kaupi far-
seðla sem fyrst, svo nefndin fái
hugmynd um, hve mörgum hún
þarf að ætla fararpláss.
G. P. Magnússon,
ritari.
íslendingadagur
Seattle, Wash.
Eins og árin að undanförnu
hafa íslendingar í Seattle, á al-
mennum fundi, sem haldinn var
í byrjun júnímánaðar, kosið níu
manna nefnd til að sjá um ís-
lendingadagshaldið í ár. Full
sönuun er nú fengin fyrir því, að
meiri hluti íslendinga hér um
slóðir, eru ekki ánægðir nema
þjóð vorri og ættjörð sé helgað-
ur einn dagur á hverju sumri,
þar sem íslendingar 'geti komið
saman og endurnýjað fornan vin-
skap o g æákuminningar, minst
frumherjanna íslenzku í þessari
álfu og leitt hugann um stund að
hinum norræna stofni, sem hing-
að hefir fluzt og fest hér rætur.
Nefndin hefir haldið fundi og
skift með sér verkum; hefir hún
ákveðið að hátíðin skuli haldin
sunnudaginn 7. ágúst þ. á. að
Silver Lake, Wash., sama stað og
að undanförnu. í þetta skifti
eru fleiri ungir menn í nefnd-
inni, en nokkru sinni áður, og má
því fullyrða, að skemtiskráin
verður eins fullkomin eins og að
undanförnu; enn fremur hefir
eigandinn að skemtistaðnum lof-
ast til að hafa alt í góðu lagi,
mála borð og bekki o'g hreinsa og
prýða staðinn. Veitingar verða
til reiðu undir umsjón íslenzkrar
konu. Inngangslgjald í garðinn
er lægra en nokkru sinni fyr. —
Komið allir, ungir og gamlir, og
hafið góða skemtun. íslendingar
viljum við allir vera þenna dag!
Munið sunnudaginn 7. ájgúst að
Silver Lake.
Nefndin.
Mr. W. H. Paulson fylkisþing-
maður frá Leslie, Sask., og frú hans,
komu til borgarinnar á mánudags-
kveldið og verða hér nokkra daga og
fara einnig til Gimli. Með þeim kom
einnig Mr. Thomas Paulson frá
Leslie.
Trúboðsfélag Fyrsta Mterska
safnaðar þakkar öllum þeim, sem
heiðruðu með nærveru sinni
kveðjufsamsætið fyrir trúboðs-
hjónin, Rev. o!g Mrs. S. O. Thor-
lakson; einnig þeim sem skemtu
og með sínu innilega vinarþeli
hjálpuðu til að gera kveðjustund-
ina ánægjulega.
Hjónavígslur, framkvæmdar af
séra Birni B. Jónssyni:
3. júní: Thomas J. Gillies og
Katherine Baran, til heimilis í
Winnipeg.
16. júní: Bernard Dighton og
Lillian Reykdal, til heimilis í
Winnipeg.
2. júlí: Jónas Gestur Skúlason
frá Geysir, og Hrund Thorgríms-
son, frá Lundar.
2. júlí: Frank Pearson og Addie
Viola Björnsson, til heimilis í
Winnipeg.
Jón Bjarnason Academy
GJAFIR.
Miss Jennie Johnson, Wpg $10.00
Mrs. Skúlína Severson,
Grafton, N. Dak......... 5.00
Með vinsamlegu þakklæti,
S. W. Melsted,
gjaldkeri skólans.
Útflutningur á œðardún nam í
maí 49 kg., verð kr. 1,960, en á tíma-
bilinu jan.—mai 623 kg., verð kr.
11,510. Á sama tíma í fyrra 220 kg.,
verð kr. 8,050.
íslenska matsöluhúsíð
par sem Islendlngar I Winnipeg og
utanbæjarmenr. fá sör máltlöir og
kaffi. Pönnukökur, skyr, hangikjö*
og rúllupylsa á takteinum.
WEVEL CAFE
692 SARGENT AVE.
Slmi: 37 464
RANNVEIG JOHNSTON, elgandi.
íslenzka flugvélin
í K. R. húsinu verður í dag opn-
uð sýning, einskonar flugvélasýn-
ing, en aðalgripurinn þar er flug-
vél, sem þrír reykvízkir flugmenn
og halgleiksmenn hafa gert. Hún
er að öllu leyti fullsmíðuð, nema
hvað í hana vantar hreyfilinn.
Flugvélarsmiðirnir eru þeir
Björn Eiríksson, Gunnar Jónasson
og Björn Olsen. Hafa þeir unnið
að smíði þessari undanfarna 3—
4 mánuði, í frístundum sínum.
Flugvélin er með tvöföldum
vængjum og hefir tvö sæti. Hún
getur borið 300 kg. en er sjálf 400
kg. að þyngd. Smiðirnir hafa sjálf-
ir gert uppdráttinn að henni. 1
vélinni er tvöfaldur stýrisútbún-
aður, svo vélin er vel fallin til
kenslu í flugi. Hreyfil ætla þeir
nú að fá sér í vélina, með 80—100
hestöflum, o!g getur hún þá flogið
150 km. hraða á klst.
Auk hennar er svonefnd Vífils-
staðaflugvél þarna til sýnis.
Þá eru þarna sýndir uppdrættir:
af flugleiðum, frá síldarleit flug-
manna, og myndir frá heimsókn-
j um erlendra flugmanna, sem
hingað hafa komið, svo sem ame-
rísku flugmannanna 1924, Ahren-
berg, Gronau og Hirt.
Mun mörgum leika forvitni á
að koma í K. R. húsið. Sýningin
er opin frá kl. 2—10 í da!g og
næstu daga. — Mgbl. 10. júní.
FRÁ ÍSLANDI.
Akureyri, 14. júní.
Mentaskóla Norðurlands var
sa!gt upp í dag. Stúdentsprófi
luku 15 nemendur. Þar af tveir
utanskóla. 9 hlutu 1. einkunn, en
6 aðra. — Gagnfræðaprófi luku
48 nemendur, 26 með 1. einkunn,
21 með 2. og 1 með 3. einkunn.—
Alls gengu 196 nemendur undir
próf í skólanum. — Vísir.
trtflutningur á saltfiski.
flutt út í maí 3,015,860 kg., verð
kr. 1,021,170, en á tímabilinu jan.-
maí 24,506,580 kg., verð 8,139,190
kr. Á sama tíma í fyrra 18,601,-
360 kg., verð kr. 6,855,450. Af ó-
verkuðum saltfiski voru flutt út
í maí síðastl. 1,668,230 kg., verðl
kr. 249,320, en á tímabilinu jan.—
maí 11,622,810 kg., verð kr. 2,312,-
600. Á sama tima í fyrra 9,234,520
kg., verð kr. 2,408,520. — Vísir.
GÓÐ RÁÐ.
Ef menn búast við einhverju
sterku hljóði, svo sem byssuskoti
eða slíku, eiga menn að opna
munninn — og manni finst að
hljóðið sé ekki eins sterkt. Þessu
tóku rnenn eftir í ófriðnum mikla
og höfðu hermenn allir skipun
um það, að opna munninn í hvert
sinn sem þeir hleyptu af skoti.
Ef menn loka augunum er menn
tala í síma, heyrir maður mun
betur.
Við blóðnösum er ágætt ráð að
rífa dálítinn snepil af blaði og
leggja það undir tunguna. Þá
hættir að blæða, að sögn.
Menn ættu ætíð að muna, að
heilsugæzla er betri en sjúkra-
hjúkrun — að það er betra að
fyrirbyggja sjúkdóm, en lækria
hann.
HITT OG ÞETTA.
Um daginn dó veitingamaður
nokkur í London, John Gordon að
nafni. í erfðaskrá sinni lét hann
þess getið að rakarinn sinn skyldi
raka sig, klippa o!g snyrta á sér
neglur o!g tær, áður en hann væri
lagður í kistuna. Fyrir þetta átti
rakarinn að fá fimm sterlings-
pund í þóknun úr búinu. Enn-
fremur lagði hann svo fyrir, að
hann vildi hafa Ijósmyndir af
konu sinni, föður og móður, gam-
alli barnfóstru sinni — og nýtt
hálsbindi, sem hann hafði fengið
| að gjöf frá vini sínum, með sér í
gröfina. Aftur á móti stóð ekkert
um það í erfðaskránni, hvað !gera
skyldi við allan auðinn, sem hann
lét eftir sig.
Nýja stjórnin á Spáni hefir gef-
ið út reglugerð um það, að með
hverri máltíð, sem seld sé á veit-
ingahúsum o!g matsölustöðum um
allan Spán, skuli einnig selja
minst hálfan lítra af spænsku
víni.
i —
Brynjólfur Thorláksson
tekur að sér að stilla
PIANOS og ORGANS
Heimili 594 Alverstone St.
Sími 38 345
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sími: 27 117. Heima 24 141
FRÁ NOREGI.
Hundvaag sardiníu verksmiðjan
í Stafangri brann til kaldra kola
fyrir nokkrum dögum. — Tjónið er
metið á 200,090 kr. — 45 verka-
menn unnu í verksmiðjunni.
Nokkrir kunnir vísindamenn
hafa stungið upp á, að stofnað
verði prófessor embætti handa
Adolf Hoel docent, svo að hann
geti gefið sig einvörðungu að
rannsóknum, sem snerta norður-
hvel jarðar. — “Akademiske kol-
legium” hefir einróma samþykt
að mæla með, að prófessorsem-
bættið verði stofnað. — Vísir.
JOHN GRAW
Fyrsta ílokks klæðskerl
Afcrreiðsla fyrir öllu
Hér njöta peningar yðar sín að
fullu.
Phone 27 073
218 McDERMOT AVE.
Winnipeg, Man.
DR. T. GREENBERG
Dentist
Hours 10 a.m. to 9 p.m.
PHONES: Office 36 196
Res. 51 455
Ste. 4 Norman Apts.
814 Sargent Ave., Winnipeg
oi
U
D
D
D
D
D
D
D
D
D
CANADA
BREAD
Hið risavaxna brauð vort
full nœgir risa matarlyát
Reynið það nú. Símið pöntim yðar
■v
D
D
D
D
D
0
0
D
D
n
[O