Lögberg - 01.09.1932, Blaðsíða 8
Bls. S.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN i. SEPTEMBER, 1932.
RobmlHood
FIiÓUR
Brauðið úr Robin Hood mjöli, er
bezti vinur verkamannsins
Or bœnum og grendinni
Skuldarfundur í kvöld, fimtudag.
Mr. og Mrs. Björn Hjálmarsson
frá Wynyard, Sask. kom til borgar-
innar á fimtudaginn í vikunni sem
leiÖ.
Tvö herbergi samstæð til leigu nú
þegar. (Large hall). Rafeldavél til
afnota. Ibúð þessi er á Banning
Street. Sími 24 518.
Séra Jóhann Friðriksson messar
næsta sunnudag, 4. september, í
samkomuhúsinu Bræðraborg i
Foam Lake bygð kl. 11 f. h. og í
Leslie kl. 2 e. h. (standard time).
ELEANOR HENRICKSON
TEACHER OF PIANO PLAYING
Studio—977 DOMINION 8T.
Phone 30 826
FRANK THQROLFSON
TEACHER OlF PIANO
Studio 728 Beverley Street
Phone 26 513
ARNOLD JOHNSTON
Kennir d fiðlu og piano
Kenslustofa að 543 VICTOR ST.
Slmi 39 697
Ráðskona óskast til ekkjumanns
úti á landi. Gott heimili. Upplýs-
ingar á skrifstofu Lögbergs.
Nokkur herbergi til leigu að 587
Langside St. Mismunandi stærð.
Eldavélar í herbergjunum; sími í
húsinu.
Sunnudaginn 4. september, mess-
ar séra Sigurður Ólafsson í kirkju
Geysis sáfnaðar kl. 2 e. h. og í
Riverton kl. 8 að kvöldinu. Fólk
er vinsamlegast beðið að f jölmenna.
Mr. Guðmundur Jónsson klæð-
skeri var staddur i borginni í vik-
unni sem leið. Kom hann austan frá
Ontario og var á 1‘eið vestur á
Kyrrahaf sströnd.
. Gefin saman i hjónaband hinn 27.
ágúst David A. Rutherfórd og Mar-
garet Goodman. Bæði til heimilis
í Winnipeg. Dr. Björn B. Jónsson
gaf J>au saman og fór hjónavígslan
fram að heimili hans 774 Victor St.
Miss Eleanor Henrickson, piano-
kennari, að 977 Dominion Street,
byrjar á ný kenslu í pianospili á
heimili sínu núna um mánaðamót-
in. Hún er ein af efnilegustu piano-
kennurum íslenzkum hér í borginni
og má þess því vænta að hennar is-
lenzki nemendahópur fari jafnt og
þétt vaxandi.
Snjólaug Sigurdson
TEACHEK OF PIANO
Studio: 950 Dominion Street
Phone 38 519
“Óðinn” frá janúar til júni loka
þ. á. hefi eg fengið. Þeir, sem
keypt hafa það rit hjá mér bið eg
að láta mig vita hvort þeir viíja það
sent. Árg. $2.00.
Ólafur S. Thorgeirsson.
674 Sargent Ave. Wpg.
í andlátsfregn Jóns S. Pálsson-
ar í síðasta blaði er sú meinlega
prentvilla, að sagt eí að hann og
kona hans hafi verið varnarlaus,, en
átti vitanlega að vera barnlaus.
Leiðréttist þetta hér með.
Miss Björg Frederickson, hin á-
gæta kenslukona í piano-spili, er nú
tekin til kenslustarfa á ný hér í
borginni. Hefir hún þegar getið
sér mikinn orðstír, sem piano-kenn-
ari, og má þess því vænta að nem-
endur snúi sér til hennar.
Næsta sunnudag, 4. september,
messar séra N. S- Thorláksson að
Gardar, N. Dak., kl. 11 f. h.; Hall-
son kl. 3 e. h. og Mountain kl. 8 að
kveldi. Allir velkomnir. Fólk að
Svold er beðiS að sækja messuna að
Hallson. *
Veitið athygli auglýsingunni frá
hinum etnilega piano-leikara Mr.
Frank Thorolfson, sem nú er í þann
veginn að byrja aftur kenslu sína í
piano-spili eftir sumarfríið. Lauk
hann í vor prófi við Toronto Con-
servatory of Music við hinn ágæt-
asta orðstir.
Miss Snjólaug Sigurdson, er nú
tekin að stunda piano-kenslu hér í
borginni, eins og sjá má af auglýs-
ingu hér í blaðinu. Miss Sigurdson
er sjaldgæfum hæfileikum gædd sem
piano-leikari og má því fyllilega
treysta að kenslustörfin fari henni
ekki síður úr hendi.
Mr. J. Ragnar Johnson fór af
stað á sunnudaginn til Calgary, Alta.
til að sækja ársfund lögmannafélags
Canada, sem þar er nú haldinn þessa
dagana. Hann bjóst við að koma
aftur heim til Winnipeg á þriðju-
daginn í næstu viku.
Almenna guðsþjónustu flytur G.
P. Johnson í Goodtemplara húsinu
á Sargent Ave., sunnudaginn 4.
september, kl. 3 e.h.
Umræðuefni: “Tímabilið þegar
allir íslendingar vakna til sannrar
guðs trúar.” Sungnir verða sigur-
söngvar. Allir velkomnir.
Gjafir til Betel
Mr. Sigurðud Einarsson,
Reykjavík, Iceland $100.00
Kvenfélag Herðubreiðar safn.
Langruth................ 25.00
Innilega þakkað,
/. Jóhannesson, féhirðir
675 McDermot Ave., Wpg.
Mrs. J. M. Morrow kom til borg-
arinnar á þriðjudaginn frá Fort
Smith, sem er einar 600 mílur norð-
ur af Edmonton, Alta. Er maður
hennar, Dr. Morrow, læknir þar.
En svo börn þeirra tvö geti notið
betri skólagöngu, verður Mrs. Mor-
row hér í vetur. Hún verður á heim-
ili foreldra sinna, Mr. og Mrs. J.
Jóhannesson, 675 McDermot Ave.
Miss Ingibjörg Hannesson er ný-
lögð af stað héðan úr borginni á-
leiðis til íslands, siglir frá Montreal
á föstudaginn í þessari viku. Gerir
hún ráð fyrir að dvelja árlangt á ís-
landi, aðallega hjá systur sinni, frú
Petersen i Reykjavík. Þar er lika
föðurbróðir hennar, Guðmundur
prófessor Hannesson. Einnig á hún
systur búsetta í Húnavatnssýslu,
sem hún ætlar að heimsækja. Miss
Hannesson kom til þessa lands frá
Akureyri, þegar hún var fimm ára
gömul og mun lengstum hafa verið
á Gimli, Selkirk og Winnipeg.
Beauty Parlor
643 Portage Ave.
Corner Sherbrooke 8tr.
Mundy’s Barber Shop
Sími: 37 468 Heimlli: 38 005
Mrs. S. C. Thorsteinson
Wedding Bouquets, Pot Plants
Funeral Designs, Ferns
Cut Flowers
Sargent Florists
678 SARGENT AVE. (at Victor)
Winnipeg
PHONE 35 676
Séra Jóhann Bjarnason messar
væntanlega á þessum stöðum í Gimli
prestakalli næsta sunnudag, þ. 4.
sept., og á þeim tíma dags, er hér
segir : í gamalmennaheimilinu Betel
kl. 9.30 f.h.; í kirkju Víðinessafn-
aðar kl. 2 e.h., og í kirkju Gimli-
safnaðar kl. 7 að kvöldi.—Allir vel-
komnir. Eólk muni eftir að fjöl-
menna.
Þess var getið í síðasta blaði, að
ungur, íslenzkur piltur, Harry
Clarke, hefði skarað fram úr öllum
öðrum í nokkurskonar flugvéla-
samkepni í Manitoba. Síðan hefir
hann tekið þátt í samskonar, eða
svipaðri samkepni, sem drengir úr
öllum fylkjum Canada, alt að tví-
tugs aldri, hafa tekiS þátt í. Hefir
hann líka þar staðið sig flestum bet-
ur og hlotið bæði fyrstu verðkpm
og fjórðu verðlaun. Hefir Harry
Clarke nú unnið þrjú sigurmerki úr
silfri og þar að auki M.A.C. Wing
Pin.
Eftirfylgjandi nemendur Guð-
rúnar S. Helgason tóku próf við
Toronto Conservatory of Music:
Piano—
Associateship (A.T.C.M.). Solo
performers: Marion Gladstone
(pass). Intermediate: Herman
Eyford (pass). Junior: Jean Bruce
(pass). Primary: Florence Jo-
hannson (honors). Elementary:
Jean Boag (first cl. hon.). Intro-
ductory: J. Evelyn Friðfinnsson
(honors).
Theory—
Junior Harmony: Winnifred
Hardiman (honors). Junior Coun-
terpoint: Ruth MoClellan (hon.)
W. Hardiman (hon.). Junior His-
tory: C. Thorlakson, W. Hardi-
man (hon.)i. Primary Theory:
Herman Eyford (first cl. hon.) C.
Thorlakson (pass). Elementary
Theory: Florence Jóhannson
(first cl. hon.), Ruth Benson:
(hon.). — Þessir nemendur voru
undirbúnir á einu kensluári (9%
mánuðum), Solo performers á
tveimur.
ÁRÉTTING
í anda hef eg óraleið um álfur
gengið.
en ekki hef eg ofsjónir að erfðum
fengið.
Þeir hræðast auðn er hallir standa á
hálku nauða
af því hún á ekkert minnir utan
dauða.
Það er aðeins eitt sem kynni auðn
að geyma,
ef til vill þar andar dauðra um óttu
sveima.
R. J. Davíðson,
Minningahátíð
Ardalssafnaðar
1 ráði er að Árdalssöfnuður í Ár-
borg, Man., haldi hátíðlegt þrjátíu
ára afmæli sitt, sunnudaginn 11 sept.
næstkomandi, og byrjar hátíðin með
guðsþjónustu í kirkju safnaðarins
kl. 1 e. h. þann dag, en verður svo
framhaldandi í samkomuhúsi Good-
templara. Er hér með öllum með-
limum safnaðarins, að fornu og
nýju, ásamt vinum og stuðnings-
mönnum safnaðarins, vinsamlegast
boðið að sækja afmælishátíð þessa.
Þeir, sem í fjarlægð búa, eru góð-
fúslega beðnir að gera skrifara safn-
aðarins, Mr. S. A. Sigurðsson í Ár-
borg, aðvart ef þeir hafa í hyggju
að vera viðstaddir.
Safnaðarnefnd Árdalssafn.
Brynjólfur Thorláksson
tekur að sér að stllla
PIANOS og ORGANS
Heimili 594 Alverstone St.
Sími 38 345
Borgið Lögberg!
BJÖRG FREDERICKSON
TEACHER OF PIANO
Announces the Opening of Her Classes
SEPTEMBER 1
The following were pupils of Bjorg Frederickson—
Winner of Bach B. Competiiion—Winnipeg Festival 1932.
First an.d Second Prize Winners .Junior Piano—Brandon Festival
1932 '
Winner Primary Piano—Brandon Festival 1931
Intermediate Dominion Medallist—1930.
Out of 32 pupils taking Toronto Conservatory EXaminations in
the last three years, 30 have passed with honors (16 First Class honors
and 14 honors).
STFDIO—Ste. 14 CORNELITJS APTS., SHERBROOKE ST.
TEI.EPIIONE 39 357
WWWWW
Jóns Bjarnasonar
Academy
652 Home St.,Winnipeg. Talsími 38 309
Miðskólanám að
meðtöldum 1 2. bekk
Hið 20. átarfsár hefát
miðvikudaginn 14. sept.
R. MARTEINSSON,
skólaátjóri
XMAAMMMAAMMAM^^
Glíman
Er Bennett hlaut heiðurinn þráða,
þá hugðist hann einn skyldi ráSa;
svo hnefann að heiminum skók.
Með tollunum tryggja sér völdin,
þó tapaði árlega fjöldinn,
unz Boli í taumana tók.
Og þá glímdu þrjóskan og vitið,
en það reyndist erfiðast stritið
að sveigja þá lítt-tömdu lund:
fyrst bolmagn hann hefði’ ei við
Bola,
sé betra en ósigur þola,
um stefnu að breyta um stund.
Hve langt að sú leið verður gengin,
er líklegt að nú viti enginn,
því verksmiðju klíkan í kring,
sem Bennett í hálsbandi hefur
er harðlynd og eitt leyfi gefur:
um hælinn að snúast í hring.
20-8, 1932.
B. Thorbergson.
Langferðafólk
í síðustu viku komu hér til borg-
arinnar í skemtiferð í bíl, frá San
Francisco, Cal., Mr. og Mrs. Ellis
Leo Stoneson. Einnig faðir hans,
Mr. S. Stoneson frá Blaine, Wash.,
einnig Mr. og Mrs. Friðrik Thor-
arinson frá San Francisco, sem er
félagi þeirra byggingameistaranna,
Stoneson bræðra. Kom þetta ferða-
fólk við í Argyle-bygð, því þar
á Mr. S. Stoneson dóttur, Mrs. K.
Christopherson. Dvaldi ferðafólkið
þar í viku og kom Mrs. Christopher-
son með því til Winnipeg. Einnig
kom til móts við það hér i Wánni-
peg, Mr. Oddur Olafson frá River-
ton, fornvinur Mr. Stonesons.
Meðan ferðafólkið var hér í borg-
inn, var það hjá Mr. Finni Stefáns-
syni og dætrum hans, sem eru Mrs.
Johanna Eager, Mrs. H. Thompson
og Mrs. M. McAlpine. Mr. S.
Stoneson er bróðir Ingveldar sál.
konu Finns Stefánssonar. Kom þetta
fólk hingað úr Borgarfirði fyrir 45
árum.
Ferðafólkið lagði af stað heim-
leiðis á þriðjudaginn. Það þakkar
innilega ættingjuni og vinuni ágætar
viðtökur.
MOORE’S TAXI LTD.
28 333
Leigið bíla og keyrið sjálfir.
Flytjum pianos, húsgögn, feirang-
ur og böggla.
Drögum bíia og geymum. Allar
aðgerðir og ókeypis hemilprófun.
DR. T. GREENBERG
Dentist
Hours 10 a.m. to 9 p.m.
PHONES: Office 36 196
Res. 51 455
Ste. 4 Norman Apts.
814 Sargent Ave., Winnipeg
íslenska matsöluhúsið
J>ar sem Islendlngar 1 Winnipeg og
utanbæjarmenn fá sér málttðir og
kaffi. Pönnukökur, skyr, hanglkjö*
og rúllupylsa á takteinum.
WEVELCAFE
* 692 SARGENT AVE.
Slmi: 37 464
RANNVEIG JOHNSTON, eigandi.
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sími: 27 117. Heima 24 141
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annast greiðlega um alt, sem að
flutningum lýtur, smáum eða stór-
um. Hvergi sanngjarnara verð.
Heimili: 762 VICTOR STREET
Slml: 24 500
JOHN GRAW
Fyrsta l'lokks klæðskeri
Afgreiðsla fyrir öllu
Hér njóta peningar yðar sln að
fullu.
Phone 27 073
218 McDERMOT AVE.
Winnipeg, Man.
J. S. McDIARMID ( CHAS. McDIARMID
McDIARMlD BROTHERS
LIMITED
SASH, DOORS and MILLWORK
LUMBER
Phone 44 584
600 PEMBINA HIGHWAY, Winnipeg, Man.
SÖNG-SAMKOMA
í Fyrátu lútersku kirkju (Victor Street)
Föátudagskvöldið þann 2. sept. 1932, kl. 8.15
Ungmenna söngflokkur Gimli-bæjar og nærliggjandi
bygða, sá er söng á íslendingadaginn á Gimli þann 1. ágúst
síðastliðinn, syngur í fyrstu lútersku kirkju hér í bænum.
samkvæmt ofanskráðum tíma. Milli áttatíu og níutíu manns,
flest börn og unglingar, taka þátt í söngnum. Tveir nemendur
Óla Thorsteinssonar, báðir úr Geysisbygð, leika fiðlusamspil.
Miss Snjólaug Sigurðsson, pianokennari, leikur á piano. Mr.
Frank Thorolfson, pianokennari, leikur piano solo. Prof.
S. K. Hall leikur á organ meðan fólk er að skipa sér í sæti í
kirkjunni.
Hr. Brynjólfur Thorláksson, söngkennari, sá er æft hefir
þennan ágæta ungmennaflokk, stjórnar honum á samkomunni.
Aðgangur ókeypis, en samskot tekin við dyrnar. Hér er um
svo sjaldgæfa söngskemtun að ræða, að tæpast getur hjá því
farið, að húsfyllir verði. Fimm manna hljóðfæraflokkur, undir
stjórn hr. Óla Thorsteinssonar, verður söngflokknum til að-
stoðar.
f" mmammnmmo w u _ ,. M u m 0■■ n a—• 0n _ 1
Sigiuirdssoíii-ir horYaldsoim Compaimy Limited GENERAL MERCHANTS W
Útsölumenn fyrir Imperial Oil Limited Royalite Coal Oil, Premier Gasoline Tractor and Lubricating Oils ARBORG RIVERTON HNAUSA Phone 1 Phone 1 Phone 51, Ring 14 Manitoba, Canada.
io- T-T'T.TTT^T TT» TT TIT T — n—,—nT |MM|| „