Lögberg - 28.12.1933, Side 3

Lögberg - 28.12.1933, Side 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 28. DESEMBER, 1933. 3 Sólskin Sérstök deild í blaðinu Fyrir börn og unglinga >000000000000000000000000000000000000»»0000000000000000000000000000000000»0002 KOLFINNA. Smásaga eftir Svanhildi Þorsteinsdóttur Það er gamlárskvöld. Kolfinna situr við gluggann og horfir út í myrkrið. Það er ekk- ert að sjá nema þetta sama gamla; kjallarann í húsinu á móti og sundið, sem liggur niður að sjónum. Það er þó bjartara í glugganum á móti en venjulega. Líklega hafa þau kveikt á jóltrénu í síðasta sinn, fyrir börnin. — Það er kalt og hvast úti og sjálfsagt fáir á ferli. Kolfinnu hafði tekist að þíða héluna af rúð- unni Iijá sér, þó að hún hefði ekki annað til þess að hita upp með en gamla olíuvél. Fyrst hún varð nú að horfa á heiminn gegnum þenn- an kjallaraglugga, kunni hún betur við, að hann væri ófrosinn. Þegar vindhviðurnar komu, lék húsið á reiðiskjálfi. Bn það skifti Kolfinnu lengu, þó að vindurimi hviná og brimið hamaðist við ströndina. —Það var vont í sjóinn núna, og gott að þurfa ekki að eiga neitt undir náð hans. Kolfinna átti ekk- ert til að missa. Hún var orðin ein eftir í heiminum eins og gamalt tröll, sem hefir dag- að uppi og orðið að steini niðri í mannabygð- um. Hún hafði ekki alt af verið ein á gamlárs- kvöld. Stundum liafði verið hlýlegra í litla kjallaraherberginu hennar, en oft hafði þó eitthvað verið til þess að skyggja á, síðan hún kom í þetta þorp. Hún hafði átt gúða foreldra og fallegt heimili. Æskan leið eins og draumur í gleði og áihyggjuleysi — þangað til Villijálmur kom. Foreldrar hennar voru því mótfallin, að hún ætti hann. En hvað tjáði það. Æsk- an varð að ráða. Hennar var framtíðin, og ef henni skjátlaðist, varð hún líka að taka af- leiðingunum. Hafði hún ielskað Vilhjálm? Líklega. Að minsta kosti verður að kalla það ást, sem ekki er annað réttara orð til yfir.—iSvo fluttu þau liingað. Villijálmur vann mikið, og hann var góður við hana, en hann var þunglyndur og drykkfeldur. Þegar liann var með sjálf- um sér, var ihann stiltur og sanngjarn, en undir eins og hann var búinn að bragða vín, var hann ósanngjarn og grimmur. Þau eignuðust einn son og nefndu liann Halldór, í höfuðið á föður afa hans. Kol- finnu fanst birta yfir, þegar Halldór fæddist, og hún hélt í einfeldni sinni að Vilhjálmur myndi hætta að drekka eins mikið, þegar hann væri orðinn faðir. En þar skjátlaðist henni. Vilhjálmur hafði aldrei drukkið meira en fyrsta veturinn eftir að Halldór fæddist. Kolfinna sat heima ihjá barninu, en Vilhjálm- ur drakk með félögum sínum á hótelinu. Þar var alt af margt um manninn. Þangað fór Vilhjálmur á laugardagskvöldin, og það kom fyrir, að hann eyddi öllu vikukaupinu sínu á einni nóttu. 1 birtingu kom hann heim og slengdi sér í öllum fötunum upp í rúmið við hliðina á Kolfinnu. Hún þorði ekki að láta bæra á sér, því að hefði hún sagt nokkuð eða gert, vissi hún hvað það kostaði. 111 æfi og sífeldar kvalir gera menn lítilláta. Þegar Kolfinna heyrði, að hann var farinn að hrjóta, lofaði ihún guð. — Svefnlausar nætur. — Á daginn eilíft strit. Því að heimilið gat ekki lifað á peningum, sem eytt var í vín á hótel- inu. Hún varð að vinna, svo að þau hefðu eitthvað til að borða. — Efnaða konan getur látið það nægja að gráta yfir óreglu mannsins síns, sú fátæka verður að leggja hönd á plóg- inn. Hún verður að vinna, og hún verður að vaka á daginn, þó að lienni komi ekki dúr á auga alla nóttina. Hjá henni er ekkert til, sem lieitir að sofa út eða hvíla sig. Og Kolfinna vann. Hún saumaði milli þess, sem hún eldaði matinn, gerði búsverkin og sinti litla drengnum sínum. Það var sjald- an ósamlyndi á heimilinu, en gleðin hafði aldrei komið þar Halldór var þó sólargeisli í þessu myrkri. Hann var fallegur og efnileg- ur. Kolfinna reyndi líka að hugisa eins vel um hann og tími hennar og kraftar leyfðu. Oft svalt hún til þess að geta keypt handa hon- um mjólk og mat. Fyr skyldi hún deyja, en hún léti drenginn sinn vanta nokkuð. Hún átti stundum erfitt með að sitja við saumana, þegar Halldór litli grét í vöggunni, 0g hefði liún þá ekki getað óskað sér neinnar sælu æðri en þeirrar að fá að verja öllum sínum tíma til þess að hugsa um drenginn sinn. —Árin liðu. Halldór liljóp um herbergin, hló og grét, ærslaðist og lék sér, og hann klappaði pabba og mömmu. Kolfinnu fanst vera farið að rofa svolítið til. Þegar hún horfði á Halldór leika sér á gólfinu, lagði hún stundum frá sér saumana og tók hann í kjöltu sína. Hún horfði í þessi hýru, saklausu augu, og vonirnar vöknuðu í brjósti hennar. Kann- ske liafði forsjónin gefið henni hann til þess að bæta henni alt hitt. Kf til vill yrði hún svo lánsöm, að hann yrði reglusamur og duglegur. Og hver vissi nema faðir hans sæi þá loksins að sér og.hætti að drekka. — Það færðist bros hennar yrðu heyrðar og þau ættu öll eftir að yfir andlit hennar. Gat það verið, að bænir lifa farsælu lífi á björtu og fallegu heimili? En svo kom haustið, þegar Vilhjálmur lenti í orðakasti við verkstjórann og var sagt liviersvegna honum var. sagt upp. Allir í þorpinu vissu það. Það stoðaði lítið fyrir Kolfinnu að ljúga því, að hann væri veikur. Menn vissu ósköp vel, hverskonar veikindi það voru. Þegar þetta þótti keyra úr liófi, fékk Vilhjálmur áminningu. Það þoldi hann ekki, og svo var honum loks sagt upp. Það versta var ekki, að hann varð atvinnulaus. Hitt var verra, að nú drakk hann margfalt meira en áður. Nú dugðu ekki kvöldin. Það var liyrjað strax á morgnana. Svona fór >hann að því að koma þeim úr sæmilegri íbúð í eina kjallarakompu.—Þau seldu eitthvað af húsmununum. Fólkið fékk dálítið umtalsefni í nokkra daga. Svo fanst því þetta sjálfsagt og hætti að tala um það. Kolfinna þagði. Til hvers var að segja nokkuð ? Vilhjálmur var drungalegur daginn sem þau fluttu—en hann var alt af drungalegur. Það var oft kalt í kjallaranum þann vetur, og matarlítið var þar stundum. Vilhjálmur fékk vinnu, en hún var bæði stopul og illa borguð. Kolfinna vann því meira. En hún var farin að þreytast og fá svima yfir höfuð- ið. Alt í einu sá hún svarta flekki fyrir aug- unum. Hún fékk sér kaldan vatnssopa. Það dugði í bili. Vinnan átti ekki mestu sökina á þessu. Það voru vökunæturnar, nætur í ang- ist og kvíða, þegar Vilhjálmur var einhvers- staðar úti. Eina nóttina hrökk hún upp með áköf- um hjartslætti, og svitanum sló út um hana. Hún reis upp í rúminu og svipaðist um í herberginu. 1 glætunni af næturtýrunni sá hún Halldór sofandi í rúminu sínu. Hún skimaði um alt. Hvergi var Vilhjálmur. Hún andvarpaði. Hana hafði þá verið að dreyma. Hún hafði séð menn koma inn um dyrnar með Vilhjálm alblóðugan. — Ilana hafði áður ið, að einmitt í þetta sinn væri það fyrirboði dreymt það, en samt-------gat það ekki ver- —aðvörun. Hún fór niður úr rúminu, klæddi sig hljóðlega og læddist út. Það var frost og skafrenningur. — Hún hljóp eins og fætur togaði, þó að ihún sæi ekki út úr augunum. Hún átti fult í fangi með að halda að sér sjal- inu. Stundum ætlaði hún varla að ná and- anum. Hárið var farið úr fléttunum og fauk framan í andlitið á henni. Það var orðið að hörðum klakabendlum. — En Kolfinna sá ekki bylinn, fann ekki kuldann. Hún hugsaði um manninn sinn, föður barnsins síns, sem ef til vill lá einhv'ersstaðar í snjónum kalinn —dáinn. Hún ætlaði sér að komast til hótelsins. Það var eini staðurinn, þar sem hún gat liugs- að sér að finna lmnn. Loks kom hún að þessu draugalega húsi. Það var ljós í tveimur gluggum á neðri hæðinni. Hún gat ekki gægst inn. Þeir voru of hátt uppi, en hún sá skugga bera fyrir gluggatjöldin og lieyrði háreysti og glamur í glösum. Stólum var hrundið til og þungum stígvélum stappað í gólfið. Kol- finna mændi á gluggana í þeriri von að þekkja J>ar skugga hans, sem hún leitaði að. En það var árangurslaust. Átti hún að fara inn? Þetta var ekki fyrsta næturferðin hennar til þessa kvalastaðar. Hún liafði komið inn og orðið fyrir háði og ruddaskap drukkinna karlmanna og glotti hótel-kvennanna. Að- eins einu sinni liafði henni tekist að fá Vil- hjálm heim. — Hún leit á fatagarmana og flaksandi hárði. Það liefði þurft minna til þess að koma háfættu tildurrófunum á hótel- inu til að hlæja. En hvað gerði það til? — Ef Vilhjálmur væri inni, myndi hann reka upp skellihlátur þegar hann sæi hana, hlátur, sem nísti hana sárar en öll vein jarðarinnar til samans. Hún þekti Vilhjálm, þegar hann var drukkinn. Það var eins og ótal illir andar hefðu tekið sér bústað í honum. Svo mvndi hann hella yfir hana öllum þeim svívirðing- um, sem hann kynni og reka hana sjálfur iit í bylinn. — Nei, hún ætlaði ekki að þola þetta í eitt skifti enn. Hún ætlaði aldrei að stíga fæti í þetta sauruga hús, þetta hús, sem liún liataði. Og hún sneri heim á leið. — 1 myrkr- inu og bylnum komu allar ógnirnar til henn- ar aftur, þessar hryllilegu myndir. — Var lnin þá svona huglaus, að liún þyrði ekki að fara inn í kofann til þess að vita, livort Villijálm- ur væri þar? Til hvers hafði hún farið út? Kða var hún orðin móðursjúk, Hvers vegna gat hún ekki sofið rólega heima? Hví kærði hún sig ekki kollótta um þetta alt — um þenn- an mann, sem var að tæta hana sundur lif- andi? Hvers vegna fór hún ekki í burtu með drenginn og lofaði Vilhjálmi að sigla sinn eigin sjó? — Ást? — Nei, vitfirring. Hún hlaut að vera vitskert. Það var eina skýring- in. Kolfinna opnaði dyrnar hljóðlega. Vil- hjálmur var ókominn. Halldór svaf. Hún hafði ekki mátt til að afklæða sig, heldur lét fallast niður á stól. Þar sat liún eins og steingervingur og beið hins miskunnarlausa morgundags. Vilhjálmur kom hejim undir morgun. Hann var svo drukkinrf, að honum þótti ekkert undarlegt, þó að Kolfiima væri á fótum. Þegar Halldór var á þrettánda ári, veikt- ist Vilhjálmur snögglega. Hann lá lengi rúm- fastur. Kolfinna sá brátt, að það var ekki til nema einn endir á þeim veikindum. Eitt fagurt sumarkvöld dó hann. Sólin skein inn um litla gluggann. Halldór og Kolfinna krupu við rúmið og báðu guð að taka sál hans til sín. Tíminn leið. Halldór óx og þroskaðist. Hann var hár og karlmannlegur og líktist föður sínum jafnt í skapi sem í útliti. Hann var ljúfur og blíður við Kolfinnu, en þung- lyndur og dulur, eins og faðir hans hafði ver- ið. Kolfinna sá fljótt, að hugur hans stefndi allur til hafsins. Hann undi ekki í landi. Hann varð að fara á sjóinn. Auðvitað varð hann að ráða því. Ekki vildi Kolfinna vera svo eigingjörn að neita honum um það, sem hann þráði mest. En oft var lmn einmana, þegar hann var í burtu, og marga óveðurs- nóttina lá hún andvaka og bað af öllum mætti sálar sinnar fyrir drengnnm sínum,, sem var einhversstaðar úti á hafinu. En þegar hann kom inn eftir langa f jarveru og faðmaði hana að sér, fanst henni sú stund svo fögur, að liún væri hennar ekki verðug. Svo röbbuðu þau saman lengi og sögðu hvort öðru, hvað á dag- ana hefði drifið. Kolfinna brosti gegnum tárin, þegar hún sagði honum, hvað hrædd hún hefði verið um hann í óveðrunum, en hann hló og kysti hana, og hún var stolt af drengnum sínum. Eitt sinn var Halldór venju fremur lengi í landi. Kolfinna fór þá að veita því atliygli, að liann var óvanalega fálátur og dagur í bragði. Hún sá, að hann bjó yfir einhverju, en þorði einskis að spyrja. Loks sagði hann lienni hvað það var. — Hann elskaði stúlku.. Hún hafði leikið sér að honum lengi og loks fleygt honum frá sér, eins og menn fleygja fr ásér blómi, sem þeir hafa verið að fitla við að reita blöðin af. Hann sagði henni, hver stúlkan var. Það var Lára, uppeldisdóttir Gríms á hótelinu. Auðvitað gat Kolfinná (>kki skilið, að drengurinn sinn gæti elskað slíka stúlku. En ástin væri ekki ást, ef það væri hægt að skilja hana. Kolfinna fyrirleit Láru. Halldór elskaði hana. Og Kolfinna kysti burtu tárin úr augum lians. Hann sagðist verða að fara í burtu, eitt- hvað langt í burtu, til þess að gleyma Láru. Hann sagðist ekki þola að sjá hana, ekki hafa kjark til þess að koma svona oft í þennan bæ, þar sem alt minti sig á hana, konuna, sem hann hataði og unni ísenn.. Kolfinna reyndi að telja honum hughvarf. Hún sagði honum að ekkert úthaf væri svo fjarlægt, að sorgir og minningar fylgdu manni ekki þangað. — Hann vildi fara og áleit það einu úrlausnina. —Einliverntíma kæmi hann aftur. Kannske eftir tvö ár—eða mörg ár.. Maxnma mundi lifa lengi ennþá, og liann ætlaði altaf að hugsa til hennar og skrifa henni mörg, löng bréf. Það var á dimmu nóvemberkvöldi, að lnín fylgdi honum niður á bryggjuna.—Þau föðm- uðust. Hvorugt sagði orð. — Kolfinna horfði á skipið sigla út f jörðinn. — Hún var orðin ein eftir á bryggjunni. Þá gekk hún heim- leiðis. — Hún kveið fyrir að opna hurðina. Það var eins og hún væri myrkfælin við sjálfa sig. 1 hálft annað ár fékk húix bréf frá hon- um við og við. Honum leið vel, og liaixn ætl- aði bi*áðum að koma til hennar. — Svo leið langur tími. Ejkkert bréf. — A gamlársdag árið áður kom fregnin um, að skipið, sem hann var á, hefði farist suður í liöfum. _______ (iFramh. á 6. bls.) DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Art» Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sta. Phone 21 ÍS4 — Office tlmar 2-S Heimili 214 WAVERLET ST. Phone 403 288 Wlnnipe*, Manitoba DR. T. GREENBERG Dentist Hours 10 a.m. to 9 p.m. PHONES: Office 36 196 Res. 51 455 Ste. 4 Norman Apts. 814 Sargent Ave., Winnipeg DR. B. H. OLSON 216-220 Medlcal Arta Bldg. Cor. Graham og Kennedy SU. Phone 21 834—Office tlmar 4.30-6 Helmili: t ST. JAMES PLACK Wlnnlpeg, Manitoba DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arta Bldg. Cor. Graliam ob Kennedy Sta. Talsími 26 688 Stundar augna, eyrna, nef og kverka ajúkdóma.—Kr aO hltta kl. 2.30 til 5.30 e. h. HeimiU: 6S8 McMILLAN AVK. Talfllmi 42 691 Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medlcal Arts Bldg. Cor. Graham oe Kennedy Sts. Phones 21 213—21 144 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200 DR. A. BLONDAL 602 Medlcal Arts Bulldlng Stundar sérstaklega kvenna og barna sjúkdóma. Er aC hitta frá kl. 10-12 f. h. og S-5 e. h. Office Phone 22 296 Heimili: 806 VICTOR 8T. Slmi 28 180 Dr. S. J. Johannesson VlCtalstlml e. h. 582 8HERBURN 8T.—8Iml 88 877 Drs. H. R. & H. W. TWEED Tannlceknar 406 TORONTO GENERAL TRUST BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 64 6 WINNIPEG Dr. A. B. Ingimundson TannUrlcnir 602 MEDICAL ARTS. BLDG. Slmi 22 296 Heimllls 46 064 Send Your Printing Orders to Columbia Press Ltd. First Class Work Reasonable Prices A. S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur llkklstur og annast um út- farir. Allur útbúnaCur s& bestl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarOa og legstelna. Skrifstofu talsiml: 86 607 Heimilis talslmi 501 562 A. C. JOHNSON 907 Confederation Life Bldg. Winnipeg Annast um fasteignlr manna. Tekur aG sér aO ftvaxta sparlfé fólks. Selur eldsábyrgC og blf- reiOa ábyrgOir. Skriflegum fyrir- spurnum svaraG samstundis. Skrifst.s. 96 757—Heimas. 81 828 G. W. MAGNUSSON NuddJasknir 41 FURBT 8TREET Phone 36127 SlmlC og semjiC nm samtalKtlma H. A. BERGMAN, K.C. ttlenzkur lögfrcrBingur Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 1666 PHONES 95 052 og 89 048 DR. A. V. JOHNSON hlenakur Tannlceknir 212 CURRT BLDG., WINNIPEG Gegnt pósthúsinu Simi 96 210 Heimllis 88 328 J. T. THORSON, K.C. hlenmkur löofrœBingur 801 Great Weat Perm. Bldg. Phone 92 755 J. RAGNAR JOHNSON B.A., LL.B., LL.M. (Harv). Itlenzkur löpmaBur 405 DEVON COURT Phone 21 459 G. S. THORVALDSON B A., LL.B. LögfrceBingur Skrlfst.: 702 CONFEDERATION LIFE BUILDING Main St., gegnt Clty HaU Phone 97 024 E. G. Baldwinson, LL.B. hlenmkur lögfrœBinour Residence Phone 24 206 729 SHERBROOKE ST. J. J. SWANSON & CO. LIMITED 801 PARIS BLDG., WINNIPBO Fasteignasalar. Leigja húa. Ot- vega peningalún og eidaabyrgú af ’Uln tagi. I aone »4 121

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.