Lögberg - 04.01.1934, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 4. JANÚAR, 1934
3
Sólskin
Sérstök deild í blaðinu
Fyrir börn og unglinga
GAMLl MINN
(Minning)
Eéttu nafni hét hann Óðinn og var líka
nefndur svo nema seinustu árin, að eg kallaði
hann Gamla minn. — Hann var fæddur 29.
júní 1889, en feldur í nóvember 1914, svo að
þaS var í rauninni ekkert uppnefni þótt eg
seinustu árin nefndi hann þessu nafni. Á lit
var hann fagurbleikálóttur, mjög fax- og tagl-
prúSur. Aldrei, alla æfina, var hann öSru
vísi en spikaSur og sællegur; hafSi aldrei
helzt og aldrei meiSst, enda síSutakalaus með
öllu, en dálítiS grár í hnakkfarinu. MeSal-
hestur var hann á hæS, en fremur stuttur, og
afar þrekinn um bóga, liálsstuttur og liáls-
sver. Veitti honum því erfitt aS bera sig hátt,
enda ekki ætlast til þess af honum, aS öllum
jafnaSi.
Fyrstu ástsæld sína átti hann litnum aS
þakka. Foreldrar mínir höfSu átt bleikálóttan
reiShest fyrstan hesta, sem hét ÓSinn. Lang-
aSi þau jafnan. eftir fráfall hans, til að eign-
ast aftur eins litan reiShest. Eg> var 11 ára,
þegar Gamli minn fæddist. Þegar sást aS
fjölgaS var hjá mömmu hans, var og sendur
eftir l>eim, og honum þegar gefiS nafniS ÓS-
inn, eftir hinum.
LofaS var lionum fyrstu þrjú árin að
“ganga undir” og færði liann sér þaS vel í
nyt, þótt miklum erfiðleikum væri það háS
fyrir hann upp á síðkastiS, því aS leggjast
varS hann á hnén til aS ná í “brjóstið.” Á
fimta vetur var hann vanaður og þá kópalinn
fram í “græn grös.” Uppeldið var miðað
við að gera hann ómergisvikinn. Hann átti
að verða reiðhestur móður minnar aðallega,
en fótfúinn reiðhest vildi hún ekki eiga. Þegar
hann svo um vorið 5 vetra gamall, var gró-
inn sára sinna, var mér falið að temja hann.
Eg' sameinaði þá það tvent, að vera bæði
klaufskur og kraftalítill, en hann að hinu
leytinu sterkur ogmjög einrænn í skapi. Tókst
tamningin ekki það sumar sem skyldi af þess-
um ástæðum, þannig meint, að liann var stíf-
ur og ósveigjanlegur þegar því var að skifta,
sem þó lagaðist vonum bráðar.
Þetta sumar lézt móðir mín, en gaf mér
folann áður og lét svo um mælt, að hann skyldi
blessast mér bæSi vel og lengi. Ekki var því
að undra, þótt mér yrði lilýtt til lians þegar
í byrjun. Upp frá þessu var hann reiðhestur-
inn minn, sem engum leiðst að koma á bak né
snerta, hvað sem í boði var. En eg reið hon-
um líka alt, sem eg fór á hesti eftir þetta.
Hann var 6 vetra er hann fór fyrstu lang-
ferðina, sendur mér þá til Reykjavíkur. Vor-
um við margir saman og fórum norður fjöll,
og oft óskynsamlega og illa riðið, eins og
gengur. Þegar kom að Búðará, lét eg þess
getið, að eg væri hræddur við að ríða honum
einum norður yfir Stórasand, í þeirri aur-
bleytu, er þá var á fjöllunum. GuSmundur
óðalsbóndi Þorsteinsson í Holti í Svínadal
var með í förinni. Hann vissi hvað mér var
innan brjósts, spretti af folanum og lagði
linakk minn á hest frá sér, er hann svo lánaði
mér yTir allan Sand. Margt drengskapar-
bragð hefir mér verið gert um dagana, en
varla neitt, er mér hefir þótt vænna um en
þetta — ef til vill af því, að það var gert ó-
beðið og orðalaust. Eg gleyipi því aldri, þótt
í engu hafi eg lauuað það. Þetta var fyrsta
langferð Óðins míns og sú eina, er liann fékk
að ganga nokkuð af leiðinni laus. Eftir það
reið eg lionum öll vor úr skóla og flest haust
í skóla og alt af einhesta, enda fanst mér
orðið eins og eg gerði honum hálfgerða mink-
un, hefði eg hest með honum. E|g fann held-
ur aldrei þreytu á honum ungum né gömlum;
þvert ámóti var hann æfinlega viljugri að
kveldi en morgni. — Haustið 1905 reið eg
honum seinast milli Norður- og Suðurlands.
Bar þá orðiS á fóltaveiki í lionum, er hann
stóS í hlaSi. Lofaði eg honum þá, er og
kvaddi liann og sendi heim úr Borgarnesi, að
eg skyldi ekki oftar ríða honum í langferð,
enda var þá skólanáminu lokiS. Þau 9 ár, er
liann lifði eftri þetta, hvarf fótaveikin alger-
lega; honum líka sjaldan komið þá á bak.
Eg á margs að minnast frá samverutím-
anum, og er það alt “á sömu bókina lært:”
Þrekið óbilugt, alt af jafn fótviss og ábyggi-
legur þótt löngum væri á yngri árunum fariS
ógætilega; viljaeinkennin alla æfina hin sömu:
Þungur geSvilji, sem örfaðist því lengur sem
riðið var, en stífni ekki nema á fyrstu árun-
um; gangurinn eftir vegi og taumhaldi, brokk
eða stökk sem stirt var fyrir fæti og þeg-
ar ekki var sérstaklega mælst til aS fá skeið,
en óðara og ögn var tekið í tauminn lyfti hann
snoppunni til svars og tók “sporið.” Víxl-
spor steig liann aldrei.
Enginn hestur hefir skilið mig betur. Eg
þurfti aldrei að slá í hann né “berja fóta-
stokkinn,” er mér lá á að hann tæki stökkið
fljótt. Eg hallaði mér fram, víst á einhvern
sérstakan hátt, sem hann þekti, en þá var
meiningin að hann tæki fulla ferð af sporinu,
væri verulega viSbragðsgóður, ef til vill til að
reyna sig við aðra, stökkva yfir keldu eða
skurð eða þá til þess að verða skrefadrýgri
í endalok sprettsins á skeiðinu. Mjög var
hann mis-viljugur eftir því hver á honum sat.
Alla æfina var hann káldlyndur og það mér
til raunar, vildi aldrei klapp né neinar gælur
við sig, þótt eg vildi votta honum þakkláts-
semi mína fyrir eitt eða annaS. Mjög oft fór
hann einförum í haga og batt aldrei trygðir
við neitt hross nema Freyju Björns bróSur
míns. Þau voru líka lengst af saman í lang-
ferðunum haust og vor. Af henni virtist hann
ekki mega sjá. Röltstyggur .var hann fram
á efri ár og þá ekki ugglaus með að slá, væri
hann kominn í klípu með að verja sig. AS
öllu öSru leyti var hann sérstaklega þægur
og laus við fælni, hvað sem hann sá eða
heyrði. Á stalli var liann “góður fyrir sig,”
óáreitinn að fyrra bragði, en hafði sinn ó-
mælda skerf fyrir öllum stallbræSrum.
Seinasta veturinn, sem hann lifSi, hafði
eg hann við beitarhús og lét hann nieð ánum
ráSa úti- og inniveru sinni; gaf honum töðu
í stall, sem ærnar náðu ekki upp í. Virtist
hann una þessu ágætlega. NotaSi hann sér
jöfnum höndum það, sem gefið var á garðann
og hitt, sem hann átti sjálfur. Hafði eg hann
á skaflajárnum til öryggis, þegar Ihálkur
gerði, enda var hann vanur því mestalla-
starfstíð sína. Aldrei varð ánum það að
meini um veturinn. Hann fikraði sig í hægð
á milli þeirra og þær stukku fram hjá honum
og undir kviðinn án þess liann kipti sér upp
við.
Vel hefði hann getað lifað lengur, því að
heilsugóður sýndist hann vera, en hinsvegar
leyndi sér ekki, að hann var orðinn mjög
stirður og veitti örðugt að hreyfa sig nema
afar-hægt. Gat eg því ekki lagt á hann það
erfiði, sem honum var í allri notkun, en hafði
heldur ekki ástæður til að gefa honum fleiri
vetur brúkunarlausum, enda þótt hann hefSi
margsinnis átt skiliS að fá að lifa á eftirlaun-
um nokkura vetur, eftir alt og alt í rúm 20
ár, sem eg hafði átt hann og notað.
HaustiS 1914 fór eg til Reykjavíkur til
að leggjast í sjúkrahús. Kvaddi eg hann
áður hinztu kveðju, því að eg la>gSi svo fyrir,
að hann yrði feldur áður en eg kæmi aftur
heim. Hefi eg sjaldan kvatt vini mína með
meiri söknuði. Allan samverutímann og enn
í enduríminningunnji stendur hann fleétum
ofar í huganum. Á hans lilið var kynningin
skuggalaus, en hvað mig snertir, reyndi eg
æfinlega að sýna honum nærgætni og reynast
honum eftir föngum vel. Hann brást trausti
mínu aldrei, reyndi eg þó—einkum á yngri
árum—oft ógætilega mikið á það. En eg hefi
aldrei, hvorki fyr né síðar, fundið mig örugg-
ari á neinu baki en hans.
Og þegar eg hugsa út yfir landamærin, þá
langar mig eigi sízt til að hitta hann aftur,
þeirra vina, sem á undan eru farnir.
TorfastöSum í skammdeginu 1932.
Eiríkur Þ. Stefánsson.
—Dýraverndarinn.
SÖNGVARINN FLEYGI
Söngvarinn fleygi, sumarelski bróðir
svifinn um óravegu heim til mín.
Velkominn, kæri, vertu á fornar slóðir,
varpliólminn er að prýða klæðin sín.
Velkominn enn og heill með hörpu skæra,
heilsar þér, vinur, fósturjörðin kæra.
Söngvarinn fleygi, vinur vængja létti,
vegmóði garpur, hvíl þig nú um sinn.
Þú fylgir sól og sumri á vorum hnetti,
saklausi, fagri, litli smælinginn.
Fjötrar ei neitt þinn fót né bannar veginn,
frjálst er þér valið, lifðu sólarmegin.
Söngvarinn fleygi, ofsóttur um aldir,
öllu ei trúað verður hér á jörð:
hvima um dali liugir jökulkaldir,
lielsári veldur ennþá kúlan hörð.
Alið er dýriS enn í brjósti manna,
ennþá er níðst á rétti smælingjanna.
Söngvarinn fleygi, stiltu þíða strengi,
strjúktu þá létt við yl af sólarglóð.
Loftfarinn slyngi, syngdu sætt og lengi
söngvana þína yfir landi og þjóð.
Söngvari! gefðu vængi vonum minum,
vaggaðu minni sál á tónum þínum.
Söngvarinn fleygi, syngdu um daga bjarta,
sólríka daga á vorri fósturjörð.
Vektu með gleðisöng í hverju hjarta
hugrekki, vonir, lof og þakkargjörð.
Leiddu með söngnum dísir drauma minna.
DrykkjaSu öllu af lindum tóna þinna.
Vilhjálmur Ólafsson,
SkarSsseli á Landi.
—Dýraverndarinn.
SUNNUDAGS HUGLEIÐING
Textinn: Lukas 15, 11—24.
Textinn, sem vitnaS er til hér að ofan,
segir frá syninum, sem liafði farið í fjarlæg
lönd úr heimahúsum, vel búinn að efnum, en
sóaði þar fé sínu og lenti í eymd. Og sonur-
inn ákvað að fara heim til föður síns aftur
og beiðast þess að fá að verða einn af dag-
launamönnum hans. Og svo er sagt frá við-
tökunum, sem hann fékk hjá föður sínum og
g'leði föðursins yfir því, að sá sem týndur
hafði verið var fundinn.
Hversu margir eru þeir, sem ekki eiga
við lík kjör að búa í andlegri merkingu, og
glataði sonurinn átti. Hversu margir eru
ekki þeir, sem þrá aS hverfa heim til föður-
iiúsanna aftur \ Bn þeir hafa ekki kjark til
þess að gera það, ekki kjark til þess að biðja
fyrirgefningar, þó að þeir viti, að hún verður
veitt þeim. Þeir þrá að mega varpa sér fyrir
fætur föðursins, en slá því á frest, vegna þess
að þeim finst svnd þeirra svo mikil, að þeir
geti það ekki. Þeir treysta þvi ekki, að gæska
og' mildi föðursins sé svo mikil, að hann fyrir-
gefi þeim, jafnvel þó að þeir viti, að hann
fyrirgefur hinum mesta syndara.
1 dæmisögunni hefir Jesú.s Kristur brýxit
það fyrir syndugum mönnum, að synd þeirra
er aldrei svo stór, að liún verSi þeim ekki fyr-
irgéfin. Þessi boSun fyrirgefningarinnar
gengur eins og rauður þráður gegnum alla
kenningu hans: að menn iðrist 0g snúi sér til
GuSs. Því að Guð vill ekki dauSa syndugs
manns, heldur að hann snúi sér 0g iifi.
En það eru ekki aðeins þeir, sem standa
í sporum glataða sonarins, sem þurfa að snúa
sér til föðursins og biðja um gæsku hans og
mildi. Allir þarfnast þess, því að án þess
getur enginn kristinn maður lifað gæfusömu
lífi hér á jörð. JarSlífiS yrSi raunaleg bar-
átta manns, sem aldrei kæmist að markinu.
Enginn þarfnast Guðs fremur en einmitt þeir,
sem finst að þeir ekki þarfnist lians. Þeir,
sem láta sér nægja líkamTega vellíðan og
hugsa aldrei um föðurhúsin eða glötunina.
Einmitt þeir, menn þarfnast föðuraugans,
sem aldrei missir sjónar á þeim og föður-
hjartans, sem aldrei þreytist á því að elska
og laða, eins og svo yndislega er sagt í einum
fegursta sálminum í sálmaibók okkar: “Fyrst
boðar GuS sitt blessaða náðarorðið.”
Guð lijálpi oss öllum til, að “bregðast ei
því boði” heldur leita til föðursins miskunn-
sama og góða meðan tími er til. Því að þá
munum vér reyna það sama og glataði son-
urinn gerði: að faðmur föðursins stendur
opinn og að það er gleði yfir heimkomu vorri.
—Fálkinn.
PROPCSSIONAL CARDS
DR. B. J. BRANDSON
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Phone 21 SS4 — Offlce tlmar 2-S
Heimili 214 WAVERLET ST.
Phone 403 288
Winnlpeg, Manitoba
DR. T. CREENBERG
Dentist
Hours 10 a.m. to 9 p.m.
PHONES: Office 36 196
Res. 51 455
Ste. 4 Norman Apts.
814 Sargent Ave., Winnipeg
DR. B. H. OLSON
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Oraham og Kennedy Sta.
Phone 21 834—Office timar 4.30-6
Heimili: 6 ST. JAME8 PLACE
Wlnnlpeg, Manitoba
DR. J. STEFANSSON
216-220 Medical Arta Bldg.
Cor. Oraham og Kennedy Sta.
Talsími 26 688
Stundar augna, eyrna, nef og
kverka ejúkdóma.—Br aS hitta
kl. 2.30 til 6.30 e. h.
Heimili: 6$8 McMILLAN AVB.
Talalmi 42 691
)r. P. H.T. Thorlakson
206 Medlcal Arts Bldg.
2or. Qraham og Kennedy Sta.
Phones 21 213—21 144
Res. 114 GRENFBLL BLVD.
Phone 62 200
DR. A. BLONDAL
602 Medical Arts Building
Stundar sérstaklega kvenna og
barna sjúkdóma. Er a8 hitta
frá kl. 10-12 f. h. og 8-5 e. h.
Office Phone 22 296
Heimili: 806 VICTOR ST.
Simi 28 180
Dr. S. J. Johannesson
ViCtalstimi S—5 e. h.
6S2 SHERBURN ST,—Slmi SO 8T7
Drs. H. R. & H. W.
TWEED
TannUxknar
406 TORONTO OENBRAL
TRUST BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smith St.
PHONE 26 646
WINNIPEO
Dr. A. B. Ingimundson
Tannlarknir
602 MEDICAL ARTS. BLDO.
Slmi 22 296 Helmllis 46 064
Send Your
Printing Orders
to
Columbia Press Ltd.
First Class Work
Reasonable Prices
A. S. BARDAL
848 SHERBROOKE ST.
Selur likkistur og annast um flt-
farir. AJlur ötbflnaCur sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarSa og legsteina.
Skrifstofu talslmi: 86 607
Heimilis talsiml 501 662
A. C. JOHNSON
907 Confederation Life Bldg.
Winnipeg
Annast um fasteignir manna.
Tekur aB sér a8 ávaxta sparlfé
fólks. Selur eldsábyrgB og bif-
rei8a &byrg8ir. Skriflegum fyrir-
spurnum svara8 samstundis.
Skrifst.s. 96 757—Helmas. SS 828
G. W. MAGNUSSON
NuMlœknW
41 FURBT STREET
Phone 26 1S7
SimiB og semjlB um eamtakitlma
H. A. BERGMAN, K.C.
tslenxkur IðgfrartUngur
Skrlfstofa: Room 811 McArthur
Building, Portage Ave.
P.O. Box 1656
PHONES 96 062 og S9 04S
DR. A. V. JOHNSON
tslenzkur Tannlasknir
212 CURRY BLDG., WINNIPEO
Gegnt pósthflsinu
Slml 96 210
Heimilis SS S28
J. RAGNAR JOHNSON
B.A., LL.B., LL.M. (Harv).
izlenzkur lögmaOur
*
40 5 DEVON COURT
Phone 21469
G. S. THORVALDSON
B.A., LL.B.
LögfrœOingur
Skrifst.: 702 CONFEDERATION
LIFE BUILDINÖ
Main St., gegnt City HaU
Phone 97 024
J. T. THORSON, K.C.
lslenzkur lögfrœðingur
801 Great Weat Perm. Bldg.
Phone 92 765
E. G. Baldwinson, LL.B.
tslenzkur lögfrœOingur
Residence Phone 24 206
729 SHERBROOKE ST.
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
601 PARIS BLDO., WINNIPBO
Fasteignasalar. Leigja hðs. Ot-
vega peningal&n og etda&byrgfl af
nUu tagl. J
i jone 64 221 i
J